Selfoss.org

Valur – Selfoss 4-1 – Of stórt tap
Stelpurnar léku sinn fyrsta leik í beinni útsendingu á Hlíðarenda í kvöld gegn Gunna Borgþórs og stelpunum hans í Val.

Valsmenn eru auðvitað með topplið hér á landi og eru ríkjandi bikarmeistarar þó hópurinn hafi breyst töluvert síðan á síðasta tímabili. Til að gera langa sögu stuttu tapaðist leikurinn með fjórum mörkum gegn engu en allt til á 84.mínútu var Selfoss inni í leiknum og nálægt því að jafna rétt áður en Valsarar gerðu út um leikinn. Það er erfitt að meta raunverulegan styrk Valsliðsins í dag en frammistaðan í kvöld er eitthvað sem hægt er að byggja á í sumar.

Melanie Adelman var ekki með í dag en hún þurfti að fljúga heim til Bandaríkjanna af persónulegum ástæðum fyrir þennan leik og tók Íris Sverris stöðu hennar á miðjunni. Nicole McClure komin í markið í sínum fyrsta deildarleik og voru þetta einu breytingarnar á liðinu frá síðasta leik.

Fyrri hálfleikur var nokkuð fjörugur, Valsarar léku aðeins undan vindi og réðu ferðinni en Selfoss ógnaði með skyndisóknum og liðið færði sig ágætlega fram sem heild þegar liðið sótti. Valsmenn fengu mjög margar hornspyrnur í leiknum og komust óþægilega oft í góð færi en í þessum tilvikum sást að við eigum hörku markmann í McClure.

Fyrsta mark leiksins kom á 23. mínútu er  Thelma Björk Einarsdóttir slepp ein í gegn eftir mistök í vörninni og renndi boltanum snyrtilega í hægra hornið framhjá McClure.

Selfoss var búið að jafna tæplega tíu mínútum seinna er Gumma tók góðan sprett í átt að marki heimamanna og náði að stilla fallbyssuna af fyrir utan teig og smellti boltanum í bláhornið framhjá markmanni Valsara. Mjög vel gert hjá Gummu sem var öflug í dag.

Valsmenn skoruðu síðan bölvað óþarfa mark undir lok fyrri hálfleiks er samstarf Dóru Maríu og Elínar Mettu í framlínu Vals gekk loks upp en þær voru búnar að ógna nokkrum sinnuð áður í leiknum en alltaf stoppað á McClure eða varnarmönnum Selfoss.

Hundfúlt að fá þetta mark á sig svona í lokin en svosem ekki hægt að tala um að staðan hafi verið ósanngjörn. Undir lokin lenti Katrín Ýr í samstuði við markmann Valsara og þurfti að fara af velli sem var nokkuð áfall fyrir okkar lið þar sem Katrín var búin að vera spræk í leiknum. Katrín Rúnarsdóttir kom inná fyrir hana. Í seinni hálfleik kom svo Kristrún Antons inná í sínum fyrsta leik í efstu deild fyrir Írisi Sverris.

Seinni hálfleikur spilaðist nokkuð svipað og sá fyrri Valsmenn voru meira með boltann og áttu hættulegri færi en stelpurnar voru inni í leiknum og meðan staðan var 2-1 var alltaf séns. Gumma náði að spóla sig í gegnum vörn heimamanna og var óheppin að skora ekki.

Síðustu tíu mínútur leiksins virtist liðið hinsvegar springa og sprækir varamenn Valsara tóku leikinn yfir og kláruðu hann á endanum.  Þær áttu nokkur dauðafæri sem þær nýttu illa allt þar til á 84. mínútu þegar Telma Þrastardóttir kom þeim í 3-1.

Telma Þrastardóttir bætti svo við sínu öðru marki og fjórða marki Vals á 93. mínútu sem var algjör óþarfi hjá henni.  Katrín Gylfadóttir sem var öflug í lið Valsmanna átti langa sendingu á Telmu sem hljóp af sér sofandi vörn Selfyssinga, lék á McClure og skoraði örugglega.

Tap á Hlíðarenda er enginn heimsendir þó stelpurnar hugsa auðvitað ekki þannig og þó lokatölur hafi verið 4-1 er alveg ljóst að liðið er ekkert fallbyssufóður í þessari deild og getur alveg spilað fótbolta.

Nicole McClure var með bestu leikmönnum Selfoss þrátt fyrir úrslitin – Mynd. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Næsti leikur verður mjög erfiður gegn hinum nýliðunum í deildinni, FH sem stjórnað er af Helenu Ólafs en þær hafa byrjað mótið mjög vel. Leikurinn er á Selfossi 22.maí.

Valur – Selfoss (Pepsideild kvenna)
Erfiður útileikur hjá okkar stelpum nú á föstudag að Hlíðarenda og Valskonur særðar eftir fyrsta leik. Hlutskipti beggja liða í fyrstu umferð var að tapa niður 2ja marka forustu en Valur gerði gott betur en það í Vestmannaeyjum þar sem ÍBV setti 4 mörk á þær rauðklæddu á 21.mínútu en okkar stelpur sýndu klærnar og flottan karakter eftir að hafa lent undir 2-3 gegn KR og náðu stigi geng 11 röndóttum og fullt af vindstigum, geri aðrir betur.

Fyrsti leikur í efstu deild er búinn og því ætti mesta spennan að vera farinn úr stelpunum. Margt sem má bæta en margt jákvætt sem hægt er að taka úr KR leiknum. Þær Gumma, Katrín og Thelma eiga mikið inni frá síðasta leik sem og Eva sem á bara eftir að vera öflugri eftir því sem fram líður. Valorie og Melanie voru góðar á miðjunni á móti þeim röndóttu og verða án efa áberandi í okkar spili í sumar. Sérstaklega hefur Valerie farið mikinn á vellinum síðan hún kom, ógnandi í skotum og skallaboltum upp við mark andstæðinganna, föst fyrir og skilar bolta vel frá sér.

Bubbi er nokkuð fastheldinn á uppstillinguna inn á vellinum og spilar án efa 4-5-1 með tígul-miðju sem virðist gefa góða raun, sérstaklega (að mínu mati) ef Eva er upp á topp og Gumma úti á kantinum. Líklegt byrjunarlið er óbreytt frá síðasta leik nema kannski að Dagga detti út fyrir Nicole í markinu? Það er þó bundið því að Nicole sé orðin leikfær. Annars er bekkurinn án efa tilbúin að koma inn allar sem ein og massa þetta ef einhver meiðsli eða eymsli sitja í mannskapnum eftir rokleikinn á móti KR.

Andstæðingurinn er með mikla hefð á bakvið sig en samt mikil breyting á liðinu frá síðustu árum þar sem ungar stelpur eru að taka við ábyrgðarstöðum innan liðsins og ljóst að Gunni Borgþórs er að búa til nýtt lið í kringum þeirra sigursæla 95 árgang. Elín Mette, Hildur Antons, Berglind Rós og Svava Rós eru allar fæddar ´95 og voru í byrjunarliði Vals í Vestmannaeyjum í síðasta leik. Dóra María, Rakel Logadóttir(meidd), Dagný Brynjars og Mist Eðvalds hafa reynsluna sem þarf til með þeim yngri að ógleymdri Laufey Björns(Bubbadóttir) sem kemur með mikla reynslu úr Árbænum. Í marki þeirra rauðklæddu er eini erlendi leikmaðurinn í þeirra hóp, Brett E.Maron en hún lék með Aftureldingu 2009 þannig að hún er öllu vön hér á landi.  Tapið á móti ÍBV situr í og Gunni Bogþórs vill eflaust kvitta það út með góðum heimasigri á föstudag en við sjáum til með það.

Liðin hafa aðeins einu sinni mæst áður í opinberum KSÍ leik en það var 1988 í bikarnum þar sem Valur vann 0-6 á Selfossvelli.

Spá:  Spá sérfræðinga fyrir þennan leik var og er okkur í óhag en í því felst fegurðin… ef og þegar við vinnum! Mín spá er örlítið lituð, 0-1 sigur Selfoss og  líklega skorar Gumma fyrir okkur sitt fyrst mark í efstu deild.

Að lokum þá vert aðgeta þess að leikurinn er sýndur á Stöð 2 Sport fyrir þá sem ekki komast að Hlíðarenda á föstudag og hefs kl. 19.15 Annars stutt á Hlíðarenda hinn vestari og um að gera að fara í Reykjavík og styðja stelpurnar okkar! Áfram Selfoss.

Anton T.

Selfoss – FH 0-1
Selfoss fær ekkert aukalega í upphafi móts og í kvöld tapaði liðið öðrum leik sínum í röð þrátt fyrir að spila vel lengstum í leiknum og vera í séns allann tímann. Gestirnir í kvöld voru FH-ingar sem voru þó vel að sigrinum komnir og höfðu það sem þurfti til að klára þennan leik. Mjög svekkjandi en leikur liðsins lofar ennþá góðu og liðið getur klárlega betur.

Leikurinn var nokkuð jafn allann tímann þó fyrri hálfleikur hafi verið öllu fjörugri. Bæði lið reyndu að sækja og skapa sér færi og mikið var um hálffæri sem vantaði herslumuninn uppá að klára. Nafnarnir í framlínu FH, Atli Viðar Björnsson og Atli Guðnason voru sprækir í liði gestana og áttu bestu færin á upphafsmínútunum en á meðan voru Selfyssingar oft ágengir í sóknarleiknum en náði ekki að reka endahnút á sóknirnar gegn þéttu liði FH. Björn Daníel var okkur erfiður inni á miðju FH í leiknum og það var hann sem reyndi fyrstur á Ismet Duracak í markinu er hann tók gott skot fyrir utan teig sem Ismet mátti hafa sig allann við að verja.

Jafnræði var með liðunum og á 26.mínútu virtist Babacar Sarr miðjumaður Selfoss hafa brotið ísinn í leiknum er hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu en var dæmdur brotlegur, bakhrinding að mati Þorvaldar Árnasonar dómara og staðan því ennþá jöfn er flautað var til leikhlés.

Seinni hálfleikur var með svipuðu sniði þó aðeins hafi dregið úr sóknarleiknum. FH-ingar voru markvissari í sóknarleik sínum og fengu nokkur ágæt færi áður en Björn Daníel Sverrisson komst einn gegn markmanni og afgreiddi boltann af öryggi í netið.

Selfyssingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin í restina og fengu nokkur ágæt færi sem vildu ekki inn og lokatölur því 0-1 fyrir FH. Viðar Kjartans vildi fá víti undir lokin er brotið var á honum en línuvörðurinn staðsetti brotið fyrir utan teig. Brotið byrjaði fyrir utan teig og hélt áfram inn í teiginn en samt ætlaði Þorvaldur að sleppa þessu allt þar til línuvörðurinn flaggaði.

Selfyssingar hefðu sannarlega getað fengið eitthvað út úr þessum leik rétt eins og þeim síðasta gegn Valsmönnum en FH-ingar gerðu það sem þurfti og náðu að klára leikinn undir lokin líkt og þeir gerðu gegn Fram í síðasta leik.

Liðið er skipulagt og þétt en varnarleikurinn er á köflum nokkuð óöruggur og það er pirrandi þegar liðinu er refsað svona á lokamínútunum líkt og í gerðist í kvöld og einnig í síðasta leik. Með fleiri leikjum getur liðið bara bætt sig enda margir að læra inn á að spila með samherjum sínum.

Næsti leikur er gegn Fram á Laugardalsvelli, mánudaginn n.k. kl:19:15

Selfoss – FH FRESTAÐ (verður á morgun)
Sjá nánar hér:

http://fotbolti.net/fullStory.php?id=126311

Fínt að fresta þessu enda grautleiðinlegt að bæði spila og horfa á fótbolta í svona veðri. Vilji var fyrir þessu hjá báðum liðum að því er ég best veit.

Sjáumst annað kvöld.

Selfoss – KR 3-3
Veðurstofa Íslands var ekkert að grínast þegar hún spáði stormi í kvöld og það er óhætt að segja að stelpurnar hafi byrjað sitt fyrsta tímabil í efstu deild með látun, niðurstaðan 3-3 jafntefli í leik sem einkendist leiðinlega mikið af aðstæðum. Það var stíf norðanátt á annað markið allann leikinn og bætti bara í þegar á leið. Hiti var við frostmark og fór meira að segja undir frostmark og 12-14 m/sek vindurinn hjálpaði ekkert til.

Það er þó óhætt að segja að þau tæplega 300 hörkutól sem lögðu leið sína á Selfossvöll hafi fengið eitthvað fyrir peninginn í kvöld enda boðið upp á sex mörk og nokkur þeirra nokkuð lagleg.

Byrjunarliðið var svona:

Eva Lind

Gumma – Valorie – Katrín Ýr

Melanie – Thelma Sif

Anna María – Þóra – Fransiska – Bergþóra

Dagný Páls

Dagný kom inn í markið á ný þar sem Nicole meiddist á æfingu í gær og var því á bekknum. Selfoss spilaði undan vindi í fyrri hálfleik og sótti því án afláts.

Á 16.mínútu náði besti leikmaður vallarins Valorie O´Brian að koma Selfoss yfir með hörkuskoti fyrir utan vítateig sem söng í netinu, frábær byrjun hjá þessum Bandaríska leikmanni sem lét ákaflega Íslenskar aðstæður ekkert á sig fá. Gumma og Katrín Ýr komust næst því að bæta við marki áður en Valorie stangaði boltann aftur í netið eftir hornspyrnu frá Katrínu Ýr. Glæsilegt mark og staðan 2-0 í hálfleik.

Eðlilega snerist leikurinn gjörsamlega við í seinni hálfleik og nú voru það KR-ingar sem sóttu án afláts. Ólöf Gerður minnkaði muninn á 48.mínútu með góðu skoti hátt á markið sem hafnaði í horninu. Freyja Viðarsdóttir jafnaði metin á 66.mínútu en hún fylgdi á eftir hörku skoti fyrir utan teig sem Dagný varði vel í markinu en náði ekki að halda boltanum. Anna Garðarsdóttir nýtti sér síðan mistök í vörn Selfoss og skoraði þriðja mark KR og kom þeim yfir í leiknum 2-3. Heldur var búið að bæta í vind og kulda og útlitið því ekki gott.

Áhorfendur skiluðu sér reyndar alls ekki allir í stúkuna í seinni hálfleik enda vindurinn og kuldinn slíkur að stór hópur horfði á leikinn úr Tíbrá þar sem var skjól. Okkur reiknaðist til með hávísindalegum hætti að það væri ca. -8 gráðu frost með vindkælingu.

Til marks um þetta skemmti fjölmiðlagámurinn sér dágóða stund yfir því að horfa á ferðalag Hettumávs sem var á leið á Þingvelli en gekk álíka illa að eiga við rokið og Selfoss liðinu gekk að komast yfir miðju og fauk jafnan til baka. Reyndar var líka gantast með að við þriðja markið hafi líka fokið í Kjartan Björnsson sem hvatti liðið ákaft áfram af hliðarlínunni.

Það virtist virka og stelpurnar gáfust ekki upp og Eva Lind gerði mjög vel í því að jafna leikinn í einni af örfáum skyndisóknum Selfoss liðsins. Eva er eldsnögg og sterk og náði að komast í gegn og skoraði af öryggi framhjá Higgins í marki KR.

Staðan 3-3 og heimamenn hengu á því allt til enda þrátt fyrir nokkrar tilraunir KR-inga sem m.a. fengu nokkrar aukaspyrnur og hornspyrnur á hættulegum stöðum í restina.

Fín úrslit m.v. hvernig staðan var orðin á tímabili í seinni hálfleik og stelpurnar geta verið stoltar af frumraun sinni í Pepsi deild kvenna.

Leikmaður (leikkona?) leiksins: Valorie O´Brian. Þetta er augljóslega mjög sterkur leikmaður sem verður spennandi að fylgjast með í sumar inni á miðjunni í Selfoss liðinu.

Næsti leikur er á fimmtudaginn gegn Gunna Borgþórs og hans stelpur í Val, sá leikur er í beinni á Stöð 2 Sport.

Selfoss – KR (Pepsideild kvk)
Pepsi deild kvenna hefst á sunnudag kl: 19:15 og eiga stelpurnar leik við KR á heimavelli í fyrsta leik. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að þetta er fyrsti leikur mfl. kvk í efstu deild og því hvetjum við að sjálfsögðu alla til að fjölmenna á völlinn og styðja stelpurnar.

Það er eins með stelpurnar og strákana, fáir utan Selfoss hafa trú á liðinu  og er okkur spáð falli á fótbolta.net. Sama má reyndar segja um KR liðið en það er auðvitað þessara liða að afsanna slíkar spár.

Selfoss liðið er ekki mikið breytt frá síðasta ári utan þess að við hópin hafa bæst þrjár stelpur frá Bandaríkjunum sem miklar vonir eru bundnar við. Íslenska leikmenn er erfitt að fá yfir heiðina þó ég reyndar viti ekki hversu mikið var reynt við þann markað.

Breytingarnar á hópnum frá síðasta ári eru svona:

Komnar: Melanie Adelman, Nicole McClure, Valorie O’Brien

Farnar: Guðrún Arnardóttir í Breiðablik

Hættar: Aníta Guðlaugsdóttir, Anna Þorsteinsdóttir, Bára Sif Guðlaugsdóttir, Dagný Hanna Hróbjartsdóttir, Lena Rut Guðmundsdóttir.

Stelpurnar endurvöktu meistaraflokk fyrir 4 árum og liðið hefur að mestu vaxið saman og lykilmenn liðsins eru ennþá þeir sem komu upp í mfl. fyrir þremur árum. Leikmenn liðsins hafa litla sem enga reynslu í efstu deild en margar hafa getuna til að spila í efstu deild og vel það. Núna er komið að því og verður spennandi að sjá liðið á stóra sviðinu. Undanfarin ár hafa síðan komið inntil viðbótar ungar ogmjög efnilegar stelpur en hópurinn er ekki stór og reynsluleysið er smá áhuggjuefni.

Fótbolti.net stillir upp líklegu byrjunarliði Selfoss:

Þetta jafn líklegt og hvað annað þó það sé alltaf erfitt að lesa í fyrsta leik. Það er ljóst að það er kominn nýr markmaður og  hefur Dagný Páls verið að spila sem útileikmaður af og til í vetur. Þær Bandarísku eru saman á miðjunni skv þessu með Thelmu fyrir aftan og sóknarlínan er eldsnögg og getur refsað á mjög skömmum tíma.

Spá: Selfoss vann KR á útivelli fyrir stuttu í einum af fáum undirbúningsleikjum liðsins fyrir mót. Segjum að þær endurtaki leikinn og vinni 2-0. Gumma skorar bæði mörkin.

Viðbót: Sunnlenska.is er með upphitun fyrir leik í dag, sjá hér.

Selfoss mætir FH kl 19.15 á mánudag
Selfyssingar taka á móti FH á Selfossvelli mánudaginn 14. maí. Leikurinn hefst kl 19.15, en ágætt er að vera mættur tímalega því búast má við fjölmenni á leikinn. Selfyssingar töpuðu síðasta leik gegn Val eftir að hafa unnið ÍBV í fyrst leik. FH vann aftur á móti Fram í síðasta leik eftir að hafa gert jafntefli við Grindavík í fyrsta leik í Íslandsmóti. Þetta þýðir að FH er í 4. sæti með 4 stig og Selfoss í 5. sæti með 3 stig.

Fyrri viðureignir

Fyrsti leikur Selfoss og FH sem heimildir eru til um er síðan 27. ágúst 1969 og var hann í bikarkeppninni, en þann leik vann Selfoss 2-0. Ári seinna, eða 1970 unnu Selfyssingar svo fyrri leikinn gegn FH í deild 4-0 og Hafnfirðingar eðlilega að verða langþreyttir á endalausum tapleikjum gegn Selfoss. Það lá því beint við hjá FH-ingum að gefa seinni leikinn til að spara sér ferðakostnaðinn og það gerðu þeir.

En tveimur árum eftir að Hafnfirðingar gáfu sinn leik, eða árið 1972 unnu FH nokkuð óvænt 2-1 sigur á Selfyssingum. Selfyssingar komust yfir með marki Sigurðar Reynis Óttarssonar og það voru svo þeir Pálmi Sveinbjörnsson og Helgi Ragnarsson sem tryggðu FH sigur.

Árið 1979 leiddu FH-ingar B-deildina, en urðu að lúta í grasi gegn Selfyssingum á Selfossi. Þeir Heimir Bergsson og Gísli Sváfnisson skoruð mörk Selfyssinga. En auk þeirra var Einar Jónsson fyrirliði bestur í liði Selfoss í þessum leik.

Selfoss vann stórsigur á FH 1-5 árið 1988 í B deildinni. Kristján Hilmarsson kom FH yfir á þeirra heimavelli en Jón Birgir Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir Selfoss, Vilhelm Fredrikssen, Þórarinn Ingólfsson og Guðmundur Magnússon skoruðu eitt mark hver.

Alls hafa liðin mæst 18 sinnum í leikjum á vegum KSÍ. FH hefur unnið 12 leiki og Selfoss hefur unnið 6 leiki. Það sem vekur athygli er að enginn af þessum leikjum hefur endað með jafntefli. Tölfræðin er því 12-0-6 Hafnfirðingum í hag og því álíka greindarlegt fyrir getspaka að setja x á þennan leik eins og að setja seðilinn í sjóð 9 hjá Glitni sumarið 2008.

Run-ið

Síðustu sex leikir liðana í deild líta svona út, síðasti leikur er aftast. Þar sem aðeins eru búnir tveir leikir á íslandsmóti kemur tímabilið í fyrra inn í þetta. S er sigur, J er jafntefli og T er tap.

Selfoss  : S-S-S-S-S-T

FH         : J-S-S-S-J-S

Skiptimarkaður.

Heimir Bergsson einn efnilegast knattspyrnumaður Selfyssinga á sínum tíma skipti yfir í FH og lék með þeim árið 1980. Hann meiddist svo um sumarið og kom aftur heim, náði sér af meiðslum og átti farsælan feril með Selfyssingum. Ingi Björn Albertsson tengdapabbi Gumma Ben, hefur leikið með báðum liðum og einnig þjálfaði hann FH á sínum tíma. Hörður Hilmars hefur þjálfað bæði liðin, sem og Ólafur Jóhannesson núverandi landsliðsþjálfari, en árangur hans með liðin er ekki samanburðarhæfur, sem reyndar er ekki honum að kenna. Isudin Daði Dervic núverandi þjálfari Aftureldingar fór frá Selfoss í Val á sínum tíma og gekk svo yfir í FH. Markmennirnir Gunnar Björn Helgason og Guðjón Skúli Jónsson sem báðir spiluðu nokkra unglingalandsliðsleiki þegar þeir voru í yngri flokkum Selfoss, voru varamarkmenn fyrir Daða Lárusson á sínum tíma. Þannig að FH hefur fengið fjóra efnilega stráka frá okkur og þyrftu að fara borga það til baka með einhverjum hætti.

Leikurinn sjálfur:

Líklegt byrjunarlið Selfoss: Ismet, Ivar, Stefán Ragnar, Endre, Robert, Babacar, Ingó Tóta, Jón Daði, Jon Andre, Ólafur Karl og Abdulay. Viðar Örn, Siggi Eyberg og Tommi Leifs komu allir með góða innkomu síðast og svo er spurning hvort Andri Freyr og Joe Tillen verði klárir. Cisse verður þó sennilega ekki komin með leikheimild fyrir FH leikinn.

Líklegt byrjunarlið FH: Gunnleifur, Guðjón Árni, Guðmann Þóris, Freyr Bjarna, Viktor Örn, Pétur Viðarsson, Björn Daníel, Hólmar Örn, Ólafur Páll, Atli Guðna og Atli Viðar Björnsson. Bjarki Gunnlaugs byrjaði síðasta leik og gæti auðvitað byrjað þennan, en Hólmar örn er komin úr meiðslum og ég set hann í liðið. Englendingurinn Danny Thomas æfir með FH þessa dagana, hann er örfættur og getur bæði leikið í bakverði og á kanti.

Stuðningsmenn:

Skjálfti mætti á Hlíðarenda svo eftir var tekið. Það var alveg frábært að fá strákana, sem sennilega hafa ekki verið betri. Skjálfti í ham er besta stuðningsmannasveit Íslands og munar alveg ótrúlega mikið um þá. Nú bíð ég bara spenntur eftir að Skjálfti taki skemmtilegasta fótboltalagið frá frændum okkar, sjá hér. FH-ingar eiga einnig góða stuðningsmannasveit sem heitir Mafían. Síðasta spjallumræðan á heimasíðu FH ber yfirskriftina „er Mafían dauð“ við skulum svo sannarlega vona ekki og skorum á þá að taka road trip á þetta og mæta Skjálfta í stúkunni á Selfossi.

Ársmiðahafar hittast klukkutíma fyrir leik og grilla saman. Eins mun einhver úr þjálfarateyminu koma, ræða við hópinn og fara yfir leikskipulagið.

Valur – Selfoss 3-1 – Hrikalega svekkjandi tap
Það er óhætt að fullyrða að þetta hafi alls ekki fallið með okkur á Hliðarenda í kvöld, niðurstaðan 3-1 tap en það gefur ekki góða mynd af gangi leiksins.

Leikplanið fór út í veður og vind strax á 1.mínútu og það sást strax að okkar menn komu ekki eins tilbúnir til leiks og gegn ÍBV. Hörður Sveinsson sem skoraði eitt mark í fyrra skoraði strax í fyrstu sókn Valsmanna í kvöld er hann hamraði sendingu frá Jobe í netið. Vörnin steinsofandi og þó það verði að gefa bæði Jobe og Herði að þetta var mjög vel gert hjá báðum.  Hræðileg byrjun.

Strákarnir svöruðu þessari byrjun þó vel og tóku alveg yfir leikinn og reyndu að brjóta þétta vörn heimamanna niður. Valur er eitt leiðinlegasta lið landsins til að lenda 1-0 undir og það fór mikil orka í að reyna jafna metin án árangurs í fyrri hálfleik. Mikið var um misheppnaðar sendingar og leikmenn voru oft að taka allt of margar snertingar á boltann en Selfoss var engu að síður töluvert sterkari aðilinn þrátt fyrir að vera 1-0 undir í hálfleik.  Stefán Ragnar komst næst því að jafna í fyrri er hann skallaði framhjá úr úrvalsfæri.

Það reyndar er ekki hægt að tala um þennan leik án þess að minnast á Skjálfta sem mætti með látum þegar ca. 5.mínútur voru búnar af leiknum og gjörsamlega eignaði sér stúkuna og reif stuðningsmenn Selfoss með sér. Að fá Skjálfta aftur er eins og að fá nýjan leikmann og vonandi eitthvað sem verður áfram í sumar.

Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri endaði nema hvað Jon Andre Royrane hamraði boltanum á lofti í netið eftir frábæran undirbúning strax í upphafi seinni. Frábært mark og líklega það besta í þessari umferð og kveikti heldur betur í stemmingunni sem þó var góð fyrir. Selfoss var mikið sterkari á þessum kafla og hélt áfram að sækja en gekk illa að brjóta vörn heimamanna.

Valsmenn skiptu Matthíasi Guðmunds, Andra Fannari og Kolbeini Kárasyni inná í seinni og náðu með því að skerpa aðeins á skyndisóknum sínum. Matthías náði að grísa inn marki á 78.mínútu þvert gegn gangi leiksins og var það heldur betur af ódýrari gerðinni. Matti fékk að hlaupa allt of langt með boltann inn á teiginn og laust skot Matta fór í Stefán Ragnar og lak í hornið. HRIKALEGA svekkjandi að fá þetta í andlitið enda Selfoss búið að vera mun líklegra allann seinni hálfleik.

Jón Daði var grátlega nálægt því að jafna í næstu sókn er hann spólaði sig í gegnum vörn Valsmanna en skaut í slánna og yfir. Jón Daði var oft að fara illa með varnarmenn Vals í leiknum, sérstaklega í seinni hálfleik en hafði ekki heppnina með sér í skotum sínum á markið.

Valsmenn kláruðu svo leikinn endanlega þegar okkar menn freistuðu þess að jafna en besti leikmaður Valsmanna í dag, Rúnar Már Sigurjónsson komst í gegn og hamraði boltanum í netið eftir sendingu frá Kolbeini Kárasyni.

Okkur var refsað illa í þessum leik en hafa ber í huga að liðið er ennþá að slípa sig saman og menn að læra inn á hvern annan.  Vörnin var nokkuð óörugg í leiknum og þó reyndar hafi ekkert dottið með þeim í dag. Á miðjunni voru þeir Babacar og Jón Daði sprækir, Babacar líklega okkar besti maður en Jón Daði óx þegar leið á leikinn. Ndiaye var að hlaupa mikið og reyna þó ekki hafi komið mikið út úr því og ljóst að varnarmenn Vals þurftu að hafa mikið fyrir honum Royrane var eins sterkur í leiknum og markið hans frábært.

Ólafur Karl í baráttu um boltann – Selfoss frumsýndi nýja varabúninga í kvöld. – Mynd mbl.is/Kristinn

Stundum er þetta bara svona, næst er það FH á heimavelli á mánudaginn.

Aðstæður: Frábærar aðstæður, Hlíðarendi er einn flottasti völlur landsins, veðrið var síðan mjög gott.

Áhrofendur: Tæplega 1.600 og stemmingin var öll Selfoss megin enda Skjálfti mættur og í banastuði.

Valur á morgun 10. maí kl 19:15 á Hlíðarenda.
Selfoss skellir sér á Hlíðarenda á morgun og keppir þar við KFUM og K félagið Val. Fyrir tveim árum þegar við vorum þar síðast lutum við í gras 2-1 eftir að hafa komist 0-1 yfir með marki frá Davíð Birgissyni. Gaman að kíkja á leikskýrsluna úr þeim leik. Í liði Vals eru ennþá 3 byrjunarliðsleikmenn þeir Atli Sveinn fyrirliði, Rúnar Már og Haukur Páll, hjá okkur eru 7 leikmenn ennþá af þeim 11 sem byrjuðu (þessi fjórir sem eru hættir eða farnir eru Gummi Tóta í ÍBV, Jón Guðbrands í Víking R., Davíð Birgis í KV og Arilíus Marteinsson í Ægi).

Kíkjum á textalýsinguna frá fótbolta.net úr síðasta leik þessara liða á Hlíðarenda.

4. mín Stuðningsmenn Selfyssinga í Skjálfta láta vel í sér heyra og nokkuð ljóst að eitthvað gæti orðið um veikindi á vinnustöðum á Selfossi á morgun.

76 mín Áhorfendur í dag eru 1009 og líklega ca 4 af þeim sem hafa komist nálægt því að öskra áfram Valur. Skjálftamenn yfirgnæfa stúkuna. „

Áhugaverðar tölur í ljósi þess að mikið hefur verið gert úr hlut útlendinga hjá okkur. En það virðist skipta rosalega miklu máli að leikmaðurinn sem er keyptur til félagsins hafi íslenskt vegabréf, þannig hefur Valur alveg verið laus við þessa umræðu þrátt fyrir að aðeins 2 leikmenn af þeim sem tóku þátt í síðasta leik hjá þeim séu uppaldir Valsarar.

Sagan er með okkur í þessum leik. Selfoss hefur alltaf unnið leik númer 2 í efstu deild og við höfum líka alltaf unnið 1. útileikinn í móti.

Það eru væntanlega allir heilir sem spiluðu síðasta leik, Viðar er allur að koma til og var hress þessar 30 mín sem hann fékk gegn ÍBV og er örugglega alveg æstur í að opna markareikninginn sinn. Joe er líka að koma til og gæti dottið inn. Þá er aldrei að vita með Sigga Eyberg og Agnar Braga þeir geta komið inn líka. Taftaf Cissé er ekki kominn með leikheimild eins og er enn það er spurning hvort það verði komið í gegn á morgun, annars spái ég óbreyttu liði, nema hugsanlega kemur Viðar inn á toppinn.

Hvað ránfylgið áhrærir þá er þeirra besti maður Haukur Páll tæpur og jafnvel mjög ólíklegur miðað við fréttir dagsins. Annars er það mitt persónulega mat að þeir hafa alls ekkert betri hóp en við, hann samanstendur af aðkeyptum leikmönnum 8 sem komu inn í vetur og allir nema einn úr næstefstu deild. Við erum bara betri!

Annars þarf lítið að peppa menn upp fyrir leik við Val. Klúbburinn er ekki hátt á vinsældalistanum hjá okkur og persónulega skoðun mín á honum kemur fram í podcastinu okkar. Það er hinsvegar leiðinleg staðreynd að margt við hann er til fyrirmyndar og munum við sjá á morgun eitthvert það alflottasta fótboltamannvirki á Íslandi í dag. Þá er vel hlúð að þeim örfáu stuðningsmönnum sem enn eru eftir hjá þeim.

Eina sem eftir er að segja um þennan leik er bara. Fjölmennum á leikinn og látum vel í okkur heyra svo fólk virkilega taki eftir. Ef við mætum í stuði verða strákarnir það líka og þá erum við klárlega að fara að taka þennan leik.

Að lokum bendum við lesendum sem notast við samskiptavefinn twitter að setja #orgid í textann hjá sér þegar fjallað er um Selfoss á einhvern hátt, þá kemur það hérna til hliðar. Sérstaklega þegar liðið er að keppa. Þannig aðgreinum við aðeins tweet um Selfoss líka.

Hér má annars sjá hvað ratar í þennan glugga hér vinstramegin.

Ingó Tóta leikmaður umferðarinnar
Ingó Tóta var valinn leikmaður 1.umferðar hjá bæði fótbolta.net og 433.is og óskum við honum að sjálfsögðu til hamingju með það. Ingó stóð sig mjög vel í jöfnu liði Selfoss gegn ÍBV og er vel að þessu kominn en talar sjálfur um að hann vilji halda þessu leveli áfram og vera stöðugur í sumar.

Hér má sjá viðtal við hann á fótbolta.net

http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=125931

Hér má svo sjá viðtal við kappann á 433.is

http://www.433.is/frettir/island/gorilla-1_-umferdar-madur-tekur-baejarhatidirnar-38-ara/

Ingó og Jón Daði eru síðan fulltrúar Selfoss í liði umferðarinnar:

Hér er síðan viðtal við Ingó eftir leik

http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=125836