Umfjöllun
15. maí ´12 | babu | 0 athugasemdir
mfl. karla-Umfjöllun
Selfoss fær ekkert aukalega í upphafi móts og í kvöld tapaði liðið öðrum leik sínum í röð þrátt fyrir að spila vel lengstum í leiknum og vera í séns allann tímann. Gestirnir í kvöld voru FH-ingar sem voru þó vel að sigrinum komnir og höfðu það sem þurfti til að klára þennan leik. Mjög svekkjandi en leikur liðsins lofar ennþá [...]
10. maí ´12 | babu | 3 athugasemdir
Fréttir-mfl. karla-Umfjöllun
Það er óhætt að fullyrða að þetta hafi alls ekki fallið með okkur á Hliðarenda í kvöld, niðurstaðan 3-1 tap en það gefur ekki góða mynd af gangi leiksins. Leikplanið fór út í veður og vind strax á 1.mínútu og það sást strax að okkar menn komu ekki eins tilbúnir til leiks og gegn ÍBV. Hörður Sveinsson sem skoraði eitt [...]
08. maí ´12 | babu | 3 athugasemdir
Fréttir-Leikmenn-mfl. karla-Podcast-Umfjöllun-Undirbúningstímabil
Fyrsti Podcastþáttur ársins 2012 er kominn í loftið. Undirritaður stýrir þættinum og með mér eru þeir Már Ingólfur Másson (Máser) og Elvar Gunnarsson. Tómas Þóroddson var fjarri góður gamni en við stefnum á að halda þessum upptökum úti í sumar og fá til okkar gesti í einhverja þætti. Í þessum þætti fórum við m.a. yfir frábæran sigur í fyrsta leik, [...]
07. maí ´12 | babu | 6 athugasemdir
Fréttir-mfl. karla-Umfjöllun
Það er óhætt að segja að byrjunin á tímabilinu hafi verið gríðarlega góð hjá okkar mönnum en strákarnir gerðu sér lítið fyrir og lögðu eyjamenn að velli í fyrsta leik og það með sannfærandi hætti þó þeir hafi fengið óþarfa líflínu í restina. Viðar Örn var á bekknum í dag þar sem hann er ekki kominn í 100% leikform vegna [...]
19. apríl ´12 | Tomas | 0 athugasemdir
Annað-mfl. karla-Umfjöllun-Undirbúningstímabil
Selfyssingar gerðu í gær 3-3 jafntefli við Leikni á grasvellinum á Eyrarbakka. Leikurinn var frekar kaflaskiptur þar sem Selfyssingar áttu hörku góðar sóknir, en duttu niður þess á milli. Nýr leikmaður Musthapa Cisse lék sinn fyrsta leik fyrir Selfoss og stóð hann sig ágætlega, skoraði mark og lagði upp eitt. Nokkrir leikmenn Selfyssinga voru ekki með í leiknum vegna meiðsla, [...]
