Archive for the “mfl. karla” Category

Tap gegn Fram og Alli ílengist fyrir vestan

Selfyssingar tóku á móti Fram í fyrsta leik Lengjubikarsins um helgina. Fram liðið hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og kláruðu Reykjarvíkurmótið næsta auðveldlega er þeir tóku KR 5-0 í úrslitaleiknum.

Byrjunarlið Selfoss var eftirfarandi: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Ivar Skjerve, Endre Brenne, Andri Freyr, Ingó Tóta (Sindri Rúnars) Ingi Rafn (Ingvi Rafn), Jón Daði, Ólafur Karl, Joe Tillen og Viðar Örn.

Leikurinn var heilt yfir í nokkru jafnvægi. Fram komst yfir á 12. mín með góðu marki. Stuttu seinna komst Viðar Örn í gott færi eftir góðan undirbúning frá Jóni Daða og Óli Kalli fylgdi vel á eftir en aftur var varið. Í seinni hálfleik átti Sveinbjörn Jónasson skot í stöng. Viðar Örn skoraði gott mark fyrir Selfyssinga sem dæmt af vegna rangstöðu. Fram skoraði svo seinna mark sitt á 93. mín úr aukaspyrnu af 50 metra færi.

Ingvi Rafn Óskars kom inn fyrir Inga Rafn og Sindri Rúnars kom inn fyrir Ingó Tóta. Sindri Rúnars var að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Selfoss og óskum við honum til hamingju með það, en Sindri er fæddur árið 1995. Gaman er einnig að segja frá því að systir hans Sindra, hún Katrín Rúnars sem er fædd 1996 spilaði sama dag sinn fyrsta meistaraflokksleik, er Selfoss tapaði 4-2 gegn Breiðablik. Þar skoraði hún meira að segja annað mark Selfoss.

Fyrir þá sem láta það sig einhverju máli skipta þá voru 7 uppaldir leikmenn í byrjunarliði Selfoss, en 2 í byrjunarliði Fram. Og varamenn Selfoss komu líka allir úr unglingastarfinu þar. Ekki það að það skipti öllu, en sumir hafa gaman að svona tölum.

Næsti leikur er gegn Þrótt og fer hann fram föstudaginn 24. feb kl 21.00 í Egilshöll.

Þau leiðinlegu tíðindi voru svo að berast vestan að fjörðum að Arilíus Marteinsson getur ekki tekið þátt í Íslandsmótinu í ár vegna fjölskylduaðstæðna. Við vonum bara að Alli komi að ári enn sterkari.

Deildarbikar – Selfoss vs Fram

Strákarnir fá erfitt verkefni í fyrsta leik deildarbikarsins er nýkrýndir Reykjavíkurmeistarar Fram etja kappi við þá í Egilshöll n.k. laugardag kl: 17:00

Fyrir þá sem komast ekki svona utarlega á Stór-Selfoss svæðið þá er hægt að horfa á leikinn á netinu á SportTV.

Hvetjum alla til að kíkja á strákana, nú fer þetta að verða gaman.

febrúar 17, 2012 Posted Under: mfl. karla   Read More

Selfoss-Keflavík 1-0

Selfoss og Keflavík léku á laugardaginn loka leik sinn í fotbolta.net mótinu. leikið var um 7. sæti og voru það Selfyssingar sem höfðu betur, unnu 0-1 með marki frá Viðari Erni Kjartanssyni. Þetta flotta mót leyfir liðunum að nota leikmenn sem ekki eru á samning og nýttu bæði lið sér það um helgina. Selfyssingar voru með þá Moyo Modise frá Suður Afríku og Allan Arenfeldt Olesen frá Danmörku.

Daninn Allan Olesen er 29 ára gamall varnarmaður frá Danmörku. Hann hefur leikið 46 landsleiki fyrir yngri landslið Danmörku, var valinn efnilegasti 19 ára leikmaður Danmörku árið 2000. Hann varð Danskur meistari og bikarmeistari með Brönby á árunum 2000-2004 er hann fór til FC Nordsjælland. Hann hefur einnig spilað í Norsku og Finnsku efstu deildinni, samtals yfir 200 leiki í efstu deildum í Skandinaviu. Það væri því virkilega flott að semja við þennan strák og rökrétt skref til að þroska liðið.

Byrjunarlið Selfoss var eftirfarandi: Jóhann Ólafur, Ivar Skjerve, Allan Olesen, Endre Brenne, Andri Freyr, Ingó Tóta, Robert Johann Sandnes, Jón Daði, Óli Kalli, Joe Tillen og Moyo Modise.

Keflvíkingar byrjuðu leikinn betur og á þriðju mínútu fengu þeir verðskuldað víti. Jóhann Ólafur varði vítið að sjálfsögðu. Eftir um korters leik fóru Selfyssingar í gang og voru betri út hálfleikinn, án þess þó að skapa sér umtalsverð færi.

Í hálfleik kom Viðar Örn inná fyrir Moyo. Viðar Örn skoraði úr sinni fyrstu snertingu er hann lagði boltann snyrtilega í netið eftir frábæran undirbúning hjá Jóni Daða sem fór illa með vörn Keflavík. Siggi Eyberg kom svo inn fyrir Robert Sandnes og þá fór Ivar inn á miðju. Ingi Rafn kom svo inn fyrir Ivar. Selfyssingar höfðu leikinn nokkuð veginn í hendi sér og unnu verðskuldað. Nokkrir leikmenn að spila vel í þessum leik fyrir Selfoss og alltaf jákvætt að halda hreinu.

Næsta laugardag hefst svo Lengjubikarinn með leik Selfoss og Fram. Framarar eru í nokkuð góðu formi þessa dagana og unnu t.a.m KR 5-0 í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. Leikið verður í Egilshöll laugardaginn 18. febrúar og hefst leikurinn kl 17.00. Robert Johann Sandnes verður ekki með þar sem félagsskiptaglugginn verður ekki opnaður fyrr en eftir helgi.

febrúar 14, 2012 Posted Under: Annað, mfl. karla, Umfjöllun, Undirbúningstímabil   Read More

Sigur gegn Keflavík + leikmannamál.

Strákarnir luku keppni í Fótbolti.net mótinu í dag með því að leggja Keflavík í Reykjaneshöllinni. Lokatölu í leiknum voru 0-1 og var það Viðar Örn Kjartansson sem skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik. Selfoss endaði þar með í 7.sæti í þessu upphitunar móti fyrir upphitunarmótið. En hafa ber í huga að liðið er ekki fullmótað ennþá og langt í mót.

Að því sögðu þá skrifaði Ingólfur Þórarinsson undir tveggja ára samning við Selfoss á dögunum sem eru mjög góðar fréttir. Ingó átti ekki sérstakt tímabil í fyrra hjá losaralegu liði Víkinga og það virkar ekki að sjá hann í öðrum búningi en Selfssbúningum. Hann á nóg inni og gæti orðið lykilmaður hjá okkur í sumar.

Annars fengum við það líka staðfest í kvöld að Ingó fer ekki til Baku til að fylgja sínu lagi í Eurovision, en hann var höfundur lags sem hafnaði í 2.sæti. Góðar fréttir fyrir Selfoss liðið a.m.k. og eitthvað rámar okkur í að hann hafi sungið um það að lenda í öðru sæti í þessari ágætu keppni.

Að auki voru tveir leikmenn til skoðunar í leiknum gegn Keflavík, annar þeirra kemur frá S-Afríku og heitir Moyo Modise. Hann er 28 ára og hefur leikið með U21 og U23 ára landsliði Suður-Afríku og í suður Afrísku deildinni, auk þess sem hann hefur leikið í neðri deildum í Englandi með Rochdale, Mossley, Altrincham og síðast Ashton United.

Hinn leikmaðurinn heitir Allan Arenfeldt Olesen og er mjög spennandi leikmaður sem gæti búið að reynslu sem Selfoss þarf á hæsta leveli. Olesen er 29 ára í dag en á að baki 46 landsleiki fyrir Danmörku í yngri landsliðunum. Þar af 22 með U21. Árið 2000 var hann m.a. valinn talent of the year á U19 ára leveli í Danmörku.

Hann hóf ferilinn hjá Brönby og spilaði með þeim 47 leiki frá 2000-2004 og vann m.a. deild og bikar. Næstu fjögur ár á eftir tók hann með FC Nordsjælland þar sem hann spilaði 109 leiki áður en hann gekk til liðs við Randers. Hjá þeim spilaði hann 20 leiki árið 2009 en datt úr liðinu næsta tímabil á eftir og var látinn fara. Þá endaði hann hjá úrvalsdeildarliði Haugasund í Noregi og spilaði 9 leiki árið 2010. Síðasta tímabil spilaði Olesen í Finnsku úrvalsdeildinni.

Engum sögum fer af því hvernig þessir ágætu menn voru að standa sig í leiknum en það er aldrei að vita nema Tómas sjóði saman eins og eina leikskýrslu.

Deildarbikarinn hefst bráðlega og Selfossliðið er meira og meira að taka á sig þá mynd sem það mun hafa í sumar.

febrúar 12, 2012 Posted Under: mfl. karla   Read More

Robert Sandnes skrifar undir og Moyo á reynslu

Selfyssingar gengu í dag frá tveggja ára samning við norðmanninn Robert Johann Sandnes. Hann kemur frá norska úrvalsdeildarliðinu Alasund. Robert er fæddur 29. des 1991 og er því ný orðin 20 ára. Hann er vinstrifótar miðjumaður sem getur einnig leyst vinstri bakvörðinn vel. Robert var á trial hjá Selfyssingum í janúar og spilaði leik gegn ÍBV þar sem hann stóð sig mjög vel og skoraði m.a glæsilegt mark. Selfyssingar mæta því til leiks með þrjá norðmenn í Pepsideild, en fyrir hjá liðinu eru þeir Ivar Skjerve og Endre Brenne. Heimasíða Selfoss býður Robert velkominn og óskar honum til hamingju með samninginn.

 

Hjá Selfyssingum er einnig á reynslu miðju og sóknarmaðurinn Moyo Modise, en hann er 28 ára leikmaður fæddur í Englandi. Moyo hefur leikið með u-21 og u-23 ára landsliði suður Afríku og í suður Afrísku deildinni, auk þess sem hann hefur leikið í neðri deildum í Englandi. Moyo mun æfa með Selfyssingum í vikunni og leika með þeim gegn Keflavík, en sá leikur verður leikinn í Reykjaneshöllinni laugardaginn 11. feb kl 13.00.

 

Selfyssingar ætla greinilega að læra af reynslunni, en síðast þegar þeir fóru upp í efstu deild féllu þeir strax niður aftur, enda var liðið þá óbreytt á milli ára. Nú er búið að bæta við gæða leikmönnum og menn greinilega enn með augun opin. Nauðsynlegar aðgerðir því munurinn á Pepsi og 1. deild er mikill og auk þess gerir það uppöldu strákana einungis betri að æfa og spila með betri leikmönnum.

febrúar 7, 2012 Posted Under: Annað, Leikmenn, mfl. karla, Undirbúningstímabil   Read More
  • Eldra

  • Flokkar

  • Á Twitter