Það er þér mjög mikill heiðar að vera lesa þennan póst. Þetta mun vera fyrstu póstur sem birtist á óopinberi stuðningsmannasíðu mfl. Selfoss í knattspyrnu.
.
Afhverju þessi síða:
Fyrst og fremst til að skapa aðgengilegan og afar einfaldan vettvang fyrir stuðningsmenn Selfoss og auðvitað annara sem vilja fræðast um Selfyssinga á unggæðingslegra mannamáli en finna má á opinberum heimasíðum eða spjallborðum. Markmiðið er að hafa léttleikan að leiðarljósi og fjalla um allt það sem brennur á mönnum hverju sinni, nýjasta slúðrið, fréttir af liðinu eða einhverju tengdu liðinu o.s.frv.
.
Hvaðan kemur efni á síðuna:
Undirritaður stefnir síður en svo á að sjá um að hrúga efni inn á síðuna einn og sjálfur enda á nógu mörgum síðum fyrir. Frekar er stefni ég á að veita valinkunnum hópi manna og kvenna sem vel eru máli farin og vel að sér í Selfossfræðum aðgang að þessari síðu og gera þau þannig að svokölluðum „pennum“.
Þegar þetta er skrifað þá vita mjög fáir af þessum æfingum mínum en dæmi um menn sem ég ætla að tilnenfa sem penna hér eru Tommi Þórodds, Orri Ýrar, Már Más (nei pabbi hans hét ekki Más), Gummi Kalli (myndir), Njörður Steinars, einhver úr stjórn, einhvern úr þjálfarateymi, einhvern úr liði, einhvern útlanda Selfyssing o.s.frv. Eins mega Pétur og Páll senda inn greinar og óska eftir því að fá þær birtar.
Hér vil ég einning að sjálfsögðu skapa vettvang fyrir mfl. kvenna og fæ einhverjar hetjur sem er vel að sér þar í þetta líka, Elvar Gunn, Agnes Guðna, einhverjar úr liði o.fl. takið þetta til ykkar.
Þannig vil ég reyna að skapa skemmtilega og fjölbreytta síðu þar sem ólík sjónarmið komast á framfæri.
.
Afhverju að setja þetta í lotið núna?
Ég fattaði þetta ekki fyrr en núna, Selfoss er komið í úrvalsdeild og því meiri áhugi og þörf á öflugum vettvangi fyrir okkur stuðningsmenn. Stefnan er að halda lífi í þessu í vetur og láta síðuna vaxa jafnt og þétt og vera öfluga næsta sumar. Það tekur vanalega smá tíma að blása lífi í þetta.
Síðan er hrá og einföld að ósk undirritaðs og nokkuð keimlík stuðningsmannasíðu KR www.krreykjavik.is. þó einhverju sé og verði stolið annarsstaðar líka. Vel má vera að síðan hressist smátt og smátt, mjög í takt við nennu vefstjórans.
.
Hverjir eru á bakvið þetta?
Ég er semsagt Einar Matthías Kristjánsson eða Babu. Ef það segir þér ekki neitt þá skiptir það afskaplega litlu, fínn strákur samt.

Babu
Það er síðan Óskar Ei sem setur þessa síðu upp, en hann er snillingur á tölvur og hefur þjáðst af því lengi.

Vefstjórinn
Endilega tjáið ykkur um þessar tilraunir hérna fyrir neðan og bendið á það sem betur má fara.
Með bestu kveðju.
Einar Babú
.
Rétt að lokum…..

Innanhúsknattspyrna er þreytandi
.…kv. þessi lengst til hægri.
Deila
04.10.2009 kl. 12:48
Algjör snilld
04.10.2009 kl. 13:22
Líst vel á þetta.
Þessi síða mun pott þétt fara á topp 5
04.10.2009 kl. 18:01
Frábært framtak og ég tekur glaður þátt
04.10.2009 kl. 18:30
já… snilld ! ég mun leggja mitt af mörkum
05.10.2009 kl. 04:44
Snilld, óska þér og Selfyssingum til hamingju með flotta síðu