Selfoss tapaði fyrir KR og Skjálfti tapaði fyrir Miðjunni í kvöld.
Það er lítið hægt að segja um leikinn í sjálfu sér. Eins og oft áður í sumar byrjuðum við af krafti vorum óheppnir að setja ekki mark strax á fyrstu mínútu og pressuðum vel. Fengum einar fjórar hornspyrnur á fyrsta kortérinu og vorum ágengir, KR-ingar létu boltann ganga vel sín á milli og á 17 mín. fengu þeir horn og það er víst ávísun á hættu fyrir okkur, enda skoruðu KR-ingar sitt fyrsta mark og þar með var leikurinn búinn. KR tók yfirhöndina og völtuðu yfir fyrri hálfleikinn. Guðjón Baldvins kláraði leikinn með tveim nokkuð auðveldum og ódýrum mörkum.
KR missti Jordao Diogo útaf réttilega á 48. mín en það breytti engu. Það var ekki að sjá að við værum manni fleirri allan seinni hálfleikinn. Viktor Unnar, Martin,Jájá og Bóló spiluðu allir sína fyrsta leik fyrir liðið, Viktor byrjaði sprækur en virtist þreytast fljótt, Martin var seigur og Jájá og Bóló stóðu sig ágætlega. Jói var góður í markinu og af útileikmönnunum okkar var Ottó skítseigur, Jón Daði hljóp og Agnar varðist ágætlega.
Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hins vegar neikvæðnin og andleysið sem geislaði af áhorfendapöllunum. Það heyrðist lítið sem ekkert frá okkar stuðningsmönnum og það er ekki gott. Liðið er í gífurlega erfiðri fallbaráttu, þeirri jöfnustu í mörg ár og þá er það ómetanlegt að hafa góðan stuðning. Ég persónulega held ekki að stuðningsmenn Selfoss séu gloryhunterar sem stökkva frá borði þegar illa gengur, en þegar liðinu gengur illa er mun betra að hvetja liðið áfram og syngja heldur en að beina athyglinni að andstæðingunum eða dómaranum. Næsti leikur er á Vodafone vellinum gegn Haukum það er 6 stiga leikur ef einhverntíman hefur verið 6 tíma leikur spilaður á þeim velli. Sá leikur er ekki fyrr en eftir versló svo við stuðningsmenn getum pústað aðeins, blótað því sem þarf að blóta og mætt svo í botnlausri stemmningu á Vodafonevöllinn og rifið liðið í gang með stuðning sem á sér engan líkan á Íslandi. Við vissum það öll að liðið myndi ströggla í sumar, við vorum í deild í fyrra þar sem við höfðum nokkra yfirburði en í Pepsideildinni erum við nánast undantekningalaust litla liðið og þá þarf að styðja vel við bakið á strákunum, ef ætlunin er að sitja og bölsóttast yfir því hvað liðið er að spila vitlaust, að þjálfarinn sé að gera allt rangt eða að dómarinn sé bjáni þá er betra að sitja heima við útvarpið.
Ég verð að fá að vitna í setningu úr textanum: „Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hins vegar neikvæðnin og andleysið sem geislaði af áhorfendapöllunum“, því að ef þetta væri stærsta vandamál okkar félags þá ætti að vera nokkuð einfalt að breyta því. Ég vil nota setninguna þína og breyta henni: Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hins vegar neikvæðnin og andleysið sem geislaði af leikmönnum Selfoss. Það vantar alla baráttu í liðið, hreyfingu án bolta og trú á því að geta náð í stig. Í staðinn er endalaust tuð inni á vellinum hjá ákveðnum leikmönnum sem eru greinilega búnir að draga aðra leikmenn niður í svaðið með sér og þar með í botnsæti deildarinnar. KR-ingar hafa verið í vandræðum og mórallinn verið lélegur hjá liðinu en Grétar Sigfinnur kom með góða punkta í sjónvarpsviðtalinu áðan að þeir hefðu ákveðið fyrir leikinn að spila saman sem lið en ekki einstaklingar, vera þolinmóðir og hætta tuðinu. Ég legg til að okkar leikmenn geri slíkt hið sama!
Áfram Selfoss!
Ég stóð nú við hliðiná skjálftamönnum og það heyrðist ekki bofs í þeim í seinni hálfleik. Sem mér finnst frekar lélagt af þeim eins og þeir hafa nú staðið sig vel í sumar og láta Miðjuna svona þagga sig niður.
Ég væri til í að sjá meiri baráttu í Selfoss liðinu. Það er ekki nóg að menn eins og Jón Daði eða Einar Ottó séu einu mennirnir sem gefast ekki upp og berjast allann tímann. Annars fannst mér þetta alls ekki slæmur leikur og mörk KR flest algjör heppni.
En Gummi Ben þyrfti samt að taka vörnina aðeins í gegn varðandi föst leikatriði. Það er vonlaust að það sé alltaf skorað hjá okkur í hornspyrnum.
Annars megum við aðdáendur og liðsmenn ekki missa vonina það er bata merki í liðinu og það styttist í sigur.
ÁFRAM SELFOSS!!!!!
Já ekki er staðan góð ,en við verðum að allavega að berjast í leikjum ,án baráttunnar getum við ekki neitt.Hættum að tuða inná vellinum,notum orkuna í eitthvað jákvætt.Auðvitað er erfitt fyrir ungt reynslulítið lið að vera í þessari stöðu ,en þeir eiga mikið inni,spurnig um að finna trúnna á verkefninu,gleðina,dugnaðinn,baráttuna og viljann,þá komast þeir ansi langt ,það voru þessir hlutir sem komu okkur í úrvalsdeildina.Næsti leikur er algjör lykill leikur ,og ég skora á strákana að missa sig ekki í ruglið um verslunnarmannahelgina .æfa frekar eins og menn og vera skynsamir ,staðan bíður ekki uppá einhverja hátíðir .Sameinust innan sem utan vallar í þeim leikjum sem eftir eru og það er hægt að halda áfram með ævintýrið okkar Áfram Selfoss.
Það eru 10 dagar í næsta leik og um að gera að nýta tímann vel í að slípa nýja menn inn og fara yfir þá þætti sem eru veikir. Ég trúi því að Gummi Ben greini ástandið vel og muni vinna í réttu hlutunum fram að næsta leik en hann þarf hjálp frá öllum sem standa að liðinu og leikmönnunum sjálfum.
Ég skora á þá lykilleikmenn sem eru í liðinu núna og komu okkur upp úr 1.deildinni að standa upp og sameinast, leiða verkefnið aftur á réttu brautina. Það sem hefur einkennt Selfoss liðið undanfarin ár er þetta að „gefast aldrei upp“, sem er einmitt svo góður eiginleiki. Í leikjunum í fyrra þá fann maður þetta sem áhorfandi, þennan sterka karakter sem var í liðinu. Auðvitað hafa meiðsli lykilmanna spilað inní og reynsluleysi í heildina en núna erum við komnir með aðstoð í nýjum mönnum sem munu aðstoða lykilmenn að klára þetta og búa til gott tímabil.
Sumir hafa gagnrýnt Skjálfta, að það hafi heyrst lítið í þeim þegar á móti blæs en það er bara stundum eðlilegt. Við hinir höfum nú heldur ekkert alltaf verið að taka svakalega mikið undir með þeim, það þurfa allir að líta í sinn barm. Ég er á því að Skjálfti hafi staðið sig vel og muni gera það áfram.
Vandamálið, ef vandamál skyldi kalla, er lítið og það þarf lítið til þess að það hverfi. Smá meðbyr og að hlutirnir fari að detta okkar megin í byrjun leiks, aðeins meiri þolinmæði og áræðni og þá er þetta komið. Þetta er andlegs eðlis, ég held að það efist engin um fótboltahæfileikana. Svona nú, upp með andann og klárum þetta!
Að vera valdnir stuðningsmenn umferða 1-8 þegar það tapast 5 af 8 leikjum get ég nú ekki flokkað undir sem „gloryhunters“ eða „að gefast upp þegar á móti blæs“. Hálfgert einsdæmi að lið sem er búið að vera í ströggli og tómu tjóni í síðustu leikjum eiga bestu stuðningsmenn Íslands. En auðvitað verður þetta þreytandi til lengdar. Erfiðara að hóa menn saman og erfiðara að halda gleðinni. En við meigum alls ekki láta deigan síga og fara gefast upp. Þá getum við alveg sleppt því að spila restina af þessum leikjum. Það þurfa allir að leggjast á eitt og rífa sig upp. Þó að Skjálfti og aðrir stuðningsmenn hafi verið réttilega mjög ósáttir við spilamennsku liðsins í seinustu leikjum þá er algjör óþarfi að fara leggjast í eitthvað væl. Einnig væri nú ekkert verra ef að hinn almenni áhorfandi myndi nú taka stundum undir og hjálpa til við að hvetja sitt lið í stað þess að vera í einhverju leikhúsi. Þetta eru jú flestir Selfyssingar að styðja sitt lið Selfoss og því ætti þetta ekki að vera flókið. En upp með barráttuna og leikgleiðina!
Held að megnið af eðlilegum aðdáendum hafi bara ekki efni á því að gagnrýna Skjálfta fyrir sitt ómetanlega framlag. Langbestir það sem af er ári fylgjandi liði sem spilar nánast alltaf á þunnudegi og mánudegi og vinnur sjaldnast leikinn!!
Þannig að slíkt hlítur bara að vera grín.
En nú er bara að vona að strákarnir setji hausinn upp og finni taktinn/gleðina með nýjum mönnun. Það er lykilleikur næst og jafnvel þarnæst og eftir þá verður útlitið vonandi betra.
Úps! Var ekki verið að gagnrýna Skjálfta í greininni hér fyrir ofan? ef svo er ekki væri best að greinarhöfundur kæmi fram og leiðrétti þennan misskilning, ég skildi greinina á þennan hátt. Persónulega fannst mér þetta skrýtið þar sem Skjálfti hefur staðið sig einkar vel. Ég hlýt að hafa misskilið greinina ;/ Og bið greinarhöfund afsökunar ef svo er.
Gagnrýninni var ekki beint gegn Skjálfta heldur gegn hinum almenna stuðningi eða skort þar á, þeir taka það til sín sem eiga. Við á orginu höfum í sumar verið virkilega duglegir við að hrósa Skjálfta fyrir það sem vel er gert og höldum því áfram. Þeir voru hins vegar, eins og aðrir stuðningsmenn, í gær ansi hljóðir. Í gær heyrðum við bara í stúkunni og að því er virtist í eina skiptið sem eitthvað lífsmark var Selfossmegin var þegar við tilkynntum um að Haukar væru lentir undir gegn FH.
Mér er farið að finnast leiðinlegt að mæta á þessa leiki, Við erum sterk alveg fram að því að það kemur mark á okkur. Þótt að við séum undir megum við ekki gefast upp ! Það hefur verið svolítið þannig undanfarna leiki, við getum þetta alveg ! við verðum að bara að sýna það ! Ég veit að það heyrðist ekkert í skjálfta í leiknum í gær en ég skil þá svo sem alveg vel, að hafa tapað svona mörgum leikjum í röð er ekkert gaman :( en plís strákar takið ykkur saman og vinnið sem lið ! við stöndum á bak við ykkur ! :)
Auðvitað verðum við að berjast áfram. Við hljótum að þurfa að horfa á hvert markmið sumarsins er… jú að halda sér í deildinni. Við erum ekki nema einu stigi frá því markmiði (það væri ekki svo slæmt að vera einu stigi frá markmiði sínu ef það væri toppsætið). Þess vegna er mikilvægt að við höldum áfram að berjast, bæði áhorfendur, leikmenn og bekkurinn.
Nýir leikmenn geta ekki gert annað en auka á samkeppnina innan liðsins og breiddina í hópnum. Það tekur smá tíma að slípa þetta allt saman og þar kemur kannski mergurinn, tíminn er ekkert að vinna með okkur a.m.k. meðan úrslitin eru neikvæð fyrir okkur. Þess vegna verðum við öll að taka okkur á. Ekkert að því að gagnrýna og benda á hvað má betur fara, innan vallar sem utan. Menn verða bara að hafa þroska til að geta gagnrýnt og tekið gagnrýni og byggt betur á henni, allir stuðningsmenn, Skjálfti, leikmenn og þjálfarar. Þetta verkefni er 22 leikir og enn eru 9 leikir eftir, við vitum að við getum náð í stig af öllum liðunum, 1 eða fleiri og það munu fleiri stig skila sér í hús.
Svo verð ég að benda á launson tæknilegs ráðgjafa liðsins. Ráðgjafinn fór til Svíþjóðar undir því yfirskyni að vera fararstjóri. Svo poppar upp í næsta leik Selfoss liðsins leikmaður sem er örlítið lágvaxnari en ráðgjafinn en álíka dökkur á hörund og með nákvæmlega sömu hárgreiðslu. Spurning hvort það séu ekki fleiri á bekknum sem lumi á svona laumuskoti!!! :-D
Hvað er málið, Selfoss er án gríns eina liðið í deildinn sem hefur ekki fengið sýndan leik beint. Er ekki hægt að pressa eitthvað á menn hjá Stöð2 sport eða Rúv til að sýna að minnsta kosti einn leik Selfoss í beinni. Fyrir utan hvað umfjallanir Selfoss leikjanna eru nánast alltaf síðastar í pepsimörkunum og íslensku mörkunum og umfjöllunin lítil og léleg.
Er ekki einhver Selfoss stuðningsmaður með sambönd og bent á þetta og reynt að fá þessu breitt.
Ég skora á leikmenn og Þjálfarteymi liðsins að finna Gleðina sem hefur einkennt liðið seinustu ár og hún er því miður ekki til staðar núna.Með Gleðina og Selfosshjartað og baráttuna þá sigrumst við á þessum erfiðleikum annars fer bara illa Áfram Selfoss.
Mér finnst það nú reyndar sýna stuðningin hvað margir mæta á völlinn þrátt fyrir ömurlega spilamennsku okkar manna undanfarið. Held að leikmenn verði að fara að átta sig á því að sigurinn kemur ekki að sjálfu sér og finnst leikmenn skulda áhorfendum það að leggja sig meira fram í næstu leikjum.
Já Gissur, það má vara sig á þessum krataþingum :)
Mér finnst Skjálftastrákarnir standa sig ótrúlega vel og þó svo að þeir hafi ekki náð upp stemmara í síðasta leik þá hef ég fulla trú á að þeir komi enn sterkari í næsta leik og þá með söngva um nýju leikmennina.
Auðvitað verða hinir almennu áhorfendur pirraðir á að tapa mörgum leikjum og sumir örugglega farið í mót með meiri væntingar en ungt og óreynt Selfosslið, nær eingöngu skipað heimamönnum, gat staðið undir. Stundum er pirringurinn skiljanlegur, en það er samt stundum eins og sumir sjái ekki muninn á að tapa fyrir Hafnarfjarðarliðunum FH og ÍH.
Varðandi beinar útsendingar frá leikjum Selfossliðsins þá er aðstaðan frá Selfossvelli fyrir sjónvarpsmyndavélar mjög slæm, en að sama skapi verður hún frábær við nýja völlinn sögðu sjónvarpupptökugaurarnir á Stöð 2 sport. Þetta á eftir að jafnast út og við fáum 2-3 leiki í seinni umferð.
Fólk var pirrað að vera 3-0 undir í hálfleik gegn KR, sem var að skipta um þjálfara og var fyrir mót talið vera með sterkasta hópinn. En við skulum líka spá í því að efsta lið deildarinnar var líka 3-0 undir í hálfleik og það gegn Fram. Spurning hvort það hafi ekki verið mikið svekkelsi hjá stuðningsmönnum þar, því þeirra markmið er dollann, en okkar að tryggja sæti í deildinni.
Svo er nú líka eitt frábært við okkar lið og okkar stuðningsmenn. Nú eru 20 manns búnir að commenta og allir með uppbyggilega gagnrýni. Önnur spjallborð eru mun neikvæðnari og oft einhverjir leiðinda gaurar að drulla yfir allt og alla án þess að hafa eitthvað fyrir sér í því. Ég veit að leikmenn Selfoss lesa að sjálfsögðu spjallið hér og því er frábært þegar margir tjá sig og sína að þeim er annt um félagið. Höldum áfram að segja hvað okkur finnst.
Vallaraðstaðan er að verða ein sú besta á landinu, þegar stúkan verður komin og 5 heilir knattspyrnuvellir, ásamt fullkomnum aðalvelli. Nú njótum við þess að vera í efstu deild og leikmenn okkar þroskast áfram. Leikmenn liðsins munu sína betri leik í næstu leikjum, það er á hreinu. Og með þeim stöndum við saman í blíðu og stríðu, þess vegna erum við Selfoss.
Við áskiljum okkur rétt til þess að eyða út ummælum af þessari síðu. Á það sérstaklega við allt skítkast, hvort sem er útí ritstjóra þessarar síðu, leikmenn Selfoss eða aðra lesendur Stuðningsmannasíðunnar. Á þetta sérstaklega við um nafnlaus ummæli. ...og Árna Leó.
Ef þú vilt fá mynd með athugasemdum, þá nýskráiru þig á Gravatar.com. Sjá nánar hér.
25.07.2010 kl. 23:39
Ég verð að fá að vitna í setningu úr textanum: „Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hins vegar neikvæðnin og andleysið sem geislaði af áhorfendapöllunum“, því að ef þetta væri stærsta vandamál okkar félags þá ætti að vera nokkuð einfalt að breyta því. Ég vil nota setninguna þína og breyta henni: Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hins vegar neikvæðnin og andleysið sem geislaði af leikmönnum Selfoss. Það vantar alla baráttu í liðið, hreyfingu án bolta og trú á því að geta náð í stig. Í staðinn er endalaust tuð inni á vellinum hjá ákveðnum leikmönnum sem eru greinilega búnir að draga aðra leikmenn niður í svaðið með sér og þar með í botnsæti deildarinnar. KR-ingar hafa verið í vandræðum og mórallinn verið lélegur hjá liðinu en Grétar Sigfinnur kom með góða punkta í sjónvarpsviðtalinu áðan að þeir hefðu ákveðið fyrir leikinn að spila saman sem lið en ekki einstaklingar, vera þolinmóðir og hætta tuðinu. Ég legg til að okkar leikmenn geri slíkt hið sama!
Áfram Selfoss!
25.07.2010 kl. 23:47
Ég treysti Gumma og þjálfarateyminu til þess að taka á móralnum í liðinu EF eitthvað er að honum.
26.07.2010 kl. 01:38
Ég stóð nú við hliðiná skjálftamönnum og það heyrðist ekki bofs í þeim í seinni hálfleik. Sem mér finnst frekar lélagt af þeim eins og þeir hafa nú staðið sig vel í sumar og láta Miðjuna svona þagga sig niður.
Ég væri til í að sjá meiri baráttu í Selfoss liðinu. Það er ekki nóg að menn eins og Jón Daði eða Einar Ottó séu einu mennirnir sem gefast ekki upp og berjast allann tímann. Annars fannst mér þetta alls ekki slæmur leikur og mörk KR flest algjör heppni.
En Gummi Ben þyrfti samt að taka vörnina aðeins í gegn varðandi föst leikatriði. Það er vonlaust að það sé alltaf skorað hjá okkur í hornspyrnum.
Annars megum við aðdáendur og liðsmenn ekki missa vonina það er bata merki í liðinu og það styttist í sigur.
ÁFRAM SELFOSS!!!!!
26.07.2010 kl. 09:42
Já ekki er staðan góð ,en við verðum að allavega að berjast í leikjum ,án baráttunnar getum við ekki neitt.Hættum að tuða inná vellinum,notum orkuna í eitthvað jákvætt.Auðvitað er erfitt fyrir ungt reynslulítið lið að vera í þessari stöðu ,en þeir eiga mikið inni,spurnig um að finna trúnna á verkefninu,gleðina,dugnaðinn,baráttuna og viljann,þá komast þeir ansi langt ,það voru þessir hlutir sem komu okkur í úrvalsdeildina.Næsti leikur er algjör lykill leikur ,og ég skora á strákana að missa sig ekki í ruglið um verslunnarmannahelgina .æfa frekar eins og menn og vera skynsamir ,staðan bíður ekki uppá einhverja hátíðir .Sameinust innan sem utan vallar í þeim leikjum sem eftir eru og það er hægt að halda áfram með ævintýrið okkar Áfram Selfoss.
26.07.2010 kl. 13:25
Það eru 10 dagar í næsta leik og um að gera að nýta tímann vel í að slípa nýja menn inn og fara yfir þá þætti sem eru veikir. Ég trúi því að Gummi Ben greini ástandið vel og muni vinna í réttu hlutunum fram að næsta leik en hann þarf hjálp frá öllum sem standa að liðinu og leikmönnunum sjálfum.
Ég skora á þá lykilleikmenn sem eru í liðinu núna og komu okkur upp úr 1.deildinni að standa upp og sameinast, leiða verkefnið aftur á réttu brautina. Það sem hefur einkennt Selfoss liðið undanfarin ár er þetta að „gefast aldrei upp“, sem er einmitt svo góður eiginleiki. Í leikjunum í fyrra þá fann maður þetta sem áhorfandi, þennan sterka karakter sem var í liðinu. Auðvitað hafa meiðsli lykilmanna spilað inní og reynsluleysi í heildina en núna erum við komnir með aðstoð í nýjum mönnum sem munu aðstoða lykilmenn að klára þetta og búa til gott tímabil.
Sumir hafa gagnrýnt Skjálfta, að það hafi heyrst lítið í þeim þegar á móti blæs en það er bara stundum eðlilegt. Við hinir höfum nú heldur ekkert alltaf verið að taka svakalega mikið undir með þeim, það þurfa allir að líta í sinn barm. Ég er á því að Skjálfti hafi staðið sig vel og muni gera það áfram.
Vandamálið, ef vandamál skyldi kalla, er lítið og það þarf lítið til þess að það hverfi. Smá meðbyr og að hlutirnir fari að detta okkar megin í byrjun leiks, aðeins meiri þolinmæði og áræðni og þá er þetta komið. Þetta er andlegs eðlis, ég held að það efist engin um fótboltahæfileikana. Svona nú, upp með andann og klárum þetta!
Áfram Selfoss!
26.07.2010 kl. 13:35
Að vera valdnir stuðningsmenn umferða 1-8 þegar það tapast 5 af 8 leikjum get ég nú ekki flokkað undir sem „gloryhunters“ eða „að gefast upp þegar á móti blæs“. Hálfgert einsdæmi að lið sem er búið að vera í ströggli og tómu tjóni í síðustu leikjum eiga bestu stuðningsmenn Íslands. En auðvitað verður þetta þreytandi til lengdar. Erfiðara að hóa menn saman og erfiðara að halda gleðinni. En við meigum alls ekki láta deigan síga og fara gefast upp. Þá getum við alveg sleppt því að spila restina af þessum leikjum. Það þurfa allir að leggjast á eitt og rífa sig upp. Þó að Skjálfti og aðrir stuðningsmenn hafi verið réttilega mjög ósáttir við spilamennsku liðsins í seinustu leikjum þá er algjör óþarfi að fara leggjast í eitthvað væl. Einnig væri nú ekkert verra ef að hinn almenni áhorfandi myndi nú taka stundum undir og hjálpa til við að hvetja sitt lið í stað þess að vera í einhverju leikhúsi. Þetta eru jú flestir Selfyssingar að styðja sitt lið Selfoss og því ætti þetta ekki að vera flókið. En upp með barráttuna og leikgleiðina!
Áfram Selfoss!!
26.07.2010 kl. 16:03
Held að megnið af eðlilegum aðdáendum hafi bara ekki efni á því að gagnrýna Skjálfta fyrir sitt ómetanlega framlag. Langbestir það sem af er ári fylgjandi liði sem spilar nánast alltaf á þunnudegi og mánudegi og vinnur sjaldnast leikinn!!
Þannig að slíkt hlítur bara að vera grín.
En nú er bara að vona að strákarnir setji hausinn upp og finni taktinn/gleðina með nýjum mönnun. Það er lykilleikur næst og jafnvel þarnæst og eftir þá verður útlitið vonandi betra.
26.07.2010 kl. 16:20
Úps! Var ekki verið að gagnrýna Skjálfta í greininni hér fyrir ofan? ef svo er ekki væri best að greinarhöfundur kæmi fram og leiðrétti þennan misskilning, ég skildi greinina á þennan hátt. Persónulega fannst mér þetta skrýtið þar sem Skjálfti hefur staðið sig einkar vel. Ég hlýt að hafa misskilið greinina ;/ Og bið greinarhöfund afsökunar ef svo er.
26.07.2010 kl. 16:52
Gagnrýninni var ekki beint gegn Skjálfta heldur gegn hinum almenna stuðningi eða skort þar á, þeir taka það til sín sem eiga. Við á orginu höfum í sumar verið virkilega duglegir við að hrósa Skjálfta fyrir það sem vel er gert og höldum því áfram. Þeir voru hins vegar, eins og aðrir stuðningsmenn, í gær ansi hljóðir. Í gær heyrðum við bara í stúkunni og að því er virtist í eina skiptið sem eitthvað lífsmark var Selfossmegin var þegar við tilkynntum um að Haukar væru lentir undir gegn FH.
26.07.2010 kl. 17:59
Valur, sýnist þú vera rugla mér og Máser saman þarna ;)
26.07.2010 kl. 19:33
Mér er farið að finnast leiðinlegt að mæta á þessa leiki, Við erum sterk alveg fram að því að það kemur mark á okkur. Þótt að við séum undir megum við ekki gefast upp ! Það hefur verið svolítið þannig undanfarna leiki, við getum þetta alveg ! við verðum að bara að sýna það ! Ég veit að það heyrðist ekkert í skjálfta í leiknum í gær en ég skil þá svo sem alveg vel, að hafa tapað svona mörgum leikjum í röð er ekkert gaman :( en plís strákar takið ykkur saman og vinnið sem lið ! við stöndum á bak við ykkur ! :)
26.07.2010 kl. 22:21
Auðvitað verðum við að berjast áfram. Við hljótum að þurfa að horfa á hvert markmið sumarsins er… jú að halda sér í deildinni. Við erum ekki nema einu stigi frá því markmiði (það væri ekki svo slæmt að vera einu stigi frá markmiði sínu ef það væri toppsætið). Þess vegna er mikilvægt að við höldum áfram að berjast, bæði áhorfendur, leikmenn og bekkurinn.
Nýir leikmenn geta ekki gert annað en auka á samkeppnina innan liðsins og breiddina í hópnum. Það tekur smá tíma að slípa þetta allt saman og þar kemur kannski mergurinn, tíminn er ekkert að vinna með okkur a.m.k. meðan úrslitin eru neikvæð fyrir okkur. Þess vegna verðum við öll að taka okkur á. Ekkert að því að gagnrýna og benda á hvað má betur fara, innan vallar sem utan. Menn verða bara að hafa þroska til að geta gagnrýnt og tekið gagnrýni og byggt betur á henni, allir stuðningsmenn, Skjálfti, leikmenn og þjálfarar. Þetta verkefni er 22 leikir og enn eru 9 leikir eftir, við vitum að við getum náð í stig af öllum liðunum, 1 eða fleiri og það munu fleiri stig skila sér í hús.
Svo verð ég að benda á launson tæknilegs ráðgjafa liðsins. Ráðgjafinn fór til Svíþjóðar undir því yfirskyni að vera fararstjóri. Svo poppar upp í næsta leik Selfoss liðsins leikmaður sem er örlítið lágvaxnari en ráðgjafinn en álíka dökkur á hörund og með nákvæmlega sömu hárgreiðslu. Spurning hvort það séu ekki fleiri á bekknum sem lumi á svona laumuskoti!!! :-D
27.07.2010 kl. 02:13
Hvað er málið, Selfoss er án gríns eina liðið í deildinn sem hefur ekki fengið sýndan leik beint. Er ekki hægt að pressa eitthvað á menn hjá Stöð2 sport eða Rúv til að sýna að minnsta kosti einn leik Selfoss í beinni. Fyrir utan hvað umfjallanir Selfoss leikjanna eru nánast alltaf síðastar í pepsimörkunum og íslensku mörkunum og umfjöllunin lítil og léleg.
Er ekki einhver Selfoss stuðningsmaður með sambönd og bent á þetta og reynt að fá þessu breitt.
27.07.2010 kl. 09:38
Eins og liðið hefur spilað í síðustu leikjum þá er maður nú bara feginn að þetta sé ekki sýnt í sjónvarpinu…
27.07.2010 kl. 10:04
Rétt, Babu, ég hef verið að rugla ykkur saman, enda nauðlíkir ;)
27.07.2010 kl. 10:26
Ég skora á leikmenn og Þjálfarteymi liðsins að finna Gleðina sem hefur einkennt liðið seinustu ár og hún er því miður ekki til staðar núna.Með Gleðina og Selfosshjartað og baráttuna þá sigrumst við á þessum erfiðleikum annars fer bara illa Áfram Selfoss.
27.07.2010 kl. 13:18
Valur svo er sagt að ég sjái illa :)
27.07.2010 kl. 14:17
Hvað meinarðu Babu? Þið eruð báðir hávaxnir, stæltir og grannir :) Auðvelt að ruglast þarna :)
27.07.2010 kl. 18:52
Mér finnst það nú reyndar sýna stuðningin hvað margir mæta á völlinn þrátt fyrir ömurlega spilamennsku okkar manna undanfarið. Held að leikmenn verði að fara að átta sig á því að sigurinn kemur ekki að sjálfu sér og finnst leikmenn skulda áhorfendum það að leggja sig meira fram í næstu leikjum.
28.07.2010 kl. 02:03
Já Gissur, það má vara sig á þessum krataþingum :)
Mér finnst Skjálftastrákarnir standa sig ótrúlega vel og þó svo að þeir hafi ekki náð upp stemmara í síðasta leik þá hef ég fulla trú á að þeir komi enn sterkari í næsta leik og þá með söngva um nýju leikmennina.
Auðvitað verða hinir almennu áhorfendur pirraðir á að tapa mörgum leikjum og sumir örugglega farið í mót með meiri væntingar en ungt og óreynt Selfosslið, nær eingöngu skipað heimamönnum, gat staðið undir. Stundum er pirringurinn skiljanlegur, en það er samt stundum eins og sumir sjái ekki muninn á að tapa fyrir Hafnarfjarðarliðunum FH og ÍH.
Varðandi beinar útsendingar frá leikjum Selfossliðsins þá er aðstaðan frá Selfossvelli fyrir sjónvarpsmyndavélar mjög slæm, en að sama skapi verður hún frábær við nýja völlinn sögðu sjónvarpupptökugaurarnir á Stöð 2 sport. Þetta á eftir að jafnast út og við fáum 2-3 leiki í seinni umferð.
Fólk var pirrað að vera 3-0 undir í hálfleik gegn KR, sem var að skipta um þjálfara og var fyrir mót talið vera með sterkasta hópinn. En við skulum líka spá í því að efsta lið deildarinnar var líka 3-0 undir í hálfleik og það gegn Fram. Spurning hvort það hafi ekki verið mikið svekkelsi hjá stuðningsmönnum þar, því þeirra markmið er dollann, en okkar að tryggja sæti í deildinni.
Svo er nú líka eitt frábært við okkar lið og okkar stuðningsmenn. Nú eru 20 manns búnir að commenta og allir með uppbyggilega gagnrýni. Önnur spjallborð eru mun neikvæðnari og oft einhverjir leiðinda gaurar að drulla yfir allt og alla án þess að hafa eitthvað fyrir sér í því. Ég veit að leikmenn Selfoss lesa að sjálfsögðu spjallið hér og því er frábært þegar margir tjá sig og sína að þeim er annt um félagið. Höldum áfram að segja hvað okkur finnst.
Vallaraðstaðan er að verða ein sú besta á landinu, þegar stúkan verður komin og 5 heilir knattspyrnuvellir, ásamt fullkomnum aðalvelli. Nú njótum við þess að vera í efstu deild og leikmenn okkar þroskast áfram. Leikmenn liðsins munu sína betri leik í næstu leikjum, það er á hreinu. Og með þeim stöndum við saman í blíðu og stríðu, þess vegna erum við Selfoss.
28.07.2010 kl. 09:59
Rétt þetta Tómas, félagið er í góðum höndum ég held að það þurfi engin að efast um það.