Áfram höldum við að spjalla örstutt við einn fulltrúa frá öllum liðunum sem spila með okkur í Pepsi deildinni í sumar til að kanna púlsinn á andstæðingunum svona rétt fyrir mót, þekkingu þeirra á Selfoss og auðvitað fá þá til að spá í spilin. Þetta virkar þannig að grafið er upp einhverja hetju sem er vel að sér um sitt lið til að svara fyrir sína menn. Stefnan er síðan að heyra aftur í þessum sömu mönnum fyrir leiki liðanna í deildinni í sumar.
Áður höfum við heyrt í fulltrúum FH, Stjörnunnar og Grindavíkur og nú er komið að fulltrúa sjálfra bikarmeistaranna í Breiðablik. Til að sitja fyrir svörum fyrir þá fengum við Hörð Snævar Jónsson sem er einn af pennunum á besta fótboltamiðli landsins, Fótbolta.net. Hörður er rétt rúmlega tvítugur og hefur verið í yngri flokkum Breiðablik með mörgum af núverandi leikmönnum liðsins og því vel að sér þegar kemur að því að svara fyrir hönd þeirra grænu.

Stuðningsmenn Blika fagna með stæl fyrsta stóra titli félagsins - Mynd Vísir.is
Sæll og blessaður Hörður, hvernig lýst þér á komandi sumar hjá þínum mönnum, mikið um breytingar frá síðasta ári?
Mér lýst bara nokkuð vel á sumarið og er bara ansi bjartsýnn, með tilkomu Guðmundar Péturssonar held ég að liðið geti blandað sér í baráttuna um þann stóra og geri allavegana þá kröfu á liðið að það nái einu af þremur efstu sætunum. Þá hafa bæst við frá því því í fyrra þeir Rafn Andri Haraldsson og Jökull Elísabetarsson og hafa þeir styrkt miðjuna og þá kom ungur framherji, Högni Helgason sem lítur bara vel út. Liðið hefur misst Guðmann Þórisson sem er mikill missir þrátt fyrir að hann hafi ekki alltaf byrjað en hann var einkar hress og góður held ég inn í klefa, gat búið til mikla stemmningu en ég vona að honum vegni vel á erlendri grundu.

Ólafur H. Kristjánsson hefur unnið mjög gott starf hjá Breiðablik - Mynd Visir.is
Nú hefur mikið komið upp af mjög efnilegum leikmönnum hjá Breiðablik undanfarin ár sem eru að láta til sín taka í mfl. núna, er þetta ótæmandi brunnur hjá Blikum? Þ.e. eru einhverjir nýjir á leiðinni upp úr yngri flokkum á sama caliber og Alfreð Finnboga og co.?
Þetta hefur nú verið óvenju góð uppskera síðustu tvö ár en ég held að það séu ekki eins margir gullmolar í hverjum árgangi sem kemur upp á næstu árum. Þó binda stuðningsmenn liðsins miklar vonir við að Hrafnkell Freyr ungur leikmaður með eitraðan vinstrifót geti farið að fá mínútur með liðinu.
Hverja telur þú möguleika Selfossliðsins vera á komandi ári?
Ég held að Selfyssingar þurfi að treysta ansi mikið á að Sævar Þór verði sjóðheitur fyrir framan markið og að vona að Guðmundur Benediktsson þjálfari liðsins rífi nú skóna fram þegar það fer að vora því ég held að þeir tveir gætu myndað eitthvað rosalegasta framherjapar deildarinnar í mörg ár. Ég held að það sem gæti komið Selfossliðinu langt í sumar er stemmning sem skapast í svona bæjarfélagi í kringum knattspyrnuleiki og einnig stemmningin í liðinu.
Þekkir þú eitthvað til leikmanna Selfoss og liðsins að undanskyldum Sævari Gísla?
Já maður þekkir nú til þeirra nokkra. Ég held til að mynda að Henning sé klárlega í þeim gæðaflokki til að leika í úrvalsdeild og hafi í raun aldrei átt að fara úr þeirri deild. Þá hljóta nú flestir að kannast við Ingó Idol enda varla að hægt sé að kveikja á sjónvarpi eða lesa blöð öðruvísi en að sjá hann. Þá held ég að bróðir hann Guðmundur geti orðið frábær leikmaður, ég þori eginlega að fullyrða það að ég hef ekki séð mann með betri aukaspyrnur hérna á Íslandi undanfarin ár.
Hefur þú eitthvað farið á Selfossleik undanfarin ár?
Já ég sá nú einhverja þrjá leiki síðasta sumar og fannst liðið líta bara ágætlega út, held reyndar að varnarleikurinn gæti orðið höfuðverkur liðsins í sumar.
Hver eru fyrstu 3 atriðin sem þér dettur í hug þegar minnst er á Selfoss?
Bílar, strípur og Bernaise börgerinn í Pulsuvagninum, hann er tuddalegur.
Eins og staðan er núna, hvernig spáir þú að deildin muni fara í sumar, sigurvegari, efstu lið, spútnik og fall?
Ég held að KR verði meistarar en vona að Blikarnir taki þetta en held að KR klári þetta og það verði síðan FH sem lendi í öðru sæti. Breiðablik og Keflavík sem berjast um sætin þar fyrir neðan. Ég held að ÍBV og Grindavík eigi eftir að gera góða hluti í sumar en bæði lið eru með mjög góðan mannskap. Ég held að Stjarnan falli og annaðhvort liðanna sem komu upp s.s (Haukar eða Selfoss) fari niður með þeim.
Þar höfum við það og þökkum Herði kærlega fyrir og gefum honum extra stig fyrir að tala hlýlega um Pullarann ;-) Við höfum hann svo stand by fyrir leik liðanna í sumar.
Næst fáum við afar hressan Valsara til breiða út fagnaðarerindið og dásama okkar ágæta lið og þar á eftir eru Fylkismenn klárir með sinn speking.
Babú
Deila
11.03.2010 kl. 08:54
Snilldarpistlar hjá þér Babú. Gaman að fá innsýn manna úr öðrum liðum fyrir komandi Selfos fótboltasumar.