Áfram höldum við að spjalla örstutt við einn fulltrúa frá öllum liðunum sem spila með okkur í Pepsi deildinni í sumar til að kanna púlsinn á andstæðingunum svona rétt fyrir mót, þekkingu þeirra á Selfoss og auðvitað fá þá til að spá í spilin. Þetta virkar þannig að grafið er upp einhverja hetju sem er vel að sér um sitt lið til að svara fyrir sína menn. Stefnan er síðan að heyra aftur í þessum sömu mönnum fyrir leiki liðanna í deildinni í sumar.
.
Næst ætlum við að kíkja suður með sjó á eitt af þessum úrvalsdeildarliðum sem margir Selfyssingar hafa löngum hugsað nokkuð vel til, enda landsbyggðarfólk jafnan meira fylgjandi öðrum landsbyggðarliðum. Þá erum við auðvitað ekki að tala um Keflavík enda bannað skv. lögum Selfyssinga að halda með þeim, nei ég er að tala um Grindavík og til að svara fyrir þá er fyrrum leikmaður þeirra og burðarás, Eysteinn Húni Hauksson. Eysteinn er líkt og Gunni okkar Borgþórs fæddur á Egilsstöðum en gekk til liðs við Keflavík 1995, þaðan fór hann m.a. til Hong Kong að spila áður en hann endaði í Grindavík árið 2002.
.

Stuðningsmenn Grindavíur ávalt hressir og létu það ekki stoppa sig er hálft liðið lagðist í svínaflensu - Mynd DV.is
.
Heill og sæll Eysteinn, hvernig lýst þér á komandi sumar hjá þínum mönnum, mikið um breytingar frá síðasta ári?
Ég er nokkuð bjartsýnn og tel ágætis líkur á að Grindavíkurliðið stígi skref upp á við í sumar, frá því sem verið hefur á síðustu árum. Það er æft gríðarlega vel og þegar maður rekst inn á æfingar, þá skynjar maður að andinn í liðinu er kraftmikill og að vel er tekist á. Grétar Hjartar kemur aftur inn eftir meiðsli og verður augljóslega mikill styrkur og Alexander sem kom frá Njarðvík, virðist hörkuleikmaður. Auðunn Helga er náttúrulega kominn og er það kannski helsta breytingin en þar fer maður með flottan feril á bakvið sig, sem hefur sýnt og sannað að hann getur haft mikil áhrif. Ég held að yngri leikmenn eigi líka eftir að bæta sig með því að umgangast hann á hverjum degi og lít ég komu hans ekki síst jákvæðum augum vegna þess. Luka hefur líka látið menn taka vel á því í vetur og verður fróðlegt að sjá hvort hann nái ekki að láta liðið blómstra í sumar. Ég (Bruce) og Óli Stefán (Pallister) höfum náttúrulega snúið okkur að öðrum verkefnum, svo meðalaldurinn og hávaðinn ætti að minnka eitthvað, þó koma Auðuns vinni eitthvað þar á móti.
.
Í ljósi þó nokkurs fjölda erlendra leikmanna hjá Grindavík undanfarin ár, hvernig er uppbyggingin hjá Grindavík, er lítið að skila sér alla leið úr yngri flokkunum (kannski óraunhæft að ætlast til þess)?
Mér finnst þessi spurning varla eiga rétt á sér, því ég held að við höfum bara staðið okkur nokkuð vel í fjölda heimamanna, ekki síst ef stærð bæjarfélagsins er höfð í huga. Við eigum tvo fastamenn í u-21 árs landsliðshópnum, þá Óskar markvörð og Jósef. Þá hafa menn eins og Óli Baldur, Bogi Rafn, Páll Guðmunds og Marko Valdimar allir fengið að spreyta sig reglulega og vakið athygli fyrir góðan leik. Einnig hafa tveir leikmenn, þeir Gunnar Þorsteinsson og Guðmundur Bergsteinsson, verið að lauma sér inn í liðið í vetur og staðið sig ágætlega. Ray Anthony er heimamaður og menn eins og Orri Freyr, Jóhann Helgason og Scottie hafa fest hér rætur eftir að hafa spilað hér í nokkur ár og komið sér hér vel fyrir. Ég gæti nefnt fleiri, en í þessari upptalningu eru komin ellefu nöfn, sem ég held að megi bara teljast nokkuð gott á þessum síðustu og verstu. Ef það væri skoðað hversu margir uppaldir Grindvikingar eiga leik í efstu deild í gegnum tíðina, þá held ég að sú tala gæti komið mörgum á óvart, og er það eitthvað sem Grindvíkingar mega vera stoltir af. Hins vegar er það sorgleg staðreynd að við eigum ekki í lið í 2. flokki í dag, án sameiningar við Njarðvík, en það er markvisst verið að vinna í því að slíkt verði ekki vandamál í framtíðinni.
.

Eysteinn sem hætti í fyrra stoppar hér Takefusa - Mynd Víkurfréttir
.
Nú hefur Grindavík jafnan verið í fremstu röð í báðum stærstu hópíþróttunum hér á landi þrátt fyrir að vera ekki stærsti bærinn á landinu, hver er galdurinn? Er eitthvað í vatninu þarna? Er það hugarfarið? Eða heppni með íþróttaáhuga útgerðarmanna bæjarins?
Það er gaman fyrir mig að svara þessu, því þetta var einmitt efni lokaritgerðar minnar í félagsfræðinámi mínu í H.Í.. Niðurstaðan er fyrst og fremst stöðugleiki í stjórnarstarfi, þar sem háleitar hugsjónir og framkvæmdir ráða ríkjum. Hér er það ekkert tiltökumál ef menn sitja í stjórn svo áratugum skiptir og menn trúa á að árangur náist með markmiðum og framkvæmdum. Ritgerðin leiddi það einmitt fram í dagsljósið að eftir hvert stökk í framkvæmdum sem varða aðstöðu, hefur alltaf fylgt stökk í árangri. Ég veit að margir tengja árangur Grindvikinga á íþróttavöllunum beint við magn kvóta, og að stjórnir deildanna fái einfaldlega umslög, troðfull af peningum inn um bréfalúguna um hver mánaðamót, en hin merkilega staðreynd er samt sú, að knattspyrnudeildin sækir um 60% af tekjum sínum út fyrir bæjarmörkin. Þó er það auðvitað samt sem áður mjög heppilegt fyrir íþróttirnar hér á staðnum að hér skuli vera öflug sjávarútvegsfyrirtæki, sem staðið hafa vel í lappirnar, og að stjórnendur þeirra skuli hafa jafn mikinn metnað fyrir hönd íþrótta og raun ber vitni. Það er auðvitað ekki sjálfgefið. Svo má ekki gleyma velviljuðum bæjaryfirvöldum, og frábærum stuðningsmönnum. Þetta vinnur allt saman og þarf að gera það. Hvað hugarfarið varðar, þá vil ég tengja þetta við sjómennskuna, en allir sjóarar vita það að ef einhver árangur á að nást, þá þarf að fara og ná í hann. Það kemur ekkert af sjálfu sér og hér gera menn sér einfaldlega grein fyrir því að menn uppskera eins og þeir sá.
.
Hverja telur þú möguleika Selfossliðsins vera á komandi ári?
Það er einhvern veginn augljóst í öllu sem fram hefur komið um Selfossliðið að þar er rosaleg stemmning, og hún getur fleytt mönnum ansi langt. Einnig veit ég það vel eftir að hafa nýlega spilað í fyrstu deild að þú vinnur hana ekkert, án þess að vera með ákveðinn fjölda gæðaleikmanna og sterkra persónuleika. Þá er áberandi að stuðningsmennirnir eru öflugir og bara það sem hér er nefnt tel ég vera fínan grunn til að Selfyssingar geti farið nokkuð brattir inn í mótið. Stærsta spurningin finnst mér hversu stór skörðin eru eftir Gulla og Hjört sem báðir hafa mikla reynslu og þekkja góðan árangur. Gummi kemur náttúrulega í staðinn og eins frábær leikmaður og hann er, þá er hann enn stórt spurningamerki sem þjálfari. En ég óska honum klárlega alls hins besta, enda er hann af gömlum og góðum árgangi.
.
Þekkir þú eitthvað til leikmanna Selfoss og liðsins að undanskyldum Sævari Gísla?
Ha? Eru aðrir leikmenn í Selfossliðinu….? Án gríns verð ég að viðurkenna að ég þekki lítið til einstakra leikmanna liðsins í dag. Gummi er náttúrulega áður nefndur og svo er áberandi að það eru alltaf hörkustrákar að koma upp, þar hef ég tekið eftir Arilíusi, Einari Ottó og Viðari Kjartans og get nefnt þá sem dæmi. Veðurguðinn þekkja náttúrulega allir landsmenn, sem eiga útvarp. Ef Gunnar Borgþórs er enn að spila, þá þekki ég hann náttúrulega frá Egilsstöðum og þar er snillingur á ferð. Ég spilaði á móti Selfossi í deildarbikarnum í fyrra og þar voru margir hörkuleikmenn, en ég þekki þá ekki marga með nafni. Eigum við ekki bara að segja að það sé þeirra að sjá til þess að ég læri nöfnin á þeim í sumar?
.
Hefur þú eitthvað farið á Selfossleik undanfarin ár (eða nokkurntíma)?
Ég hef ekki farið á Selfossleik sem áhorfandi, en ég hef nokkrum sinnum spilað gegn þeim í æfingaleikjum og vormótum, en aðeins einn opinberan leik, held ég. Það var í bikarnum, árið 2004 og við sigruðum naumlega 0-2 ef ég man rétt.
.
Hver eru fyrstu 3 atriðin sem þér dettur í hug þegar minnst er á Selfoss?
Gullaldarliðið í handboltanum, brúin yfir Ölfusá og besti varamarkvörður allra tíma, Anton Hartmannson.
.
Eins og staðan er núna, hvernig spáir þú að deildin muni fara í sumar, sigurvegari, efstu lið, spútnik og fall?
Ég er lítið fyrir spádóma og finnst ég ekki mega mín mikils í slíku gegn margsönnuðum og dásamlegum leyndardómum knattspyrnunnar. Til gamans skal ég þó spá því að Spútnikliðin verði Grindavík og Selfoss.
.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
Já, ánægju með að sjá nýtt félag utan höfuðborgarsvæðisins í efstu deild. Slíkt gleður alltaf landsbyggðarhjartað og færir fótboltanum ákveðinn ferskleika.
.
Kveðja Eysteinn
.
Stórgaman að þessu og við þökkum Eysteini kærlega fyrir greinagóð svör. Ég (Babu) afsaka þekkingarleysi mitt á uppbyggingunni í Grindavík og viðurkenni að liðið er rótgrónara en ég hafði gert mér grein fyrir. Eins mjög fróðlegt að grennslast fyrir um galdurinn á bak við góðan árangur Grindarvíkur og ljóst að Óskar Sig. greyið þarf að vera formaður í nokkra áratugi í viðbót til að viðhalda stöðugleika í stjórn! :-)
.
Varðandi þekkta leikmenn þá viltis Viðar Kjartans reyndar tímabundið í ÍBV og er þar nú en Gunnar Borgþórs, forseti Lýðveldisins Egilsstaðir er sannarlega ennþá viðloðandi hópinn og lykilmaður á undirbúningstímabilinu.
.
Að lokum er síðan vinsamlega bent á að Anton Hartmanns er enginn varamarkmaður og það ítrekað að „Toni á………..ekki„.
.
Babú
.
Væntanlegir næstu daga eru fulltrúar Valsmanna (Björgvin Brynjólfsson), Blika (Hörður Snævar Jónsson), KR-inga (Kiddi Kær), Fylkismanna (Krissi) og Keflvíkinga (að sjálfsögðu Joey Drummer)
Deila