Á næstunni ætlum við að birta örstutt viðtöl við einn fulltrúa frá öllum liðunum sem spila með okkur í Pepsi deildinni í sumar og kanna púlsinn á andstæðingunum svona rétt fyrir mót, þekkingu þeirra á Selfoss og auðvitað fá þá til að spá í spilin. Þetta virkar þannig að grafið er upp einhverja hetju sem er vel að sér um sitt lið til að svara fyrir sína menn. Stefnan er síðan að heyra aftur í þessum sömu mönnum fyrir leiki liðanna í deildinni í sumar.
.
Kristján Atli reið á vaðið fyrir FH og nú er komið að nágrönnum þeirra úr Garðarbænum. Við háðum harða baráttu við Stjörnuna sumarið 2008 og lutum naumlega í lægra haldi í lokin og þeir fylgdu því ÍBV upp í efstu deild. Þar byrjaði Stjarnan með miklum látum í fyrra en virtist springa í seinni umferðinni. Þeir héldu sér þó áfram uppi og til að sitja fyrir svörum fyrir hönd Stjörnunnar fengum við Pál Ásgrím Jónsson einn harðasta stuðningsmann þeirra.

Stuðningsmenn Stjörnunnar fagna - Mynd Víkurfréttir
.
Sæll Páll, hvernig lýst þér á komandi sumar hjá þínum mönnum, mikið um breytingar frá síðasta ári?
Ég vonast aðallega til þess að liðið haldi sér uppi þar sem það hefur aldrei gerst að liðið sé lengur en 2 ár í röð í efstu deild. Það væri gott ef liðið mundi byrja á því að festa sig í sessi sem efstudeildarlið. Hugsa ekki mikið meira en um það. Tel þó að liðið þurfi að styrkja sig til að koma sér í efri hlutann í deildinni.
Varðandi mannabreytingar þá hafa 2 leikmenn komið inn. Atli Jó kom frá KR og Ólafur Finsen kom í láni frá Hollandi. 3 leikmenn hafa farið í láni til liða í Þýskalandi og koma væntanlega til baka fyrir tímabilið. Guðni Rúnar hætti að spila og er orðinn aðstoðarþjálfari hjá Völsungi og svo hafa einhverjir minni spámenn yfirgefið liðið.
.
Nú verður Selfoss hálft tímabilið a.m.k. á gervigrasi líkt og Stjarnan hefur jafnan spilað á. Lítur þú á það sem kost eða ókost fyrir Stjörnuna að spila sína heimaleiki á gervigrasi? Eða skiptir það kannski engu?
Ég er á því að fyrst að leikmenn annarra liða geti spilað á gervigrasi á undirbúningstímabilinu þá ættu þeir ekki að vera að væla undan því að spila á gervigrasi á sumrin. Lið ættu að aðlaga leik sinn að aðstæðum (sama gildir þegar Stjarnan spilar á grasi).
Tel ekki að það skipti neinu svakalegu máli að Stjarnan spili heimaleikina á gervigrasi þar sem öll liðin spila á gervigrasi á undirbúningstímabilinu og ættu þess vegna að vera vön því.
.
Hverja telur þú möguleika Selfossliðsins vera á komandi ári?
Ég tel að sem nýliðar ætti Selfossliðið að hugsa fyrst og fremst að halda sér uppi, svo ef/þegar það er tryggt þá gætu menn sett sér ný markmið.
.
Þekkir þú eitthvað til leikmanna Selfoss og liðsins að undanskyldum Sævari Gísla?
Já, þekki lítillega til Hennings, fínn leikmaður.
.
Hefur þú eitthvað farið á Selfossleik undanfarin ár (eða nokkurntíma)?
Fór þegar Selfoss keppti 2008 í Garðabæ. Svo keppti ég gegn Selfossi í þriðja flokki.
.
Hver eru fyrstu 3 atriðin sem þér dettur í hug þegar minnst er á Selfoss?
1. Tónlistarmenn sem hafa verið áberandi eins og Ingó og Skítamórall.
2. Fallegt kvenfólk, allavega það sem ég hef séð.
3. Ég skoraði mitt síðasta mark í keppnisleik gegn Selfossi. (innsk. hættir semsagt á toppnum?)
.
Eins og staðan er núna, hvernig spáir þú að deildin muni fara í sumar, sigurvegari, efstu lið, spútnik og fall?
FH og KR verða í baráttu eins og í fyrra. FH verður meistari bæði þar sem þeir hafa besta liðið og líka þar sem KR-ingar hafa ekkert unnið í 10 ár án þess að hafa Garðbæing/a í liðinu og það er enginn Garðbæingur í KR núna.
.
Tel það of snemmt að spá um spútnikið þar sem ég hef nánast ekkert fylgst með öðrum liðum. Það kæmi mér ekki á óvart ef Selfoss tryggir sæti sitt í efstu deild að ári tiltölulega snemma.
.
Ég held fyrirfram að fallbaráttan verði milli Grindavíkur, ÍBV og Hauka. ÍBV og Haukar (því miður fyrir félaga mína Gaua Lýðs og Jonna sem eru í Haukum) munu falla.
.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
Óska ykkur Selfyssingum góðs gengis á tímabilinu (nema gegn Stjörnunni).
.
Bestu kveðjur: Páll Ásgrímur (Páló)
.
Þökkum Páló kærlega fyrir þetta og heyrum í honum aftur fyrir leiki liðanna í sumar. Á næstu dögum höldum við áfram að heyra í fulltrúum hinna liðanna og eru Hörður S. Jónsson fyrir Blika, Kiddi Kærnested fyrir KR og Eysteinn Hauksson úr Grindavík sem allir eru klárir og væntalegir hér á orgið fyrir sín lið og fulltrúar hinna fylgja svo í kjölfarið.
Babú
Deila
08.03.2010 kl. 20:09
„2. Fallegt kvenfólk, allavega það sem ég hef séð.“
Páló greinilega reynslumaður, nælir sér í nokkur dýrmæt bónus stig með þessu kommenti ;-)
08.03.2010 kl. 23:17
snilldar liður hjá þér Einar !!
09.03.2010 kl. 01:36
Páló, KR meistari then? (miðað við Garðbæingakenninguna ;) http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=88278
Tommi – já það er gaman að kynnast hinum liðunum svona, seinnipartinn á morgun hendi ég inn svörum frá Grindavík sem opna augu manns talsvert fyrir starfinu þar.
09.03.2010 kl. 09:50
Babu:
Gaui var ekki kominn til KR þegar ég svaraði :)
2002 og 2003 unnu þeir titilinn með Veigar og Garðar í liðinu. 2008 unnu þeir svo bikarinn með Gaua í liðinu. Hin árin hafa þeir ekki verið með Garðbæinga og þess vegna er heilmikið til í þessu með KR og Garðbæinga.
Orri:
Hef enga reynslu af kvenmönnum frá Selfossi en séð nokkrar gullfallegar gellur þaðan sem ég kýs ekki að nafngreina :)
09.03.2010 kl. 10:26
Er þetta meistari Páló sem var í myndbandinu fræga fyrir bikarúrslitin hjá körfunni? http://www.youtube.com/watch?v=fN3JFHH0P5k
09.03.2010 kl. 12:07
já
09.03.2010 kl. 16:21
Þetta er flott framtak hjá þér Einar! En tekurðu bara viðtöl við Liverpoolvini þína?? ;)
09.03.2010 kl. 16:59
Þeir vita allajafna mest vita um fótbolta Gummi! Ekki flókið :)
Annars var ég ekki búinn að kortleggja þetta eftir þessu og því er t.d. næsti viðmælandi alveg út á túni í enska og talar um sig sem Bruce!!
11.03.2010 kl. 02:54
[...] höfum við heyrt í fulltrúum FH, Stjörnunnar og Grindavíkur og nú er komið að fulltrúa sjálfra bikarmeistaranna í Breiðablik. Til að [...]
25.05.2010 kl. 00:40
[...] frá sér hljóð og halda með Selfoss til að hvetja liðið með sér. En við heyrðum í Páló Stjörnumanni númer 1 til að athuga hvernig hljóðið er í [...]