Selfoss tapaði fyrir KR og Skjálfti tapaði fyrir Miðjunni í kvöld.
Það er lítið hægt að segja um leikinn í sjálfu sér. Eins og oft áður í sumar byrjuðum við af krafti vorum óheppnir að setja ekki mark strax á fyrstu mínútu og pressuðum vel. Fengum einar fjórar hornspyrnur á fyrsta kortérinu og vorum ágengir, KR-ingar létu boltann ganga vel sín á milli og á 17 mín. fengu þeir horn og það er víst ávísun á hættu fyrir okkur, enda skoruðu KR-ingar sitt fyrsta mark og þar með var leikurinn búinn. KR tók yfirhöndina og völtuðu yfir fyrri hálfleikinn. Guðjón Baldvins kláraði leikinn með tveim nokkuð auðveldum og ódýrum mörkum.
KR missti Jordao Diogo útaf réttilega á 48. mín en það breytti engu. Það var ekki að sjá að við værum manni fleirri allan seinni hálfleikinn. Viktor Unnar, Martin,Jájá og Bóló spiluðu allir sína fyrsta leik fyrir liðið, Viktor byrjaði sprækur en virtist þreytast fljótt, Martin var seigur og Jájá og Bóló stóðu sig ágætlega. Jói var góður í markinu og af útileikmönnunum okkar var Ottó skítseigur, Jón Daði hljóp og Agnar varðist ágætlega.
Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hins vegar neikvæðnin og andleysið sem geislaði af áhorfendapöllunum. Það heyrðist lítið sem ekkert frá okkar stuðningsmönnum og það er ekki gott. Liðið er í gífurlega erfiðri fallbaráttu, þeirri jöfnustu í mörg ár og þá er það ómetanlegt að hafa góðan stuðning. Ég persónulega held ekki að stuðningsmenn Selfoss séu gloryhunterar sem stökkva frá borði þegar illa gengur, en þegar liðinu gengur illa er mun betra að hvetja liðið áfram og syngja heldur en að beina athyglinni að andstæðingunum eða dómaranum. Næsti leikur er á Vodafone vellinum gegn Haukum það er 6 stiga leikur ef einhverntíman hefur verið 6 tíma leikur spilaður á þeim velli. Sá leikur er ekki fyrr en eftir versló svo við stuðningsmenn getum pústað aðeins, blótað því sem þarf að blóta og mætt svo í botnlausri stemmningu á Vodafonevöllinn og rifið liðið í gang með stuðning sem á sér engan líkan á Íslandi. Við vissum það öll að liðið myndi ströggla í sumar, við vorum í deild í fyrra þar sem við höfðum nokkra yfirburði en í Pepsideildinni erum við nánast undantekningalaust litla liðið og þá þarf að styðja vel við bakið á strákunum, ef ætlunin er að sitja og bölsóttast yfir því hvað liðið er að spila vitlaust, að þjálfarinn sé að gera allt rangt eða að dómarinn sé bjáni þá er betra að sitja heima við útvarpið.
Það var það allavega bókstaflega ef maður dæmir út frá myndum Stöð 2 Sport frá leiknum. Við áttum lítið í KR-inga í kvöld því miður, nýir menn ekki búnir að slípast inn í liðið svo vægt sé tekið til orða og slæmur 0-3 skellur staðreynd. Gerði umfjöllun hér og held að ég sé kominn með nóg af því að tala um þennan leik í bili.
Ninni vinur minn spurði hvort það væri ekki eins og að skrifa minningargrein að gera umfjöllun um svona tapleiki, hann var ekki langt frá því, svei mér þá!
Næst eru það Haukar á Hlíðarenda, við ætlum ekki að tapa þeim leik.
Frekari umfjöllun um þennan leik gæti dottið inn í vikunni.