Við tókum hana Anítu Guðlaugsdóttur á tal nú þegar deildin er rúmlega hálfnuð hjá stelpunum og gengi þeirra verið mjög gott í sumar og hafa stelpurnar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Þær eiga því góðan möguleika á því að spila í úrvalsdeild kvenna að ári.

Aníta G. fyrirliði Selfoss
Nú þegar mótið er rétt rúmlega hálfnað hefur kvennalið Selfoss ekki tapað leik og unnið flesta þeirra mjög stórt og sannfærandi. Kemur þér gott gengi liðsins á óvart?
Við vorum með gott lið í fyrra en við erum með enn betra lið í ár. Áður en mótið hófst í fyrra gerðum við ráð fyrir að tapa stigum á móti sterkustu liðunum og settum okkur markmið út frá því en á þessu tímabili hafa stigin ekki verið í mikilli hættu. Riðlarnir í 1. deild kvenna voru mun jafnari í fyrra heldur en í ár. Með því að líta á stigatöflurnar í báðum riðlunum eins og staðan er núna þá lítur þetta út fyrir að vera tveggja liða mót í sitt hvorum riðlinum því samkeppnin virðist ekki vera mikil. Gengi okkar í sumar kemur ekki mikið á óvart því langflestar náðu að æfa vel í vetur og árangurinn eftir því. Við getum ekki verið annað en sáttar með að vera með fullt hús stiga, eiga 4 leiki eftir og vera búnar að tryggja okkur í úrslitakeppnina. En það er meira sem við ætlum okkur og það vonandi gengur eftir.
Nú styrktu þið ykkur ekki mikið fyrir átökin í sumar og spilið mest megnis á heimamönnum og uppöldum Selfyssingum, það hlýtur að vera góð tilfinning og gefur ungum stelpum á Selfossi eitthvað til þess að líta upp til ?
Við fengum nýjan þjálfara í haust sem vildi vinna með þann mannskap sem væri til staðar og treysti okkur fyrir verkefninu. Við erum með Anítu Lísu á láni frá FH og hefur hún smollið vel inn í liðið og verið góð viðbót við hópinn. En annars erum við með svipaðan hóp og í fyrra, nokkrar hættu eftir síðasta tímabil en aðrar hafa stigið upp eftir meiðsli og styrkt hópinn. Helena hefur gefið yngri stelpum úr 3. flokki tækifæri þannig að stelpur úr yngri flokkunum eiga möguleika á að sýna sig þegar tækifærin gefast. Loksins hafa ungar stelpur á Selfossi eitthvað til þess að líta upp til og sjá að 2. flokkurinn er ekki endastöð hér á Selfossi eins og hefur verið í nokkuð mörg ár. Vonandi verður meistaraflokkur kvenna, gott gengi liðsins og metnaðarfullur þjálfari til þess að fleiri leikmenn skili sér upp í meistaraflokk. Það er mikilvægt fyrir frekari uppbyggingu og getum við verið stoltar af því núna að liðið okkar innihaldi nánast eingöngu heimastelpur.
Þið tókuð ÍBV hér heima 3-2 í miklum baráttu leik eftir að hafa lent 1-0 undir, sýnir þessi leikur kannski hvað það er mikill karakter í liðinu?
Leikurinn á móti ÍBV einkenndist af mikilli baráttu og samstöðu í liðinu. ÍBV komst í 1-0 eftir gott spil og smá einbeitingarleysi af okkar hálfu. Við svöruðum því með þýðingarmiklu marki á 43. mín og staðan því 1-1 í hálfleik. Við vorum svo mun ákveðnari aðilinn í seinni hálfleik og skoruðum 2 mörk og staðan var orðin 3-1 á 81. mín. En ÍBV náði að laga stöðuna í 3-2 rétt áður en góður dómari leiksins flautaði leikinn af. Þessi leikur er gott dæmi um hvað það er mikill karakter í liðinu því eftir að ÍBV komust í 1-0 þá lét einn leikmaður ÍBV það út úr sér að þetta væri komið hjá þeim. Við misstum aldrei trúna á verkefninu, spiluðum skipulagðan varnarleik og nýttum færin okkar. Það skilaði okkur sigri á móti sterku liði ÍBV.
Hvernig heldurðu að liðið eigi eftir að plumma sig í úrvalsdeild að ári ef svo verður?
Það er erfitt að segja til um það og sérstaklega með það fyrir augum að sjá nýliðana, Hauka og FH, sitja á botni úrvalsdeildarinnar. Það sýnir að bilið á milli úrvalsdeildar og 1. deildar er þó nokkuð og Selfyssingar ættu að kannast við það úr karlaboltanum. Við eigum efnilegan hóp og erum með þjálfara sem veit alveg út á hvað þetta gengur þannig að ef við förum upp í úrvalsdeild þá væri ekki óraunhæft að fyrsta markmiðið yrði að halda sér í deildinni og síðan væri hægt að byggja ofan á það. Framtíðin er björt í kvennaboltanum á Selfossi og það væri ekki leiðinlegt að enda sumarið á því að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni og taka bikarinn fyrir 1. deildina.
Liðið komst í 8 liða úrslit í fyrra og var hársbreidd frá því að komast í 4 liða úrslit og hefðu þar af leiðandi mætt Völsungi. Selfoss hefði átt góðan möguleika á því að komast upp í úrvalsdeild í fyrra en hefði það verið of snemmt?
Við vorum svekktar í fyrra að klára þetta ekki á móti Haukum og komast áfram því við hefðum átt góða möguleika á móti Völsungi. En það hefði verið of snemmt fyrir okkar unga lið að fara upp í efstu deild með nýstofnaðan meistaraflokk eftir aðeins 1 tímabil í 1. deildinni. Tímabilið í fyrra var góð reynsla fyrir hópinn og hefur nýst okkur í sumar. Við viljum alltaf meira og gera betur og því er ljóst hvert liðið stefnir í ár.
Helena er greinilega að gera góða hluti á Selfossi, hvernig þjálfari er hún?
Helena hefur lyft kvennaboltanum á Selfossi á enn hærra plan sem er frábært fyrir okkur sem leikmenn, fyrir félagið og fyrir stelpurnar sem eru í yngri flokkunum. Það er ekki til í hennar orðabókum að gefast upp, sýna lélega spilamennsku og skora minna en 6 mörk í leikjum ;-) Helena er með góðar æfingar, mikið tempó er á æfingum og svo á hún það til að vera nokkuð léttlynd inn á milli þannig að það er lítið hægt að kvarta yfir þessari blöndu sem þjálfarinn býr yfir.
Það er nauðsynlegt að opinbera það hér á selfoss.org að Helena tók áskorun að ef við myndum vinna ÍBV að þá mættum við láta hana gera allan fjandann. Hún var orðin eitthvað smeyk og gaf okkur stuttan tíma til að finna upp á einhverju þannig að systurnar Veronika og Bríet tóku sig til og fengu sparigallann lánaðan frá mömmu þeirra og Helena stjórnaði okkur á æfingu í þessum glæsilega klæðnaði. Það er ekki hægt að neita því að erfitt var að taka hana alvarlega í þessari marglituðu dragt á æfingunni en hún má eiga það að þetta fer henni afar vel.

Helena tók áskorun
Nú eigið þið 4 leiki eftir í deildinni og við tekur svo úrslitakeppnin og stefnir allt í að Selfoss fari í hana, hversu mikilvægir eru þessir leikir sem eru framundan fyrir liðið?
Það varð ljóst eftir sigurinn á móti ÍR að við værum búnar að tryggja okkur í úrslitakeppnina og er gott að vita af því þegar 4 leikir eru eftir. Leikirnir sem við eigum eftir í deildinni eru heimaleikir á móti Fram og Fjölni og svo útileikir á móti Sindra og ÍBV. Það eru 12 stig í pottinum og mikilvægt að ná þeim öllum til að halda 1. sætinu í riðlinum.
Að lokum, getur þú útskýrt fyrir þeim sem ekki vita hvernig úrslitakeppnin fer fram og hvaða leið Selfoss-liðið þarf að fara til þess að ná sér í sæti í úrvalsdeild að ári ?
Úrslitakeppnin hefur tekið breytingum frá því í fyrra en þá voru 8 lið sem komust í úrslitakeppnina, 4 lið úr hvorum riðli. Við lentum t.d. í 3. sæti okkar riðils í fyrra og fengum tækifæri til að koma okkur upp um deild og munaði litlu að það tækist. Núna komast 4 lið í úrslitakeppnina, 2 efstu lið úr hvorum riðli. Úr B riðli verða það Selfoss og að öllum líkindum ÍBV, en þeim vantar 1 stig til að tryggja sér sæti þar. Úr A riðli er Þróttur búið að tryggja sér í úrslitakeppnina og eins eru allar líkur á því að Keflavík verði þar líka. Liðið sem endar í 1. sæti A riðils mun spila heima- og útileik við liðið í 2. sæti B riðils og liðið í 1. sæti B riðils mun spila heima og úti við liðið í 2. sæti A riðils. Með samanlögðum sigri í heima- og útileikjunum tryggja sigurliðin sér sæti í Pepsi deild kvenna. Síðan fer fram úrslitaleikur milli þessara sigurliða um hvort liðið sigrar 1. deildina.
Eins og staðan er í riðlunum núna myndu annars vegar Selfoss og Keflavík mætast og hins vegar Þróttur og ÍBV. En enn eru 4 leikir eftir í B riðli hjá toppliðunum og 3 í A riðli þannig að of snemmt er að segja til um hvort þetta muni enda svona því toppliðin eiga eftir að mætast í báðum riðlunum.
Allir á völlinn á þriðjudaginn 27. Júlí, Selfoss – Fram, kl. 20:00 á Selfossvelli.
Áfram Selfoss !!!

Stelpurnar hafa fagnað mikið í sumar- Mynd Sunnlenska.is - Gummi Kalli
Deila