Selfoss sótti öll 6 stigin þegar liðið hélt austur á föstudaginn síðasta. Hér kemur örstutt ferðasaga og umfjallanir um leikina.
Stelpurnar byrjuðu á því að fara til Neskaupsstaðar á föstudagskvöldið til þess að leika gegn Fjarðabyggð/Leikni. Það var ekkert grín að komast þangað því í fyrsta lagi þarf maður að fara yfir risastórt fjall, einbreið göng og í þokkabót var svarta þoka svo ekki sást á milli stika. En það gerði ferðina bara enn skemmtilegri.
Byrjunarlið gegn Fjarðabyggð/Leikni:
Dagný
Aníta Þóra Veronika Sif
Katrín Thelma Dagný H.
Aníta L. Anna Þ.
Anna M.
Bekkur: Lena, Eva Lind, Guðbjörg, Bríet og Íris Sverris
Selfoss var með yfirhöndina á leiknum mest allan tíman og var staðan 2-0 í hálfleik eftir mörk frá Önnu Maríu og Katrínu. Fjarðabyggð missti leikmann útaf á 39.mínútu og í seinni hálfleik komust Fjarðabyggðar-stúlkur varla yfir miðjuna. Katrín bætti við 3 mörkum í seinni hálfleik, Anna María og Eva Lind svo sitthvoru. Lokastaðan því 7-0 og stelpurnar komnar með 3 stig af 6 mögulegum yfir helgina.

Systurnar voru duglegar að skora fyrir austan
Á laugardeginum var svo létt æfing á Egilsstöðum, jogg og teygjur og skellt sér í heita pottinn. Stelpurnar gistu í félagsmiðstöð grunnskólans líkt og í fyrra. Eftir sund fengu stelpurnar ljúffengt lasagne og meðlæti sem Auður (liðsstjóri), Árný og Friðgeir sáu um að elda ofan í þær og viljum við þakka þeim kærlega fyrir að hugsa um liðið svona vel án þeirra hefðu þær bara étið hamborgara og pizzur í morgunmat ;)
Anna Þorsteins, eða ,,Gamla“ átti svo hálfrar aldar afmæli á laugardeginum og kom ein ljúffeng Betty í heimsókn og fékk hún glæsilega afmælisgjöf frá hópnum. Gaman að segja frá því að Anna gleymdi að taka með sér handklæði í ferðina í fyrra og sá leikur endurtók sig í ár og fékk því nýtt handklæði í afmælisgjöf!

Til hamingju með afmælið gamla okkar!!!
Eftir Betty-át fóru sumar að éta meira á meðan þessar frábæru fóru í bíltúr um Hallormsstað og biðu eftir bronsleik HM þar sem Þjóðverjar tóku þetta að sjálfsögðu. Annars var bara voða mikið kósý kvöld á laugardagskvöldinu og horft á eina klassíska stelpumynd og farið snemma í háttinn því leikur daginn eftir.
Á sunnudeginum var leikurinn gegn Hetti frá Egilsstöðum, var hann spilaður á Fellavelli sem er 5 mínútur frá Egilsstöðum. Sama byrjunarlið var í þeim leik nema nú kom Bára inn á bekkinn en Bára var að spila sinn fyrsta leik í 11 mánuði fyrir mfl.kvk en hún sleit krossbönd í hné sl. Sumar.
Strax eftir aðeins 17 sekúndur og í fyrstu sókn Selfyssinga skoraði Dagný H. eftir sprett upp vinstri kantinn. En Hattarstelpur voru ekki lengi að svara fyrir sig og skoruðu strax í sinni fyrstu sókn eftir sprett upp hægri kantinn og sofandigang í vörninni. Svo staðan var 1-1 eftir aðeins 1 mínútu.
Anna María náði að skora svo fyrir Selfosskonur fyrir hálfleik og staðan því 2-1 í hálfleik og ljóst að stelpurnar ætluðu að fara erfiðu leiðina í þessum leik. Í seinni hálfleik kom ,,nýtt“ lið inn á völlinn og gjörsamlega yfirspiluðu Hattarstelpur. Selfoss sótti látlaust og uppskáru 4 mörk, þrjú þeirra skoraði Katrín og Anna María bætti við sínu öðru marki og lokatölur því 6-1 á Fellavelli.
Liðið er því taplaust í riðlinum með 27 stig og markatöluna 53-9.

Hópurinn á flugvellinum
Næsti leikur stelpnanna er á mánudaginn, 19.júlí, kl. 20:00 á Selfossvelli gegn ÍR-ingum.
Deila