Við spiluðm víst við Grindavík í 45 mínútur um daginn. Því færri stafabil sem fara í fyrri hálfleikinn því betra þannig að það er hægt að súmmera hann upp í það að við vorum heppnir að vera ekki 4-6 mörkum undir og sumir leikmennirnir voru væntanlega bara inná til þess að hafa 11 menn inná.
Seinni hálfleikur var allt annað mál. Liðið var grimmt og það jöfnunarmakið lá í loftinu, allir áhorfendurnir leikmenn beggja liða, annar línuvörðurinn og dómarinn voru á því að Davíð hefði skorað en einn maður á vellinum var á því að guttinn hefði verið rangstæður og því flaggaði hann eins og vitleysingur á 17. júní. Jöfnunarmarkið kom svo skömmu seinna Jón Daði setti það með viðkomu í einum af HM-spekingum RÚV. Leikurinn var svo jafn eftir það bæði lið voru að fá færi, Ondo fékk nokkur mjög góð en að sama skapi vorum við meira með boltann. Það var hálfskrítið miðað við fyrri hálfleik að manni fannst maður vera hlunnfarinn með aðeins 1 stig. En næsti leikur er við Fylki og þar er svo sannarlega möguleiki á 3 stigum sem við verðum að taka. Ég þykist vera nokkuð viss um að Haukar fara að hitta á eins og einn sigurleik og Grindavík er að komast í gang, því er möst að við förum að gera eitthvað af viti.
Eitt af því mikilvægasta sem við getum gert núna í þessari viku er að styrkja hópinn. Í kvöld var settur upp æfingaleikur Selfoss – Selfoss og prufaðir 5 útlendingar sem litu misvel út. Tveir afrískir leikmenn voru að spila í kvöld, báðir mjög lágvaxnir, snöggir og fínir á boltann. Sænskur bakvörður/miðjumaður og svo Austurríkismennirnir tveir. Afrísku strákarnir tveir virkuðu vel á mig, sá sænski líka en þessir austurrísku voru nokkuð þungir og hægir. Patrick Berger leit þó ágætlega út. Allir fimm væru fín viðbót við hópinn, þeir afrísku þó sérstaklega og þá hugsanlega beint inn í byrjunarliðið.
Svo sást reyndar til Sigurvins Ólafssonar á æfingarsvæðinu en reyndar í borgarlegum klæðum.
Deila