Það er ekki að spyrja að því með mfl. kvenna, þær eru lang flottastar. Í kvöld tóku þær vini okkar í Fjarðarbyggð og Leikni 0-7. Ég er ekki frá því að þær fyrir austan hefðu getað bætt Austra, KVA, Huginn, Einherja, Þrótti N og Hetti við og þær hefðu samt tekið þennan leik. (ég veit að þetta er mikið til soðið saman sem Fjarðarbyggð).
Systurnar Anna María og Katrín Ýr Friðgeirsdætur skoruðu fyrstu tvö mörk Selfoss og staðan var 0-2 í hálfleik. Katrín bætti síðan við þremur mörkum í síðari hálfleik og Anna María einu auk þess sem Eva Lind Elíasdóttir skoraði eitt mark. En það er gaman að geta þess að Katrín er komin með 897 mörk það sem af er móti.
Eins og sjá má á Sunnlenska.is þá hafði Helena þetta að segja eftir leik:
„Þetta var fínn leikur hjá okkur og mjög sannfærandi sigur. Við vorum reyndar manni fleiri frá 30. mínútu og þá var staðan 0-2 en við höfðum góð tök á leiknum allan tímann,“
Liðin mættust fyrir bara viku síðan og þá rétt mörðu stelpurnar sigur, bara skitið 5-1 þá og bætti Helena þessu við á Sunnlenska.is:
„Það var ferlega fínt að mæta þeim strax viku seinna. Selfoss var í vandræðum með að klára útileikinn hérna í fyrra þannig að við mættum vel innstilltar í leikinn í kvöld.“
Stelpurnar eru áfram taplaust á toppi B-riðils með 24 stig. Liðið heldur sig fyrir austan um helgina og mætir botnliði Hattar á Egilsstöðum á sunnudaginn.
Guð hjálpi þeim segi ég nú bara, mesta spennan í þeim leik verður líklega hvort Helgi Sig formaður Hattar eða Halli Geir mæti á völlinn,

Hópknús eru alltaf hressandi - Mynd Sunnlenska.is / Gummi Kalli
Deila