Næsti leikur Selfyssinga í Pepsideildinni er jafnframt síðasti leikur í fyrri umferð sem þýðir það að mótið er hálfnað. Þessi leikur er sannkallaður 6 stiga leikur því við mætum Grindvíkingum, sem eru stigi fyrir neðan okkur í 11. sæti. Selfyssingar töpuðu fyrir Blikum og Grindavík tapaði fyrir KR í síðustu umferð og er óhætt að segja að bæði lið hafi verið nokkuð óheppinn að fá ekki eitthvað út úr þeim leikjum.
Það eru ráðherrar samgöngumála sl. 20 ára sem koma í veg fyrir að um nágranaslag sé að ræða, en ítrekuð kosningaloforð um fullbúinn suðurstrandaveg hafa verið svikin. Samt sem áður eru einhver sérkennileg vinarbönd á milli bæjarfélaga á suðurlandi og á suðurnesjum.
Liðin hafa alls mæst 23 sinum í opinberum leikjum á vegum KSÍ sem einhverjar heimildir eru til um. Grindvíkingar hafa betur, hafa unnið 12 leiki, 4 hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 7 leiki. Mestu munar um ömurlega frammistöðu gegn Grindvíkingum á þriggja ára tímabili frá ´91-´94, en þá leku liðin 6 leiki sem Grindvíkingar unnu alla og voru með markatöluna 21-0 úr þeim.
Árið 1978 tryggðu Selfyssingar sér sæti í b-deild eftir eftirminnilegt sumar. M.a var leikið við Grindavík í Grindavík og skoruðu heimamenn sigurmarkið í lokin. Línuvörður leiksins flaggaði og vildu Selfyssingar meina að um rangstæðu hefði verið að ræða, en svo var víst ekki og var línuvörðurinn eingöngu að fagna marki Grindvíkinga enda harður stuðningsmaður þeirra. Eftir leik rifnuðu föt þjálfarans í nettum átökum við stuðningsmenn Grindavíkur og væri því snjallt hjá Gumma Ben að mæta ekki alveg í sínu fínasta í kvöld.
Selfyssingar unnu sinn stærsta sigur á Grindvíkingum árið 1985, er þeir tóku þá 5-0 eftir að staðan hafði verið 4-0 í hálfleik. Mörk Selfyssinga skoruðu þeir Sumarliði Guðbjartsson 2, Páll Guðmundsson, Gunnar Garðarsson og Daníel Gunnarsson (pabbi Helga Vals) eitt mark hver.
Liðin hafa leikið tvo leiki í Deildarbikarnum á síðustu árum, þann fyrri árið 2008 sem fór 1-1 og má sjá leikskýrslu hér og umfjöllun hér. Svo léku liðin í fyrra og má lesa um þann leik hér og sjá leikskýrslu hér.
Nokkrir gaurar hafa gengið á milli félagana tveggja. Guðlaugur Örn Jónsson lék með Selfoss ´98-´99. Hörður Hilmarsson hefur líka komið mikið við sögu hjá báðum liðum og reyndar komið ótrúlega mikið við sögu í þessum pistlum og hef ég það stundum á tilfinningunni að hann hafi þjálfað fleiri lið en Einar Friðjófs. Snillingurinn Sigurbjörn Daði Dagbjartsson lek með Selfoss 1999 og 2000 og náði sér í toppkonu hér á staðnum sem hann er giftur í dag og mættu leikmenn annarra liða sem undirritaður hefur talað við hafa það í huga.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Jón Sveins, Agnar Bragi, Kjartan Sigurðsson, Guðmundur Þórarinsson, Ingó Tóta, Einar Ottó, Jón Guðbrands, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór. Arilíus kemur úr banni og gæti komið inn, eins eru einhverjir að koma úr meiðslum, en enn óljóst með þá.
Líklegt byrjunarlið Grindavíkur er: Rúnar, Loic Ondo, Orri, Auðunn Helga, Jósef, Scot Ramsey, Matthías, Jóhann Helga, Páll, Grétar Hjartar og Gilles Ondo.
Aðaldómari leiksins er Erlendur Eiríksson og honum til aðstoðar eru þeir Gylfi Már Sigurðsson og Jón Magnús Guðjónsson. Eftirlitsmaður suður með sjó verður Jón Sigurjónsson.
Grindvíkingar eru með sæmilega heimasíðu þar sem ungmennafélag staðarins heldur upp fjörinu. Hér er hægt að fara inn á heimasíðuna. Spjallborðið liggur niðri, en undirrituðum var farið að hlakka til að kíkja þangað því ef einhverjir kunna að rífa kjaft þá eru það Grindvíkingar.
Veðrið á leikdag er miðað við legu staðarins gott. Þar verða ekki nema 8 m á sek, léttskýjað, þurrt og hiti 11 stig.
Tómas.
Deila