Eftir ansi hreint dapran leik gegn ÍBV í eyjum sem tapaðist sannfærandi á innan við mínútu þá var ekki hægt að segja að bjartsýnin væri að fara með stuðningsmenn Selfoss fyrir leik gegn Blikum sem hafa verið í góðu stuði í sumar og gátu komist á toppinn með því að vinna á Selfossi.
Áhyggjur fyrir leik virtust alveg eiga rétt á sér fyrsta korterið á þessum leik en þá fór þetta aðeins að smella hjá okkar mönnum og þeir sýndu vel að þeir standast þessum liðum alveg snúning ef þeir trúa á það.
Byrjunarliðið var reyndar ansi breytt frá síðasta leik, Kjartan kom inn fyrir Stefán Ragnar sem var eitthvað tæpur fyrir leik, Gummi Tóta af öllum mönnum kom í vinstri bakvörðinn fyrir Andra Frey sem var á bekknum og Jón Sveins var í hægri bak gegn sínum uppeldisklúbbi á kostnað Sigga Eyberg sem var hreinlega ekki í hóp að þessu sinni.
Á miðjunni voru frændurnir Einar Ottó og Jón Guðbrands loksins saman og með þeim eldri sonur Tóta Ingólfs. Frammi var síðan Jón Daði spaði á sínum stað og Davíð Birgisson hinumegin á kostnað villingsins frá Stokkseyri, Arilíusar Marteins sem var í banni.
Upp á topp var síðan Yakubu.
Þetta kom nú bara ágætlega út og liðið átti nokkra góða kafla í leiknum, Gummi Tóta kom á óvart í vinstri bak og var gaman að sjá hvað vörnin var að veiða Blikana oft í rangstöðunni þrátt fyrir að hringla svona mikið með hana fyrir leik. Eftir Einari Ottó höfum við beðið eftir í allt sumar og sýndi hann oft á tíðum í gær afhverju það var. Fyrir leik spjallaði ég við Einar Ottó og sagði honum að skora í dag og jafnvel næla sér í 1-2 spjöld…. hér eftir ætla ég að spjalla við Ottó fyrir hvern leik. Frammi verðum við síðan bara að hafa Sævar Gísla, jafnvel þó að hann hafi átti magnað klúður í þessum leik.
Fyrri hálfleikur var reyndar mjög rólegur og lítið um opin færi sem vert er að tala um, helst var það að hornspyrnur væru að stríða okkur rétt eins og venjulega í sumar. Reyndar skoruðu gestirnir tvisvar í fyrri hálfleik en þau mörk komu bæði löngu eftir að Jóhannes Valgeirsson dómari hafði flautað rangstöðu.
Jóhannes Valgeirsson næstbesti dómari landsins í stuði - Mynd Fótbolti.net
Hættulegustu sóknartilburði Selfyssinga í fyrri hálfleik áttu þeir Sævar Þór og Jón Daði sem endaði á því að sá fyrrnefndi átti afar slæmt skot sem endaði í innkasti eftir gott spil þeirra á milli. Ég er þegar búinn að biðja Ingó Tóta að tala við Hemma Gunn vin sinn um það hvort hann eigi ekki gamla takkaskó til að lána Sævar Gísla!!!
En þegar allir voru að búa sig undir kærkominn kaffibolla í kuldanum á Selfossi fengu Blikar hornspyrnu sem þeir nýttu til fullnustu. Við erum farin að þekkja þetta, uppbótartími í fyrri, þeir frá horn á hættulegum stað, allir á vellinum muldra með sér EKKERT RUGL NÚNA, og bang, mark og hálfleikur. Geðveikt.
Kristinn Jónsson sendi boltann beint í lappirnar á Kristni Steindórssyni sem laumaði honum í hornið. 0-1 því staðreynd eftir bókstaflega síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Afar svekkjandi!
Strákarnir komu ágætlega vel grimmir til leiks í seinni hálfleik og jafnaði Einar Ottó Antonsson metin á 56.mínútu. Hann vann þá boltann á miðjunni eftir mistök hjá Kára Ársæls, spólaði sig í gegnum vörn Blika og lék á Kale í markinu og setti boltann örugglega í netið. Stórvel gert hjá Ottó sem má leggja þetta í vana sinn í sumar.
Einar Ottó fagnaði með stæl! - Mynd Sunnlenska.is / Gummi Kalli
Blikar svöruðu síðan á 66.mínútu er Guðmundur Pétursson kom þeir aftur yfir, hann laumaði boltanum í hornið framhjá sofandi vörn heimamanna sem höfðu verið nokkuð sprækir eftir markið hjá Einari Ottó.
Strax í næstu sókn átti Sævar Þór Gíslason eitt mesa klúður ársins er hann renndi boltanum framhjá eftir að því er virðist opnu marki. Jón Daði hafði þá spólað sig vel í átt að marki og átt skot sem Ingvar Kale varði í marki Blika en frákastið endaði hjá Sævari Þór sem trúir því ekki ennþá að hann hafi ekki skorað þarna.
Hér má sjá þetta færi:
Þegar leið að leikslokum reyndi Gummi Ben að blása til stórsóknar og skipti Inga Rafni inná sem varamanni fyrir Jón Sveinsson. Það fór þó ekki betur en svo að Kristinn Steindórsson gulltryggði sigur gestana með marki á 90.mínútu og til að toppa það fékk Ingi Rafn rautt spjald, um fimm mínútum eftir að hann kom inná. Hann útskýrði þetta fyrir mér í dag með þvi að hann ætlaði ekkert að fara í manninn og þetta var ekki viljandi, en klárlega brot sem honum fannst alveg hafa mátt vera gult. Sjálfur sá ég þetta ekki.
Ingi Rafn nælir sér í rautt! - Mynd Gummi Kalli
Því fór þetta á endanum svo að Blikar unnu 1-3 sigur sem gefur ekki alveg rétta mynd af leiknum, kæruleysi að manni fannst í mörkum Blika orsakaði þetta tap í leik sem hefði svo sannarlega alveg getað fallið okkar megin. Helsti munur liðanna var líklega sá að annað liðið er í hörkuformi og fór á toppinn með þessum sigri á meðan hitt er í töluverðu basli og fátt fellur með. Í þessum leik var ekki svo ýkja mikill munur, þó við myndum ekkert segja nei við Alfreði Finnbooga í okkar lið!!
Næsti leikur er gegn Grindavík og ef við náum upp svipuðum leik og gegn Blikum gætu úrslitin sannarlega verið önnur.
Fyrir öllu er að styðja liðið út mótið, Skjálfti hefur verið gjörsamlega frábær það sem af er og vann stuðningsmannaverðlaun félaganna fyrir umferð 1-8 með fáránlegum yfirburðum og gjörsamlega sungu Blika í kaf í gær.
Með svona stuðningsmenn er allt hægt, þó það líti ekki út fyrir það núna. - Mynd Sunnlenska.is / Víðir Jóakims!!
Selfoss 1-3 Breiðablik
0-1 Kristinn Steindórsson (45)
1-1 Einar Ottó Antonsson (56)
1-2 Guðmundur Pétursson (66)
1-3 Kristinn Steindórsson (90) Rautt spjald: Ingi Rafn Ingibergsson
Byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur Sigurðsson(M), Agnar Bragi Magnússon, Kjartan Sigurðsson, Ingólfur Þórarinsson, Jón Steindór Sveinsson, Sævar Þór Gíslason(F), Davíð Birgisson, Guðmundur Þórarinsson, Jón Daði Böðvarsson, Jón Guðbrandsson, Einar Ottó Antonsson. Varamenn: Elías Örn Einarsson, Andri Freyr Björnsson, Ingþór Jóhann Guðmundsson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Viðar Örn Kjartansson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Ingi Rafn Ingibergsson.
Dómari: Jóhannes Valgeirsson- Sæmilegur, hef heyrt marga tuða ógurlega yfir honum en sé ekki að þetta tap skrifist á hann á nokkurn hátt ef litið er hlutlaust á þetta. Aðstoðardómarar: Smári Stefánsson og Viðar Helgason Áhorfendur: 1.023 Maður leiksinshjá Selfoss: Einar Ottó Antonsson, hann er allur að koma til og nauðsynlegt að fá hann í gang fyrir seinni hluta mótsins. Sjáumst: Í Grindavík á fimmtudaginn, eftir þann leik vill ég vera að skrifa um sigurleik takk. Babú
Eins og fram kemur á fótbolta.net (þar sem Tommi Þórodds er ekki að standa sig í að láta orgið fá ferskustu fréttirnar fyrst) þá er sjálfur Patrick Berger á reynslu hjá Selfoss núna ásamt öðrum leikmanni.
Við höfum akkurat ekki grænan grun um þessa kappa en ljóst var að eitthvað yrði reynt að skoða varðandi nýja leikmenn í júlí glugganum.
Maður sem heitir Patrick Berger þarf ekkert að koma á reynslu, aldrei spurning.