Selfosskonur komust í toppsæti B-riðils í 1.deild kvenna í dag þegar liðið tók á móti Fjarðabyggð/Leikni á Selfossvelli.
Byrjunarliðið var svo hljóðandi:
Dagný P.
Aníta Þóra Veronika Sif
Katrín Thelma Dagný H.
Anna Þ. Aníta
Anna María
Varamenn: Lena, Íris Sv., Eva Lind, Bríet, Guðbjörg.
Sigurinn var virkilega erfið fæðing hjá Selfosskonum en Fjarðabyggð/Leiknir komu ákveðnar til leiks og það var hálfgerður sofandiháttur í Selfossliðinu. Þær voru að koma boltanum allt of mikið inn í þvögupakka oft á tíðum og ekki að spila sinn bolta. Selfoss náði ekki að skapa sér mikið af færum í fyrri hálfleik og sendingarnar oft alltof fastar fyrir markið og góður markmaður gestanna var að verja mjög vel í markinu.
Á 20.mínútu fá gestirnir aukaspyrnu fyrir utan teig og nýttu sér hana því hún flaug beint í fjær hornið. Óverjandi og glæsileg spyrna.
Staðan var 1-0 í slökum fyrri hálfleik. En það var ekki uppi á teningnum í síðari hálfleik því Selfossstelpur komu nú ákveðnar til leiks og fóru að spila sinn rétta bolta og átti m.a. Anna María skot í stöngina. Og áfram var markmaður Fjarðabyggðar að verja vel í markinu.
Það gerðist svo loksins eftir stífar sóknir frá byrjun síðari hálfleiks að Selfoss fær hornspyrnu sem Dagný H. Skallar glæsilega í markið. Staðan því orðin 1-1 og ljóst að stelpurnar ætluðu að sýna hvað í þeim býr.
Eva Lind Elíasdóttir, 15 ára stelpa sem leikur með 3.flokki á Selfossi, kom inn á fyrir Önnu Maríu og stimplaði sig rækilega inn í lið Selfoss. Eva skoraði 2.mark Selfoss eftir klafs í teignum eftir hornspyrnu Selfyssinga.
Þriðja mark Selfoss kom eftir góða stungu sendingu frá Guðbjörgu, en hún kom inn á fyrir Önnu Þ., inn á Katrínu sem lék á markmann Fjarðabyggðar og lagði knöttinn í netið.
Aftur var svo Eva Lind á ferðinni þegar hún fær góða stungusendingu frá Katrínu og leikur á markmanninn og rennir knettinum í netið. 4-1 og Selfoss með yfirhöndina í leiknum.
Fimmta og síðasta markið kom þegar Selfyssingar fá dæmda vítaspyrnu og var það Katrín sem fór á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi.
Lokatölur 5-1 á Selfossvelli eftir slaka byrjun en enn og aftur sýndu stelpurnar karakter og koma til baka eftir að lenda undir.
Selfoss er nú í 1.sæti riðilsins með 7 sigra eftir 7 leiki og því fullt hús stiga eða 21 stig.
Það er kalt á toppnum en alls ekki leiðinlegt : )
Næsti leikur stelpnanna er svo aftur við Fjarðabyggð/Leikni á föstudaginn þann 9.júlí en þá fara stelpurnar austur yfir helgina og leika 2 leiki, við fyrrnefnt lið og Hött frá Egilsstöðum.
Deila