Næsti leikur Selfyssinga í Pepsídeildinni er heimaleikur og er hann gegn Breiðablik úr Kópavogi. Dómari leiksins flautar leikinn á kl 19.15 mánudaginn 05.07. Blikar fengu KR í matinn í síðustu umferð, eins og þeir sungu eftir leik við Knattspyrnufélag Reykjavíkur, við lítinn fögnuð þeirra röndóttu. Selfyssingar töpuð aftur á móti í nágranaslag gegn ÍBV. Breiðablik er á run-i, en Selfyssingar eru það ekki, samt sem áður má búast við hörku viðureign, því deildin er jöfn sem aldrei fyrr.
Þó ekki sé það öllum sýnilegt í fyrstu, er það heilmargt sem þessi lið eiga sameiginlegt. Þar mætast tvö yngstu lið deildarinnar, en þau hafa verið að skipta því á milli sín að vera yngsta lið hverjar umferðar. Ekki bara að Selfoss og Breiðablik séu yngstu lið deildarinnar heldur eru þetta þau lið sem eru með flesta heimaalda leikmenn í sínu liði. Mjög gott hjá þeim.
Það er annað og meira sem þessi lið eiga líka sameiginlegt. Því á mánudag munu best klæddu þjálfarar landsins mætast, en kosningunni lauk um síðustu helgi og var Willum Þór að sjálfsögðu valinn sá vestklæddi. Þannig að búast má við veislu fyrir ljósmyndara SE og HØR á mánudag.
Breiðablik er sennilega með öflugasta yngri flokka starfið á landinu og gætu með réttu aðhaldi orðið stórveldi í íslenskri karlaknattspyrnu. Þeir voru stórveldi í kvennaknattspyrnu og verða það von bráðar aftur. Hjá Breiðablik er allt til staðar varðandi aðstöðu og er óhætt að segja að hún sé sennilega sú besta á landinu. Svo eru þeir auðvitað oftast með stærstu yngri flokkana og hafa verið að koma upp með marga af efnilegustu knattspyrnumönnum Íslands undanfarin ár.
Það sem helst hefur vantað er hefð og stórir titlar, en Breiðablik vann sinn fyrsta stóra titill í haust er þeir lögðu Fram í bikarúrslitaleik. Það kæmi mér ekki á óvart að þessi titill yrði sá fyrsti af mörgum á næstu árum og ef undirritaður ætti einn bláan myndi hann setja seðilinn á Blika sem íslandsmeistara árið 2010.
Á íslandsmótinu 1979 léku Breiðablik og Selfoss opnunarleikinn. Breiðablik var talið sigurstranglegra og komst yfir í leiknum með marki frá Sigurjóni Rannverssyni. En það var svo Ámundi Sigmundsson sem jafnaði leikinn. Stefán Larsen skoraði svo mark fyrir Selfoss í lokinn, en það var „dæmt af á þokukenndum forsendum“ eins og segir í blaðagrein frá leiknum. Þannig að sá leikur endaði 1-1 og Breiðablik vann seinni leikinn 1-0 og unnu svo reyndar b-deildina um haustið á meðan Selfoss endaði í 5. sæti.
Í byrjun ágúst árið 1987 tylltu Selfyssingar sér á topp b-deildar íslandsmótsins með 3-1 sigri á Breiðablik. Þorsteinn Friðjónsson var þarna að stýra Blikum í sínum fyrsta leik og virtist spennustigið nokkuð hátt því Gylfi Orrason þurfti að gefa þremur leikmönnum rauða spjaldið, blikarnir Gunnar Gylfason og Sigurður Viggósson og Selfyssingurinn Jón Gunnar Bergs fengu því forgang á sturtunum. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu þeir Heimir Bergs, Jón Gunnar og Palli Guðmunds, en mark Blika skoraði Jón Þórir Jónsson sem við komum betur að síðar. Maður leiksins var Björn Axelsson úr Borganesi sem spilaði mjög vel með Selfyssingum þetta sumar.
Selfoss og Breiðablik gerðu jafntefli 2-2 þann 3. júní 1988 þar sem Björn Thoroddsen sýndi spenntum áhorfendum listflug í hálfleik. Páll Guðmundsson og Guðmundur Magnússon, úr víti, skoruðu fyrir Selfoss, en Jón Þórir Jónsson skoraði bæði mörk Blika og var besti maður vallarins. Jón Þórir spilaði svo seinna með handboltaliði Selfoss sem kennt var við mjaltavélina og gerði góða hluti þar. Selfoss sigraði svo seinni leikinn 1-0 með marki frá Heimi Bergs og þar var Tóti Ingólfs var valinn maður leiksins. Blikar björguðu sér svo frá falli í c-deild um haustið.
Síðasti KSÍ leikur liðana fór fram í Deildarbikarnum í mars 2008 og þann leik unnu Blikar 4-1 og skoraði Agnar Bragi Magnússon mark Selfyssinga úr aukaspyrnu. Hér má lesa leikskýrslu eftir þann leik.
Annars leku liðin æfingaleik í vetur sem Breiðablik vann 1-0. Hörkuleikur og sanngjörn úrslit.
Alls hafa liðin spilað 20 leiki á vegum KSÍ og hafa Kópavogspiltar betur. Þeir hafa unnið 11 leiki, liðin hafa sæst á jafntefli 5 sinnum og 4 sinnum hafa Selfyssingar unnið.
Síðustu sex leikir liðana í deilda líta alls ekki vel út, en þó má benda á að alltaf styttist í sigurleikinn eftir marga tapleiki. S er sigur, J er jafntefli og T er tap.
Selfoss : J-T-T-T-T-T
Breiðablik : S-J-S-T-S-S
Líklegt byrjunarlið Selfoss á mánudag er: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Ingi Rafn, Einar Ottó, Ingó Tóta, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór. Arilíus var í byrjunarliðinu síðast en er nú kominn í leikbann vegna fjögra gulra spjald og það fyrstur Selfyssinga, en stuðullinn á því fyrir mót var 1:250.
Breiðablik mun að öllum líkindum stilla upp í 4-3-3, en þess má þó geta að Ólafur Kristjánsson hefur einnig notað 4-2-3-1 í sumar. Ingvar Kale, Arnór Sveinn, Kári Ársæls, Elvar, Kristinn Jóns, Guðmundur Kr, Finnur Orri Margeirsson, Jökull Elísabetarson, Olgeir Sigurgeirs, Alfreð Finnboga og Kristinn Steindórs. Andri Rafn Yeoman og Guðmundur Pétursson koma svo inná í seinni hálfleik.
Einhverjir hafa farið á milli þessara félaga og hafa t.d Maggi Jónatans og Hörður Hilmars þjálfað bæði lið. Guðmundur Magnússon lék með Selfyssingum 1987, en hafði áður leikið með Breiðablik, Fylki og KR. Ragnar Guðmundsson kom hingað að láni þegar Kiddi Björns þjálfaði liðið og svo auðvitað legend-inn Steindór Elíasson sem spilaði með báðum liðum, en sonur hans Kristinn Steindórsson er einn alefnilegasti leikmaður landsins og spilar frammi á móti okkur á mánudag. Jón Gunnar Bergsson sem skoraði 22 mörk fyrir Selfoss árið 1986 með sítt að aftan og lúkkaði eins og Mario Kempes, lék einnig með Breiðablik og reyndar líka Val.
Ólafur Kristjánsson þjálfar Breiðablik sitt fjórða heila tímabil í röð en hann tók við liðinu á miðju tímabili 2006. Liðið hefur verið í sókn hjá þessum frábæra þjálfara og í fyrra enduðu þeir í fimmta sæti og unnu VISA-bikar keppnina. Ólafur hóf þjálfaraferil sinn hjá AGF í Danmörku þar sem hann var um árabil. Eftir að hann sneri aftur til Íslands tók hann við liði Fram á miðju sumri 2004 og bjargaði liðinu frá falli. Ólafur var á árum áður leikmaður FH, KR og einnig var hann atvinnumaður í Danmörku og spilaði í landsliði Íslands.
Dómarinn sem mun flauta leikinn er klárlega einn albesti dómari landsins, en hann heitir Jóhannes Valgeirsson og honum til aðstoðar eru líka toppmenn, en það eru þeir Smári Stefánsson og Viðar Helgason. Eftirlitsmaður leiksins er Sigurður Hannesson frá Stóru-Sandvík.
Opinbera heimasíða Breiðabliks er mjög góð, hér er hægt að kíkja á hana. Stuðningsmannasíðan er líka mjög góð, sjá hér , ágætis spjallborð er þar og hægt að hlusta á hið eiturhressa lag „ekkert hangs, ekkert hik- koma svo Breiðablik“ sem Eyþór Arnalds og Sigurður Ingi Ásgeirsson tóku upp. Annars saknar undirritaður lagsins „Breiðablik í stuði, sigrar allt í dag- Breiðablik í stuði, sérðu ekki það“ sem Blikastúlkur gáfu út fyrir 10-15 árum síðan og ef einhver góðhjartaður gæti bent mér á hvar það lag er að finna yrði ég þakklátur.
Veðrið verður gott til að spila knattspyrnu á mánudag. En um kvöldmatarleytið ver 12 stiga hiti, skýjað, hæg suðlæg átt og þurrt að kalla.
Tómas.
Deila