Á mánudaginn setti KSÍ leik Selfoss og Breiðabliks á dagskrá sem er tilvalið fyrir þá sem koma vonandi heim á sunnudaginn enda fótbolti tilvalinn til að hrista úr sér þreytuna. Koma heim segi ég þar sem allir Selfyssingar með tölu eru á leið í útilegu akkurat núna eins og sjá má villist maður á Austurveginn.
En til að fræðast aðeins betur um andstæðinginn heyrðum við aftur í honum Herði Snævari sem er m.a einn af pennunum á Fótbolta.net, villuráfandi United maður og umfram allt gallharður Bliki.
Hann fer um víðann völl, heldur því réttilega fram að Alfreð Finnboga sé besti leikmaður á Íslandi í dag og að spila sitt síðasta tímabil í Pepsi deildinni í bili, segir Gumma Ben að drullast til að byrja að æfa og lofar Skjálfta fínni samkeppni í stúkunni.

Blikar verða í stuði - Mynd stolið af Facebook
Lífleg byrjun á mótinu hjá blikum, nokkur ágæt úrslit og liðið í öðru sæti sem stendur í mjög jafnri toppbaráttu, hvernig er stemmingin í liðinu svona eftir tæplega helming mótsins?
Ætli stemmningin sé ekki afar góð eftir tvö góð úrslit en mér finnst samt sem áður sumarið hafa verið of kaflaskipt. Að tapa fyrir Grindavík á heimavelli á ekki að gerast og svo að detta úr bikarnum gegn FH þar sem liðið hefði vel getað klárað leikinn. Annars er það að vera við topp deildarinnar eitthvað nýtt fyrir meistaraflokk Breiðabliks þrátt fyrir að flestir leikmenn liðsins þekki fátt annað en að vinna titla úr yngri flokkunum.
Skemmtilegt verkefni í Evrópu framundan, hafið þið áhyggjur af því að það komi til með að trufla ykkur eitthvað í deildinni? Og á að skella sér með til Skotlands og jafnvel sippa í sig eins og einum Guiness?
Ég held að Evrópukeppnin muni ekki gera neitt nema gott fyrir liðið og mæta móralinn enn frekar, það mun ekki skemma ef úrslitin verða góð en þau eru bónus. Breiðablik er í fyrsta sinn komið í Evrópukeppni og því er verið að brjóta skemmtilegt blað í sögu félagsins. Ég ákveð það á næstu dögum hvort ég hendi mér með út og þá tel ég það afar líklegt að það renni niður einn, já jafnvel tveir bara.
Milli hvaða leikmanna verður mest spennandi baráttan á vellinum?
Ég held að barátta Elfars Freyrs Helgasonar og Sævars Þórs Gíslasonar gæti orðið áhugaverð barátta. Sævar eins og flestir vita öskufljótur en það er Elfar líka og ekki skemmir fyrir hvað Elfar er grjótharður.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Ég held að það sé bara einn leikmaður sem komi til greina og það er að mínu viti besti leikmaður Pepsi deildarinnar það sem af er, Alfreð Finnbogason. Hann er ekki bara fæddur markaskorari heldur frábær að finna liðsfélaga sína á hárrétum tímapunkti. Það kæmi mér alveg gríðarlega á óvart ef þetta væri ekki síðasta tímabil hans á Íslandi um hríð.
Hvar liggja helstu veikleikar Breiðabliks?
Ég myndi segja að það sé vanmatið, það hefur einkennt liðið að tapa fyrir svokölluðum „Slakari liðum“ og því er leikurinn við Selfoss stórhættulegur. Liðið hefur átt séns á að komast í toppbaráttu og klúðrað því síðustu ár en í ár held ég að annað sé uppá tenningnum.
Hvernig lýst þér á nýju leikmennina sem þið fenguð fyrir tímabilið?
Guðmundur Pétursson sem keyptur var hefur ekki sýnt það sama og hann sýndi í fyrra, ég held að hann sé bara ekki í nægilega góðu formi en við vonum að það fari að koma. Jökull Elísabetarsson hefur verið frábær á miðjunni og með betri mönnum liðsins. Rafn Andri varð fyrir því óláni að slíta krossband rétt fyrir mót sem voru mikil vonbrigði enda afar klókur leikmaður.
Hvernig kemur Óli til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Hann mun að sjálfsögðu spila kerfið sem er í tísku i dag, 4-3-3. Ég myndi halda að það verði svona. Ingvar Kale, Arnór Sveinn, Kári (F), Elfar Freyr, Kristinn Jónsson, Jökull Elísabetarsson, Finnur Orri Margeirsson, Alfreð Finnbogason, Olgeir Sigurgeirsson, Guðmundur Pétursson, Kristinn Steindórsson.
Værir þú Óli Kristjáns hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?
Reyna að pressa Selfoss frá byrjun og koma inn marki snemma. Selfoss liðið er ekki með mikið sjálfstraust og mark á fyrstu tíu mínútunum gæti sett liðið gjörsamlega úr skorðum.
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Breiðablik, hver yrði fyrir valinu?
Það er klárt mál að ég myndi vilja fá Davíð Birgisson í raðir Breiðabliks, klókur leikmaður sem getur einnig skorað mörk.
Megum við ekki búast við góðri mætingu úr Kópavoginum á leikinn? Skjálfti var að búa sig undir öfluga stuðningssveit sem fylgir liðinu?.
Ég lofa stuði og stemmningu og baráttu innan vallar sem og í stúkunni. Verkefnið er erfitt í stúkunni en Blikar munu reyna að gera sitt besta og standa í Skjálfta
Hvernig fer og hverjir skora?
0-3 Alfreð Finnbogason 2, Guðmundur Pétursson.
Eitthvað að lokum?
Vonandi fer Selfoss að fara á sigurbraut eftir þennan leik og pressið á Gumma Ben að taka fram skóna.
Á meðan við þökkum Herði fyrir hans innlegg bendum við Blikum sem ætla á leikinn á að safnast saman í stúkuna við hliðina á fjölmiðlaaðstöðunni, þar hafa stuðningmenn andstæðingana verið undanfarið og sitja því saman þar (og á móti Selfyssingunum). Eins þá er Breiðablik ekkert í Skotlandi á hverju ári og því engin spurning að fara með þeim þanngað, haldi maður með Breiðablik á annað borð.
Deila