| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « maí | júlí » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | ||||
Stelpurnar unnu alveg afskaplega góðan sigur á „hinu“ mjög góða liðinu í riðlinum áðan, 3-2 0g það kemur líklega ekki á óvart að Katrín Ýr Friðgeirsdóttir skoraði öll mörk Selfoss í leiknum.
Stelpurnar voru þéttar í vörninni allann leikinn og áttu eyjastúlkur í mesta basli með að komast að markinu, það tókst þeim þó einu sinni í fyrri hálfleik og komust þ.a.l. í 0-1. Katrín Ýr var hinsvar fljót að jafna með góð marki og því stál í stál í hálfleik. Í seinni bætti Katrín Ýr síðan við öðru marki eftir góða sendingu frá Gummi og að lokum var það Aníta Lísa sem átti stoðsendingu á Katrínu sem kórónaði þrennuna á 81.mín. 3-1. Eyjastúlkur sóttu stíft eftir það og náðu að minnka muninn en lengra komust þær ekki og góður 3-2 sigur því staðreynd. Leikið var á nokkrum skrítnum tíma eða kl:18:00 en engu að síður var ágæt mæting á leikinn, þó undirritaður hafi ekki komist og því bendi ég á stórgóða umfjöllun Sunnlenska.is frá leiknum og eins gott viðtal sem sá afar ágæti vinamiðill Selfoss.org tók við Helenu þjálfara eftir leik.
Selfoss.org er engu að síður ákaflega hip og kúl vefur og með puttana á púlsinum þegar kemur að tækinni og látum við því flakka með facebook status Katrínar eftir leik, hann segir allt sem segja þarf.
Það má einhver senda friend suggestion á Sigurð Ragnar Eyjólfsson fyrir hana.
Babú
Selfoss-stelpur taka á móti ÍBV á Selfossvelli annað kvöld kl. 18:00.
Þetta er ekta toppslagur og nágrannaslagur í 1.deild kvenna en ÍBV er með 18 stig í 1.sæti riðilsins en Selfoss í því 2. með 15 stig en eiga þó leik til góða. ÍBV lék í 1.deildinni í fyrra og komust í undanúrslit og töpuðu óvænt fyrir liði FH. Þær ætla sér því upp um deild í ár eins og Selfossliðið ætlar sér og því þurfa stelpurnar á miklum stuðningi að halda á morgun!
Hvet alla til þess að mæta á völlinn kl. 18:00 og Áfram Selfoss!!
Selfosskonur fóru í Kaplakrikan í gærdag í 16 liða úrslitum Visa bikarsins sem endaði með 4-0 tapi.
Byrjunarliðið var svohljóðandi:
Dagný P.
Aníta G. Þóra Veronika Anna M.
Katrín Thelma Dagný H.
Anna Þ. Aníta L.
Íris
Bekkurinn: Gumma, Lena, Elsie, Brynja, Bríet, Karítas og Guðbjörg.
Selfosskonur byrjuðu ekki vel og náðu ekki að sækja hratt eins og þær ætluðu sér, sendingar voru ónákvæmar og liðið að spila langt undir getu. Þær geta hæglega staðið í liði eins og FH á góðum degi og eftir u.þ.b. 30 mínútna leik gerist umdeilt atvik að Thelma Sif fær sitt annað gula spjald fyrir smávægilegt brot rétt um miðju vallarins. Þessi ákvörðun dómarans sem þurfti smá tíma til þess að ákveða hvort hún fengi sitt annað gula spjald, hafði þónokkur úrslitaáhrif þrátt fyrir að lið Selfoss væri 2-0 undir þá hafa Selfosskonur oft lent í þeirri aðstöðu að lenda undir og koma sterkar til baka. Við sáum það í vetur gegn Þrótti eftir að hafa lent 3-0 undir en leikurinn tapaðist þó 5-4 eftir að Selfoss náði að jafna í 3-3.
Svo lið Selfoss lék manni færri allan síðari hálfleik og rúmlega það. Gumma kom inn á í síðari hálfleik en vegna landsliðsverkefna gat hún ekki byrjað leikinn og var reynt að breyta leiknum en má segja að ,,yfirvöld“ voru ekki beint að hjálpa Selfyssingum í þeim málum.
Staðan var 2-0 í hálfleik og stelpurnar byrjuðu aðeins beittari í þeim seinni. Það var meira líf frammi á við og Gumma og Katrín voru að skapa smá usla í vörn FH. Þrátt fyrir það náðu þær ekki að setja mark og FH konur sóttu mikið á mark Selfoss og uppskáru 2 mörk í þeim seinni.
Full stór sigur gegn liði eins og FH því við vitum að Selfoss liðið getur gert mun betur og var ekki að sýna sitt rétta andlit í þessum leik.
En það verður að hætta að hugsa um þennan leik því deildin er mikilvægari og stelpurnar eiga fyrir höndum mjög erfiðan leik á þriðjudaginn gegn ÍBV hér á Selfossvelli. Leikurinn hefst kl. 18:00.
Eftir svona dag þá er mikilvægt að gleyma því ekki að horfa á björtu hliðarnar. Liðið sýndi mun betri leik í seinni hálfleik en það hefur gert undanfarið og það er ótrúlega, gífurlega ómetanlega mikilvægt fyrir okkur stuðningsmenn að hafa í huga að þegar liðið er komið með bakið upp við vegg eins og núna að gefa í og styðja betur, öskra hærra og klappa fastar því góður stuðningur gerir kraftaverk. Það er ágætis pása fram að næsta leik svo við getum jafnað okkur aðeins og svo er bara að gefa í klára fyrri umferðina með stæl og syngja og styðja við liðið „Vegna þess að við erum Selfoss!“
Jæja getum strax farið að gleyma þessum eyjaleik hjá strákunum….
Stelpurnar fara í Kaplakrikan í 16 liða úrslitum Visa bikarsins á morgun, laugardag og hefst leikurinn kl. 14:00.
Stelpurnar unnu Keflavík 2-1 í framlengdum leik fyrr í mánuðinum og komust áfram í 16 liða úrslit í bikarnum. FH leikur í Pepsi deild kvenna en situr þar á botninum með 0 stig eftir 7 leiki. Selfoss stelpur eru á blússandi siglingu í 1. Deildinni og hafa unnið alla sína leiki. Það verður því spennandi að sjá þær takast á við úrvalsdeildarliðið á laugardaginn og hvetjum við alla Selfyssinga til þess að fá sér bíltúr í Hafnarfjörðinn og sjá stelpurnar spila. Það er alltaf gaman af bikarleikjum því þeir geta svo oft orðið mjög spennandi og óvæntir.
Einn leikmaður Selfossliðsins er einmitt á láni frá FH en það er hún Aníta Lísa og mun því mæta sínum gömlu félögum.
ÁFRAM SELFOSS!
Niðurstaða textalýsingar. Það helsta sem við fengum eftir þessa löngu textalýsingu er að Best of Sævar Sig diskurinn fæst í Heimstækni! Ég þakka annars fyrir mig og vona að einhver hafi haft gaman af þrátt fyrir að leikurinn hafi verið þó nokkur voonbrigði. Það er aldrei að vita nema ég hendi inn ferðasögu og leikskýrslu á sunnudaginn.
90.mín Það eru 4 mín í uppbót. Við töpuðum í eyjum og það nánast á 1.mín. Ég læt þetta duga í bili frá eyjum. Það er ekki hollt að vera allsgáður hérna.
85.mín – Sem þýðir að það eru fimm mínútur eftir… + uppbót
80.min – Viðar í gegn en skaut langt framhjá við mikinn fögnuð heimamanna sem eru í stuði núna. Okkur Vigni hundleiðist þetta
75.mín. – Já það var ekki að gera sig, Tryggvi Guðmunds skorar aftur, 3-0 DJÖFULL
72. mín - Ef þetta væri póker þá er Gummi Ben All In núna
71.mín – Við erum ekki alveg að gera okkur sem stendur og Gummi Ben gerir skiptingu, VIðar kemur inná og SIggi Eyberg útaf.
65.mín - Það er ekki einu sinni Þjóðhátíð!! Hvað er maður að gera hérna?
63.mín Við getum ekki varist horni, eyjamenn skora í andlitið á okkur, 2-0 ÍBV Agalegt helvíti.
62.mín – Geðveik tækling hjá Guðbrands á síðbína tæklingu í horn.
59.mín - Það eru 1.292 á vellinujm í kvöld sem er ágætt hérna held ég
57.mín – Jón Guðbrands og Davíð Birgis koma inná fyrir Ingó Tóta og Inga Rafn
55.mín – Stefán Ragnar er Rory Delap endurfæddur, bara myndarlegri.
54.mín - Allt annað að sjá okkar menn núna þó að við séum ekki að gera okkur nógu líklega, Guðbrands er annars að koma inná og það líklega fyrir Ottó.
48.mín – Sydnik sem er nýbúinn að sýna frumflutt leikrit á vellinum er tekinn útaf og Eyþór kemur inná hans stað.
47.mín – Það er klárlega skárra að vera undan vindi og meira líf í okkar mönnum en á móti þá kunna fáir betur á rok heldur en eyjamenn.
46.mín- Þá er seinni byrjaður og vonandi að við mætum til leiks núna
Hálfleikur – Það er alveg bless að fá mark á sig eftir innan við mínútu og ég legg til að Selfoss svari í sömu mynt undan vindi!! Annars var ég í varamannaskýlinu rétt áðan og það er svo lítið að Gummi Ben er búinn að reka sig uppundir einu sinni!! Ásamt flest öllum öðrum á bekknum!
45.mín – Uppáhaldsdómarinn okkar allra, Þóroddur Hjaltalín hefur flautað til leikhlés í leik sem hefur ekki verið góður að okkar hálfu! Erum í meðvind á eftir!
42. mín - Andri Ólafs með þrumu skot úr aukaspyrnu étt framhjá!! Djöfull hlakkar mig til þegar það kemur leikhlé!
35.mín - Það er frekar mikið pirrandi að sjá hvað heimamenn eru mikið grimmari í flest alla bolta.
33.mín – Siggi Eyberg fær gult fyrir brot á Andra Ólafs sem liggur eftir! Sævar Gísla datt áður asnalega og meiddi sig í baki sem er ekki gott mál.
31.mín - Svei mér þá við áttum skot á markið!!! Ingó Tóta en það fór bara í átt að markinu og svo langt framhjá því.
28.mín - Það er góð stemming í stúkunni auðvitað, fullt af Selfyssingum og Skjáflti leiðir hópinn. Eyjamenn eru líka hressir og með trommur og læti. Segja líka Í Í ÍBV og maður spyr sig hvort eyjamenn stami allir!!
24.mín – Eyjamenn hafa fengið 6-7 horn í fyrri hálfleik
20.mín - James Hurst með skot fyrir utan sem Jói varði glæsilega í horn. Eftir hornið var Jói rétt búinn að klúðra þessu en Selfoss ná að hreinsa í klaufalegri nauðvörn.
18.mín - Ingi Rafn sagði í viðtali við Sunnlenska.is í dag að ÍBV myndi alltaf byrja af krafti og Selfoss þyrfti að það virkilega í huga!!! Í stuttu máli virðast okkar menn hafa gleymt þessu algjörlega!
17.mín - Þessi Dennis Sydnik er hundleiðinlegur, fékk áðan aukaspyrnu á stórhættulegum stað sem hann skaut í vegginn og komst svo næstum í gegn og átti skot rétt framhjá
14.mín - Við erum ekki að ógna þeim að neinu leiti og þurfum heldur betur að hysja upp um okkur brækurnar! Ég fann samt vallarklukkuna og það er óneitanlega jákvætt!!
10.mín - Maður þarf nú að koma hingað til að skilja hvað það er skrítið að vera hérna þegar það er ekki einu sinni Þjóðhátíð!! Þegar við komum út á völl var ekki einu sinni bekkjabíll að ná í okkur!! Og þeir ganga víst bara á Þjóðhátíð!!
8.mín - Vignir Egill alveg með þetta samt frá byrjun.
6.mín það þarf engan vísindamann til að átta sig á því að eyjamenn spila undan nokkuð sterkum vindi!! Það er alltaf, alltaf rok í eyjum!
2.mín. – Hörmungar byrjun alveg hreint og alls ekki skv. handritinu.
0:40 mín – FOKKINGS HELVÍTIS ERTU AÐ GRÍNAST!! Það er 1-0 fyrir ÍBV, Tryggvi fokkings G
19:59 – Liðin komin
Jói í marki
Siggi Eyberg, Bragi, Stebbi Raggi, Andri Sindri Freyr
Ingi Rafn, Ingó Tóta, Einar Ottó, Jón Daði
Alli Matt
Sævar Gísla
Bekkur : Elli, Kjartan, Jón Sveins,, Davíð, Gunni Borgþórs, Viðar og Guðbrands.
19:57 – Ég sit við hliðina á Vigni Agli sem er fáránlegur heiður, fjölmiðlastúkan er í minni kanntinum er mórallinn í henni góður! Liðin eru komin út á völlinn og ég set þau hérna eftir smá.
19:55 -Besta stuðningsmanna lið by far á Íslandi í dag
19:50 - Mættur í fjölmiðlabúrið eftir hressa flugferð og fyrirleiks stemmingu í eyjum. Skjálfti er byrjaður að syngja.
17:25 – Fastir liðir eins og venjulega
17:18 – Að gefnu tilefni viljum við taka það fram að okkur líkar mjög vel við Ingó
17:00 – Allir mættir út á völl, usual suspects komnir í spilakassann og Ingó búinn að kaupa blað með honum sjálum framan á! Umræðan snýst annars að mestu um það hvort Kofi Tómasar Frænda og Tomma mótið í eyjum tengist eitthvað Tomma Þórodds!
16:15 – Ekki nóg með að maðurinn hafi eyðilegt bílinn minn og orðið til þess að Heiðin er nú lokuð vegna mengunarslyss þá tókst honum að gera snuðið sem við tróðum upp í hann til að hann myndi hætta að tuða svona vafasamt upp í sér, ja hérna.
16:00 – Ég er í annað sinn á ævinni ævinni flughræddur
15:44 – COMMENT!!! Jahérna það urðu viðbrögð við þessari live upppfærslu!!! Reyndar frá Stokkseyrarbekking en engu að síður viðbrögð!! Ingimar er maðurinn.
15:41 - Tæknin maður, úff. Er á keyrslu online, núna er stefnan á Reykjarvíkurflugvöll þar sem Sævar Sig er ennþá jafnspenntur og áðan
14:30 - Fjandinn þarf maður ekki vegabréf til að komast til eyja??? Og setja þeir Má ekki í sótthví eins og þegar við fórum í Hrísey síðast?
12:44 – Ingi Rafn er eitthvað að misskilja hlutina því hann ætlar víst að vera á tánum í kvöld. En þetta má sjá inni á Sunnlenska.is!
12:35 - Mínus henning og plús Ingó Tóta skal ég veðja við ykkur að þetta line up verði á Reykjarvíkurflugvelli klukkan 16:30 í dag. Þeir reyna að spila á hraðbanka, svei mér þá!

12:30 - Sævar Sig er mættur út á Reykjarvíkurflugvöll nú þegar og er að pissa í sig af spenningi

11:45 - Það er annars þrusu gott veður í eyjum núna og mjög góð stemming á Shell mótinu, ég tippa á að Skjálfti sendi lið til leiks á því móti áður en dagurinn er úti.
11:35 - Agnar Bragi ætlar að leggja til punginn sinn á eftir og í gegnum hann á ég víst að komast á netið í ferðinni!! Ég skil ekkert hvernig þetta virkar með punginn á Braga, en þetta hljómar sannarlega spennandi!
11:30 - Tommi Þórodds er lagður af stað til Þorlákshafnar með 23 Skjálftastráka og þeir eru í góðum gír svo vægt sé til orða tekið. Annars labbaði Ingi Rafn fyrrverandi leikmaður ÍBV framhjá mér áðan og var svo einbeittur að hann sagði ekki einu sinni hæ og er þar af leiðandi kominn á svartann lista hjá Orginu.
10:30 – Fylgist með upp úr hádegi við Ölfusábrú því það er aldrei að vita nema við sendum Máser og Gumma Kalla í svona æfingar til hennar Siggu (sjá hér)
10:10 - Skv. áreiðanlegum heimildum er staðan á þeim byrjunarliðsmönnum sem hafa verið tæpir þannig að:
Sævar Gísla er klár fyrir þennan leik
Gummi Tóta er klár
Ingó Tóta er klár að eigin sögn
Steini Púlla er tæpur og Hlynur Geir er örugglega í banni.
10:00 - Við hér á Orginu viljum jafnan hafa stemminguna í kringum leiki Selfoss liðsins sem mesta og gerum jafnan okkar besta hvort sem um er að ræða heima eða útileik. Fyrir flóknari ferðalög höfum við reynt að hafa lifandi umræðu yfir daginn eða gert nokkuð ítarlega ferðadagbók eftir ferð. Þegar liðið fór austur í hittifyrra var ég með live update af ferðum liðsins ásamt því að Vignir Egill lýsti leiknum live á Suðurland FM 96.3, sama ár fórum við á Sigló og þá kom auðvitað ferðasaga og árið eftir fór ég með austur og skilaði ferðasögu eftir leik. Þetta var reyndar fyrir daga Selfoss.org.
Núna er komið að eina alvöru ferðalagi ársins, með flugi og alles og þar sem helstu hetjur klúbbsins ákváðu að taka frá sæti fyrir okkur í flugvélinni sem liðið fer með erum við að spá í að vera með regluleg update yfir daginn af ferðum liðsins, lauma kannski einum og einum aulabrandara eða svo og myndum og segja stöðuna á liðinu og hvernig stemmingin er.
Það er alls kostar óvíst reyndar hvað við náum að halda þetta lengi út í dag, en þið getið sannarlega tekið þátt með því að leggja eitthvað til í pósti á einar@babu.tk, ummælum hérna fyrir neðan eða þó ekki væri nema bara með að splæsa like á þessa færslu svo hægt sé að sjá að þetta sé lesið.
Babu ásamt líklega Vigni Agli og Máser (og fleirum) halda þá lífi í þessu í dag og ef liðstjórnin nær að halda okkur rólegum fyrir leik er aldrei að vita nema maður skelli sér í fjölmiðlastúkuna og hjálpi Vigni að lýsa leiknum með textalýsingu a la Selfoss.org.
Babú
Fyrir þá sem komast ekki til Vestmannaeyja verður leikur ÍBV – Selfoss í beinni útsendingu á Suðurland FM og byrjar útsending kl. 19.45. Það er einnig tilvalið fyrir þá sem fara á leikinn að hafa gamla góða vasadiskóið eða símann með og hlusta útsendinguna á vellinum.
Hægt er að hlusta á útsendinguna á FM 96,3 eða á neitnu www.963.is
Eins og við höfum áður komið inná þá er sannkallaður derby slagur á morgun og líklegt að þó nokkuð verði af Selfyssingum á leiknum í eyjum enda tímasetningin hentug. Til að kynda enn frekar undir leikinn settumvið okkur í samband við mikinn snilling úr eyjum, Gísla Foster sem fylgist vel með boltanum þar og hefur meðal annars verið í stjórn hjá ÍBV og lengi verið hrifinn af leikmönnum Selfoss liðsins eins og hann kemur inná…

Eyjar á morgun og það er ekki Þjóðhátíð!!!
Lífleg byrjun á mótinu hjá eyjamönnum og nokkur ágæt úrslit, hvernig er stemmingin í liðinu svona eftir fyrsta þriðjung mótsins?
Hún er fín, eftir því sem ég veit best. Gangurinn hefur verið góður. Ég átti svo sem aldrei von á að við yrðum í fallbaráttu, þannig séð, en byrjunin er betri en oftast miðað við síðustu ár, vonandi verður bara framhald þar á. Personulega finnst mér deildin ekki eins góð og hún hefur oft verið, var reyndar ekki góð í fyrra heldur. Deildin er jöfn sem gefur þessu ákveðið líf, en ekki gæði. Ekkert lið hefur stungið af. Ekkert lið komið í þær hremmingar að maður sé búinn að afskrifa það. Það kvartar enginn í Eyjum þessa dagana
Svekkjandi og líklega ósanngjarnt tap gegn vinum ykkar í Vesturbænum í síðasta leik, kemur það til með að bitna á Selfyssingum helduru?
Nei ekkert frekar. Ef að við, eða eitthvert annað lið svo sem, ætlar að ná árangri þá er það lykilatriði að ná góðum árangri á heimavelli. Þannig að það verður eins tekið á móti Selfyssingum og öðrum liðum. Menn ætla sér sigur og það verður ekkert gefið eftir til þess að ná því fram. Það verður örugglega heldur ekki til að letja menn til að gera vel að geta sett þetta upp sem Suðurlandsskjálfta hinn fyrri á þessu tímabili.
Milli hvaða leikmanna verður mest spennandi baráttan á vellinum?
Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Þetta verður barátta út um allan völl. Það lið sem vinnur miðsvæðið klárar þetta. Ekki rétt að nefna einstaka leikmenn.
Hver í ÍBV liðinu er líklegastur til að koma okkur á óvart?
Finnur Ólafsson – búinn að reynast mjög drjúgur og frábær fengur fyrir liðið. Er ekki viss um að allir hafi gert sér grein fyrir því hversu góður leikmaður hann í raun er.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Andra Ólafs. Hann verður alveg grillaður í svona styrjöldum, já og James Hurst
Hvar liggja helstu veikleikar ÍBV?
Má maður kjafta frá svoleiðis?
Hvernig lýst þér á nýju leikmennina sem þið eyjamenn fenguð fyrir tímabilið?
Tryggva Guðmunds þekkja allir. Hann hefur reyndar elst frá því að hann spilaði með okkur síðast en það er líf í honum og hann er okkur mikilvægur. Finnur hefur verið frábær að mínu mati eins og ég sagði áðan, bestu kaupin so far. Dennis er nettur leikmaður góður á boltann og til alls líklegur, vill skora (líka ágætur leikari sýndist mér í síðasta leik). Ásgeir Aron hefur mikið verið að koma inn af bekknum og staðið vel fyrir sínu og gæti þess vegna verið kominn í byrjunarliðið eftir smá tíma – góður hlekkur í keðjunni. James Hurst er náttúrulega einfaldlega of góður til að vera að spila í Pepsi-deildinni. Þegar maður sér leikmenn eins og hann, þá gerir maður sér enn betur grein fyrir því hvað íslenskir leikmenn eiga í raun langt land með að verða atvinnumenn á þokkalegum standard. Þekki það nú svo sem eftir störf mín í þessum geira að ofmat íslenskra leikmanna á eigið ágæti er oft all svakalegt. Ef strákar eins og James eru ekki til þess að þessir leikmenn opni augun þá lýst mér ekki á það!!!
Hvernig kemur Heimir til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Hann mun leggja áherslu á að menn sæki frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og ekkert annað en sigur kemur til greina.
Værir þú Heimir Hallgríms (sem þjálfari, ekki tannlæknir) hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?Veit ekki hvort ég sé hæfari í að leysa hann af sem þjálfari eða tannlæknir, sennilega sama klúðrið á báðum stöðum! En fyrir leik gegn liði úr “hverfinu” sem vill verða stærri en við þá er ekki margt sem þarf að segja – Kill’em all!!!!!
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í ÍBV, hver yrði fyrir valinu?
Guðmundur Þórarinsson já eða Jón Guðbrandsson
Gaman væri náttúrulega ef Ingó og Guðmundur myndu spila eitthvað með ÍBV eins og faðir þeirra gerði á sínum tíma. Hann var nú í ÍBV liðinu sem vann næst efstu deild 1976 undir stjórn George Skinner. Hann var í liðinu sem vann Selfoss 11-0 í deildinni það árið. Sem er stærsti deildarsigur ÍBV hingað til.
Svo er nú tengingin öflugri að því er mér finnst. Því ég hef fylgst með þeim bræðrum báðum leika sér í fótbolta á lóðinni bak við hús hjá ömmu sinni og afa hér í Eyjum í gegnum árin en þau heiðurshjón búa fyrir neðan mig í Fjólugötunni – Gott ef Ingó var ekki í tjaldi á lóðinni þar á Þjóðhátíðinni í fyrra, eða var það hitteðfyrra. Það eitt finnst mér segja að við eigum nú smá í þeim – he he – Svo vita kannski ekki allir af því að Ingó er nú búinn að slá rækilega í gegn í tónlistarheiminum, og verður á Þjóðhátíð í ár skilst mér. Frændi hans, Sigurjón bróðir Þórarins, samdi Þjóðhátíðarlagið þú veist hvað ég meina mær. Þar er Ingó sem sagt skrefi á eftir frænda en hef hann nú grunaðan um að stefna á það í framtíðnni. Svo fer þeim fjölgandi sem vilja að Ingó taki að sér brekkusönginn á Þjóðhátíðinni en þar er klárlega kominn tími á breytingar.
Annað sem að rétt er kannsk að benda á eru tengslin milli ÍBV og Selfoss réttara sagt áhuga okkar á leikmönnum Selfoss í gegnum tíðina – það er að segja þegar ég var að skipta mér eitthva af þessu – Viðar Örn, Ingi Rafn , Arilíus hafa allir verið með leikheimilid hjá okkur. Við reyndum við Ingó Þórarins á sínum tíma, en hann fór í Fram, sem og Ingþór ef að ég man rétt, en hann fór ekki fet. Jóhann markvörður var farinn líka undir smásjánni á sínum tíma en við vorum of svifaseinir í það skiptið. Svo það er í raun hægt að segja að við höfum horft svolítið til Selfoss í gegnum árin. Ingi Rafn vinur minn kom þó alveg á eigin forsendum hingað.
Megum við ekki búast við góðri mætingu heimamanna á leikinn, föstudagsleikur og svona?
Jújú hún ætti að verða þokkaleg. Reyndar er Shellmót í gangi á þessum degi og einhver kvöldvaka í gangi þar á sama tíma og leikurinn þannig að það verða ekki 1200 fótboltapeyjar við hliðarlínuna allan leikinn en þetta ætti að verða vel sótt athöfn….og vonandi fyrirtaks skemmtun í 90+ mínútur
Nú er Skjálfti ásamt fleiri Selfyssngum að spá í að skottast til eyja á leikinn, er ekki alveg líf þarna svona þegar það er ekki Þjóðhátíð? :-) og talandi um það eru við ekki að tala um, í alvöru núna stærstu Þjóðhátíð frá upphafi, með tilkomu nýrrar hafnar?
Ef ekkert verður fjörið þá held ég að Skjálfta menn séu þess alveg fullfærir um að skapa þá stemmningu er þeir vilja hafa. Er það ekki þeirra aðall ;-)
Þetta með Þjóðhátíðina á eftir að koma í ljós. Við ráðum við það að taka við ákveðnum fjölda manns. Við skulum bara vona að það fari ekki yfir það, þá gæti verið að það dragi úr fjörinu! Þessi höfn gæti aftur á móti haft þau áhrif að við fáum fleiri stuðningsmenn annarra liða hingað á völlinn á sumrin og það er gleðiefni.
Vil annars bara bjóða ykkur öll velkomin til Eyja, alltaf gaman að fá góða gesti.
Hvernig fer og hverjir skora?
Ákvað fyrr á þessu ári að spá aldrei ÍBV sigri í sumar. Spái því 1-2. En hvort það verður raunin er svo undir leikmönnum ykkar komið
Eftir ítarlega rannsóknarvinnu hvernig best er að herja á Vestmannaeyjar hefur eftirfarandi komið í ljós. Skjálftagaurarnar ætla frá Þorlákshöfn til eyja á föstudag og slá upp tjaldbúðum og vera fram á laugardag. Einhver slatti er komin í einkaflugvélar og fara þeir flestir frá Selfossi. Nú er komin ný leið, en það er með litlum bát frá Bakkafjöru til eyja og heim strax eftir leik. Ferðin fram og til baka kostar 6.000-7.000kr og fer það eftir fjölda sem skráir sig, en 10 manns komast í bátinn í einu og farið verður á heilatímanum. Best er að skrá sig hjá Tómasi í síma 699-0660 eða eins er hægt að skrá sig í athugasemdakerfið fyrir neðan, en munið þá að skilja eftir símanúmer og ósk um brottfaratíma frá Bakkafjöru.
Þetta er ekki flókið, hringið í Tomma og reddið ykkur fari til eyja.
Næsti leikur Selfyssinga er sannkallaður Derby slagur, en þá mætum við hinu suðurlandsliðinu, ÍBV. Leikurinn fer fram í eyjum kl 20.00 föstudaginn 25. júní eða sléttu ári eftir að Michael Jackson féll frá með sviplegum hætti. ÍBV voru klaufar að taka ekki stig gegn KR í síðustu umferð er þeir töpuðu 1-0 í Frostaskjóli. Á meðan voru Selfyssingar slakir gegn besta liði deildarinnar FH og töpuðu 0-2. Selfyssingar eru því í 10. sæti með 7 stig, en ÍBV í 5. sæti með 14 stig. Bæði lið hafa skorað 11 mörk, en Selfoss fengið á sig 14 mörk á móti 8 mörkum eyjamanna.
Selfyssingar ætla að fjölmenna út í eyju á föstudag og undir styrkri stjórn Skjálfta ætla þeir að yfirtaka eyjuna fögru og verður herjað á eyjaskeggja úr loft, láði og legi. Hvergi verður gefið eftir, hver partur af eyjunni verður tekinn yfir og að lokum stúkan sem mun að öllum líkindum leiða til uppgjafar eyjaskeggja. Flugsveit vínrauða hersins mun gera árás úr lofti frá Reykjavík, Selfossi og Bakka, eins mun landherinn halda úr höfn frá Bakka og úr Þorlákshöfn. Nú þegar munu um 1000 hermenn vera staddir á eyjunni undir fölsku flaggi á Shellmóti, þar sem landgönguliðar eru búnir að skipta sér á hin ýmsu lið, en munu svo sameinast undir Selfossfána á föstudag. Frekari upplýsingar varðandi tímasetningar koma dulkóðaðar inn á heimasíðuna í dag.
Annars var hann algjörlega sólarlaus, laugardagurinn 14. ágúst árið 1976 hjá Selfyssingum, þá fengu þeir stærsta skell sinn frá upphafi og töpuðu fyrir eyjamönnum 11-0. Örn Óskarsson skoraði 6 mörk í leiknum og tók uppá því að gifta sig seinna um daginn, en sú heppna hét og heitir Hulda Kjærnested og fór athöfnin fram í Lundakirkju. Aðrir sem skoruðu fyrir ÍBV voru Tómas Pálsson 2 (pabbi Tómasar Inga), Sigurlás Þorleifs, Ólafur Sigurvinsson (pabbi Sigurvins og bróðir Ásgeirs) Sveinn Sveinsson smiður, og Þórður Hallgrímsson (bróðir Heimis)
Nú er öldin önnur og við mætum þeim með samanburðarhæft lið í dag. Síðast þegar liðin voru saman í deild voru liðin í toppbaráttu 1. deildar árið 2008. ÍBV vann fyrri leikinn í eyjum mjög öruggt 3-0. ÍBV komst upp þetta ár en Selfoss sat eftir þrátt fyrir að vinna ÍBV örugglega 3-1 á heimavelli í síðustu umferð, en þar þurftu þeir að treysta á Hauka sem gerðu að venju upp á bak og í þetta sinn gegn Stjörnunni. Hér má sjá umfjöllun um leikinn.
Liðin spiluðu tvo æfingaleiki í vetur, þann fyrri í Akraneshöllinni og unnu ÍBV þann leik 1-0 og má sjá umfjöllun um leikinn hér. Seinni æfingaleikurinn var á gervigrasinu á Selfoss þann 22. apríl s.l. Þann leik sigruðu Selfyssingar 5-0 og má sjá umfjöllun um leikinn hér.
Alls hafa liðin mæst 11 sinnum í skráðum leikjum á vegum KSÍ. ÍBV hefur betur, þeir hafa unnið sjö leiki, jafnt hefur verið tvisvar og Selfoss hefur unnið fjóra leiki. Tölfræðin er því 7-1-3 ÍBV í hag.
Í gegnum tíðina hafa leikmenn farið á milli þessara nágrana liða. Viðar Örn Kjartansson er komin heim eftir árs dvöl út í eyju. Ingi Rafn og Arilíusi fóru fyrir fimm árum, en Arilíus sem þá átti við meiðsli að stríða, sá ljósið, kom aftur heim og reyndar náði ekki einu sinni Þjóðhátíð. Ingi Rafn kom svo um síðustu áramót. Hjalti Jó hefur orðið íslands- og bikarmeistari með ÍBV, en hann býr nú á Selfossi og spilaði nokkra leiki með Selfoss ´08. Steingrímur bróðir Hjalta lék tímabilið 2006 með Selfoss og varð markakóngur það tímabil. Zoran Miljkovic fór frá ÍA til ÍBV árið 1997, eftir að hafa verið Íslandsmeistari með ÍA þrjú ár í röð. Zoran varð íslandsmeistari með ÍBV 1997 og 1998 og bikarmeistari með þeim 1999. En eins og flestir vita þjálfaði Zoran lið Selfyssinga seinnihluta ársins ´07 og allt árið ´08 og kom þeim upp um deild fyrra árið. Tómas Pálsson kom til Selfoss frá ÍBV árið 1976 og varð fljótt idol hjá ungu kynslóðinni á Selfossi og báðu ungir strákar um “Tomma Páls klippingu” hjá Bjössa rak, en það var einhverskonar stallaklipping, sem gæti hafa verið undanfari hnakka-tískunnar. Á sama tíma spilaði Sigurlás Þorleifsson eyjamaður með Selfoss, hann var gríðarlega góður leikmaður og mikils metin á Selfossi. Ein stærsta gjöf sem eyjamenn hafa gefið Selfoss var að láta okkur fá Þórarinn Ingólfsson endurgjaldslaust. Reyndar á hún Anna Guðmunds stærsta þáttinn í því að hafa tælt strákinn á Selfoss, en saman eiga þau hamingjusamt hjónaband og strákana Ingólf og Guðmund sem báðir spila með Selfoss. Þórarinn var fyrirliði Selfoss í einhver ár og svo hefur hann skilið eftir vitneskju sína um fótbolta með þjálfun og á stórann þátt í að móta stefnu unglingaknattspyrnu á Selfossi.
Síðustu sex leikir liðana í deild líta svona út, síðasti leikur er aftast. S er sigur, J er jafntefli og T er tap.
Selfoss : S-J-T-T-T-T
ÍBV : S-S-J-S-S-T
Eyjamenn styrktu sig vel fyrir Íslandsmótið og voru virkilega heppnir með útlendinga í þetta sinn, en hjá þeim spila fimm erlendir leikmenn sem allir verða í byrjunarliðinu á föstudag. Eins fengu þeir Trygga Guðmunds aftur heim og munar um minna. Svo eru tveir strákar úr HK sem hafa staðið sig vel í sumar, þeir Finnur Ólafsson og Eyþór Helgi Birgisson. Athyglisverðasti leikmaður ÍBV er samt ungi miðvörðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson, en hann stígur vart feilspor í leikjum. Það er því ljóst að eyjamenn stefna á sigur í deildinni eins og Heimir Hallgrímsson gaf óbeint í ljós fyrir mót.
Líklegt byrjunarlið ÍBV 4-3-3. Albert, James Hurts, Eiður Aron, Rasmus Steenberg Christiansen, Matt Garner, Finnur Ólafs, Andri Ólafs, Þórarinn Ingi, Tonny Mawejje, Tryggvi Guðmunds og Denis Sytnik.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Jón Sveins, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Gummi Tóta, Jón Guðbrands, Ingþór, Arilíus, Jón Daði og Davíð. Ingó Tóta er meiddur, en Einar Ottó og Sævar þór eru að ná sér af meiðslum og gætu tekið þátt í leiknum.
Aðaldómari leiksins er Þóroddur Hjaltalín Jr og honum til aðstoðar eru þeir Áskell Þór Gíslason og Sindri Kristinsson. Eftirlitsmaður leiksins er Þórarinn Dúi Gunnarsson.
Heimasíða ÍBV er ágæt, fréttir uppfærðar reglulega og spjallið sæmilega virkt, en hægt er að komast inn á síðuna hér.
Veðrið í Vestmannaeyjum verður gott miðað við legu eyjarinnar. Það verður þurrt að kalla, 12 stiga hiti og sem betur fer smá vindur, því annars yrði auðvitað ófært vegna þoku.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



