| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « apríl | júní » | |||||
| 1 | 2 | |||||
| 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
| 31 | ||||||
Jæja það eru ekki alltaf jólin sið áttum bara frekar dapran dag gegn Keflavík og náðum að skapa furðulega lítið á þétt og gott Keflavíkurliðið. Niðurstaðan tap í leik sem við fengum nánast eitt mark í forgjöf.
Það er alltaf jafn ógeðslega leiðinlegt að tapa, þetta var ekki að falla með okkur í dag og kannski er þetta útivöllur sem er ekkert stórslys að tapa stigum á. Liðið lærir bara af svona leik enda leit Keflavík lengi lengi út fyrir að vera úrvalsdeildarliðið í dag og við ekki.
Sævar Gísla neglir þetta vel í viðtali á Sunnlenska.is
Skjálfti var hinsvegar mættur í öllu sínu veldi og voru frábærir í dag ásamt öðrum stuðningsmönnum af og til. Frábær mæting frá Selfossi, meiri en oft á tíðum á heimaleik undanfarin ár. Ef það heldur áfram fylgja stig á útivelli líka.
Frekari umfjöllun kemur á morgun eða hinn, líklega öllum sama enda um tapleik að ræða.
Ég steingleymdi að hafa samband við Joey Drummer og draga upp úr honum hvað sé að frétta í Keflavík!
En spáum allvega fyrir þennan erfiða leik suður með sjó, ég segi 1-1 og það verður Gummi Tóta sem skorar úr aukaspyrnu.
Svo er bara að hvetja alla til að drífa sig í Narðvík og styðja strákana duglega (þeir spila á Njarðtaksvelli sem er ef ég man rétt við Reykjaneshöllina eða þar um bil). Leiðréttið mig ef það er rangt.
Og talandi um alla þá á Alli Matt afmæli í dag ásamt Ingó Tóta og er fólk hvatt til að knúsa þá duglega í tilefni dagsins.
Selfoss tekur á móti Keflavík í 5. umferð Pepsideildarinnar í knattspyrnu. Leikurinn fer fram mánudaginn 31. maí kl 19.15 á Njarðtaksvelli í Reykjanesbæ. Leikurinn átti að fara fram sunnudaginn 30. maí, en þar sem fyrirliði Keflavíkinga, Haraldur Freyr Guðmundsson var valinn í Íslenska landsliðið sem lagði lið Andorra að velli 4-0 í gær laugardag, var leiknum frestað um einn dag. Keflvíkingar sitja í efsta sæti úrvalsdeildar með 10 stig, en Selfyssingar eru í fimmta sæti með 7 stig. Athygli vekur samt að Selfoss er búið að skora helmingi fleiri mörk en Keflavík á íslandsmótinu, eða 8 mörk Selfoss gegn 4 mörkum Keflvíkinga.
Tveir leikmenn Selfoss eiga afmæli mánudaginn 31. maí, eða á leikdag og fá því að halda upp á það í Keflavík. Ingólfur Þórarinsson verður 24 ára og Arilíus Marteinsson verður 26 ára og er hann því næst elst leikmaður í byrjunarliði Selfoss.
Liðin eiga það sameiginlegt að verið er að taka aðalvelli þeirra í gegn og spila því bæði lið á bráðarbyrðarvelli. Leikur Selfoss og Keflavík fer fram á Njarðtaksvelli í Njarðvík, en þann völl þekkja Selfyssingar örugglega betur en Keflvíkingar eftir skemmtilega baráttu Selfoss og Njarðvík síðustu ára. Selfoss spilaði þar síðast við Njarðvík þann 15. júní 2008 og gerðu liðin þá jafntefli 2-2, mörk Selfoss skoruðu Viðar Örn og Henning.
Það er hundleiðinleg staðreynd að hvergi finnast heimildir um sigur Selfyssinga á Keflvíkingum. Liðin hafa leikið alls 13 leiki í skráðum leikjum á vegum KSÍ. Tölfræðin er 9-4-0 , sem sagt 9 sigrar Keflavík og 4 jafntefli. Það er þó þannig að alltaf styttist í fyrsta sigur Selfoss og það vita Keflvíkingar.
Árið 1981 áttust liðin við í sjöundu umferð Íslandsmótsins, b-deild. Keflvíkingar voru yfirburðar lið á þessum árum og unnu deildina auðveldlega og fóru því eðlilega upp um haustið. Selfyssingar höfðu ekki fengið stig úr fyrstu 6 umferðunum og kom því 0-0 jafntefli þeim 350 manns sem mættu á leikinn í opna skjöldu. Í dagblöðum var skrifað að ekki hafa í annan tíma komið eins margir á Selfossvöll. Þorsteinn Bjarnason markmaður Keflvíkinga var yfirburða maður þeirra, en hjá Selfoss átti Þórarinn Ingólfsson, faðir Ingólfs og Gumma, stórleik og var valinn maður leiksins. Eins voru þeir Sævar Sverrisson og Ámundi Sigmundsson sprækir í framlínunni. Óskar Marelsson var að koma til baka í þennan leik eftir hlé og munaði um minna.
Ómar Jóhannsson markmaður meiddist í síðasta leik Keflvíkinga og var þeim eðlilega neitað af KSÍ að fá undanþágu, til að fá nýjan markmann. Því má búast við því að í byrjunarliði Keflavíkur verði hinn 18 ára markmaður Árni Freyr Ásgeirsson og þurfa Keflvíkingar aldeilis ekki að skammast sín fyrir hann. Árni Freyr hefur m.a keppt nokkra landsleiki með Gumma Tóta og Jón Daða. Hér má t.d sjá leikskýrslu af stórskemmtilegum landsleik við Svía sem leikinn var í fyrra.
Lykilleikmenn Keflavíkur hljóta að vera fyrirliðinn Haraldur Freyr, Hólmar Örn, Gummi Steinars og Guðjón Antoníusson. Annars er það liðsheildin sem er þeirra sterka hlið.
Líklegt byrjunarlið Keflavík er því: Árni Freyr, Guðjón, Bjarni Hólm, Haraldur Freyr, Alen Sutej, Andri Steinn, Hólmar Örn, Gummi Steinars, Magnús Sverrir, Magnús Þórir og Hörður Sveinsson. Eins geta þeir Jóhann B. Guðmundsson og Paul McShane verið inni, en þeir skiptu byrjunarliðssæti á milli sín í síðustu tveim leikjum.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er í leikkerfi 4-4-2: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Jón Daði, Jón Guðbrands, Ingó Tóta, Gummi Tóta, Arilíus og Sævar Þór.
Þjálfari Keflavíkur er Willum Þór Þórsson, en er gríðarlega hæfur þjálfari og hefur ná árangri alls staðar sem hann hefur komið. Willum hefur þjálfað Gumma Ben núverandi þjálfara Selfyssinga í alls sjö leiktímabil og því allt eins líklegt að Gummi viti betur en Willum hvað sagt verður í hálfleik búningsklefa heimaliðsins í Keflavík.
Skjálfti tekur rútuna til Keflavíkur og má búast við alvöru roadtrip hjá þeim gaurum, en í Keflavík mæta þeir Joey drummer og félögum í Pumasveitinni. Þessar tvær stuðningsmannasveitir eru alveg til fyrirmyndar og hugsa eingöngu um það að skemmta sér og áhorfendum.
Aðaldómari leiksins er hin stórgóði dómari Jóhannes Valgeirsson og honum til aðstoðar eru þeir Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson. Eftirlitsmaður leiksins er Eyjólfur Ólafsson.
Heimasíða Keflavíkur er mjög góð, fullt af upplýsingum og fréttaveita góð. Hér er hægt að komast inn á heimasíðu þeirra reyndar vantar spjallborð, en hér og hér hefur verið gerð heiðarleg tilraun til að gera spjallborð.
Veðrið á mánudag verður fínt, það verður eins nálægt logni og hugsast getur á suðurnesjunum, hiti 11 stig og gæti orðið rigning í seinni hálfleik.
Stelpurnar fengu lið Hattar frá Egilsstöðum í heimsókn í kvöld í fyrsta leik liðsins í íslandsmótinu í sumar og þ,a.l. fyrsta alvöru leik Helenu Ólafsdóttur sem þjálfara liðsins. Það er óhætt að segja að mótið hafi byrjað vel hjá stelpunum þar sem þær komust yfir í fyrstu sókn og léku mest allann leikinn á vallarhelmingi Hattar í leik sem endaði 8-0. (sjá frétt sunnlenska.is um leikinn þaðan sem myndir eru fengnar)

Systurnar Anna María og Katrín Ýr Friðgeirsdætur skoruðu sex mörk í kvöld. sunnlenska.is/Gummi Kalli
Byrjunarliðið var svohljóðandi:
Vörnin var nokkuð solid út leikinn að því leiti að Sif og Aníta fóru ekki mikið í overlap upp vænginn og hávöxnu stelpurnar í vörninni fóru ekki mikið fram á völlinn nema í föstum leikatriðum. Á miðjunni voru þær Anna Þorsteins, Guðbjörg og Íris Sverris, framhjá þeim fór nánast ekki neitt og áttu stelpurnar miðjuna frá fyrstu mínútu. Frammi var síðan Gumma með systurnar Katrínu og Önnu Maríu á sitthvorum kantinum, hverri annari fljótari.
Byrjun leiksins var ansi áhugaverð enda var efnilegasti DJ landsins, Elvar Gunnarsson varla búinn að leggja frá sér míkrafóninn eftir að hafa kynnt liðin til leiks er Guðmunda Óladóttir var búinn að skora, við vorum án gríns bara að labba frá mixernum og sáum því ekki markið! Hreint mögnuð byrjun hjá liðinu og hinni stórefnilegu Gummu sem er ennþá svo ung að hún ætti að vera í 10.bekk! (Hún er víst svo klár að hún engu að síður komin í Fjölbraut).
Stuttu seinna tók Anna Þorsteins mjög góða hornspyrnu sem rataði beint á kollinn á Dagný Hróbjarts og þaðan í netið framhjá markmanni Hattar. Miðvarðamark par excellence og fór Sveinbjörn Más sem sá um að upppfæru stöðuna þegar að kvarta yfir því að þurfa aftur að labba inn í vélageymsllu til að uppfæra í 2-0.
Eftir þetta tóku dætur þeirra Árnýar og Friðgeirs í AB Skálanum alfarið við markaskoruninni í leiknum, fyrst Katrín Ýr sem er einn og ekki neitt á hæð og fljótari en Sævar Gísla miðað við höfðatölu og setti tvö fyrir leikhlé. Við áttum smá erfitt að sjá almennilega hvað var að gerast á vellinum í fyrri hálfleik þar sem ég var staðsettur fyrir aftan mark Selfoss og leikurinn fór nánast alfarið fram á hinum vallarhelmingnum og ég held svei mér þá að Dagný hafi ekki þurft að verja skot í leiknum!

Stelpurnar alltaf skrefi á undan, Guðbjörg þarna á meiri ferðinni - Mynd sunnlenska.is / Gummi Kalli
Strax í upphafi seinni hálfleiks skildum við þetta aðeins betur og stelpurnar héldu áfram að misþyrma vörn Hattar! Anna María sendi Sveinbjörn tvisvar að uppfæra stöðuna áður en Katrín systir hennar fulllkomnaði þrennuna og kom okkur í 7-0. Öll mörkin hjá þeim a.m.k. í seinni komu eftir að markvörður Hattar hafði misst boltann frá sér og til þeirra og nýttu þær sér þessar gjafir vel og skoruðu miskunarlaust. Á móti er óhætt að fyllyrða að markvörður Hattar var ekki að eiga sinn besta leik á ævinni fyrstu 70.mín leiksins og var líklega hreinlega næst versti „starfsmaður“ vallarins í kvöld.
Versta frammistaða leiksins verður þó að fara rakleitt til dómara leiksins, Egils Arnar, þetta var reyndar alls ekki erfiður leikur fyrir hann að dæma og svosem ekki mikið um nein alvarleg dæmi sem hann klúðraði sem skiptu máli fyrir leikinn. Það er fyrir utan eitt atvik sem tryggði honum þennað heiður skuldlaust!
Seint í seinni hálfleik tætti Gumma vörnina einu sinni sem oftar í sig, gjörsamlega rassaði miðvörðinn og komst framhjá henni með boltann en var spörkuð niður í teingum og því heldur betur augljóst víti í aðsigi!!! Nei síður en svo, okkar maður fann það einhvernvegin út að þetta væri aukaspyrna og þar sem stelpan sem braut á Gummi datt klunnalega og meiddi sig verðlaunaði hann Gummi með spjaldi!!! Hann var pottþétt ekki að spjalda hana fyrir leikaraskap og ég held svei mér þá að hann hafi gefið henni spjald fyrir að hafa meitt hina stelpuna með því að láta hana sparka sig niður!!
Dómaragreyið var líka afar óheppinn því að þegar þú ætlar að gera svona agalegar gloríur er ekki gott að hafa Babú, Vigni Egil, Sævar Gísla, Jón Guðbrands, Ómar Vald, Gumma Bergs, Tómas Ellert, Bjarka sem er alveg snar og fleiri svona spekingina í 3-4 metra fjarlægð til að hlæja að dómgæslunni ásamt því að drulla vel yfir hana!! Við vorum reyndar fljótir að finna sökudólginn, helvítið hann Sævar Gísla því að eftir síðasta leik hjá körlunum og umfjöllun eftir leik er ljóst að það verður aldei aftur dæmt víti á Selfossi.

Látum bara meistarann útskýra þetta
En nóg um það, allir gera nú mistök af og til og blessunarlega skipti þetta ekki máli, reyndar mundi ég þegar ég fór að skrifa um þetta að annað af mörkum Katrínar í fyrri hálfleik kom eftir víti, það er erfitt að muna aðdraganda marka í leik sem fer 8-0!!
En talandi um Katrínu þá skoraði hún áttunda og síðasta mark Selfoss stuttu fyrir leikslok, innsiglaði þar með fernuna hjá sér sem er hressandi í fyrsta leik og tryggði sér þar að auki viðurkenninguna fyrir mann leiksins. Hún átti meira að segja skot í slánna eftir þetta og því óheppin að skora ekki fimm mörk í leiknum.
Eini svarti blettur þessa annars flotta leiks hjá stelpunum var að Dagný Hróbjarts missteig sig í einni sókninni með þeim afleiðingum að ökklinn fór í klessu eins og pabbi hennar orðaði það eftir leik. Hún hefur verið að kljást við ökklameiðsl lengi og alveg hundfúlt fyrir hana að lenda í þessu í þessum leik enda enginn í henni og leikurinn svo gott sem búinn.
Bæði lið skiptu síðan fjöldanum öllum af varamönnum inná í seinni hálfleik, það virðist mega skipta fleiri en þremur inná í þessari deild. Reyndar var ég að spá hvort þetta væru sér reglur fyrir Hött enda líklega leiðinlegt að koma frá Egilsstöðum og sitja svo allann leikinn á bekknum! Hinn annars dagfarsprúði Jóhann Bjarnason missti reyndar út úr sér við þetta tækifæri til einföldunar ´´Það er örugglega bara leiðinlegt að koma frá Egilsstöðum punktur´´.
Þetta Hattarlið tapaði heima um daginn 2-3 fyrir ÍR sem er á toppnum með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir, þær eiga því líklega helling inni miðað við það sem við sáum í dag, en á móti má klárlega segja, eins asnalega og það hljómar miðað við lokatölur leiksins, hið sama um Selfoss liðið, þær geta ennþá betur en þetta.
Það er ofboðslega erfitt að meta hvar liðið stendur eftir þennan leik en þetta ætti þó klárlega að gefa liðinu gott sjálfstraust fyrir næsta leik sem er einmitt á útivellli gegn ÍR.
Næsti heimaleikur er síðan reyndar ekki fyrr en 18.júní sem er hreinlega magnað.
En frábær byrjun á mótinu og rétt að óska stelpunum til hamingju með þetta.
Knattspyrnudeild Selfoss auglýsir eftir c.a einni búslóð sem væri hægt að fá lánaða í sumar. Að sjálfsögðu má þetta allt vera úr sitt hvorri áttinni þ.e ef einhver á ísskáp, örbylgjuofn, eldhúsborð, rúm ofl endilega hringið í Tómas 699-0660 eða Ómar 695-5300. Knattspyrnudeildin þarf þetta eingöngu í sumar, þannig að hægt er að skila dótinu aftur í haust og eins getur knattspyrnudeildin tekið dótið alveg yfir.
Það var einn úr Keflavík sem álpaðist til að vera valinn í landsliðið fyrir STÓRLEIK ársins, Ísland – Andorra sem fram fer í klikkaðri stemmingu á hinum kjánalega Laugardalsvelli á morgun og af þeim sökum var Keflavík – Selfoss frestað um einn dag og fer fram á mánudaginn kl: 19:15
Þess má einmitt geta að undirritaður hatar mánudaga.
Babú
Í kvöld klukkan 20:00 hefja stelpurnar leik í sínum riðli í íslandsmótinu (sjá stöðu hérna til hliðar á síðunni) með heimaleik á gervigrasinu hérna á Selfossi. Þessu er nokkuð furðulega skipt þar sem t.d. ÍR er þegar búið að spila þrjá leiki en við engan! En það er ekki eins og það skipti nokkrum sköpuðum hlut, það sem máli skiptir er að Höttur frá Egilsstöðum mætir í heimsókn í kvöld kl 20:00 og við hvetjum alla til að kíkja á það.
Í tilefni af þessu fengum við Halldór Björnsson sem þjálfaði liðið í fyrra til að spá fyrir um hvernig riðillinn færi og segja okkur smá um hin liðin. Innanbúðargrín í umfjöllun um Selfossliðið er eitthvað sem Dóri eða stelpurnar verða að útskýra betur fyrir okkur hinum en hjá stelpunum er Halldór aldrei kallaður annað en Dóri Hitler, hvorki meira né minna!
1.sæti – Selfoss
Klárlega efnilegasta lið landsins með einn besta þjálfara landsins svo þetta lýtur vel út. Það skiptir öllu máli að lykilmenn: Þóra(miss Crazy),Katrín(SS),Anna Þ.(FG),Thelma(US 2009),Dagný H.(KL.) og Gumma(LB) standi sig og sleppi við meiðsli.
Dagný P.(LLM) var meidd allt tímabilið í fyrra er klárlega líka lykilmaður í þessu liðið, Veronika og Anna María(LS) mjög góðir spilarar sem voru lítið með í fyrra +2 nýir leikmenn. Önnur er systir Önnu Þ. (sem segir að hún ætti að geta eitthvað) og Aníta Lísa sem kom úr FH gera hópinn betri,stærri og breiðari.
Gumma sem er efnilegasti leikmaður landsins spilaði bara 7 leiki í fyrra, vegna anna með landsliðum. Hún er árinu eldir(ekki veitir af þar sem hún er bara krakki) og á eftir að raða inn mörkum í sumar.
Liðið er sterkara heldur en í fyrra og einu ári reyndara (sem betur fer því aðeins Anna og Aníta áttu skráðan mfl. leik.) Svo væri líka fínt að Sif hætti að klóra sér og hætti að tala á æfingum og að Aníta(MS),Karen og Bára myndu hætta að vera meiddar og snéru sé að boltanum í stað þess að vera alltaf að skokka og í nuddi, ef Bára(BB) nær fyrri styrk á hún að verða einn besti leikmaður liðsins.
Ég spái að liðið fara upp með Þrótti en það verður ekki létt verk og brjáluð vinna.

Stelpurnar eru guðslifandi fegnar að langt og strangt æfinatímabil er loksins á enda.
2.sæti -ÍBV
Liðið sem við verðum í keppni um að vinna riðillinn, mjög gott lið sem ætlaði upp í fyrra en náði því ekki og ætla sér upp núna. Þær eru með mjög sterkan heimavöll, liðið er búið að spila saman í nokkur ár og eru með 2 til 3 erlenda leikmenn til að styrkja liðið.
3-5 sæti er ég í smá basli að raða í þar sem ég þekki ÍR, Fram og Fjölni ekki nógu vel en þau verða að berjast um þessi sæti en eiga ekki séns í Selfoss og ÍBV.
3.sæti – ÍR
Féllu i fyrra og eru búnar að missa mikið en eiga að vera nógu sterkar til að vera í efri hlutanum.
4.sæti – Fram
Nýtt lið sem ég veit ekki mikið um nema að Jóna-ofurbílstjóri er að spila með þeim og frænka hans Gunna Borgþórs að þjálfa sem segir mér það þetta sé fínt lið.
5. sæti – Fjölnir
Voru í samstarfi með Aftureldingu sem slitnaði og þarna er verið að byggja upp nýtt lið sem tekur tíma.
6.sæti – Sindri
Baráttu lið sem er á eftir að kroppa sig á heimavelli, sterkasta liðið í af þessum austur liðum.
Sindri er ekki bara gælunafn Andra Freys hjá mfl. kk heldur líka Íþróttalið Hafnar á Hornafirði
7.sæti – Höttur
Þokkalegt lið og gæti kroppað nokkur stig á heimavelli og sérstakleg ef þær spila heimaleikina á Seyðisfirði sem er lélegasti völlur landsins.
8.sæti – Fjarðabyggð/Leiknir
Eru að byrja byggja upp lið frá grunni og er ekki komin langt á leið.

Eins og sjá má hér er Dóri vægast sagt nett klikkaður
Með baráttu kveðju Halldór Hitler
Áfram SELFOSS
Fyrsti leikur meistaraflokks kvenna fer fram föstudaginn 28.maí á Selfossvelli kl. 20:00 en þá mun Selfoss taka á móti Hetti frá Egilsstöðum. Selfosskonur leika í 1.deild í B-riðli með
ÍBV
ÍR
Fram
Fjölnir
Fjarðabyggð/Leiknir
Höttur
Sindri
Selfoss komust óvænt á sínu fyrsta ári sem meistaraflokkur í 8 liða úrslit og munaði hársbreidd að þær kæmust í 4 liða úrslit eftir að jöfnunarmark Hauka kom á síðustu sekúndum leiksins og tryggði þeim þar af leiðandi áfram. Haukar komu svo til með að vinna 1.deild kvenna í fyrra.
Selfoss lék gegn Hetti tvisvar í fyrra á Íslandsmótinu og höfðu betur í fyrri leiknum 2-1 á heimavelli, þar sem Thelma Sif og Anna Þorsteins skoruðu mörkin, en 1-1 voru úrslitin þegar Selfyssingar léku á afar slæmum velli á Seyðisfirði í seinni umferð liðanna. Thelma Sif skoraði eina mark leiksins.
Höttur hefur misst eitthvað af leikmönnum síðan í fyrra en þó engar stórvægilegar breytingar. Jóna Ólafsdóttir sem lék með Selfoss um tíma, en spilaði með uppeldisfélagi sínu Hetti í fyrra sumar, mun ekki leika með Hetti í ár og hefur skipt yfir í Fram.
Höttur hefur nú þegar leikið 1 leik á Íslandsmótinu gegn ÍR og tapaði 2-3.
Eitthver meiðsli hafa verið að hrjá hópinn í vetur en þó engin alvarleg. Þóra Margrét mun til að mynda ekki spila leikinn á föstudaginn vegna nárameiðsla sem hún er að jafna sig á og Thelma Sif Kristjánsdóttir mun taka út leikbann vegna spjalda síðasta sumars.
Eins hefur Aníta Guðlaugsdóttir verið að vinna úr sínum meiðslum í vetur og er að komast í gang núna. Guðmunda Brynja hefur átt við nárameiðsli að stríða í svolítinn tíma en mun þó spila á föstudaginn. Eins hefur Karen Kristjánsdóttir verið tæp aftan í læri en hún tognaði þar í vor. Góðar fréttir eru þó að Bára Sif Guðlaugsdóttir getur mjög líklega farið að spila á ný í endan á júní ef allt gengur að óskum, en hún sleit krossbönd í hné í endan á júlí í fyrra sumar.
Selfosskonur munu byrja á fullu í sumar en þær spila 4 leiki á 12 dögum í deild og bikar.
28.maí nk. Gegn Hetti á Selfossvelli
2.júní gegn ÍR á ÍR-velli
5.júní í bikarnum gegn Keflavík á Keflavíkurvelli
8.júní gegn Fram á Fram-velli
Næsti heimaleikur er svo ekki fyrr enn þann 16.júní og því um að gera að fjölmenna á völlinn á föstudagskvöldið enda spáð veðurblíðu :)
Það verður bara að segjast að eftir þennan leik megum við prísa okkur nokkuð sæl með að hafa þó fengið stig, liðið var enganvegin að ná ná takti í leiknum og gestirnir bara mun líklegri heilt yfir leikinn. Fengum engu að síður auðvitað færi líka en það eru ekki alltaf jólin og Selfoss er ekki að fara vinna alla leiki.
Það hjálpaði ekki neitt að okkar heimavöllur er á gervigrasi eins og er enda Stjarnan jafnan á þannig velli af afar illskiljanlegum ástæðum og kann það upp á 10. Fyndið reyndar að Bjarni Jó kvartaði einhversstaðar yfir því að gervigrasið á Selfossi væri allt of mjúkt!!! Maður getur því ekki annað en velt fyrir sér hvað honum finnst um grasvelli!
En með hliðsjón af umfjöllun (minni) á Fótbolta.net og með myndum Sunnlenska.is ætla ég að renna létt yfir þennan leik
Það var allavega frábært veður og rúmlega þúsund manns mættir og er ekki laust við að hlutfalll kynjana hafi verið óvenju ójafnt í kvöld og má líklega finna ástæðuna í Eurovison sem gauluð var á sama tíma og leikurinn.
Það var þó enginn að spá í þeirri hringavitleysu er Erlendur Eiríksson flautaði til leiks á slaginu korter yfir sjö og frá fyrstu mínútu fór leikurinn í það far sem hann hélst í nánast til enda. Stjörnumenn voru mun ákveðnari og markvissari í sínum aðgerðum en strákarnir frekar andlausir og gekk bölvanlega að ná takti.
Þegar tíu mínútur voru búnar höfðu bæði Þorvaldur Árnason og Marel Baldvinsson gerst ágengir við mark Selfoss en vantaði að slútta þeim almennilega.
Þegar rúmlega korter var liðið af leiknum fór loks að sjást eitthvað lífsmark hjá okkar mönnum og í raun náðu þeir góðum tíu mínútna kafla þarna um miðjan fyrri hálfleik. M.a áttu þeir fyrsta hættulega færi leiksins sem kom eftir skyndisókn sem skapaðist eftir eitt af þessum stórskemmtilegu heljarstökks innköstum Steinþórs Freys sóknarmanns Stjörnunnar, Sævar fékk boltann út við vítateigshornið og lék inn í teig, þar kom hann með sendingu á Jón Guðbrandsson sem náði ágætu skoti en Bjarni Þórður varði vel í marki gestanna.

Alli og Ingó Tóta fagna Guðbrands eftir að hann hafði sett mark umferðarinnar - Mynd sunnlenska.is / Gummi Kalli
Stuttu seinna var Andri Freyr rétt búinn að lauma boltanum óvænt yfir Bjarna í markinu sem náði að blaka honum í horn á síðustu stundu. Eftir hornið barst boltinn út í teiginn á Jón Bónda Guðbrandsson sem hamraði hann í bláhornið framhjá Bjarna Þórði sem átti ekki séns í skotið, 1-0 fyrir Selfoss og það nokkuð gegn gangi leiksins.
Eftir markið var hellings líf í leiknum og bæði lið að skapa hættu í skyndisóknum. Á 26.mín kom frábært innkast frá Steinþóri á Atla Jó sem var á auðum sjó í teignum en Jói varði frábærlega í markinu. Hinumegin var Sævar Gísla rétt búinn að skora fyrir Selfoss og varði Bjarni stórglæsilega, skotið hjá Sævari fór reyndar beint á hann.
Síðustu fimm mínútur fyrri hálfleiks voru Stjörnumenn mun líklegri og á 43.mínútu gerði Steinþór Freyr besti maður vallarins mjög vel og prjónaði sig í gegnum vörn Selfoss, Jóhann Ólafur varði hinsvegar gott skot Steinþórs mjög vel.
En á lokasekúndum fyrri hálfleiks kom Jóhann Ólafur engum vörnum við og enn var það Steinþór sem var að stríða heimamönnum. Markið skoraði hann með skalla eftir góða sendingu frá Baldvini sem einnig var góður í leiknum. Vel gert hjá þeim félögum en Selfyssingar steinsofandi í vörninni.
Markið kom á afar óþægilegum tíma enda flautaði Erlendur strax til leikhlés eftir miðjuna, en 1-1 alls ekki ósanngjörn staða.
Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri endaði og kom það því ekki neinum á óvart er gestirnir bættu öðru markið við á 57.múnútu. Þar var að verki Þorvaldur Árnason sem fékk boltann inni á vítateig heimamanna og náði óáreyttur að vippa honum skemmtilega í bláhornið. Flott mark hjá Þorvaldi en heimamenn enn sofandi í vörninni og hefðu líklega átt að mæta Þorvaldi betur.
Eftir markið fóru heimamenn aðeins að hætta sér framar en þó ekki um of enda Steinþór og félagar í sókn Stjörnunnar sífelld ógn. Á 67.mín virtist Seinþór einmitt vera að komast í gegn en náði ekki að koma boltanum fyrir sig og sóknin rann út í sandinn.
Mínútu síðar komst Sævar Þór Gíslason hinsvegar einn í gegn hinumegin á vellinum og í þeirri stöðu er erfitt að eiga við hann, hann lék á Bjarna Þórð í markinu sem náði þó að brjóta á honum og fékk að launum á sig bæði víti og rautt við afar litla hrifningu frá markmanninum knáa. Eftir leik hefur þetta atvik fengið mikla athygli og vildi Tómas Ingi á Stöð 2 Sport m.a. meina að gervigrasið hefði brotið á Sævari. Málið er hinsvegar og Sævar sagði svo sjálfur að hann sótti þetta víti, en Bjarni kom við hann og braut á haonum. Slappur dómari leiksins gat ekkert annað gert en dæmt á þetta og ef það var rautt á móti KR um daginn var ekki glæta að gefa Bjarna Þórði annað en rautt líka. Bjarni hefur sloppið á Selfossi mjög ósanngjarnt áður og var kannski að borga fyrir það núna. Eins vildi Bjarni Jó meina að þetta hafi verið rangstaða en hann var í það minnst alls ekki í stöðu til að sjá það…og ekki tók ég eftir því og er mikið sama, hef heyrt í mörgum sem sáu þetta vel og sögðu hann ekkert rangstæðan.

Bjarni tók nett móðursýkiskast yfir rauða spjaldinu sem mikið var gert úr eftir leik án gáfulegrar niðurstöðu - Mynd sunnlenska.is / Gummi Kalli
Á punktinn fór Gummi T’ota og fékk hann að taka vítið í þetta skiptið þar sem Ingó Tóta stóri bróðir hans hafði nýlega yfirgefið völlinn. Guðmundur er sparkviss með afbrigðum og setti boltann örugglega framhjá Magnúsi Karli sem kominn var í mark gestanna.

Gummi var meira stress yfir viðtali eftir leik heldur en þessu víti - Mynd sunnlenska.is / Gummi Kalli
Lokamínúturnar voru síðan æsispennandi og áttu bæði lið nokkur færi til að klára leikinn, Stjarnan var áfram sterkari aðilinn þrátt fyrir að vera manni færri og naga sig líklega í handarbökin fyrir hafa ekki haft öll stigin með sér frá Selfossi í dag enda heimamenn líklega að spila sinn slakasta leik á tímabilinu.
Lið Stjörnunnar (4-2-3-1): Bjarni Þórður Halldórsson (M), Tryggvi Sveinn Bjarnason, Jóhann Laxdal, Atli Jóhannsson, Daníel Laxdal, Halldór Orri Björnsson, Dennis Danry, Þorvaldur Árnason, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Baldvin Sturluson, Marel Jóhann Baldvinsson.
Varamenn: Magnús Karl Pétursson (M), Björn Pálsson, Hilmar Þór Hilmarsson, Ólafur Karl Finsen, Hafsteinn Rúnar Helgason, Víðir Þorvarðarson, Birgir Hrafn Birgisson.
Besti maður Selfoss: Stefán Ragnar (sjá viðtal) fékk þann heiður í dag þó reyndar hafi hann líkt og flestir í liðinu verið betri í leiknum gegn Haukum.
Maður leiksins meðal liðstjórnarteymisins: Gummi Ben (sjá viðtal), fór all inn í dress code-inu og var alveg að púlla það.
Maður leiksins meðal fjölmiðla: Vignir Egill hjá Suðurland FM 96,3, snilld að hafa lýsingu hans í eyrunum meðan maður horfir á leikinn.
Dómari: Erlendur Eiríksson og hans vegna vona ég að hann hafi átt betri dag.
Aðstæður: Frábært veður og aðstæður fínar þó taka verði mið af því að enn erum við að spila á gervigrasi.
Áhorfendur: Skjálfti plús svona þúsund aðrir.
Jóhann Ólafur Sigurðsson 7
- Jói var bara einn af okkar bestu mönnum í leiknum eins og stundum áður og er í hörku standi í upphafi móts, þökk sé Halldóri Björnssyni markmannsþjálfara að öllu leyti (að sögn Dóra) sem hefur látið markmennina æfa mjög vel undanfarið. Jói átti eina algjöra úrvals markvörslu í dag og nokkur úthlaup þar sem Stjörnumenn virtust vera að komast í gegn. Mörkin er erfitt að skrifa á Jóa. Hann var í boltanum í fyrra markinu en Steinþór fékk frían skalla og í seinna markinu skoraði Þorvaldur mark sem hann mun aldrei ná að gera aftur, tók boltan á kassann í tegnum og náði að pota honum upp í loft og í hornið. Vel gert en einfaldlega heppni.
Sigurður Eyberg Guðlaugsson 6
- Siggi var ágætur í leiknum í dag, átti nokkra góða spretti upp kantinn þegar leið á leikinn en naut líka góðs af því að Stjörnumenn fóru mun meira upp hinumegin.
Stefán Ragnar Guðlaugsson 7
- Þetta er auðvitað að verða þræl öflugur miðvörður, virkaði mjög góður í dag og fékk þó nokkuð að gera. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir hvað þáttur varnarmannanna var stór í þessum mörkum en heilt yfir var Stebbi einn besti leikmaður Selfoss.
Agnar Bragi Magnússon 6
- Sama og með Stebba Ragga, Bragi var góður í leiknum en spurning hvort hann hefði getað gert eitthvað betur í markinu sem Þorvaldur skoraði.
Andri Freyr Björnsson 5,5
- Mér fannst Steinþór vera að komast allt og mikið upp hægri kantinn og stundum skilja „Sindra“ eftir. Ekki besti leikur sem hann hefur spilað þó hann hefi heldur ekki gert neinar gloríur.
Guðmundur Þórarinsson 6
- Skítsæmilegur leikur hjá Gumma þannig, var allt of lítið í boltanum og stundum aðeins að gaufa með hann. Var ekki að ná að taka nægan þátt í leiknum í raun enda spil okkar manna alls ekki nógu gott. Þegar Sævar fékk vítið öskraði Henning, vítaskytta Selfyssinga sem staddur var í fjölmiðlagámnum „Gummi, Gummi“ til strákana og svaraði Gummi með hrikalega öruggu víti.
Okkur vantaði þessar aukaspyrnur á vallarhellmingi andstæðinganna sem Stjarnan fékk í tonnatali frá Erlendi dómara. Í þeim er Gummi rosalegur. Reyndar tjáði hann mér það eftir leik að hann hafi eiginlega verið veikur síðan við spiluðum við Hauka, hann skalf hálfpartinn er hann beið úti eftir að komast í viðtal hjá RÚV.
Jón Guðbrandsson 5,5
- Guðbrands skoraði mjög gott mark og var raunar nálægt því að skora stuttu áður. En fyrir utan það var miðjan hjá okkar mönnum óvanalega illa stillt og áttu þeir félagarnir Ingó og Jón erfitt uppdráttar í leiknum.
Ingólfur Þórarinsson 5
- Ekki besti dagur Ingó Tóta sem verið hefur mjög góður það sem af er móti. Það náðist enginn taktur í okkar leik og til að það náist þarf Ingó að vera í stuði, hann er lykillinn að miðjuspili okkar manna og var ekki að finna sig nógu vel í leiknum.
Jón Daði Böðvarsson 5
- Svipað með Jón Daða og Ingó, hann var alls ekki að finna sig í dag og spurning hvort Bjarni Jó hafi verið búinn að kortleggja þá eitthvað sérstaklega fyrir leik. Jón átti engu að síður alveg nokkra ágæta spretti í leiknum. Hefur verið að koma meira frá honum samt og líklega hefði mátt nýta betur plássið sem kantmenn Stjörnunar skildu eftir sig er þeir spóluðu fram. Það er engu að síður vert að vara við því að setja of mikla pressu á Jón Daða strax enda varð strákurinn 18 ára í í gær!

Jón Daði varð 18 ára í gær sem er auðvitað enginn aldur fyrir mann á hans aldri! - Mynd Sunnlenska.is/Gummi Kalli
Arilíus Marteinsson 5,5
- Alli hefur eins og flestir aðrir verið betri heldur en hann var í gær, komst ekki nógu mikið í spilið og liðið hélt ekkert boltanum á vallarhelmingi gestanna. Hann átti engu að síður sendinguna sem kom Sævari í gegn og er það ekki í fyrsta skipti sem þeir eru að linka vel saman.
Sævar Þór Gíslason 6,5 (sjá viðtal)
Langt frá því að vera besti leikur Sævars en hann var þó að ógna vörn Stjörnunar sem þurfti að hafa sig alla við til að stoppa hann. Þeir gleymdu honum líka 2-3 þrisvar og í einu af þeim skiptum hafði Sævar úrslitaáhrif á leikinn. Hjartað og sálin í þessu liði og reddaði okkur enn eina ferðina út úr klípu.
Næst eru það Joey Drummer og félagar í Keflavík en þeir eru á toppnum og í banastuði. Það verður fáránlega erfiður leikur bæði fyrir leikmenn sem og Skjálfta og aðra stuðningsmenn enda fáir hressari en Keflvíkingar. Þessi bæjarfélög verða seint taldir einhverjir vinabæir og því ekki ólíklegt að um hörkuleik verði að ræða.
Sá leikur fer fram í Narðvík sunnudaginn n.k. kl 19:15.
Babú
Forsala á leik Selfoss og Stjörnunnar verður í Tíbrá á Selfossvelli frá kl 12.00-17.00 í dag, þriðjudag. Þeir sem kaupa miða í forsölu sleppa auðvitað við biðröðina sem alltaf skapast 10 mínútum fyrir leik.
Eins er Selfyssingum bent á að sjálf miðasalan fer fram á tveimur stöðum, þ.e við Selið norðan megin við völlinn og eins við Fjölbrautaskóla Suðurlands sem er þá við suð-vestur horn vallarins.
Það er því góð hugmynd fyrir þá sem þurfa að koma á bíl, að leggja við Fjölbrautaskólann og fara þeim megin inn.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



