| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « mars | maí » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Mig langaði að vekja athygli á hlekknum vinstra megin á síðunni, undir „Undirsíður“ sem kallast Vefpóstur.
Þarna er semsagt verið að bjóða uppá netfang sem hefur endinguna @selfoss.org. Þetta er hugsað fyrir alla sem vilja, á meðan Google leyfir (ættu að vera ca. 50 netföng)
(sem dæmi er til: babu@selfoss.org)
Slóðin er http://postur.selfoss.org
Ef þú vilt grípa eitt glóðvolgt…. Skráðu þig þá!
Nú er bara að fara að huga að ferð í Sportbæ til að versla búning með númeri þess leikmanns sem hver og einn óskar eftir!
Sjálfur myndi ég setja 29, hiklaust!
Hér eru fastanúmer leikmanna í sumar:
Nr. Nafn leikmanns Kennitala
1 Elías Örn Einarsson 300382-3129
2 Sigurður Eyberg Guðlaugsson 021090-3289
3 Arilíus Marteinsson 310584-2909
4 Agnar Bragi Magnússon 030287-2319
5 Kjartan Sigurðsson 140189-3329
6 Andri Freyr Björnsson 120886-3399
7 Ingólfur Þórarinsson 310586-2189
8 Henning Eyþór Jónasson 240683-4749
9 Jón Sveinsson 050978-3629
10 Sævar Þór Gíslason 261275-3929
11 Ingþór Jóhann Guðmundsson 061084-2749
12 Jóhann Ólafur Sigurðsson 210886-3119
13 Guðmundur Benediktsson 030974-4769
14 Árni Páll Hafþórsson 280389-2939
15
16
17 Davíð Birgisson 231190-2449
18
19 Ingvi Rafn Óskarsson 010793-2899
20 Guðmundur Þórarinsson 150492-2899
21 Stefán Ragnar Guðlaugsson 190391-2999
22 Gunnar Rafn Borgþórsson 031281-3699
23 Ingi Rafn Ingibergsson 301183-2169
24
25 Jón Daði Böðvarsson 250592-3029
26
27
28
29 Jón Guðbrandsson 180485-4309
30 Einar Ottó Antonsson 280884-4059
Áfram ætlum við að kynna okkur betur alla leikmenn meistaraflokks kvenna. Til þess ætlum við að fá þær í hina hliðina sem síðan verður þeirra profile hér. Síðast svaraði Anna María og hún valdi hana Gummu litlu til að svara á eftir sér.
Fulltnafn: Guðmunda Brynja Óldóttir
Gælunafn: Gumma, Gumms, Meistrarinn, Landsliðs-Gumma
Aldur (í anda): 3ja ára, ég er svo mikið barn
Fæðingardagur/ár og hvar á jarðskorpunni: 3. janúar 1994 í Reykjavík
Foreldrar/systkini: Móðir: Anna María Snorradóttir, Faðir: Óli Rúnar Ástþórsson, fóstur-faðir: Bjarni Helgason, fóstur-móðir: Helga Sigurðardóttir. Svo 3 systkini: Álfheiður Eva, Tryggvi og litla gæludýrið Snorri Páll
Hjúskapastaða: Á lausu
Hefurðu þú búið annarsstaðar en á Selfossi: Já, Í Breiðholtinu
Ef þú yrðir að flytja á annan stað á Íslandi. Hvert færir þú: Mhm.. eitthvert sem er heitt og maður verður tan
Hvað ertu að gera fyrir utan að spila fótbolta: er í skóla
Uppáhalds vefsíðu: facebook, fotbolti.net og gossip.is
Uppáhalds Facebookvinur: Dagný er alltaf einhvað að reyna við mig á facebook þannig það er klárlega ekki hún, Anna María er ofarlega á listanum og svo Sara Árna en hún er duglega að deila ljóðum á vegginn minn
Hvað eldaðir þú síðast: Mér er ekki treystandi í eldhúsinu en ég grillaði mér brauð alveg sjálf ef það telst með
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Hókus pókus
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Muse
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Er með einn vitleysing í Fylki, það kannast allir við hana
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Það fer eftir því hvað klukkan er en annars á góðum degi eru það 20 mín
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Ég er nú ekki orðin lögleg á neina skemmtistaði, þannig það er pass
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Ég hélt mikið upp á David Beckham
Eins og sjá má á heitasta vef landsins í dag, Sunnlenska.is er búið að samþykkja tilboð Smíðanda á Selfossi í stúkubyggingu við Selfossvöll. Gestur Þráins og félagar byrja að vinna sig upp úr holunni sem þegar er búið að grafa fyrir stúkunni strax í þessari viku og áætlað er að verkið verði klárt í lok júlí.
Á sunnlenska.is segir að sex verktakar hafi boðið í verkið og bauð Smíðandi lægst, 18,9 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúmar 26,7 milljónir og voru öll tilboðin undir þeirri tölu.
Fram að þessum tíma verður spilað á gervigrasvellinum, áhorfendur verða í bráðabirgðaaðstöðu sem komið verður upp á næstunni og útvegað verður keppnis skýli og aðstöðu fyrir fjölmiðla. Líklega verður eitthvað þröngt á þingi á þessum fyrstu heimaleikjum en líklega sýna flestir því nú skilning og nýta bara tækifærið til að búa til alvöru gryfju, enda áhorfendur mjög nálægt vellinum á gervigrasinu.
Það verður spennandi að fylgjast með þessu og líklega mun orgið líta við af og til á vellinum og birta myndir af byggingu stúkunnr.
Þegar nær dró móti í fyrrasumar var Selfossliðinu, sem rétt missti af því að fara upp á sínu fyrsta timabili í næstefstu deild árið áður spáð 6.sæti sumarið 2009. Menn voru ekkert alveg á eitt sáttir þó flestum fannst þetta nokkuð raunhæft, liðið var að fara spila sitt annað tímabil sem jafnan er erfiðara , eins þá lentum við í því að þurfa að skipta um kall í brúnni fyrir það tímabil plús það að mjög góð lið voru komin niður í næstefstu deild. Ergo bjartsýnin var vel stillt í hóf á Selfossi, krafan var að tryggja sætið í deildinni áfram og helst til var þessi 6.sætis spá of há því skemmtilegra er að koma á óvart og gefa skít í svona spár, sem undantekningarlaust eru asnalegar þegar manni er spáð illa og spekingarnir engir spekingar!
Það þarf engan Jóhann Ólaf (gáfaðasti maður liðsins) til að benda á að spáin í fyrra var kolvitlaus og það á mjög jákvæðan hátt. Nú er komið að því að endurtaka leikinn.
Þar með er ég kominn að efni færslunnar en ég dag var nokkurskonar Selfoss dagur á Fótbolta.net. Komið var að því að segja frá því hverjum væri spáð næst neðsta sæti í sumar og engum að óvörum fengu spekingarnir það út að Selfoss yrði þar.
Hér má sjá yfirferð Fótbolta.net á liðinu http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=90344
Þetta eru sem sagt umræddir spekingar:
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari, Hjörvar Hafliðason, Kristján Finnbogason, Ásmundur Haraldsson, Lárus Orri Sigurðsson, Guðlaugur Baldursson, Helgi Sigurðsson, Tómas Ingi Tómasson, Ásmundur Arnarsson, Leifur Garðarsson.
(Svo við tæklum þessa nefnd út af borðinu þá er Óli Jó auðvitað bitur þar sem hann fékk ekki nægan stuðning sem þjálfari hér, Hjörvar vildi skipta út öllum leikmönnum liðsins og þar sem það gerðist ekki þýðir það auðvitað fall, Kristján komst ekki í liðið hjá okkur í vetur, Ásmundur vill fá sætið sem Selfoss er að taka af hans mönnum í Fjölni, Tómas Ingi leggur línurnar á spjalli sínu við fiska á hverjum degi í sjónvarpinu og enginn maður í sögu sögunnar hefur nokkruntíma tekið mark á Leifi Garðars!! :)
Nei ok þetta eru ágætustu menn og spáin á vel rétt á sér og er fín fyrir liðið og á að virka sem spark í trompetið að afsanna þessa snillinga.
En með þessari spá er alls ekki allri umfjöllun um liðið lokið því í kjölfarið var sett inn svo langt viðtal við Ingó Tóta að Tómmi Þórodds kemur til með að lesa það á þremur kvöldum. Annað viðtal er við Gumma Ben og að lokum skemmtilegt video viðtal við Sævar Gísla þar sem hann ljóstrar upp nokkrum leyndarmálum úr búningsklefanum.

Ingó Tóta og Sævar í viðtali á Fótbolta.net - Mynd Gummi Kalli (Sunnlenska.is)
Ingó Tóta (sjá viðtal hér) er alveg snarbrattur fyrir tímabilið. Hann líkir Gumma bróðir sínum sem samblöndu af öllu því besta frá bestu knattspyrnutöframönnum heims en efast þó um að hann nái að verða betri en hann sjálfur í sumar. Ingó ætlar að taka því töluvert rólega í poppinu í sumar og gefa þessu fótboltaævintýri alvöru séns sem eru ekkert nema frábærar fréttir því flestir sem fylgst hafa með fótbolta á Selfossi undanfarin ár vita að þar er á ferðinni leikmaður sem á mikið inni. Líka bara flott hjá Ingó þar sem einhver sagði mér að hann hefði haft skítsæmilegt að gera undanfarið!! (ég efa að ég sé einn um að hafa athugað hvort það hefði verið límt mynd af Ingó á sjónvarpið mitt?)
Ingó kemur annars líka inn á að svona stökk upp um deildir eigi ekkert að vera eins óyfirstíganlegt hér á landi og af er látið ef menn bara leggja meira á sig og er bjartsýnn á sumarið. Að lokum kemur hann inná að hann gerir sér fullkomlega grein fyrir því að hann komi til með að fá smá sérmeðferð hjá nokkrum leikmönnum andstæðinganna og líklega öllum stuðningsmannaliðunum líkt og í fyrra enda auðveldasta skotmarkið í hópnum…þrátt fyrir að vera með Jóni Guðbrands í liði.
Gummi Ben (sjá viðtal hér) gefur það mjög sterklega í skyn að hann hyggist ekki spila með liðinu í sumar og finnist nóg um að stýra því. Hann útilokar þó ekki neitt heldur og satt að segja gæti ég trúað að hann sé með svipaða klásúlu í samningi og Máser. Spili bara í yfir 10 stiga hita, logni og auðvitað á alvöru grasi ;) Þannig að ekki láta ykkur bregða ef við fáum loksins að sjá Gumma Ben inná vellinum í fyrsta grasleik sumarsins á Selfossvelli, að öllum líkindum gegn KR í seinni umferðinni. Verið samt ekkert að gera ráð fyrir Máser þá!!!
.
.

Jón Daði skrifar undir - (Mynd Gummi Kalli Sunnlenska.is)
Nokkra sjálfboðaliða vantar í skemmtileg verkefni fyrir heimaleiki í sumar. Þeir sem vilja vera með í gefandi starfi í kringum meistaraflokk Selfoss og taka þátt í þeim merkisviðburði er Selfoss spilar í fyrsta sinn meðal þeirra bestu er bent á að hafa samband við Tómas 699-0660. Athugið að verkefnin eru ekki íþyngjandi og verða löguð að hverjum og einum með hans óskum í forgrunni.
Til gamans má geta þess að Óli Tage Bjarnason fv. knattspyrnumaður Selfossliðsins mun áfram setja upp leikskrána fyrir heimaleiki Selfossliðsins. En Óli tók þetta verkefni að sér í fyrra þrátt fyrir að vera búsettur í Danmörku og þaðan mun hann vinna sitt verk fyrir knattspyrnudeildina.
Björgunarfélag Árborgar, alls átta manns ætlar að sjá um gæslu á heimaleikjum liðsins, en yfirmaður heimaleikjaráðs er Erlingur Huldarson.
Búið er að manna flest störf er kemur að fjölmiðlamálum og er þar Einar Babú, Einar glans, Fannar, Vignir Egill, Leifur Viðars og Már Ingólfur fremstir meðal jafninga.
Selfoss tók léttann æfingaleik við fámennt lið ÍH í kvöld. Það komu einungis 11 leikmenn úr Hafnarfirðinum og í seinni hálfleik spilaði Ingi Rafn með þeim.
Fyrir vikið er ekki hægt að segja að um hafi verið að ræða mjög merkilegan leik, staðan í hálfleik var 5-0 með mörkum Sævars Gísla (3), Hennings og Inþórs. Staðan hefði hæglega getað verið 10-0.
í seinni var nánast skipt um lið og bættu þeir Davíð Birgis að ég held og Ingvi/Yngvi við sitthvoru markinu.
Þetta var svona eins og semi skemmtileg æfing þar sem A liðið spilar við B liðið!
Meistaraflokkur Selfoss tekur á móti ÍH í næsta æfingaleik sínum, en hann fer fram mánudaginn 26. apríl kl 18.00. Selfyssingar sem unnu ÍBV í síðasta leik sínum 5-0 eru að endurheimta þá Einar Ottó og Henning úr meiðslum og því nauðsynlegt fyrir þá að spila.
Þjálfari ÍH er Selfyssingum að góðu kunnur, en það er Mikael Nikulásson sem spilaði með Selfyssingum fyrir nokkrum árum síðan. Einn besti leikmaður ÍH er Þórarinn Borgþórsson, eða Tóti Borgþórs eins og stelpunar kalla hann. Tóti er bróðir Gunna Borgþórs og er því sannkallað bræðraeinvígi framundan, sem vonandi skyggir ekki á leikinn sjálfan.
Eftir leikinn við ÍH, eða kl 20.00 munu strákarnir í 2. flokk Selfoss spila við Laugvetninga, en það eru nemendur ÍKÍ. Þannig að það er fótboltaveisla framundan á Selfossvelli.
Annars er það að frétta af liðinu að Gummi Ben er komin heim frá Frakklandi, en Stefán Ragnar er enn við æfingar hjá Monakó og er væntanlegur heim á mánudag. Davíð Birgis og Sævar Þór verða með gegn ÍH, en þeir voru ekki leikfærir gegn ÍBV.
Dagný P.
Sif(Bríet) Þóra Veronika Lena (Þórleif)
Katrín Thelma(Guðbjörg) Dagný H. Íris Sv.(Rakel)
Anna Þ.(Anna M.)
Gumma
Varamenn: Þórleif, Erna Kristín, Karitas, Guðbjörg, Rakel G., Bríet, Anna María.
Stelpurnar í mfl kvenna mætti Skagastelpum í vindasömu veðri í dag á Selfossvelli. Selfoss byrjaði mun ákveðnara og voru mikið á vallarhelmingi ÍA og það leið ekki langur tími þar til þær voru komnar 1-0 yfir þegar Anna Þorsteins sendi frábæra sendingu frá miðjunni yfir til vinstri á hana Írisi Sverris sem eftir örlítið ströggl kom boltanum inn.
Það dofnaði aðeins yfir Selfossstúlkum eftir þetta mark en ÍA var aldrei að skapa sér neina hættu og vörnin var að halda vel. Selfoss var ekki að spila sinn besta bolta í leiknum en komu þó góðir kaflar inn á milli og náði Gumma að setja leikinn í stöðuna 2-0 eftir að hafa leikið á markmann ÍA.
Ein skiptin var í fyrri hálfleik þegar Guðbjörg kom inn á fyrir Thelmu sem hafði verið tæp fyrir leikinn og auk þess var brotið á henni en úr því kom einmitt seinna mark Selfyssinga.
Í seinni hálfleik léku Selfyssingar á móti vindi og þær voru lengi í gang. ÍA var mun ákveðnara og skapaði sér mörg dauðafæri. Þrátt fyrir það settu Selfyssingar þriðja markið í byrjun seinni hálfleiks eftir frábæran einleik hjá Gummu. Staðan því orðin 3-0 fyrir Selfoss.
ÍA fengu hornspyrnu þar sem boltinn fékk að lenda fyrir framan ÍA-stúlku sem skallaði boltan snyrtilega inn 3-1.
Bæði lið voru þó að skapa sér færi í seinni hluta leiksins og áttu ÍA m.a. skot í stöng og Dagný Páls var að verja mjög vel í markinu. Það var svolítið um varnarmistök hjá Selfyssingum síðustu mínúturnar en Dagný P.hélt Selfossi inni í leiknum. Lokatölur 3-1 og þriðji sigur Selfoss í höfn í lengjubikarnum.
Selfoss er með 9 stig eftir 4 leiki og í 2. Sæti í riðlinum. Þróttur er í efsta sæti með 12 stig en aðeins 1. Sætið kemst upp úr riðlinum og leikur til úrslita við 1. Sætið í riðli 2.
Staðan í riðlinum:
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=20051
Stelpurnar eru að spila á eftir klukkan 15:00 við ÍA í lengjubikarnum. ÍA er með ungt lið og verður gaman að sjá stelpurnar taka aðeins á þeim. Við á orginu mælum með að áhorfendur fjölmenni á völlinn og taki með sér krónuplaggötin og fái eiginhandaráritanir frá stelpunum.
Strákarnir eru svo að spila við ÍH á morgun klukkan 18:00. Það verður líka fróðlegur leikur, Einar Ottó og Henning eru að stíga upp úr meiðslum og munu væntanlega spila stóra rullu og svo er aldrei að vita nema að það sjái glitta í Sævar Gísla eða jafnvel Jón Guðbrands líka.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



