| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « feb. | apríl » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 | ||||
Þá er komið að fyrsta leik mfl. kvenna í lengjubikarnum í ár. Leikurinn verður gegn Álftanes á Selfossvelli kl. 13:00 á morgun 1. apríl! og nei þetta er ekkert aprílgabb :) Álftanes er með nýskipað lið eftir nokkurra ára hlé og spilar í 1.deildinni í sumar í B-riðli ásamt Selfoss.
Í raun er þetta leikur sem á að vera 8.apríl en það var ákveðið að láta þennan leik vera sem lengjubikarsleikur. Föstudaginn 2. apríl (föstudagurinn langi) munu svo stelpurnar spila æfingaleik gegn liði Aftureldingar sem leikur í Pepsi-deildinni og fer leikurinn fram á Selfossvelli kl.17:00. Smá keyrsla fyrir páska enda ekki búnir að vera margir leikir í mars-mánuðinum.
Endilega fyrir alla knattspyrnuáhugamenn á Suðurlandi að kíkja á stelpurnar í sínum fyrsta „alvöru“ leik ársins á morgun!

Stelpurnar spila tvo leiki í röð á gervigrasinu
Undanfarnar vikur höfum við verið að spjalla örstutt við einn fulltrúa frá öllum liðunum sem spila með okkur í Pepsi deildinni í sumar til að kanna púlsinn á andstæðingunum svona rétt fyrir mót, þekkingu þeirra á Selfoss og auðvitað fá þá til að spá í spilin. Þetta virkar þannig að grafið var upp einhverja hetju sem er vel að sér um sitt lið til að svara fyrir sína menn. Stefnan er síðan að heyra aftur í þessum sömu mönnum fyrir leiki liðanna í deildinni í sumar.
Núna höfum við spjallað við fulltrúa frá öllum liðunum í deildinni að undanskyldu einu, KR. Það er ekki á neinn hallað að með því að geyma KR þar til síðast vorum við að geyma það besta þar til síðast enda er fulltrúi KR-inga sá eini sem mögulega gat komið til greina, sjálfur Kristinn Kjærnested. Hann er auðvitað fyrrum leikmaður Selfoss, núverandi formaður KR, hirðveislustjóri Selfyssinga og auðvitað heitasti aðdáandi Gísla Björns norðan alpafjalla.
Heill og sæll Kiddi, hvernig lýst þér á komandi sumar hjá þínum mönnum, mikið um breytingar frá síðasta ári?
Alveg ljómandi vel. Ég er alltaf bjartsýnn fyrir hönd minna manna, það breytist ekkert. Það hafa vissulega orðið töluverðar breytingar á okkar leikmannahóp. Gummi vinur minn Ben tók uppá því að stökkva í peningahylinn fyrir austan fjall og munum við sakna hans en þið að sama skapi njóta starfskrafta hans, jafnt innan vallar sem utan. Atli Jóhanns, Prinsinn, Gummi rauði, Jónas Guðni, Stefán Logi, Andre Hansen og Ásgeir Örn léku allir á síðustu leiktíð en verða ekki með okkur í sumar. Þá höfum við lánað Dabba Birgis til ykkar og Einar Bjarna í Gróttu en þeir fóru mikinn með 2. flokki á síðustu leiktíð. Þeir munu fá dýrmæta reynslu og koma sterkari til baka, ég er sannfærður um það.
Við höfum fengið Þórð frá Fjölni á leigusamningi og þá hafa nokkrir KR-ingar snúið heim, Kjartan Henry, Viktor Bjarki og Gaui Baldvins. Guðmundur Reynir sem kom til okkar að láni er tímabilið var byrjað í fyrra verður aftur með okkur, en nú frá byrjun. Þetta er strákar sem við þekkjum vel og erum afar ánægðir með hafa a.m.k. í sumar og á komandi árum. Það gleymist gjarnan í umræðunni hverjir eru farnir og einblínt er á þá sem eru komnir. Við höfum að mínu mati verið klókir í samningaviðræðunum við GAIS og í öðrum samningum en gerum okkur grein fyrir því að umræðan mun alltaf verða til staðar hvaðan peningarnir koma. Það vitum við bara í stjórninni en það segir sig sjálft að fjármagn til íþróttafélaganna er miklu minna en áður fyrr. Þrír af fimm nýju leikmönnunum okkar koma á lánssamningi. Hinir tveir komu á frjálsri sölu.
Ég tel lið okkar vera þéttara og sterkara en í fyrra en hvort það nægi til titla kemur í ljós í septemberlok. Maður er búinn að vera í stjórnarstörfum í um 10 ár og við KR-ingar höfum oft áður verið sterkir á pappírunum en gert í brækurnar þegar á hólminn hefur verið komið. Það virðast allir fá aukinn kraft gegn okkur KR-ingum og það er eitthvað sem mínir menn verða að átta sig á. Jafn mikið og ég elska KR þá geri ég mér grein fyrir því að það hata okkur margir. Þannig er það bara og gerir fótboltann að skemmtilegustu íþrótt í heimi. Ég ætla hinsvegar mínum mönnum það í sumar að þeir geri verulega sterkt tilkall til að velta FH-ingum af stalli sem og að halda öðrum sterkum liðum neðar í töflunni.
Hvernig myndir þú lýsa Gumma Ben og hvernig heldur þú að hann komi til með að standa sig sem þjálfari?
Hann er svona ca. 160 cm (max) með yfirburðar leikskilning og er toppdrengur. Ég held að í gegnum tíðina séu fáir leikmenn sem mér hefur þótt jafn vænt um eins og hann. Þrálát meiðsl hans hafa verið erfið í mörg ár en hann kemur alltaf sterkur til baka og ég lagði hart að honum að koma aftur í KR sem og hann gerði. Nærvera hans er ávallt góð og frammistaðan var eins og ég reiknaði með, óaðfinnanleg. Án gríns þá get ég alveg viðurkennt að ég hefði gjarnan viljað láta Gumma hefja þjálfaraferilinn í Vesturbænum og þá í yngri flokkunum, við ræddum þann möguleika. Sé hinsvegar einhver maður í það að stökkva beint út í djúpu laugina þá er það umræddur Gummi Ben. Ég er sannfærður að hann muni standa sig vel hjá ykkur og óska honum og ykkur alls hins besta í baráttunni þó æskilegt væri að hann og þið gerðuð uppá bak gegn okkur KR-ingum svona ca. tvisvar sinnum í sumar.
Hverja telur þú möguleika Selfossliðsins vera á komandi ári?
Ég tel að tímabilið verði ykkur mjög erfitt. Það hefur lítið bæst í hópinn enda markaðurinn hér heima hálf frosinn og niðurnegldur. Selfossliðið á hinsvegar einn mann inni sem ekkert hefur leikið á undirbúningstímabilinu og ef hann næst á flot og kemst í liðið þá haldið þið ykkur uppi. Þetta er algjört lykilatriði að mínu mati. Ég er ekki að tala um Gísla Bjöss því ég veit að þegar hann les þetta þá heldur hann að ég sé að meina sig. Ég á að sjálfsögðu við Gumma Ben. Það þarf ekki að koma því áleiðis en ég vonast að sjálfsögðu eftir því að Selfoss haldi sér í deildinni og ætla að spá þeim 10. sætinu, Sævar skorar markið mikilvæga í lokaumferðinni og tilkynnir á lokahófinu um kvöldið að hann sé hættur í sjöunda sinn ! Selfossbær er líka þekktur fyrir skemmtilegt fólk og mikla stemmningu, það mun telja drjúgt að mínu mati að þið getið ekki annað en skemmt ykkur og hafið engu að tapa. Vonandi smitar það inná völlinn.
Þekkir þú eitthvað til leikmanna Selfoss og liðsins að undanskyldum Sævari Gísla?
Maður kannast við nokkra en þekkir þá fáa. Litli Jón lék með mér á sínum tíma, ég kann öll lögin hans Ingó en hann er í miklu uppáhaldi hjá strákunum mínum, bróðir hans er afar efnilegur og er leikmaður sem allir í boltanum horfa til. Allir þekkja svo Sævar Gísla sem vonandi verður ykkur drjúgur. Mér finnst Jón Guðbrands afar traustur leikmaður og svo hefur ungur strákur verið í framlínunni í vetur sem ég bara man ekki hvað heitir sem mér finnst mjög efnilegur (insk., Máser eða Jón Daði).
Þá þekkir maður að sjálfsögðu vel til Dabba Birgis sem nóta bene konan mín skeindi reglulega á barnaheimilinu þegar hann var minni, eða öllu heldur yngri. Auðvitað er svo sykurpúðinn Henning þarna líka sem er hinn ljúfasti drengur.

Skjálfti þarf að hafa sig alla við í sumar ef þeir ætla í KR-inga, því Miðjan syngur allann leikinn, sama hver staðan er.
Ef svo, sérðu fyrir þér að upp sé að koma einhver upprennandi Gísli Bjöss í liðinu?
Nei ég tel það afar ólíklegt að svo feitur leikstjórnandi komi aftur fram í nútímafótbolta. Gísli Bjöss er langbesti miðjumaður sem ég hef nokkurn tímann leikið með. Hann bjó yfir stöðugleika innan vallar sem utan og hafði þennan sjálfsaga. Maður hændist strax að kappanum á sínum tíma en hann hætti alltof snemma að mínu mati. Ég gat ekki betur séð um daginn en að Gísli hefði lagt töluvert af og ef hann á ennþá magabeltið og íþróttabrjóstahaldarann þá væri óvitlaust hjá Gumma og Omma að hafa hann til taks á bekknum. Það myndi þó ekki ganga í þeim tilfellum sem leikið er á laugar eða sunnudögum. Gísli var sér á báti, algjör orginal og þarafleiðandi sé ég ekki álíka talent í bráð koma fram á sjónarsviðið, hvorki á Selfossi frekar en í gervallri Evrópu.

Hress og kátur Gísli Bjöss ásamt félögum sínum þeim Ævari Österby og Einari Bárða í Inghól í hittifyrra - Mynd Einar Bárða
Hefur þú eitthvað farið á Selfossleik undanfarin ár?
Ég fór og sá leikinn í Víkinni síðasta sumar. Sat að sjálfsögðu með Gísla (réttu megin) og fögnuðum vel sigurmarkinu undir lokin. Annars verið alltof latur og fengið að heyra það frá Leó vini mínum en hef getað borið því við að leikir í neðri deildunum heilli mann ekki. Þar sem að þið eruð nú komnir í Premíuna þá er ég viss um að skella mér á nokkra leiki í sumar, hvort heldur fyrir austan eða í bænum.
Hver eru fyrstu 3 atriðin sem þér dettur í hug þegar minnst er á Selfoss?
Álagning, Inghóll og milljón dollara maðurinn.
Verður maður ekki að útskýra þetta aðeins. Álagningin í herrafataverslun Baron á sér enga hliðstæðu. Hún er í engum takti við opnunartímann. Inghóll var á sínum tíma afar viðkunnalegur staður, þar leið manni jafnvel og inná vellinum. Ófá Sálarböllin gleymast seint. Leó Árnason, Selfoss ljónið er ávallt höfðingi heim að sækja og það toppar ekkert að komast í magnaða Sushi veislu hjá honum og hans hundtryggu eiginkonu. Það er væntanlega búið að skipta út Lambrusco rauðvíninu á Kaffi Krús eftir að Leó tók við veitingataumnum. Ef ég hefði fengið að bæta við fjórða atriðinum þá hefði ég sagt “rakarafjölskyldan”.
Eins og staðan er núna, hvernig spáir þú að deildin muni fara í sumar, sigurvegari, efstu lið, spútnik og fall?
Ég er sannfærður um að mótið verði afar spennandi. FH-ingar verða mjög sterkir, keyptu tvo samningsbundna leikmenn, þá Gunnleif og Gunnar Fjölnir á drjúgan skildinginn. Willum er alltaf skeinuhættur og þá sérstaklega á fyrsta og öðru tímabili, sagan sýnir það einfaldlega. Keflvíkingar verða við toppinn. Þá reikna ég einnig með að Valsmenn og Blikar verði í baráttunni. Þetta eru þau lið ásamt KR sem ég tel að hafi raunhæfa möguleika á að vinna mótið. Það er alltaf erfitt að spá um spútnikliðið en ég vona að það verði Selfoss. Fylkir og Stjarnan sem áttu gott tímabil í fyrra gætu dalað og sogast í fallbaráttuna en ég spái því að Haukar, Selfoss, Fram og ÍBV muni berjast um fallið. Grindvíkingar verða seigir og gætu orðið spútniklið sumarsins. Annars fer þetta oftast á allt annan veg en maður vonar og heldur. Heilt yfir þá finnst mér samt vera mörg lið sem gætu toppað og líka floppað. Þar sem ég hef hinsvegar undantekningarlaust rangt fyrir mér var setti ég ekkert allt of mikinn þunga í svarið við spurningunni.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
Ég vona að mótið verði skemmtilegt, ykkur gangi allt í haginn og hlakka til að fá gömlu félagana (Gísla, Leó, Elvar, Tomma, Sigga Fannar, Hjalta Tobba, Stebba og fleiri heiðursmenn) í heimsókn á KR-völlinn í 2. umferð. Miðað við upptalninguna þá sýnist mér að maður verði að skipta út Melabúðinni fyrir Vínbúðina á Eiðistorgi þegar þessir þungaviktarmenn koma í hús á KR-vellinum. Þá er ekki úr vegi svona rétt í lokin að hæla þér fyrir flotta heimasíðu Einar Babú. Menn sem hafa slíkan metnað og framtakssemi fyrir félögin eru einfaldlega “priceless” og vandfundnir. Sem betur fer þá eigum við KR-ingar einn slíkann, hann Óla Brynjar.
Séuð þið velkomnir í Premíuna, Selfyssingar.
Kv, Kiddi
Þökkum heiðursmanninum Kidda Kjærnested kærlega fyrir að slá botninn í þessa umferð af spekingum andstæðinganna. Nú höfum við talað við fulltrúa allra hinna liðanna í deildinni og þökkum þessum heiðursmönnum kærlega fyrir. Á næstunni sjóðum við þetta saman í einn pistil og setjum hingað á Orgið.
Næst virkjum við þennan dagskrárlið í einhverri mynd fyrir leiki liðanna í sumar þegar við tölum við sömu menn eða einhverja aðra stuðningsmenn liðanna fyrir leik þeirra gegn Selfoss.
Babú
Bjórkvöld Meistarflokks Karla. Sjálfstæðishúsinu
Húsið opnar klukkan 21:00 annað kvöld, strax á eftir sigur Barcelona á Arsenal í meistaradeildinni.
Takið þetta frá og látið berast hratt.
M.a. á dagskrá:
* Leikmannakynning
* Stutt Páskabingó þar sem Einar Ottó mun fara á kostum.
* Mjög góð upphitun fyrir sálarball seinna um kvöldið.
* Guðmundur Ben mun fara yfir stöðuna fyrir sumarið!
Allir sannir stuðningsmenn og kunningjar að mæta!!!

Einar Ottó hefur alltaf verið álitinn næsti Bingó Bjössi
Gummi okkar Tóta sýndi á sér hina hliðina á Fótbolta.net og má sjá svör hans hér.

Þetta var að mörgu leiti áhugavert hjá Gumma sem byrjar hræðilega og játar að hlusta allajafna á FM957, síðan lýgur hann því að herbalife sé uppáhalds drykkurinn sinn áður en hann nefnir fótbolta.net sem uppáhalds vefsíðu… án þess að minnast á selfoss.org!!!
Þegar kemur að bestu aðferðinni við að pirra andstæðinginn misskilur hann þetta eitthvað þar sem hann segir Sævar Gísla vera mjög góðan í því…en kemur ekkert inn á það að þetta fer vanalega jafntefli með Gíslason alveg jafn pirraðann og andstæðinginn!! (núna verður snúið upp á geirvörtuna á undirrituðum) : )
Gummi greyið vildi ekki ljúga þegar kom að því að velja helstu átrúnaðargoð en sagði svo að Jón Guðbrands væri fallegasti maður deildarinnar!! Eftir þessa vitleysu var varla að maður læsi þetta áfram en hann náði þó að toppa FM957 svarið með því að óska þess heitast að sjá Justin Timberlake live á sviði….af öllum þeim sem gaulað hafa í míkafón í gengum tíðina!! Ja hérna!
Gummi er síðan með númerið hjá Unni Birnu og sleppur því út úr þessu á pari.
Selfyssingar tóku á móti FH í Kórnum á sunnudag og var þessi leikur í Lengjubikarnum. Fimleikafélagið vann nokkuð öruggan 0-3 sigur. Íslandsmeistararnir í efstu deild sýndu því íslandsmeisturunum í 1. deild um hvað máið snýst.
Það voru þó Selfyssingar sem byrjuðu leikinn betur og áttu fyrsta færið eftir frábæran undirbúning hjá Jón Daða átti Sævar Þór gott skot í slá. Stuttu seinna varði Gulli markmaður FH vel frá Sævari Þór. Á 18. mínútu átti svo Jón Sveins gott skot yfir eftir stóran þríhyrning við Sævar Þór.
Fyrsta fær FH fékk Ólafur Páll, en hann rétt missti af góðum kross frá Atla Guðna. Í næstu sókn varði Jói markmaður Selfyssinga vel frá Gunnari. Á 25 mínútu kom aftur kross frá vinstri og nú skallaði Ólafur Páll framhjá.
Þegar um hálf tími var liðin af leiknum tók Jón Daði einn á og setti boltann inn á Davíð Birgis, en skot hans fór framhjá.
Í næstu sókn komust FH yfir. Há sending kom fyrir og misreiknaði Jói boltann og Gunnar skallaði yfir hann og í markið. Staðan því orðin 0-1. En það sem eftir lifði hálfleiks voru Selfyssingar betri.
Fyrst varði Gunnleifur skot frá Sævari. Svo átti Jón Daði ágæt skot rétt framhjá og síðasta færi hálfleiksins fékk Agnar Bragi eftir innkast, en Gunnleifur varði vel.
Í upphafi seinnihálfleiks settu Hafnfirðingar í 5. gír og þegar fjórar mínútur voru liðnar af hálfleiknum komust FH í 0-2. Eftir flott spil skallaði Björn Daníel boltann í netið eftir skallabolta sendingu frá Gunnari Már. Stuttu seinna átti Hákon Hallfreðarson skalla yfir mark Selfyssinga og Tommy Nilsen skaut yfir af stuttu færi eftir horn.
Á 55. mínútu voru Selfyssingar nálægt því að minka muninn er Gummi Tóta stal bolta og fann Sævar Þór sem bar boltann hratt upp, Sævar átti svo góða sendingu inn á Davíð Birgis, en hann var óheppinn með skot sitt og boltinn fór framhjá. Tveimur mínútum seinna átti Atli Guðna skot framhjá.
Á 62. mínútu voru gerðar tvær skiptingar, en þá kom Arilíus inn fyrir Davíð Birgis og Ingó Tóta inn fyrir Jón Sveins. Við það datt Stefán Ragnar í miðvörðinn og Kjartan Sig fór í hægri bakvörðinn. Mínútu seinna skoraði Ólafur Páll eftir sendingu frá Atla Guðna. FH sýndu styrk sinn þessar fyrstu 20 mínútur fyrri hálfleiks og voru nánast stanslaust í sókn, þó svo að Selfoss hafi átti eitt gott færi. Staðan því orðin 0-3 fyrir FH eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik.
Tvær skiptingar til viðbótar voru svo gerðar, en Ingþór kom inn fyrir Sævar Þór og Ingi Rafn kom inn fyrir Jón Guðbrands og fór þá Gummi Tóta inná miðju.
Tvö síðustu færi fengu Selfyssingar. Það fyrra eftir aukaspyrnu frá Gumma Tóta, en þá fdór boltinn í gegnum allan markteiginn án þess að nokkur næði að pota honum inn. Síðasta færið kom svo á lokamínútunni, en þá átti Jón Daði kross fyrir sem Kjartan náði að skalla fyrir fætur Ingþórs, en skot hans fór yfir.
Sanngjarn sigur FH því sanngjarn, en næsta verkefni Selfyssinga er æfingarferð til Canela sem stendur frá 5.-12. apríl og verður m.a annars keppt við innfædda þar.
Það var Kristinn Jakobsson sem helt um flautuna í leiknum og gerði það eins og fagmaður t.a.m gaf hann ekkert spjald í leiknum.
Tölfræði leiksins: Selfoss horn 2, marktilraunir 8. FH horn 11, marktilraunir 14.
Byrjunarlið:
Jón Sveins – Kjartan – Bragi – Andri
Jón Daði – Stefán Ragnar – Guðbrands – Gummi Tóta
Sævar – Davíð Birgis
Skiptingar:
Jón Sveins(Ingó Tóta)
Jón Guðbrands(Ingi Rafn)
Davíð Birgis(Arilíus)
Sævar Þór(Ingþór).
Á næstu vikum ætlum við að kynna okkur betur alla leikmenn meistaraflokks kvenna. Til þess ætlum við að fá þær í hina hliðina sem síðan verður þeirra profile hér. Til að ríða á vaðið fengum við hana Sif Sigurðardóttir enda ávallt hress og kát:
Fullt nafn: Sif Sigurðardóttir.
Gælunafn: Sibba ef fólk kýs að lengja það.
Aldur (í anda): 10 ára.
Fæðingardagur/ár og hvar á jarðskorpunni: 17.desember 1990 á Landspítalanum.
Foreldrar/systkini: Mamma: María Kristín Örlygsdóttir. Pabbi1: Sigurður Sigurðarsson. Pabbi2: Elvar Gunnarsson. Systkini: Brynjar Þór, Kristinn Kári, Skúli Möller, Íris Arna, Sara Líf og Sindri Lúðvík.
Hefurðu þú búið annarsstaðar en á Selfossi: Rvk city og Hvolsvelli.
Ef þú yrðir að flytja á annan stað á Íslandi. Hvert færir þú: Ekki hugmynd..get bara sagt að rvk er ekki á topp 1.
Hvað ertu að gera fyrir utan að spila fótbolta: Vinna, leika mér, sooofa, borða, liggja í leti o.s.frv.
Hvað eldaðir þú síðast: Heima hjá Hilmari, það var bleikur kjúlli í matinn..mjög góður!
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Örugglega einhver söngleikjaplata..man samt bara eftir að hafa fengið 3 eintök af Svölu Björgvins í afmælisgjöf.
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Líklega Beyoncé..ég bara Verð að sjá hvernig manneskjan fer að því að hrista rassinn svona live, hún hlýtur að vera með hann í bandi!!
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Það var Gulla í stelpunum og Ingó Idol en þar sem ég ákvað að eyðileggja símann minn eru engin númer save-uð enn.
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Mjög misjafnt, er dugleg á snúsinu en annars 2-7mín þegar ég er búin að drulla mér uppúr rúminu.
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Útileiga eða bústaður.
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Við pabbi héldum mjög mikið á Robbie nokkurn Fowler.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Klípa eða gefa smá ollara í brjóstin á þeim!
Skemmtilegar sögur sem tengjast mfl. kvenna Einu sinni fórum við á Egilstaði að keppa og þá datt Dóra Hitler það í hug að setja dass af hitakremi í næríurnar hjá Báru Sif..þið getið rétt ímyndað ykkur hvað var heitt hjá henni um nóttina!!
Sætasti sigurinn í fótbolta: Alltaf þegar ég vinn!
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Þau eru nokkur..ferskustu vonbrigðin eru þau þegar Haukar náðu að jafna í uppbótartíma í úrslitaleik í fyrra.
Uppáhaldslið í enska: Liverpool.
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Gumma litla.
Hver var með furðulegustu venjurnar (hjátrú) fyrir leik af leikmönnum Selfoss: ?? Dagný Páls. Man ekki hvað hún gerir en það hlýtur að vera eitthvað mjög skrýtið þar sem hún er sérstök á sinn hátt.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Við erum allar svo góðar við hvor aðra..
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: ÍR og Haukar koma upp í hugann en þau er nokkur í viðbót.
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta (s.s. Helena ekki talin með): Dóri Hitler.
Besti íþróttafréttamaðurinn: Adolf Ingi.
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Adolf Ingi.
Hefurðu skorað sjálfsmark: Já það hef ég..alltaf gaman að hitta ekki!
Hver tekur lengstu trúnó-in í hópnum/talar mest: Það koma allavega góð trúnó í þjöppunum okkar en ég næ ekki að fylgjast með því hver talar mest, kannski vegna þess að ég þagna aldrei? (líklega já)
Hver er háværust í hópnum: Dagný Páls þegar hún opnar munninn!
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og afhverju: Mömmu: Til að þrífa eftir mig. Pabba: Til að elda fyrir mig. Einhverja vinkonu: Til að leika við mig.
Hvað kemur þér í gott skap: Þegar fólk dettur eða segir eitthvað heimskulegt.
Ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag, hvað myndirðu gera: Fara í strákaklefann!
Frægasti Selfyssingurinn: Það hlýtur að vera Ingó þessa stundina.
Í hverju varstu/ertu best í skóla: Tala.
Uppáhaldskennari ever: Þeir sem leyfðu mér að tala.
Uppáhalds barnaefni í æsku: Disney myndir, þær eru ennþá að gera góða hluti í dag.
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar og afhverju: Auðvitað mánudagar því þá er helgin búin.
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Heitt land.
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Þrífa heima hjá mér!
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: Ég er ung snót í ullarnærfötum, úlpu, gönguskóm og er að hoppa! Ertu geim?
Hver á að svara þessum lista næst og afhverju: Dagný Páls því hún hefur ekkert betra við tímann að gera..
Spurning á næsta viðmælanda: Hvað tekuru í bekk trukkur?
Eitthvað að lokum: Einu sinni voru tveir tómatar að labba yfir götu. Allt í einu sagði annar tómaturinn: Passaðu þig á holunni! Þá sagði hinn: Hvaða holUUUuuuuu?!
Kveðja Sif
Á eftir spila okkar menn við íslandsmeistara FH í deildarbikarnum. Leikurinn hefst kl 18:00 í Kórnum Kópavogi og hvetjum við alla til að kíkja þanngað enda tekur Sævar Sigurðsson allsráðandi í Kórnum á móti öllum með innilegu knúsi.
Fyrir þá sem ekki komast má benda á að leikurinn verður sýndur á SportTV í beinni útsendingu.
Enn höldum við áfram að spjalla örstutt við einn fulltrúa frá öllum liðunum sem spila með okkur í Pepsi deildinni í sumar til að kanna púlsinn á andstæðingunum svona rétt fyrir mót, þekkingu þeirra á Selfoss og auðvitað fá þá til að spá í spilin. Þetta virkar þannig að grafið er upp einhverja hetju sem er vel að sér um sitt lið til að svara fyrir sína menn. Stefnan er síðan að heyra aftur í þessum sömu mönnum fyrir leiki liðanna í deildinni í sumar.
Núna er komið að næst síðasta liðinu í þessum flokki, félögum okkar úr aldagömlum „vinabæ“ Selfoss, auðvitað Keflavík! Til að sitja fyrir svörum fyrir þá er maðurinn sem næst hefur komist Ævari Österby í því að leiða stuðningsmannahóp sem ber algjörlega af. Sá kallar sig þessa dagana Joey D Bianco, heitir Jóhann, er þekktur vítt og breitt um landið sem Joey Drummer en undirritaður kallar hann bara Figo og hefur alltaf gert! Þarna er á ferðinni fyrirliði Puma-sveitarinnar sem er Skjálfti þeirra Keflvíkinga og það er ljóst að okkar menn mega hafa sig alla við til að eiga eitthvað í Suðurnesjamenn í stúkunni ef við mætum Puma sveitinni í fullum styrk. Joey er annars þekktur DJ og er að spila út um allt land sem slíkur og jafnvel víðar en það. Það má meðal annars sjá hann næst á Nasa daginn fyrir skírdag að spila með ekki minni manni en sjálfum Klaas...

Puma sveitin í fullum styrk
Sæll og blessaður, hvernig lýst þér á komandi sumar hjá þínum mönnum, mikið um breytingar frá síðasta ári?
Mér líst bara þokkalega á þetta, liðið er nokkuð svipað og síðasta ár, höfum misst nokkra og fengið sömuleiðis nokkra á móti, þar á meðal Paul McShane, Andra Stein Birgisson og Ómar Karl Sigurðsson.
Misstum hinn frábæra markvörð Lasse Jörgensen, Nicolaj Jörgensen, Jón Gunnar Eysteinsson og verst er vissulega að missa Símun Samuels, því er ekki neita..
Hvernig lýst þér á nýja manninn í brúnni, Willum Þór?
Mér líst mjög vel á Willum, þetta er töffari með mikinn metnað og hann hefur náð árangri hvar sem hann hefur þjálfað. Þetta er alvöru þjálfari og með hlutina á hreinu. Þegar menn eru ekki ánægðir með að hafa unnið leik „aðeins“ 8-0 í æfingarmóti, þá sér maður að þarna er metnaður á bakvið..
Hverja telur þú möguleika Selfossliðsins vera á komandi ári?
Ef rétt er haldið á spilum og menn haldast heilir þá er allt mögulegt hjá Selfoss liðinu. Þetta er greinilega samheldur og hress hópur, með reynslubolta eins og Sævar þarna frammi, og gríðarlega reynslu og þekkingu í Gumma Ben við stjórnartaumana.
Þekkir þú eitthvað til leikmanna Selfoss og liðsins að undanskyldum Sævari Gísla?
Nee ekki beint, barnastjarnan er náttúrulega þarna hjá ykkur, bróðir hans, kannast svo við nöfn eins Inga Rafn, Henning Jónasar, Jón Guðbrands og auðvitað legendið Gumma Ben.
Hefur þú eitthvað farið á Selfossleik undanfarin ár (eða nokkurntíma)?
Nei ég hef nú ekki dottið á leik,, eða jú hold on ! Auðvitað, legendary leikur í Mjólkubikarnum hérna way back when, var í Keflavík örugglega fyrir 1990, fór í vítaspyrnukeppni og bráðabana, Steini Bjarna fyrrum landsliðsmarkmaður í markinu hjá okkur. Hörkuleikur !
Man svona í svipinn ekki eftir fleirum (þakka ölinu fyrir það)
Hver eru fyrstu 3 atriðin sem þér dettur í hug þegar minnst er á Selfoss?
Góðar pylsur, Babú og hnakkamenningin hérna back in the days (er kannski ekki ennþá, þekki það bara ekki)
Eins og staðan er núna, hvernig spáir þú að deildin muni fara í sumar, sigurvegari, efstu lið, spútnik og fall?
Þetta verða FH, KR, vonandi Keflavík og hugsanlega Valur að berjast þarna um toppinn. Stjarnan gæti svo jafnvel gert einhverjar gloríur.
Ég hlakka til að sjá Selfoss liðið spila, hef heyrt fína hluti um ykkur og þetta verða örugglega flottir leikir á milli Kef og Selfoss
Læt fallspánna vera, vona bara að þetta verði jafnt og öflugt mót á öllum stöðum.

Joey Drummer í S-inu sínu
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
EF að Pumasveitin verður á stjá í sumar þá væri ég til í að sjá samstarf á milli okkar og ykkar rétt eins og við höfum gert með FH-ingum, Völsurum, Eyjamönnum og fleirum,, bjóðum ykkur að kíkja í heimsókn til okkar á pöbbnum fyrir leik og kynnast krúinu hjá hvor öðrum, og skemmta sér svo vel á leiknum.
Ég hef bara ekki enn ákveðið hvort ég nenni að taka annað tímabil með Pumasveitina, er búinn að vera í þessum bransa fjandi lengi og ekki laust við að það sé komið semí þreyta í kallinn..
En við sjáum til og ef af því verður þá verður klárlega mikið fjör í rimmum þessara liða !
Gangi ykkur sem best í sumar og splæsið endilega í eina feita pullu handa frænda þegar maður mætir næst þarna uppeftir til ykkar ;)
Þökkum Joey D Bianco kærlega fyrir og hlökkum til að fá Keflvíkinga í heimsókn enda líklega ekki verið almennilegur slagur milli þessara bæjarfélaga síðan í Galtalæk upp úr 1990 :-) Skjálfta menn taka án vafa vel á móti Puma sveitinni fyrir leik liðanna í sumar og fara yfir hnakkamenninguna!
Síðastir en ekki í sístir í röðinni eru KR-ingar og koma þeir vonandi hér inn bráðum!
Babú

Davíð kátur í Selfossbúningnum
Við hjá orginu fögnum komu Davíðs og bjóðum hann hjartanlega velkominn í Selfoss.
Gaman að sýna hér að framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýrrar stúku. En ekki á að taka langan tíma að grafa fyrir henni.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



