Selfoss tók á móti Fram í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum. Selfyssingar byrjuðu betur og komust yfir með marki Jóns Daða og voru þeir óheppnir að vera ekki yfir í hálfleik. Framarar voru svo betri í seinni hálfleik og unnu leikinn 3-1.
Fyrsta færi leiksins fékk Guðmundur Þórarinsson er skot hans sleikti þverslá Framara. En áður voru Selfyssingar nálægt því að komast í dauða færi er þeir voru komnir 3 á 2 en Jón Guðni Fjóluson komst inn í sendingu frá Inga Rafni.
Fyrsta mark leiksins kom á 14. mínútu er Jón Daði fékk sendingu frá Stefáni Ragnari, Jón Daði setti boltann fyrir en varnarmaður Fram komst fyrir boltann sem barst aftur út á Jón Daða. Hann tók boltann og setti hann á nær stöngina niðri, virkilega flott mark hjá Jóni Daða. En þetta var fyrsta mark hjá þessum efnilega pilti fyrir meistaraflokk, í leik á vegum KSÍ
Þrem mínútum seinna fengu Framara ágætis færi, en Jóhann Ólafur varði vel. En á 21. mínútu fékk Jón Daði góða sendingu frá Jóni Guðbrandssyni inn fyrir vörn Fram, en Hannes í marki Fram kom vel út á móti og lokaði markinu.
Á 31. mínútu slapp Gummi Tóta einn í gegn eftir þríhyrning við Inga Rafn. Gummi lék laglega á Hannes markmann, en missti boltann aðeins of langt þannig að boltinn fór afturfyrir.
Framarar komust svo meira inn í leikinn þegar leið á hálfleikin og varði Jói í eitt skipti mjög vel. En á 41. mínútu fékk Hjálmar Þórarinsson sendingu inn fyrir vörn Selfyssinga og virtist vera rangstæður, en Hjálmar setti boltann fyrir og þar kom Tómas Leifsson og skallaði boltann í markið af stuttu færi.
Síðustu spyrnu fyrri hálfleiks átti Halldór Hermann Jónsson, en skot hans hafnaði upp í samskeytunum, gjörsamlega óverjandi fyrir Jóa og Fram komið í 2-1. Selfyssingar voru búnir að vera betri í fyrri, en að því er ekki spurt og staða í hálfleik var 2-1 fyrir Fram.
Tvær skiptingar voru í hálfleik. Jón Sveinsson kom inn fyrir Agnar Braga og fór Jón í hægri bakvörð og Siggi Eyberg í miðvörðinn með Stefáni Ragnari. Árni Páll kom inn fyrir Jón Guðbrands og datt Arilíus niður á miðju og Árni fór fram með Inga Rafn.
Framarar byrjuðu seinni hálfleik af krafti og áttu skot rétt yfir markið. Selfyssingar áttu svo góða sókn á 53. mínútu, þá setti Stefán Ragnar boltann yfir á Jón Daða, hann fór upp kantinn og fann Andra Freyr sem hamraði á markið en Framarar björguðu í horn. Upp úr horninu var skoti frá Jón Daða bjargað á línu.
Ingþór kom svo inn fyrir Arilíus á 58. mínútu og átti góða spretti. Ingþór kom á hægri kant og Gummi Tóta fór inn á miðju.
Á 70. mínútu skoraði Alexander Veigar gott mark, en boltinn virtist reyndar fara í hönd sóknarmanns Fram, en markið stóð. Eftir þriðja mark Fram gerðist fátt markvert, nema að Framarinn Orri Gunnarsson fékk að líta rauða spjaldið fyrir tveggja fóta tæklingu þremur mínútum fyrir leikslok. Síðasta skipting Selfoss var svo á 84. mínútu, er Ingvi Rafn kom inn fyrir Inga Rafn. leikurinn endaði 3-1 fyrir Fram og sennilega sanngjörn úrslit heilt yfir, þó svo að Selfyssingar hafi verið óheppnir að skora ekki fleiri mörk.
Í lið Selfoss vantaði þá Sævar Þór, Einar Ottó, Henning Eyþór, Ingó Tóta og Gumma Ben. Margt gott er hægt að taka úr leiknum m.a annars margir góðir kaflar í fyrri hálfleik. En svolítið vantar upp á form hjá sumum leikmönnum, en verið er að vinna í því.
Fram: Hannes Þór Halldórsson, Daði Guðmundsson (Jón Orri Ólafsson ’85), Kristján Hauksson, Jón Guðni Fjóluson, Sam Tillen, Halldór Hermann Jónsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Almarr Ormarsson, Tómas Leifsson (Alexander Veigar Þórarinsson ’64), Hjálmar Þórarinsson (Orri Gunnarsson ’85), Ívar Björnsson (Hlynur Atli Magnússon ’45).
Selfoss: Jóhann Ólafur Sigurðsson, Sigurður Eyberg Guðlaugsson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Agnar Bragi Magnússon (Jón Steindór Sveinsson ’45), Andri Freyr Björnsson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Jón Guðbrandsson (Árni Páll Hafþórsson ’45), Ingi Rafn Ingibergsson (Ingvi Rafn Óskarsson ’84), Guðmundur Þórarinsson, Arelíus Marteinsson (Ingþór Jóhann Guðmundsson ’58), Jón Daði Böðvarsson.
Deila