| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « des. | feb. » | |||||
| 1 | 2 | 3 | ||||
| 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
| 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
| 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Jóhann Ólafur Sigurðsson markmaður Selfossliðsins í knattspyrnu vann í gær Sveinbjörn Jónasson í spurningarkeppni fotbolti.net. Sveinbjörn keppir fyrir hönd Grindavík og þrátt fyrir spurningar um leikmenn Grindavíkur átti Jói ekki í vandræðum með Sveinbjörn og sigraði 26-13. Með þessu sigri er Jói komin í sex manna úrslit og eðli málsins samkvæmt binda Selfyssingar miklar vonir við hann. Sævar Þór Gíslason átti upphaflega að keppa fyrir hönd Selfoss, en gat ekki mætt til leiks vegna meiðsla. Sævar Þór dró því uppá það hver myndi fylla hans skarð og upp úr hatti Sævars kom nafnið hans Jóa. Í þessu ljósi verður athyglisvert að sjá hver fer fyrir hönd Selfoss í næstu umferð. Hér að neðan má sjá spurningarnar sem strákarnir fengu. http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=86660
Frábærar fréttir úr herbúðum okkar manna í dag er einn efnilegasti leikmaður liðsins og burðarás frá síðasta tímabili Stefán Ragnar Guðlaugsson skrifaði undir þriggja ára framlenginu á samningi sínum við klúbbinn, eða til ársins 2013. Það vita allir sem fylgdust með leikjum liðsins síðasta sumar hversu góðar fréttir þetta eru enda ekki ólíklegt að þessi strákur verði eftirsóttur í framtíðinni.

Stefán Ragnar skrifar undir nýjan samning við hátíðlega athöfn að viðstöðddum þeim Guðmundi Benedikssyni þjálfara liðsins og Þorsteini Pálssyni (Steini Púlla) stjórnarmanni og fyrrum leikmanns.
.
Heimildarmenn Selfoss.org fóru ekkert út í það hvað fælist í samningnum en talið er líklegt að þar sé a.m.k. um að ræða 1500 kr. úttekt í Daddabúð, 3 nýja geisladiska í Heimsmynd og fataúttekt hjá Ödda í Maí.
Stefán Ragnar er á 19.aldursári og spilar allajafna sem miðvöðrur. Hann hefur komið hefur upp í gegnum yngriflokkastarfið hjá Selfoss líkt og flestir leikmenn liðsins.
Á dögunum kom eftirfarandi auglýsing í staðarblöðunum sem vert er að veita athygli og benda fólki á að taka 6.febrúar algjörlega frá:
Úrvalsdeildarlið Selfyssinga í knattspyrnu undirbýr sig nú að kappi fyrir átökin í Pepsideildinni í sumar. Af því tilefni að liðið leikur nú í fyrsta skipti á meðal þeirra bestu hefur verið ákveðið að efna til firma- og hópamóts laugardaginn 6.febrúar nk., til minningar um Guðjón Ægi Sigurjónsson sem lést í janúar á síðasta ári en hann var formaður meistaraflokksráðs knattspyrnudeildar Selfoss og mikilvægur hlekkur í starfseminni í kringum liðið. Stefnt er að því að gera þetta að árlegum viðburði á Selfossi.
.
Gagnlegir punktar til að vita:
- Mótið verður haldið í Iðu sem er íþróttahús Fjölbrautarskóla Suðurlands, þræl keppnis alveg.
- Það eru 5 leikmenn inná í einu þannig að það verða að vera amk 5 manns í hverjum hóp.
- Það er mæting út í Iðu kl: 10:00
- Fyrir mótið verður uppboð á leikmönnum mfl. Selfoss sem hægt er að fá í sitt lið á mótinu. Reglan er annars sú að aðeins einn leikmaður sem spilaði á íslandsmótinu árið 2009 má vera inná í hverju liði í einu.
- Til að krydda þetta ennfrekar verður að sjálfsögðu veitt ýmis verðlaun eins og fyrir bestu búningana, bestu tilþrifin og margt fleira þess háttar.
- Verð fyrir lið er 20.000 kr.
Fyrirtæki og hópar geta skráð sig til leiks í þetta mót en það öllum opið og skráning ku ganga vel. Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Sveinbirni, s. 897-7697, Tómasi, s. 699-0660 og Sævari, s. 899-0887.

Hafa ber í huga að svona djöfulsins innanhúsbolti getur tekið á þó undirritaður haldi alveg kúlinu á þessari mynd.
….
Um kvöldið verður svo styrktarball meistarflokks knattspyrnudeildar Selfoss í Hvíta húsinu á Selfossi og þá gefst stuðningsmönnum liðsins tækifæri á að ræða við leikmenn, þjálfara og aðstandendur liðsins yfir léttum kassagítartónum frá tveimur af úrvalsdeildarmönnum Selfyssinga í tónlist. Eftir miðnætti byrjar svo ballið fyrir alvöru með DJ Búna, Bjórbandinu sem munu koma fram ásamt leynigesti og það verða svo Ingó og Veðurguðirnir sem klára kvöldið. Strákarnir hvetja alla stuðningsmenn, velunnara og aðra Sunnlendinga til að fjölmenna, húsið opnað kl. 23 og kostar aðeins kr. 2000 inn og er öllum opið.
Forsala á ballið fer fram hjá Fasteignasölunni Árborgir (sama hús og TM er) og eins hjá leikmönnum mfl. karla.

DJ Búni verður snarvitlaus á græjunum og hefur ekki verið hressari síðan þessi mynd var tekin... tvisvar eins og sjá má.

Bjórbandið hefur búið til stemmingu í sama tóma herberginu og Dennis Wise náði að efna til slagsmála í og fara því létt með að gera allt vitlaust á Hvíta Húsinu (ATH: á mynd vantar Böðvar en hann var einfaldlega búinn)

Bjórbandið mætir einnig með leynigest

Ingó mætir ásamt hinum Veðurguðunum og klára þeir ballið eins og þeim er einum lagið. Líklega stærsta band landsins um þessar mundir takk fyrir.
ALLS EKKI LÁTA YKKUR VANTA ÞARNA
Babú
Á Þorrablótinu hans Kjartans Björnssonar sem haldið var um síðustu helgi var óvænt skemmtiatrið. Þar steig á svið hljómsveitin Dúkarabandið og flutti nokkur frumsamin lög og hélt í leiðinni útgáfutónleika sína. En á dögunum gáfu þeir út diskinn „Tree little roofer boys“ Á Þorrablótinu gengu svo leikmenn meistaraflokks karla í knattspyrnu um salinn og seldu diskinn fyrir þá félaga og gáfu þeir allan ágóðan, eða 2000kr per disk til knattspyrnudeildar.
Hljómsveitina Dúkarabandið skipa þeir Guðbrandur Jónsson, Gunnlaugur Óttarsson og Stefán Hólmgeirsson. Í fyrra fóru tvö fyrstu lög strákana í spilun, en það voru lögin Pípari og Gæsin, en það er Guðbrandur Jónsson sem semur lög og texta hljómsveitarinnar.
Meistaraflokkur kvenna leitar nú að jákvæðu og áhugasömu fólki til þess að starfa í kringum flokkinn. Í því fælist t.d. aðstoð við fjáraflanir, undirbúning heimaleikja og fleira.
Meistaraflokkur kvenna á Selfossi er á hraðri uppleið og eru um 20 stelpur sem æfa með liðinu.
Áhugasamir hafi samband við Þóru Margréti(694-6479, thora89@hotmail.com) eða Auði Ólafsdóttur ( auduro@intrum.is)
Öll ykkar sem teljið ykkur hafa eitthvað vit á knattspyrnu athugið að nýtt tímabil er að hefjast í tippleiknum hjá Selfoss. Það er komin áralöng hefð fyrir því að vakna snemma á laugardagsnóttum og hefja daginn með því að kíkja í Tíbra (á Selfossvelli) milli 11 og 13. Þar hittast helstu spekingar þjóðarinnar, fá sér kaffi og Guðnabakarí bakkelsi og fara yfir málin undir strykri stjórn Gissurs tippleikjafrömuðar á Selfossi.
.
Fyrir menn sem líta á 11:00 á laugardögum sem nótt og hvíldartíma þá er einnig ekkert mál að stofna bara hóp og tippa síðan á netinu. Hér skráir maður sig til leiks: www.tippleikur.is/selfoss . Þetta er svo grátlega einfalt að jafnvel Gummi Bergs gæti klórað sig fram úr þessu á innan við tveimur símtölum. Aðalatriðið er að vera með og setja 800 við seðilinn. Með því ertu að styðja við bakið á 2.flokki karla og kvenna.
.
Leikurinn er einfaldur, það eru 2 saman í liði og gildir betri seðillinn í hverri viku. Fyrir þennan vorleik hefur heyrst að hetjur eins og Sævar Gísla ætli að taka fram pennann og sé hann kominn með GRÍÐARLEGA öflugan makker með sér.
.
Formleg frétt um vorleikinn má sjá hérna fyrir neðan þessa mynd, en myndin er líklega besta mynd í sögu knattspyrnunnar á Selfossi og sýnir „Sigurvegara“ tapleiksins frá því á síðasta tipp-tímabili

Vorleikur Selfoss-Getrauna hefst laugardaginn 23. janúar. Við hvetjum alla til að skrá sig til leiks með því að mæta í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, kl. 11 - 13 á laugardaginn. Í Tíbrá hittast stuðningsmenn Selfoss á öllum aldri í skemmtilegu félagsstarfi. Við viljum að sem flestir taki þátt og hvetjum sérstaklega þá sem eru alltaf á leiðinni að slá nú til og mæta.
.
Við erum með opið hús, heitt á könnunni og bakkelsi frá Guðnabakaríi kl. 11 - 13 alla laugardaga í Tíbrá að Engjavegi 50. Þar eru jafnframt veittar allar upplýsingar um getraunastarfið og hópleikinn okkar. Einnig er hægt að skrá sig til leiks á www.tippleikur.is/selfoss
.
Munum að góður stuðningsmaður er lykillinn að góðum árangri innan vallar sem utan.
.
Með bestu Selfoss-kveðjum og von um þátttöku sem flestra.
2. flokkur kvenna og karla og umsjónarmenn Selfoss – Getrauna.
…
Þá er þetta komið fram tvisvar í sömu færslunni en eins og máltækið segir, „Oftast er góð vísa of oft kveðin“
Látið alla sem gætu haft áhuga vita af þessu og höfum svolítið öflugan tippleik núna, KOMA SVO.
Dagný P.
Karen K. – Þóra – Dagný Hróbj. – Lena Rut
Erna K.
Íris Sverris – Thelma – Anna Þ. – Þórleif
Gumma
En liðið róteraðist mikið svo, sérstaklega í seinni hálfleik, og voru allir varamenn notaðir og allar að spila svipað mikið.
Varamenn: Rakel G., Veronika, Bríet, María Björg, Guðbjörg Una, Katrín Ýr, Anna María.
Fyrri hálfleikur var nú ekkert til þess að hrópa húrra yfir, náðist illa upp spil og mikið um kýlingar hjá báðum liðum.Þó komu kaflar þar sem spilið var ágætt og uppskárum við mark frá Gummu um miðjan fyrri hálfleik. Staðan var því 1-0 fyrir Selfoss í hálfleik.
Í seinni hálfleik voru gerðar ýmsar breytingar en eins og ég sagði áður þá róteraðist það mikið. Rakel G, Veronika, María Björg, Guðbjörg, Katrín og Anna María komu inná og Karen, Dagný H, Lena, Erna, Íris og Þórleif komu út af. Seinna kom Bríet svo inn á fyrir Þóru.
Í seinni hálfleik var meira um baráttu og náðum við ágætu spili en Keflavík pressaði mjög stíft og voru ekkert að leyfa okkur að gæla lengi við boltan. Selfoss átti mörg góð færi og Gumma og Katrín með góða spretti frammi. Vörnin hélt ágætlega og var Dagný að verja mjög vel oft á tíðum í markinu. Það var svo ekki fyrr en alveg undir lok seinni hálfleiks sem Selfoss náði að koma boltanum í netið aftur eftir góðan sprett hjá Gummu alveg upp að endalínu vallarins, vinstra megin við markið, átti þá skot/sendingu sem markmaðurinn virtist grípa en missti hann á milli handanna og þar var Anna Þorsteins mætt og kom boltanum inn.
fyrsti sigur liðsins því í höfn 2-0.
Mfl kvenna mun leika æfingaleik í kvöld í Reykjaneshöllinni kl.19:00 gegn Keflavík. Síðast þegar liðin mættust fyrir tæpu ári síðan fór Selfoss með sigur 4-3 í æfingaleik.
Þetta er fyrsti leikur liðsins á nýju ári.

Vorleikur Selfoss-Getrauna hefst laugardaginn 23. janúar. Við hvetjum alla til að skrá sig til leiks með því að mæta í Tíbrá, félagsheimili UMF. Selfoss, milli klukkan 11 og 13 á laugardag. Í Tíbrá hittast stuðningsmenn Selfoss á öllum aldri í skemmtilegu félagsstarfi óháð kyni og búsetu. Nú viljum við að þú takir þátt og hvetjum sérstaklega þá sem eru alltaf á leiðinni að slá til og mæta.
Við erum með opið hús, heitt á könnunni og bakkelsi frá Guðnabakaríi frá klukkan 11 til 13 alla laugardaga í Tíbrá að Engjavegi 50. Þar eru jafnframt veittar allar upplýsingar um getraunastarfið og hópleikinn okkar en einnig er hægt að skrá sig til leiks á www.tippleikur.is/selfoss
Munum að góður stuðningsmaður er lykillinn að góðum árangri innan vallar sem utan.
Með bestu Selfoss-kveðjum og von um þátttöku sem flestra.
2. flokkur kvenna og karla og umsjónarmenn Selfoss – Getrauna.
www.tippleikur.is/selfoss / getraunir@umfs.is
Áfram höldum við að kíkja á hina hliðina á þeim sem tengjast fótboltanum á Selfossi á einn eða annan hátt. Síðast var það Bárður Guðmundsson „í GÁB“ sem svaraði og valdi hann vin sinn Sumarliða „Dengsa“ Guðbjartsson til að spreyta sig næst, en þar er á ferðinni eitthvað það gáfulegasta sem sést hafði á knattspyrnuvöllum Selfoss allt þar til Sævar Gísla fór að láta að sér kveða:

Fullt nafn: Sumarliði Guðbjartsson
Gælunafn: Dengsi
Aldur (í anda): 25 ára og ekki degi eldri! (Er annars 57ára)
Börn: Sif, Sigursteinn og Hildur
Hvað gerir þú: Er Landpóstur í dag
Hvað gerir þú ekki: Þvæ þvotta og þurka ekki af (þurrkar semsagt af?)
Hvað eldaðir þú síðast: Kalkún
Uppáhalds vefsíður: Fótbolta og veiðisíður
Uppáhalds Facebookvinur: er ekki á Facebook
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Með The Kinks
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Gömlu sveitaballahúsin í Árnessýrslu
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Led Zepperlin, en það er líklega orðið of seint.
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Engin frægur (eftir öll þessi ár hjá Símanum!!)
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Er mjög snöggur (eins og í boltanum!)
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Klípa hann í síðuna!
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: Miðframherji
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Jimmy Greaves, einn mesti markaskorari sem England hefur alið og að sjálfsögðu spilaði hann með Tottenham Hotspur
Erfiðasti andstæðingur: Líklega er það Gunnar Austfjörð, hann spilaði með ÍBA og var alltaf með hanska á höndunum þó að það væri yfir 20 stiga hiti
Ekki erfiðasti andstæðingur: Allir hinir, smá grín man ekki eftir neinum sérstökum sem ég get nefnd með nafni.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Þeir eru nokkrir, verð að nefna Kidda Gríms sem var ansi drjúgur á kantinum þ.e.a.s. ef hann gat tollað inná vellinum, var alltaf að meiðast greyið!
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Margir eru það, en verð að nefna einn sem heitir Sigbergur Sigsteinsson sem ég spilaði með í Fram 1977, get ekki sagt það hér fyrir hvað hann er eftirminnilegur!!
Sætasti sigurinn í fótbolta: 1985 þegar við unnum 3.deildina unnum alla leiki nema einn. Þá byrjaði ég aftur eftir að vera búinn að vera í hvíld í 5ár (það var nátturulega bara bilun). (eitthvað hefur þú verið þreyttur 1980!!) („,)
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: 11-0 tap á móti ÍBV 1976, ef það hefur verið einhvertíma sem maður hefur vilja hverfa ofan í völlin þá var það þarna.
Uppáhalds knattspyrnumaður: Ásgeir Sigurvins.bæði fyrr og síðar
Uppáhaldslið í enska: Tottenham Hotspur, síðan 1963 takk fyrir!
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: Magnús Jónatanson
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Það er nú erfitt að taka einn út,en Kristinn Ásgeirsson var annsi efnilegur á sínum tíma.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Guðmundur Karlsson
Besti íþróttafréttamaðurinn: Bjarni Fél
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Gaupi
Hefurðu skorað sjálfsmark: Nei, var aldrei það nálægt mínu marki til að geta skorað sjálfsmark, haha
Hvað kemur þér í gott skap: Er alltaf í góðu skapi
Ef þú myndir stranda á eyðieyju, hvaða þrjá tengda Selfoss hópnum (lið, stjórn, staff o.s.frv.) myndir þú vilja hafa með þér og afhverju: Bárð Guðm. er svo skipulagður. Matta Sigugeirs. til að sjá um að skemmta okkur og Ödda Grétas, til að veiða í matinn.
Hver var uppáhaldskennarinn þinn í skóla: Kristján, man ekki eftirnafnið (er orðinn svo gamall)
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Allir jafn góðir (ég mótmæli allur)
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Spánn, það er ekki hægt að segja England núna
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Lenti einu sinni í því að þrífa kyndikatla hjá MBF, það var alveg hræðilegt.
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: Ekki hugmynd, á ekki von að því að nýta þetta!
Bítlarnir eða Rolling Stones: Bítlarnir
Hver á að svara þessum lista næst: Þorvarður Hjaltason
Eitthvað að lokum: Sjáumst hress og kát á vellinum í sumar. Áfram Selfoss!!!
…
Þökkum Dengsa kærlega fyrir, næst fær Tobbi Hjalta það skemmtilega og krefjandi verkefni að sitja fyrir svörum.
ATH: Óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni (Babu) komin og þess má geta að myndin af Dengsa er stolin í algjöru óleyfi frá Hildi dóttir hans („,)

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



