Við íþróttavöllinn á Selfossi er lítill skúr sem Stuðningsmannavefurinn kíkti í heimsókn í fyrr í dag og kannaði stemminguna. Þar inni er flugeldasala knattspyrnudeildarinnar sem nú er í hámarki og stjórnað af þeim félögum Tomma Þórodds, Sveinbirni Más og Sævari Gísla en þeir tveir síðastnefndu eru engir nýliðar þegar kemur að flugeldasölu knattspyrnudeildarinnar á Selfossi og hafa staðið vaktina þar í fjöldamörg ár (Sævar jafnvel þó hann væri samningsbundinn einhverjum smáliðum úr Reykjavík).
.
Flugeldasalan er ein af aðal tekjulindum ársins þó ávalt sé nú reynt að hafa verðið það lægsta sem er í boði á markaðnum hér í kring og því um að gera fyrir unnendur knattspyrnunnar hér í bæ að gera sér ferð á Selfossvöll og styrkja deildina ásamt því að gefa barninu í sjálfum sér smá útrás. Í ár er boðið upp á fullt af nýjum rakettum sem voru reynsluprufaðar í fyrra við góðar undirtektir en eins er heill hellingur af tertum í boði. Fyrir þá sem finnst bæði betra þá inniheldur aðal fjölsyldupakkinn risastóra rakettu, fína tertu og ýmislegt annað skemmtilegt með í bland sem heldur krökkunum (stórum sem smáum) uppteknum mest allt kvöldið og vel það.

Hér má sjá þennan skemmtilega fjölskyldupakka samansettan, stór raketta, terta og fjölmargt fleira skemmtilegt saman í pakka sem er sá alheitasti í ár.
.

Sævar Þór sem var kostinn Íþróttamaður Árborgar árið 2009 eins og við greindum frá fyrr í dag var mun meira spenntur fyrir flugeldunum og prufukeyrslu þeirra heldur en að tala um eigið ágæti. Hann sagðist þó aðspurður vera mjög ágnægður með að vera veittur þessi heiður annað árið í röð og sagði jafnframt að líkt og í fyrra væri það allt liðið sem deildi þessu titli, enda ná menn sjaldnast árangri í fótbolta nema hafa góða meðspilara með sér.
Við þetta má síðan bæta að þessi raketta sem Sævar í þann mund að kvekja í fór upp í loft, sprakk glæsilega eins og til var ætlast og prikið lenti hálfan meter frá bíl blaðamanns Selfoss.org (sem betur fer fyrir Sævar).
.

Strákarnir voru í áramótagír uppá velli og eru þar enn með rjúkandi heitt á könnunni fyrir viðskiptavini.
Þarna verða þeir til a.m.k. 22:00 í kvöld og til 16:00 á morgun
.

Tómas er ekki eins reyndur í flugeldunum og þeir Sveinbjörn og Sævar og því mun ginkeyptari fyrir umbúðunum á pakkanum heldur en innihaldi tertunnar („,)
.

Ef rétt er munað þá er Þórshamar stærsta og öflugasta tertan sem er í boði í ár, þræl keppnis alveg ef það er ennþá í tísku að segja keppnis?
.

Eins og gefur að skilja gekk erfiðlega að fá strákana í myndatöku þar sem nóg var að gera við að selja blessaða flugeldana, eins vegna takmarkaðs áhuga á fyrirsætustörfum! (þetta seinna á auðvitað ekki við um Tómas).
.

Trikkið var að ná mynd án þess að Tommi skyggði á útsýnið en hér má engu að síður sjá nokkrar af þeim litríku bombum sem í boði eru.
.

En eins og allir vita þá er ástæða flugeldasölunnar ár hvert ekki sú að nýtt ár sé gengið í garð og ekki heldur vegna þess að Skaupið er búið, nei það er vegna þess að SirrýBjörns á afmæli 1.janúar ár hvert og núna verður hún fimmtug sem þýðir að enn meira verður sprengt („,)
Það er því alveg málið að geyma stærstu bomburnar til miðnættis annað kvöld enda erum við líka að sprengja burt heilan áratug og þ.a.l. ganga inn í nýjan.
.
Eins viljum við hjá Stuðningsmannavefnum vinsamlega benda á að flugeldasala er hugsuð sem fjáröflun fyrst og fremst! Hvort sem það er fyrir starf íþróttafélaga eða Björgunarsveita og hvetjum við því samborgara okkar að beina viðskiptum sínum í öllum tilvikum til þessara aðila frekar heldur en einkaaðila í leit að skjótfengnum gróða fyrir sjálfan sig.
.
Að lokum óskum við Selfyssingum nær og fjær gleðilegs nýs árs og þökkum hið liðna. Vonandi verður næsta ár eitthvað í líkingu við skemmtunina sem árið 2009 var hjá knattspyrnudeild Selfoss.
Þessi vefur fór ekki í loftið fyrr en eftir tímabilið í sumar og því vonumst við til þess að síðan muni vaxa jafnt og þétt á nýju ári og lesendur verði virkir í umræðunni. Það er í það minnsta stefnan og erum við mjög þakklát fyrir frábærar viðtökur það sem af er ári, þetta lofar góðu.

Með Bestu kveðju
Fyrir hönd Selfoss.org
Einar Matthías
Deila