| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « okt. | des. » | |||||
| 1 | ||||||
| 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
| 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
| 30 | ||||||
Fimm ungir og efnilegir leikmenn skrifuðu um helgina undir KSÍ samning við Selfoss. Selfyssingar hafa verið óhræddir við að gefa sínum ungu og efnilegu strákum möguleika hjá meistaraflokk og verður örugglega ekki langt að bíða þess að einhverjir af þessum strákum fái sín fyrstu tækifæri þar.
Ingvi Rafn Óskarsson er fæddur 1993 og hefur æft með U-17 ára landsliði Íslands. Ingvi Rafn var tvisvar á skýrslu hjá meistaraflokk í sumar.
Þórhallur Lárusson er fæddur 1993 og hefur æft með U-16 ára landsliði Íslands. Þórhallur kemur úr yngri flokka starfi Breiðabliks og KFR, en hann lek 9 leiki og skoraði 3 mörk með meistaraflokk KFR í sumar.
Guðmundur Karl Eiríksson er fæddur 1991og hefur tekið miklum framförum með 2. flokk, en hann kemur úr yngra flokks starfi Hrunamanna.
Óskar Guðjónsson hefur líkt og Óskar tekið miklum framförum í Knattspyrnuakademíu Íslands og með 2. flokk Selfoss. Óskar er fæddur 1992.
Reynir Óskarsson er fæddur 1994 og hefur æft með U-16 ára landsliðinu undanfarið. Hann kemur úr yngri flokka starfi KFR og spilaði 14 meistaraflokksleiki með þeim síðasta sumar og skoraði 1 mark.
Arilíus Marteinsson framlengdi samning sinn við Selfoss um helgina. Samningur hans var útrunninn og framlengdi Alli til tveggja ára. Arilíus sem er 25 ára hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil með Selfoss og í fyrra lék hann alla 22 leiki liðsins í deildinni og skoraði í þeim 5 mörk. Alls hefur Arilíus leikið 174 leiki fyrir Selfoss í deild og bikar og skorað í þeim 54 mörk.
Arilíus var einn af lykilleikmönnum Selfossliðsins sem sigruðu 1. deildina s.l sumar og var hann m.a valinn leikmaður 19. umferðar hjá fotbolti.net, er Selfyssingar sigruðu Fjarðarbyggð 0-4 fyrir austan.
Selfoss tapaði í morgun fyrir liði Víkings Reykjavík 2-1 eftir að Selfyssingar höfðu verið yfir í hálfleik. Jón Guðbrands kom Selfyssingum yfir í fyrri hálfleik og voru þeir sterkari aðilinn. Leikurinn jafnaðist svo í seinni hálfleik og skoruðu Víkingar drauma sigurmark.
Byrjunarlið Selfoss: Jói, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Jón Guðbrands, Jón Sveins, Ingþór, Henning, Gummi Tóta, Jón Daði, Arilíus og Ingi Rafn. Ingó Tóta kom í seinni hálfleik vegna vinnu sinnar og þeir Sævar Þór, Einar Ottó, Agnar Bragi og Andri Freyr voru veikir og meiddir.
Eins og áður sagði voru Selfyssingar sterkari í fyrri hálfleik, vörnin nokkuð örugg og færslur á liðinu góðar. menn voru hreyfanlegir í sóknarleik, en þó vantaði stundum að reka endahnút á sóknir. Fyrsta hálftímann voru Selfyssingar meira með boltann án þess þó að skapa sér færi á meðan Víkingar enduðu allar sínar sóknir á skoti og áttu fimm fyrstu skot leiksins, en reyndar öll fyrir utan teig.
Mark Selfoss skoraði að sjálfsögðu Jón Guðbrandsson f.v leikmaður Víkings, en Jón lék með Víkingum í fjögur ár. Eftir horn frá Inga Rafn skallaði Henning að marki og Jón Guðbrands tók boltann á lofti og setti hann utanfótar í netið. Fimm mínútum seinna átti Gummi gott hlaup og fékk flotta sendingu frá Alla, Gummi tók einn á en var óheppinn með skot sitt sem fór yfir. Þannig að staðan var 0-1 fyrir Selfoss í hálfleik.
Jói markmaður fór útaf eftir um 30 mínútna leik með bakverk og kom þá Elli inn. Gunni Borgþórs kom svo inn í hálfleik fyrir Jón Sveins sem meiddist lítillega. Gummi Tóta fór í vinstri bakvörð og Gunni Borgþórs inn á miðju.
Í seinni hálfleik áttu bæði lið ágætis marktilraunir. Besta færi Selfoss fékk Gunni Borgþórs, en þá vann Henning boltann, gaf á Ingþór sem fót upp kantinn og kom með góðan kross fyrir á kollinn á Gunna. Ef ekki hefði verið fyrir ársbirgðir af Lindu súkkulaði sem kappinn fékk fyrir auglýsingasamning, þá hefði hann líklega stokkið hærra og skallinn farið inn, en ekki yfir.
Víkingar skoruðu svo tvö mörk í seinni. Það fyrra kom eftir sendingu frá hægri kant þeirra alveg yfir á vinstri, en þaðan kom sóknarmaður á blindu hliðina á varnarmanni og skallaði boltann inn. Seinna markið var svo skot af 35 metra færi upp undir þverslá.
Alls gerði Gummi þjálfari 11 skiptingar á sínu liði. Elli og Gunni Borgþórs í fyrri hálfleik og í seinni komu eftirtaldir inn á: Árni Páll spilaði frammi og á kanti, Ingó Tóta á kanti og á miðju, Birkir Hlyns í miðverði, Tommi Kjartans í hægri bakverði, Mummi frammi, Hartmann frammi og í vinstri bakverði, Gummi Sig á kanti, Ingvi Rafn á miðju og Þórhallur spilaði frammi. Þetta er fyrsti meistaraflokksleikur Þórhalls með Selfoss og óskum við honum til hamingju með það.
Næsti leikur meistaraflokks er laugardaginn 5. des gegn ÍBV á Selfossvelli.
Næstu þrjá laugardaga mun meistaraflokkur Selfoss keppa æfingaleiki. Laugardaginn 28.nóv verður leikur gegn Víking á gervigrasinu í Víkinni sem hefst kl 11.00. Annan laugardag, eða þann 5.des verður leikur gegn ÍBV á gervigrasinu á Selfossi og hefst sá leikur líka kl 10.30. Og að lokum verður leikið gegn Keflavík í Reykjaneshöllinni laugardaginn 12. des og hefst sá leikur kl 10.00.
Selfyssingar eru búnir að leika tvo æfingaleiki undir stjórn Gumma Ben. Fyrsti leikurinn tapaðist gegn KR, en svo vannst leikur gegn Val. Gaman verður að sjá Selfyssinga í næstu þremur leikjum og ljóst að margir af ungu strákunum fá tækifæri þar.
Klukkan 14:00 í dag var tilkynnt hvernig leikjaniðurröðunin á næsta ári verður í Pepsi deildinni:
Svona lendir þetta http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=19783&Rodun=U
Við byrjum á leik gegn Fylki á heimavelli, förum í Frostaskjólið í þeirri annari og endum mótið gegn Grindavík þar sem við tökum við bikarnum („,)
Mig minnir endilega að það sé svona korter síðan ég var á Grenivík hvassviðri og kulda að fagna sigri Selfoss !

Platti var hress þegar dregið var í dag.
Annar leikur Selfyssinga á undirbúningstímabilinu fór fram í Höllinni hans Egils í gærkvöldi. Leikurinn hófst upp úr 22:00 sem verður nú að teljast óvenjulegur tími fyrir fótboltaleik á Íslandi, sérstaklega þar sem mikill hluti leikmanna beggja liða átti með réttu að vera kominn heim í rúmið sökum aldurs.
En þessi spænski spilatími hentaði þó okkar mönnum töluvert betur þar sem markvarðaþjálfarinn og tæknilegi þjálfarinn líta út alveg eins og innflytjendur frá Spáni (Þóroddur er með DNA próf í gangi og skoðun á myndum úr gömlum Kanarí ferðum frá ´70) og náðu að peppa strákana vel upp í þennan stórleik æfingatímabilsins.
Varla þarf að taka það fram að Gunnlaugur Jónsson fór mjög hljóðlega og að mestu án allar fjölmiðlaumfjöllunar frá Selfossi eftir síðasta tímabil og var þarna að stýra sýnum mönnum í fyrsta skipti gegn Selfossi. Eins á Gummi Ben þjálfari Selfoss afar sterka tengingu í Val þar sem hann spilaði í 4 tímabil.

Gummi Ben var líflegur á hliðarlínunni
Leikurinn sjálfur fer nú svosem frekar seint á spjöld sögunnar að öðrum kosti, yfir honum var ultra mega æfingaleiksbragur þar sem mönnum var róterað inn og út að vild í báðum liðum og þó nokkuð af pjökkum inná hjá báðum liðum sem þættu ekkert of gamlir á skólaballi í F.Su.
Undirritaður var frekar seinn fyrir á leikinn og hundfúll eftir að hafa tapað spurningakeppni á Liverpool spurningu! En þeir sem voru inná í liði Selfoss þá (15-20 búnar af leiknum) voru Jói í marki, Jón Sveins í hægri bak, Andri Freyr í vinstri bak, Sefán Ragnar og Birkir Hlyns í miðverði. Á miðjunni voru Henning og Gummi Tóta með Ingó og Inga Rafn á könntunum (Guðbrands sýndist mér vera nýkominn útaf). Frammi voru svo Alli og Jón Daði sem var líklega okkar sprækasti maður í leiknum og jafnframt sá klaufskasti.
Á bekknum voru (eftir minni og þekkingu): Elías, Jón Guðbrands, Árni Páll, Harti, Dolli, Gummi Sig, (Tommi bæta inní).
Þá sem vantaði voru Sævar Gísla (nýkominn úr aðgerð), Agnar Bragi (allur að koma til eftir miðvarðarlega tilraun til hjólhestaspyrnu), Einar Ottó (veit ekki), Ingþór (veit ekki), Siggi Eyberg (man ekki) og auðvitað Gumma Ben.
Í stúku voru Sævar Sig sem lýsti leiknum fyrir undirrituðum, Dagur Sig, Hilmar Hólmgeirs, Skúli Bergmann, Steini Magg, Addi Braga, Einar Karl, Tóti Ingólfs, Guðjón Bjarni, Jón Páll þjálfari Hattar, Logi Ólafs þjálfari KR, Villi Hennings, Kjartan Bjöss, fullt af fleira liði frá suðurlandi og slatti af Völsurum. Það þarf að fara taka meira fyrir hverjir mæta á leikina, sérstaklega þegar maður man ekki alveg gang leiksins („,)
En já aftur að leiknum, eins og sést hér að ofan er aldeilis reynt að teygja lopann því leikurinn var ekki sá mest spennandi sem spilaður hefur verið og undirritaður bara með sjón sem drífur yfir hálft húsið í hinni stóru Egilshöll. Strákarnir voru þó að koma flott út á köflum og voru ívið sterkari allann leikinn og hefði hæglega getað skorað fleiri mörk. Við áttum nokkur góð færi og á köflum náðist ágætt spil með stuttum sendingum manna á milli. Eftir leik voru strákarnir þó eitthvað að kvarta fyrir því að þeir hefðu stundum verið að reyna of flókna hluti en slíkt er hægt að fínpússa og bæta þegar fleiri leikir eru spilaðir.
Fyrra mark leiksins skoraði Ingi Rafn Ingibergsson frá Stokkseyri, hann gekk aftur til liðs við Selfoss frá ÍBV núna í haust og var eins og hans er von og vísa duglegur þann tíma sem hann var inná enda þindarlaust kvikindi sem er síhlaupandi, hann komst vel frá sínum leik. Seinna markið skoraði síðan Hartmann Antons, sonur Tona Hartmans (má því segja „Toni Á“ í þetta skiptið). Hann fékk fína sendingu innfyrir frá Snorra (Dolla) Snorrasyni og kláraði vel. Báðir (Harti og Dolli) komu þeir inná undir lok leiksins ásamt fleiri ungum pjökkum og virkuðu sprækir. Harti sýndi að hann er bróðir Einars Ottó með 1-2 hressilegum tæklingum og virkar til alls líklegur á næstu árum. Annars hefði Jón Daði líklega átt að skora 1-2 mörk í leiknum en hann var líflegur að vanda í framlínunni og fékk alveg dauðafæri einu sinni sem jafnvel Már Ingólfur Másson hefði klárað !
.
.
…nei ok það var ekki svo gott færi en mjög gott engu að síður.
Niðurstaðan var fínn leikur okkar manna gegn ungu liði Valsmanna og fínt svar strákanna við slæmum skell frá því í síðustu viku.

Dóri Bjöss og Tommi fóru á kostum á bekknum og átti Ómar í mesta basli með að hafa hemil á þeim.

Jón Steindór fyrirliði var temmilega sáttur við leikinn, fannst strákarnir helst til vera að reyna flækja einfalda hluti á köflum en leikurinn þó klárlega bæting frá seinni hálfleiknum gegn KR.

Gulli Jóns sagði (ekki og var ekki einu sinni spurður) eftir leik að hann væri alveg miður sín yfir þessum úrslitum og hann hefði miklar áhyggjur af þvi hvað hann væri búinn að koma sér út í með að fara frá stórveldinu Selfoss yfir í Val.
Gulli var greinilega að skoða ungu leikmennina sem hann hefur hjá Val enda yfirlýst stefna að keyra meira á þeim en gert hefur verið. Þeir eiga greinilega nokkra efnilega stráka og var t.a.m. Arnar Sveinn Geirrsson (sonur Geirs Sveinssonar handboltakappa) líflegur í leiknum og skruggu fljótur. En í lið Valsara vantaði þó allar helstu kanónurnar og því alls ekki hægt að lesa of mikið í þennan leik, ekki frekar en flesta æfingaleiki í nóvember.

Henning fékk högg á nefið í leiknum og tjónaði sig nokkuð við það þó ekki sé vitað hvað eða hvort þetta sé alvarlegt. Steini Magg var þó augljóslega mjög hugsi yfir þessu á meðan Villa frænda Hennings fannst þetta nú bara nokkuð skemmtilegt.
.
Fínn sigur á Val staðreynd sem er jákvætt sama við hvaða aðstæður er spilað
Babú
Selfoss og Valur áttust við í Egilshöllinni seint í kvöld í æfingaleik, hvorugt lið var með sitt sterkasta lið en þó gaman að sjá Selfyssinga í kvöld enda unnu þeir Valsarana 2-0 með mörkum frá Inga Rafni og Harta Tona Hatmannssyni (bróður Einars Ottó).
Frekari umfjöllun og epískar mynd(ir) eru væntanlegar hingað inn á morgun frá Babu (þ.e.a.s. mér) og eldabuskunni Tómasi.
Selfyssingar taka á móti Val í Egilshöll næstkomandi fimmtudag og er þetta annar æfingaleikur Selfyssinga fyrir komandi tímabil. Leikurinn er eins og áður sagði fimmtudaginn 19. nóvember og hefst hann á hefðbundnum Brasilískum leiktíma eða kl 21.30. Búast má við hörkuleik, en þjálfari Vals er eins og flestir vita Gunnlaugur Jónsson sem kom Selfyssingum upp í efstu deild síðastliðið sumar.
Old boys Selfoss spilaði á einu stærsta knattspyrnumóti landsins sem haldið er fyrir þennan aldurshóp. Selfyssingar gerðu jafntefli við Þrótt og KR en töpuðu fyrir Grindavík og í síðasta leik unnu þeir venju samkvæmt Víking frá Reykjavík. Strákarnir stóðu sig vonum framar og vakti þó mesta athygli áhorfenda að Óskar Arilíusson skildi vera í byrjunarliðinu. Liðsuppstillingin var að öðru leiti hefðbundin til að byrja með, eða þar til Halldór Morteins áttaði sig á því að Siggi Fannar hafði ekki skorað mark í þessu móti. Reyndar kom það svo í ljós að hann hafði ekki skorað mark síðan á eldra ári í 3. flokk. Sævar Sverris var því settur fram og skoraði hann strax tvö mörk og voru það einu mörk liðsins. Flestum öðrum leikmönnum liðsins gekk vel á mótinu, en þeir Ómar Vald og Trausti Hrafnsson toppuðu svo um kvöldið.
Enn höldum við áfram að kíkja á hina hliðina á þeim sem tengjast fótboltanum á Selfossi á einn eða annan hátt. Síðast var það Siggi Fannar sem svaraði og valdi hann Hlöðver Örn Rafnsson jafnan kendan við Bakka til að svara þessum lista næst:

Fullt nafn: Hlöðver Örn Rafnsson.
Gælunafn: Hlölli. (ertu viss?)
Aldur (í anda): 55 ára. Ótrúlegt.
Börn: Veit bara um Sverri Örn 26 ára tannlæknanema og Heiðrúnu Ernu 21 árs nema í sjúkraþjálfun.
Hvað gerir þú: Viðskiptafræðingur frá HÍ ´81. Sinni mörgum ólíkum verkefnum.
Hvað gerir þú ekki: Kann ekki á þvottavélina, er ekki tækjafrík.
Hvað eldaðir þú síðast: Grillaði ljúffengt kjöt.
Uppáhalds vefsíður: Mbl.is, M5.is og Fótbolti.net.
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Abbey Road með Bítlunum.
Uppáhalds skemmtistaður fyrr og síðar: Hollywood, konan mín heppin að kynnast mér þar.
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Sjá Kim Larsen aftur.
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Margir frægir, en síðastur í stafrófinu er Össur Skarphéðinsson.
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Mjög fljótur, vakna yfirleitt mjög snemma.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Taka strax mjög fast á honum. Þá verður hann hræddur það sem eftir er leiksins. sbr. Sigga Fannar á æfingum.
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: Varnarmaður og tengiliður.
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Var alltaf hrifinn af Helga Númasyni, tekniskur með mjög góða sendingar. Tók víti bæði með hægri og vinstri fæti. (í einu þá?)
Erfiðasti andstæðingur: Get ekki gert upp á milli Teits Þórðarsonar og Matthíasar Hallgrímssonar, leikmanna ÍA.
Ekki erfiðasti andstæðingur: Karl Þórðarson ÍA. Gekk alltaf vel á móti honum.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Erfitt að gera upp á milli Guðgeirs Leifssonar, Marteins Geirssonar og Ásgeirs heitins Elíassonar.
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Bjarni Kristjánsson, mikill markaskorari, fyrrum leikmaður Austra Eskifirði.
Sætasti sigurinn í fótbolta: Þriðji úrslitaleikurinn í 5. fl. Íslandsmótinu 1966 við FH, sem við Framarar unnum á Melavellinum.
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Jafnteflisleikurinn við KR árið 1978 í Reykjavík, þegar við Austramenn vorum 2-0 yfir þegar 8 mínútur voru eftir. Eysteinn Jónsson dómari gaf KR víti og aukaspyrnu og KR jafnaði. Þetta kom í veg fyrir að Austri færi upp í efstu deild. Einnig að hafa ekki komið inn á sem varamaður í leik við Real Madrid í Evrópukeppninni 1974.
Akureyri (Þór), Eskifjörður(Austri), Reykjavík(Fram)… hefur þú aldrei þjálfað fyrir vestan: Það var einu sinni haft samband við mig frá Ísafirði, en þá var ég búinn að ráða mig annað.
Uppáhaldslið í enska: Liðið sem leikur skemmtilegasta fótboltann, Arsenal.
Uppáhalds knattspyrnumaður: Patrick Viera, mikill baráttumaður og gefst aldrei upp.
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: Arnar Guðlaugsson, pabbi Ásmundar Fjölnisþjálfara.
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Erfitt að gera upp á milli Stefáns Ragnars, Jóns Daða og Guðmundar Þórarinssonar, allir mjög efnilegir. Siggi Fannar var mikið efni, en hætti of snemma, því miður. (Siggi er ennþá mikið efni)
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Sunnlendingar kunna ekki að spila gróft. Einar Jónsson var ekki grófur, en spilaði fast.
Með hvaða íslenska liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: Auðvitað Valur Reykjavík. (allt opið varðandi KR semsagt? )
Besti íþróttafréttamaðurinn: Hrafnkell Kristjánsson, kemur vel fyrir.
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Hörður Magnússon, of hlutdrægur.
Hefurðu skorað sjálfsmark: Hvernig spurning er þetta? Auðvitað ekki!
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Þór Vigfússon til að stytta mér stundir með frásögnum sínum, Sigmund Stefánsson til að vinna hann í hlaupum og eiginkonuna til að elda, þvo o.fl. fyrir mig.
Hvað kemur þér í gott skap: Er alltaf í góðu skapi.
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Föstudagurinn, vegna þess næstu tveir dagar eru frídagar. (haha helgarnar slíta vinnuvikuna svo í sundur)
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Spánn, heitt land og góðir í fótbolta.
Segðu klassíska setningu úr íslenskri kvikmynd: Horfi nánast aldrei á bíómyndir.
Hvert er versta/leiðinlegasta starf sem þú hefur unnið: Klóakvinnan hjá Reykjavíkurborg, þegar ég var 18 ára. (Já maður gæti trúað að allt sé jákvætt eftir það)
Hver á að svara þessum lista næst: Bárður Guðmundsson TM maður. (Hann hringdi nú í mig um daginn og kynnti sig sem Bárður í GÁB)
Spurning á næsta viðmælanda: Hvernig í ósköpunum getur þú haldið með Tottenham?
Eitthvað að lokum: Sigurður Fannar spurði mig hvort væri betra lið Fram eða Selfoss. Í dag er Framliðið mun betra, gæti breyst næsta sumar.
…
Um leið og Hlölla….(nei það passar enganvegin) Hlöðveri er þakkað kærlega fyrir er rétt að benda á að óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni komin. Næst fáum við Bárð í GÁB til að sýna á sér hina hliðina.
Babú

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



