| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| nóv. » | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
Opið alla laugardaga í Tíbrá milli 11 og 13. Það mæta allir helstu spekúlantar bæjarins og spá í málefni líðandi stundar, knattspyrnuna á Selfossi, drekkar kaffi og borða hnossgæti frá Guðnabakaríi. Já og svo tippa sumir á enska boltann.
Mest athygli hefur vakið að að Babú mætir ekki en hann hefur mest náð 6 réttum og ekki sést í Tíbrá á laugardögum síðan Selfoss var í 2. deild.
…að Kjartan Björns hyggist halda hjartnæma ræðu á Herrakvöldi í kvöld.
…að Óskar Sig ætli alls ekki að gera slíkt hið sama (“,)
…að Tommi Þórodds hafi farið í kerfi þegar hann frétti af lokun McDonalds. “Svo góðir kokkar þar” er haft eftir Tomma, sem nú hyggst opna nýjan stað í kjölfar þessa, Tomma Hamborgara!!
…að Sævar Gísla sé meiddur, Sveinbjörn Brands sagði honum að taka því rólega á næstunni. Af þessum sökum verður blessunarlega ekkert stripp á Herrakvöldi.
…að Leó Árna hafi skorað á Má Más á skallatennis á miðnætti í kvöld á Hvíta Húsinu.
…að Elvar Gunn ætli sér á gott trúnó með Gumma Ben fyrir 23:00
…að Einar Bárða hyggist kaupa restina af malarvellinum í kvöld.
…að Sævar Sig muni taka við Kórnum á Selfossi (þar sem að sr. Gunnar er farin)
…að Ingó muni ekki vera á hinum 4 metra langa Gestalista
…að Eyberg hafi gengið á berg með dverg við Kiðjaberg
…að Guðbrandsson ætli loksins að sleppa af sér beislinu og fá sé jafnvel nokkra kalda
…að Valli Reynis ætli að fá sér einn Thule og gera allt vitlaust
…að Jói mark muni koma við í Guðnabakaríi áður en hann komi á herrakvöldið
…að Gísli Bjöss verði með Túlk með sér upp á sviði í ár
…að Elli muni vera með Herbalife sölubás á annari hæð í Hvíta
…að Ingþór hafi skellt sér í aflitun fyrir kvöldið
…að Einar Glans verði uppi með stand.
…að Einar Ottó sé kominn með Sýn
…að Hjörtur Hjartar hafi losað vig við 1,5 kíló í vel heppnaðri klósettferð á þriðjudaginn
…að Vignir Egill verði með beina lýsingu frá Herrakvöldinu á Suðurland FM
Eins og líklega flestir knattspyrnuáhugamenn vita þá var Guðmundur Benediktsson ráðinn þjálfari mfl. karla á dögunum, af því tilefni fengum við Gumma til að fara létt yfir þessi vistaskipti sín og segja okkur aðeins frá sjálfum sér…
Bara svona til að byrja með, ef við drögum fótboltann aðeins frá, hver er maðurinn?
Guðmundur Benediktsson, 35 ára Akureyringur sem býr í vesturbæ Reykjavíkur ásamt þremur börnum og ótrúlegri konu sem hefur leyft mér að leika mér í fótbolta öll þessi ár. Ólst upp á Akureyri með þriggja ára viðkomu í Noregi þar sem faðir minn stundaði nám. Flutti tæplega 17 ára til Belgíu til að leika knattspyrnu en hrökklaðist heim aftur með ónýt hné um tvítugt. Kom í höfuðborgina til að spila fótbolta fyrir KR og lék með þeim á árunum ´95 -´05, skrapp þá yfir lækinn til að spila fyrir Valsmenn um fjögurra ára skeið. Lokaði svo Vals-KR hringnum með því að spila með KR síðasta sumar.
Hvernig leggst þessi nýji starfvettvangur í þig, varstu lengi búinn að ganga með það í maganum að gerast þjálfari? t.a.m. eitthvað búinn að mennta þig í þjálfarafræðum hjá KSÍ?
Leggst einkar vel í mig, ákaflega spennandi tímar framundan hjá Selfossi. Þjálfara-veiran hefur blundað í mér um nokkurt skeið og t.a.m. byrjaði ég að taka þjálfara-námskeið fyrir nokkru síðan. Er núna búinn með þrjú stig, fer á það fjórða í nóvember, svo heldur þetta bara áfram koll af kolli.
Hvernig kom það til að þú endaðir á Selfossi og hefur þú fylgst eitthvað með bæði uppbyggingu Selfossliðsins undanfarin ár eða bara 1. deildinni yfir höfuð?
Um mitt sumar átti ég nú ekki von á því að ég yrði næsti þjálfari Selfoss, heyrði reyndar fyrst af því í fjölmiðlum að félagið hefði áhuga á að ræða við mig varðandi þjálfarastöðuna. Þeir höfðu svo samband í kjölfarið og úr varð að gengið var að samningaborðinu. Varðandi uppbygginguna á Selfossi þá hefur hún ekki farið framhjá neinum knattspyrnuáhugamanni síðustu ár. 1.deildinni hef ég ekki náð að fylgjast nógu vel með síðustu ár en hef þó séð allmarga leiki Selfoss-liðsins á DVD frá síðustu leiktíð.
Þetta fer að verða árleg spurning, en það er óhætt að segja að þú ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í þínu fyrsta þjálfaraverkefni þegar þú tekur við búinu af Gulla, varstu lengi að velta þessu tilboði Selfoss fyrir þér og ráðfærðir þú þig eitthvað við aðra í bransanum?
Hef ekki trú á að það sé gaman að ráðast á þessa lægstu garða sem allir eru að tala um. Verkefnið er ákaflega ögrandi, metnaðurinn er mikill í leikmönnum og öllum þeim sem að liðinu koma. Þeir þjálfarar sem hafa verið við völd síðustu ár hafa unnið mikið og gott starf, væntingarnar til mín eru því miklar og þannig líður mér vel. Auðvitað tók tíma að taka ákvörðun en hún var gerð eftir að hafa farið yfir málin með fólki sem ég treysti, bæði úr bransanum sem og fólki fyrir utan bransan.
Ekkert endilega með mið af fótbolta, nefndu þrjú atriði sem þér dettur fyrst í hug þegar þú hugsar um Selfoss?
Bílar, rakari og Einar Bárða (innsk. blm. – úff, sakna þess tíma er Mjólkurbúið var það fyrsta sem tengt var við Selfoss)
Nú sagði Gróa á Leiti í sumar að Valsmenn hefðu reynt að fá þig sem þjálfara, náði það eitthvað lengra en að þeir bæðu KR um leyfi til að ræða við þig og voru önnur lið með svipuð tilboð í boði núna í haust?
Hún Gróa fréttir nú ýmislegt, KR og Valur sátu víst einhverja samningafundi um mig en niðurstaðan var sú að ekki náðist samkomulag milli liðanna. Í haust höfðu nokkur lið samband en ævintýrið fyrir austan var alltaf númer eitt hjá mér og því ánægjulegt að það varð niðurstaðan.
Var ákvörðunin erfið að yfirgefa KR?
Já að sjálfsögðu, en mér fannst þetta bara vera rétti tíminn til að snúa mér að öðrum hlutum.
Nú varstu ef ég man rétt um tíma aðstoðarþjálfari undir Willum Þór hjá Val, fékkstu mikið að leggja til málana þar og er það reynsla sem þú telur að komi til með að nýtast þér í þjálfuninni?
Það var reyndar hjá KR tímabilið 2003. Að fá að vinna með einum besta þjálfar Íslands er að sjálfsögðu frábær reynsla sem á eftir að nýtast mér mikið, þess má líka geta að Willum hefur verið þjálfari minn í sjö af siðustu átta tímabilum og það er ekki tilviljun að menn geti unnið svo lengi saman.

Undanfarin ár hefur nýr þjálfari á Selfossi „þurft“ að taka að sér ansi sérstakan hóp manna sem fylgja liðinu eins og skugginn og hafa undanfarin ár skilað af sér ómetanlegu starfi sem aðstoðarþjálfari (Ómar), tæknilegur ráðgjafi (Tommi), sjúkraþjálfari (Trausti) og liðsstjóri (Óskar). Þekkir þú eitthvað til þessara furðulegu manna fyrir komu þína á Selfoss?
Sérstakur er þessi hópur örugglega eins og flestir sem starfa í kringum fótbolta, allt eru þó þetta góðir menn sem hafa unnið ómetalegt starf fyrir boltann á Selfossi og ég hlakka mikið til að vinna með þeim. Ómar þekki ég nú úr gamalli tíð, Tomma kannaðist ég líka aðeins við í gegnum boltann en Trausta & Óskari á ég eftir að kynnast betur, og reyndar þeim öllum þar sem að við eigum eftir að eyða dágóðum tíma saman næstu misseri.
Sérðu fyrir þér að segja upp starfi líkt og forveri þinn ef þeir taka upp á því næsta haust að klippa sig í stíl við þig? („,)
Hef séð myndir af þeim félögum í gervi Gulla og fannst það bráðfyndið, á ekki von á því að segja upp starfinu ef að þeir detta í GB gervið.
Mjög skömmu eftir að Selfoss komst upp deildi Hjörvar Hafliðason á RÚV þeirri visku sinni með alþjóð að ef Selfoss ætti að eiga séns í úrvalsdeild þá þyrfi liðið að kaupa leikmann í allar stöður á vellinum. Seinna dró hann í land og sagðist hafa átt við einn í hverja stöðu (mark, vörn, miðja og sókn). Hvernig metur þú þetta, þarf að styrkja liðið mikið og hvernig þá helst?
Hjörvar er ákaflega skemmtilegur fýr og finnst gaman að tala. Klárlega þarf að styrkja liðið eitthvað og þá helst með smá reynslu. Hún er hinsvegar ekki auðfundin, við höfum ekki fundið réttu mennina fyrir Selfoss ennþá en það munu menn bætast við. Planið er þó að taka menn sem að bæta liðið, ekki bara fá menn til þess að fá menn.
Sérðu fram á að allir sem spiluðu með félaginu í sumar verði áfram á næsta ári?
Á ekki von á öðru og vona það innilega, það á þó eftir að ganga frá einhverjum leikmönnum en það fer vonandi að leysast á næstu dögum eða vikum. Líklega verða þó Gulli & Hjörtur ekki með!
Hvenær byrjar æfingatímabilið og hvernig er planið ca. yfir háveturinn?
Æfingatímabilið hefst mánudaginn 2.nóvember næstkomandi.
…
Þar höfum við það, ljóst að það eru spennandi tímar framundan þó nú taki við lengsta undirbúningstímabil í heiminum. Að lokum þakka ég Gumma fyrir spjallið, ekki ólíklegt að við hér á Selfoss.org komum til með að heyra í honum þegar tilefni þykir til. Sjálfur er ég farinn að leita að takkaskónum til að vera tilbúinn 2.nóv í fyrstu æfingu Selfoss sem úrvalsdeildarklúbbs, af þeirri æfingu ætlar undirritaður klárlega ekki að missa af.
Selfoss.org – Babú
Nú er myndatökumaðurinn okkar hann Matthías Ægisson að framleiða diska með öllum mörkunum úr síðustu sjö leikjum sumarsins. Ásamt öllum mörkunum verða myndir frá fagnaðarlátunum þegar liðið fór upp og eins viðtöl við leikmenn. Samtals eru þetta 22 mörk sem Selfossliðið skoraði í þessum síðustu leikjum. Fagnaðarlætin eru auðvitað ógleymanleg og eins eru viðtölin mjög skemmtileg. Hægt er að panta diskinn með því að senda tölvupóst á netfangið tommi@talnet.is og kostar diskurinn 3000 kr, en helmingur af andvirði disksins rennur til knattspyrnudeildarinnar.
Fótbolti.net var með létta yfirferð yfir leikmannamál allra liðana sem koma til með að spila í úrvalsdeild á næsta ári, hverjir eru komnir, hverjir eru farnir, hverjir koma úr láni og hvaða leikmenn eru samningslausir.
Það sem helst er áhugavert þarna er að það eru nú þó nokkrir bitar á markaðnum ennþá sem hægt væri að skoða án þess þó að vitað sé af nokkrum einasta áhuga frá Selfossi á einum einasta leikmanni. Gummi Ben vill eðlilega sjá hvaða lið hann hefur í höndunum áður en hann fer að styrkja það. Vonandi verður það bara ekki of seint hjá okkur því að lið eins og ÍBV, Haukar, Grindavík og fleiri eru klárlega að styrkja sig eða hyggjast gera það.
Uppselt er nú á Herrakvöld knattspyrnudeildarinnar sem fram fer í Hvíta húsinu föstudaginn 30. október. Síðasti miðinn var greiddur í hádeginu í gær, mánudag. Alls voru seldir 220 miðar í ár og stefnir því í stærsta Herrakvöld frá upphafi. Það er Hlöðver Örn Rafnsson sem hefur yfirumsjón með Herrakvöldinu. Veislustjóri kvöldsins er Kristinn Kjærnested og ræðumaður kvöldsins er Samúel Örn Erlingsson. Það er svo veitingastaðurinn Menam sem sér um matinn á Herrakvöldinu.

- mynd stolið frá Leó Árna
Fullt nafn: Sigurður Fannar Guðmundsson
Gælunafn: Sigurður Eff annar
Aldur (í anda): 45 (svekkjandi öruggglega að missa svona af einum áratug ! )
Börn: Tvö börn – Guðmundur Bjarki 10 ára og Þóra Björk tæplega tveggja ára
Hvað gerir þú: Ég reyni að sinna skyldum mínum.
Hvað gerir þú ekki: Dansa djass (ættir að prufa þetta er massa gaman)
Hvað eldaðir þú síðast: Lambalundir, pönnusteikar með saladi og kartöflum…nammi namm.
Uppáhalds vefsíður: Selfoss.org, fotbolti.net, kylfingur.is, tonlist.is
Uppáhalds Facebookvinur: Hemmi Gunn, alltaf svo jákvæður.
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Róbert bangsi
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Gjáin – þar gerðust ævintýr um hverja helgi. (já burt með þessar bækur, Gjáin er kráin)
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Búin að sjá U2 og það var alltaf draumurinn…
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Sr. Gunnar Björnsson, mjög kærleiksríkur maður. (KNÚÚÚS)
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: spikk og span á 30 mín – er tempó jaski.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: með því að skjóta með tánni á nærstöng, þegar síst skyldi.
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: framherji
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Diego Armando Maradona, ég var og er eldheitur aðdándi þess mikla kappa.
Erfiðasti andstæðingur: Ómar Valdimarsson er klækjarefur, erfitt að fara framhjá slíkum mönnum.
Ekki erfiðasti andstæðingur: Orri Smárason, auðvelt að vippa yfir hann.
Fyndnasta moment tengt Selfoss liðinu (þjappa/í leik): þegar Valli Reynis sagði við dómarann sem var að gefa honum sitt annað gula spjald, að hitt spjaldið hafi verið á Gaua Tobba, og dómarinn(Gunnar Þórðarson) tók það gott og gilt, trúði ekki slíkri lygi upp á Valgeir, sem er mjólkurfræðingur eins og Gunnar. Valli slapp, en fékk síðan sitt þriðja gula spjald tíu mínutum síðar og þar með rautt.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Hér ber að þakka óteljandi stoðsendinum frá þeim Stebba Hólmgeirs og Gaua Tobba. Utan vallar eru það Leó Árnason, Tómas Þórodsson og Elvar Gunnarsson sem hafa reynst ráðagóðir og skemmtilegir samstarfsmenn.
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Félagi minn í gegnum yngri flokkana Gunnar Valgeir Reynisson var mikill baráttujaxl og skemmtilegur innan vallar sem utan.
Sætasti sigurinn í fótbolta: Síðasti sigurinn er alltaf sá sætasti. (jakk klisja)
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Að hafa misst keppnisáhugann of snemma.
Uppáhaldslið í enska: Arsenal (samhryggist)
Uppáhalds knattspyrnumaður: Diego Armando Maradona
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: Gylfi Þór Gíslason kenndi mér margt.
Afhverju er orðið nótt alltaf í öllum textum frá þér (spurning frá aðdáanda): Nóttin er í textum mínum tákngervingur hins óþekkta/óræðna. Í nóttinni er meira umburðalyndi, þar er pláss fyrir alla heimsins drauma. (Vá)
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Sævar Þór var mikið efni – sem hefur ræst úr. Guðmundur Þórarinsson, Jón Daði Böðvarsson og Stefán Ragnar, allt efni í atvinnumenn.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Gylfi Sigurjóns, tæklandi um allan völl með báða fætur á undan sér.
Með hvaða íslenska liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: Víði Garði, það segir sig sjálft. (já það segir sig nokkuð sjálft)
Besti íþróttafréttamaðurinn: Gummi Ben
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Adolf Ingi áberandi lélegastur. (hvað meinar þú? Sjáðu, bara, frábær)
Hefurðu skorað sjálfsmark: nei (piff, svona kallar sem skila sér aldrei aftur)
Hver var með furðulegustu venjurnar (hjátrú) fyrir leik af gömlum hetjum Selfoss: Það verður að vera sú undarlega venja Sævars Sverris að spila með mynd af Sigga Reyni, bróður sínum innan undir legghlífunum. (hver hefur ekki spilað með mynd af honum innan undir legghlífunum?)
Hvor nær Skúla Má betur, Skúli sjálfur eða Már Más: Már fullkomnar Skúla = Skúli Már (kjaftæði, sjáðu bara)
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og afhverju: Stebba Hólmgeirs - til að byggja yfir okkur hús og sjá til þess að þakið haldi vatni.(skjól) Tona Hartmanns svo að hann gæti verkað og skorið kjötið sem við myndum veiða.(matur) Kjartan Bjöss svo hann geti klippt mig og haldið þorrablót og tónleika fyrir mig.(skemmtun)
Riff Redhead eða Poppins Flýgur: Poppins Flýgur, engin spurning. (er ekki hægt að fá sameiginlega come back tónleika…í Gjánni)
Í hverju ertu bestur, fótbolti, söngur eða golf: Ég alla vega afskaplega gaman af þessu öllu, en ætli ég sé ekki flinkastur í golfi í dag.
Hvað kemur þér í gott skap: Súrefni í lungun dugar mér, er frekar geðgóður maður.
Hver var uppáhaldskennarinn þinn í skóla: Erlingur sögukennari var eftirminnilegur. (Sögulegur alveg)
Uppáhalds barnaefni í æsku: Þeir kumpánar Tómas og Jens – Tommi og Jenni. (Tommi Þórodds?)
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Þriðjudagur, þá er lægð yfir hugmyndum og framkvæmdagleði. Það er margsannað. (hver mannsbarn veit að þriðjudagur á ekki brake í mánudaga)
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Argentína í fótbolta, Bandaríkin að öðrum kosti.
Horfa á Liverpool leik með Elvari Gunn eða ekki með Elvari Gunn (“,): Guð hjálpi mér að horfa með honum þessa dagana. (of kátur meinar þú?)
Segðu klassíska setningu úr íslenskri kvikmynd: „Þungur hnífur“
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Fann mig ekki fullkomnlega í hlutverki athafnamannsins. Leiddist hvað var rólegt.
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: „Er giftur – látið mig vera – það skráði mig einhver annar hérna inn.“ (pottþétt Leó, Tommi eða Elvar)
Hver á að svara þessum lista næst: Hlöðver Örn Rafnsson
Spurning á næsta viðmælanda: Hvort er betra lið Selfoss eða Fram ?
Eitthvað að lokum: Myndir þú nenna að horfa í spegil ef það væri engin spegilmynd ? (já já)
…
Þá þökkum við Sigurði Fannari kærlega fyrir. Óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni (Babu) komin. Næst fáum við Herra Herrakvöld Selfoss Hlöðver Örn Rafnsson til að sýna á sér hina hliðina og er það væntanlegt öðruhvorumegin við herrakvöldið.
Endilega tjáið ykkur í ummælum ef þið hafið einhverju við hina hliðina á Sigga Fannari að bæta!
Babú
Eins og fram kemur á heimasíðu Árborgar þá hafa þeir gengið frá endurráðningu á Adda Braga sem mun stýra liðinu áfram næsta sumar.
Addi hefur þjálfað liðið undanfarin tvö ár en liðið hefur undir hans stjórn endað í 3.sæti í riðlakeppni 3.deildar bæði árin ásamt því að vinna C-deild Lengjubikarsins síðasta vor.Stefnan er auðvitað að komast í úrslitakeppnina og verður gaman að sjá hvort eitthvað af strákum úr Selfoss hópnum verði með Árborg á næsta ári, en samstarf hefur verið milli klúbbanna undanfarin misseri. Tóti Snorra æskuvinur Adda og margreynd hetja úr Árborgarliðinu ætlar hinsvegar að einbeita sér að því að koma sér í form og spila með liðinu næsta sumar en hann hefur þjálfað liðið ásamt Adda.
Þess má svo til gamans geta að Addi Braga er einn af stofnendum Árborgar og hefur ætíð verið mjög virkur í starfi klúbbsins, hvar sem svo í heiminum hann hefur verið og því við hæfi að hann sé við stjórnvölin á tíunda ári klúbbsins. En skrifað var undir samninginn á bóka- og skjalasafni félagsins (skv. fréttinni) en þessa dagana er unnið að ritun bókar um sögu Árborgar í tilefni af 10 ára afmæli félagsins á næsta ári.
Að lokum viljum við vinsamlega biðja þá sem vissu af því að Knattspyrnufélagið Árborg ætti bóka- og skjalasafn að segja frá því í ummælum við þessa frétt. Eins má endilega koma inn á hvað Gummi Garðar er kjánalegur á þessari mynd sem var snyrtilega stolið af vef Árborgar.
Þeir Jón Daði Böðvarsson og Steinar Sigurjónsson hafa verið valdir til að æfa með landsliði Íslands. Jón Daði, sem er fæddur árið 1992 mun æfa með u-19 ára landsliðinu, en áður hefur Jón Daði leikið með u-17 ára landsliði. Jón Daði lek Steinar, sem er fæddur árið 1994 hefur áður æft með u-16 ára landsliðinu.
Strákarnir æfa á laugardag í Kórnum og á sunnudag í Egilshöll. Þjálfari u-17 árar landsliðsins er Gunnar Guðmundsson og þjálfari u-19 ára landsliðsins er Kristinn Rúnar Jónsson.
Visir.is birti í morgun viðtal við Gumma Ben þar sem hann talar um að það sé verið að vinna í leikmannamálum Selfoss og góðir hlutir gerast víst hægt. Greinilegt er að hann ætlar ekki að kaupa bara leikmenn til að kaupa eins og mönnum hættir oft til heldur aðeins að fá þá leikmenn sem hann telur okkur vanta.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



