Selfoss.org

Það eru ekki alltaf jólin…
Annað árið í röð voru stelpurnar bókstaflega grátlega nálægt því að tryggja sér sæti í efstu deild kvenna! Núna lutu þær í lægra haldi fyrir Þrótturum 3-1 í vægast sagt dramatískum leik því þessar lokatölur segja sannarlega ekki alla söguna.

Hér má sjá umfjöllun fótbolta.net um leikinn og hérna má svo sjá viðtal við Helenu Ólafs sem segir eiginlega allt sem segja þarf.

Liðið var algjörlega frábært í allt sumar og átti sannarlega skilið að fara upp enda var þetta aðeins annar tapleikurinn á þessu tímabili.

Við gerum þennan leik líklega betur upp bráðlega og svo verður auðvitað farið betur yfir tímabilið í heild við tækifæri hér á orginu.

Það þarf svo líklega ekki að taka það fram að strákarnir lutu í lægra haldi fyrir Valsmönnum á mánudag og má sjá snubbótta umfjöllun mína á fótbolta.net hérna og ögn hressari textalýsingu hérna.

Deila

Nú þurfa stelpurnar stuðning!
Þá er komið að seinni leik Selfosskvenna gegn Þrótti um laust sæti í úrvalsdeild að ári. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 1.september á þeim skemmtilega tíma 17:30 á Valbjarnarvelli sem er í Laugardalnum.

Fyrri leikur liðanna lauk með jafntefli 1-1 í spennandi leik. Ljóst er að ef stelpurnar fara upp í úrvalsdeild skrifa þær í sögubækur knattspyrnunnar á Selfossi og það er eitthvað sem þú, kæri Selfyssingur, vilt ekki missa af !

Við hvetjum því alla Selfyssinga til þess að gera sér leið í bæinn og styðja við stelpurnar í þessari mikilvægu baráttu!

Selfossliðið fagnar / Mynd-Inga Heiða

Ef þú ert Selfyssingur gef’mér klapp!

Deila

Spekingur andstæðinganna – Valsmenn
Nú liggur mikið við og mikið að gerast hjá andstæðingum okkar í næsta leik, Völsurum. Það er ljóst að þörf er á spekingi andstæðinganna fyrir þennan leik og höfðum við því að sjálfsögðu samband við skemmtilegasta speking andstæðinganna, heiðursmanninn Heiðu í Dal sem ætti að vera Selfyssingum að góðu kunnur enda legend á hinni sálugu síðu Fyrstudeildarfjélagsins sem var hip og kúl er Selfoss lék í þeirri deild.

Heiða í Dal kemur m.a. inn að stjórastaða Vals sé stærri en Selfoss sem er auðvitað bull, eins reynir hann að segja Selfyssingum til þegar kemur að því að versla í Pullaranum án þess að svo mikið sem minnast á að auðvitað kaupir maður bara breiðloku þar og auðvitað er svo þriggja klúta fyrirlestur um stöðu félagsins í dag, klárlega þess virði að renna yfir þetta.

Sökum leti er oftast hent fram mjög svipuðum spurningum í þessum dagskrárlið, en spurningum um það hvernig stemmingin sé hjá Valsmönnum á næstum ekki við núna!! Hvað er eiginlega að gerast hjá þínum mönnum þessa dagana og hver er þín skoðun sem almenns aðdáanda á

…Gulla Jóns þjálfara

…Berki fyrverandi formanni knd

…þessari uppsögn fjórmenninganna í stjórn Vals?

Ég held, vona og trúi að hinn almenni Valsmaður vilji sjá Gunnlaug Jónsson áfram í brúnni hjá Val. Í fyrra varð óþarfa fjaðrafok í fjölmiðlum þegar hann ákvað að hætta með lið Selfoss til að taka við einu af stóru störfunum í íslenskum fótbolta (með fullri virðingu fyrir Selfossi og öðrum liðum), og gefið  var út að þessi ráðning væri ekki einnar nætur tjöldun. Markmið Vals hlýtur að vera að byggja lið sem er hæft um að gera atlögu að titlum ár eftir ár, og til að það sé hægt verður að byggja umgjörð í kringum það sem segir Ungir fótglímumenn – hjá Val er best að vera.

Það gefur ekki góð skilaboð út á við að reka og ráða þjálfara eftir úrslitum síðustu umferðar. Því miður hefur ára óþolnmæðis vomað yfir Hlíðarenda undanfarin ár, og margir búnir að týna tölunni yfir fjölda þjálfara liðsins. Það er mín trú að það versta sem hægt væri að gera í stöðunni væri að reka Gulla og ráða einhvern „big shot“ til að taka stjórnina. Það gæti vel verið að Guðjón Þórðar eða Ron Atkinson myndi koma með titilinn 2011 á Hlíðarenda, en við hljótum að vera að líta til þess að vilja hafa mann sem byggir upp lið sem gerir atlögu að titlinum 2011, 2012, 2013 og svo framvegis.

Með uppsögn stjórn knattspyrnudeildar þá veit ég eiginlega ekki hvað skal segja. Mér finnst fnykur af þessu öllu saman, og sérkennilegt að stjórnin virtist koma fram af heilindum alveg fram á síðustu stundu. Til dæmis bauð formaður hennar upp á guided tour um Hlíðarenda í vikunni, svaraði spurningum æstra aðdáenda á spjallborði og virtist vera að bera á sárin sem opnuðust með fréttaflutningi RÚV í byrjun vikunnar. Svo allt í einu er 80% stjórnarinnar farin með reyk og látum og eftir standa spurnignarnar.

Nú ríður á að fá sanna Valsmenn inn í stjórnina sem vinna sína vinnu eins og stjórn á að gera – ekki í framlínunni og einbeita sér að því að skapa framkvæmdastjórum félagsins það vinnurými sem þeir eiga skilið. Nú þurfum við að halda áfram að búa til það sem kynnt var fyrir einu ári síðan – knattspyrnudeild karla sem laðar að þá efnilegustu (við komum ekki úr stæsta póstnúmeri landsins og erum ekki með Breiðabliks kalíber af ungum iðkendum), starfar eftir kjörorðum sr. Frikka og býður ekki í allt sem hreyfist eins og loðað hefur við Knattspyrnufélagið Val.

Þetta var nú alveg þriggja klúta ræða, er það ekki?

Fyrri leikurinn á Vodafone vellinum var hörkuleikur sem þó endaði vel fyrir þína menn, hvaða leikmaður Selfoss myndir þú segja að væri líklegastur til að setja strik í reikninginn hjá Völsurum í þessum leik?

Mér hefur fundist Yao-Yao ansi sprækur í þeim klippum sem vinir okkar RÚV hafa verið að sýna mér, og eins aukaspyrnur yngri Veðurguðsins þarna verið stórhættulegar, Gummi heitir hann það ekki? Ég er annars að vona að einu strikin sem Selfoss setur í reikning Valsmanna verði þrjú strik í stigatöfluna Valsmegin

Hver í Valsliðinu hefur komið þér mest á óvart í sumar?

Ég verða að setja að þetta er eitt furðulegasta tímabil sem ég hef lifað. Eilífar hræringar og mannabreytingar í glugganum, sumir að spila betur en í mörg ár og aðrir gert í brók. Mér finnst Kjartan Stullu búinn að eiga besta tímabilið sitt í nokkur ár, Haukur Páll er eins og ferskur vindur inn á miðjuna og er verðugur arftaki Bjössa þar. Stefán Eggerts í bakverðinum búinn að vera góður og Jón Vilhelm er að koma sterkur inn núna eftir meiðslatímabil.

Ég verð held ég samt að segja að sá í kringum Valsliðið sem er búinn að koma mér mest á óvart er hinn almenni aðdáandi. Hann hefur farið mikinn á spjallborðum og kaffistofum eftir tapleiki, en horfið eftir sigurleiki. Hann er búinn að gleyma öllu sem talað var um fyrir mót um uppbyggingu á Hlíðarenda, því að búa til nýtt lið og þá staðreynd að Gulli Jóns tók við andlega gjaldþrota meistaraflokki. Margoft í sumar er ég búinn að spyrja mig að því á hverju menn áttu eiginlega von fyrir mót? Héldu menn að lið með 5-6 nýja byrjunarliðsmenn myndi hlaupa heim með dolluna? Evrópusæti?

Skil þetta ekki alveg, enda er það ekki enduruppbygging í mínum huga að ætlast lið þess að ungur þjálfari byggi Róm á einum degi.

Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?

Besti leikmaður Vals í ár og vonandi næstu tíu ár er Haukur Páll Sigurðsson. Púnktur.

Hvar liggja helstu veikleikar Valsara, það má alveg segja frá þeim, ég lofa að kjafta ekki?

Þeir liggja í litlu sjálfstrausti, frekar hægu liði heilt yfir og að okkar sterkasta lið er ekki enn fundið.

Nú fengum við Viktor Unnar í síðasta leikmannaglugga og hefur hann reynst okkur vel, en gerðist eitthvað meira hjá ykkur á þessum tíma og hvernig finnst þér þeir leikmenn sem gengið hafa til liðs við Val 2010 hafa verið að nýtast liðinu?

Ég er búinn að vera mjög ánægður með nýju leikmennina. Þeir hafa flestir spilað vel. Ég fæ ekki nóg af að lýsa ást minni (platónskri) á Hauki Páli, Jóni Vilhelm hafði ég ekki mikla trú á fyrir mót en hann hefur verið að koma til, Stefán bakvörður minnir mig á sjálfan mig þegar ég var að spila (nema að hann er actually góður í fótbolta, kannski meira svona minnir hann mig á sjálfan mig eins og ég hefði viljað vera), Rúnar Már er framtíðarmiðjumaður í liðinu og útlendingarnir eru búnir að vera bara ágætir.

Hvernig kemur Gulli til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?

Það er hið sívinsæla 4-3-3 sem ríður rækjum á Valsheimilinu en byrjunarliðið er álíka ágiskanlegt og næstu úrslit Liverpool

Hef spurt áður en reyni aftur nú (leti sjáðu til), ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Val, hver yrði fyrir valinu?

Sá sem er skemmtilegastur í klefanum og getur spilað báða hálfleikina af fullum krafti! -> (innsk. sem sagt Tommi Þórodds)

Megum við ekki búast við góðri mætingu Valsmanna á leikinn?

Ég er ekki endilega viss um það, enda tímasetningin á honum ekki alveg hugsuð með vinnandi fólk í huga. Ég sjálfur mæti hinsvegar, enda veit ég fátt skemmtilegra en að keyra niður Kambana og reyna svo að muna eftir hraðamyndavélunum hjá Kotstrandarkirkju. Það er pláss fyrir einn aftan á mótorhjólinu mínu Valsmenn ef einhvern vantar far!

Ætlar þú sjálfur að mæta og þá jafnvel kíkja í Pylsuvagninn eftir leik?

Það held ég að sé nánast 101% öruggt. Ég vil minna frændur mína á Selfossi á það að pylsu á að snæða með tómatsósunni neðst, steikta lauknum þar fyrir ofan og remúlaðinu efst. Þetta er þrautreynt og aðrar útgáfur eru villutrú.

Hvernig fer og hverjir skora?

Ég held að Jón Vilhelm Ákason skori í 0-1 sigri Vals. Hann hefur verið að koma sterkur inn upp á síðkastið. En markið verður ljótt, það er öruggt.

Heiða í Dal heitir í raun Björgvin og þökkum við honum kærlega fyrir sitt innlegg í umræðuna

Babú

Deila

Selfoss – Þróttur 1-1
Unnið að mestu úr grein á Sunnlenska.is (sem ég gerði reyndar líka).

Selfoss og Þróttur Reykjavík skildu jöfn í fyrri leik liðanna í undanúrslitum 1.deildar kvenna. Lokatölur voru 1-1 og því ljóst að um hörkuleik verður að ræða í Laugardalnum næstkomandi miðvikudag enda tryggir sigurvegari þessa einvígis sér sæti í efstu deild á næsta ári.

Helena gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir þennan leik, Veronika var t.d. ekki með og í stað hennar kom bara ynga módelið af henni í miðvörðin eins var Anna María færð í bakvörðin til að kljást við fljóta kantmenn Þróttara, liðið var því svohljóðandi:

Liðið var svona:

Dagný Páls

Anna María – Þóra M. – Bríet – Dagný H

Thelma Sif – Anna Þ.

Eva Lind – Aníta Lísa – Gumma

Olga Færseth

Bekkur: Aníta G, Íris, Guðbjörg, Fransiska og Sif

Thelma Sif var djúp á miðjunni og Anna Þorsteins aðeins fyrir framan hana. Aníta Lísa var svo á mið miðjunni á meðan Eva Lind og Gumma voru mun framar. Þ.e.a.s. þessi liðsuppstilling er kannski ekki alveg 100% rétt enda takmörk fyrir því hvað ég er snjall í word press. Eva Lind og Gumma skiptust á að vera á hægri og vinstri kanti og hlupu allann leikinn í kringum Olgu sem beið eins og hrægammur á teignum.

Leikurinn fór annars rólega af stað og greinilegt að mikið lá undir, sól og blíða var á Selfossi og aðstæður hinar ágætustu fyrir um 400 áhorfendur sem lögðu leið sína á gervigrasvöllinn. Eftir 26.mínútna leik tókst Selfyssingum þó að brjóta varnarmúr gestana á bak aftur er hin stórefnilega Guðmunda Brynja Óladóttir lagði boltann örugglega í netið eftir frábæra undirbúning frá hinni 15 ára Evu Lind Elíasdóttir. Fimm mínútum seinna var heimaliðið ljónheppið að fá ekki dæmt á sig víti er Margrét Hólmgeirsdóttir komst í gegn og virtist ná að sparka í boltann á undan Dagnýu Pálsdóttir markmanni Selfyssinga. En dómarinn Smári Stefánsson var með allt sitt á hreinu og dæmdi einungis hornspyrnu við litla hrifningu Þróttara.

Þróttarstúlkur mættu sprækar í seinni hálfleikinn og er rúmlega korter var liðið af honum komst Margrét Hólmgeirsdóttir ein í gegn eftir gott hlaup upp vinstri kantinn og lagði boltann af öryggi í fjærhornið án þess að Dagný markmaður næði að koma neinum vörnum við. Eftir jöfnunarmarkið var leikurinn tiltölulega rólegur, Dagný í markinu þurfti varla að koma við boltann það sem eftir lifði leiks og Selfyssingum gekk illa að sækja að marki gestanna fyrir utan tvær úrvals tilraunir frá Guðmundu Brynju. Fyrra færið kom eftir frábæra sendingu frá Önnu Þorsteinsdóttir sem sendi Guðmundu eina í gegn en Ása Aðalgeirsdóttir markmaður Þróttar var vel á verði. Seinna færið kom síðan í uppbótartíma er Guðmunda átti hörkuskot fyrir utan teig sem Ása markvörður gestana varði meistaralega.

Niðurstaðan því 1-1 jafntefli í hörkuleik.

Næsti leikur er á fáránlegum tíma í Laugardalnum, á miðvikudaginn klukkan 17:30 og rétt úrslit í þeim leik gætu þýtt sæti efstu deild og því óhætt að hvetja alla sem mögulega eiga á því kost að mæta á völlinn.

Babú

Deila

Selfoss-Þróttur – Úrslitakeppnin
Þá er loksins komið að því. Selfyssingar leika til úrslita um sæti í Pepsi deild kvenna að ári og fá Þrótt Reykjavík í heimsókn í fyrri leik liðanna. Þróttur endaði í 1.sæti í A-Riðli í 1.deild en Selfoss hafnaði í því 2. í B-riðli. Athygli vakti að í báðum riðlunum enduðu toppliðin 2 með jafnmörg stig en úrslitin réðust á markatölu liðanna.

Selfoss og Þróttur hafa mæst nokkrum sinnum síðan mfl var stofnaður. Liðin tvö léku í lengjubikarnum í sama riðli bæði í ár og í fyrra og einnig léku liðin í sama riðli á Íslandsmótinu í fyrra.

Saga þessara liða sem mfl. síðan í lengjubikarnum 2009 er sú að Selfoss er með 2 sigra og Þróttur 1 og liðin gerðu svo jafntefli 1 sinni.

Leikurinn á morgun hefst kl.14:00 á Selfossvelli og hvetjum við ALLA Selfyssinga til þess að koma og styðja við bakið á stelpunum í þessari baráttu!

Seinni leikur liðanna fer svo fram á miðvikudaginn, 1. sept á Valbjarnarvelli (í Laugardalnum) kl.17:30.

ALLIR Á VÖLLINN!- Mynd Sunnlenska.is - Gummi Kalli

Deila

Selfoss-Valur á mánudag kl:18.00
Þá er komið að því að bjóða Gulla Jóns í heimsókn með lærisveina sína frá Hlíðarenda. Eins og flestir vita kom Gulli Selfoss upp í efstu deild í fyrra og hvarf síðan af braut og tók við Val. Þetta er því fyrsta heimsókn Gulla á Selfossvöll. Leikurinn er klukkan 18.00 mánudaginn 30. ágúst. Fyrir leik eða klukkan 17.30 munu þjálfarar liðana þeir Guðmundur Benediktsson og Gunnlaugur Jónsson ræða við stuðningsmenn Selfyssinga í Selinu.

Einn af frumkvöðlum Vals var séra Friðrik Friðriksson frá Hálsi í Svarfaðardal, en sá merki maður sem aldrei sóttist eftir veraldlegum eigum og sjaldan átti pening, lifði þó mjög innihaldsmiklu og gefandi lífi. Félagið hans var stofnað árið 1911 og eftir smá útreikning telst mér að félagið verði 100 ára á næsta ári. Þetta 100 ára afmæli virðist trufla stjórnarmenn Vals alveg óendalega mikið og langar þeim til að hampa Íslandsmeistaratitli líkt og KR gerði á sínu 100 ára afmæli.

Um fáa leiki hefur verið talað jafn mikið um af eldri kynslóðinni á Selfossi og leikinn við Val 1968, en 15 dögum eftir að Valur vann Selfoss 4-3 í æfingaleik, mættu Valsarar Benfica í Evrópukeppninni. Leikurinn fór fjörlega af stað og Selfoss komst í 2-0 eftir 8 mín og var staðan svo 3-2 fyrir Selfoss í hálfleik. Sverrir Einarsson hafði skorað öll mörk Selfoss, en samkvæmt blaðamanninum „klp“ í Reykjavík skoraði Hermann eitt marka Vals og var það heppnismark, ég gef mér það að hér sé talað um Hemma Gunn. Blaðamaðurinn gefur vörn Vals ekki háa einkunn og segir hana hafa gert „margan Valsmanninn gráhærðan í sumar“ en aftur á móti er hann nokkuð sáttur við framlínu Valsliðsins sem átti „léttan leik þar sem boltinn gekk manna á milli“ eins og segir þar. Þetta blað sem fjallar um leikinn segir frá því að tvö marka Vals hafi verið heppnismörk og í niðurlagi greinarinnar er Selfossliðinu hampað og m.a „sýndu að ekki er langt í komu þeirra í 1. deild“ (efstu deild) Eins og flestir vita þurftum við samt að bíða í 42 ár og biðin var þess virði.

Þessi frægi leikur er ekki skráður hjá KSÍ, enda einungis um æfingaleik að ræða. Aðeins finnast fjórir skráðir KSÍ leikir á milli þessara félaga og hefur Valur unnið þá alla. Árið 1975 unnu Valsmenn 8-0 sigur í bikarnum og svo unnu Valsmenn Selfoss 28. mars 2008 4-2 þar sem Sævar Þór og Boban skoruðu mörkin og Gummi Tóta lék sínar fyrstu mínútur með meistaraflokk.  Hægt að sjá leikskýrsluna hér  og þar má sjá svart á hvítu að Gummi Ben lék fyrri hálfleikinn með Val, hvað sem honum nú gekk til með því. Nú í vetur unnu Valsmenn svo Selfyssinga 3-0 í lengjubikarnum, þar sem tvö mörk í byrjun leiks voru dæmd af Selfyssingum og má sjá leikskýrsluna úr þeim leik hér. Svo unnu Valsmenn fyrri leik liðana í Pepsideildinni 2-1 og því ljóst að alltaf styttist bilið á milli félaganna. Hér má sjá leikskýrslu frá þeim leik.

Nokkuð margir leikmenn hafa farið á milli félaga og flestir í rétta átt. Margfaldur Íslandsmeistari með Val Magni Blöndal þjálfaði Selfoss árin 1993 og 1994 og kom þeim upp í b deild fyrra árið. Árni Njálsson þjálfaði Selfoss einhverjum árum fyrir diskótímabilið. Valsarinn og markahrókurinn Jón Gunnar Bergsson átti frábært tímabil á Selfossi og varð mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum. Heimir Karlsson morgunþáttarstjórnandi á Bylgjunni þjálfaði Selfoss árið 1990. Árið áður, eða árið 1989 þjálfaði Valsarinn Hörður Hilmarsson lið Selfyssinga. Með Herði kom á Selfoss, Ingi Björn Albertsson en hann er eins og flestir vita tengdafaðir Gumma Ben þjálfara Selfoss. Ingi Björn varð að sjálfsögðu markakóngur Selfoss þetta tímabil með 8 mörk og hann er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi. Oftar en ekki voru fyrirsagnir dagblaðana „Þingmaðurinn skoraði“, en Ingi Björn var þingmaður og notaði sumarfríið til að leika knattspyrnu. Ingi Björn tók við liði Vals er hann yfirgaf Selfoss og náði þeim ótrúlega árangri að gera þá að bikarmeisturum öll þrjú árinn sem hann þjálfaði liðið.

Antony Carl Gregory lék með Selfoss hálft tímabil ´98 og átti stóran þátt í að halda liðinu uppi, eftir að liðið hafði verið í fallsæti c-deildar undir stjórn Ólafs Jóhannessonar núverandi landsliðsþjálfara. Ámundi Sigmundsson var lykilleikmaður Selfyssinga upp úr 1980 og hann varð svo Íslandsmeistari með Val. Geir Brynjólfsson hefur einnig leikið með báðum liðum sem og Salih Heimir Porca. Kristinn Björnsson spilaði með Val og hann hefur þjálfað bæði Val og Selfoss. Gulli Jóns þjálfaði og spilaði með Selfoss í fyrra, en eins og áður sagði þjálfar hann nú Val. Viktor Unnar Illugason kom frá Val í Selfoss á miðju síðasta tímabili og hefur staðið sig mjög vel á Selfossi, skorað og átt þrjár stoðsendingar, en hjá Val fékk hann einungis einn leik í byrjunarliði. Svo að lokum varð Gummi Ben þjálfari Selfyssinga Íslandsmeistari með Val sem leikmaður árið 2007, en það á reyndar afskaplega vel við að Valsmenn hafi orðið meistarar árið 2007.

Síðustu 6 leikir liðana í Pepsideild og er síðasti leikur talin upp aftast.

Selfoss:                  T-T-S-T-S-T

Valur:                    J-T-T-J-S-T

Liðin eru byggð upp á mismunandi hátt og var t.d einungis einn uppalinn Valsari í liði Vals í síðasta leik á meðan sjö leikmenn í byrjunarlið Selfoss í síðasta leik eru uppaldir og mikill meiri hluti hópsins hjá Selfossi er auðvitað uppalinn þar.

Líklegt byrjunarlið Selfoss er erfitt að ráða í, þar sem þeir Jón Daði Böðvarsson og Arilíus Marteinsson eru í leikbanni. Setjum þetta svona upp: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Jón Guðbrands, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Yao Yao, Gunnar Rafn, Einar Ottó, Ingi Rafn, Viktor Unnar og Sævar Þór. Eins er Stefán Ragnar orðinn góður af meiðslum líkt og Ingó Tóta og þeir eru auðvitað líklegir til að byrja.

Líklegt byrjunarlið Vals er 4-5-1: Kjartan, Gregg Ross, Atli Sveinn, Martin Petersen, Rúnar Már, Arnar Sveinn, Ian Jeffs, Haukur Páll, Jón Vilhelm, Þórir, Diarmuid O´Corroll. Stefán Jóhann hægri bakvörður þeirra er í banni og gæti Rúnar Már jafnvel farið þangað, en þessi miðjumaður frá Sauðarkróki spilaði sem vinstri bakvörður í síðasta leik. Gregg Ross færi þá í miðvörð, en það er hans uppáhaldsstaða og Petersen yrði aftur vinstri bakvörður. Eins gæti Baldur Ingimar auðvitað komið inn.

Heimasíða Vals er mjög fín. Spjallborðið er eitt það virkasta hjá knattspyrnuliðum hér á landi og menn láta þar í sér heyra. Börkur er þar í fullri vinnu að svara furðulostnum stuðningsmönnum, eftir að Gaui Þórðar henti nafni sínu inn í umræðuna í vöntun sinni á athygli. Hver svo sem segir satt í þessu Gauja Þórðar-Vals máli, þá er það merkileg tilviljun að í öllum hitamálum í íslenskri knattspyrnu skuli alltaf annað hvort Gaui Þórðar eða Valur eiga í hlut. Hér er hægt að fara þar inná flotta heimasíðu Vals og hér er líka mjög góð stuðningsmannasíða.

Aðaldómari leiksins á mánudag er Örvar Sær Gíslason, en hann er einn af efnilegustu dómurum landsins og hefur m.a fengið verkefni erlendis. Honum til aðstoðar eru þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Leiknir Ágústsson.

Veðrið verður nokkuð hefðbundið á Selfossvelli á mánudag. Hiti 12 stig, þurrt, logn en reyndar verður skýjað og því toppaðstæður til að spila knattspyrnu.

Tómas.

Deila

Stórfréttir
Samkvæmt öruggum heimildum Selfoss.org er Guðjón Þórðarson EKKI að fara að taka við Selfossi í haust, né nokkurn tímann á þessu árþúsundi.

Deila

Fram 3 Selfoss 1
Leiðinlegur leikur, ömurlegur völlur og gott veður.

Lítið um þennan leik að segja sem kemur ekki fram í fyrirsögninni. VIð vorum örlítið slakari aðilinn en léleg varnarvinna varð til þess að Fram skoraði 3 og óheppni til þess að við skoruðum bara 1. Áttum svo sem alveg skilið að tapa. Girðum okkur í brók og vinnum Val á mánudaginn, gaman að Gulli kveðji Val með tapi.

Annars er rétt að taka það fram að Laugardalsvöllurinn er bjánalegasta mannvirki á Íslandi, það ætti að grafa það upp og senda til Brussel svo það sé hægt að semja einhverskonar reglugerð sem tekur á heimskulegum mannvirkjum, maður sit nær Nasa en miðlínunni og það er bara ekki hægt að byggja upp stemmningu í þessum steypuklump.

LAUGARDALSVÖLLUR ER GRAFHÝSI ÍSLENSKS FÓTBOLTA.

Deila

Fari það í kolbölvað… Fram – Selfoss 3-1
Í kvöld sannaðist að fótbolta á ekki að spila á mánudögum. Ekki á Íslandi, ekki í Englandi,, ekki neinsstaðar.

Máser eða Tommi koma jafnvel með skýrslu um þennan leiðinda leik á þessum leiðinlegasta velli landslins og líklega bara evrópu.

Ég hata allavega mánudaga.

Babú.

Deila

Myndaveisla Sunnlenska.is
Ef þið smellið á þessa mynd sem tekin er af frétt á Sunnlenska.is færist þið yfir á myndasyrpu frá vígslunni á Selfossvelli og leik Selfoss og Keflavíkur.

Talandi um Gumma Kalla (sem tekur þessar myndir) þá var hann í spjalli í leikskránni sem Óli Tage útbýr fyrir alla heimaleiki. Ef þið ýtið á lesa meira má sjá skemmtilega sögu GK frá hvernig þetta var hér áður fyrr á Selfossvelli. Samkepppnin við Sævar Gísla og Gumma Strump og samstarfið við Tóta Snorra…

Deila