Á næstunni stefnum við á að fá nokkra innanbúðarmenn hjá mfl. karla og kvenna til að gera tímabilið 2009 upp og segja okkur hvernig þau upplifðu það. Til að ríða á vaðið fengum við sjálfan þjálfarann, Gunnlaug Jónsson til að renna létt yfir hvern leik í sumar og segja okkur hvernig þetta ævintýri leit út frá hans hlið.
-Uppsetning og texti við myndir – Babu
…
Sun. 10.maí 2009
1. umferð – Selfossvöllur (gervigras)
Selfoss – KA 1-1
Upphitun Tómasar – Umfjöllun Fótbolta.net – Umfjöllun Selfoss

- Baráttuleikur við KA í 1.umferð (Mynd- Gummi Kalli)
Gunnlaugur:
Það var mikil tilhlökkun í hópnum þegar norðanmenn í KA mættu í heimsókn í 1. umferð 10. maí í vor. Það var ljóst að við þyrftum að spila á gervisgrasinu okkar í fyrstu þrem heimaleikjunum þar sem æfingavöllurinn yrði ekki tilbúinn fyrr en um mánaðarmótin. Við vorum ekki komnir með lánsmennina í hópinn og þónokkur forföll voru í hópnum. Ingó Tóta var í banni, Andri Freyr og Agnar Bragi meiddir og svo var mikið sjokk að Sævar Þór þurfti að draga sig úr hópnum rétt fyrir leik vegna veikinda. Við ákváðum að fresta láni á þeim Arnari Frey og Ólafi Tryggva í Árborg sem við vorum búnir að heimila að spila með í sumar og hafa þá til taks á bekknum. Það var ekkert flóknara en hjóla í þetta verkefni á þeim mönnum sem voru heilir og útkoman var flott jafntefli við KA. Við vorum reyndar drullu svekktir að landa ekki sigri því við fengum frábær færi í lokin. En miðað við það sem vantaði í liðið þá vorum við mjög sáttir við leikinn og ég held að við höfum komið stuðningsmönnum í opna skjöldu með góðum leik. Árni Páll sem óvænt byrjaði leikinn í fjarveru Sævars átti fínan leik og gerði varnarmönnum KA lífið leitt með baráttu sinni og dugnaði. Einnig var ég hæstánægður með Ingþór sem hafði verið frá í mjög langan tíma og hann stimplaði sig vel til leiks í þessum leik. Eftir þennan leik tóku sig upp meiðsli hjá undirritiðum sem héldu mér frá leik í rúman mánuð. Kannski var það einn af lyklunum á okkar góða árangri.
Þessi leikur var einn af vendipunktum sumarsins, kannski ágætt að taka 2 leiki um vorið með í þann flokk. Fyrst var það deildarbikarleikur gegn Grindavík, þar var ég í verkefni á vegum 7. stig KSÍ námsins og hluti af því var að stjórna liði í leik. Ég hélt ræðu fyrir leik þar sem hópurinn minn ásamt mentor (Guðna Kjartans) fylgdust með, sú ágæta ræða gekk alveg hörmulega, ég svitnaði og kom varla upp orði, fall var fararheill heldur betur. Fyrri hálfleikur gekk svona þokkalega en hálfleiksræðan gekk öllu betur og við gerðum breytingar í hálfleik á liðinu sem breytti ansi miklu uppá framhaldið, þá fór Andri útaf vegna meiðsla, Jón Sveins fór í vinstri bakvörðinn, frændurnir Jón Guðbrands og Einar Ottó voru á miðjunni og Arilíus kom inná og fór fram með Sævar Gísla. Þarna var komið það byrjunarlið sem við áttum eftir að spila mest á og holningin á liðinu fundin, sóknarleikur liðsins var mjög góður en ljóst að gloppur voru á varnarleiknum sem þurfti að laga.
Hinn leikurinn á undirbúningstímabilinu sem skipti sköpum var síðasti æfingaleikur liðsins fyrir mót gegn Val sem við sigruðum 1-0. Þar gekk allt upp í okkar leik, mjög agaður varnarleikur og vel útfærðar skyndisóknir sáust í þeim leik og við vorum klárir í 1. deildar slaginn.
.
…
Fös. 15.maí 2009
2. umferð – ÍR völlur
ÍR – Selfoss 2-5
Upphitun Tómas – Umfjöllun fótbolta.net - Umfjöllun Selfoss

- Ingó Tóta skoraði frábært mark gegn ÍR (Mynd – Hafliði Breiðfjörð, fótbolta.net)
Gunnlaugur:
Við mættum í Breiðholtið í blíðskaparveðri. Agnar Bragi og Sævar Þór komu tilbaka og beint í byrjunarliðið ásamt því að Ásgeir Örn nýr lánsmaður úr KR fór á bekkinn. Við höfðum fylgst með 1. leik þeirra gegn HK og sáum veikleika í þeirra varnarleik og það var ákveðið að keyra á þá með miklum þunga. Við byrjuðum af krafti og komumst í 0-2 eftir korter en ÍR ingar voru ekki lengi að jafna metin. Við kláruðum svo leikinn með 2. mörkum fyrir hlé. Arilíus kórónaði svo góðan leik með fimmta markinu um miðjan seinni hálfleik og þrátt fyrir fjölmörg góð færi var niðurstaðan solid 2-5 sigur.
.
.
Lesa meira
Deila