| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Þá er komið að því að bjóða Gulla Jóns í heimsókn með lærisveina sína frá Hlíðarenda. Eins og flestir vita kom Gulli Selfoss upp í efstu deild í fyrra og hvarf síðan af braut og tók við Val. Þetta er því fyrsta heimsókn Gulla á Selfossvöll. Leikurinn er klukkan 18.00 mánudaginn 30. ágúst. Fyrir leik eða klukkan 17.30 munu þjálfarar liðana þeir Guðmundur Benediktsson og Gunnlaugur Jónsson ræða við stuðningsmenn Selfyssinga í Selinu.
Einn af frumkvöðlum Vals var séra Friðrik Friðriksson frá Hálsi í Svarfaðardal, en sá merki maður sem aldrei sóttist eftir veraldlegum eigum og sjaldan átti pening, lifði þó mjög innihaldsmiklu og gefandi lífi. Félagið hans var stofnað árið 1911 og eftir smá útreikning telst mér að félagið verði 100 ára á næsta ári. Þetta 100 ára afmæli virðist trufla stjórnarmenn Vals alveg óendalega mikið og langar þeim til að hampa Íslandsmeistaratitli líkt og KR gerði á sínu 100 ára afmæli.
Um fáa leiki hefur verið talað jafn mikið um af eldri kynslóðinni á Selfossi og leikinn við Val 1968, en 15 dögum eftir að Valur vann Selfoss 4-3 í æfingaleik, mættu Valsarar Benfica í Evrópukeppninni. Leikurinn fór fjörlega af stað og Selfoss komst í 2-0 eftir 8 mín og var staðan svo 3-2 fyrir Selfoss í hálfleik. Sverrir Einarsson hafði skorað öll mörk Selfoss, en samkvæmt blaðamanninum „klp“ í Reykjavík skoraði Hermann eitt marka Vals og var það heppnismark, ég gef mér það að hér sé talað um Hemma Gunn. Blaðamaðurinn gefur vörn Vals ekki háa einkunn og segir hana hafa gert „margan Valsmanninn gráhærðan í sumar“ en aftur á móti er hann nokkuð sáttur við framlínu Valsliðsins sem átti „léttan leik þar sem boltinn gekk manna á milli“ eins og segir þar. Þetta blað sem fjallar um leikinn segir frá því að tvö marka Vals hafi verið heppnismörk og í niðurlagi greinarinnar er Selfossliðinu hampað og m.a „sýndu að ekki er langt í komu þeirra í 1. deild“ (efstu deild) Eins og flestir vita þurftum við samt að bíða í 42 ár og biðin var þess virði.
Þessi frægi leikur er ekki skráður hjá KSÍ, enda einungis um æfingaleik að ræða. Aðeins finnast fjórir skráðir KSÍ leikir á milli þessara félaga og hefur Valur unnið þá alla. Árið 1975 unnu Valsmenn 8-0 sigur í bikarnum og svo unnu Valsmenn Selfoss 28. mars 2008 4-2 þar sem Sævar Þór og Boban skoruðu mörkin og Gummi Tóta lék sínar fyrstu mínútur með meistaraflokk. Hægt að sjá leikskýrsluna hér og þar má sjá svart á hvítu að Gummi Ben lék fyrri hálfleikinn með Val, hvað sem honum nú gekk til með því. Nú í vetur unnu Valsmenn svo Selfyssinga 3-0 í lengjubikarnum, þar sem tvö mörk í byrjun leiks voru dæmd af Selfyssingum og má sjá leikskýrsluna úr þeim leik hér. Svo unnu Valsmenn fyrri leik liðana í Pepsideildinni 2-1 og því ljóst að alltaf styttist bilið á milli félaganna. Hér má sjá leikskýrslu frá þeim leik.
Nokkuð margir leikmenn hafa farið á milli félaga og flestir í rétta átt. Margfaldur Íslandsmeistari með Val Magni Blöndal þjálfaði Selfoss árin 1993 og 1994 og kom þeim upp í b deild fyrra árið. Árni Njálsson þjálfaði Selfoss einhverjum árum fyrir diskótímabilið. Valsarinn og markahrókurinn Jón Gunnar Bergsson átti frábært tímabil á Selfossi og varð mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum. Heimir Karlsson morgunþáttarstjórnandi á Bylgjunni þjálfaði Selfoss árið 1990. Árið áður, eða árið 1989 þjálfaði Valsarinn Hörður Hilmarsson lið Selfyssinga. Með Herði kom á Selfoss, Ingi Björn Albertsson en hann er eins og flestir vita tengdafaðir Gumma Ben þjálfara Selfoss. Ingi Björn varð að sjálfsögðu markakóngur Selfoss þetta tímabil með 8 mörk og hann er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi. Oftar en ekki voru fyrirsagnir dagblaðana „Þingmaðurinn skoraði“, en Ingi Björn var þingmaður og notaði sumarfríið til að leika knattspyrnu. Ingi Björn tók við liði Vals er hann yfirgaf Selfoss og náði þeim ótrúlega árangri að gera þá að bikarmeisturum öll þrjú árinn sem hann þjálfaði liðið.
Antony Carl Gregory lék með Selfoss hálft tímabil ´98 og átti stóran þátt í að halda liðinu uppi, eftir að liðið hafði verið í fallsæti c-deildar undir stjórn Ólafs Jóhannessonar núverandi landsliðsþjálfara. Ámundi Sigmundsson var lykilleikmaður Selfyssinga upp úr 1980 og hann varð svo Íslandsmeistari með Val. Geir Brynjólfsson hefur einnig leikið með báðum liðum sem og Salih Heimir Porca. Kristinn Björnsson spilaði með Val og hann hefur þjálfað bæði Val og Selfoss. Gulli Jóns þjálfaði og spilaði með Selfoss í fyrra, en eins og áður sagði þjálfar hann nú Val. Viktor Unnar Illugason kom frá Val í Selfoss á miðju síðasta tímabili og hefur staðið sig mjög vel á Selfossi, skorað og átt þrjár stoðsendingar, en hjá Val fékk hann einungis einn leik í byrjunarliði. Svo að lokum varð Gummi Ben þjálfari Selfyssinga Íslandsmeistari með Val sem leikmaður árið 2007, en það á reyndar afskaplega vel við að Valsmenn hafi orðið meistarar árið 2007.
Síðustu 6 leikir liðana í Pepsideild og er síðasti leikur talin upp aftast.
Selfoss: T-T-S-T-S-T
Valur: J-T-T-J-S-T
Liðin eru byggð upp á mismunandi hátt og var t.d einungis einn uppalinn Valsari í liði Vals í síðasta leik á meðan sjö leikmenn í byrjunarlið Selfoss í síðasta leik eru uppaldir og mikill meiri hluti hópsins hjá Selfossi er auðvitað uppalinn þar.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er erfitt að ráða í, þar sem þeir Jón Daði Böðvarsson og Arilíus Marteinsson eru í leikbanni. Setjum þetta svona upp: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Jón Guðbrands, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Yao Yao, Gunnar Rafn, Einar Ottó, Ingi Rafn, Viktor Unnar og Sævar Þór. Eins er Stefán Ragnar orðinn góður af meiðslum líkt og Ingó Tóta og þeir eru auðvitað líklegir til að byrja.
Líklegt byrjunarlið Vals er 4-5-1: Kjartan, Gregg Ross, Atli Sveinn, Martin Petersen, Rúnar Már, Arnar Sveinn, Ian Jeffs, Haukur Páll, Jón Vilhelm, Þórir, Diarmuid O´Corroll. Stefán Jóhann hægri bakvörður þeirra er í banni og gæti Rúnar Már jafnvel farið þangað, en þessi miðjumaður frá Sauðarkróki spilaði sem vinstri bakvörður í síðasta leik. Gregg Ross færi þá í miðvörð, en það er hans uppáhaldsstaða og Petersen yrði aftur vinstri bakvörður. Eins gæti Baldur Ingimar auðvitað komið inn.
Heimasíða Vals er mjög fín. Spjallborðið er eitt það virkasta hjá knattspyrnuliðum hér á landi og menn láta þar í sér heyra. Börkur er þar í fullri vinnu að svara furðulostnum stuðningsmönnum, eftir að Gaui Þórðar henti nafni sínu inn í umræðuna í vöntun sinni á athygli. Hver svo sem segir satt í þessu Gauja Þórðar-Vals máli, þá er það merkileg tilviljun að í öllum hitamálum í íslenskri knattspyrnu skuli alltaf annað hvort Gaui Þórðar eða Valur eiga í hlut. Hér er hægt að fara þar inná flotta heimasíðu Vals og hér er líka mjög góð stuðningsmannasíða.
Aðaldómari leiksins á mánudag er Örvar Sær Gíslason, en hann er einn af efnilegustu dómurum landsins og hefur m.a fengið verkefni erlendis. Honum til aðstoðar eru þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Leiknir Ágústsson.
Veðrið verður nokkuð hefðbundið á Selfossvelli á mánudag. Hiti 12 stig, þurrt, logn en reyndar verður skýjað og því toppaðstæður til að spila knattspyrnu.
Tómas.
Nú er verið að leggja lokahönd á frágang á nýjum keppnisvelli Selfyssinga. Stúkan er fullfrágengin eins og fyrsti áfangi gerir ráð fyrir, komin vínrauð sæti og því allt að verða klárt. Grasið er grænt sem aldrei fyrr og mun Jói merkja völlinn á morgun. Það eina sem eftir er því að finna nokkra skemmtilega gaura til að festa auglýsingaskiltinn á girðinguna umhverfis völlinn. Ekki er verra ef einhverjir eiga borvelar, en auðvitað er það ekki nauðsynlegt. Mæting er um klukkan 20.00 og verða menn enga stund að þessu ef allir úreikningar standast.
Selfyssingar taka á móti Keflavík í næstu umferð Íslandsmótsins. Þetta er risa leikur fyrir Selfyssinga, því nýr og fullkominn aðalvöllur verður tekin í notkun og einnig verður ný glæsileg 730 manna stúka tekin í notkun, en fyrsti áfangi hennar er tilbúinn. Ekki nóg með þetta allt, þá verður þetta einnig fyrsti sjónvarpsleikur Selfyssinga. Það verður því dúndrandi partý á Selfossvell fimmtudaginn 19. ágúst og mun dómari leiksins flauta leikinn á kl 19.15.
Fyrir 20 árum síðan vígðu Selfyssingar grasvöllinn sinn með 5-1 sigri á KS frá Siglufirði, með tveimur mörkum frá nöfnunum Heimi Karlssyni og Salih Heimi Porca og eitt frá Sævari Sverrissyni. Það væri nú ekki leiðinlegt að endurtaka þann leik og sigra Keflvíkinga í vígsluleik aðalvallarins.
Í síðasta leik Selfoss í deildinni, þar sem þeir töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni var Gunnar Borgþórsson aldursforseti liðsins en hann er 28 ára gamall. Í þessum sama leik vantaði nokkra lykilleikmenn Selfoss. Henning og Jón Sveins hafa verið frá meira og minna í allt sumar, hafa einungis náð einum og þremur leikjum. Ingó Tóta hefur einnig verið frá í nokkra leik, en kemur aftur inn nú. Sævar Þór var að jafna sig á höfuðhöggi. Bóló Be Herve var í banni og Jón Guðbrands forfallaðist á síðustu stundu. Svo fór fyrirliðin Stefán Ragnar útaf meiddur eftir 13 mínútna leik, en ætti að verða orðin góður fyrir næsta leik.
Það er hundleiðinleg staðreynd að hvergi finnast heimildir um sigur Selfyssinga á Keflvíkingum. Liðin hafa leikið alls 14 leiki í skráðum leikjum á vegum KSÍ. Tölfræðin er 10-4-0 , sem sagt 10 sigrar Keflavík og 4 jafntefli. Það er þó þannig að alltaf styttist í fyrsta sigur Selfoss og það vita Keflvíkingar best allra.
Árið 1990 leku Selfyssingar þrjá leiki við Keflvíkinga. Liðin leku saman í 2. deildinni eða b-deild, sem nota bene hét þá Pepsideildin eftir feitan samstarfssamning á milli samtaka 2. deildarfélaga og Sanitas sem þá seldi Pepsi á Íslandi.
Keflavík vann fyrri leikinn 2-1, þar sem Páll Guðmundsson skoraði mark Selfoss. Seinni leikur í deild fór 0-0 og misstu þar með bæði lið af möguleika á að leika í efstu deild árið ´91.
Einnig mættust liðin í 8 liða úrslitum bikarins árið ´90, en í framhjáhlaupi er nauðsynlegt að minnast á það að Keflvíkingar slógu út Ernina frá Selfossi á leið sinni í 8 liða úrslit. Mörk Ernis, sem alltaf léku í 4.deild, skoruðu Helgi Ketilsson og Gústaf Bjarnason f.v landsliðsmaður í handbolta. Ernir leiddu 2-1 þegar lítið var eftir, en Keflvíkingar skoruð 2 mörk á lokmínútunum og komust þannig áfram. Mörk Keflvíkinga gegn Örnunum skoruðu þeir Óli Þór Magnússon 2 og Gestur Gylfason 1 mark. Í 8 liða úrslitum voru Selfyssingar mjög óheppnir að vinna ekki Keflavík. Guðjón Þorvarðarson kom Selfoss yfir á 12. mínútu og svo varði Ólafur Pétursson nokkrum sinnum mjög vel og m.a var bjargað á línu frá Salih Heimi Porca. Leikurinn jafnaðist svo í seinni hálfleik og á 53.mín jafnaði Ólafur Þór Magnússon fyrir ÍBK. Gestur Gylfa kom þeim svo yfir áður en Izudin Daði Dervic jafnaði fyrir Selfoss. Jóhann Magnússon gerði svo út um leikinn með laglegu marki 8 mín fyrir leikslok og Keflavík komst í 4 liða úrslit.
Anton Hartmannsson var varamarkmaður Keflavíkur eitt tímabil áður en hann hætti, en Toni er næst leikjahæsti leikmaður Selfoss frá upphafi með 366 leiki. Einar Ottó sonur hans tók einnig eitt tímabil með 2. flokki Keflavíkur, en sá svo að sér kom heim og hefur nú leikið hátt í 200 leiki fyrir Selfoss. Fleiri leikmönnum muna menn ekki eftir sem skipt hafa á milli þessara liða.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Arilíus, Gunni Borgþórs, Stepan Yao Yao, Jón Daði, Sævar Þór og Viktor Unnar. Andri Freyr er í leikbanni og verður því ekki með. Svo er auðvitað löng æfingavika framundan og því allt eins möguleiki á að einhverjir komi sterkir til baka af bekk eða úr stúkunni og vinni sér sæti í liðinu.
Líklegt byrjunarlið Keflavíkur er: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni, Alen Sutej, Bjarni Hólm, Haraldur Freyr , Einar Orri, Hólmar Örn, Jóhann B. Guðmundsson, Magnús Sverrir, Guðmundur Steinarsson og Magnús Þórir. Paul McShane er einnig alltaf líklegur í startið og Haukur Ingi kom inn á í síðasta leik, en er örugglega ekki tilbúinn í first elleven.
Þjálfari Keflavíkur er Willum Þór Þórsson, en hann er gríðarlega hæfur þjálfari og hefur ná árangri alls staðar sem hann hefur komið. Willum byrjaði knattspyrnuþjálfaraferill sinn á að koma Þrótt upp í efstu deild á sínu fyrsta ári, árið 1996. Næst tók hann við Haukum og á fyrsta tímabili vann hann 3. deild og á öðru tímabili vann hann 2. deild. Þá var honum boðið starf hjá uppeldisklúbb sínum KR árið 2001, en þá um haustið rétt slapp KR við fall. Willum gerði liðið að íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári og endurtók svo leikinn á sínu öðru tímabili. Fyrir tímabilið 2005 tók hann við Val og gerði hann þá að íslandsmeisturum árið 2007 og lauk þar með 20 ára bið Valsmanna eftir titlinum. Einnig gerði hann liðið að bikarmeisturum. Inn í þessari umfjöllun er ekki talið upp minni titlar svo sem Reykjavíkurmeistarar o.s.frv.
Keflvíkingar hafa ekki unnið efstu deild síðan 1973 og réðu Willum Þór til starfa fyrir þetta tímabil með það í huga. Liðið er sem stendur í 4. sæti deildarinnar og gætu alveg blandað sér í toppbaráttuna og sérstaklega ef þeir myndu skora fleiri mörk. Willum hefur þjálfað Gumma Ben núverandi þjálfara Selfyssinga í alls sjö leiktímabil og því allt eins líklegt að Gummi viti betur en Willum hvað sagt verður í búningsklefa Keflavíkur fyrir leik og í hálfleik.
Heimasíða Keflavíkur er mjög góð, fullt af upplýsingum og fréttaveita góð. Það er til eftirbreytni umfjöllun þeirra um leiki og ekki ólíklegt að hún verði tekin upp á okkar síðu, en þeir taka úrdrátt af síðum sem fjalla um leikina og birta einkunnargjafir þeirra. Hér er hægt að komast inn á heimasíðu þeirra, reyndar vantar spjallborð, en hér og hér hefur verið gerð heiðarleg tilraun til að gera spjallborð.
Dómari leiksins á fimmtudag er klárlega að verða einn besti dómari landsins, en það er Gunnar Jarl Jónsson og ekki eru aðstoðardómararnir af verri endanum, en það eru þeir Smári Stefánsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Guðmundur Sigurðsson er svo eftirlitsmaður á þessum leik.
Veðrið verður að venju gott á leikdag á Selfossi. Það verður ca 14 stiga hiti, þurrt, léttskýjað og austan 3 metrar á sekúndu.
Olísmótinu í 5. flokki drengja lauk í dag sunnudag með verðlaunahátíð. Eftirtalin félög unnu til flestra verðlauna á mótinu KR tók 3 dollur, Þór Ak tók 2 dollur og voru reyndar einu marki frá þeirri þriðju. Keflavík, Víkingur, ÍBV, ÍR og Þróttur fengu svo eina dollu hvert. KA frá Akureyri fékk svo háttvísisverðlaun KSÍ. Tæplega 600 strákar kepptu á Olísmótinu í 60 liðum frá 14 félögum. Því miður var ekki hægt að taka á móti öllu liðum þetta árið, en ljóst að mótið verður stækkað upp í 72 lið árið 2011. Félögin sem komust inn í ár eru Þór Ak, KA, Grindavík, KR, Þróttur R, Keflavík, Fram, Grótta, Álftanes, ÍA, Víkingur R, ÍBV, ÍR og Selfoss.
Á föstudeginum var spilað hraðmót og liðunum getuskipt eftir það. Um kvöldið var haldið sundlaugarpartý þar sem Hreimur og Árni héldu uppi fjörinu. Riðlakeppnin fór svo fram á laugardegi og sunnudegi. Á milli leikja slöppuðu strákarnir af með popp og kók í Selfossbíói. Um kvöldið var kvöldvaka sem gekk frábærlega. Mótinu var svo slitið á sunnudag kl. 14:30.
Slatti mikil rigning setti svip sinn á mótið á laugardag, en foreldrar strákana í Selfossliðinu tóku að sér að þurrka búninga gestanna á milli leikja. Glampandi sólskin og dúnalogn var svo á lokadegi mótsins og allir fóru glaðir heim.
Fjöldi sjálfboðaliða sjá um skipulagningu og framkvæmd mótsins sem tókst mjög vel. Knattspyrnudeild Umf. Selfoss vill þakka keppendum, gestum og öllum þeim sem á einhvern hátt komu að mótinu kærlega fyrir sinn þátt í að gera mótið eins flott og það er orðið.
Myndir af mótinu eru komnar inn á olismot.is síðuna og eins má þar finna öll úrslit helgarinnar.
Það er aldeilis stutt á milli leikja núna, því aðeins þremur dögum eftir glæsilegan karaktersigur á Haukum heimsækja Selfyssingar nágrana þeirra úr Garðabæ, Stjörnuna heim. Leikurinn fer fram sunnudaginn 8. ágúst kl 19.15. Eins og áður hefur komið fram unnu Selfyssingar Hauka 2-3 í síðustu umferð á meðan Stjarnan tapaði fyrir KR í Frostaskjóli, hvernig sem það er nú hægt. Stjarnan er í 8. sæti með 17 stig á meðan Selfoss er í 11. sæti með 11 stig.
Sigurinn gegn Haukum var gríðarlegur karaktersigur þar sem nokkuð marga leikmenn vantaði í Selfossliðið. Eins og flestir vita hafa Henning Eyþór Jónasson og Jón Steindór Sveinsson lítið getað leikið með í sumar vegna meiðsla og auk þeirra vantaði í þennan leik Ingó Tóta sem var meiddur, Jón Guðbrands og Einar Ottó sem voru í banni og Gumma Tóta og Sigga Eyberg sem voru veikir. Svo fór Sævar Þór auðvitað vel vankaður af velli á 10. mín og spurði fjórum sinnum „hvað skeði?“, en vanalega spyr Sævar bara tvisvar sömu spurningarinnar.
Í fyrri leik liðana sem fram fór á Selfossvelli gerðu liðin jafntefli 2-2. Mörk Selfoss skoruðu þeir Jón Guðbrands og Gummi Tóta, en mörk Stjörnunnar gerðu þeir Steinþór Freyr og Þorvaldur Árnason. Það er óhætt að segja að fjölmiðlamenn landsins hafi aðeins hrokkið við er Bjarni Jóhannesson þjálfari Stjörnumanna kvartaði yfir of mjúku gervigrasi á Selfossvelli. Hér má sjá leikskýrslu frá fyrri leik liðana.
Selfyssingum hefur gengið best í sumar á þeim völlum þar sem alvöru stúka er og hafa t.a.m náð í 7 af þessum 11 stigum á útivöllum sem hafa alvöru stúku. Sigrar á Hlíðarenda, Frostaskjóli og stig í Grindavík segja kannski meira en nokkuð annað um mikilvægi stuðningsmannasveitarinnar, sem auðvitað fer á flug í stúku. Þess vegna er það gleðilegt að Stjörnumenn eiga frábæra stúku.
Stjörnustrákar voru nær ósigrandi á heimavelli í fyrra, en hefur aðeins fattast flugið og hafa unnið þrjá af sjö leikjum á sínum heimavelli. Aftur á móti er Stjarnan orðin frægasta lið Íslands með sín mögnuðu fögn sem stór hluti hins vestræna heims, auk Asíu er búinn að horfa á á youtube.
Stjarnan hefur á að skipa mörgum góðum knattspyrnumönnum, en urðu þó fyrir áfalli er Steinþór Freyr Þorsteinsson gekk til liðs við ríkisbubbaliðið Örgryte í Svíþjóð. Þetta fornfræga Gautarborgarlið, sem unnið hefur Svíþjóðarmeistaratitilinn 12 sinnum má muna sinn fífil fegri, en í dag eru þeir helst þekktir fyrir kick and run fótbolta. Aftur á móti hafa Garðbæingar Halldór Orra Björnsson í sínum röðum, hann hefur unnið ofan á frábært tímabil í fyrra og er m.a búinn að skora 7 mörk í ár. Nú er Halldór Orri að auki orðin hel tanaður og það að ósk Agnars Braga. Því verður gaman að fylgjast með honum klára Íslandsmótið þannig.
Selfoss og Stjarnan hafa nokkrum sinnum mæst í gegnum tíðina. Samtals eru leikir þessara liða 15 talsins. Stjarnan hefur unnið átta leiki, fjórir hafa endað með jafntefli og þrír endað með Selfoss sigri. Það er því 8-4-3 Stjörnunni í vil.
Þann 21. júní árið 1989 léku Stjarnan og Selfoss í 32 liða úrslitum mjólkurbikarsins. Selfoss vann leikinn nokkuð óvænt og mark Selfyssinga skoraði Sævar Sverrisson á 21. mínútu með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu. Garðbæingar voru betri í leiknum þar sem Árni Sveins með mottu eins og Ron fór eðlilega fremstur í flokki. Vörn Selfyssinga stóð fyrir sínu og fyrir aftan hana var Guðmundur Erlingsson eins og köttur í framan og var að lokum valinn maður leiksins.
Fyrir þá sem hafa gaman af fróðleik sem engu skiptir, þá má í framhjáhlaupi geta þess að þennan sama dag og Selfoss sló út Stjörnuna voru þeir Þór Sigmundsson og Guðmundur Benediktsson valdir í unglingalandslið Íslands skipað leikmönnum 16 ára og yngri.
Líklegt byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur, Martin, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Jón Daði, Stephan Yao Yao, Gunnar Borgþórs, Arilíus, Viktor Unnar og Sævar Þór. Bóló Bi Herve fékk rautt í síðasta leik og er því í banni, svo geta auðvitað eitthvað að þeim leikmönnum sem voru veikir eða í banni í síðasta leik komið inn.
Líklegt byrjunarlið Stjörnurnar er: Bjarni Þórður, Jóhann Laxdal, Daníel Laxdal, Tryggvi Bjarna, Víðir, Björn Páls, Dennis Danry, Atli Jó, Þorvaldur Árna, Halldór Orri og Ellert Hreins.
Þjálfari Stjörnunnar er einn sá virtasti í bransanum, Bjarni Jóhannsson. Hann fór upp með Stjörnuna árið 2008 og gerði góða hluti á fyrsta ári liðsins. Bjarni gerði ÍBV að Íslandsmeisturum ´97 og ´98 og einnig gerði hann liðið að bikarmeisturum. Bjarni hefur m.a líka þjálfað Grindavík, Fylki og Breiðablik.
Engin leikmaður sem undirritaður og hans heimildarmenn muna eftir hefur leikið með báðum liðum og það er mjög spes.
Einar Örn Daníelsson verður aðal dómari leiksins á sunnudag og honum til aðstoðar verða þeir Einar Sigurðsson og Sindri Kristinsson. Eftirlitsmaður leiksins er Ólafur Ragnarsson og er þetta þriðji Selfoss leikur hans í röð og gæti Gummi allt eins borið skiptingarnar undir hann, svo vel þekkir Óli orðið liðið okkar.
Heimasíða Stjörnunnar er lala, þar eru fullt af stöðluðum upplýsingu, en það vantar eiginlega stuðningsmannasíðu eða spjallborð þar sem frelsið til frásagnar er meira.
Veðrið verður til fyrirmyndar á sunnudag, hæg norð-austan gola, hiti 12 stig og heiðskýrt.
Olísmót 5. flokks stráka í fótbolta hófst á Selfossvelli í gær. Mótið er nú haldið í 6. sinn og keppa alls 60 lið á mótinu, en undanfarin ár hafa verið 48 lið sem spila á Olísmótinu. Nú er leikið á 10 völlum, en í fyrra voru einungis 6 vellir í gangi. Því miður var samt ekki hægt að taka á móti öllum liðum sem vildu vera með, en á næsta ári verður fjölgað í 72 lið. Uppselt hefur verið á mótið undanfarin ár.
Fyrirkomulag mótsins er þannig að á fyrsta degi er spilað hraðmót til að getuskipta liðum og í morgun hófst svo riðlakeppni. Eftir hraðmótið í gær var haldið sundlaugarpartý, en það er einn af hápunktum mótsins. Í ár voru það Hreimur og Árni úr land og sonum sem sáu um stemmninguna, en sundlaugarpartíið tókst frábærlega.
Á milli leikja í dag slappa strákarnir af með popp og kók í Selfossbíói. Eftir leiki dagsins í dag verður kvöldvaka þar sem verður gert hefðbundið grín af þjálfurum, Maggi Mix mætir á svæðið og nokkur tónlistaratriði verða flutt.
Mótið klárast á morgun sunnudag og þá kemur í ljós hverjir verða sigurvegarar mótsins. Á meðan er hægt að sjá úrslit einstakra leikja á Olísmótssíðunni,
Á morgun fimmtudaginn 5. ágúst fer fram einn mikilvægasti leikur sumarsins, er Selfyssingar heimsækja Hauka heim. Leikurinn fer fram á heimavelli systurfélags Hauka, Vals og er þetta því annar leikur okkar á hinum stórglæsilega Vodafonevelli. Selfoss og Haukar standa þétt saman í 11 og 12 sæti Pepsideildar, Selfoss með 8 stig, en Haukar með 7 stig.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem liðin standa hlið við hlið í baráttunni á knattspyrnuvellinum því í fyrra fóru liðin saman upp í efstu deild og fyrir 3 árum fóru þau saman upp í 1. deild.
Haukar gleymast oft í umræðunni um stóru klúbbana en Haukar eru klárlega með flottustu klúbbum landsins. Það er fáir klúbbar, ef nokkur sem getur státað af því að eiga lið í efstu deild í fótbolta, körfu og handbolta í bæði karla og kvenna flokki. Það er helst FH sem getur státað af svipuðum árangri og hvort þakka skal bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði fyrir þá framsýni að bjóða öllum krökkum að æfa frítt þennan árangur eða einhverju öðru þá getur varla verið tilviljun að báðir þessir stóru klúbbar séu úr Hafnarfirði.
Knattspyrnufélag Hauka var stofnað 1931 í KFUM húsinu við Hverfisgötu. Það var að sjálfsögðu séra Friðrik Friðriksson sem átti hugmyndina að fuglanafninu, en það er viss skírskotun til systurfélagsins Vals í Reykjavík, sem er líka KFUM og K lið. Séra Friðrik hefur samt örugglega ekki átt von á því að Haukar og Valur myndu leika heimaleiki sína á sama vellinum árið 2010. Og reyndar hefði engum getað dottið það í hug, en það er nú samt raun þeirra.
Haukar hafa örlítið betur í fyrri viðureignum liðanna, en samtals eru innbyrðis viðureignir liðana 37 talsins. Haukar hafa unnið 17 leiki, 5 leikir hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 15 leiki, tölfræðin er því 17-5-15 Haukum í vil og markatalan er 68-65 Hafnfirðingum í hag. Það gerist nú reyndar ekki mikið jafnara, sérstaklega í ljósi fjölda innbyrðisviðureigna. Eins og áður sagði þá hafa Selfoss og Haukar farið upp um tvær deildir á þrem árum og gert það í sameiningu og því þekkja leikmenn liðana andstæðinga sína í þessum leik einstaklega vel. Ef teknar eru viðureignir síðustu þriggja tímabila sem liðin hafa farið upp um deildir er innbyrðisstaðan einnig nokkuð jöfn. Liðin hafa leikið 7 leiki, Selfoss unnið 3 leiki, en Haukar tvo leiki og tveir hafa endað með jafntefli. Markatalan er 13-9 fyrir Selfoss.
Fáir knattspyrnumenn hafa spilað með báðum liðum. Kristján Óli Sigurðsson spilaði með Haukum fyrri hluta tímabilsins í ár, en hann lék seinni hluta sumarsins 2008 með Selfoss, stóð sig mjög vel innan sem utan vallar. Daníel Gunnarsson pabbi Helga Vals sem nú leikur AIK í Svíþjóð, spilaði einnig með Haukum og svo hefur Magni Blöndal spilandi þjálfari Selfyssinga ´93 og ´94 einnig leikið með báðum liðum. Tómas Ellert Tómasson spilaði með Haukum árið ´93 þegar Selfoss fór upp. Eftirminnilegast leikur hans var að sjálfsögðu gegn Selfoss á Ásvöllum en þar flautaði dómarinn ekki til leiks vegna þess að stórt gat var á öðru markinu. Tómas Ellert náði reyndar ekki mörgum leikjum með Haukum þetta sumar því smíðavinna með Óla Jó gekk fyrir og ekki ólíklegt að hann hafi lært meira um töfra knattspyrnunnar þar.
Selfoss og Haukar léku saman í b-deild árið 1980, eða fyrir 30 árum síðan. Báðir leikirnir fóru fram á Selfossvelli, en Haukar fóru fram á það vegna þess að völlur þeirra var svo lélegur á þessum árum. Haukar vilja kannski bara síður leika í Hafnarfirði, því staðan er ekki ósvipuð hjá þeim í dag, en þeir um það. Haukar unnu fyrri leikinn 3-1. Seinni leikurinn fór fram laug 20. sept kl 15.00 og var m.a niðurlag auglýsingarinnar fyrir leikinn eftirfarandi „Komið og sjáið Heimi leika listir sínar í síðasta leik sumarsins“ En Heimir Bergsson sem hér um ræðir lék fyrri hluta sumarsins með FH, en meiddist illa og var að snúa aftur heim á Selfoss. Selfyssingar áttu ekki í vandræðum með Hauka í þessum leik og unnu 7-1, en þeir voru komnir í 5-0 eftir 25 mínútur. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu Jón Birgir Kristjánsson eigandi Hróa hattar með 2 mörk. Eitt mark skoruðu Tóti Ingólfs, pabbi Gumma og Ingólfs. Ólafur Sigurðsson móður bróðir Sigurðar Eybergs. Þór Valdimars, pabbi Grétars Þórs(fv. leikmanns mfl Selfoss) og Valdimars (besti leikmaður Íslandsmótsins í handbolta í ár) Ámundi Sigmundsson og Tryggvi Gunnarsson móður bróðir Arons Leifssonar markvarðar 2. flokks skoruðu svo sitt hvort markið.
Hjá Selfyssingum verða frændurnir Einar Ottó Antonsson og Jón Guðbrandsson í leikbanni og hjá Haukum verður Guðmundur Viðar Mete í leikbanni.
Eins og flestir vita fengu Selfyssingar fjóra nýja leikmenn í félagsskiptaglugganum, Svíann Martin Dohlsten, Fílabeinsstrendingana Stephan Yao Yao og Guessan Bi Herve og svo Íslendinginn Viktor Unnar Illugason. Haukar fengu einnig liðsstyrk í glugganum, en Spænski framherjinn Garcia gekk í þeirra raðir.
Líklegt byrjunarlið hjá Selfoss á fimmtudag er: Jóhann Ólafur, Martin, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Guðmundur Þórarins, Ingþór, Stephan Yao Yao, Arilíus, Jón Daði, Viktor Unnar og Sævar Þór.
Líklegt byrjunarlið Hauka er: Daði, Tóti Dan, Daníel Einarsson, Kristján Ómar, Gunnar Ormslef, Maggi Björgvins, Jamie McCunnie, Guðjón Pétur Lýðsson , Hilmar Geir, Arnar Gunnlaugs og Garcia.
Aðaldómari leiksins á fimmtudag verður kokkurinn geðþekki Magnús Þórisson úr Sandgerði, en hann er klárlega einn af bestu dómurum landsins. Honum til aðstoðar eru þeir Oddbergur Eiríksson og Gylfi Már Sigurðsson. Eftirlitsmaður á leiknum Ólafur Ragnarsson.
Veðrið verður frábært til að spila fótbolta á morgun, sunnan 4 metrar á sekúndu, þurrt, hiti 14 stig og skýjað.
Tómas.
Ásgeir Börkur stórvinur okkar úr Fylki var rétt í þessu að vinna sér inn annan Thule frá Selfoss.org!
Hér má sjá afhverju, og það er afar erfitt að sjá hvor er hvað, fótboltaleikmaðurinn eða listamaðurinn.
Sjón er sögu svo miklu ríkari
Þá er komið að 12. umferð í Pepsídeildinni eða fyrstu umferð í seinni hluta mótsins og byrja Selfyssingar að heimsækja Fylkismenn í Árbæinn. Leikurinn fer fram 18. júlí kl 19.15 á Fylkisvelli. Selfyssingar gerðu jafntefli í síðasta leik gegn Grindavík í Grindavík á meðan Fylkismenn sátu hjá í 11. umferð íslandsmótsins og töpuðu sínum leik í Evrópukeppninni. Selfyssingar eru eftir þetta jafntefli með 8 stig í 10 sæti deildarinnar, en Fylkir er með 12. stig í 9. sæti deildarinnar. Það verður því barist um fuckings Hellisheiðina á sunnudag.
Í leiknum gegn Grindavík léku þeir Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson sinn 50. leik fyrir Selfoss. Skemmtilegt að þeir fóstbræður nái þessum áfanga í sama leik. Svo í leiknum gegn Fylki mun Jón Guðbrandsson að öllum líkindum leika sinn 100. leik fyrir Selfoss.
Selfyssingar töpuðu fyrri leik liðana 3-1 á Selfossi, en með því að klikka hér á Selfoss.org má sjá umfjöllun um þann leik. Eins er hægt að skoða upphitun fyrir fyrri leik liðana hér þar sem kemur m.a fram tengsl liðana og fleira áhugavert.
Liðin hafa alls mæst í 21 skráðum leik á vegum KSÍ. Fylkismenn hafa mikla yfirburði, hafa unnið 17 leiki, 2 hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 2 leiki. Þann fyrri 1972 og þann seinni 1994 svo að nú er farið að styttast allverulega í næsta sigur.
Liðin áttust við á Selfossvelli þann 10. júní 1994 og sigruðu Selfyssingar þann leik 2-1 eftir að Fylkismenn höfðu komist yfir með markið Aðalsteins Víglundssonar. Magni Blöndal Pétursson jafnaði leikinn eftir að hafa fylgt á eftir vítaspyrnu sem var varin frá Sævari Þór. Það var svo Sævar Þór sem skoraði sigurmarkið þegar 3 mínútur voru eftir af leiknum. Sævar Sverris átti langt innkast sem Ómar Vald flikkaði á Sævar sem skoraði með viðstöðulausu skoti í markið. Bestir í liði Selfoss samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins voru þeir Sævar Þór og Hjalti Þorvarðarsynir.
En þá að leiknum á sunnudag og er líklegt byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Kjartan Sig, Jón Guðbrands, Einar Ottó, Gummi Tóta, Ingó Tóta, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór.
Líklegt byrjunarlið Fylkis er Andrew Bazi, Andrés Már, Þórir Hannesson, Kristján Valdimars , Tómas Joð, Ásgeir Börkur, Valur Fannar, Andri Þór, Pape Mamadou Faye, Albert Ingason og Jóhann Þórhalls. Fjalar Þorgeirs missti sæti sitt í byrjunarliðinu eftir að hafa fengið 3 mörk á sig úr hornum í síðustu tveimur leikjum. Einar Péturs hefur líka verið að fá færri sjensa en í byrjun og spurning hvort hann komi aftur inn.
Síðustu sex leikir liðanna í deild líta svona út, síðasti leikur er aftast. S er sigur, J er jafntefli og T er tap.
Selfoss : T-T-T-T-T-J
Fylkir : T-J-T-T-S-J
Afmælisbarn dagsins er aðstoðarþjálfari Selfoss Ómar Valdimarsson, en hann verður 40 ára þann 18. júlí. Áhorfendur beggja liða mega endilega syngja fyrir kallinn, enda átti hann mörg af sínum bestu árum í Árbænum þar sem hann sem fyrirliði Fylkis leiddi þá til sigurs í bikarkeppninni. Svo mun Ómar, ef ég þekki hann rétt bjóða stuðningsmönnum beggja liða upp á einn ískaldann á Blásteini eftir leik.
Dómari leiksins er klárlega einn af bestu dómurum landsins. Gunnar Jarl Jónsson er búinn að fara hratt upp í hæsta styrkleikaflokk dómara, enda hefur hann alla burði til að fara alla leið í þessu, hann les leikinn vel og hefur egóið í þetta. Honum til aðstoðar á sunnudag verða þeir Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson. Eftirlitsmaður á sunnudag verður Þórður Georg Lárusson.
Heimasíða Fylkis er nokkuð góð, fínt spjallborð og heitasta fréttin er sú hvort Gylfi Einarsson sé að snúa heim. Hér er hægt að skoða heimasíðuna hjá fylkismönnum.
Það verða einhverjir berir að ofan í stæðunum við Fylkisvöll á sunnudaginn því það verður ca 19 stiga hiti, logn og alveg þurrt.
Tómas.
Næsti leikur Selfyssinga í Pepsideildinni er jafnframt síðasti leikur í fyrri umferð sem þýðir það að mótið er hálfnað. Þessi leikur er sannkallaður 6 stiga leikur því við mætum Grindvíkingum, sem eru stigi fyrir neðan okkur í 11. sæti. Selfyssingar töpuðu fyrir Blikum og Grindavík tapaði fyrir KR í síðustu umferð og er óhætt að segja að bæði lið hafi verið nokkuð óheppinn að fá ekki eitthvað út úr þeim leikjum.
Það eru ráðherrar samgöngumála sl. 20 ára sem koma í veg fyrir að um nágranaslag sé að ræða, en ítrekuð kosningaloforð um fullbúinn suðurstrandaveg hafa verið svikin. Samt sem áður eru einhver sérkennileg vinarbönd á milli bæjarfélaga á suðurlandi og á suðurnesjum.
Liðin hafa alls mæst 23 sinum í opinberum leikjum á vegum KSÍ sem einhverjar heimildir eru til um. Grindvíkingar hafa betur, hafa unnið 12 leiki, 4 hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 7 leiki. Mestu munar um ömurlega frammistöðu gegn Grindvíkingum á þriggja ára tímabili frá ´91-´94, en þá leku liðin 6 leiki sem Grindvíkingar unnu alla og voru með markatöluna 21-0 úr þeim.
Árið 1978 tryggðu Selfyssingar sér sæti í b-deild eftir eftirminnilegt sumar. M.a var leikið við Grindavík í Grindavík og skoruðu heimamenn sigurmarkið í lokin. Línuvörður leiksins flaggaði og vildu Selfyssingar meina að um rangstæðu hefði verið að ræða, en svo var víst ekki og var línuvörðurinn eingöngu að fagna marki Grindvíkinga enda harður stuðningsmaður þeirra. Eftir leik rifnuðu föt þjálfarans í nettum átökum við stuðningsmenn Grindavíkur og væri því snjallt hjá Gumma Ben að mæta ekki alveg í sínu fínasta í kvöld.
Selfyssingar unnu sinn stærsta sigur á Grindvíkingum árið 1985, er þeir tóku þá 5-0 eftir að staðan hafði verið 4-0 í hálfleik. Mörk Selfyssinga skoruðu þeir Sumarliði Guðbjartsson 2, Páll Guðmundsson, Gunnar Garðarsson og Daníel Gunnarsson (pabbi Helga Vals) eitt mark hver.
Liðin hafa leikið tvo leiki í Deildarbikarnum á síðustu árum, þann fyrri árið 2008 sem fór 1-1 og má sjá leikskýrslu hér og umfjöllun hér. Svo léku liðin í fyrra og má lesa um þann leik hér og sjá leikskýrslu hér.
Nokkrir gaurar hafa gengið á milli félagana tveggja. Guðlaugur Örn Jónsson lék með Selfoss ´98-´99. Hörður Hilmarsson hefur líka komið mikið við sögu hjá báðum liðum og reyndar komið ótrúlega mikið við sögu í þessum pistlum og hef ég það stundum á tilfinningunni að hann hafi þjálfað fleiri lið en Einar Friðjófs. Snillingurinn Sigurbjörn Daði Dagbjartsson lek með Selfoss 1999 og 2000 og náði sér í toppkonu hér á staðnum sem hann er giftur í dag og mættu leikmenn annarra liða sem undirritaður hefur talað við hafa það í huga.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Jón Sveins, Agnar Bragi, Kjartan Sigurðsson, Guðmundur Þórarinsson, Ingó Tóta, Einar Ottó, Jón Guðbrands, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór. Arilíus kemur úr banni og gæti komið inn, eins eru einhverjir að koma úr meiðslum, en enn óljóst með þá.
Líklegt byrjunarlið Grindavíkur er: Rúnar, Loic Ondo, Orri, Auðunn Helga, Jósef, Scot Ramsey, Matthías, Jóhann Helga, Páll, Grétar Hjartar og Gilles Ondo.
Aðaldómari leiksins er Erlendur Eiríksson og honum til aðstoðar eru þeir Gylfi Már Sigurðsson og Jón Magnús Guðjónsson. Eftirlitsmaður suður með sjó verður Jón Sigurjónsson.
Grindvíkingar eru með sæmilega heimasíðu þar sem ungmennafélag staðarins heldur upp fjörinu. Hér er hægt að fara inn á heimasíðuna. Spjallborðið liggur niðri, en undirrituðum var farið að hlakka til að kíkja þangað því ef einhverjir kunna að rífa kjaft þá eru það Grindvíkingar.
Veðrið á leikdag er miðað við legu staðarins gott. Þar verða ekki nema 8 m á sek, léttskýjað, þurrt og hiti 11 stig.
Tómas.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



