| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Það gleymdist að geta þess að Árni Páll fékk feiknar astmakast í leiknum. Árni gleymdi lyfjunum heima og var ekkert sérstaklega að taka það fram, en allt fór vel og skokkar hann nú um grænar grundir Huelva.
Allt virtist þó stefna í annað astmakast hjá Árna í gær, er hann í byrjun æfingar greip um hálsinn, leit á þjálfarann, hóstaði tvisvar mjög snöggt og datt í grasið. Er Árni Páll lá í grasinu endurtók hann kastið leit aftur í augu þjálfarans með svip þess sem er við það að deyja. Gummi öskraði á Trausta sjúkraþjálfara sem daginn áður hafði verið hans björgunarhringur. Þá stóð Árni Páll eld snökt upp, sagðist hafa gleypt flugu og sannaði það með því að galopna á sér munninn.
Steini Púlla og Jón Sveins gerðu kjarakaup er þeir lentu á Spænskri útsölu þar sem yfirskriftin var „með hveri seldri skyrtu fylgir ein barnaskyrta frítt með“ Tannlæknastofan fékk svo nótu og skattinn til baka.
Gummi þjálfari vill heldur sitja í taustólunum, því fæturnir dingla svolítið í bambusstólunum.
Jón Guðbrands hin nýi hefur tekið sig til að hjólað á nokkrar æfingar, en æfingasvæðið er rúmum sjö km frá hótelinu.Nýi Jón er að standa sig vonum framar hér á Canela en fær stundum helvíti mikla leið á nýja Jóni.
Lokavígsluathöfnin fyrir þá Kjartan og Davíð fór fram í gær. Byrjað var með hefðbundinni krabbameinsleit í eistum. Strákarnir stóðu sig vel við að leita að æxli hjá hvor öðrum og gagnkvæm virðing var og leitin öll til fyrirmyndar og reyndar svo mikillar fyrirmyndar að Gunni Borgþórs stakk uppá því að þeir fengju að leita að krabbameini í blöðruhálskirtli hjá liðinu.
Dóri markmannsþjálfari má ekki hitta útlending í sundlaugargarðinum þá heldur hann að það sé umboðsmaður að fylgjast með ungu strákunum okkar.
Sú hefð hefur skapast hjá Selfossliðinu að sá sem mætir of seint á æfingu syngur lag. Kjartan fékk fyrstur að syngja í Kórnum Kópavogi fyrir um mánuði síðan og valdi að syngja lagið Nína. Síðan þá hafa allir tekið sig á og engin mætt of seint. Davíð lenti þó í því að mæta of seint á æfingu í dag og Jón Daði fór fram á að hann yrði látinn syngja eitthvað annað en Nínu, því allir væru komnir með hund leið á því. Davíð söng Bahama.
Siggi Eyberg taldi það sniðugt að fara á puttanum frá æfingasvæðinu heim á hótel einn daginn. Skrækur Spánverji tók hann uppí og Siggi er nú upptekin við að skrifa handrit að myndinni „runaway child“
Ungir vs gamlir spiluðu í dag. Fyrir leikinn settu Jón Daði og Gummi Tóta majones í tóman sólarvarnarbrúsa. Henning var fyrstur til að maka því framan í sig og svo komu þeir Andri Freyr og Siggi Eyberg hér eftir nefndur Siggi majones og böðuðu andlitinu upp úr majonesi. Leikurinn í ár var rökrétt framhald af 3-1 sigri yngri leikmanna í fyrra. Þess má þó geta að sigurinn í fyrra var fyrsti sigur yngri leikmanna á þeim eldri. Leikurinn í ár endaði 8-2 fyrir unga. Mörk þeirra skoruðu Gummi Tóta, Jón Daði, Davíð Birgis, Árni Páll, Agnar Bragi, og Andri Freyr. Leikurinn var það hraður að aðspurðir sögðust allir ofantaldir hafa skorað á bilinu 2-3 mörk. Mörk eldri leikmanna skoruðu þeir Sævar Þór og Jón Sveins.
Í fyrramálið fer undirritaður ásamt Þorsteini Pálssyni að skutla þeim Stefáni Ragnari og Gumma Ben til Sevilla, en þaðan ætla þeir að fljúga til Monako, Gummi með millilendingu í Barcelona og Stefán með millilendingu í Madrid. Stefán Ragnar hefur verið boðaður til æfinga hjá Monako og Gummi mun fylgjast með æfingum liðsins.
Hópurinn fer svo allur heim seinnipart mánudags, helmingur í gegnum Faro og helmingur í gegnum Sevilla. Áætluð heimkoma er kl 02.00 aðfaranótt þriðjudags og er það rúta frá Gumma Tyrfings sem sækir mannskapinn í Leifsstöð og kemur honum á Selfoss.
Líkt og fram kom í Sunnlenska og fleiri fjölmiðlum í vikunni eru línur farnar að skýrast hvað varðar byggingu á nýrri stúku og aðstöðu fyrir áhorfendur við Selfossvöll. Stuðningsmannasíðan sat á sér að „skúbba“ fréttinni en í staðin látum við fylgja með myndir af teiknungum og stuttu viðtali við Tómas Ellert Tómasson fyrrum leikmann Selfoss og annan eiganda Verkfræðistofu Árborgar, en Ellert sá um hönnun stúkunnar.
.
Forsagan á þessu máli er sú að þegar Selfoss komst upp í 1.deildina varð fljótlega ljóst að vallaraðstæður á Selfossi væru langt frá því að vera viðunandi. Goðsagnakend stúkan við aðalvöllinn þótti ekki boðleg, fjölmiðlaaðstaðan rúmaði bara einn mann og í kringum völlinn var ljót drullu hlaupabraut sem var fyrir lifandis löngu orðin barn síns tíma. Þetta varð bara helmingi meira óviðunandi skv. ströngum reglum KSÍ eftir að Selfoss tryggði sér sæti í efstu deild. Blessunarlega var búið að ákveða að næsta landsmót UMFÍ í frjálsum íþróttum verði haldið á Selfossi og því ljóst að umtalsverðar endurbætur ættu eftir að eiga sér stað á íþróttasvæði Selfyssinga til að geta haldið svo stórt mót sómasamlega árið 2013. En lítið hefur verið gert við völlinn síðan síðast var haldið landsmót á Selfossi utan þess að nýlega var lagður þar gervigrasvöllur.
.
Þannig að líklega hefur þetta allt unnið saman að því að ákveðið var að bæjaryfirvöld ákváðu að öll uppbygging á „nýju“ íþróttasvæði bæjarins færi fram á sínum stað í hjarta bæjarins og að ekki ætti að blanda saman frjálsíþróttavelli og knattspyrnuvelli heldur gera sitthvoran völlinn. Enda er sjálfur Laugardalsvöllur nægjanlega stórt minnismerki um það hversu vitlaust það er að blanda saman þessum íþróttum og láta hlaupabraut ýta áhorfendaaðstöðunni lengst frá vellinum svo það verði alveg örugglega ekki stemming á leikjunum.
Hér má sjá gott dæmi um hrapalega misheppnaðan, nýuppgerðan „knattspyrnuvöll“.
.
Svona á ekki að gera þetta á Selfossi heldur var fengið Verkfræðistofu Árborgar til að teikna stúku sem staðsett verður á milli gervigrasvallar og fótboltavallarins þannig að hún nýtist báðum völlum og hefur Tómas Ellert setið sveittur yfir því undanferið og stendur málið nú þannig að í næstu viku er áætlað að framkvæmdir hefjist á stúkunni og fljótlega verður farið í útboð fyrir uppsteypu stúkunnar ásamt uppbyggingu frjálsíþróttavallarins. Þar verður boðin út vinna við frárennsli, malbikun og yfirlagningu gerviefnis á hlaupabrautir. Það er semsagt búið að bjóða út jarðvegsvinnuna og skila aðilar af sér sínum tilboðum á þriðjudaginn næsta og ættu framkvæmdir því að geta hafist strax í lok vikunnar (ef við skiljum þetta rétt). Útboði á byggingu stúkunnar sjálfrar ætti síðan að vera lokið í kringum 25.mars.
.
Nú þegar er búið að vinna mikið af þeim framkvæmdum sem gera þarf á vellinum, upphitaður gervigrasvöllurinn kom fyrir nokkrum árum og hefur reynst mjög vel, í framhaldi af honum (við F.Su) er kominn fínn fótboltavöllur sem notaður var sl. sumar í 1.deildinni. Við hliðina á honum er frjálsíþróttavöllurinn hugsaður, beint undir fjallinu eina (ass-hól). Að auki er búið að gera fínan grasvöll við Langholtið sem mikið hefur verið notaður undanfarin ár í keppnum yngri flokka.
Aðalvöllurinn er síðan auðvitað hugsaður á sama stað og hann var, nema núna er Sveinn Jónsson (o.fl.) búinn að leggja draglagnir, hitakerfi og lagnir fyrir vökvunarkerfi. Ákveðið var að sá í völlinn til að fá þéttara og betra gras og var fengið sérfræðinga í grasafræðum til annast þá framkvæmd. Fengið var sérvalið grasfræ, sem hentar vel á knattspyrnuvöllum og er það ósk manna að um mitt næsta sumar verði hér einn af bestu knattspyrnuvöllum á landsins.
Hér látum við fljóta með myndir frá síðasta sumri af framkvæmdum við völlinn:


Fyrir ofan er frá því þegar verið var að sá í völlinn og fyrir neðan má sjá hvernig völlurinn var búinn að taka við sér


Samanlagt gera þetta fimm nothæfir knattspyrnuvellir á svæðinu sem teljast verður ansi gott.
.
Eins og staðan er núna í upphafi mars er áætlað að knattspyrnuvöllurinn verði tilbúinn um mitt sumar eða um svipað leiti og fyrsti áfangi stúkunnar verður tilbúin. Fram að þeim tíma mun Selfoss spila á gervigrasinu þar sem bráðabirgðastúku verður komið upp. Blaðamannaaðstaðan verður þó tilbúin fyrir fyrsta leik í deild, en hún mun nýtast fyrir báða velli enda mikilvægt að hafa þetta í lagi fyrir kröfuharða fjölmiðla Dæmi 1 - Dæmi 2 („,)
Til gamans látum við þó fylgja alvöru aðstöðu fyrir fjölmiðla:
Ánægja og skilningur ríkir á meðal allra aðila sem að málinu koma með að leika fyrstu leiki tímabilsins á gervigrasvellinum enda sá völlur mjög góður af gervigrasvelli að vera. Við gervigrasvöllinn er aðgengi eins og best verður á kosið. Að sama skapi er stefnt að því að frjálsíþróttavöllurinn verði tilbúinn um mitt sumar.
En þá að efni færslunnar, nýja stúkan á aðalvellinum verður um 50 metra löng og með 10 sætaröðum. Við fyrsta áfanga verður stúkan steypt upp og 700 sæti sett í hana og blaðamannaturn verður fullbúinn. Auk þess verður salernisaðstaða fyrir áhorfendur tilbúin í fyrsta áfanga, en öfugt við það sem margir Ólsarar gætu haldið kunnum við vel að nota slíka aðstöðu. („,)
.
Í öðrum áfanga sem ekkert búið að setja tímasetning á verður byggt þak yfir stúkuna alla og að auki verða búningsherbergi undir stúkunni, ásamt dómaraherbergi, skrifstofu- og fundaraðstöðu og herbergi fyrir lyfjapróf og læknaaðstöðu.
.
Stúkan verður eins og áður segir staðsett vestan megin við aðalvöllinn, eða á milli aðalvallar og gervigrasvallar og mun því öll innri aðstaða nýtast fyrir báða velli. Ekki verða hlaupabrautir við aðalvöllinn og verður stúkan því staðsett alveg upp við aðalvöllinn eins og lög gera ráð fyrir.
(Smellið á mynd til að sjá hana í stærri upplausn)
.
Hér má sjá framan á stúkuna, skiptist við þetta í fjóra hluta og að mér sýnist 150 sæti – 200 sæti – Inngangur og fjölmiðlar – 200 sæti – 150 sæti. Í kjallara er síðan gert ráð fyrir að öll starfsemi geti farið fram þegar stúkan er fullbúin.
(Smellið á mynd til að sjá hana í stærri upplausn)
.
Efst: Stúkan séð frá Norðurhlið (Tíbrá) og suðurhlið (fjallinu eina)
Miðja: Stúkan séð frá Vesturhlið (frá gervigrasvellinum)
Neðst: Stúkan séð frá Austurhlið (Gesthúsmegin)
.
Að lokum gátum við ekki endað þessa umfjöllum um nýja stúkubyggingu við Selfossvöll án þess að trufla hönnuð stúkunnar örlítið en hann undirbýr sig nú að kappi fyrir prófkjör Sjálfstæðismanna og óskar þar eftir brautargengi hjá flokknum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor:



Þetta er allt einn og sami maðurinn. Mynd 1. er frá 1985. Mynd 2. er frá 1995 og Mynd 3. frá 2005.
.
Blm: Sæll Ellert, hvað er að frétta?
TET: Þræsingur og seglin þanin.
.
Blm: Nú er stúkan kominn af teikniborðinu og samkvæmt fréttum á að byrja á henni í næstu viku, hvað skiptist byggingin í marga hluta og hvað er í þeim fysta?
TET: Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir að hún verði a.m.k. steypt upp og sett sæti. Það fer síðan eftir því hve hagstæð tilboðin verða frá verktökum hve mikið verður gert að þessu sinni. Ég vona að það fari að rofa fljótlega til í fjármálum sveitarfélagsins svo hún verði kláruð að fullu sem fyrst.
.
Blm: Er raunhæft að ætlast til þess að stúkan verði kominn upp fyrir heimaleikinn gegn Breiðabliki 5 júlí? Ef ekki hvenær má búast við því að hún verði klár
TET: Bæjarráð samþykkti nú í upphafi árs að setja rúmar 80 milljónir í framkvæmdafé fyrir íþróttasvæðið á þessu ári, hluti af því fé á að fara í stúkuna. Framkvæmdatími á þessum fyrsta áfanga ætti ekki að vera meiri en 6 vikur frá því byrjað er að grafa. Mannvirkið á eftir að fara sína hefðbundnu leið í gegnum kerfið og fá tilskilin leyfi. Ég hef ekki trú á öðru en að það verði leyst fljótt og vel, því ég skynja að núverandi bæjarfulltrúar og viðkomandi yfirvöld eru þess fullkomlega meðvituð að það sé algjörlega óásættanlegt að það sé einhver hætta á því að Selfoss spili ekki heimaleiki sína á Selfossi. Þannig að ef allt gengur eftir, þá ætti framkvæmdum við fyrsta áfanga að vera lokið í maí.
.
Blm: Mun stúkan eitthvað nýtast fyrir gervigrasvöllin?
TET: Já, búningsklefar og áhorfendaaðstaða nýtist einnig gervigrasinu. Það gert er ráð fyrir því að það komist 200-300 manns fyrir í stæði á efsta palli undir þaki og einnig er óráðstafað lokað upphitað rými á annari hæð yfir gangi með stórum gluggum, sem nýta má sem áhorfendaaðstöðu á köldum dögum.
.
Blm: Hvað er ca. kostnaðurinn við þennan fyrsta hluta af stúkunni?
TET: Ekki uppgefið, verktakar eiga eftir að bjóða í verkið. Ég get þó gefið það upp, að kostnaðurinn verður ekki sá sami og áætlað var síðasta sumar að nýtt stúkumannvirki myndi kosta.
.
Blm: Hvað kemur stúkan til með að kosta fullbúin?
TET: Sjá svar við spurningu á undan.
.
Blm: Til að lesendur fái betri ímynd af stúkunni hvaða öðrum stúkum á landinu líkist hún einna helst?
TET: Engri og öllum, þetta er fyrst og fremst SELFOSS lúkkið og hún verður þekkt fyrir það.
.
Blm: Er þessi stúka ekki næst síðasta púslið í stórglæsilegt íþróttasvæði (þurfum bara að ná í fjölnotaíþróttahúsið á Stokkseyri)?
TET: Það eru fleiri púsl eftir til að þetta verði glæsilegur íþróttaleikvangur. Verð samt að nota tækifærið hér og hrósa bæjaryfirvöldum fyrir að vinna að uppbyggingu leikvangsins hér í miðju Selfoss.
.
Blm: Sem gamall stormsenter, hvernig er tilfinningin fyrir sumrinu?
TET: Tár, bros og takkaskór.
.
Blm: Kærar þakkir fyrir þetta, eitthvað að lokum:
TET: Að lokum þetta:
.
Yfirlýsing í tilefni dagsins:
Ég verð að lýsa undrun og furðu á þeim vinnubrögðum umsjónarmanna Selfoss.org á því að ég skuli ekki vera spurður “með hvaða liði ég haldi í enska”. Ef fólk vill deila um það hvort þessi spurning á að vera borin upp við viðmælendur Selfoss.org, hvort hún sé undarleg eða eðlileg, þá er nærtækt að skrifa áhugaverðar akademískar greinar um málið. Staðreyndin er hins vegar sú að þessa spurningu á að bera fram. Það er vanvirðing við viðmælendur sem vilja fá að upplýsa lesendur Selfoss.org um málið að gera lítið úr henni; og það er vanvirðing yfirleitt að gera lítið úr lýðræðislegum rétti almennings til að upplýsa um það, rétti sem fólk um allan heim hefur látið lífið fyrir. Og fyrst það á að bera spurninguna upp þá má ekki spyrja hennar á þann hátt að hún verði merkingarlaus. Þegar ég er spurður að því með hvaða liði ég held í enska, þá er svarið einfalt! stórveldið Ipswich Town.
.
Eftir að hafa flissað duglega yfir baggalútslegri yfirlýsingu hannaðarins sem líkist „furðu“ mikið þessu kvabbi hér, þökkum við Ellerti kærlega fyrir greinagóð svör og að því er virðist stórglæsilega stúku. Að auki biðjumst við innilegrar afsökunnar á að hafa yfirsést að spyrja svo mikilvægrar spurningar, yfirsjónin er þó kominn til að tveimur ástæðum! Annarsvegar veit hvert mannsbarn að Tómas Ellert og Ipswich Town eru eitt og hið sama og hinsvegar að venjan er að þetta er heiðurspurning fyrir þann er fær að sýna á sér hina hliðina, en það er heiður sem margir þurfa að bíða lengi eftir að hljóta (að því sögðu þá er Tobbi Hjalta hvattur til að skila af sér sinni hlið).
.
Selfoss.org
Babu & Máser.
Á morgun kl: 11:00 mun meistaraflokkur karla etja kappi við lið Breiðabliks, eina liðsins í Breiðholtinu. Breiðablik sem í dag fagnar 60 ára afmælinu sínu eru jafnan mjög sterkir á vorin og því ljóst að verkefni morgundagsins er nokkuð strembið. Eins er stórdansleikur um kvöldið í Smáranum í tilefni af afmælinu og því jafnvel von á stemmingu innan þeirra raða.
.
Leikurinn verður háðurí Fífunni Kópavogi og er um að gera fyrir knattspyrnuáhugamenn að skella sér þanngað og sjá hvernig staðan er á stráknum núna. Núna fer undirbúningstímabilið að fara á fulla ferð og stutt er í deildarbikarinn og því eins gott að menn verði í standi þegar þar að kemur og þannig klárir í maí þegar fjörið byrjar svo.
.
Til að gera leikinn ennþá meira spennandi verður frumsýndur nýr leikmaður sem verður til reynslu, það ku vera sænskur sóknarmaður (Línus) sem er á aldur við Stefán Ragnar og er koma hans hingað að einhverju leiti í gegnum Pétur Robba sem þjálfaði þennan strák úti í Svíðþjóð. Ekki er mikið vitað um þennan leikmann annað er að hann hefur verið á mála hjá Örgryte og hljómar mjög spenntur fyrir Íslandi og hefur verið að heilla þá sem séð hafa til hans hér. Honum lýst vel á aðstæður á Selfossi og vill spila í efstu deild hér á landi.
.
Til gamans má geta þess að Ingó Tóta og Jói markmaður fóru á trial hjá Örgryte einu sinni og var Ingó t.a.m. í 6 mánuði á mála hjá klúbbnum og talar tungumálið alveg reiðbrennandi. Það vel að ég held að hann er að passa í kvöld („,)

Á mynd má sjá Sænskan sóknarmann og átrúnaðargoð.
.
Annars staðan á hópnum ekki alveg vituð og töluvert er ennþá um meiðsli meðal lykilmanna í hópnum, Sævar Gísla hefur verið að ná sér eftir aðgerð og var bara að mæta á sína fyrstu æfingu núna í kvöld. Henning er eitthvað meiddur (vöðvafesting eitthvað tæp, getur joggað og þannig en ekki sparkað), Ottó var nýlega í aðgerð (öxl) og verður frá í rúman mánuð í viðbót, Bragi er ennþá að reyna að jafna sig á hjólhestaspyrnutilraun sinni frá því í haust og er því ennþá á meiðslalista, Elli markv. er veikur og Birkir Hlyns er meiddur. Þá er Jón Sveins tæpur en verður þó líklega með.
.
Það er því nokkuð strembið að reyna að giska á líklegt byrjunarlið hjá okkar mönnum en við reynum þetta þó:
Siggi Eyberg – Jón Guðbr. – Stebbi Raggi – Andri Feyr
Jón Daði – Gummi Tóta- Ingó Tóta – Ingi Rafn
Tomas Brolin – Alli
Þetta er að sjálfsögðu bara skot algjörlega út í loftið og birt algjörlega án ábyrgðar. Ingþór Guðmunds er mjög líklega í byrjunarliðinu og á undirritaður t.a.m. eftir að fá að heyra röfl frá Ingó fyrir að hafa ekki tippað á sig í byrjunarliði!
.
Eins þurfum við kannski Guðbrands upp á miðju í þessum leik í fjarveru Ottós og Hennings. Hvort hann geti eitthvað í miðverði veit ég ekki en veit þó að það er gáfulegri hugmynd heldur en Víkingar voru með þegar þeir settu hann í sóknina!!! Fullt af öðrum mögulegum kostum en sjáum hvað setur.
.
Allir í Fífuna á morgun
.
Babú
Fáar fréttir berast af leikmannamálum Selfossliðsins.
Við erum þó ekki að fylla liðið af hasbeens og leikmönnum sem eiga heima í einu sinni var flokknum í sparkinu.
Góðu fréttirnar eru þær að Andri er búinn að skrifa undir nýjan samning svo hann verður áfram og vonandi verður gengið frá öðrum lausum samningum á næstunni.
Já og Kobe beef er farinn upp á Skaga, óskum við honum alls hins besta, þótt hann sé náttúrulega alltof góður til að spila með svona liði eins og ÍA.
***Update*** Henning er líka búinn að framlengja svo það eru fáir lausir endar hjá okkur.
…að Kjartan Björns hyggist halda hjartnæma ræðu á Herrakvöldi í kvöld.
…að Óskar Sig ætli alls ekki að gera slíkt hið sama (“,)
…að Tommi Þórodds hafi farið í kerfi þegar hann frétti af lokun McDonalds. “Svo góðir kokkar þar” er haft eftir Tomma, sem nú hyggst opna nýjan stað í kjölfar þessa, Tomma Hamborgara!!
…að Sævar Gísla sé meiddur, Sveinbjörn Brands sagði honum að taka því rólega á næstunni. Af þessum sökum verður blessunarlega ekkert stripp á Herrakvöldi.
…að Leó Árna hafi skorað á Má Más á skallatennis á miðnætti í kvöld á Hvíta Húsinu.
…að Elvar Gunn ætli sér á gott trúnó með Gumma Ben fyrir 23:00
…að Einar Bárða hyggist kaupa restina af malarvellinum í kvöld.
…að Sævar Sig muni taka við Kórnum á Selfossi (þar sem að sr. Gunnar er farin)
…að Ingó muni ekki vera á hinum 4 metra langa Gestalista
…að Eyberg hafi gengið á berg með dverg við Kiðjaberg
…að Guðbrandsson ætli loksins að sleppa af sér beislinu og fá sé jafnvel nokkra kalda
…að Valli Reynis ætli að fá sér einn Thule og gera allt vitlaust
…að Jói mark muni koma við í Guðnabakaríi áður en hann komi á herrakvöldið
…að Gísli Bjöss verði með Túlk með sér upp á sviði í ár
…að Elli muni vera með Herbalife sölubás á annari hæð í Hvíta
…að Ingþór hafi skellt sér í aflitun fyrir kvöldið
…að Einar Glans verði uppi með stand.
…að Einar Ottó sé kominn með Sýn
…að Hjörtur Hjartar hafi losað vig við 1,5 kíló í vel heppnaðri klósettferð á þriðjudaginn
…að Vignir Egill verði með beina lýsingu frá Herrakvöldinu á Suðurland FM
í dag opnar félagaskiptaglugginn og allt fer á fullt. Nokkuð ljóst er að það verður hamagangur á hóli og nokkrir stórir bitar sem bitist verður um.
Haukar eru búnir að tryggja sér Guðmund Mete og Kristján Ómar Björnsson og næsta víst er að Arnar „við eigum ekki að tapa fyrir svona liði“ Gunnlaugsson fari líka þangað. Bjarki fer þó væntanlega bara í endurhæfingu á Grensás.
Einhverjar breytingar verða hjá íslandsmeisturum FH. Daði Lár farinn og Gulli Gull kominn, þá hefur maður heyrt að þeir séu eins og Páll Óskar og hafi áhuga á öðrum hverjum leikmanni á markaðnum.
Valur og KR verða væntanlega eins og síðust ár með allar klær úti því þeir nenna ekki að ala upp leikmenn sjálfir, Willow trekkir varla mikið af leikmönnum til Kebblavíkur, ÍBV er að missa sína sterkustu menn og Fram virðist vera rólegt á markaðnum enda á Hannes Smárason enga peninga, ekki einu sinni nóg fyrir dæetkók.
En hvað eigum við að gera. Annar hver ellilífeyrisþegi í úrvalsdeildinni hefur verið orðaður við okkur, Sigurbjörn Hreiðars, Tryggvi Gunn, Ríkharður Daða, Ríkharður Jóns, Hemmi Gunn og Patrick Viera.
Það hefur sést til glókolls frá Stokkseyri á æfingum undanfarið og hefur hann farið mikin þar. Gummi verður nú væntanlega með eitt sísón en hvað með miðju og vörn, þurfum við að bæta við þar stórkanónum eða bara að bólstra liðið?
Mín persónulega skoðun er sú að liðið sem fór upp sé alveg nógu gott til að halda sér uppi en ég væri til í að sjá kover í miðvörðin og hægri bak jafnvel kantara, það væri svo náttúrulega draumur í dós að fá Börkinn og Viðar heim.
En tjáið ykkur, hvar þarf styrkingu.
Gróa á leiti leit við á fótbolta.net í dag og fór á kostum á kaffistofunni…


„Við ætlum okkur að spila með Tryggva G og……“
Þetta sagði Gróa orðrétt
Selfoss: Guðmundur Benediktsson, nýráðinn þjálfari Selfyssinga mun væntanlega fá reynslubolta með sér til félagsins. Sigurvin Ólafsson, Sigurbjörn Hreiðarsson og Tryggvi Guðmundsson hafa verið nefndir í því samhengi. Árni Freyr Guðnason leikmaður ÍR er einnig á óskalista Selfyssinga eins og hjá mörgum öðrum liðum og þá eru nýliðarnir að leita að miðverði en Guðmann Þórisson hefur verið nefndur í því samhengi.
Þetta er nokkuð áhugavert þó ég efist nú um að það sé mjög mikið til í þessu. Sigurbjörn Hreiðars er mikill snillingur og frábær félagsmaður, hann er líka HR. Valur ef svo má segja og það væri því fyndið að fá hann í Selfoss. Að fara í Selfoss væri líklega ekkert versta move sem Bjössi myndi gera á þessum tímapunkti og ef af þessu yrði þyrfum við félagarnir líklega að búa til nýjan bol (til móts við Burt með ránfuglinn) Við þurfum ekki endilega byrjunarliðsmann á miðjuna og Bjössi myndi klárlega styrkja hópinn.
Varðandi Tryggva Guðmunds þá myndi það alveg skemma lagið!!! „Við ætlum okkur að spila með Tryggva G“. Jú jú þetta gæti alveg gengið. Veit samt ekki alveg hvað það er þörf á mörgum gömlum jálkum. En ef hungrið er ennþá til staðar þá er Tryggvi fjandi góður.
Sigurvin Ólafs er bara ekkert að koma í Selfoss, ég var í gær að lesa viðtal við hann um hvort hann nennti að fara upp með Gróttu og hlusta á fjasið í Binna Bjarna eitt ár í viðbót.
Guðmann Þórisson væri að ég held ágæt viðbót við miðvarðaparið, þó ég sjái ekki fyrir mér að Agnar og Stebbi Raggi verði slegnir út þar. Annars minnir mig bara að þetta sé miðvörður frá Breiðablik, er ekki alveg viss.
Er Árni Freyr svo sóknarmaðurinn sem fór til eyja og til baka í sumar?
.
Svo að lokum þá var hann Agnar Bragi orðaður við Fylki aftur og því miður Bragi minn þá er það ekki í boði, Gróa á Leiti var líka full þegar hún hélt þessu fram.
Hvað ættum við þá líka að gera við Sindra greyið?
.
Í guðanabænum skiljið eftir ykkar skoðanir („,)

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



