| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Unnið að mestu úr grein á Sunnlenska.is (sem ég gerði reyndar líka).
Selfoss og Þróttur Reykjavík skildu jöfn í fyrri leik liðanna í undanúrslitum 1.deildar kvenna. Lokatölur voru 1-1 og því ljóst að um hörkuleik verður að ræða í Laugardalnum næstkomandi miðvikudag enda tryggir sigurvegari þessa einvígis sér sæti í efstu deild á næsta ári.
Helena gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir þennan leik, Veronika var t.d. ekki með og í stað hennar kom bara ynga módelið af henni í miðvörðin eins var Anna María færð í bakvörðin til að kljást við fljóta kantmenn Þróttara, liðið var því svohljóðandi:
Liðið var svona:
Bekkur: Aníta G, Íris, Guðbjörg, Fransiska og Sif
Thelma Sif var djúp á miðjunni og Anna Þorsteins aðeins fyrir framan hana. Aníta Lísa var svo á mið miðjunni á meðan Eva Lind og Gumma voru mun framar. Þ.e.a.s. þessi liðsuppstilling er kannski ekki alveg 100% rétt enda takmörk fyrir því hvað ég er snjall í word press. Eva Lind og Gumma skiptust á að vera á hægri og vinstri kanti og hlupu allann leikinn í kringum Olgu sem beið eins og hrægammur á teignum.
Leikurinn fór annars rólega af stað og greinilegt að mikið lá undir, sól og blíða var á Selfossi og aðstæður hinar ágætustu fyrir um 400 áhorfendur sem lögðu leið sína á gervigrasvöllinn. Eftir 26.mínútna leik tókst Selfyssingum þó að brjóta varnarmúr gestana á bak aftur er hin stórefnilega Guðmunda Brynja Óladóttir lagði boltann örugglega í netið eftir frábæra undirbúning frá hinni 15 ára Evu Lind Elíasdóttir. Fimm mínútum seinna var heimaliðið ljónheppið að fá ekki dæmt á sig víti er Margrét Hólmgeirsdóttir komst í gegn og virtist ná að sparka í boltann á undan Dagnýu Pálsdóttir markmanni Selfyssinga. En dómarinn Smári Stefánsson var með allt sitt á hreinu og dæmdi einungis hornspyrnu við litla hrifningu Þróttara.
Þróttarstúlkur mættu sprækar í seinni hálfleikinn og er rúmlega korter var liðið af honum komst Margrét Hólmgeirsdóttir ein í gegn eftir gott hlaup upp vinstri kantinn og lagði boltann af öryggi í fjærhornið án þess að Dagný markmaður næði að koma neinum vörnum við. Eftir jöfnunarmarkið var leikurinn tiltölulega rólegur, Dagný í markinu þurfti varla að koma við boltann það sem eftir lifði leiks og Selfyssingum gekk illa að sækja að marki gestanna fyrir utan tvær úrvals tilraunir frá Guðmundu Brynju. Fyrra færið kom eftir frábæra sendingu frá Önnu Þorsteinsdóttir sem sendi Guðmundu eina í gegn en Ása Aðalgeirsdóttir markmaður Þróttar var vel á verði. Seinna færið kom síðan í uppbótartíma er Guðmunda átti hörkuskot fyrir utan teig sem Ása markvörður gestana varði meistaralega.
Niðurstaðan því 1-1 jafntefli í hörkuleik.
Næsti leikur er á fáránlegum tíma í Laugardalnum, á miðvikudaginn klukkan 17:30 og rétt úrslit í þeim leik gætu þýtt sæti efstu deild og því óhætt að hvetja alla sem mögulega eiga á því kost að mæta á völlinn.
Babú
Stelpurnar unnu baráttuglatt lið Fjölnis nokkuð örugglega í toppslag B-riðils í kvöld, lokatölur voru 3-0 og vakti helst athygli að í liði Selfoss var Olga Færseth ein mesta markamaskína íslandssögunnar mætt í stað Katrínar sem sleit krossband fyrir stuttu og verður ekkert meira með liðinu í sumar. Dugir ekkert minna til enda Katrín farið hamförum í sumar.
Liðið var svona:
Bekkur: Brynja V, Aníta Guðlaugs, Íris Sverrisd (inn 65.mín), Bríet Ómars (inn 71.mín), Guðbjörg Una (inn 61.mín)
Það tók Olgu enda ekki langan tíma að minna á sig því eftir um kortersleik flikkaði besti maður vallarins Guðmunda Óladóttir boltanum innfyrir á Olgu sem þurfti ekki annað en leggja hann í netið. Vel gert hjá báðum og vel fagnað af ágætum fjölda áhorfenda sem mættu á völlinn í þetta úrvals fótboltaveður sem var á Selfossi í kvöld.
Tíu mínútum seinna átti Anna María ágætt skot sem hafnaði í stönginni á Fjölnismarkinu. Gestirnir bökkuðu nokkuð aftarlega í leiknum og gáfu fá færi á sér og gekk Selfyssingum nokkuð erfiðlega að finna glufu á vörn gestanna. Að sama skapi var sóknarþungi gestanna enginn og kom ekki skot á Selfossmarkið svo heitið getur fyrr en eftir rúmlega klukkutímaleik. Vörn og miðja hjá okkur var ákaflega traust í leiknum með fyrirliðan Þóru Margréti sem besta leikmann í öftustu línu og Anna Þorsteins stjórnaði leiknum alveg á miðjunni.
Á köflum í leiknum virtist sem stelpurnar hafi saknað Katrínar Ýrar og þeirrar yfirferðar og hraða sem hún býr yfir og væri annað óeðlilegt, en á móti var hin 16 ára Guðmunda út um allt í framlínunni og varnarmenn Fjölnis réðu lítið sem ekkert við hana þegar leið á leikinn. Á 50.mínútu átti hún hörkuskot fyrir utan sem fór framhjá markinu og stuttu seinna átti hún góðan sprett sem endaði með sendingu innfyrir, sendingin var svosem ekkert frábær en það skiptir ekki öllu máli þegar hrægammur eins og Olga Færseth er í teignum og skallaði hún boltann örugglega í netið, 2-0 fyrir Selfoss og game over.
Eftir rúmlega klukkutímaleik var markaskorarinn Olga Færseth tekin af velli undirrituðum til sárrar gremju enda hafði ég tilkynnt framkvæmdastjóranum Sveinbirni Mássyni fyrir leik að hún myndi skora þrennu í þessum leik. Skiljanlegt þó þar sem Olga hefur lítið sem ekkert spilað fótbolta í tæp 2 ár. Á móti hefði hún hæglega getað fengið víti í fyrri hálfleik er hún var fellld innan teigs án þess að nokkuð væri dæmt. Veðmálið við Sveinbjörn því tapað og hlítur hann að launum rútuferð aðraleiðina með SBS til Hveragerðis. Greyið.
Guðmunda hélt áfram að hrella vörn Fjölnis og var oft við það að sleppa í gegn upp á sitt einsdæmi, sem og hún gerði svo á 70.mínútu en lét Dagnýu Valgeirsdóttir ágætan markvörð Fjölnis verja frá sér. Frákastinu náði Íris Sverrisdóttir sem nýlega var komin inna fyrir Olgu og hún rendi boltanum í autt markið og staðan því orðin 3-0 fyrir Selfoss.
Á lokakaflanum komst Guðmunda tvisvar í gegn en lét Dagnýu verja frá sér í bæði skiptin. Þriggja marka sigur því staðreynd í leik þar sem Selfossliðið virtist aldrei spila að fullri getu, Guðmunda skipti sköpum í þessum leik og var klárlega maður leiksins og ekki skemmdi fyrir að hafa Olgu Færseth frammi sem virðist skora bara af gömlum vana. Eins verður að gefa leikmönnum á aftari helming vallarins mikið kredit fyrir þennan leik, það vill því miður stundum gleymast þegar andstæðingarnir ná varla skoti á markið, en þetta Fjölnislið er ágætt og því öflugt að loka svona gjörsamlega á þær.
Stelpurnar hafa þegar tryggt sér sæti í umspili um sæti í efstu deild en eiga þó eftir að fara til eyja þar sem þær spila við ÍBV í hálfgerðum úrslitaleik um efsta sætið í riðlinum. Eftir það er það afar spennandi umspil við Keflavík, Þrótt og auðvitað ÍBV.
Babú
Hvetjum alla til að mæta út á völl á morgun föstudag kl: 19:00 þegar stelpurnar spila síðasta heimaleik sinn í ár (áður en þær hefja leik í úrslitakeppninni) er Fjölnir kemur í heimsókn.

Nú er tækifæri til þess að sjá Olgu Færseth í Selfossbúning í fyrsta skipti en hún gekk í raðir Selfoss á dögunum eins og við höfum áður komið inná. Katrín Ýr er því miður með slitið krossband og mun ekki leika meira í ár.
Stelpurnar fengu rúmlega góðan liðstyrk á síðasta degi félagaskiptagluggans þegar Olga Færseth ákvað að skottast austur yfir fjallið og gera sitt besta til að leysa Katrínu af sem meiddist lítillega um daginn. Allir sem einhvern tíman hafa fylgst með fótbolta þekkja til Olgu, hún er prótótýpan af markaskorara með 267 mörk í 217 leikjum í Úrvalsdeild eða 1,24 mörk í leik, ekki slæmt það, svo er hún líka liðtæk í körfubolta.

Olga í leik með KR.
Stelpurnar fengu líka annan markmann hana Dúfu Dröfn Ásbjörnsdóttur. Hún hefur spilað með Keflavík og Breiðablik í úrvalsdeild en kemur frá Hetti. Hún er líka góð í körfubolta eins og Olga, var fyrirliði hjá Hamri og spilað með unglingalandsliðum í báðum sportum og hefur unnið sér það til frægðar að hafa kennt með mér á Hellu einn vetur, þá má til gamans geta að hún er rauðhærð.

Dúfa í leik gegn ránfuglinum.
Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar og vonandi að þær hjálpi okkur að ná því takmarki að spila í úrvalsdeild á næsta ári.
Það er óneitanlega meira gaman að skrifa um leiki meistaraflokks kvenna en karla akkúrat núna. Stelpurnar eru á blússandi siglingu skora að meðaltali 6 mörk í leik og fá á sig tæplega 1. Þannig að þetta var bara formúluleikur. Engin af fastapennum orgsins komst ekki á hann. Undirritaður var upptekinn við hreiðurgerð(hljómar gay) og Babú hefur verið að leika sér einhverstaðar með prik, bolta og Óla Magna(ennþá meira gay!).
En við höfum náð að súmmera saman smá um leikinn. Stelpurnar byrjuðu víst illa, en það er gamalt trick, mótherjarnir færa sig framar skora mark og halda að Selfossblaðran sé sprunginn og skilja ekkert í því hvað menn eru að pípa um þessa hrikalega litlu ljóshærðu stelpu frammi. En það hefur komið á daginn að hún Katrín Ýr er fljótari en Sævar Gísla miðað við höfðatölu og slúttar betur en Ruud Van Nistelrooy ef sama höfðatala er notuð. Hún smellti tveim mörkum í leiknum, Gumma sem er líklegast eitthvert efnilegasta sparkkvikyndi sem komið hefur fram á Selfossi síðan Palli Guðmunds hélt á lofti í íþróttahúsinu 82 setti líka tvö og svo ein sem gleymist allt of oft, Anna María systir Katrínar setti tvo önnur til að halda meðaltalinu og stelpurnar rúlluðu upp Fram á 50 mínútum sléttum. Stelpurnar ennþá taplaustar og stefna hraðbyri á Úrvalsdeildina þar sem þær eiga svo sannarlega að vera.
Katrín og Anna fagna marki. GK, sunnlenska.is
Það eina sem hægt er að segja eftir þennan leik er einfaldlega. Afhverju gat bróðir Önnu og Katrínar ekki verið góður í fótbolta?
Við tókum hana Anítu Guðlaugsdóttur á tal nú þegar deildin er rúmlega hálfnuð hjá stelpunum og gengi þeirra verið mjög gott í sumar og hafa stelpurnar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Þær eiga því góðan möguleika á því að spila í úrvalsdeild kvenna að ári.
Nú þegar mótið er rétt rúmlega hálfnað hefur kvennalið Selfoss ekki tapað leik og unnið flesta þeirra mjög stórt og sannfærandi. Kemur þér gott gengi liðsins á óvart?
Við vorum með gott lið í fyrra en við erum með enn betra lið í ár. Áður en mótið hófst í fyrra gerðum við ráð fyrir að tapa stigum á móti sterkustu liðunum og settum okkur markmið út frá því en á þessu tímabili hafa stigin ekki verið í mikilli hættu. Riðlarnir í 1. deild kvenna voru mun jafnari í fyrra heldur en í ár. Með því að líta á stigatöflurnar í báðum riðlunum eins og staðan er núna þá lítur þetta út fyrir að vera tveggja liða mót í sitt hvorum riðlinum því samkeppnin virðist ekki vera mikil. Gengi okkar í sumar kemur ekki mikið á óvart því langflestar náðu að æfa vel í vetur og árangurinn eftir því. Við getum ekki verið annað en sáttar með að vera með fullt hús stiga, eiga 4 leiki eftir og vera búnar að tryggja okkur í úrslitakeppnina. En það er meira sem við ætlum okkur og það vonandi gengur eftir.
Nú styrktu þið ykkur ekki mikið fyrir átökin í sumar og spilið mest megnis á heimamönnum og uppöldum Selfyssingum, það hlýtur að vera góð tilfinning og gefur ungum stelpum á Selfossi eitthvað til þess að líta upp til ?
Við fengum nýjan þjálfara í haust sem vildi vinna með þann mannskap sem væri til staðar og treysti okkur fyrir verkefninu. Við erum með Anítu Lísu á láni frá FH og hefur hún smollið vel inn í liðið og verið góð viðbót við hópinn. En annars erum við með svipaðan hóp og í fyrra, nokkrar hættu eftir síðasta tímabil en aðrar hafa stigið upp eftir meiðsli og styrkt hópinn. Helena hefur gefið yngri stelpum úr 3. flokki tækifæri þannig að stelpur úr yngri flokkunum eiga möguleika á að sýna sig þegar tækifærin gefast. Loksins hafa ungar stelpur á Selfossi eitthvað til þess að líta upp til og sjá að 2. flokkurinn er ekki endastöð hér á Selfossi eins og hefur verið í nokkuð mörg ár. Vonandi verður meistaraflokkur kvenna, gott gengi liðsins og metnaðarfullur þjálfari til þess að fleiri leikmenn skili sér upp í meistaraflokk. Það er mikilvægt fyrir frekari uppbyggingu og getum við verið stoltar af því núna að liðið okkar innihaldi nánast eingöngu heimastelpur.
Þið tókuð ÍBV hér heima 3-2 í miklum baráttu leik eftir að hafa lent 1-0 undir, sýnir þessi leikur kannski hvað það er mikill karakter í liðinu?
Leikurinn á móti ÍBV einkenndist af mikilli baráttu og samstöðu í liðinu. ÍBV komst í 1-0 eftir gott spil og smá einbeitingarleysi af okkar hálfu. Við svöruðum því með þýðingarmiklu marki á 43. mín og staðan því 1-1 í hálfleik. Við vorum svo mun ákveðnari aðilinn í seinni hálfleik og skoruðum 2 mörk og staðan var orðin 3-1 á 81. mín. En ÍBV náði að laga stöðuna í 3-2 rétt áður en góður dómari leiksins flautaði leikinn af. Þessi leikur er gott dæmi um hvað það er mikill karakter í liðinu því eftir að ÍBV komust í 1-0 þá lét einn leikmaður ÍBV það út úr sér að þetta væri komið hjá þeim. Við misstum aldrei trúna á verkefninu, spiluðum skipulagðan varnarleik og nýttum færin okkar. Það skilaði okkur sigri á móti sterku liði ÍBV.
Hvernig heldurðu að liðið eigi eftir að plumma sig í úrvalsdeild að ári ef svo verður?
Það er erfitt að segja til um það og sérstaklega með það fyrir augum að sjá nýliðana, Hauka og FH, sitja á botni úrvalsdeildarinnar. Það sýnir að bilið á milli úrvalsdeildar og 1. deildar er þó nokkuð og Selfyssingar ættu að kannast við það úr karlaboltanum. Við eigum efnilegan hóp og erum með þjálfara sem veit alveg út á hvað þetta gengur þannig að ef við förum upp í úrvalsdeild þá væri ekki óraunhæft að fyrsta markmiðið yrði að halda sér í deildinni og síðan væri hægt að byggja ofan á það. Framtíðin er björt í kvennaboltanum á Selfossi og það væri ekki leiðinlegt að enda sumarið á því að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni og taka bikarinn fyrir 1. deildina.
Liðið komst í 8 liða úrslit í fyrra og var hársbreidd frá því að komast í 4 liða úrslit og hefðu þar af leiðandi mætt Völsungi. Selfoss hefði átt góðan möguleika á því að komast upp í úrvalsdeild í fyrra en hefði það verið of snemmt?
Við vorum svekktar í fyrra að klára þetta ekki á móti Haukum og komast áfram því við hefðum átt góða möguleika á móti Völsungi. En það hefði verið of snemmt fyrir okkar unga lið að fara upp í efstu deild með nýstofnaðan meistaraflokk eftir aðeins 1 tímabil í 1. deildinni. Tímabilið í fyrra var góð reynsla fyrir hópinn og hefur nýst okkur í sumar. Við viljum alltaf meira og gera betur og því er ljóst hvert liðið stefnir í ár.
Helena er greinilega að gera góða hluti á Selfossi, hvernig þjálfari er hún?
Helena hefur lyft kvennaboltanum á Selfossi á enn hærra plan sem er frábært fyrir okkur sem leikmenn, fyrir félagið og fyrir stelpurnar sem eru í yngri flokkunum. Það er ekki til í hennar orðabókum að gefast upp, sýna lélega spilamennsku og skora minna en 6 mörk í leikjum ;-) Helena er með góðar æfingar, mikið tempó er á æfingum og svo á hún það til að vera nokkuð léttlynd inn á milli þannig að það er lítið hægt að kvarta yfir þessari blöndu sem þjálfarinn býr yfir.
Það er nauðsynlegt að opinbera það hér á selfoss.org að Helena tók áskorun að ef við myndum vinna ÍBV að þá mættum við láta hana gera allan fjandann. Hún var orðin eitthvað smeyk og gaf okkur stuttan tíma til að finna upp á einhverju þannig að systurnar Veronika og Bríet tóku sig til og fengu sparigallann lánaðan frá mömmu þeirra og Helena stjórnaði okkur á æfingu í þessum glæsilega klæðnaði. Það er ekki hægt að neita því að erfitt var að taka hana alvarlega í þessari marglituðu dragt á æfingunni en hún má eiga það að þetta fer henni afar vel.
Nú eigið þið 4 leiki eftir í deildinni og við tekur svo úrslitakeppnin og stefnir allt í að Selfoss fari í hana, hversu mikilvægir eru þessir leikir sem eru framundan fyrir liðið?
Það varð ljóst eftir sigurinn á móti ÍR að við værum búnar að tryggja okkur í úrslitakeppnina og er gott að vita af því þegar 4 leikir eru eftir. Leikirnir sem við eigum eftir í deildinni eru heimaleikir á móti Fram og Fjölni og svo útileikir á móti Sindra og ÍBV. Það eru 12 stig í pottinum og mikilvægt að ná þeim öllum til að halda 1. sætinu í riðlinum.
Að lokum, getur þú útskýrt fyrir þeim sem ekki vita hvernig úrslitakeppnin fer fram og hvaða leið Selfoss-liðið þarf að fara til þess að ná sér í sæti í úrvalsdeild að ári ?
Úrslitakeppnin hefur tekið breytingum frá því í fyrra en þá voru 8 lið sem komust í úrslitakeppnina, 4 lið úr hvorum riðli. Við lentum t.d. í 3. sæti okkar riðils í fyrra og fengum tækifæri til að koma okkur upp um deild og munaði litlu að það tækist. Núna komast 4 lið í úrslitakeppnina, 2 efstu lið úr hvorum riðli. Úr B riðli verða það Selfoss og að öllum líkindum ÍBV, en þeim vantar 1 stig til að tryggja sér sæti þar. Úr A riðli er Þróttur búið að tryggja sér í úrslitakeppnina og eins eru allar líkur á því að Keflavík verði þar líka. Liðið sem endar í 1. sæti A riðils mun spila heima- og útileik við liðið í 2. sæti B riðils og liðið í 1. sæti B riðils mun spila heima og úti við liðið í 2. sæti A riðils. Með samanlögðum sigri í heima- og útileikjunum tryggja sigurliðin sér sæti í Pepsi deild kvenna. Síðan fer fram úrslitaleikur milli þessara sigurliða um hvort liðið sigrar 1. deildina.
Eins og staðan er í riðlunum núna myndu annars vegar Selfoss og Keflavík mætast og hins vegar Þróttur og ÍBV. En enn eru 4 leikir eftir í B riðli hjá toppliðunum og 3 í A riðli þannig að of snemmt er að segja til um hvort þetta muni enda svona því toppliðin eiga eftir að mætast í báðum riðlunum.
Allir á völlinn á þriðjudaginn 27. Júlí, Selfoss – Fram, kl. 20:00 á Selfossvelli.
Stelpunar unnu í kvöld enn einn stórsigur sumarsins, núna lágu ÍR ingar í valnum á gervigrasinu á Selfossi og vakti það helst athygli að Katrín Ýr skoraði ekki í leiknum!! Engar áhyggjur samt, systir hennar skoraði þrjú!
Byrjunarliðið:
Bekkur: Lena, Íris, Brynja, Bríet, Guðbjörg og komu þær allar til sögu í leiknum.
Katrín var reyndar rétt búinn koma Selfoss yfir eftir 1.mínútu en markvörður ÍR varði vel frá henni. Þremur mínútum síðar lagði hún upp mark fyrir Gummu sem kom okkar stúlkum í 1-0. Anna Þorsteins bætti öðru marki við eftir um kortersleik og eftir um 25.mínútna leik var Anna María búinn að skora þriðja markið eftir góðan undirbúning frá Gummu. 3-0 í hálfleik.

Anna María í harði baráttu í leiknum í kvöld - Mynd Sunnlenska.is/Gummi Kalli
Þegar korter var búið af seinni hálfleik var Anna María búin að bæta 2 mörkum við. Hið fyrra eftir að hún komst í gegn og var ein á auðum sjó gegn markmanni og hið seinna eftir góðan undirbúning frá Gummu.
Stelpurnar sóttu síðan án afláts undir lokin og kórónað Gumma frábæran leik sinn með sínu öðru maki í leiknum og sjötta marki Selfyssinga á 87.mínútu.
Flottur sigur og frábært Selfosslið. (sjá frétt sunnlenska.is um leikinn hér).
Stelpurnar eru því enn í 1. sæti B-riðils með fullt hús stiga eða 30 stig og hafa skorað 59 mörk í sumar. Það gera tæplega 6 mörk í leik að meðaltali sem verður að teljast nokkuð gott! (sjá stöðu í riðli hér hægra megin á síðunni)
Næsti leikur stelpnanna er svo á þriðjudaginn þann 27.júlí gegn Fram á Selfossvelli
Það er ekki að spyrja að því með mfl. kvenna, þær eru lang flottastar. Í kvöld tóku þær vini okkar í Fjarðarbyggð og Leikni 0-7. Ég er ekki frá því að þær fyrir austan hefðu getað bætt Austra, KVA, Huginn, Einherja, Þrótti N og Hetti við og þær hefðu samt tekið þennan leik. (ég veit að þetta er mikið til soðið saman sem Fjarðarbyggð).
Systurnar Anna María og Katrín Ýr Friðgeirsdætur skoruðu fyrstu tvö mörk Selfoss og staðan var 0-2 í hálfleik. Katrín bætti síðan við þremur mörkum í síðari hálfleik og Anna María einu auk þess sem Eva Lind Elíasdóttir skoraði eitt mark. En það er gaman að geta þess að Katrín er komin með 897 mörk það sem af er móti.
Eins og sjá má á Sunnlenska.is þá hafði Helena þetta að segja eftir leik:
„Þetta var fínn leikur hjá okkur og mjög sannfærandi sigur. Við vorum reyndar manni fleiri frá 30. mínútu og þá var staðan 0-2 en við höfðum góð tök á leiknum allan tímann,“
Liðin mættust fyrir bara viku síðan og þá rétt mörðu stelpurnar sigur, bara skitið 5-1 þá og bætti Helena þessu við á Sunnlenska.is:
„Það var ferlega fínt að mæta þeim strax viku seinna. Selfoss var í vandræðum með að klára útileikinn hérna í fyrra þannig að við mættum vel innstilltar í leikinn í kvöld.“
Stelpurnar eru áfram taplaust á toppi B-riðils með 24 stig. Liðið heldur sig fyrir austan um helgina og mætir botnliði Hattar á Egilsstöðum á sunnudaginn.
Guð hjálpi þeim segi ég nú bara, mesta spennan í þeim leik verður líklega hvort Helgi Sig formaður Hattar eða Halli Geir mæti á völlinn,

Hópknús eru alltaf hressandi - Mynd Sunnlenska.is / Gummi Kalli
Stelpurnar unnu alveg afskaplega góðan sigur á „hinu“ mjög góða liðinu í riðlinum áðan, 3-2 0g það kemur líklega ekki á óvart að Katrín Ýr Friðgeirsdóttir skoraði öll mörk Selfoss í leiknum.
Stelpurnar voru þéttar í vörninni allann leikinn og áttu eyjastúlkur í mesta basli með að komast að markinu, það tókst þeim þó einu sinni í fyrri hálfleik og komust þ.a.l. í 0-1. Katrín Ýr var hinsvar fljót að jafna með góð marki og því stál í stál í hálfleik. Í seinni bætti Katrín Ýr síðan við öðru marki eftir góða sendingu frá Gummi og að lokum var það Aníta Lísa sem átti stoðsendingu á Katrínu sem kórónaði þrennuna á 81.mín. 3-1. Eyjastúlkur sóttu stíft eftir það og náðu að minnka muninn en lengra komust þær ekki og góður 3-2 sigur því staðreynd. Leikið var á nokkrum skrítnum tíma eða kl:18:00 en engu að síður var ágæt mæting á leikinn, þó undirritaður hafi ekki komist og því bendi ég á stórgóða umfjöllun Sunnlenska.is frá leiknum og eins gott viðtal sem sá afar ágæti vinamiðill Selfoss.org tók við Helenu þjálfara eftir leik.
Selfoss.org er engu að síður ákaflega hip og kúl vefur og með puttana á púlsinum þegar kemur að tækinni og látum við því flakka með facebook status Katrínar eftir leik, hann segir allt sem segja þarf.
Það má einhver senda friend suggestion á Sigurð Ragnar Eyjólfsson fyrir hana.
Babú
Stelpurnar eru ekkert að slaka á í sínum riðli á íslandsmótinu og unnu í kvöld Fjölni sannfærandi á útivelli. Lokatölur urðu 7-0 stelpunum í vil og kemur umfjöllun um það líklega síðar.
Strákarnir töpuðu á sama tíma óvænt og ósanngjarnt gegn einhverju fimleikafélagi sem var svo ljónheppið í leiknum að það skoraði úr horni!

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



