| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Selfoss fær KR-inga í heimsókn kl 17:30 á morgun í æfingaleik enda bæði lið búin að vera í löngu hléi núna meðan landsliðið er að keppast við að tapa pirrandi gegn öðrum norðurlandaþjóðum.
Hvetjum alla áhugasama til að kíkja á leikinn, frítt inn og svona.
Nú liggur mikið við og mikið að gerast hjá andstæðingum okkar í næsta leik, Völsurum. Það er ljóst að þörf er á spekingi andstæðinganna fyrir þennan leik og höfðum við því að sjálfsögðu samband við skemmtilegasta speking andstæðinganna, heiðursmanninn Heiðu í Dal sem ætti að vera Selfyssingum að góðu kunnur enda legend á hinni sálugu síðu Fyrstudeildarfjélagsins sem var hip og kúl er Selfoss lék í þeirri deild.
Heiða í Dal kemur m.a. inn að stjórastaða Vals sé stærri en Selfoss sem er auðvitað bull, eins reynir hann að segja Selfyssingum til þegar kemur að því að versla í Pullaranum án þess að svo mikið sem minnast á að auðvitað kaupir maður bara breiðloku þar og auðvitað er svo þriggja klúta fyrirlestur um stöðu félagsins í dag, klárlega þess virði að renna yfir þetta.
Sökum leti er oftast hent fram mjög svipuðum spurningum í þessum dagskrárlið, en spurningum um það hvernig stemmingin sé hjá Valsmönnum á næstum ekki við núna!! Hvað er eiginlega að gerast hjá þínum mönnum þessa dagana og hver er þín skoðun sem almenns aðdáanda á
…Gulla Jóns þjálfara
…Berki fyrverandi formanni knd
…þessari uppsögn fjórmenninganna í stjórn Vals?
Ég held, vona og trúi að hinn almenni Valsmaður vilji sjá Gunnlaug Jónsson áfram í brúnni hjá Val. Í fyrra varð óþarfa fjaðrafok í fjölmiðlum þegar hann ákvað að hætta með lið Selfoss til að taka við einu af stóru störfunum í íslenskum fótbolta (með fullri virðingu fyrir Selfossi og öðrum liðum), og gefið var út að þessi ráðning væri ekki einnar nætur tjöldun. Markmið Vals hlýtur að vera að byggja lið sem er hæft um að gera atlögu að titlum ár eftir ár, og til að það sé hægt verður að byggja umgjörð í kringum það sem segir Ungir fótglímumenn – hjá Val er best að vera.
Það gefur ekki góð skilaboð út á við að reka og ráða þjálfara eftir úrslitum síðustu umferðar. Því miður hefur ára óþolnmæðis vomað yfir Hlíðarenda undanfarin ár, og margir búnir að týna tölunni yfir fjölda þjálfara liðsins. Það er mín trú að það versta sem hægt væri að gera í stöðunni væri að reka Gulla og ráða einhvern „big shot“ til að taka stjórnina. Það gæti vel verið að Guðjón Þórðar eða Ron Atkinson myndi koma með titilinn 2011 á Hlíðarenda, en við hljótum að vera að líta til þess að vilja hafa mann sem byggir upp lið sem gerir atlögu að titlinum 2011, 2012, 2013 og svo framvegis.
Með uppsögn stjórn knattspyrnudeildar þá veit ég eiginlega ekki hvað skal segja. Mér finnst fnykur af þessu öllu saman, og sérkennilegt að stjórnin virtist koma fram af heilindum alveg fram á síðustu stundu. Til dæmis bauð formaður hennar upp á guided tour um Hlíðarenda í vikunni, svaraði spurningum æstra aðdáenda á spjallborði og virtist vera að bera á sárin sem opnuðust með fréttaflutningi RÚV í byrjun vikunnar. Svo allt í einu er 80% stjórnarinnar farin með reyk og látum og eftir standa spurnignarnar.
Nú ríður á að fá sanna Valsmenn inn í stjórnina sem vinna sína vinnu eins og stjórn á að gera – ekki í framlínunni og einbeita sér að því að skapa framkvæmdastjórum félagsins það vinnurými sem þeir eiga skilið. Nú þurfum við að halda áfram að búa til það sem kynnt var fyrir einu ári síðan – knattspyrnudeild karla sem laðar að þá efnilegustu (við komum ekki úr stæsta póstnúmeri landsins og erum ekki með Breiðabliks kalíber af ungum iðkendum), starfar eftir kjörorðum sr. Frikka og býður ekki í allt sem hreyfist eins og loðað hefur við Knattspyrnufélagið Val.
Þetta var nú alveg þriggja klúta ræða, er það ekki?
Fyrri leikurinn á Vodafone vellinum var hörkuleikur sem þó endaði vel fyrir þína menn, hvaða leikmaður Selfoss myndir þú segja að væri líklegastur til að setja strik í reikninginn hjá Völsurum í þessum leik?
Mér hefur fundist Yao-Yao ansi sprækur í þeim klippum sem vinir okkar RÚV hafa verið að sýna mér, og eins aukaspyrnur yngri Veðurguðsins þarna verið stórhættulegar, Gummi heitir hann það ekki? Ég er annars að vona að einu strikin sem Selfoss setur í reikning Valsmanna verði þrjú strik í stigatöfluna Valsmegin
Hver í Valsliðinu hefur komið þér mest á óvart í sumar?
Ég verða að setja að þetta er eitt furðulegasta tímabil sem ég hef lifað. Eilífar hræringar og mannabreytingar í glugganum, sumir að spila betur en í mörg ár og aðrir gert í brók. Mér finnst Kjartan Stullu búinn að eiga besta tímabilið sitt í nokkur ár, Haukur Páll er eins og ferskur vindur inn á miðjuna og er verðugur arftaki Bjössa þar. Stefán Eggerts í bakverðinum búinn að vera góður og Jón Vilhelm er að koma sterkur inn núna eftir meiðslatímabil.
Ég verð held ég samt að segja að sá í kringum Valsliðið sem er búinn að koma mér mest á óvart er hinn almenni aðdáandi. Hann hefur farið mikinn á spjallborðum og kaffistofum eftir tapleiki, en horfið eftir sigurleiki. Hann er búinn að gleyma öllu sem talað var um fyrir mót um uppbyggingu á Hlíðarenda, því að búa til nýtt lið og þá staðreynd að Gulli Jóns tók við andlega gjaldþrota meistaraflokki. Margoft í sumar er ég búinn að spyrja mig að því á hverju menn áttu eiginlega von fyrir mót? Héldu menn að lið með 5-6 nýja byrjunarliðsmenn myndi hlaupa heim með dolluna? Evrópusæti?
Skil þetta ekki alveg, enda er það ekki enduruppbygging í mínum huga að ætlast lið þess að ungur þjálfari byggi Róm á einum degi.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Besti leikmaður Vals í ár og vonandi næstu tíu ár er Haukur Páll Sigurðsson. Púnktur.
Hvar liggja helstu veikleikar Valsara, það má alveg segja frá þeim, ég lofa að kjafta ekki?
Þeir liggja í litlu sjálfstrausti, frekar hægu liði heilt yfir og að okkar sterkasta lið er ekki enn fundið.
Nú fengum við Viktor Unnar í síðasta leikmannaglugga og hefur hann reynst okkur vel, en gerðist eitthvað meira hjá ykkur á þessum tíma og hvernig finnst þér þeir leikmenn sem gengið hafa til liðs við Val 2010 hafa verið að nýtast liðinu?
Ég er búinn að vera mjög ánægður með nýju leikmennina. Þeir hafa flestir spilað vel. Ég fæ ekki nóg af að lýsa ást minni (platónskri) á Hauki Páli, Jóni Vilhelm hafði ég ekki mikla trú á fyrir mót en hann hefur verið að koma til, Stefán bakvörður minnir mig á sjálfan mig þegar ég var að spila (nema að hann er actually góður í fótbolta, kannski meira svona minnir hann mig á sjálfan mig eins og ég hefði viljað vera), Rúnar Már er framtíðarmiðjumaður í liðinu og útlendingarnir eru búnir að vera bara ágætir.
Hvernig kemur Gulli til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Það er hið sívinsæla 4-3-3 sem ríður rækjum á Valsheimilinu en byrjunarliðið er álíka ágiskanlegt og næstu úrslit Liverpool
Hef spurt áður en reyni aftur nú (leti sjáðu til), ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Val, hver yrði fyrir valinu?
Sá sem er skemmtilegastur í klefanum og getur spilað báða hálfleikina af fullum krafti! -> (innsk. sem sagt Tommi Þórodds)
Megum við ekki búast við góðri mætingu Valsmanna á leikinn?
Ég er ekki endilega viss um það, enda tímasetningin á honum ekki alveg hugsuð með vinnandi fólk í huga. Ég sjálfur mæti hinsvegar, enda veit ég fátt skemmtilegra en að keyra niður Kambana og reyna svo að muna eftir hraðamyndavélunum hjá Kotstrandarkirkju. Það er pláss fyrir einn aftan á mótorhjólinu mínu Valsmenn ef einhvern vantar far!
Ætlar þú sjálfur að mæta og þá jafnvel kíkja í Pylsuvagninn eftir leik?
Það held ég að sé nánast 101% öruggt. Ég vil minna frændur mína á Selfossi á það að pylsu á að snæða með tómatsósunni neðst, steikta lauknum þar fyrir ofan og remúlaðinu efst. Þetta er þrautreynt og aðrar útgáfur eru villutrú.
Hvernig fer og hverjir skora?
Ég held að Jón Vilhelm Ákason skori í 0-1 sigri Vals. Hann hefur verið að koma sterkur inn upp á síðkastið. En markið verður ljótt, það er öruggt.
Heiða í Dal heitir í raun Björgvin og þökkum við honum kærlega fyrir sitt innlegg í umræðuna
Babú
Þá er komið að því að bjóða Gulla Jóns í heimsókn með lærisveina sína frá Hlíðarenda. Eins og flestir vita kom Gulli Selfoss upp í efstu deild í fyrra og hvarf síðan af braut og tók við Val. Þetta er því fyrsta heimsókn Gulla á Selfossvöll. Leikurinn er klukkan 18.00 mánudaginn 30. ágúst. Fyrir leik eða klukkan 17.30 munu þjálfarar liðana þeir Guðmundur Benediktsson og Gunnlaugur Jónsson ræða við stuðningsmenn Selfyssinga í Selinu.
Einn af frumkvöðlum Vals var séra Friðrik Friðriksson frá Hálsi í Svarfaðardal, en sá merki maður sem aldrei sóttist eftir veraldlegum eigum og sjaldan átti pening, lifði þó mjög innihaldsmiklu og gefandi lífi. Félagið hans var stofnað árið 1911 og eftir smá útreikning telst mér að félagið verði 100 ára á næsta ári. Þetta 100 ára afmæli virðist trufla stjórnarmenn Vals alveg óendalega mikið og langar þeim til að hampa Íslandsmeistaratitli líkt og KR gerði á sínu 100 ára afmæli.
Um fáa leiki hefur verið talað jafn mikið um af eldri kynslóðinni á Selfossi og leikinn við Val 1968, en 15 dögum eftir að Valur vann Selfoss 4-3 í æfingaleik, mættu Valsarar Benfica í Evrópukeppninni. Leikurinn fór fjörlega af stað og Selfoss komst í 2-0 eftir 8 mín og var staðan svo 3-2 fyrir Selfoss í hálfleik. Sverrir Einarsson hafði skorað öll mörk Selfoss, en samkvæmt blaðamanninum „klp“ í Reykjavík skoraði Hermann eitt marka Vals og var það heppnismark, ég gef mér það að hér sé talað um Hemma Gunn. Blaðamaðurinn gefur vörn Vals ekki háa einkunn og segir hana hafa gert „margan Valsmanninn gráhærðan í sumar“ en aftur á móti er hann nokkuð sáttur við framlínu Valsliðsins sem átti „léttan leik þar sem boltinn gekk manna á milli“ eins og segir þar. Þetta blað sem fjallar um leikinn segir frá því að tvö marka Vals hafi verið heppnismörk og í niðurlagi greinarinnar er Selfossliðinu hampað og m.a „sýndu að ekki er langt í komu þeirra í 1. deild“ (efstu deild) Eins og flestir vita þurftum við samt að bíða í 42 ár og biðin var þess virði.
Þessi frægi leikur er ekki skráður hjá KSÍ, enda einungis um æfingaleik að ræða. Aðeins finnast fjórir skráðir KSÍ leikir á milli þessara félaga og hefur Valur unnið þá alla. Árið 1975 unnu Valsmenn 8-0 sigur í bikarnum og svo unnu Valsmenn Selfoss 28. mars 2008 4-2 þar sem Sævar Þór og Boban skoruðu mörkin og Gummi Tóta lék sínar fyrstu mínútur með meistaraflokk. Hægt að sjá leikskýrsluna hér og þar má sjá svart á hvítu að Gummi Ben lék fyrri hálfleikinn með Val, hvað sem honum nú gekk til með því. Nú í vetur unnu Valsmenn svo Selfyssinga 3-0 í lengjubikarnum, þar sem tvö mörk í byrjun leiks voru dæmd af Selfyssingum og má sjá leikskýrsluna úr þeim leik hér. Svo unnu Valsmenn fyrri leik liðana í Pepsideildinni 2-1 og því ljóst að alltaf styttist bilið á milli félaganna. Hér má sjá leikskýrslu frá þeim leik.
Nokkuð margir leikmenn hafa farið á milli félaga og flestir í rétta átt. Margfaldur Íslandsmeistari með Val Magni Blöndal þjálfaði Selfoss árin 1993 og 1994 og kom þeim upp í b deild fyrra árið. Árni Njálsson þjálfaði Selfoss einhverjum árum fyrir diskótímabilið. Valsarinn og markahrókurinn Jón Gunnar Bergsson átti frábært tímabil á Selfossi og varð mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum. Heimir Karlsson morgunþáttarstjórnandi á Bylgjunni þjálfaði Selfoss árið 1990. Árið áður, eða árið 1989 þjálfaði Valsarinn Hörður Hilmarsson lið Selfyssinga. Með Herði kom á Selfoss, Ingi Björn Albertsson en hann er eins og flestir vita tengdafaðir Gumma Ben þjálfara Selfoss. Ingi Björn varð að sjálfsögðu markakóngur Selfoss þetta tímabil með 8 mörk og hann er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi. Oftar en ekki voru fyrirsagnir dagblaðana „Þingmaðurinn skoraði“, en Ingi Björn var þingmaður og notaði sumarfríið til að leika knattspyrnu. Ingi Björn tók við liði Vals er hann yfirgaf Selfoss og náði þeim ótrúlega árangri að gera þá að bikarmeisturum öll þrjú árinn sem hann þjálfaði liðið.
Antony Carl Gregory lék með Selfoss hálft tímabil ´98 og átti stóran þátt í að halda liðinu uppi, eftir að liðið hafði verið í fallsæti c-deildar undir stjórn Ólafs Jóhannessonar núverandi landsliðsþjálfara. Ámundi Sigmundsson var lykilleikmaður Selfyssinga upp úr 1980 og hann varð svo Íslandsmeistari með Val. Geir Brynjólfsson hefur einnig leikið með báðum liðum sem og Salih Heimir Porca. Kristinn Björnsson spilaði með Val og hann hefur þjálfað bæði Val og Selfoss. Gulli Jóns þjálfaði og spilaði með Selfoss í fyrra, en eins og áður sagði þjálfar hann nú Val. Viktor Unnar Illugason kom frá Val í Selfoss á miðju síðasta tímabili og hefur staðið sig mjög vel á Selfossi, skorað og átt þrjár stoðsendingar, en hjá Val fékk hann einungis einn leik í byrjunarliði. Svo að lokum varð Gummi Ben þjálfari Selfyssinga Íslandsmeistari með Val sem leikmaður árið 2007, en það á reyndar afskaplega vel við að Valsmenn hafi orðið meistarar árið 2007.
Síðustu 6 leikir liðana í Pepsideild og er síðasti leikur talin upp aftast.
Selfoss: T-T-S-T-S-T
Valur: J-T-T-J-S-T
Liðin eru byggð upp á mismunandi hátt og var t.d einungis einn uppalinn Valsari í liði Vals í síðasta leik á meðan sjö leikmenn í byrjunarlið Selfoss í síðasta leik eru uppaldir og mikill meiri hluti hópsins hjá Selfossi er auðvitað uppalinn þar.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er erfitt að ráða í, þar sem þeir Jón Daði Böðvarsson og Arilíus Marteinsson eru í leikbanni. Setjum þetta svona upp: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Jón Guðbrands, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Yao Yao, Gunnar Rafn, Einar Ottó, Ingi Rafn, Viktor Unnar og Sævar Þór. Eins er Stefán Ragnar orðinn góður af meiðslum líkt og Ingó Tóta og þeir eru auðvitað líklegir til að byrja.
Líklegt byrjunarlið Vals er 4-5-1: Kjartan, Gregg Ross, Atli Sveinn, Martin Petersen, Rúnar Már, Arnar Sveinn, Ian Jeffs, Haukur Páll, Jón Vilhelm, Þórir, Diarmuid O´Corroll. Stefán Jóhann hægri bakvörður þeirra er í banni og gæti Rúnar Már jafnvel farið þangað, en þessi miðjumaður frá Sauðarkróki spilaði sem vinstri bakvörður í síðasta leik. Gregg Ross færi þá í miðvörð, en það er hans uppáhaldsstaða og Petersen yrði aftur vinstri bakvörður. Eins gæti Baldur Ingimar auðvitað komið inn.
Heimasíða Vals er mjög fín. Spjallborðið er eitt það virkasta hjá knattspyrnuliðum hér á landi og menn láta þar í sér heyra. Börkur er þar í fullri vinnu að svara furðulostnum stuðningsmönnum, eftir að Gaui Þórðar henti nafni sínu inn í umræðuna í vöntun sinni á athygli. Hver svo sem segir satt í þessu Gauja Þórðar-Vals máli, þá er það merkileg tilviljun að í öllum hitamálum í íslenskri knattspyrnu skuli alltaf annað hvort Gaui Þórðar eða Valur eiga í hlut. Hér er hægt að fara þar inná flotta heimasíðu Vals og hér er líka mjög góð stuðningsmannasíða.
Aðaldómari leiksins á mánudag er Örvar Sær Gíslason, en hann er einn af efnilegustu dómurum landsins og hefur m.a fengið verkefni erlendis. Honum til aðstoðar eru þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Leiknir Ágústsson.
Veðrið verður nokkuð hefðbundið á Selfossvelli á mánudag. Hiti 12 stig, þurrt, logn en reyndar verður skýjað og því toppaðstæður til að spila knattspyrnu.
Tómas.
Í kvöld sannaðist að fótbolta á ekki að spila á mánudögum. Ekki á Íslandi, ekki í Englandi,, ekki neinsstaðar.
Máser eða Tommi koma jafnvel með skýrslu um þennan leiðinda leik á þessum leiðinlegasta velli landslins og líklega bara evrópu.
Ég hata allavega mánudaga.
Babú.
Ef þið smellið á þessa mynd sem tekin er af frétt á Sunnlenska.is færist þið yfir á myndasyrpu frá vígslunni á Selfossvelli og leik Selfoss og Keflavíkur.
Talandi um Gumma Kalla (sem tekur þessar myndir) þá var hann í spjalli í leikskránni sem Óli Tage útbýr fyrir alla heimaleiki. Ef þið ýtið á lesa meira má sjá skemmtilega sögu GK frá hvernig þetta var hér áður fyrr á Selfossvelli. Samkepppnin við Sævar Gísla og Gumma Strump og samstarfið við Tóta Snorra…
Þetta er ekkert flókið, í kvöld átti sér stað einn af hápunktunum í sögu knattspyrnudeildar Selfoss. Fjörið byrjaði á því að presturinn okkar hann Óskar var fenginn til að skýra Babú-stúkuna formlega og fyrst hann var mættur var platað hann til að blessa völlinn líka. Þar með var búið að nýta klerkinn og í stað þess að setja hann í yfirvinnu var fengið strákana í Skjálfta til að leiða alla hina 1.200 áhorfendurna í faðir vorinu. Kjartan Björnsson stjórnaði þessari vígsluathöfn annars að röggsemi og auk hans tóku þeir Grímur Hergeirsson, formaður UMF Selfoss og Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ til máls áður en Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs söng lagið He Hermaur.
Öðlingurinn Jóhann B. Konráðsson sem eitt sinn var kenndur við WV Bjölluna sína var mættur á Selfoss til að stjórna útsendingu Stöð 2 Sport frá leiknum en þetta er í fyrsta skipti sem Selfoss er sýnt í beinni útsendingu í sjónvarpi. Ef við miðum við að sjónvarp hóft hér á landi 1968 þá er ljóst að þetta er frábær millitími.
Hvað leikinn sjálfan varðar þá var ég með textalýsingu hér og vann svo umfjöllun út frá leiknum hér í kjölfarið. Þarna reyni ég að vera töluvert meira hlutlaus en t.d. þessi hérna var um daginn og því ekki úr vegi að hreinsa aðeins hlutleysið út fyrir umfjöllun hérna á Selfoss.org.
Liðið var svona:
Gestir dagsins voru Keflvíkingar sem er við hæfi enda ávalt verið „miklir“ kærleikar milli þessara bæjarfélaga, raunar svo miklir að Joey Drummer og félagar í Puma sveitinni lögðu ekki í það að koma austur fyrir fjall í kvöld. Strákunum í Skjálfta sem og öðrum stuðningsmönnum til sárra vonbrigða. Rúmlega 1.200 manns mættu á völlinn var stúkan full vel fyrir leik.
Keflvíkingar voru ekki alveg búnir að lesa handritið af þessari opnunarhátíð á Selfossi og um leið og presturinn var búinn að vígja völlinn formlega tóku Keflvíkingar mest öll völd á vellinum og eftir rúmlega tíu mínútna leik spólaði Magnús Þórir Matthíasson sig glæsilega í gegnum vörnina með góðum þríhyrning við Magnús Sverri og komst einn í gegn. Magnús Þórir átti ekki í vandræðum með að leggja boltann í hornið framhjá Jóa sem þó verður ekki sakaður um þetta mark. Mjög vel gert hjá þeim nöfnum en vörn Selfoss leit ekki vel út í þessu marki.
Eftir markið reyndu strákarnir að sækja á vörn Keflavíkur en náðu með engu móti að snúa á frábæra rangstöðuvörn þeirra. Raunar voru sóknir gestana áfram mun hættulegri og áttu þeir að að bæta öðru marki við á 17.mínútu. Fyrst spólaði Magnús Sverrir sig í gegn en skot hans var varið á línu af Martin Dohlsten. Í sömu sókn komst Hörður Sveinsson í úrvalsfæri en skot hans fór yfir. Algjör nauðvörn þarna hjá varnarmönnum Selfoss sem voru mjög heppnir að sleppa með þetta.
Á 20.mínútu fékk Viktor Unnar gult fyrir hraustlega tæklingu á Hólmari Erni og hefði líklega fengið rautt spajld væri Martin Atkinson að dæma þennan leik. Stuttu seinna átti hann ágætt skot að marki sem fór yfir. Fljótlega í kjölfarið fékk Yao Yao aukaspyrnu sem hann tók sjálfur og sendi inn í teiginn á Jón Guðbrandsson sem skallaði yfir markið.
Strax í kjöllfarið brunuðu Keflvíkingar í sókn og bættu við öðru marki og svo gott sem drápu stemminguna á Selfossi. Guðmundur Steinarsson sendi glæsilegan bolta innfyrir á Hörð Sveinsson sem slapp einn í gegnum vörnina en Jói varði stórvel frá honum. Frákastið fór þó beint aftur á Hörð sem gat lítið annað gert en að klára færið. 0-2 fyrir Keflavík og eins og Willum Þór sagði í viðtali eftir leik þá hefur hann aldrei tapað eftir að hans lið kemst í slíka stöðu.
Á 44.mínútu skoraði Jón Guðbrandsson fyrir Selfoss en markið var réttilega dæmt af þar sem Arilíus Marteinsson braut á Lasse Jörgensen markmanni. Gunnar Jarl góður dómari leiksins með þetta allt á hreinu og flautaði til leikhlés um leið og klukkan sýndi 45.mínútur. Þess ber að geta að markmaður Keflavíkur er ekkert tengdur lögregluhundinum Lassí, ekki svo ég viti.
Í leikhléinu nýtti Gummi Ben tímann vel, sagði sýnum mönnum að hann vildi þrjú mörk og tók Gunnar Borgþórs útaf og setti í hans stað Einar Ottó Antosson inná miðjuna með Yao Yao. Þessi skipting virkaði eins og vítamínsprauta á heimamenn sem komu frískir til leiks í seinni hálfleik og var Sævar Gísla að því er virtist í úrvalsfæri strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks en náði ekki til boltans.
Mínútu seinna var Yao Yao hinn smávaxni miðjumaður sem elskar okkur öll dæmdur rangstæður í örugglega sjötta skipti í leiknum. Fljótlega í kjölfarið á því fengum við aukaspyrnu sem áðurnefndur Yao Yao framkvæmdi. Hann sendi háan bolta inn á teig sem Jörgensen misreiknaði illilega í markinu og náði ekki að kýla frá. Þess í stað fór hann á kollinn á Jóni Guðbrandssyni og þaðan í netið.
Stuttu seinna fékk Arilíus Marteinsson gult fyrir brot rétt fyrir utan vítateig. Úrvalsfæri fyrir Guðmund Steinarsson sem tók lúmskt skot undir vegginn en Jóhann Ólafur var með allt á hreinu í markinu og varði skotið auðveldlega. Selfyssingar voru þó öllu sprækari eftir markið og áhorfendur voru miklu mun sprækari og létu vel í sér heyra.
Á 62.mínútu átti Jóhann Ólafur eitt af tilþrifum helgarinnar er hann sá glæsilega við Herði Sveinssyni sprækasta leikmanni Keflvíkinga. Hörður slapp gjörsamlega einn í gegn og hafði allann tímann í heiminum til að ákveða hvernig hann ætti að plata Jóa. En það eru fáir betri í þessari stöðu hér á landi heldur en okkar maður og las hann Hörð eins og Dagskránna og setti boltann í horn. Úr horninu náði Haraldur Freyr góðum skalla sem datt á þverslánna áður en hann fór yfir markið.
Selfoss var þó meira með boltann og reyndu hvað þeir gátu að sækja að marki gestanna. Rangstöðurnar urðu að ég held yfir tíu hjá þeim í leiknum og náðum við ekki að snúa á hana fyrr en Viðar Örn Kjartansson kom inná. Hann var ekki búinn að vera margar mínútur inná þegar hann slapp einn í gegnum vörn Keflvíkinga og var felldur inn í teig af Lasse Jörgensen. Markmaðurinn líklega smá heppinn að fjúka ekki útaf þarna en sú regla svosem allt of ströng enda brotið ekki gróft, allavega lét Gunnar Jarl vítið nægja.
Á punktinn fór Viktor Unnar Illugason sem var búinn að lofa því í viðtali fyrir leik að hann myndi skora í leiknum. Það gerði hann af miklu öryggi en var gert að taka vítið aftur. Það er aldrei talið þægilegt að þurfa að endurtaka víti en Viktor var líklega ekki búinn að frétta af því og hélt þess í stað að héti Sebastian Abreu (Urugay) og ákvað að vippa á mitt markið. Það dugði til að sjá við Lasse Jörgensen sem var farinn í sama horn og Viktor hafði veðjað á í fyrri spyrnunni. Algjörlega frábært mark hjá Viktori Unnari sem fagnaði vel ásamt áhorfendum og öllum sem voru í fjölmiðlagámun á Selfossvelli (semsagt mér einum).
Þeir fóstbræður Viðar og Viktor voru hvergi nærri hættir og þremur mínútum fyrir leikslok kláraði Viðar Örn leikinn fyrir heimamenn sem endanlega töpuðu sér á pöllunum. Viktor Unnar sendi boltan glæsilega innfyrir á Viðar sem var kominn einn í gegn og setti boltann örugglega í hornið. Aftur náði Viðar að sjá við rangstöðuvörn Keflvíkinga þó tæpt hafi það verið og vandaði Willum Þór þjálfari Keflvíkinga Gunnari Jarli dómara ekki kveðjunar í leikslok.
Á 90.mínútu var Viktor Unnar afar nálægt því að klára leikinn endalega er hann átti gott skot sem endaði í stönginni. Viðar Örn vann boltann sem datt ágætlega fyrir Viktor sem var óheppinn með skotið. Frákastið fór beint til Inga Rafns sem var í úrvalsfæri en Jörgensen varði vel í marki gestanna.
Fleira gerðist ekki í þessum frábæra opnunarleik á Selfossvelli, Babú stúkan fagnaði vel með liðinu í leikslok og ég er ekki frá því að sama hafi verið upp á teningnum í þétt setinni Thule stúkunni hinumegin við völlinn.
Please please please fleiri svona leiki strákar, þetta var gjörsamlega geðveikt eins og Viðar sagði eftir leik.
Keflavík Lasse Jörgensen, Alen Sutej, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Hörður Sveinsson.
Varamenn: Ómar Jóhansson, Ian Paul McShane, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Bojan Stefán Ljubicic, Brynjar Örn Guðmundsson og Magnús Þór Magnússon.
Sjáumst á mánudaginn
Áfram Selfoss
Babú
Selfyssingar taka á móti Keflavík í næstu umferð Íslandsmótsins. Þetta er risa leikur fyrir Selfyssinga, því nýr og fullkominn aðalvöllur verður tekin í notkun og einnig verður ný glæsileg 730 manna stúka tekin í notkun, en fyrsti áfangi hennar er tilbúinn. Ekki nóg með þetta allt, þá verður þetta einnig fyrsti sjónvarpsleikur Selfyssinga. Það verður því dúndrandi partý á Selfossvell fimmtudaginn 19. ágúst og mun dómari leiksins flauta leikinn á kl 19.15.
Fyrir 20 árum síðan vígðu Selfyssingar grasvöllinn sinn með 5-1 sigri á KS frá Siglufirði, með tveimur mörkum frá nöfnunum Heimi Karlssyni og Salih Heimi Porca og eitt frá Sævari Sverrissyni. Það væri nú ekki leiðinlegt að endurtaka þann leik og sigra Keflvíkinga í vígsluleik aðalvallarins.
Í síðasta leik Selfoss í deildinni, þar sem þeir töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni var Gunnar Borgþórsson aldursforseti liðsins en hann er 28 ára gamall. Í þessum sama leik vantaði nokkra lykilleikmenn Selfoss. Henning og Jón Sveins hafa verið frá meira og minna í allt sumar, hafa einungis náð einum og þremur leikjum. Ingó Tóta hefur einnig verið frá í nokkra leik, en kemur aftur inn nú. Sævar Þór var að jafna sig á höfuðhöggi. Bóló Be Herve var í banni og Jón Guðbrands forfallaðist á síðustu stundu. Svo fór fyrirliðin Stefán Ragnar útaf meiddur eftir 13 mínútna leik, en ætti að verða orðin góður fyrir næsta leik.
Það er hundleiðinleg staðreynd að hvergi finnast heimildir um sigur Selfyssinga á Keflvíkingum. Liðin hafa leikið alls 14 leiki í skráðum leikjum á vegum KSÍ. Tölfræðin er 10-4-0 , sem sagt 10 sigrar Keflavík og 4 jafntefli. Það er þó þannig að alltaf styttist í fyrsta sigur Selfoss og það vita Keflvíkingar best allra.
Árið 1990 leku Selfyssingar þrjá leiki við Keflvíkinga. Liðin leku saman í 2. deildinni eða b-deild, sem nota bene hét þá Pepsideildin eftir feitan samstarfssamning á milli samtaka 2. deildarfélaga og Sanitas sem þá seldi Pepsi á Íslandi.
Keflavík vann fyrri leikinn 2-1, þar sem Páll Guðmundsson skoraði mark Selfoss. Seinni leikur í deild fór 0-0 og misstu þar með bæði lið af möguleika á að leika í efstu deild árið ´91.
Einnig mættust liðin í 8 liða úrslitum bikarins árið ´90, en í framhjáhlaupi er nauðsynlegt að minnast á það að Keflvíkingar slógu út Ernina frá Selfossi á leið sinni í 8 liða úrslit. Mörk Ernis, sem alltaf léku í 4.deild, skoruðu Helgi Ketilsson og Gústaf Bjarnason f.v landsliðsmaður í handbolta. Ernir leiddu 2-1 þegar lítið var eftir, en Keflvíkingar skoruð 2 mörk á lokmínútunum og komust þannig áfram. Mörk Keflvíkinga gegn Örnunum skoruðu þeir Óli Þór Magnússon 2 og Gestur Gylfason 1 mark. Í 8 liða úrslitum voru Selfyssingar mjög óheppnir að vinna ekki Keflavík. Guðjón Þorvarðarson kom Selfoss yfir á 12. mínútu og svo varði Ólafur Pétursson nokkrum sinnum mjög vel og m.a var bjargað á línu frá Salih Heimi Porca. Leikurinn jafnaðist svo í seinni hálfleik og á 53.mín jafnaði Ólafur Þór Magnússon fyrir ÍBK. Gestur Gylfa kom þeim svo yfir áður en Izudin Daði Dervic jafnaði fyrir Selfoss. Jóhann Magnússon gerði svo út um leikinn með laglegu marki 8 mín fyrir leikslok og Keflavík komst í 4 liða úrslit.
Anton Hartmannsson var varamarkmaður Keflavíkur eitt tímabil áður en hann hætti, en Toni er næst leikjahæsti leikmaður Selfoss frá upphafi með 366 leiki. Einar Ottó sonur hans tók einnig eitt tímabil með 2. flokki Keflavíkur, en sá svo að sér kom heim og hefur nú leikið hátt í 200 leiki fyrir Selfoss. Fleiri leikmönnum muna menn ekki eftir sem skipt hafa á milli þessara liða.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Arilíus, Gunni Borgþórs, Stepan Yao Yao, Jón Daði, Sævar Þór og Viktor Unnar. Andri Freyr er í leikbanni og verður því ekki með. Svo er auðvitað löng æfingavika framundan og því allt eins möguleiki á að einhverjir komi sterkir til baka af bekk eða úr stúkunni og vinni sér sæti í liðinu.
Líklegt byrjunarlið Keflavíkur er: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni, Alen Sutej, Bjarni Hólm, Haraldur Freyr , Einar Orri, Hólmar Örn, Jóhann B. Guðmundsson, Magnús Sverrir, Guðmundur Steinarsson og Magnús Þórir. Paul McShane er einnig alltaf líklegur í startið og Haukur Ingi kom inn á í síðasta leik, en er örugglega ekki tilbúinn í first elleven.
Þjálfari Keflavíkur er Willum Þór Þórsson, en hann er gríðarlega hæfur þjálfari og hefur ná árangri alls staðar sem hann hefur komið. Willum byrjaði knattspyrnuþjálfaraferill sinn á að koma Þrótt upp í efstu deild á sínu fyrsta ári, árið 1996. Næst tók hann við Haukum og á fyrsta tímabili vann hann 3. deild og á öðru tímabili vann hann 2. deild. Þá var honum boðið starf hjá uppeldisklúbb sínum KR árið 2001, en þá um haustið rétt slapp KR við fall. Willum gerði liðið að íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári og endurtók svo leikinn á sínu öðru tímabili. Fyrir tímabilið 2005 tók hann við Val og gerði hann þá að íslandsmeisturum árið 2007 og lauk þar með 20 ára bið Valsmanna eftir titlinum. Einnig gerði hann liðið að bikarmeisturum. Inn í þessari umfjöllun er ekki talið upp minni titlar svo sem Reykjavíkurmeistarar o.s.frv.
Keflvíkingar hafa ekki unnið efstu deild síðan 1973 og réðu Willum Þór til starfa fyrir þetta tímabil með það í huga. Liðið er sem stendur í 4. sæti deildarinnar og gætu alveg blandað sér í toppbaráttuna og sérstaklega ef þeir myndu skora fleiri mörk. Willum hefur þjálfað Gumma Ben núverandi þjálfara Selfyssinga í alls sjö leiktímabil og því allt eins líklegt að Gummi viti betur en Willum hvað sagt verður í búningsklefa Keflavíkur fyrir leik og í hálfleik.
Heimasíða Keflavíkur er mjög góð, fullt af upplýsingum og fréttaveita góð. Það er til eftirbreytni umfjöllun þeirra um leiki og ekki ólíklegt að hún verði tekin upp á okkar síðu, en þeir taka úrdrátt af síðum sem fjalla um leikina og birta einkunnargjafir þeirra. Hér er hægt að komast inn á heimasíðu þeirra, reyndar vantar spjallborð, en hér og hér hefur verið gerð heiðarleg tilraun til að gera spjallborð.
Dómari leiksins á fimmtudag er klárlega að verða einn besti dómari landsins, en það er Gunnar Jarl Jónsson og ekki eru aðstoðardómararnir af verri endanum, en það eru þeir Smári Stefánsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Guðmundur Sigurðsson er svo eftirlitsmaður á þessum leik.
Veðrið verður að venju gott á leikdag á Selfossi. Það verður ca 14 stiga hiti, þurrt, léttskýjað og austan 3 metrar á sekúndu.
Fjölmargir Selfyssingar yfirgáfu Garðabæ sannarlega með óbragð í munnunum eftir að hafa horft upp á hundfúlt 3-2 tap í leik sem var sannarlega algjör óþarfi að tapa og í raun alveg óþolandi.
Síðast þegar ég mætti á Störnuvöll var líka fullt hús af Selfyssingum mætt í þessa stórskemmtilegu stúku í Garðabænum og stemmingin yfir meðallagi góð. Þá var reyndar búið að klára leikinn fyrir okkur enda Dusan búinn að fá rautt og Stjarnan komin yfir. Það var því ansi hressandi að sjá Jón Daða skora í fyrstu sókn leiksins eftir flotta sendingu frá Viktori Unnari. Frábær byrjun og enn á ný byrjaði maður að biðjast fyrir um að liðið næði nú að halda þessu.
Það tókst nú aldeilis ekki og er engu líkara en að liðinu sé hreinlega illa við að vera yfir í leikjum. Þegar tæpar 10.mínútur voru liðnar fór Agnar Bragi í hreinsun sem heppnaðist afleitlega, boltinn skastu upp í loft og beint fyrir Ellert Hreinsson sem náði að setja hann í hornið þrátt fyrir að Stefán Ragnar hafi verið í honum. Þetta mark var 60/50 blanda af klaufaskap í vörninni og hreinni og klárri óheppni. ENN Á NÝ misstum við niður forystu allt of snemma. Stuttu seinna fór Stebbi Raggi í hressilega tæklingu sem fór ekki betur en svo að hann fékk dæmda á sig aukaspyrnu (réttilega) en var engu að síður borinn útaf meiddur. Fyrir hann kom Kjartan Sig inná og þurfti eðlilega dágóðan tíma til að koma sér inn í leikinn.
Það var því eins og stundum áður í vetur að þetta féll algjörlega með andstæðingunum, Stjarnan fékk innkast sem barst til Atla Jó fyrir utan teiginn, hann er góður skotmaður þó hann hafi ekki sýnt mikið það sem af er þessu tímabili og þrumaði boltanum í hornið framhjá vörn Selfoss og Jóa í markinu. Fyrsta mark Atla í ár og ákaflega svekkjandi. Hann fékk síðan gult stuttu seinna fyrir að stoppa sókn Selfoss með svokölluðu professional foul og átti eftir að koma meira við sögu.
Stjarnan var annars bara óheppin að skora ekki meira það sem eftir lifði fyrri hálfleiks, þeir áttu nokkur keppnis færi og vörn Selfoss var stundum alveg út á túni og í tómu basli með háa bolta sem Stjörnumenn fengu að dæla inn í teiginn. M.ö.o. þessi tvö mörk slógu strákana svolítið út af laginu og hefði getað verið enn dýrkeyptara.
En þegar um mínúta var eftir að leiknum virtumst við vera að fá afar stórt tækifæri til að komast aftur inn í leikinn, Jón Daði komst framhjá Atla Jó sem bæði togaði greinilega í peysuna hans og sparkaði hann síðan niður aftanfrá og stoppaði þar með sæmilega sóknaruppbyggingu. Klárt gult spjald og þar sem hann var þegar kominn með gult var þetta augljóslega rautt spjald. Eða það héldu allir á vellinum nema ömurlegur dómari leiksins sem GUGNAÐI algjörlega er hann sá að þetta var Atli Jó sem var þegar með gult. Reyndi að afsaka sig með að Jón Daði var ekki alveg með boltann og eitthvað svona bullshit. Skýrara gult er ekki til og aðeins Maggi Gylfa getur talað mjög hátt um að þetta hafi ekki verið gult (á Stöð 2 Sport eftir leik).
Aðstoðardómararnir voru síðan alls ekkert skárri í leiknum og héldu að það væri fánadagur í Garðabæ í dag og flögguðu rangstöðu á Selfyssinga í sí og æ allann leikinn og virtist á köflum eins og þeir kynnu ekki alveg regluna með að sá leikmaður sem hefur ekki áhrif á leikinn er ekki rangstæður. Auðvitað var þetta ekki alltaf rangt hjá þeim kallagreyjunum og svosem ekki verið að halda því fram en í eitt skiptið var Gummi Tóta helvíti nálægt því a.m.k. að vera réttstæður er hann komst í gegn og í annað skipti var Já Já klárlega ekki rangstæður þegar hann komst í gegn, þar sáum við versta framlag línuvarðarins í leiknum.
Það er annars til lítils að tuða yfir dómaranum svona eftir leik, við getum hvorki sýnt myndir til að sanna okkar mál almennilega og eins geta þeir ekki varið sig og komið með sýna hlið, en orðum þetta þannig að það var púað hressilega þegar þeir gengu til búningsherbergja bæði í hálfleik og eftir leik, ekki ósvipað því sem var upp á teningnum síðast þegar við mættum í Garðabæinn.
En talandi um Atla Jó þá vissi Bjarni Jó þjálfari eins og allir aðrir á vellinum að hann átti ekki að vera inná vellinum lengur og tók hann því strax útaf í hálfleik enda myndi næsta brot klárlega þýða gult. Klókur Bjarni Jó þarna og hann var eitthvað að tala um það sá ég eftir leik að svona atriði hefðu fallið á móti þeim líka í sumar þegar brotið var á Steinþóri Frey.
Selfyssingar mættu síðan ekki til seinni hálfleiks fyrr en á 46.mínútu en þá höfðu heimamenn sett boltann í stöngina. Eftir það tóku strákarnir alveg yfir leikinn og voru miklu betri aðilinn og vantaði bara að ná inn bölvuðu jöfnunarmarkinu, það tókst ekki og þegar 12 mínútur voru eftir skoruðu Stjörnumenn þriðja mark sitt í leiknum og gerðu nánast út um hann. Einhver þeirra, líklega Halldór Orri virtist taka hann svona líka skemmtilega fyrir sig með hendinni og slapp þar með framhjá vörn Selfoss. Man annars ekki fullkomlega aðdragandann en allavega var brúnkuspreysgaurinn Halldór Orri allt í einu einn á auðum sjó og setti boltann auðveldlega í netið.
Strax í næstu sókn komst Viðar Kjartans sem var nýkominn inná alveg að vítateigslínunni áður en brotið var á honum og aukaspyrna dæmd. Hana tók Já já og sendi beint á Kjartan Sig sem stangaði boltann inn, 3-2 og game on. Síðustu tíu mínútur leiksins hefðu strákarnir síðan átt að jafna þennan leik en tókst ekki og ekki var boðið upp á mikinn uppbótartíma enda dómarinn afar upptekinn greyið, heilum 2 mínútum bætti hann við blessaður þrátt fyrir að bæði lið hefðu gert skiptingar og að Stjarnan hefði byrjað að tefja í föstum leikatriðum á ca. 55.mín.
Ömurlega svekkjandi 3-2 tap því staðreynd í leik sem annars var nokkuð vel spilaður að hálfu Selfoss, mínus of mörg shaky moment í vörninni sem á endanum kosta okkur stig í dag.
Svona í endann langar mig aðeins að fara yfir hvernig liðið var skipað og kíkja á hina ávalt hressandi einkunargjöf visis.is.
Gummi stillti upp nánast sama liði og vann Hauka um daginn nema að Sævar Gísla er enn allur bólginn og illa talandi eftir að Daði Lár rotaði hann í fyrstu lotu í leiknum gegn Haukum og fyrir hann kom Gummi Tóta inn á hægri kanntinn. Boulu var í banni í kjölfar rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Haukum. Einar Ottó var á bekknum í kvöld þrátt fyrir að vera búinn að afplána eins leiks bannið enda Gunni Borgþórs búinn að spila sig inn í liðið og svipað var um frænda hans Jón Guðbrands að segja, en hann var ekki í hóp í dag. Ingó Tóta var ekki heldur í hóp í dag og ég held að hann sé ennþá meiddur líkt og Siggi Eyberg sem á mikið verk fyrir höndum að reyna að slá Martin Dohlsten úr liðinu.
Liðið var annars svona:
Þeir á Visir.is eru jafnan að leita eftir því að vera umdeildir og skapa umræðu um fréttir sínar og ætla ég að láta það eftir þeim með að skoða aðeins hvað okkar menn fengu í einkunn enda jafnan skemmtilegur liður:
Jóhann Ólafur Sigurðsson – 5
- Erfitt að setja mikið út á þetta enda fengum við 3 mörk á okkur í leiknum, ekki mikið við Jóa að sakast reyndar.
Martin Dohlsten – 5
- Fengi nú alveg 6 hjá mér, var góður í seinni og var mikið að taka þátt í sóknaruppbyggingunni. Þetta er góður bakvörður og kemur til með að nýtast okkur vel á lokakaflanum. Hér má sjá viðtal við hann á Sunnlenska.is.
Agnar Bragi Magnússon – 5
- Slöpp hreinsun í fyrsta markinu sem flokkast eiginlega undir óheppni, annars einn okkar besti maður og hélt okkur á lífi í fyrri hálfleik.
Stefán Ragnar Guðlaugsson
- Stutt innkoma hjá Stebba og leikur sem hann vill gleyma strax
(13. Kjartan Sigurðsson – 6)
- Kjartan var ansi óöruggur í fyrri hálfleik en vann sig inn í leikinn og restaði á góðu marki. Fær ekki hærra en Bragi hjá Orginu samt.
Andri Freyr Björnsson – 5
- Svipaður leikur hjá Andra og Kjartani, var ágætur þegar leið á en óöruggur í byrjun.
Guðmundur Þórarinsson – 4
- Alls ekki besti leikur Gumma, er svolítið að klappa blöðrunni og hægja á spili finnst manni. Lendir í hörku samkepppni þegar Sævar og Boulu koma aftur sem er auðvitað bara gott mál.
Arilíus Marteinsson – 5
- Alli var mikið í spilinu í seinni og fínn þegar liðið fór að spila eins og menn. Vantaði þó þetta sjónvarpsmoment og því líklega nokkuð hlutlaus fimma á Alla.
Jean Stephane YaoYao – 6
- Líklega besti leikmaður vallarins, þetta er ansi lunkinn leikmaður og oft með stórskemmtilega takta sem glöddu augað, eins átti hann nokkrar flottar sendingar innfyrir og að auki átti hann að fá séns til að komast einn í gegn en var dæmdur rangstæður af ullarhöttunum sem dæmdu þennan leik.
Svona til gamans mát geta að Maggi á Fótbolta.net reyndi að taka viðtal við hann eftir leik og ég var á myndavélinni…það var spurning fyrir mig að vera á hnjánum enda við svipað hávaxnir :) Enskan hjá Jájá vini okkar var annars þannig að við Maggi skildum það báðir sem svo hjá honum að ísland yrði komið á HM innan 2 ára :)
Gunnar Rafn Borgþórsson – 5
- Gunni virðist vera þessi leiðtogi sem við þurftum inn á völlinn, talar mikið og kemur ró á liðið og spilið. Hann hefur lítið sem ekkert spilað í 2,5 ár og því alveg hálfum metra of seinn, en ég sé hann alveg fyrir mér vaxa með auknum spilatíma og ef hann er heill verður erfitt að slá hann úr liðinu.
Jón Daði Böðvarsson – 6
- Jón Daði er að koma aftur ferskur inn og var sprækur í dag og skoraði gott mark. Einn besti maður vallarins.
Viktor Unnar Illugason – 4
- Boltinn var ekki að skoppa vel fyrir Viktor á teppnu í Garðabæ í dag átti hann erfitt með að nýta tækifærin þegar boltinn barst til hans inn í teig. Þetta er samt hörku leikmaður sem verður bara betri með meiri spilatíma og á nú skilið meira en 4 fyrir þennan leik.
Venjulega þegar við erum að fara yfir dómara leiksins er jafnan fyndið að sjá hann síðan fá 7 eða 8 hjá visi.is eftir leik en núna voru þeir nokkuð í línu við okkur þó þeir hafi alveg fundið fimmu á hann í einkunargjöfinni.
Dómari: Einar Örn Daníelsson (5)
Það er engu að síður helling hægt að byggja ofan á þennan og síðasta leik, liðið er að spila betur og fær núna tíma til að æfa vel og koma nýjum mönnum betur inn í kerfið. Samkeppnin er orðin ágæt í liðinu og fáir sem ganga að sínu sæti sem vísu.
Næsti leikur er gegn Keflavík og ef allt gengur upp er það fyrsti leikurinn á nýju grasi á Selfossi og í nýrri stúku sem vonandi kemur til með að kveikja í mannskapnum. Draumurinn er síðan að fá svipaða stúku (með þaki) og Stjarnan er með, áhorfendur þar gætu samt reynt að einbeita sér betur að því að styðja bara sitt lið í stað þess að sitja og halda bara kjafti á meðan leikstendur nema þegar liðið skorar og nýta þá tækifærðið og fagna aðallega í átt að andstæðinunum og ögra þeim.
Áfram Selfoss
Það er aldeilis stutt á milli leikja núna, því aðeins þremur dögum eftir glæsilegan karaktersigur á Haukum heimsækja Selfyssingar nágrana þeirra úr Garðabæ, Stjörnuna heim. Leikurinn fer fram sunnudaginn 8. ágúst kl 19.15. Eins og áður hefur komið fram unnu Selfyssingar Hauka 2-3 í síðustu umferð á meðan Stjarnan tapaði fyrir KR í Frostaskjóli, hvernig sem það er nú hægt. Stjarnan er í 8. sæti með 17 stig á meðan Selfoss er í 11. sæti með 11 stig.
Sigurinn gegn Haukum var gríðarlegur karaktersigur þar sem nokkuð marga leikmenn vantaði í Selfossliðið. Eins og flestir vita hafa Henning Eyþór Jónasson og Jón Steindór Sveinsson lítið getað leikið með í sumar vegna meiðsla og auk þeirra vantaði í þennan leik Ingó Tóta sem var meiddur, Jón Guðbrands og Einar Ottó sem voru í banni og Gumma Tóta og Sigga Eyberg sem voru veikir. Svo fór Sævar Þór auðvitað vel vankaður af velli á 10. mín og spurði fjórum sinnum „hvað skeði?“, en vanalega spyr Sævar bara tvisvar sömu spurningarinnar.
Í fyrri leik liðana sem fram fór á Selfossvelli gerðu liðin jafntefli 2-2. Mörk Selfoss skoruðu þeir Jón Guðbrands og Gummi Tóta, en mörk Stjörnunnar gerðu þeir Steinþór Freyr og Þorvaldur Árnason. Það er óhætt að segja að fjölmiðlamenn landsins hafi aðeins hrokkið við er Bjarni Jóhannesson þjálfari Stjörnumanna kvartaði yfir of mjúku gervigrasi á Selfossvelli. Hér má sjá leikskýrslu frá fyrri leik liðana.
Selfyssingum hefur gengið best í sumar á þeim völlum þar sem alvöru stúka er og hafa t.a.m náð í 7 af þessum 11 stigum á útivöllum sem hafa alvöru stúku. Sigrar á Hlíðarenda, Frostaskjóli og stig í Grindavík segja kannski meira en nokkuð annað um mikilvægi stuðningsmannasveitarinnar, sem auðvitað fer á flug í stúku. Þess vegna er það gleðilegt að Stjörnumenn eiga frábæra stúku.
Stjörnustrákar voru nær ósigrandi á heimavelli í fyrra, en hefur aðeins fattast flugið og hafa unnið þrjá af sjö leikjum á sínum heimavelli. Aftur á móti er Stjarnan orðin frægasta lið Íslands með sín mögnuðu fögn sem stór hluti hins vestræna heims, auk Asíu er búinn að horfa á á youtube.
Stjarnan hefur á að skipa mörgum góðum knattspyrnumönnum, en urðu þó fyrir áfalli er Steinþór Freyr Þorsteinsson gekk til liðs við ríkisbubbaliðið Örgryte í Svíþjóð. Þetta fornfræga Gautarborgarlið, sem unnið hefur Svíþjóðarmeistaratitilinn 12 sinnum má muna sinn fífil fegri, en í dag eru þeir helst þekktir fyrir kick and run fótbolta. Aftur á móti hafa Garðbæingar Halldór Orra Björnsson í sínum röðum, hann hefur unnið ofan á frábært tímabil í fyrra og er m.a búinn að skora 7 mörk í ár. Nú er Halldór Orri að auki orðin hel tanaður og það að ósk Agnars Braga. Því verður gaman að fylgjast með honum klára Íslandsmótið þannig.
Selfoss og Stjarnan hafa nokkrum sinnum mæst í gegnum tíðina. Samtals eru leikir þessara liða 15 talsins. Stjarnan hefur unnið átta leiki, fjórir hafa endað með jafntefli og þrír endað með Selfoss sigri. Það er því 8-4-3 Stjörnunni í vil.
Þann 21. júní árið 1989 léku Stjarnan og Selfoss í 32 liða úrslitum mjólkurbikarsins. Selfoss vann leikinn nokkuð óvænt og mark Selfyssinga skoraði Sævar Sverrisson á 21. mínútu með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu. Garðbæingar voru betri í leiknum þar sem Árni Sveins með mottu eins og Ron fór eðlilega fremstur í flokki. Vörn Selfyssinga stóð fyrir sínu og fyrir aftan hana var Guðmundur Erlingsson eins og köttur í framan og var að lokum valinn maður leiksins.
Fyrir þá sem hafa gaman af fróðleik sem engu skiptir, þá má í framhjáhlaupi geta þess að þennan sama dag og Selfoss sló út Stjörnuna voru þeir Þór Sigmundsson og Guðmundur Benediktsson valdir í unglingalandslið Íslands skipað leikmönnum 16 ára og yngri.
Líklegt byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur, Martin, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Jón Daði, Stephan Yao Yao, Gunnar Borgþórs, Arilíus, Viktor Unnar og Sævar Þór. Bóló Bi Herve fékk rautt í síðasta leik og er því í banni, svo geta auðvitað eitthvað að þeim leikmönnum sem voru veikir eða í banni í síðasta leik komið inn.
Líklegt byrjunarlið Stjörnurnar er: Bjarni Þórður, Jóhann Laxdal, Daníel Laxdal, Tryggvi Bjarna, Víðir, Björn Páls, Dennis Danry, Atli Jó, Þorvaldur Árna, Halldór Orri og Ellert Hreins.
Þjálfari Stjörnunnar er einn sá virtasti í bransanum, Bjarni Jóhannsson. Hann fór upp með Stjörnuna árið 2008 og gerði góða hluti á fyrsta ári liðsins. Bjarni gerði ÍBV að Íslandsmeisturum ´97 og ´98 og einnig gerði hann liðið að bikarmeisturum. Bjarni hefur m.a líka þjálfað Grindavík, Fylki og Breiðablik.
Engin leikmaður sem undirritaður og hans heimildarmenn muna eftir hefur leikið með báðum liðum og það er mjög spes.
Einar Örn Daníelsson verður aðal dómari leiksins á sunnudag og honum til aðstoðar verða þeir Einar Sigurðsson og Sindri Kristinsson. Eftirlitsmaður leiksins er Ólafur Ragnarsson og er þetta þriðji Selfoss leikur hans í röð og gæti Gummi allt eins borið skiptingarnar undir hann, svo vel þekkir Óli orðið liðið okkar.
Heimasíða Stjörnunnar er lala, þar eru fullt af stöðluðum upplýsingu, en það vantar eiginlega stuðningsmannasíðu eða spjallborð þar sem frelsið til frásagnar er meira.
Veðrið verður til fyrirmyndar á sunnudag, hæg norð-austan gola, hiti 12 stig og heiðskýrt.
Á morgun fimmtudaginn 5. ágúst fer fram einn mikilvægasti leikur sumarsins, er Selfyssingar heimsækja Hauka heim. Leikurinn fer fram á heimavelli systurfélags Hauka, Vals og er þetta því annar leikur okkar á hinum stórglæsilega Vodafonevelli. Selfoss og Haukar standa þétt saman í 11 og 12 sæti Pepsideildar, Selfoss með 8 stig, en Haukar með 7 stig.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem liðin standa hlið við hlið í baráttunni á knattspyrnuvellinum því í fyrra fóru liðin saman upp í efstu deild og fyrir 3 árum fóru þau saman upp í 1. deild.
Haukar gleymast oft í umræðunni um stóru klúbbana en Haukar eru klárlega með flottustu klúbbum landsins. Það er fáir klúbbar, ef nokkur sem getur státað af því að eiga lið í efstu deild í fótbolta, körfu og handbolta í bæði karla og kvenna flokki. Það er helst FH sem getur státað af svipuðum árangri og hvort þakka skal bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði fyrir þá framsýni að bjóða öllum krökkum að æfa frítt þennan árangur eða einhverju öðru þá getur varla verið tilviljun að báðir þessir stóru klúbbar séu úr Hafnarfirði.
Knattspyrnufélag Hauka var stofnað 1931 í KFUM húsinu við Hverfisgötu. Það var að sjálfsögðu séra Friðrik Friðriksson sem átti hugmyndina að fuglanafninu, en það er viss skírskotun til systurfélagsins Vals í Reykjavík, sem er líka KFUM og K lið. Séra Friðrik hefur samt örugglega ekki átt von á því að Haukar og Valur myndu leika heimaleiki sína á sama vellinum árið 2010. Og reyndar hefði engum getað dottið það í hug, en það er nú samt raun þeirra.
Haukar hafa örlítið betur í fyrri viðureignum liðanna, en samtals eru innbyrðis viðureignir liðana 37 talsins. Haukar hafa unnið 17 leiki, 5 leikir hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 15 leiki, tölfræðin er því 17-5-15 Haukum í vil og markatalan er 68-65 Hafnfirðingum í hag. Það gerist nú reyndar ekki mikið jafnara, sérstaklega í ljósi fjölda innbyrðisviðureigna. Eins og áður sagði þá hafa Selfoss og Haukar farið upp um tvær deildir á þrem árum og gert það í sameiningu og því þekkja leikmenn liðana andstæðinga sína í þessum leik einstaklega vel. Ef teknar eru viðureignir síðustu þriggja tímabila sem liðin hafa farið upp um deildir er innbyrðisstaðan einnig nokkuð jöfn. Liðin hafa leikið 7 leiki, Selfoss unnið 3 leiki, en Haukar tvo leiki og tveir hafa endað með jafntefli. Markatalan er 13-9 fyrir Selfoss.
Fáir knattspyrnumenn hafa spilað með báðum liðum. Kristján Óli Sigurðsson spilaði með Haukum fyrri hluta tímabilsins í ár, en hann lék seinni hluta sumarsins 2008 með Selfoss, stóð sig mjög vel innan sem utan vallar. Daníel Gunnarsson pabbi Helga Vals sem nú leikur AIK í Svíþjóð, spilaði einnig með Haukum og svo hefur Magni Blöndal spilandi þjálfari Selfyssinga ´93 og ´94 einnig leikið með báðum liðum. Tómas Ellert Tómasson spilaði með Haukum árið ´93 þegar Selfoss fór upp. Eftirminnilegast leikur hans var að sjálfsögðu gegn Selfoss á Ásvöllum en þar flautaði dómarinn ekki til leiks vegna þess að stórt gat var á öðru markinu. Tómas Ellert náði reyndar ekki mörgum leikjum með Haukum þetta sumar því smíðavinna með Óla Jó gekk fyrir og ekki ólíklegt að hann hafi lært meira um töfra knattspyrnunnar þar.
Selfoss og Haukar léku saman í b-deild árið 1980, eða fyrir 30 árum síðan. Báðir leikirnir fóru fram á Selfossvelli, en Haukar fóru fram á það vegna þess að völlur þeirra var svo lélegur á þessum árum. Haukar vilja kannski bara síður leika í Hafnarfirði, því staðan er ekki ósvipuð hjá þeim í dag, en þeir um það. Haukar unnu fyrri leikinn 3-1. Seinni leikurinn fór fram laug 20. sept kl 15.00 og var m.a niðurlag auglýsingarinnar fyrir leikinn eftirfarandi „Komið og sjáið Heimi leika listir sínar í síðasta leik sumarsins“ En Heimir Bergsson sem hér um ræðir lék fyrri hluta sumarsins með FH, en meiddist illa og var að snúa aftur heim á Selfoss. Selfyssingar áttu ekki í vandræðum með Hauka í þessum leik og unnu 7-1, en þeir voru komnir í 5-0 eftir 25 mínútur. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu Jón Birgir Kristjánsson eigandi Hróa hattar með 2 mörk. Eitt mark skoruðu Tóti Ingólfs, pabbi Gumma og Ingólfs. Ólafur Sigurðsson móður bróðir Sigurðar Eybergs. Þór Valdimars, pabbi Grétars Þórs(fv. leikmanns mfl Selfoss) og Valdimars (besti leikmaður Íslandsmótsins í handbolta í ár) Ámundi Sigmundsson og Tryggvi Gunnarsson móður bróðir Arons Leifssonar markvarðar 2. flokks skoruðu svo sitt hvort markið.
Hjá Selfyssingum verða frændurnir Einar Ottó Antonsson og Jón Guðbrandsson í leikbanni og hjá Haukum verður Guðmundur Viðar Mete í leikbanni.
Eins og flestir vita fengu Selfyssingar fjóra nýja leikmenn í félagsskiptaglugganum, Svíann Martin Dohlsten, Fílabeinsstrendingana Stephan Yao Yao og Guessan Bi Herve og svo Íslendinginn Viktor Unnar Illugason. Haukar fengu einnig liðsstyrk í glugganum, en Spænski framherjinn Garcia gekk í þeirra raðir.
Líklegt byrjunarlið hjá Selfoss á fimmtudag er: Jóhann Ólafur, Martin, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Guðmundur Þórarins, Ingþór, Stephan Yao Yao, Arilíus, Jón Daði, Viktor Unnar og Sævar Þór.
Líklegt byrjunarlið Hauka er: Daði, Tóti Dan, Daníel Einarsson, Kristján Ómar, Gunnar Ormslef, Maggi Björgvins, Jamie McCunnie, Guðjón Pétur Lýðsson , Hilmar Geir, Arnar Gunnlaugs og Garcia.
Aðaldómari leiksins á fimmtudag verður kokkurinn geðþekki Magnús Þórisson úr Sandgerði, en hann er klárlega einn af bestu dómurum landsins. Honum til aðstoðar eru þeir Oddbergur Eiríksson og Gylfi Már Sigurðsson. Eftirlitsmaður á leiknum Ólafur Ragnarsson.
Veðrið verður frábært til að spila fótbolta á morgun, sunnan 4 metrar á sekúndu, þurrt, hiti 14 stig og skýjað.
Tómas.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



