| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Áfram ætlum við að kynna okkur betur alla leikmenn meistaraflokks kvenna. Til þess ætlum við að fá þær í hina hliðina sem síðan verður þeirra profile hér. Síðast svaraði Anna María og hún valdi hana Gummu litlu til að svara á eftir sér.
Fulltnafn: Guðmunda Brynja Óldóttir
Gælunafn: Gumma, Gumms, Meistrarinn, Landsliðs-Gumma
Aldur (í anda): 3ja ára, ég er svo mikið barn
Fæðingardagur/ár og hvar á jarðskorpunni: 3. janúar 1994 í Reykjavík
Foreldrar/systkini: Móðir: Anna María Snorradóttir, Faðir: Óli Rúnar Ástþórsson, fóstur-faðir: Bjarni Helgason, fóstur-móðir: Helga Sigurðardóttir. Svo 3 systkini: Álfheiður Eva, Tryggvi og litla gæludýrið Snorri Páll
Hjúskapastaða: Á lausu
Hefurðu þú búið annarsstaðar en á Selfossi: Já, Í Breiðholtinu
Ef þú yrðir að flytja á annan stað á Íslandi. Hvert færir þú: Mhm.. eitthvert sem er heitt og maður verður tan
Hvað ertu að gera fyrir utan að spila fótbolta: er í skóla
Uppáhalds vefsíðu: facebook, fotbolti.net og gossip.is
Uppáhalds Facebookvinur: Dagný er alltaf einhvað að reyna við mig á facebook þannig það er klárlega ekki hún, Anna María er ofarlega á listanum og svo Sara Árna en hún er duglega að deila ljóðum á vegginn minn
Hvað eldaðir þú síðast: Mér er ekki treystandi í eldhúsinu en ég grillaði mér brauð alveg sjálf ef það telst með
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Hókus pókus
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Muse
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Er með einn vitleysing í Fylki, það kannast allir við hana
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Það fer eftir því hvað klukkan er en annars á góðum degi eru það 20 mín
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Ég er nú ekki orðin lögleg á neina skemmtistaði, þannig það er pass
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Ég hélt mikið upp á David Beckham
Á næstu vikum ætlum við að kynna okkur betur alla leikmenn meistaraflokks kvenna. Til þess ætlum við að fá þær í hina hliðina sem síðan verður þeirra profile hér. Síðast svaraði Dagný Páls helvíti hressilega og valdi hún Önnu Maríu til að svara á eftir sér.
Anna kemur víða við, talar mikið um einhvern Ingó, myndi ekki spila með KR, kemst í gott skap á hræðilegum bröndunum, er ánægð með afturendann á sér og endar þetta síðan á því að guðlast sem varð til þess að henni hefur tímabundið verið afneitað úr móðurættinni sinni, enda margir mjög góðir sófa golfarar þar.
Fullt nafn: Anna María Friðgeirsdóttir
Gælunafn: pabbi kallar mig yfirleitt Mæ
Aldur (í anda): á venjulegum degi 18
Fæðingardagur/ár og hvar á jarðskorpunni: 25.júlí 1991 (besti dagurinn!) og á sjúkrahúsinu á Selfossi.
Foreldrar/systkini: Friðgeir Jónsson, Árný „Valgerður“ Steingrímsdóttir, Steingrímur(steini)Friðgeirsson, Linda Björk Friðgeirsdóttir og litla sys Katrín Ýr Friðgeirsdóttir
Hjúskaparstaða: laus
Hefurðu þú búið annarsstaðar en á Selfossi: nei
Ef þú yrðir að flytja á annan stað á Íslandi. Hvert færir þú: Vestmannaeyja
Hvað ertu að gera fyrir utan að spila fótbolta: skóla
Uppáhalds vefsíður: fotbolti.net og facebook
Uppáhalds Facebookvinur: allavegana EKKI Dagga Páls! En Gumma litla er ofarlega á lista ;-þ
Hvað eldaðir þú síðast: úff…. eflaust mexico súpu,, (eina sem ég get ekki klúðrað) reyndar fáránlega gott!
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist:pottþétt ein af Spice Girls plötunum
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Muse, án efa!
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Ingó er alveg pínu frægur
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: haha svona 10 min
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: ef Dalurinn telst sem skemmtistaður, þá hann :)
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Henry VAR góður
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: klobb’ann aftur og aftur :)
Erfiðasti andstæðingur: Thelma Sif er seig..
Ekki erfiðasti andstæðingur: allavegana ekki Dagga markmaður! she shoots, she scores!
Skemmtilegar sögur sem tengjast mfl. kvenna (mega alveg (endilega) vera grófar): þegar Dóri setti hitakrem í nærbuxurnar hjá Báru Sif. það hefði getað verið mjög skemmtilegt, en hún fattaði það…
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): haha Dagný Páls (EKKI ENDILEGA SÁ BESTI!) ;)
Sætasti sigurinn í fótbolta: á 17.ára afmælisdaginn minn þá unnum við Fylki 3-2 á útivelli, hörkuleikur, 2 rauð spjöld og allt, það var ljúft að fara inn í klefa með 3 stig! :D
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: seinni leikurinn á móti Haukum á síðasta tímabili.. úff… hann var sár…
Uppáhaldslið í enska: ARSENAL
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: svona annar en ég þá eru Guðmunda Brynja og Jón Daði allt í lagi
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Einar Ottó er alveg frekar grófur,, en Thelma Sif hjá stelpunum.. Klárlega!
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: KR
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta (s.s. Helena ekki talin með): Dóri Björns
Besti íþróttafréttamaðurinn: Gummi Ben! án efa!!
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: græti ekki ef Adólf Ingi myndi segja af sér
Hefurðu skorað sjálfsmark: örugglega þegar ég var lítil og vissi ekki neitt
Hver tekur lengstu trúnó-in í hópnum/talar mest: Dagga og Sif.. alltaf e-ð að lellast!
Hver er háværust í hópnum: Erna Kristín á sín móment
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og afhverju: Gummu, afþví að maður getur alltaf hlegið að henni!.. má Fabregas vera Selfyssingur? þá hann! :D og svo fengi einhver peyji valinn af litlunni fá að fljóta með ;-þ
Hvað kemur þér í gott skap:þegar Dagga kemur með einhvern aula brandara og hlær að sjálfri sér en enginn hlær með henni.. eitt gott dæmi.. Dagný hvað ertu að reykja?… I’m smoking hot… (og þetta fannst henni voða fyndið)
Ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag, hvað myndirðu gera: hlaupa um nakin og fella fólk haha :D
Hverjar eru merkustu persónurnar sem Selfoss hefur alið að þínu mati: Sævar Gísla er svona skærasta stjarnan héðan held ég, en Gummi Tóta, Stefán Ragnar og Jón Daði lofa góðu
Frægasti Selfyssingurinn: Ingó er pínu frægur.
Í hverju varstu/ertu best í skóla: Náttúrufræði
Uppáhaldskennari ever: Guðbjörg Gísla, íslensku kennari í Vallaskóla! en Gunni Borgþórs er ágætur :)
Uppáhalds barnaefni í æsku: horfði á Lion King á hverjum degi, stundum oftar en einu sinni. Grét samt alltaf jafn mikið þegar Mufasa dó :’(
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar og afhverju: Mánudagar! afþví að þá er cross-fit og öll skóla vikan eftir..
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Brasilía heillar mjög
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: hmm… unglingavinnan í 8.bekk var ekkert skemmtileg
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: „girl with ass like mine, don’t talk to a guy with face like yours!“ haha djók ;)
Hlærðu með mér eða að mér bi-arinn minn? P.s. Sannleikann í þetta skipti.? (spurning frá síðasta viðmælanda)I just feel sorry for you so I fake laugh auli! ;) og svo að við höfum það á tæru,, þá er dagga að gera sér vonir um að ég sé bi svo að hún eigi séns.. hahaha… yeah! thats gonna happen!
Hver á að svara þessum lista næst og afhverju: Gumma.. Afþví að hún er svo mikið beip!
Spurning á næsta viðmælanda: staðreind um þig sem fæstir vita! :D (verður að vera dagsatt litla pía!)
Eitthvað að lokum: vá hvað golf leiðinlegt sjónvarpsefni!
Á næstu vikum ætlum við að kynna okkur betur alla leikmenn meistaraflokks kvenna. Til þess ætlum við að fá þær í hina hliðina sem síðan verður þeirra profile hér. Til að ríða á vaðið fengum við hana Sif Sigurðardóttir og valdi hún markmanninn knáa, Dagný Páls til að svara á eftir sér.
Það er margt athyglivert í svörum hennar, hjúskaparstaðan er í óvissu, hún hefur sömu gælunöfn og Jón Guðbrands, les sömu síður og Tommi Þórodds, það er typpasafn á Húsavík, hún myndi nýta hæfileikan að vera ósýnileg mjög vel og er engu að síður svo ung að Gunni Borgþórs er uppáhalds kennarinn hennar… og hann rétt varla tvítugur!
Fullt nafn: Dagný Pálsdóttir
Gælunafn: Það er misjafnt, fer eftir dögum samt: Dagga lessa eða Dagga tussutryllir svona helst.
Aldur (í anda): Er bráðþroska í mínum huga, en segjum svona 7-9 ára. Fyndið að ég er með bílpróf.
Fæðingardagur/ár og hvar á jarðskorpunni: 1990, 10 september og á Akureyri,með K.
Foreldrar/systkini: Ágústa Sigríður Sigurðardóttir, Páll Ríkarðsson, Dagmar og Elín Pálsdætur, Haukur my big brother, Davíð og Karítas og svo Sævar:)
Hjúskaparstaða: Heyrðu ég veit það ekki, fólk verður bara að komast að því sjálft.
Hefurðu þú búið annarsstaðar en á Selfossi: Já á Víkinni góðu = Húsavík is the place! Typpasafn þar og svona fyrir dömurnar.
Ef þú yrðir að flytja á annan stað á Íslandi. Hvert færir þú: Ábyggilega einhverstaðar í bæinn:)
Hvað ertu að gera fyrir utan að spila fótbolta: Ég lyfti, elska það hreinlega og ætla taka þátt í Fitness í Nóvember:) og svo læri ég í FSU, og keyri á hnakkabílnum mínum Nissan Almera GTI niður Laugarveginn.
Uppáhalds vefsíður: Facebook, selfoss.org, fótbolti.net, mbl.is, lez-jungle.com, vodvafikn.net, fitness.is.
Uppáhalds bloggsíða: Bloggsíða, hvað tilheyrir því? Facebook bara:’)
Uppáhalds Facebookvinur: Það eru svo margir, en Anna María og Guðmunda skara aðeins frammúr.
Hvað eldaðir þú síðast: Kjúllann góða.
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Spice girls:D, ég var alltaf Melbí.
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Silversun pickups!:D, veit samt ekkert hver það er.
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Ég er með sjálfa mig, telst það með?
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Heyrðu ég vakna, og það tekur mig kannski 3-5 mín að fara úr rúmi.
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Barbara og svo var Q-bar í uppáhaldi þegar hann var!
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Harry Kewell, Alan Smith- Leeds fólkið!
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Klípa í bobbingana held ég.
Erfiðasti andstæðingur: Umm Guðmunda fær þann heiður.
Ekki erfiðasti andstæðingur: Það eru allir erfiðir á sinn hátt, en segjum bara Anna María;)
Skemmtilegar sögur sem tengjast mfl. kvenna (mega alveg (endilega) vera grófar): Þegar 2 stelpur, Bára og Sif voru í sturtu og kölluðu á mig: Dagný sjáðu sjáðu…Og þær voru eitthvað að perrast í hvor annarri í sturtu! Það var fyndið haha:’)
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): 2 gellur í KS og svo Hafrún sem er nú í Aftureldingu og stelpa í Haukum Lovísa.
Sætasti sigurinn í fótbolta: Mér finnt allir sigrar sætir. Fæ valkvíða á að velja svona.
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Þegar við töpuðum á móti Haukum,úrslitaleiknum, að Hauka-gellurnar skoruðu á lokamínútunni.
Uppáhaldslið í enska: Ávallt Leeds! en Liverpool líka:)
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Ég ætla segja Gumma litla.
Hver var með furðulegustu venjurnar (hjátrú) fyrir leik af leikmönnum Selfoss: Ástarengilinn hún Gumma litla.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Hjá stelpum Thelma Sif og Þóra;), annars er ég ekki fróð með alla leikmenn Suðurlands.
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: Æjj ég er með valkvíða, en ábyggilega, veistu ég veit það ekki. Ég sagðist aldrei ætla spila með Selfossi en sjáðu núna.
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta (s.s. Helena ekki talin með): Allir eru góðir á sinn hátt og ég dýrka alla fótboltaþjálfara mína á minn hátt. Og ég vel ekki úr.
Besti íþróttafréttamaðurinn: Gaurinn þarna sköllótti sem er á rúv eða stöð 2.
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Guð ég er tóm. Einhver stelpa sem var einu sinni með íþróttafréttirnar,veit ekki hvað hún heitir.
Hefurðu skorað sjálfsmark: Já auðvitað, ég verð að fá að skora í eitthvað mark sem er næst mér.
Hver tekur lengstu trúnó-in í hópnum/talar mest: Dagný nafna mín, hún er nefnilega alltaf að spyrja hvað klukkan er.
Hver er háværust í hópnum: Ég viðurkenni að ég hlæ hæst, en háværust fær Þóra Margrét:)
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og afhverju: Sif, Gummu litlu og Önnu Maríu, my team.
Hvað kemur þér í gott skap: Ræktin með strákunum, fótbolti með stelpunum,fjölskyldan mín,vinir mínir:) Og líka þegar Guðbjörg elskan er í Farmville<3
Ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag, hvað myndirðu gera: Ábyggilega fara í alla stelpuklefana á landinu.
Hverjar eru merkustu persónurnar sem Selfoss hefur alið að þínu mati: Sævar Þór og Guðmunda.
Frægasti Selfyssingurinn: Ingó er orðin býsna frægur;)
Í hverju varstu/ertu best í skóla: Allt tengt íþróttum á verklegan hátt.
Uppáhaldskennari ever: Gunnar Borgþórs!
Uppáhalds barnaefni í æsku: Simbað og Andrés Önd.
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar og afhverju: Sunnudagur þá hef ég ekkert að gera.
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Noregur og Danmörk:)
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Veistu ég hef alltaf haft gaman af öllum vinnum sem ég hef unnið:)
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: Þið tékkið bara á því næst þegar þið farið inná. En sem dæmi: Hæ, ég heiti Dagný og vil enga typpalinga(Karlmenn).
Hvað tekuru í bekk trukkur? (spurning frá síðasta viðmælanda (Sif):Heyrðu ég hef tekið 70 kg!:)
Hver á að svara þessum lista næst og afhverju: Anna María:D
Spurning á næsta viðmælanda: Hlærðu með mér eða að mér bi-arinn minn? P.s. Sannleikann í þetta skipti.
Eitthvað að lokum: Í sálfræði fræðumst við um Sálina… Sálina hans Jóns míns…. P.s. Sjáumst í sturtu stelpur.
Gummi okkar Tóta sýndi á sér hina hliðina á Fótbolta.net og má sjá svör hans hér.

Þetta var að mörgu leiti áhugavert hjá Gumma sem byrjar hræðilega og játar að hlusta allajafna á FM957, síðan lýgur hann því að herbalife sé uppáhalds drykkurinn sinn áður en hann nefnir fótbolta.net sem uppáhalds vefsíðu… án þess að minnast á selfoss.org!!!
Þegar kemur að bestu aðferðinni við að pirra andstæðinginn misskilur hann þetta eitthvað þar sem hann segir Sævar Gísla vera mjög góðan í því…en kemur ekkert inn á það að þetta fer vanalega jafntefli með Gíslason alveg jafn pirraðann og andstæðinginn!! (núna verður snúið upp á geirvörtuna á undirrituðum) : )
Gummi greyið vildi ekki ljúga þegar kom að því að velja helstu átrúnaðargoð en sagði svo að Jón Guðbrands væri fallegasti maður deildarinnar!! Eftir þessa vitleysu var varla að maður læsi þetta áfram en hann náði þó að toppa FM957 svarið með því að óska þess heitast að sjá Justin Timberlake live á sviði….af öllum þeim sem gaulað hafa í míkafón í gengum tíðina!! Ja hérna!
Gummi er síðan með númerið hjá Unni Birnu og sleppur því út úr þessu á pari.
Á næstu vikum ætlum við að kynna okkur betur alla leikmenn meistaraflokks kvenna. Til þess ætlum við að fá þær í hina hliðina sem síðan verður þeirra profile hér. Til að ríða á vaðið fengum við hana Sif Sigurðardóttir enda ávallt hress og kát:
Fullt nafn: Sif Sigurðardóttir.
Gælunafn: Sibba ef fólk kýs að lengja það.
Aldur (í anda): 10 ára.
Fæðingardagur/ár og hvar á jarðskorpunni: 17.desember 1990 á Landspítalanum.
Foreldrar/systkini: Mamma: María Kristín Örlygsdóttir. Pabbi1: Sigurður Sigurðarsson. Pabbi2: Elvar Gunnarsson. Systkini: Brynjar Þór, Kristinn Kári, Skúli Möller, Íris Arna, Sara Líf og Sindri Lúðvík.
Hefurðu þú búið annarsstaðar en á Selfossi: Rvk city og Hvolsvelli.
Ef þú yrðir að flytja á annan stað á Íslandi. Hvert færir þú: Ekki hugmynd..get bara sagt að rvk er ekki á topp 1.
Hvað ertu að gera fyrir utan að spila fótbolta: Vinna, leika mér, sooofa, borða, liggja í leti o.s.frv.
Hvað eldaðir þú síðast: Heima hjá Hilmari, það var bleikur kjúlli í matinn..mjög góður!
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Örugglega einhver söngleikjaplata..man samt bara eftir að hafa fengið 3 eintök af Svölu Björgvins í afmælisgjöf.
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Líklega Beyoncé..ég bara Verð að sjá hvernig manneskjan fer að því að hrista rassinn svona live, hún hlýtur að vera með hann í bandi!!
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Það var Gulla í stelpunum og Ingó Idol en þar sem ég ákvað að eyðileggja símann minn eru engin númer save-uð enn.
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Mjög misjafnt, er dugleg á snúsinu en annars 2-7mín þegar ég er búin að drulla mér uppúr rúminu.
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Útileiga eða bústaður.
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Við pabbi héldum mjög mikið á Robbie nokkurn Fowler.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Klípa eða gefa smá ollara í brjóstin á þeim!
Skemmtilegar sögur sem tengjast mfl. kvenna Einu sinni fórum við á Egilstaði að keppa og þá datt Dóra Hitler það í hug að setja dass af hitakremi í næríurnar hjá Báru Sif..þið getið rétt ímyndað ykkur hvað var heitt hjá henni um nóttina!!
Sætasti sigurinn í fótbolta: Alltaf þegar ég vinn!
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Þau eru nokkur..ferskustu vonbrigðin eru þau þegar Haukar náðu að jafna í uppbótartíma í úrslitaleik í fyrra.
Uppáhaldslið í enska: Liverpool.
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Gumma litla.
Hver var með furðulegustu venjurnar (hjátrú) fyrir leik af leikmönnum Selfoss: ?? Dagný Páls. Man ekki hvað hún gerir en það hlýtur að vera eitthvað mjög skrýtið þar sem hún er sérstök á sinn hátt.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Við erum allar svo góðar við hvor aðra..
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: ÍR og Haukar koma upp í hugann en þau er nokkur í viðbót.
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta (s.s. Helena ekki talin með): Dóri Hitler.
Besti íþróttafréttamaðurinn: Adolf Ingi.
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Adolf Ingi.
Hefurðu skorað sjálfsmark: Já það hef ég..alltaf gaman að hitta ekki!
Hver tekur lengstu trúnó-in í hópnum/talar mest: Það koma allavega góð trúnó í þjöppunum okkar en ég næ ekki að fylgjast með því hver talar mest, kannski vegna þess að ég þagna aldrei? (líklega já)
Hver er háværust í hópnum: Dagný Páls þegar hún opnar munninn!
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og afhverju: Mömmu: Til að þrífa eftir mig. Pabba: Til að elda fyrir mig. Einhverja vinkonu: Til að leika við mig.
Hvað kemur þér í gott skap: Þegar fólk dettur eða segir eitthvað heimskulegt.
Ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag, hvað myndirðu gera: Fara í strákaklefann!
Frægasti Selfyssingurinn: Það hlýtur að vera Ingó þessa stundina.
Í hverju varstu/ertu best í skóla: Tala.
Uppáhaldskennari ever: Þeir sem leyfðu mér að tala.
Uppáhalds barnaefni í æsku: Disney myndir, þær eru ennþá að gera góða hluti í dag.
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar og afhverju: Auðvitað mánudagar því þá er helgin búin.
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Heitt land.
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Þrífa heima hjá mér!
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: Ég er ung snót í ullarnærfötum, úlpu, gönguskóm og er að hoppa! Ertu geim?
Hver á að svara þessum lista næst og afhverju: Dagný Páls því hún hefur ekkert betra við tímann að gera..
Spurning á næsta viðmælanda: Hvað tekuru í bekk trukkur?
Eitthvað að lokum: Einu sinni voru tveir tómatar að labba yfir götu. Allt í einu sagði annar tómaturinn: Passaðu þig á holunni! Þá sagði hinn: Hvaða holUUUuuuuu?!
Kveðja Sif
Áfram höldum við að kíkja á hina hliðina á þeim sem tengjast fótboltanum á Selfossi á einn eða annan hátt. Síðast var það Bárður Guðmundsson „í GÁB“ sem svaraði og valdi hann vin sinn Sumarliða „Dengsa“ Guðbjartsson til að spreyta sig næst, en þar er á ferðinni eitthvað það gáfulegasta sem sést hafði á knattspyrnuvöllum Selfoss allt þar til Sævar Gísla fór að láta að sér kveða:

Fullt nafn: Sumarliði Guðbjartsson
Gælunafn: Dengsi
Aldur (í anda): 25 ára og ekki degi eldri! (Er annars 57ára)
Börn: Sif, Sigursteinn og Hildur
Hvað gerir þú: Er Landpóstur í dag
Hvað gerir þú ekki: Þvæ þvotta og þurka ekki af (þurrkar semsagt af?)
Hvað eldaðir þú síðast: Kalkún
Uppáhalds vefsíður: Fótbolta og veiðisíður
Uppáhalds Facebookvinur: er ekki á Facebook
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Með The Kinks
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Gömlu sveitaballahúsin í Árnessýrslu
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Led Zepperlin, en það er líklega orðið of seint.
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Engin frægur (eftir öll þessi ár hjá Símanum!!)
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Er mjög snöggur (eins og í boltanum!)
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Klípa hann í síðuna!
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: Miðframherji
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Jimmy Greaves, einn mesti markaskorari sem England hefur alið og að sjálfsögðu spilaði hann með Tottenham Hotspur
Erfiðasti andstæðingur: Líklega er það Gunnar Austfjörð, hann spilaði með ÍBA og var alltaf með hanska á höndunum þó að það væri yfir 20 stiga hiti
Ekki erfiðasti andstæðingur: Allir hinir, smá grín man ekki eftir neinum sérstökum sem ég get nefnd með nafni.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Þeir eru nokkrir, verð að nefna Kidda Gríms sem var ansi drjúgur á kantinum þ.e.a.s. ef hann gat tollað inná vellinum, var alltaf að meiðast greyið!
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Margir eru það, en verð að nefna einn sem heitir Sigbergur Sigsteinsson sem ég spilaði með í Fram 1977, get ekki sagt það hér fyrir hvað hann er eftirminnilegur!!
Sætasti sigurinn í fótbolta: 1985 þegar við unnum 3.deildina unnum alla leiki nema einn. Þá byrjaði ég aftur eftir að vera búinn að vera í hvíld í 5ár (það var nátturulega bara bilun). (eitthvað hefur þú verið þreyttur 1980!!) („,)
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: 11-0 tap á móti ÍBV 1976, ef það hefur verið einhvertíma sem maður hefur vilja hverfa ofan í völlin þá var það þarna.
Uppáhalds knattspyrnumaður: Ásgeir Sigurvins.bæði fyrr og síðar
Uppáhaldslið í enska: Tottenham Hotspur, síðan 1963 takk fyrir!
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: Magnús Jónatanson
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Það er nú erfitt að taka einn út,en Kristinn Ásgeirsson var annsi efnilegur á sínum tíma.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Guðmundur Karlsson
Besti íþróttafréttamaðurinn: Bjarni Fél
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Gaupi
Hefurðu skorað sjálfsmark: Nei, var aldrei það nálægt mínu marki til að geta skorað sjálfsmark, haha
Hvað kemur þér í gott skap: Er alltaf í góðu skapi
Ef þú myndir stranda á eyðieyju, hvaða þrjá tengda Selfoss hópnum (lið, stjórn, staff o.s.frv.) myndir þú vilja hafa með þér og afhverju: Bárð Guðm. er svo skipulagður. Matta Sigugeirs. til að sjá um að skemmta okkur og Ödda Grétas, til að veiða í matinn.
Hver var uppáhaldskennarinn þinn í skóla: Kristján, man ekki eftirnafnið (er orðinn svo gamall)
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Allir jafn góðir (ég mótmæli allur)
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Spánn, það er ekki hægt að segja England núna
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Lenti einu sinni í því að þrífa kyndikatla hjá MBF, það var alveg hræðilegt.
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: Ekki hugmynd, á ekki von að því að nýta þetta!
Bítlarnir eða Rolling Stones: Bítlarnir
Hver á að svara þessum lista næst: Þorvarður Hjaltason
Eitthvað að lokum: Sjáumst hress og kát á vellinum í sumar. Áfram Selfoss!!!
…
Þökkum Dengsa kærlega fyrir, næst fær Tobbi Hjalta það skemmtilega og krefjandi verkefni að sitja fyrir svörum.
ATH: Óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni (Babu) komin og þess má geta að myndin af Dengsa er stolin í algjöru óleyfi frá Hildi dóttir hans („,)
Áfram höldum við að kíkja á hina hliðina á þeim sem tengjast fótboltanum á Selfossi á einn eða annan hátt. Síðast var það Hlöðver Örn Rafnsson sem svaraði og valdi hann vin sinn Bárð Guðmundsson til að spreyta sig næst:

Fullt nafn: Bárður Guðmundarson.
Gælunafn: Hér áður fyrr: Gábarinn.
Aldur (í anda): Ekki degi meira en 40.
Börn: 3 dásamlegar dömur.
Hvað gerir þú: Sel tryggingar.
Hvað gerir þú ekki: Lifi óheilbrigðu lífi.
Hvað eldaðir þú síðast: Fisk.
Uppáhalds vefsíður: golf.is
Uppáhalds Facebookvinur: Á ekki neinn.
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Smáskífa með Bítlunum.
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Selfossbíó hið gamla.
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Bítlana.
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Enginn frægari en önnur.
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Eins fljótur og þarf.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Með háði.
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: Varnarjaxl.
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Árni Njálsson.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Bjössi rak & Gunni Skúla.
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Dengsi.
Sætasti sigurinn í fótbolta: Sigur Selfoss í 1. deild 2009.
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Að komast ekki í efstu deild 1987.
Hvernig í ósköpunum getur þú haldið með Tottenham? (Spurning frá síðasta viðmælanda): Tottenham var besta og flottasta liðið þegar ég byrjaði að fylgjast með enska fótboltanum og hefur verið það, að mestu leiti, síðan.
Uppáhalds knattspyrnumaður: Danny Blancflower
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: Matti langi.
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Pétur Robba.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Þór Valdimarsson.
Besti íþróttafréttamaðurinn: Bjarni Fel.
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Gaupi.
Hefurðu skorað sjálfsmark: Ekki það ég muni, en minnið er ekki óbrigðult.
Hvað kemur þér í gott skap: Góður félagsskapur.
Hver var uppáhaldskennarinn þinn í skóla: Guðmundur Daníelsson rithöfundur.
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Það var mánudagur í þátíð, en nú eru þeir allir jafnir.
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Skotland/skotar.
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Að þurfa að segja einhverjum upp vinnunni.
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: 57 ára gamall maður með söfnunar- og röðunaráráttu óskar eftir lífsfélaga, sem er þægilegur í umgengni og er ekki með kjaft út af einu né neinu.
Hver á að svara þessum lista næst: Sumarliði Guðbjartsson fyrrum stormsenter og markahrókur.
Spurning á næsta viðmælanda: Af hverju komst Selfoss ekki fyrr í efstu deild?
Eitthvað að lokum: Gerðu aldrei það næst besta, bara það besta.
…
Þökkum Bárði kærlega fyrir, næst fær Sumarliði „Dengsi“ Guðbjartsson það verkefni að sitja fyrir svörum
Enn höldum við áfram að kíkja á hina hliðina á þeim sem tengjast fótboltanum á Selfossi á einn eða annan hátt. Síðast var það Siggi Fannar sem svaraði og valdi hann Hlöðver Örn Rafnsson jafnan kendan við Bakka til að svara þessum lista næst:

Fullt nafn: Hlöðver Örn Rafnsson.
Gælunafn: Hlölli. (ertu viss?)
Aldur (í anda): 55 ára. Ótrúlegt.
Börn: Veit bara um Sverri Örn 26 ára tannlæknanema og Heiðrúnu Ernu 21 árs nema í sjúkraþjálfun.
Hvað gerir þú: Viðskiptafræðingur frá HÍ ´81. Sinni mörgum ólíkum verkefnum.
Hvað gerir þú ekki: Kann ekki á þvottavélina, er ekki tækjafrík.
Hvað eldaðir þú síðast: Grillaði ljúffengt kjöt.
Uppáhalds vefsíður: Mbl.is, M5.is og Fótbolti.net.
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Abbey Road með Bítlunum.
Uppáhalds skemmtistaður fyrr og síðar: Hollywood, konan mín heppin að kynnast mér þar.
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Sjá Kim Larsen aftur.
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Margir frægir, en síðastur í stafrófinu er Össur Skarphéðinsson.
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Mjög fljótur, vakna yfirleitt mjög snemma.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Taka strax mjög fast á honum. Þá verður hann hræddur það sem eftir er leiksins. sbr. Sigga Fannar á æfingum.
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: Varnarmaður og tengiliður.
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Var alltaf hrifinn af Helga Númasyni, tekniskur með mjög góða sendingar. Tók víti bæði með hægri og vinstri fæti. (í einu þá?)
Erfiðasti andstæðingur: Get ekki gert upp á milli Teits Þórðarsonar og Matthíasar Hallgrímssonar, leikmanna ÍA.
Ekki erfiðasti andstæðingur: Karl Þórðarson ÍA. Gekk alltaf vel á móti honum.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Erfitt að gera upp á milli Guðgeirs Leifssonar, Marteins Geirssonar og Ásgeirs heitins Elíassonar.
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Bjarni Kristjánsson, mikill markaskorari, fyrrum leikmaður Austra Eskifirði.
Sætasti sigurinn í fótbolta: Þriðji úrslitaleikurinn í 5. fl. Íslandsmótinu 1966 við FH, sem við Framarar unnum á Melavellinum.
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Jafnteflisleikurinn við KR árið 1978 í Reykjavík, þegar við Austramenn vorum 2-0 yfir þegar 8 mínútur voru eftir. Eysteinn Jónsson dómari gaf KR víti og aukaspyrnu og KR jafnaði. Þetta kom í veg fyrir að Austri færi upp í efstu deild. Einnig að hafa ekki komið inn á sem varamaður í leik við Real Madrid í Evrópukeppninni 1974.
Akureyri (Þór), Eskifjörður(Austri), Reykjavík(Fram)… hefur þú aldrei þjálfað fyrir vestan: Það var einu sinni haft samband við mig frá Ísafirði, en þá var ég búinn að ráða mig annað.
Uppáhaldslið í enska: Liðið sem leikur skemmtilegasta fótboltann, Arsenal.
Uppáhalds knattspyrnumaður: Patrick Viera, mikill baráttumaður og gefst aldrei upp.
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: Arnar Guðlaugsson, pabbi Ásmundar Fjölnisþjálfara.
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Erfitt að gera upp á milli Stefáns Ragnars, Jóns Daða og Guðmundar Þórarinssonar, allir mjög efnilegir. Siggi Fannar var mikið efni, en hætti of snemma, því miður. (Siggi er ennþá mikið efni)
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Sunnlendingar kunna ekki að spila gróft. Einar Jónsson var ekki grófur, en spilaði fast.
Með hvaða íslenska liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: Auðvitað Valur Reykjavík. (allt opið varðandi KR semsagt? )
Besti íþróttafréttamaðurinn: Hrafnkell Kristjánsson, kemur vel fyrir.
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Hörður Magnússon, of hlutdrægur.
Hefurðu skorað sjálfsmark: Hvernig spurning er þetta? Auðvitað ekki!
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Þór Vigfússon til að stytta mér stundir með frásögnum sínum, Sigmund Stefánsson til að vinna hann í hlaupum og eiginkonuna til að elda, þvo o.fl. fyrir mig.
Hvað kemur þér í gott skap: Er alltaf í góðu skapi.
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Föstudagurinn, vegna þess næstu tveir dagar eru frídagar. (haha helgarnar slíta vinnuvikuna svo í sundur)
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Spánn, heitt land og góðir í fótbolta.
Segðu klassíska setningu úr íslenskri kvikmynd: Horfi nánast aldrei á bíómyndir.
Hvert er versta/leiðinlegasta starf sem þú hefur unnið: Klóakvinnan hjá Reykjavíkurborg, þegar ég var 18 ára. (Já maður gæti trúað að allt sé jákvætt eftir það)
Hver á að svara þessum lista næst: Bárður Guðmundsson TM maður. (Hann hringdi nú í mig um daginn og kynnti sig sem Bárður í GÁB)
Spurning á næsta viðmælanda: Hvernig í ósköpunum getur þú haldið með Tottenham?
Eitthvað að lokum: Sigurður Fannar spurði mig hvort væri betra lið Fram eða Selfoss. Í dag er Framliðið mun betra, gæti breyst næsta sumar.
…
Um leið og Hlölla….(nei það passar enganvegin) Hlöðveri er þakkað kærlega fyrir er rétt að benda á að óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni komin. Næst fáum við Bárð í GÁB til að sýna á sér hina hliðina.
Babú

- mynd stolið frá Leó Árna
Fullt nafn: Sigurður Fannar Guðmundsson
Gælunafn: Sigurður Eff annar
Aldur (í anda): 45 (svekkjandi öruggglega að missa svona af einum áratug ! )
Börn: Tvö börn – Guðmundur Bjarki 10 ára og Þóra Björk tæplega tveggja ára
Hvað gerir þú: Ég reyni að sinna skyldum mínum.
Hvað gerir þú ekki: Dansa djass (ættir að prufa þetta er massa gaman)
Hvað eldaðir þú síðast: Lambalundir, pönnusteikar með saladi og kartöflum…nammi namm.
Uppáhalds vefsíður: Selfoss.org, fotbolti.net, kylfingur.is, tonlist.is
Uppáhalds Facebookvinur: Hemmi Gunn, alltaf svo jákvæður.
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Róbert bangsi
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Gjáin – þar gerðust ævintýr um hverja helgi. (já burt með þessar bækur, Gjáin er kráin)
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Búin að sjá U2 og það var alltaf draumurinn…
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Sr. Gunnar Björnsson, mjög kærleiksríkur maður. (KNÚÚÚS)
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: spikk og span á 30 mín – er tempó jaski.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: með því að skjóta með tánni á nærstöng, þegar síst skyldi.
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: framherji
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Diego Armando Maradona, ég var og er eldheitur aðdándi þess mikla kappa.
Erfiðasti andstæðingur: Ómar Valdimarsson er klækjarefur, erfitt að fara framhjá slíkum mönnum.
Ekki erfiðasti andstæðingur: Orri Smárason, auðvelt að vippa yfir hann.
Fyndnasta moment tengt Selfoss liðinu (þjappa/í leik): þegar Valli Reynis sagði við dómarann sem var að gefa honum sitt annað gula spjald, að hitt spjaldið hafi verið á Gaua Tobba, og dómarinn(Gunnar Þórðarson) tók það gott og gilt, trúði ekki slíkri lygi upp á Valgeir, sem er mjólkurfræðingur eins og Gunnar. Valli slapp, en fékk síðan sitt þriðja gula spjald tíu mínutum síðar og þar með rautt.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Hér ber að þakka óteljandi stoðsendinum frá þeim Stebba Hólmgeirs og Gaua Tobba. Utan vallar eru það Leó Árnason, Tómas Þórodsson og Elvar Gunnarsson sem hafa reynst ráðagóðir og skemmtilegir samstarfsmenn.
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Félagi minn í gegnum yngri flokkana Gunnar Valgeir Reynisson var mikill baráttujaxl og skemmtilegur innan vallar sem utan.
Sætasti sigurinn í fótbolta: Síðasti sigurinn er alltaf sá sætasti. (jakk klisja)
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Að hafa misst keppnisáhugann of snemma.
Uppáhaldslið í enska: Arsenal (samhryggist)
Uppáhalds knattspyrnumaður: Diego Armando Maradona
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: Gylfi Þór Gíslason kenndi mér margt.
Afhverju er orðið nótt alltaf í öllum textum frá þér (spurning frá aðdáanda): Nóttin er í textum mínum tákngervingur hins óþekkta/óræðna. Í nóttinni er meira umburðalyndi, þar er pláss fyrir alla heimsins drauma. (Vá)
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Sævar Þór var mikið efni – sem hefur ræst úr. Guðmundur Þórarinsson, Jón Daði Böðvarsson og Stefán Ragnar, allt efni í atvinnumenn.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Gylfi Sigurjóns, tæklandi um allan völl með báða fætur á undan sér.
Með hvaða íslenska liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: Víði Garði, það segir sig sjálft. (já það segir sig nokkuð sjálft)
Besti íþróttafréttamaðurinn: Gummi Ben
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Adolf Ingi áberandi lélegastur. (hvað meinar þú? Sjáðu, bara, frábær)
Hefurðu skorað sjálfsmark: nei (piff, svona kallar sem skila sér aldrei aftur)
Hver var með furðulegustu venjurnar (hjátrú) fyrir leik af gömlum hetjum Selfoss: Það verður að vera sú undarlega venja Sævars Sverris að spila með mynd af Sigga Reyni, bróður sínum innan undir legghlífunum. (hver hefur ekki spilað með mynd af honum innan undir legghlífunum?)
Hvor nær Skúla Má betur, Skúli sjálfur eða Már Más: Már fullkomnar Skúla = Skúli Már (kjaftæði, sjáðu bara)
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og afhverju: Stebba Hólmgeirs - til að byggja yfir okkur hús og sjá til þess að þakið haldi vatni.(skjól) Tona Hartmanns svo að hann gæti verkað og skorið kjötið sem við myndum veiða.(matur) Kjartan Bjöss svo hann geti klippt mig og haldið þorrablót og tónleika fyrir mig.(skemmtun)
Riff Redhead eða Poppins Flýgur: Poppins Flýgur, engin spurning. (er ekki hægt að fá sameiginlega come back tónleika…í Gjánni)
Í hverju ertu bestur, fótbolti, söngur eða golf: Ég alla vega afskaplega gaman af þessu öllu, en ætli ég sé ekki flinkastur í golfi í dag.
Hvað kemur þér í gott skap: Súrefni í lungun dugar mér, er frekar geðgóður maður.
Hver var uppáhaldskennarinn þinn í skóla: Erlingur sögukennari var eftirminnilegur. (Sögulegur alveg)
Uppáhalds barnaefni í æsku: Þeir kumpánar Tómas og Jens – Tommi og Jenni. (Tommi Þórodds?)
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Þriðjudagur, þá er lægð yfir hugmyndum og framkvæmdagleði. Það er margsannað. (hver mannsbarn veit að þriðjudagur á ekki brake í mánudaga)
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Argentína í fótbolta, Bandaríkin að öðrum kosti.
Horfa á Liverpool leik með Elvari Gunn eða ekki með Elvari Gunn (“,): Guð hjálpi mér að horfa með honum þessa dagana. (of kátur meinar þú?)
Segðu klassíska setningu úr íslenskri kvikmynd: „Þungur hnífur“
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Fann mig ekki fullkomnlega í hlutverki athafnamannsins. Leiddist hvað var rólegt.
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: „Er giftur – látið mig vera – það skráði mig einhver annar hérna inn.“ (pottþétt Leó, Tommi eða Elvar)
Hver á að svara þessum lista næst: Hlöðver Örn Rafnsson
Spurning á næsta viðmælanda: Hvort er betra lið Selfoss eða Fram ?
Eitthvað að lokum: Myndir þú nenna að horfa í spegil ef það væri engin spegilmynd ? (já já)
…
Þá þökkum við Sigurði Fannari kærlega fyrir. Óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni (Babu) komin. Næst fáum við Herra Herrakvöld Selfoss Hlöðver Örn Rafnsson til að sýna á sér hina hliðina og er það væntanlegt öðruhvorumegin við herrakvöldið.
Endilega tjáið ykkur í ummælum ef þið hafið einhverju við hina hliðina á Sigga Fannari að bæta!
Babú

Fullt nafn: Óskar Valberg Arilíusson
Gælunafn: Blue sky
Aldur (í anda): ca. 23 (þó það)
Börn: 3 strákar
Hvað gerir þú: Sem minnst
Hvað gerir þú ekki: Sem mest
Hvað eldaðir þú síðast: Purusteik
Uppáhalds vefsíður: Selfoss.org fotbolti.net
Uppáhalds Facebookvinur: þú (er að þá ég eða bara allir facebook vinir þínir sem lesa þetta?)
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: kaffibrúsakarlarnir (vá aðeins betra)
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: U2 og Rolling Stones
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Tóki munkur
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: 2 mín (hvaða stress, klárt brot á lögbundnum snooze tíma)
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: nýjasta nýtt er að nota strandbolta…… (já það helvíti svínvirkar þegar dómarinn kann ekki reglurnar)
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: Byrjaði í yngri flokkunum sem framherji, fór þaðan í markið og endaði sem hafsent. Jafn góður í öllum stöðum
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Hrói Höttur
Erfiðasti andstæðingur: Halldór Morthens
Ekki erfiðasti andstæðingur: Halldór Morthens
Fyndnasta moment tengt Selfoss liðinu (þjappa/í leik): Þegar Bragi skoraði sigurmarkið gegn Víkingum á útivelli og meira að segja Sævar náði ekki að hlaupa hann uppi til að fagna með honum.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Mér finnst tót allir jafn góðir (Tommi, Ómar, Trausti I suppose)
Sætasti sigurinn í fótbolta: Selfoss vs ÍA vera bestur. (1991 eða 2009?)
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: að sundboltinn skyldi ekki fara í markið líka
Uppáhaldslið í enska: Tottenham Hotspur (Þá eru mestu vonbrigði með öllu óskiljanleg)
Uppáhalds knattspyrnumaður: Alli frændi
Hver á ljótasta bílinn í Selfossliðinu: Hvaða rugl er þetta (þetta er nú ekki flókið)
Hvort er meira Stokkseyri, Alli Matt eða Henning: báðir lifandi holdgervingar STOKKSEYRINGA. GÓ STOKKSEYRI
Efnilegasti leikmaður Selfoss: Sævar Þór Gíslason
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Elvar Gunn.
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: U.M.F. Bolungavík -sæll Trausti
Besti íþróttafréttamaðurinn: Egill Vignir (ætli það sé pabbi Vignis Egils?)
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Höddi skinka Magg
Hefurðu skorað sjálfsmark: Hvað er að þér. (s.s. já, óþarfi að spyrja)
Hver er með furðulegustu venjurnar (hjátrú) fyrir leik af leikmönnum Selfoss: Jón Guð. Þarf alltaf að fara í mánaðar skítuga boli og sokka, sem hann tínir upp af klefagólfinu.
Hefur þú trú á að Tommi Þórodds gæti spjarað sig sem módel miðað við catwalk-ið sem hann tekur iðulega á 5-7 bjór: Bíddu vinnur hann ekki sem súpermódel???????? (Það hefur aldrei fengist staðfest hvað Tommi gerir í skóli myrkurs)
Ef þú myndir stranda á eyðieyju, hvaða þrjá tengda Selfoss hópnum (lið, stjórn, staff o.s.frv.) myndir þú vilja hafa með þér og afhverju: Trausti, Ómar, Tommi… gætum tekið opna tótó á hverjum degi. (afhverju hef ég það á tilfinningunni að engum langi að vita út á hvað Opna tótó gengur fyrir sig)
Bítlarnir eða Rolling Stones: REO Speedwagon
Riff Redhead eða Skítamórall: jájá annars ekki spurning Skítamórall.
Hvað kemur þér í gott skap: Sr. Gunnar Björnsson á röltinu.
Í hverju varstu bestur í skóla: Söng
Er ekki stefnt á að vera yfirliðsstjóri áfram á næsta ári: nanananananan (was?)
Ef svo er, sérðu fram á að klippa þig eins og Gummi Ben í haust: Ekki glæta.
Hver á að svara þessum lista næst: Sigurður Fannar Guðmundsson
Einhvað að lokum: já einhvað er skrifað eitthvað. (sá það núna)
.
Óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni (Babu) komin. Næst fáum við síðan Sigga Fannar til að sýna á sér hina hliðina.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



