„Við ætlum þar að spila við FH, KR og Keflavík…“ eitthvað á þessa leið hljómar lína í lagi frá Skjálfta sem þeir hafa sungið í yfir 2 ár. Alltaf þegar talað er um að komast upp í úrvalsdeild og hvað sé gaman við það er undantekningarlaust tekið fram hvað það er gaman að fá að mæta liðum eins og FH, KR, Val, (ÍA) o.s.frv. Í svona upptalningu er alltaf talið KR-inga með, sama hvar þeir eru í töflunni. Eðlilegt svosem enda stærsti klúbbur landsins og þeim fylgir mestur fjöldi stuðningsmanna hvort sem liðinu gegnur vel eða illa.
Því er alveg hægt að færa rök fyrir því að á sunnudaginn sé komið að einum stærsta leik ársins og þ.a.l. einum stærsta leik Selfoss frá upphafi (á við um flestalla leiki okkar þetta árið). Við fáum sjálfa KR-inga í heimsókn og búast má við því að þeir verði í miklu stuði enda mikið búið að ganga á í sumar og þá sérstaklega fyrir þennan leik.
Hinum geðþekka Loga Ólafssyni var sagt upp störfum (sama hvernig reynt er að fegra það) í síðustu viku og í hans stað er kominn Rúnar Kristinsson, einn besti knattspyrnumaður íslandssögunnar. Þó hann hafi verið yfirþjálfari þar sl. ár má búast við KR-ingum vel einbeittum og ákveðnum í að að sanna sig fyrir nýjum stjóra og eins vill liðið líklega svara fyrir fyrri leik liðanna, honum lyktaði með þeim hætti að þeir sem tóku upp leikinn fannst ekki ráðlagt að sýna úr honum enda trúir því ekki nokkur maður að myndatökumaður hafi gleymt að mæta á KR-völlinn.
Selfoss vann allavega frækinn sigur á KR-vellinum sem vakti töluverða athygli og ekki síður vakti rótburst Selfyssinga í stúkunni athygli enda var eins og Skjálfti hefði sett Miðjuna á mute í leiknum í hinni frábæru stúku KR-vallarins. Skjálfti þann dag er eitthvað það besta sem ég hef séð frá áhorfendum á íslandi. Flest öll önnur viðmið sem ég hef koma frá Miðjunni.

Miðjan er þegar farinn að undirbúa það sem þeir kalla road trip út á land (alla leið á Selfoss) og má fastlega búast við þeim í öllu sínu veldi á sunnudaginn til að sýna Skjálfta hvar Davíð (Axels) keypti ölið (Pepsi Max).
Það er því von okkar hér á Orginu að Skjálfti mæti snarbrjálaðir til leiks, bendi Miðjunni á að þeir kaupi ekkert ölið heldur séu svo gáfaðir að heita í höfuðuð á bjórtegund og rústi Miðjunni…aftur.

En þá að leiknum, það er afar erfitt að meta hvernig KR-liðið mun mæta til leiks, þeir eiga tvo góða í hverja stöðu og með nýjum stjóra er ekki ólíklegt að nýir menn fái sénsinn, jafnvel uppaldir KR-ingar. KR-liðið var að spila í síðustu viku gegn Karpaty í Úkraínu og tapaði 3-2, þar var liðið svona
En þar sem menn eru þreyttir og slíkt tippum við á með þó nokkru öryggi að liðið verði svona:
Byrjunarliðið:
Óli Gott
Siggi Örn – Þormóður – Winnie – Sigursteinn
Hilmar Bjöss – Bjarki Gunnl – Rúnar Kr – Einar Dan
Gummi Ben
Bibercic
Pétur Pétursson er tæpur, Hlynur Geir er auðvitað í banni og Daði Dervic er veikur og Kiddi Kær gefur ekki kost á sér.

Hér má sjá Dohlsten hræða líftóruna úr Inga Rafni.
Á liði Selfoss gæti síðan orðið algjör bylting, það eru fjórir nýir leikmenn komnir með leikheimild og búumst við fastlega við allavega þremur þeirra beint inn í byrjunarliðið, ef ekki öllum. Svona tippum við allavega á að liðið verði:
Byrjunarliðið:
Jói
Dohlsten – Bragi – Stebbi – Gummi Tóta
Einar Ottó – Yao Yao
Jón Daði – Viktor – Baoulu
Sævar Gísla
Bekkur: Dóri Bjöss, Steini Púlla, Ómar Vald, Gísli Bjöss, Valli Reynis og Gylfi Sigurjóns.
Mark og miðverðir ættu að vera nokkuð pottþétt, svíinn er hægri bak og bara hlýtur að koma beint inn í liðið. Vinstramegin er spurning hvort Gummi Tóta eða Andri Freyr verði fyrir valinu en við setjum Gumma þar sem hann hefur verið þarna undanfarið.
Djúpa á miðjunni setjum við Einar Ottó og Já Já og mælum með því að miðjumenn andstæðinganna sign-i sig fyrir leik.
Jón Daði ætti að vera á hægri kannti, í holunni gætu Alli, Guðbrands, Gummi Tóta og Viktor Unnar allir komið inn og frammi er Sævar Gísla líklegastur þó samkeppnin hjá honum hafi aukist þó nokkuð í þessum leikmannaglugga.
Þetta er eins og áður segir afar mikið skot út í loftið enda vantar þarna inní menn eins og Kjartan, Inga Rafn, Ingþór, Jón Sveins og Viðar Kjartans. Eina sem er vitað er að Ingó Tóta er meiddur og Davíð Birgis má ekki spila þennan leik enda kappinn á láni frá KR.

Þessi leikur átti að vera opnunarleikur á nýja grasvellinum hérna á Selfossi og vígja átti stúkuna með pomp og prakt en eins og áður hefur komið fram á þessari síðu verður ekkert af því, stúkan er ekki klár og völlurinn er tæpur þannig að leikið verður á gervigrasinu og vonandi verður það í síðasta sinn í sumar. Sveinbjörn Más framkvæmdastjóri segir allavega á fótbolta.net að stefnt sé á Keflavíkurleikinn 16.ágúst.
En það breytir því ekki að öflugustu útvarpsstöðvar tengdar knattspyrnuliðum, Suðurland FM og KR Útvarpið ætla að leiða saman hesta sína og hefja útsendingu á samtengdum rásum (96.3 fyrir okkur) klukkan 18:00 á sunnudaginn. Á þeim tíma munu þeir spjalla við þjálfara liðana, leikmenn og líklega einhverjar kempur sem verða þarna á vappinu.
En þetta er ekki allt því eins og áður segir stefnir allt í það að fulltrúi KR Útvarpsins verði goðsögnin sjálf, Bjarni Fel. Fyrir hönd Suðurland FM er auðvitað eftir sem áður Vignir Egill og hefur hann sagt að þetta sé álíka stór stund fyrir sig og þegar hann fékk að spila á balli með OFL ´99 og róta fyrir Skímó 2001.
Vignir er þó búinn að æfa sig lengi fyrir þetta tækifæri og muna eflaust einhverjir eftir snilldar lýsingum hans og Gísla Felix (Bjarna Fel-sonar) frá handboltanum sl. 2 vetur fyrir ca. 2 árum. (heiðursmaðurinn Addi Gunn hefur síðan auðvitað lýst handboltanum með Gísla Felix sl. 2 ár.)
Þannig að hvort sem þið ætlið að mæta á völlinn eða ekki þá er engin spurning um að stilla á Suðurland FM 96.3 á slaginu 18:00 og hlusta allan tímann.
Að lokum vil ég biðja dygga lesendur Selfoss.org afsökunar á að upphitun sé í umsjá undirritaðs og því ekki gáfulegri en þetta. Tómas sem hefur farið á kostum undanfarin ár með upphitanir sínar er að sýna allar sínar bestu hliðar á unglingamóti í Svíðþjóð, hér má einmitt sjá video sem sænska sjónvarpið náði af Tomma og nokkrum nýjum vinum hans og slatta af frændfólki.

Áfram Selfoss alla leið, bæði í blíðu og stríðu.
Leikur hefst 19:15
Vertu þar.
Babú
Deila