Við höfum ákveðið að athuga hvort einhver áhugi sé fyrir því að auglýsa á síðunni gegn vægu gjaldi.
Til að koma í veg fyrir misskilning, þá er best að taka það fram strax að vefurinn er ekki rekinn í gróðaskyni – Með auglýsingum er aðallega vonast eftir hjálp með hýsingarkostnað og annan kostnað sem tilfellur við að halda síðunni úti.
Heimsóknum á síðuna hefur fjölgað mjög undanfarnar vikur í takti við stemmingu í kringum fótboltann hérna og viðbrög við síðunni hafa verið mjög jákvæð síðan hún opnaði í haust.
Síðan hefur verið að vaxa jafnt og þétt allt frá opnun og er óhætt er að fullyrða að umferðin á eftir að aukast þegar líður tímabilið og síðan því mjög góður vettvangur fyrir þá sem vilja ná til knattspyrnuáhugamanna á Suðurlandi.
Mögulegar staðsetningar á auglýsingum
Við myndum síðan auðvitað reyna að hygla þeim sem auglýsa hjá okkur eins og mest við getum!
Nánari upplýsingar um verð og fleira fást hjá Óskari (oskar@oskarei.com / 897 7453) eða Einari Matthíasi (einar@babu.tk / 862 2667).
Deila