Viktor Unnar Illugason er genginn í raðir Selfoss frá Val. Þetta staðfesti Viktor í samtali við Fótbolta.net.
Viktor mun spila með Selfoss út þessa leiktíð og er löglegur með okkur á sunnudaginn gegn KR.
Viktor er 20 ára gamall framherji sem gekk í raðir Vals fyrir síðasta tímabil frá Reading.
Hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 er hann lék tíu leiki í Landsbankadeildinni og VISA-bikarnum fyrir Breiðablik.

Viktor glímdi svo við mikið af meiðslum hjá Reading og kom þá aftur heim.
Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri undir stjórn Gulla Jóns eftir að hann tók við Valsmönnum í vor.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem við fáum en liðið hefur fengið í þessum leikmannaglugga.
Hjartanlega velkominn Viktor Unnar
Annars talandi um leikinn gegn KR á sunnudaginn þá verður hann leikinn á gervigrasi þar sem nýi aðalvöllurinn og stúkan eru ekki ennþá klár, og verða væntanlega ekki í sumar.
Annars verður Bjarni Fel líklega með Vigni Agli að lýsa leiknum gegn KR á samtengdum rásum KR útvarpsins og Suðurland FM en við munum kynna það betur á næstunni.
Deila