| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Þá er komið að því að bjóða Gulla Jóns í heimsókn með lærisveina sína frá Hlíðarenda. Eins og flestir vita kom Gulli Selfoss upp í efstu deild í fyrra og hvarf síðan af braut og tók við Val. Þetta er því fyrsta heimsókn Gulla á Selfossvöll. Leikurinn er klukkan 18.00 mánudaginn 30. ágúst. Fyrir leik eða klukkan 17.30 munu þjálfarar liðana þeir Guðmundur Benediktsson og Gunnlaugur Jónsson ræða við stuðningsmenn Selfyssinga í Selinu.
Einn af frumkvöðlum Vals var séra Friðrik Friðriksson frá Hálsi í Svarfaðardal, en sá merki maður sem aldrei sóttist eftir veraldlegum eigum og sjaldan átti pening, lifði þó mjög innihaldsmiklu og gefandi lífi. Félagið hans var stofnað árið 1911 og eftir smá útreikning telst mér að félagið verði 100 ára á næsta ári. Þetta 100 ára afmæli virðist trufla stjórnarmenn Vals alveg óendalega mikið og langar þeim til að hampa Íslandsmeistaratitli líkt og KR gerði á sínu 100 ára afmæli.
Um fáa leiki hefur verið talað jafn mikið um af eldri kynslóðinni á Selfossi og leikinn við Val 1968, en 15 dögum eftir að Valur vann Selfoss 4-3 í æfingaleik, mættu Valsarar Benfica í Evrópukeppninni. Leikurinn fór fjörlega af stað og Selfoss komst í 2-0 eftir 8 mín og var staðan svo 3-2 fyrir Selfoss í hálfleik. Sverrir Einarsson hafði skorað öll mörk Selfoss, en samkvæmt blaðamanninum „klp“ í Reykjavík skoraði Hermann eitt marka Vals og var það heppnismark, ég gef mér það að hér sé talað um Hemma Gunn. Blaðamaðurinn gefur vörn Vals ekki háa einkunn og segir hana hafa gert „margan Valsmanninn gráhærðan í sumar“ en aftur á móti er hann nokkuð sáttur við framlínu Valsliðsins sem átti „léttan leik þar sem boltinn gekk manna á milli“ eins og segir þar. Þetta blað sem fjallar um leikinn segir frá því að tvö marka Vals hafi verið heppnismörk og í niðurlagi greinarinnar er Selfossliðinu hampað og m.a „sýndu að ekki er langt í komu þeirra í 1. deild“ (efstu deild) Eins og flestir vita þurftum við samt að bíða í 42 ár og biðin var þess virði.
Þessi frægi leikur er ekki skráður hjá KSÍ, enda einungis um æfingaleik að ræða. Aðeins finnast fjórir skráðir KSÍ leikir á milli þessara félaga og hefur Valur unnið þá alla. Árið 1975 unnu Valsmenn 8-0 sigur í bikarnum og svo unnu Valsmenn Selfoss 28. mars 2008 4-2 þar sem Sævar Þór og Boban skoruðu mörkin og Gummi Tóta lék sínar fyrstu mínútur með meistaraflokk. Hægt að sjá leikskýrsluna hér og þar má sjá svart á hvítu að Gummi Ben lék fyrri hálfleikinn með Val, hvað sem honum nú gekk til með því. Nú í vetur unnu Valsmenn svo Selfyssinga 3-0 í lengjubikarnum, þar sem tvö mörk í byrjun leiks voru dæmd af Selfyssingum og má sjá leikskýrsluna úr þeim leik hér. Svo unnu Valsmenn fyrri leik liðana í Pepsideildinni 2-1 og því ljóst að alltaf styttist bilið á milli félaganna. Hér má sjá leikskýrslu frá þeim leik.
Nokkuð margir leikmenn hafa farið á milli félaga og flestir í rétta átt. Margfaldur Íslandsmeistari með Val Magni Blöndal þjálfaði Selfoss árin 1993 og 1994 og kom þeim upp í b deild fyrra árið. Árni Njálsson þjálfaði Selfoss einhverjum árum fyrir diskótímabilið. Valsarinn og markahrókurinn Jón Gunnar Bergsson átti frábært tímabil á Selfossi og varð mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum. Heimir Karlsson morgunþáttarstjórnandi á Bylgjunni þjálfaði Selfoss árið 1990. Árið áður, eða árið 1989 þjálfaði Valsarinn Hörður Hilmarsson lið Selfyssinga. Með Herði kom á Selfoss, Ingi Björn Albertsson en hann er eins og flestir vita tengdafaðir Gumma Ben þjálfara Selfoss. Ingi Björn varð að sjálfsögðu markakóngur Selfoss þetta tímabil með 8 mörk og hann er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi. Oftar en ekki voru fyrirsagnir dagblaðana „Þingmaðurinn skoraði“, en Ingi Björn var þingmaður og notaði sumarfríið til að leika knattspyrnu. Ingi Björn tók við liði Vals er hann yfirgaf Selfoss og náði þeim ótrúlega árangri að gera þá að bikarmeisturum öll þrjú árinn sem hann þjálfaði liðið.
Antony Carl Gregory lék með Selfoss hálft tímabil ´98 og átti stóran þátt í að halda liðinu uppi, eftir að liðið hafði verið í fallsæti c-deildar undir stjórn Ólafs Jóhannessonar núverandi landsliðsþjálfara. Ámundi Sigmundsson var lykilleikmaður Selfyssinga upp úr 1980 og hann varð svo Íslandsmeistari með Val. Geir Brynjólfsson hefur einnig leikið með báðum liðum sem og Salih Heimir Porca. Kristinn Björnsson spilaði með Val og hann hefur þjálfað bæði Val og Selfoss. Gulli Jóns þjálfaði og spilaði með Selfoss í fyrra, en eins og áður sagði þjálfar hann nú Val. Viktor Unnar Illugason kom frá Val í Selfoss á miðju síðasta tímabili og hefur staðið sig mjög vel á Selfossi, skorað og átt þrjár stoðsendingar, en hjá Val fékk hann einungis einn leik í byrjunarliði. Svo að lokum varð Gummi Ben þjálfari Selfyssinga Íslandsmeistari með Val sem leikmaður árið 2007, en það á reyndar afskaplega vel við að Valsmenn hafi orðið meistarar árið 2007.
Síðustu 6 leikir liðana í Pepsideild og er síðasti leikur talin upp aftast.
Selfoss: T-T-S-T-S-T
Valur: J-T-T-J-S-T
Liðin eru byggð upp á mismunandi hátt og var t.d einungis einn uppalinn Valsari í liði Vals í síðasta leik á meðan sjö leikmenn í byrjunarlið Selfoss í síðasta leik eru uppaldir og mikill meiri hluti hópsins hjá Selfossi er auðvitað uppalinn þar.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er erfitt að ráða í, þar sem þeir Jón Daði Böðvarsson og Arilíus Marteinsson eru í leikbanni. Setjum þetta svona upp: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Jón Guðbrands, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Yao Yao, Gunnar Rafn, Einar Ottó, Ingi Rafn, Viktor Unnar og Sævar Þór. Eins er Stefán Ragnar orðinn góður af meiðslum líkt og Ingó Tóta og þeir eru auðvitað líklegir til að byrja.
Líklegt byrjunarlið Vals er 4-5-1: Kjartan, Gregg Ross, Atli Sveinn, Martin Petersen, Rúnar Már, Arnar Sveinn, Ian Jeffs, Haukur Páll, Jón Vilhelm, Þórir, Diarmuid O´Corroll. Stefán Jóhann hægri bakvörður þeirra er í banni og gæti Rúnar Már jafnvel farið þangað, en þessi miðjumaður frá Sauðarkróki spilaði sem vinstri bakvörður í síðasta leik. Gregg Ross færi þá í miðvörð, en það er hans uppáhaldsstaða og Petersen yrði aftur vinstri bakvörður. Eins gæti Baldur Ingimar auðvitað komið inn.
Heimasíða Vals er mjög fín. Spjallborðið er eitt það virkasta hjá knattspyrnuliðum hér á landi og menn láta þar í sér heyra. Börkur er þar í fullri vinnu að svara furðulostnum stuðningsmönnum, eftir að Gaui Þórðar henti nafni sínu inn í umræðuna í vöntun sinni á athygli. Hver svo sem segir satt í þessu Gauja Þórðar-Vals máli, þá er það merkileg tilviljun að í öllum hitamálum í íslenskri knattspyrnu skuli alltaf annað hvort Gaui Þórðar eða Valur eiga í hlut. Hér er hægt að fara þar inná flotta heimasíðu Vals og hér er líka mjög góð stuðningsmannasíða.
Aðaldómari leiksins á mánudag er Örvar Sær Gíslason, en hann er einn af efnilegustu dómurum landsins og hefur m.a fengið verkefni erlendis. Honum til aðstoðar eru þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Leiknir Ágústsson.
Veðrið verður nokkuð hefðbundið á Selfossvelli á mánudag. Hiti 12 stig, þurrt, logn en reyndar verður skýjað og því toppaðstæður til að spila knattspyrnu.
Tómas.
Selfyssingar taka á móti Keflavík í næstu umferð Íslandsmótsins. Þetta er risa leikur fyrir Selfyssinga, því nýr og fullkominn aðalvöllur verður tekin í notkun og einnig verður ný glæsileg 730 manna stúka tekin í notkun, en fyrsti áfangi hennar er tilbúinn. Ekki nóg með þetta allt, þá verður þetta einnig fyrsti sjónvarpsleikur Selfyssinga. Það verður því dúndrandi partý á Selfossvell fimmtudaginn 19. ágúst og mun dómari leiksins flauta leikinn á kl 19.15.
Fyrir 20 árum síðan vígðu Selfyssingar grasvöllinn sinn með 5-1 sigri á KS frá Siglufirði, með tveimur mörkum frá nöfnunum Heimi Karlssyni og Salih Heimi Porca og eitt frá Sævari Sverrissyni. Það væri nú ekki leiðinlegt að endurtaka þann leik og sigra Keflvíkinga í vígsluleik aðalvallarins.
Í síðasta leik Selfoss í deildinni, þar sem þeir töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni var Gunnar Borgþórsson aldursforseti liðsins en hann er 28 ára gamall. Í þessum sama leik vantaði nokkra lykilleikmenn Selfoss. Henning og Jón Sveins hafa verið frá meira og minna í allt sumar, hafa einungis náð einum og þremur leikjum. Ingó Tóta hefur einnig verið frá í nokkra leik, en kemur aftur inn nú. Sævar Þór var að jafna sig á höfuðhöggi. Bóló Be Herve var í banni og Jón Guðbrands forfallaðist á síðustu stundu. Svo fór fyrirliðin Stefán Ragnar útaf meiddur eftir 13 mínútna leik, en ætti að verða orðin góður fyrir næsta leik.
Það er hundleiðinleg staðreynd að hvergi finnast heimildir um sigur Selfyssinga á Keflvíkingum. Liðin hafa leikið alls 14 leiki í skráðum leikjum á vegum KSÍ. Tölfræðin er 10-4-0 , sem sagt 10 sigrar Keflavík og 4 jafntefli. Það er þó þannig að alltaf styttist í fyrsta sigur Selfoss og það vita Keflvíkingar best allra.
Árið 1990 leku Selfyssingar þrjá leiki við Keflvíkinga. Liðin leku saman í 2. deildinni eða b-deild, sem nota bene hét þá Pepsideildin eftir feitan samstarfssamning á milli samtaka 2. deildarfélaga og Sanitas sem þá seldi Pepsi á Íslandi.
Keflavík vann fyrri leikinn 2-1, þar sem Páll Guðmundsson skoraði mark Selfoss. Seinni leikur í deild fór 0-0 og misstu þar með bæði lið af möguleika á að leika í efstu deild árið ´91.
Einnig mættust liðin í 8 liða úrslitum bikarins árið ´90, en í framhjáhlaupi er nauðsynlegt að minnast á það að Keflvíkingar slógu út Ernina frá Selfossi á leið sinni í 8 liða úrslit. Mörk Ernis, sem alltaf léku í 4.deild, skoruðu Helgi Ketilsson og Gústaf Bjarnason f.v landsliðsmaður í handbolta. Ernir leiddu 2-1 þegar lítið var eftir, en Keflvíkingar skoruð 2 mörk á lokmínútunum og komust þannig áfram. Mörk Keflvíkinga gegn Örnunum skoruðu þeir Óli Þór Magnússon 2 og Gestur Gylfason 1 mark. Í 8 liða úrslitum voru Selfyssingar mjög óheppnir að vinna ekki Keflavík. Guðjón Þorvarðarson kom Selfoss yfir á 12. mínútu og svo varði Ólafur Pétursson nokkrum sinnum mjög vel og m.a var bjargað á línu frá Salih Heimi Porca. Leikurinn jafnaðist svo í seinni hálfleik og á 53.mín jafnaði Ólafur Þór Magnússon fyrir ÍBK. Gestur Gylfa kom þeim svo yfir áður en Izudin Daði Dervic jafnaði fyrir Selfoss. Jóhann Magnússon gerði svo út um leikinn með laglegu marki 8 mín fyrir leikslok og Keflavík komst í 4 liða úrslit.
Anton Hartmannsson var varamarkmaður Keflavíkur eitt tímabil áður en hann hætti, en Toni er næst leikjahæsti leikmaður Selfoss frá upphafi með 366 leiki. Einar Ottó sonur hans tók einnig eitt tímabil með 2. flokki Keflavíkur, en sá svo að sér kom heim og hefur nú leikið hátt í 200 leiki fyrir Selfoss. Fleiri leikmönnum muna menn ekki eftir sem skipt hafa á milli þessara liða.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Arilíus, Gunni Borgþórs, Stepan Yao Yao, Jón Daði, Sævar Þór og Viktor Unnar. Andri Freyr er í leikbanni og verður því ekki með. Svo er auðvitað löng æfingavika framundan og því allt eins möguleiki á að einhverjir komi sterkir til baka af bekk eða úr stúkunni og vinni sér sæti í liðinu.
Líklegt byrjunarlið Keflavíkur er: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni, Alen Sutej, Bjarni Hólm, Haraldur Freyr , Einar Orri, Hólmar Örn, Jóhann B. Guðmundsson, Magnús Sverrir, Guðmundur Steinarsson og Magnús Þórir. Paul McShane er einnig alltaf líklegur í startið og Haukur Ingi kom inn á í síðasta leik, en er örugglega ekki tilbúinn í first elleven.
Þjálfari Keflavíkur er Willum Þór Þórsson, en hann er gríðarlega hæfur þjálfari og hefur ná árangri alls staðar sem hann hefur komið. Willum byrjaði knattspyrnuþjálfaraferill sinn á að koma Þrótt upp í efstu deild á sínu fyrsta ári, árið 1996. Næst tók hann við Haukum og á fyrsta tímabili vann hann 3. deild og á öðru tímabili vann hann 2. deild. Þá var honum boðið starf hjá uppeldisklúbb sínum KR árið 2001, en þá um haustið rétt slapp KR við fall. Willum gerði liðið að íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári og endurtók svo leikinn á sínu öðru tímabili. Fyrir tímabilið 2005 tók hann við Val og gerði hann þá að íslandsmeisturum árið 2007 og lauk þar með 20 ára bið Valsmanna eftir titlinum. Einnig gerði hann liðið að bikarmeisturum. Inn í þessari umfjöllun er ekki talið upp minni titlar svo sem Reykjavíkurmeistarar o.s.frv.
Keflvíkingar hafa ekki unnið efstu deild síðan 1973 og réðu Willum Þór til starfa fyrir þetta tímabil með það í huga. Liðið er sem stendur í 4. sæti deildarinnar og gætu alveg blandað sér í toppbaráttuna og sérstaklega ef þeir myndu skora fleiri mörk. Willum hefur þjálfað Gumma Ben núverandi þjálfara Selfyssinga í alls sjö leiktímabil og því allt eins líklegt að Gummi viti betur en Willum hvað sagt verður í búningsklefa Keflavíkur fyrir leik og í hálfleik.
Heimasíða Keflavíkur er mjög góð, fullt af upplýsingum og fréttaveita góð. Það er til eftirbreytni umfjöllun þeirra um leiki og ekki ólíklegt að hún verði tekin upp á okkar síðu, en þeir taka úrdrátt af síðum sem fjalla um leikina og birta einkunnargjafir þeirra. Hér er hægt að komast inn á heimasíðu þeirra, reyndar vantar spjallborð, en hér og hér hefur verið gerð heiðarleg tilraun til að gera spjallborð.
Dómari leiksins á fimmtudag er klárlega að verða einn besti dómari landsins, en það er Gunnar Jarl Jónsson og ekki eru aðstoðardómararnir af verri endanum, en það eru þeir Smári Stefánsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Guðmundur Sigurðsson er svo eftirlitsmaður á þessum leik.
Veðrið verður að venju gott á leikdag á Selfossi. Það verður ca 14 stiga hiti, þurrt, léttskýjað og austan 3 metrar á sekúndu.
Það er aldeilis stutt á milli leikja núna, því aðeins þremur dögum eftir glæsilegan karaktersigur á Haukum heimsækja Selfyssingar nágrana þeirra úr Garðabæ, Stjörnuna heim. Leikurinn fer fram sunnudaginn 8. ágúst kl 19.15. Eins og áður hefur komið fram unnu Selfyssingar Hauka 2-3 í síðustu umferð á meðan Stjarnan tapaði fyrir KR í Frostaskjóli, hvernig sem það er nú hægt. Stjarnan er í 8. sæti með 17 stig á meðan Selfoss er í 11. sæti með 11 stig.
Sigurinn gegn Haukum var gríðarlegur karaktersigur þar sem nokkuð marga leikmenn vantaði í Selfossliðið. Eins og flestir vita hafa Henning Eyþór Jónasson og Jón Steindór Sveinsson lítið getað leikið með í sumar vegna meiðsla og auk þeirra vantaði í þennan leik Ingó Tóta sem var meiddur, Jón Guðbrands og Einar Ottó sem voru í banni og Gumma Tóta og Sigga Eyberg sem voru veikir. Svo fór Sævar Þór auðvitað vel vankaður af velli á 10. mín og spurði fjórum sinnum „hvað skeði?“, en vanalega spyr Sævar bara tvisvar sömu spurningarinnar.
Í fyrri leik liðana sem fram fór á Selfossvelli gerðu liðin jafntefli 2-2. Mörk Selfoss skoruðu þeir Jón Guðbrands og Gummi Tóta, en mörk Stjörnunnar gerðu þeir Steinþór Freyr og Þorvaldur Árnason. Það er óhætt að segja að fjölmiðlamenn landsins hafi aðeins hrokkið við er Bjarni Jóhannesson þjálfari Stjörnumanna kvartaði yfir of mjúku gervigrasi á Selfossvelli. Hér má sjá leikskýrslu frá fyrri leik liðana.
Selfyssingum hefur gengið best í sumar á þeim völlum þar sem alvöru stúka er og hafa t.a.m náð í 7 af þessum 11 stigum á útivöllum sem hafa alvöru stúku. Sigrar á Hlíðarenda, Frostaskjóli og stig í Grindavík segja kannski meira en nokkuð annað um mikilvægi stuðningsmannasveitarinnar, sem auðvitað fer á flug í stúku. Þess vegna er það gleðilegt að Stjörnumenn eiga frábæra stúku.
Stjörnustrákar voru nær ósigrandi á heimavelli í fyrra, en hefur aðeins fattast flugið og hafa unnið þrjá af sjö leikjum á sínum heimavelli. Aftur á móti er Stjarnan orðin frægasta lið Íslands með sín mögnuðu fögn sem stór hluti hins vestræna heims, auk Asíu er búinn að horfa á á youtube.
Stjarnan hefur á að skipa mörgum góðum knattspyrnumönnum, en urðu þó fyrir áfalli er Steinþór Freyr Þorsteinsson gekk til liðs við ríkisbubbaliðið Örgryte í Svíþjóð. Þetta fornfræga Gautarborgarlið, sem unnið hefur Svíþjóðarmeistaratitilinn 12 sinnum má muna sinn fífil fegri, en í dag eru þeir helst þekktir fyrir kick and run fótbolta. Aftur á móti hafa Garðbæingar Halldór Orra Björnsson í sínum röðum, hann hefur unnið ofan á frábært tímabil í fyrra og er m.a búinn að skora 7 mörk í ár. Nú er Halldór Orri að auki orðin hel tanaður og það að ósk Agnars Braga. Því verður gaman að fylgjast með honum klára Íslandsmótið þannig.
Selfoss og Stjarnan hafa nokkrum sinnum mæst í gegnum tíðina. Samtals eru leikir þessara liða 15 talsins. Stjarnan hefur unnið átta leiki, fjórir hafa endað með jafntefli og þrír endað með Selfoss sigri. Það er því 8-4-3 Stjörnunni í vil.
Þann 21. júní árið 1989 léku Stjarnan og Selfoss í 32 liða úrslitum mjólkurbikarsins. Selfoss vann leikinn nokkuð óvænt og mark Selfyssinga skoraði Sævar Sverrisson á 21. mínútu með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu. Garðbæingar voru betri í leiknum þar sem Árni Sveins með mottu eins og Ron fór eðlilega fremstur í flokki. Vörn Selfyssinga stóð fyrir sínu og fyrir aftan hana var Guðmundur Erlingsson eins og köttur í framan og var að lokum valinn maður leiksins.
Fyrir þá sem hafa gaman af fróðleik sem engu skiptir, þá má í framhjáhlaupi geta þess að þennan sama dag og Selfoss sló út Stjörnuna voru þeir Þór Sigmundsson og Guðmundur Benediktsson valdir í unglingalandslið Íslands skipað leikmönnum 16 ára og yngri.
Líklegt byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur, Martin, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Jón Daði, Stephan Yao Yao, Gunnar Borgþórs, Arilíus, Viktor Unnar og Sævar Þór. Bóló Bi Herve fékk rautt í síðasta leik og er því í banni, svo geta auðvitað eitthvað að þeim leikmönnum sem voru veikir eða í banni í síðasta leik komið inn.
Líklegt byrjunarlið Stjörnurnar er: Bjarni Þórður, Jóhann Laxdal, Daníel Laxdal, Tryggvi Bjarna, Víðir, Björn Páls, Dennis Danry, Atli Jó, Þorvaldur Árna, Halldór Orri og Ellert Hreins.
Þjálfari Stjörnunnar er einn sá virtasti í bransanum, Bjarni Jóhannsson. Hann fór upp með Stjörnuna árið 2008 og gerði góða hluti á fyrsta ári liðsins. Bjarni gerði ÍBV að Íslandsmeisturum ´97 og ´98 og einnig gerði hann liðið að bikarmeisturum. Bjarni hefur m.a líka þjálfað Grindavík, Fylki og Breiðablik.
Engin leikmaður sem undirritaður og hans heimildarmenn muna eftir hefur leikið með báðum liðum og það er mjög spes.
Einar Örn Daníelsson verður aðal dómari leiksins á sunnudag og honum til aðstoðar verða þeir Einar Sigurðsson og Sindri Kristinsson. Eftirlitsmaður leiksins er Ólafur Ragnarsson og er þetta þriðji Selfoss leikur hans í röð og gæti Gummi allt eins borið skiptingarnar undir hann, svo vel þekkir Óli orðið liðið okkar.
Heimasíða Stjörnunnar er lala, þar eru fullt af stöðluðum upplýsingu, en það vantar eiginlega stuðningsmannasíðu eða spjallborð þar sem frelsið til frásagnar er meira.
Veðrið verður til fyrirmyndar á sunnudag, hæg norð-austan gola, hiti 12 stig og heiðskýrt.
Á morgun fimmtudaginn 5. ágúst fer fram einn mikilvægasti leikur sumarsins, er Selfyssingar heimsækja Hauka heim. Leikurinn fer fram á heimavelli systurfélags Hauka, Vals og er þetta því annar leikur okkar á hinum stórglæsilega Vodafonevelli. Selfoss og Haukar standa þétt saman í 11 og 12 sæti Pepsideildar, Selfoss með 8 stig, en Haukar með 7 stig.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem liðin standa hlið við hlið í baráttunni á knattspyrnuvellinum því í fyrra fóru liðin saman upp í efstu deild og fyrir 3 árum fóru þau saman upp í 1. deild.
Haukar gleymast oft í umræðunni um stóru klúbbana en Haukar eru klárlega með flottustu klúbbum landsins. Það er fáir klúbbar, ef nokkur sem getur státað af því að eiga lið í efstu deild í fótbolta, körfu og handbolta í bæði karla og kvenna flokki. Það er helst FH sem getur státað af svipuðum árangri og hvort þakka skal bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði fyrir þá framsýni að bjóða öllum krökkum að æfa frítt þennan árangur eða einhverju öðru þá getur varla verið tilviljun að báðir þessir stóru klúbbar séu úr Hafnarfirði.
Knattspyrnufélag Hauka var stofnað 1931 í KFUM húsinu við Hverfisgötu. Það var að sjálfsögðu séra Friðrik Friðriksson sem átti hugmyndina að fuglanafninu, en það er viss skírskotun til systurfélagsins Vals í Reykjavík, sem er líka KFUM og K lið. Séra Friðrik hefur samt örugglega ekki átt von á því að Haukar og Valur myndu leika heimaleiki sína á sama vellinum árið 2010. Og reyndar hefði engum getað dottið það í hug, en það er nú samt raun þeirra.
Haukar hafa örlítið betur í fyrri viðureignum liðanna, en samtals eru innbyrðis viðureignir liðana 37 talsins. Haukar hafa unnið 17 leiki, 5 leikir hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 15 leiki, tölfræðin er því 17-5-15 Haukum í vil og markatalan er 68-65 Hafnfirðingum í hag. Það gerist nú reyndar ekki mikið jafnara, sérstaklega í ljósi fjölda innbyrðisviðureigna. Eins og áður sagði þá hafa Selfoss og Haukar farið upp um tvær deildir á þrem árum og gert það í sameiningu og því þekkja leikmenn liðana andstæðinga sína í þessum leik einstaklega vel. Ef teknar eru viðureignir síðustu þriggja tímabila sem liðin hafa farið upp um deildir er innbyrðisstaðan einnig nokkuð jöfn. Liðin hafa leikið 7 leiki, Selfoss unnið 3 leiki, en Haukar tvo leiki og tveir hafa endað með jafntefli. Markatalan er 13-9 fyrir Selfoss.
Fáir knattspyrnumenn hafa spilað með báðum liðum. Kristján Óli Sigurðsson spilaði með Haukum fyrri hluta tímabilsins í ár, en hann lék seinni hluta sumarsins 2008 með Selfoss, stóð sig mjög vel innan sem utan vallar. Daníel Gunnarsson pabbi Helga Vals sem nú leikur AIK í Svíþjóð, spilaði einnig með Haukum og svo hefur Magni Blöndal spilandi þjálfari Selfyssinga ´93 og ´94 einnig leikið með báðum liðum. Tómas Ellert Tómasson spilaði með Haukum árið ´93 þegar Selfoss fór upp. Eftirminnilegast leikur hans var að sjálfsögðu gegn Selfoss á Ásvöllum en þar flautaði dómarinn ekki til leiks vegna þess að stórt gat var á öðru markinu. Tómas Ellert náði reyndar ekki mörgum leikjum með Haukum þetta sumar því smíðavinna með Óla Jó gekk fyrir og ekki ólíklegt að hann hafi lært meira um töfra knattspyrnunnar þar.
Selfoss og Haukar léku saman í b-deild árið 1980, eða fyrir 30 árum síðan. Báðir leikirnir fóru fram á Selfossvelli, en Haukar fóru fram á það vegna þess að völlur þeirra var svo lélegur á þessum árum. Haukar vilja kannski bara síður leika í Hafnarfirði, því staðan er ekki ósvipuð hjá þeim í dag, en þeir um það. Haukar unnu fyrri leikinn 3-1. Seinni leikurinn fór fram laug 20. sept kl 15.00 og var m.a niðurlag auglýsingarinnar fyrir leikinn eftirfarandi „Komið og sjáið Heimi leika listir sínar í síðasta leik sumarsins“ En Heimir Bergsson sem hér um ræðir lék fyrri hluta sumarsins með FH, en meiddist illa og var að snúa aftur heim á Selfoss. Selfyssingar áttu ekki í vandræðum með Hauka í þessum leik og unnu 7-1, en þeir voru komnir í 5-0 eftir 25 mínútur. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu Jón Birgir Kristjánsson eigandi Hróa hattar með 2 mörk. Eitt mark skoruðu Tóti Ingólfs, pabbi Gumma og Ingólfs. Ólafur Sigurðsson móður bróðir Sigurðar Eybergs. Þór Valdimars, pabbi Grétars Þórs(fv. leikmanns mfl Selfoss) og Valdimars (besti leikmaður Íslandsmótsins í handbolta í ár) Ámundi Sigmundsson og Tryggvi Gunnarsson móður bróðir Arons Leifssonar markvarðar 2. flokks skoruðu svo sitt hvort markið.
Hjá Selfyssingum verða frændurnir Einar Ottó Antonsson og Jón Guðbrandsson í leikbanni og hjá Haukum verður Guðmundur Viðar Mete í leikbanni.
Eins og flestir vita fengu Selfyssingar fjóra nýja leikmenn í félagsskiptaglugganum, Svíann Martin Dohlsten, Fílabeinsstrendingana Stephan Yao Yao og Guessan Bi Herve og svo Íslendinginn Viktor Unnar Illugason. Haukar fengu einnig liðsstyrk í glugganum, en Spænski framherjinn Garcia gekk í þeirra raðir.
Líklegt byrjunarlið hjá Selfoss á fimmtudag er: Jóhann Ólafur, Martin, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Guðmundur Þórarins, Ingþór, Stephan Yao Yao, Arilíus, Jón Daði, Viktor Unnar og Sævar Þór.
Líklegt byrjunarlið Hauka er: Daði, Tóti Dan, Daníel Einarsson, Kristján Ómar, Gunnar Ormslef, Maggi Björgvins, Jamie McCunnie, Guðjón Pétur Lýðsson , Hilmar Geir, Arnar Gunnlaugs og Garcia.
Aðaldómari leiksins á fimmtudag verður kokkurinn geðþekki Magnús Þórisson úr Sandgerði, en hann er klárlega einn af bestu dómurum landsins. Honum til aðstoðar eru þeir Oddbergur Eiríksson og Gylfi Már Sigurðsson. Eftirlitsmaður á leiknum Ólafur Ragnarsson.
Veðrið verður frábært til að spila fótbolta á morgun, sunnan 4 metrar á sekúndu, þurrt, hiti 14 stig og skýjað.
Tómas.
Þá er komið að 12. umferð í Pepsídeildinni eða fyrstu umferð í seinni hluta mótsins og byrja Selfyssingar að heimsækja Fylkismenn í Árbæinn. Leikurinn fer fram 18. júlí kl 19.15 á Fylkisvelli. Selfyssingar gerðu jafntefli í síðasta leik gegn Grindavík í Grindavík á meðan Fylkismenn sátu hjá í 11. umferð íslandsmótsins og töpuðu sínum leik í Evrópukeppninni. Selfyssingar eru eftir þetta jafntefli með 8 stig í 10 sæti deildarinnar, en Fylkir er með 12. stig í 9. sæti deildarinnar. Það verður því barist um fuckings Hellisheiðina á sunnudag.
Í leiknum gegn Grindavík léku þeir Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson sinn 50. leik fyrir Selfoss. Skemmtilegt að þeir fóstbræður nái þessum áfanga í sama leik. Svo í leiknum gegn Fylki mun Jón Guðbrandsson að öllum líkindum leika sinn 100. leik fyrir Selfoss.
Selfyssingar töpuðu fyrri leik liðana 3-1 á Selfossi, en með því að klikka hér á Selfoss.org má sjá umfjöllun um þann leik. Eins er hægt að skoða upphitun fyrir fyrri leik liðana hér þar sem kemur m.a fram tengsl liðana og fleira áhugavert.
Liðin hafa alls mæst í 21 skráðum leik á vegum KSÍ. Fylkismenn hafa mikla yfirburði, hafa unnið 17 leiki, 2 hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 2 leiki. Þann fyrri 1972 og þann seinni 1994 svo að nú er farið að styttast allverulega í næsta sigur.
Liðin áttust við á Selfossvelli þann 10. júní 1994 og sigruðu Selfyssingar þann leik 2-1 eftir að Fylkismenn höfðu komist yfir með markið Aðalsteins Víglundssonar. Magni Blöndal Pétursson jafnaði leikinn eftir að hafa fylgt á eftir vítaspyrnu sem var varin frá Sævari Þór. Það var svo Sævar Þór sem skoraði sigurmarkið þegar 3 mínútur voru eftir af leiknum. Sævar Sverris átti langt innkast sem Ómar Vald flikkaði á Sævar sem skoraði með viðstöðulausu skoti í markið. Bestir í liði Selfoss samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins voru þeir Sævar Þór og Hjalti Þorvarðarsynir.
En þá að leiknum á sunnudag og er líklegt byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Kjartan Sig, Jón Guðbrands, Einar Ottó, Gummi Tóta, Ingó Tóta, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór.
Líklegt byrjunarlið Fylkis er Andrew Bazi, Andrés Már, Þórir Hannesson, Kristján Valdimars , Tómas Joð, Ásgeir Börkur, Valur Fannar, Andri Þór, Pape Mamadou Faye, Albert Ingason og Jóhann Þórhalls. Fjalar Þorgeirs missti sæti sitt í byrjunarliðinu eftir að hafa fengið 3 mörk á sig úr hornum í síðustu tveimur leikjum. Einar Péturs hefur líka verið að fá færri sjensa en í byrjun og spurning hvort hann komi aftur inn.
Síðustu sex leikir liðanna í deild líta svona út, síðasti leikur er aftast. S er sigur, J er jafntefli og T er tap.
Selfoss : T-T-T-T-T-J
Fylkir : T-J-T-T-S-J
Afmælisbarn dagsins er aðstoðarþjálfari Selfoss Ómar Valdimarsson, en hann verður 40 ára þann 18. júlí. Áhorfendur beggja liða mega endilega syngja fyrir kallinn, enda átti hann mörg af sínum bestu árum í Árbænum þar sem hann sem fyrirliði Fylkis leiddi þá til sigurs í bikarkeppninni. Svo mun Ómar, ef ég þekki hann rétt bjóða stuðningsmönnum beggja liða upp á einn ískaldann á Blásteini eftir leik.
Dómari leiksins er klárlega einn af bestu dómurum landsins. Gunnar Jarl Jónsson er búinn að fara hratt upp í hæsta styrkleikaflokk dómara, enda hefur hann alla burði til að fara alla leið í þessu, hann les leikinn vel og hefur egóið í þetta. Honum til aðstoðar á sunnudag verða þeir Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson. Eftirlitsmaður á sunnudag verður Þórður Georg Lárusson.
Heimasíða Fylkis er nokkuð góð, fínt spjallborð og heitasta fréttin er sú hvort Gylfi Einarsson sé að snúa heim. Hér er hægt að skoða heimasíðuna hjá fylkismönnum.
Það verða einhverjir berir að ofan í stæðunum við Fylkisvöll á sunnudaginn því það verður ca 19 stiga hiti, logn og alveg þurrt.
Tómas.
Næsti leikur Selfyssinga í Pepsideildinni er jafnframt síðasti leikur í fyrri umferð sem þýðir það að mótið er hálfnað. Þessi leikur er sannkallaður 6 stiga leikur því við mætum Grindvíkingum, sem eru stigi fyrir neðan okkur í 11. sæti. Selfyssingar töpuðu fyrir Blikum og Grindavík tapaði fyrir KR í síðustu umferð og er óhætt að segja að bæði lið hafi verið nokkuð óheppinn að fá ekki eitthvað út úr þeim leikjum.
Það eru ráðherrar samgöngumála sl. 20 ára sem koma í veg fyrir að um nágranaslag sé að ræða, en ítrekuð kosningaloforð um fullbúinn suðurstrandaveg hafa verið svikin. Samt sem áður eru einhver sérkennileg vinarbönd á milli bæjarfélaga á suðurlandi og á suðurnesjum.
Liðin hafa alls mæst 23 sinum í opinberum leikjum á vegum KSÍ sem einhverjar heimildir eru til um. Grindvíkingar hafa betur, hafa unnið 12 leiki, 4 hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 7 leiki. Mestu munar um ömurlega frammistöðu gegn Grindvíkingum á þriggja ára tímabili frá ´91-´94, en þá leku liðin 6 leiki sem Grindvíkingar unnu alla og voru með markatöluna 21-0 úr þeim.
Árið 1978 tryggðu Selfyssingar sér sæti í b-deild eftir eftirminnilegt sumar. M.a var leikið við Grindavík í Grindavík og skoruðu heimamenn sigurmarkið í lokin. Línuvörður leiksins flaggaði og vildu Selfyssingar meina að um rangstæðu hefði verið að ræða, en svo var víst ekki og var línuvörðurinn eingöngu að fagna marki Grindvíkinga enda harður stuðningsmaður þeirra. Eftir leik rifnuðu föt þjálfarans í nettum átökum við stuðningsmenn Grindavíkur og væri því snjallt hjá Gumma Ben að mæta ekki alveg í sínu fínasta í kvöld.
Selfyssingar unnu sinn stærsta sigur á Grindvíkingum árið 1985, er þeir tóku þá 5-0 eftir að staðan hafði verið 4-0 í hálfleik. Mörk Selfyssinga skoruðu þeir Sumarliði Guðbjartsson 2, Páll Guðmundsson, Gunnar Garðarsson og Daníel Gunnarsson (pabbi Helga Vals) eitt mark hver.
Liðin hafa leikið tvo leiki í Deildarbikarnum á síðustu árum, þann fyrri árið 2008 sem fór 1-1 og má sjá leikskýrslu hér og umfjöllun hér. Svo léku liðin í fyrra og má lesa um þann leik hér og sjá leikskýrslu hér.
Nokkrir gaurar hafa gengið á milli félagana tveggja. Guðlaugur Örn Jónsson lék með Selfoss ´98-´99. Hörður Hilmarsson hefur líka komið mikið við sögu hjá báðum liðum og reyndar komið ótrúlega mikið við sögu í þessum pistlum og hef ég það stundum á tilfinningunni að hann hafi þjálfað fleiri lið en Einar Friðjófs. Snillingurinn Sigurbjörn Daði Dagbjartsson lek með Selfoss 1999 og 2000 og náði sér í toppkonu hér á staðnum sem hann er giftur í dag og mættu leikmenn annarra liða sem undirritaður hefur talað við hafa það í huga.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Jón Sveins, Agnar Bragi, Kjartan Sigurðsson, Guðmundur Þórarinsson, Ingó Tóta, Einar Ottó, Jón Guðbrands, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór. Arilíus kemur úr banni og gæti komið inn, eins eru einhverjir að koma úr meiðslum, en enn óljóst með þá.
Líklegt byrjunarlið Grindavíkur er: Rúnar, Loic Ondo, Orri, Auðunn Helga, Jósef, Scot Ramsey, Matthías, Jóhann Helga, Páll, Grétar Hjartar og Gilles Ondo.
Aðaldómari leiksins er Erlendur Eiríksson og honum til aðstoðar eru þeir Gylfi Már Sigurðsson og Jón Magnús Guðjónsson. Eftirlitsmaður suður með sjó verður Jón Sigurjónsson.
Grindvíkingar eru með sæmilega heimasíðu þar sem ungmennafélag staðarins heldur upp fjörinu. Hér er hægt að fara inn á heimasíðuna. Spjallborðið liggur niðri, en undirrituðum var farið að hlakka til að kíkja þangað því ef einhverjir kunna að rífa kjaft þá eru það Grindvíkingar.
Veðrið á leikdag er miðað við legu staðarins gott. Þar verða ekki nema 8 m á sek, léttskýjað, þurrt og hiti 11 stig.
Tómas.
Næsti leikur Selfyssinga er sannkallaður Derby slagur, en þá mætum við hinu suðurlandsliðinu, ÍBV. Leikurinn fer fram í eyjum kl 20.00 föstudaginn 25. júní eða sléttu ári eftir að Michael Jackson féll frá með sviplegum hætti. ÍBV voru klaufar að taka ekki stig gegn KR í síðustu umferð er þeir töpuðu 1-0 í Frostaskjóli. Á meðan voru Selfyssingar slakir gegn besta liði deildarinnar FH og töpuðu 0-2. Selfyssingar eru því í 10. sæti með 7 stig, en ÍBV í 5. sæti með 14 stig. Bæði lið hafa skorað 11 mörk, en Selfoss fengið á sig 14 mörk á móti 8 mörkum eyjamanna.
Selfyssingar ætla að fjölmenna út í eyju á föstudag og undir styrkri stjórn Skjálfta ætla þeir að yfirtaka eyjuna fögru og verður herjað á eyjaskeggja úr loft, láði og legi. Hvergi verður gefið eftir, hver partur af eyjunni verður tekinn yfir og að lokum stúkan sem mun að öllum líkindum leiða til uppgjafar eyjaskeggja. Flugsveit vínrauða hersins mun gera árás úr lofti frá Reykjavík, Selfossi og Bakka, eins mun landherinn halda úr höfn frá Bakka og úr Þorlákshöfn. Nú þegar munu um 1000 hermenn vera staddir á eyjunni undir fölsku flaggi á Shellmóti, þar sem landgönguliðar eru búnir að skipta sér á hin ýmsu lið, en munu svo sameinast undir Selfossfána á föstudag. Frekari upplýsingar varðandi tímasetningar koma dulkóðaðar inn á heimasíðuna í dag.
Annars var hann algjörlega sólarlaus, laugardagurinn 14. ágúst árið 1976 hjá Selfyssingum, þá fengu þeir stærsta skell sinn frá upphafi og töpuðu fyrir eyjamönnum 11-0. Örn Óskarsson skoraði 6 mörk í leiknum og tók uppá því að gifta sig seinna um daginn, en sú heppna hét og heitir Hulda Kjærnested og fór athöfnin fram í Lundakirkju. Aðrir sem skoruðu fyrir ÍBV voru Tómas Pálsson 2 (pabbi Tómasar Inga), Sigurlás Þorleifs, Ólafur Sigurvinsson (pabbi Sigurvins og bróðir Ásgeirs) Sveinn Sveinsson smiður, og Þórður Hallgrímsson (bróðir Heimis)
Nú er öldin önnur og við mætum þeim með samanburðarhæft lið í dag. Síðast þegar liðin voru saman í deild voru liðin í toppbaráttu 1. deildar árið 2008. ÍBV vann fyrri leikinn í eyjum mjög öruggt 3-0. ÍBV komst upp þetta ár en Selfoss sat eftir þrátt fyrir að vinna ÍBV örugglega 3-1 á heimavelli í síðustu umferð, en þar þurftu þeir að treysta á Hauka sem gerðu að venju upp á bak og í þetta sinn gegn Stjörnunni. Hér má sjá umfjöllun um leikinn.
Liðin spiluðu tvo æfingaleiki í vetur, þann fyrri í Akraneshöllinni og unnu ÍBV þann leik 1-0 og má sjá umfjöllun um leikinn hér. Seinni æfingaleikurinn var á gervigrasinu á Selfoss þann 22. apríl s.l. Þann leik sigruðu Selfyssingar 5-0 og má sjá umfjöllun um leikinn hér.
Alls hafa liðin mæst 11 sinnum í skráðum leikjum á vegum KSÍ. ÍBV hefur betur, þeir hafa unnið sjö leiki, jafnt hefur verið tvisvar og Selfoss hefur unnið fjóra leiki. Tölfræðin er því 7-1-3 ÍBV í hag.
Í gegnum tíðina hafa leikmenn farið á milli þessara nágrana liða. Viðar Örn Kjartansson er komin heim eftir árs dvöl út í eyju. Ingi Rafn og Arilíusi fóru fyrir fimm árum, en Arilíus sem þá átti við meiðsli að stríða, sá ljósið, kom aftur heim og reyndar náði ekki einu sinni Þjóðhátíð. Ingi Rafn kom svo um síðustu áramót. Hjalti Jó hefur orðið íslands- og bikarmeistari með ÍBV, en hann býr nú á Selfossi og spilaði nokkra leiki með Selfoss ´08. Steingrímur bróðir Hjalta lék tímabilið 2006 með Selfoss og varð markakóngur það tímabil. Zoran Miljkovic fór frá ÍA til ÍBV árið 1997, eftir að hafa verið Íslandsmeistari með ÍA þrjú ár í röð. Zoran varð íslandsmeistari með ÍBV 1997 og 1998 og bikarmeistari með þeim 1999. En eins og flestir vita þjálfaði Zoran lið Selfyssinga seinnihluta ársins ´07 og allt árið ´08 og kom þeim upp um deild fyrra árið. Tómas Pálsson kom til Selfoss frá ÍBV árið 1976 og varð fljótt idol hjá ungu kynslóðinni á Selfossi og báðu ungir strákar um “Tomma Páls klippingu” hjá Bjössa rak, en það var einhverskonar stallaklipping, sem gæti hafa verið undanfari hnakka-tískunnar. Á sama tíma spilaði Sigurlás Þorleifsson eyjamaður með Selfoss, hann var gríðarlega góður leikmaður og mikils metin á Selfossi. Ein stærsta gjöf sem eyjamenn hafa gefið Selfoss var að láta okkur fá Þórarinn Ingólfsson endurgjaldslaust. Reyndar á hún Anna Guðmunds stærsta þáttinn í því að hafa tælt strákinn á Selfoss, en saman eiga þau hamingjusamt hjónaband og strákana Ingólf og Guðmund sem báðir spila með Selfoss. Þórarinn var fyrirliði Selfoss í einhver ár og svo hefur hann skilið eftir vitneskju sína um fótbolta með þjálfun og á stórann þátt í að móta stefnu unglingaknattspyrnu á Selfossi.
Síðustu sex leikir liðana í deild líta svona út, síðasti leikur er aftast. S er sigur, J er jafntefli og T er tap.
Selfoss : S-J-T-T-T-T
ÍBV : S-S-J-S-S-T
Eyjamenn styrktu sig vel fyrir Íslandsmótið og voru virkilega heppnir með útlendinga í þetta sinn, en hjá þeim spila fimm erlendir leikmenn sem allir verða í byrjunarliðinu á föstudag. Eins fengu þeir Trygga Guðmunds aftur heim og munar um minna. Svo eru tveir strákar úr HK sem hafa staðið sig vel í sumar, þeir Finnur Ólafsson og Eyþór Helgi Birgisson. Athyglisverðasti leikmaður ÍBV er samt ungi miðvörðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson, en hann stígur vart feilspor í leikjum. Það er því ljóst að eyjamenn stefna á sigur í deildinni eins og Heimir Hallgrímsson gaf óbeint í ljós fyrir mót.
Líklegt byrjunarlið ÍBV 4-3-3. Albert, James Hurts, Eiður Aron, Rasmus Steenberg Christiansen, Matt Garner, Finnur Ólafs, Andri Ólafs, Þórarinn Ingi, Tonny Mawejje, Tryggvi Guðmunds og Denis Sytnik.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Jón Sveins, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Gummi Tóta, Jón Guðbrands, Ingþór, Arilíus, Jón Daði og Davíð. Ingó Tóta er meiddur, en Einar Ottó og Sævar þór eru að ná sér af meiðslum og gætu tekið þátt í leiknum.
Aðaldómari leiksins er Þóroddur Hjaltalín Jr og honum til aðstoðar eru þeir Áskell Þór Gíslason og Sindri Kristinsson. Eftirlitsmaður leiksins er Þórarinn Dúi Gunnarsson.
Heimasíða ÍBV er ágæt, fréttir uppfærðar reglulega og spjallið sæmilega virkt, en hægt er að komast inn á síðuna hér.
Veðrið í Vestmannaeyjum verður gott miðað við legu eyjarinnar. Það verður þurrt að kalla, 12 stiga hiti og sem betur fer smá vindur, því annars yrði auðvitað ófært vegna þoku.
Næsti leikur Selfoss er gegn Íslandsmeisturum FH og verður hann að öllum líkindum leikinn mánudaginn 21. júní kl 19.15 á Selfossvelli. Íslandsmeistararnir unnu KR í stórskemmtilegum leik í síðustu umferð á meðan Selfoss tapaði fyrir Val í tíðindalitlum leik. Ljóst er að FH hraðlestin er komin í gang og nú er það Selfyssinga að hægja á henni. FH er nú í 6. sæti með 11 stig á meðan Selfoss er í 9. sæti með 7 stig eftir þrjú 2-1 töp í röð, þar sem Selfyssingar hafa komist yfir. Reyndar er þetta fjórði 2-1 tapleikur okkar í röð ef tekin er með bikarleikurinn gegn ÍA.
Fyrsti leikur Selfoss og FH sem heimildir eru til um er síðan 27. ágúst 1969 og var hann í bikarkeppninni, en þann leik unnu Selfoss 2-0. Ári seinna, eða 1970 unnu Selfyssingar svo fyrri leikinn gegn FH í deild 4-0 og Hafnfirðingar að verða langþreyttir og gáfu FH-ingar því eðlilega seinni leikinn um sumarið. Ef þeir hyggjast endurtaka það, nú fjörtíu árum seinna, er þeim gefinn frestur fram að leik, en verða að tilkynna það til Birkis mótastjóra hjá KSÍ. En það ætti í sjálfu sér að vera sársaukalaust af okkar hálfu og myndum við virða þá ákvörðun Heimis Guðjónssonar. Ef ekki, verður leikurinn eins og áður sagði þann 21. júní kl 19.15 og ættu áhorfendur því að fylgjast vel með fréttum.
Tveimur árum eftir að Hafnfirðingar gáfu sinn leik, eða árið 1972 unnu FH nokkuð óvænt 2-1 sigur á Selfyssingum. Selfyssingar komust yfir með marki Sigurðar Reynis Óttarssonar, en það voru svo þeir Pálmi Sveinbjörnsson og Helgi Ragnarsson sem tryggðu FH sigur.
Árið 1979 leiddu FH-ingar b-deildina, en urðu að lúta í grasi gegn Selfyssingum á Selfossi. Þeir Heimir Bergsson og Gísli Sváfnisson skoruð mörk Selfyssinga. En auk þeirra var Einar Jónsson fyrirliði bestur í liði Selfoss í þessum leik.
Alls hafa liðin mæst 16 sinnum í leikjum á vegum KSÍ. FH hefur unnið tíu leiki og Selfoss hefur unnið sex leiki en það sem vekur athygli er að engin af þessum leikjum hefur endað með jafntefli. Tölfræðin er því 10-0-6 Hafnfirðingum í hag og því jafn greindarlegt fyrir getspaka að setja x á þennan leik eins og að setja seðilinn í sjóð 9.
Liðin hafa mæst tvisvar á síðustu þremur árum og hafa báðir leikirnir endað 3-0. Liðin spiluðu í lengjubikarnum fyrr á þessu ári og má sjá leikskýrslu hér og umfjöllun hér um þann leik. Liðin spiluðu svo æfingaleik á Spáni fyrir rúmlega tveimur árum og má eðli málsins samkvæmt sjá nett steikta umfjöllun um þann leik hér.
Heimir Bergsson einn efnilegast knattspyrnumaður Selfyssinga á sínum tíma skipti yfir í FH og lék með þeim árið 1980. Hann meiddist svo um sumarið og kom aftur heim, náði sér af meiðslum og átti farsælan feril með Selfyssingum. Ingi Björn Albertsson tengdapabbi Gumma Ben, hefur leikið með báðum liðum og einnig þjálfaði hann FH á sínum tíma. Hörður Hilmars hefur þjálfað bæði liðin, sem og Ólafur Jóhannesson núverandi landsliðsþjálfari, en árangur hans með liðin er ekki samanburðarhæfur, sem reyndar er ekki honum að kenna. Isudin Daði Dervic núverandi þjálfari Aftureldingar fór frá Selfoss í Val á sínum tíma og gekk svo yfir í FH. Markmennirnir Gunnar Björn Helgason og Guðjón Skúli Jónsson sem báðir spiluðu nokkra unglingalandsliðsleiki þegar þeir voru í yngri flokkum Selfoss, voru varamarkmenn fyrir Daða Lárusson á sínum tíma. Þannig að FH hefur fengið fjóra efnilega stráka frá okkur og þyrftu að fara borga það til baka með einhverjum hætti.
Síðustu sex leikir liðana í deild líta svona út, síðasti leikur er aftast.
Selfoss : S-S-J-T-T-T
FH : S-T-T-S-J-S
Líklegt byrjunarlið Selfoss í leiknum er 4-4-2: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Ingþór, Jón Guðbrands, Arilíus, Ingi Rafn, Davíð Birgis og Jón Daði. Gummi Tóta fór meiddur útaf í síðasta leik og óvíst með þátttöku hans í leiknum og eins er óvíst með þá Ingó Tóta og Sævar Þór, en þeir tóku ekki þátt í síðasta leik vegna meiðsla.
Líklegt byrjunarlið FH í leiknum er Gunnleifur Gunnleifsson, Guðmundur Sævarsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, Hjörtur Logi Valgarðsson, Pétur Viðarsson, Hákon Hallfreðsson, Matthías Vilhjálmsson, Ólafur Páll Snorrason, Atli Viðar Björnsson, Atli Guðnason. Björn Daníel Sverrisson er í banni og kemur Pétur Viðarsson inn fyrir hann, en sá leikmaður var í banni í síðasta leik.
FH liðið er auðvitað gríðarlega sterkt og hafa þeir orðið meistarar 5 sinnum á síðustu 6 árum. Heimir Guðjónsson þjálfari er á sínu 3. ári með liðið og hefur gert liðið að Íslandsmeisturum fyrstu tvö árin, en áður var hann aðstoðarþjálfari í tvö ár hjá Hafnfirðingum. Erfitt er að taka út einhverja sem lykilleikmenn liðsins og komu t.a.m nokkrir leikmenn FH til greina sem leikmenn ársins á Íslandsmótinu í fyrra. Að auki hafa þeir bætt við sig bestu leikmönnum Fjölnis og HK, en misstu reyndar nokkra leiðtoga úr sínu liði sínu t.d Tryggva Guðmunds, Daða Lárusson, og Davíð Þór Viðarsson.
Aðaldómari leiksins á mánudag er Örvar Sær Gíslason og honum til aðstoðar eru þeir Gylfi Már Sigurðsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Eftirlitsmaður er Jón Sigurjónsson.
Mafían, stuðningsmannasveit FH ætlar að taka roadtrip yfir heiðina á mánudag og munu því mæta Skjálfta í öllu sínu. Þetta eru klárlega tvær af bestu stuðningsmannasveitum landsins og því má búast við stemmara á pöllunum.
Veðrið verður hefðbundið á Selfossi á leikdag, milt meginlandsloftslag.
Næsti leikur Selfoss í Pepsideildinni er gegn Val á Hlíðarenda. Selfyssingar spiluðu nokkuð vel í síðasta leik gegn Fram, en voru óheppnir að tapa 1-2. Á meðan unnu Valsmenn flottan 1-2 sigur á KR í Frostaskjóli og eru því Selfoss og Valur einu liðin sem unnið hafa KR á tímabilinu. Eins og flestir vita var Gunnlaugur Jónsson þjálfari Selfyssinga á síðasta ári og kom liðinu upp í efstu deild og mætir því fyrrverandi lærisveinum sínum á mánudag kl 19.15.
Um fá leiki hefur verið talað jafn mikið um af eldri kynslóðinni á Selfossi og leikinn við Val 1968, en 15 dögum eftir að Valur vann Selfoss 4-3 mættu Valsarar Benfica í Evrópukeppninni. Leikurinn fór fjörlega af stað og Selfoss komst í 2-0 eftir 8 mín og var staðan svo 3-2 fyrir Selfoss í hálfleik. Sverrir Einarsson hafði skorað öll mörk Selfoss, en samkvæmt blaðamanninum klp í Reykjavík skoraði Hermann eitt marka Vals og var það heppnismark, ég gef mér það að hér sé talað um Hemma Gunn. Blaðamaðurinn gefur vörn Vals ekki háa einkunn og segir hana hafa gert „margan Valsmanninn gráhærðan í sumar“ en aftur á móti er hann nokkuð sáttur við framlínu Valsliðsins sem átti „léttan leik þar sem boltinn gekk manna á milli“ eins og segir þar. Þetta blað sem fjallar um leikinn segir frá því að tvö marka Vals hafi verið heppnismörk og í niðurlagi greinarinnar er Selfossliðinu hampað og m.a „sýndu að ekki er langt í komu þeirra í 1. deild“ (efstu deild) Eins og flestir vita þurftum við samt að bíða í 42 ár og biðin var þess virði.
Þessi frægi leikur er ekki skráður hjá KSÍ, enda einungis um æfingaleik að ræða. Aðeins finnast þrír skráðir KSÍ leikir á milli þessara félaga og hefur Valur unnið þá alla. Árið 1975 unnu Valsmenn 8-0 sigur í bikarnum og svo unnu Valsmenn Selfoss 28. mars 2008 4-2 þar sem Sævar Þór og Boban skoruðu mörkin og Gummi Tóta lék sínar fyrstu mínútur með meistaraflokk. Hægt að sjá leikskýrsluna hér og þar má sjá svart á hvítu að Gummi Ben lék fyrri hálfleikinn með Val, hvað sem honum nú gekk til með því. Nú í vetur unnu Valsmenn svo Selfyssinga 3-0 í lengjubikarnum og má sjá leikskýrsluna úr þeim leik hér.
Valsmenn hafa unnið báða útileiki sína, en hafa aðeins unnið einn af fjórum heimaleikjum sínum og virðist Vodafonedraugurinn því enn vera að hrjá þá, en í fyrra unnu þeir t.d aðeins þrjá heimaleiki í deild.
Líklegt byrjunarlið Vals er 4-5-1: Kjartan Sturlu, Gregg Ross, Atli Sveinn, Reynir Leós, Stefán, Arnar Sveinn, Ian Jeffs, Sigurbjörn Hreiðars, Haukur Páll, Baldur Ingimar Aðalsteins og Danni König.
Lykilleikmenn Vals eru þeir Haukur Páll, Ian Jeffs, Martin Pedersen, Arnar Sveinn og Baldur Aðalsteins. Annars er liðið gríðarlega sterkt og ósanngjarnt að minnast ekki á Danni König, Gregg Ross, Reynir Leós, Atla Svein og Sigurbjörn Hreiðars sem mikilvægustu leikmenn liðsins, en sá síðast nefndi var maður leiksins hjá Val í síðasta leik og reyndar leikmaður umferðarinnar á fotbolti.net.
Martin Pedersen er í leikbanni vegna fjögra gulra spjalda. Reyndar var hann stálheppinn að fá ekki rautt í fyrstu tveimur leikjunum.
Nokkrir leikmenn hafa farið á milli félaga, en þó flestir í aðra áttina. Margfaldur Íslandsmeistari með Val Magni Blöndal þjálfaði Selfoss árin 1993 og 1994 og kom þeim upp í b deild fyrra árið. Heimir Karlsson morgunþáttarstjórnandi á Bylgjunni þjálfaði Selfoss árið 1990. Árið áður, eða árið 1989 þjálfaði Valsarinn Hörður Hilmarsson lið Selfyssinga. Með Herði kom á Selfoss Ingi Björn Albertsson en hann er eins og flestir vita tengdafaðir Gumma Ben þjálfara Selfoss. Ingi Björn varð að sjálfsögðu markakóngur Selfoss þetta tímabil með 8 mörk og hann er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi. Árni Njálsson þjálfaði Selfoss slatti mörgum árum fyrr. Antony Carl Gregory lék með Selfoss hálft tímabil ´98 og átti stóran þátt í að halda liðinu uppi, eftir að liðið hafði verið í fallsæti c-deildar undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Geir Brynjólfsson hefur einnig leikið með báðum liðum. Svo spilaði og Lk Gulli Jóns með Selfoss í fyrra, en eins og áður sagði þjálfar hann nú Val.
Líklegt byrjunarlið Selfoss er 4-4-2: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Kjartan Sig, Agnar Bragi, Andri Freyr, Ingó Tóta, Stefán Ragnar, Jón Guðbrands, Jón Daði, Arilíus og Sævar Þór.
Aðaldómarar leiksins á mánudag er Þorvaldur Árnason, en hann er einn af efnilegustu dómurum landsins. Honum til aðstoðar eru þeir Oddbergur Eiríksson og Smári Stefánsson, en þeir hafa ekki síður verið að standa sig vel. Eftirlitsmaður leiksins er Sævar Jónsson.
Heimasíða Vals er fín. Spjallborðið virkt og menn láta þar í sér heyra. Hér er hægt að fara þar inn. Hér er líka góð stuðningsmannasíða.
Veðrið verður gott til að spila fótbolta á Hlíðarenda á mánudag. Logn, súld og 12 stiga hiti.
Selfyssingar taka á móti Fram í 6. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu. Í 5. umferð töpuðu Selfyssingar gegn toppliði Keflavík 2-1, en Fram leikur sinn leik í 5. umferð við KR þann 10.júní. Selfyssingar eru í 6 sæti með 7 stig eftir 5 leiki, en Fram er í 2. sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 leiki. Framarar eru enn taplausir í Pepsideildinni í ár, en ljóst að svoleiðis fara þeir ekki í gegnum tímabilið.
Liðin hafa mæst tvívegis í Lengjubikarnum á s.l tveimur undirbúningstímabilum. Liðin mættust í Egilshöll í ár, þar sem Fram vann 3-1, hér er hægt að lesa umfjöllun um þann leik. Liðin áttust einnig við á Selfossvelli fyrir rúmlega ári síðan og sá leikur endaði 1-1. Hægt er hægt að lesa umfjöll um þann leik hér.
Liðin áttust við í mjög óspennandi bikarleik 14. júní 2001, en sá leikur endaði 0-6 fyrir Fram. Byrjunarlið Selfoss í leiknum var eftirfarandi: Halldór Björns, Helgi og Hlynur Báðar, Jón Sveins, Arilíus, Þorkell Máni, Ingþór Jóhann, Halli Jó, Gaui Tobba, Tómas Ellert og Kjartan Þór. Varamenn voru Elías Örn, Lárus Arnar, Hjalti Tobba, Valli Reynis og Einar Ottó. Þetta hefur verið nokkuð ungt lið hjá Selfyssingum og t.d eru lykilleikmenn Selfoss í dag Einar Ottó, Arilíus og Ingþór aðeins 15-16 ára þarna.
Þetta eru einu þrír leikirnir sem undirritaður sér sem skráða KSÍ leiki. Tölfræðin er því 2-1-0 Fram í vil.
Nokkrir leikmenn og þjálfarar hafa komið við sögu hjá báðum liðum. Sumarliði Guðbjartsson markahrókurinn mikli spilaði í ár með Fram eins og fyrsti unglingalandsliðsmaður Selfyssinga Gylfi Þ. Gíslason. Ingó Tóta spilaði 9 leiki með Fram í 1. deildinni áður en hann kom aftur heim. Halldór Björnsson markmannsþjálfari var eitt tímabil á bekknum hjá Fram. Kjartan Sigurðsson núverandi leikmaður Selfoss tók 2. flokkinn með Fram áður en hann kom aftur í sveitina. Jón Guðni Fjóluson leikmaður Fram og nýjasti landsliðsmaður Íslands hefur ekki leikið enn með Selfyssingum, en var þó í Knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi.
Lykilleikmenn Fram eru Þorlákshafnarbúinn Jón Guðni Fjóluson, Halldór Hermann Jónsson frá Neskaupsstað, en hann kom með Þorvaldi frá Fjarðarbyggð og Akureyringurinn Almar Ormsson frændi Þorvaldar.
Líklegt byrjunarlið Fram 4-3-3: Hannes Þór, Daði, Kristján Hauks, Jón Guðni, Sam Tillen, Jón Gunnar, Halldór Hermann, Almarr, Tómas Leifsson, Ívar Björns, Hjálmar Þórarins.
Líklegt byrjunarlið Selfoss í 4-4-2 er: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Gummi Tóta, Ingó Tóta, Jón Guðbrand, Jón Daði, Arilíus og Sævar Þór.
Þorvaldur Örlygsson er á sínu 3. ári hjá Fram og hefur sýnt að hann er hörku þjálfari. Hann stýrði Fram í bikarúrslitaleikinn í fyrra og lenti í 3. og 4. sæti deildarinnar fyrri tvö árin sín hjá Fram og nú ætla þeir að gera betur. Þorvaldur er íhaldssamur og hefur t.a.m einungis notað 14 leikmenn í Pepsídeildinni í ár og hafa 13 af þeim 14 leikmönnum spilað alla leiki liðsins. Áður hefur Þorvaldur þjálfað KA og Fjarðarbyggð með góðum árangri.
Framliðið er mjög skipulagt og þeir gefast aldrei upp. Þeir hafa t.d skorað þrjú af átta mörkum sínum á síðustu fjórum mínútum leiksins.
Dómari leiksins á sunnudag er Skagamaðurinn knái Valgeir Valgeirsson og honum til aðstoðar eru þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Jón Magnús Guðjónsson. Eftirlitsmaður er Einar K Guðmundsson.
Stuðningsmannasveit Fram heitir Geiramenn og ætla þeir að fjölmenna í rútu á Selfoss. Það verður því gaman hjá Skjálftastrákum að máta sig við þá.
Heimasíða Fram er mjög góð og fjörugt spjallborð, en hér er hægt að fara inn á hana eins er ágætis undirsíða hér.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



