| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Þetta er ekkert flókið, í kvöld átti sér stað einn af hápunktunum í sögu knattspyrnudeildar Selfoss. Fjörið byrjaði á því að presturinn okkar hann Óskar var fenginn til að skýra Babú-stúkuna formlega og fyrst hann var mættur var platað hann til að blessa völlinn líka. Þar með var búið að nýta klerkinn og í stað þess að setja hann í yfirvinnu var fengið strákana í Skjálfta til að leiða alla hina 1.200 áhorfendurna í faðir vorinu. Kjartan Björnsson stjórnaði þessari vígsluathöfn annars að röggsemi og auk hans tóku þeir Grímur Hergeirsson, formaður UMF Selfoss og Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ til máls áður en Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs söng lagið He Hermaur.
Öðlingurinn Jóhann B. Konráðsson sem eitt sinn var kenndur við WV Bjölluna sína var mættur á Selfoss til að stjórna útsendingu Stöð 2 Sport frá leiknum en þetta er í fyrsta skipti sem Selfoss er sýnt í beinni útsendingu í sjónvarpi. Ef við miðum við að sjónvarp hóft hér á landi 1968 þá er ljóst að þetta er frábær millitími.
Hvað leikinn sjálfan varðar þá var ég með textalýsingu hér og vann svo umfjöllun út frá leiknum hér í kjölfarið. Þarna reyni ég að vera töluvert meira hlutlaus en t.d. þessi hérna var um daginn og því ekki úr vegi að hreinsa aðeins hlutleysið út fyrir umfjöllun hérna á Selfoss.org.
Liðið var svona:
Gestir dagsins voru Keflvíkingar sem er við hæfi enda ávalt verið „miklir“ kærleikar milli þessara bæjarfélaga, raunar svo miklir að Joey Drummer og félagar í Puma sveitinni lögðu ekki í það að koma austur fyrir fjall í kvöld. Strákunum í Skjálfta sem og öðrum stuðningsmönnum til sárra vonbrigða. Rúmlega 1.200 manns mættu á völlinn var stúkan full vel fyrir leik.
Keflvíkingar voru ekki alveg búnir að lesa handritið af þessari opnunarhátíð á Selfossi og um leið og presturinn var búinn að vígja völlinn formlega tóku Keflvíkingar mest öll völd á vellinum og eftir rúmlega tíu mínútna leik spólaði Magnús Þórir Matthíasson sig glæsilega í gegnum vörnina með góðum þríhyrning við Magnús Sverri og komst einn í gegn. Magnús Þórir átti ekki í vandræðum með að leggja boltann í hornið framhjá Jóa sem þó verður ekki sakaður um þetta mark. Mjög vel gert hjá þeim nöfnum en vörn Selfoss leit ekki vel út í þessu marki.
Eftir markið reyndu strákarnir að sækja á vörn Keflavíkur en náðu með engu móti að snúa á frábæra rangstöðuvörn þeirra. Raunar voru sóknir gestana áfram mun hættulegri og áttu þeir að að bæta öðru marki við á 17.mínútu. Fyrst spólaði Magnús Sverrir sig í gegn en skot hans var varið á línu af Martin Dohlsten. Í sömu sókn komst Hörður Sveinsson í úrvalsfæri en skot hans fór yfir. Algjör nauðvörn þarna hjá varnarmönnum Selfoss sem voru mjög heppnir að sleppa með þetta.
Á 20.mínútu fékk Viktor Unnar gult fyrir hraustlega tæklingu á Hólmari Erni og hefði líklega fengið rautt spajld væri Martin Atkinson að dæma þennan leik. Stuttu seinna átti hann ágætt skot að marki sem fór yfir. Fljótlega í kjölfarið fékk Yao Yao aukaspyrnu sem hann tók sjálfur og sendi inn í teiginn á Jón Guðbrandsson sem skallaði yfir markið.
Strax í kjöllfarið brunuðu Keflvíkingar í sókn og bættu við öðru marki og svo gott sem drápu stemminguna á Selfossi. Guðmundur Steinarsson sendi glæsilegan bolta innfyrir á Hörð Sveinsson sem slapp einn í gegnum vörnina en Jói varði stórvel frá honum. Frákastið fór þó beint aftur á Hörð sem gat lítið annað gert en að klára færið. 0-2 fyrir Keflavík og eins og Willum Þór sagði í viðtali eftir leik þá hefur hann aldrei tapað eftir að hans lið kemst í slíka stöðu.
Á 44.mínútu skoraði Jón Guðbrandsson fyrir Selfoss en markið var réttilega dæmt af þar sem Arilíus Marteinsson braut á Lasse Jörgensen markmanni. Gunnar Jarl góður dómari leiksins með þetta allt á hreinu og flautaði til leikhlés um leið og klukkan sýndi 45.mínútur. Þess ber að geta að markmaður Keflavíkur er ekkert tengdur lögregluhundinum Lassí, ekki svo ég viti.
Í leikhléinu nýtti Gummi Ben tímann vel, sagði sýnum mönnum að hann vildi þrjú mörk og tók Gunnar Borgþórs útaf og setti í hans stað Einar Ottó Antosson inná miðjuna með Yao Yao. Þessi skipting virkaði eins og vítamínsprauta á heimamenn sem komu frískir til leiks í seinni hálfleik og var Sævar Gísla að því er virtist í úrvalsfæri strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks en náði ekki til boltans.
Mínútu seinna var Yao Yao hinn smávaxni miðjumaður sem elskar okkur öll dæmdur rangstæður í örugglega sjötta skipti í leiknum. Fljótlega í kjölfarið á því fengum við aukaspyrnu sem áðurnefndur Yao Yao framkvæmdi. Hann sendi háan bolta inn á teig sem Jörgensen misreiknaði illilega í markinu og náði ekki að kýla frá. Þess í stað fór hann á kollinn á Jóni Guðbrandssyni og þaðan í netið.
Stuttu seinna fékk Arilíus Marteinsson gult fyrir brot rétt fyrir utan vítateig. Úrvalsfæri fyrir Guðmund Steinarsson sem tók lúmskt skot undir vegginn en Jóhann Ólafur var með allt á hreinu í markinu og varði skotið auðveldlega. Selfyssingar voru þó öllu sprækari eftir markið og áhorfendur voru miklu mun sprækari og létu vel í sér heyra.
Á 62.mínútu átti Jóhann Ólafur eitt af tilþrifum helgarinnar er hann sá glæsilega við Herði Sveinssyni sprækasta leikmanni Keflvíkinga. Hörður slapp gjörsamlega einn í gegn og hafði allann tímann í heiminum til að ákveða hvernig hann ætti að plata Jóa. En það eru fáir betri í þessari stöðu hér á landi heldur en okkar maður og las hann Hörð eins og Dagskránna og setti boltann í horn. Úr horninu náði Haraldur Freyr góðum skalla sem datt á þverslánna áður en hann fór yfir markið.
Selfoss var þó meira með boltann og reyndu hvað þeir gátu að sækja að marki gestanna. Rangstöðurnar urðu að ég held yfir tíu hjá þeim í leiknum og náðum við ekki að snúa á hana fyrr en Viðar Örn Kjartansson kom inná. Hann var ekki búinn að vera margar mínútur inná þegar hann slapp einn í gegnum vörn Keflvíkinga og var felldur inn í teig af Lasse Jörgensen. Markmaðurinn líklega smá heppinn að fjúka ekki útaf þarna en sú regla svosem allt of ströng enda brotið ekki gróft, allavega lét Gunnar Jarl vítið nægja.
Á punktinn fór Viktor Unnar Illugason sem var búinn að lofa því í viðtali fyrir leik að hann myndi skora í leiknum. Það gerði hann af miklu öryggi en var gert að taka vítið aftur. Það er aldrei talið þægilegt að þurfa að endurtaka víti en Viktor var líklega ekki búinn að frétta af því og hélt þess í stað að héti Sebastian Abreu (Urugay) og ákvað að vippa á mitt markið. Það dugði til að sjá við Lasse Jörgensen sem var farinn í sama horn og Viktor hafði veðjað á í fyrri spyrnunni. Algjörlega frábært mark hjá Viktori Unnari sem fagnaði vel ásamt áhorfendum og öllum sem voru í fjölmiðlagámun á Selfossvelli (semsagt mér einum).
Þeir fóstbræður Viðar og Viktor voru hvergi nærri hættir og þremur mínútum fyrir leikslok kláraði Viðar Örn leikinn fyrir heimamenn sem endanlega töpuðu sér á pöllunum. Viktor Unnar sendi boltan glæsilega innfyrir á Viðar sem var kominn einn í gegn og setti boltann örugglega í hornið. Aftur náði Viðar að sjá við rangstöðuvörn Keflvíkinga þó tæpt hafi það verið og vandaði Willum Þór þjálfari Keflvíkinga Gunnari Jarli dómara ekki kveðjunar í leikslok.
Á 90.mínútu var Viktor Unnar afar nálægt því að klára leikinn endalega er hann átti gott skot sem endaði í stönginni. Viðar Örn vann boltann sem datt ágætlega fyrir Viktor sem var óheppinn með skotið. Frákastið fór beint til Inga Rafns sem var í úrvalsfæri en Jörgensen varði vel í marki gestanna.
Fleira gerðist ekki í þessum frábæra opnunarleik á Selfossvelli, Babú stúkan fagnaði vel með liðinu í leikslok og ég er ekki frá því að sama hafi verið upp á teningnum í þétt setinni Thule stúkunni hinumegin við völlinn.
Please please please fleiri svona leiki strákar, þetta var gjörsamlega geðveikt eins og Viðar sagði eftir leik.
Keflavík Lasse Jörgensen, Alen Sutej, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Hörður Sveinsson.
Varamenn: Ómar Jóhansson, Ian Paul McShane, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Bojan Stefán Ljubicic, Brynjar Örn Guðmundsson og Magnús Þór Magnússon.
Sjáumst á mánudaginn
Áfram Selfoss
Babú
Fjölmargir Selfyssingar yfirgáfu Garðabæ sannarlega með óbragð í munnunum eftir að hafa horft upp á hundfúlt 3-2 tap í leik sem var sannarlega algjör óþarfi að tapa og í raun alveg óþolandi.
Síðast þegar ég mætti á Störnuvöll var líka fullt hús af Selfyssingum mætt í þessa stórskemmtilegu stúku í Garðabænum og stemmingin yfir meðallagi góð. Þá var reyndar búið að klára leikinn fyrir okkur enda Dusan búinn að fá rautt og Stjarnan komin yfir. Það var því ansi hressandi að sjá Jón Daða skora í fyrstu sókn leiksins eftir flotta sendingu frá Viktori Unnari. Frábær byrjun og enn á ný byrjaði maður að biðjast fyrir um að liðið næði nú að halda þessu.
Það tókst nú aldeilis ekki og er engu líkara en að liðinu sé hreinlega illa við að vera yfir í leikjum. Þegar tæpar 10.mínútur voru liðnar fór Agnar Bragi í hreinsun sem heppnaðist afleitlega, boltinn skastu upp í loft og beint fyrir Ellert Hreinsson sem náði að setja hann í hornið þrátt fyrir að Stefán Ragnar hafi verið í honum. Þetta mark var 60/50 blanda af klaufaskap í vörninni og hreinni og klárri óheppni. ENN Á NÝ misstum við niður forystu allt of snemma. Stuttu seinna fór Stebbi Raggi í hressilega tæklingu sem fór ekki betur en svo að hann fékk dæmda á sig aukaspyrnu (réttilega) en var engu að síður borinn útaf meiddur. Fyrir hann kom Kjartan Sig inná og þurfti eðlilega dágóðan tíma til að koma sér inn í leikinn.
Það var því eins og stundum áður í vetur að þetta féll algjörlega með andstæðingunum, Stjarnan fékk innkast sem barst til Atla Jó fyrir utan teiginn, hann er góður skotmaður þó hann hafi ekki sýnt mikið það sem af er þessu tímabili og þrumaði boltanum í hornið framhjá vörn Selfoss og Jóa í markinu. Fyrsta mark Atla í ár og ákaflega svekkjandi. Hann fékk síðan gult stuttu seinna fyrir að stoppa sókn Selfoss með svokölluðu professional foul og átti eftir að koma meira við sögu.
Stjarnan var annars bara óheppin að skora ekki meira það sem eftir lifði fyrri hálfleiks, þeir áttu nokkur keppnis færi og vörn Selfoss var stundum alveg út á túni og í tómu basli með háa bolta sem Stjörnumenn fengu að dæla inn í teiginn. M.ö.o. þessi tvö mörk slógu strákana svolítið út af laginu og hefði getað verið enn dýrkeyptara.
En þegar um mínúta var eftir að leiknum virtumst við vera að fá afar stórt tækifæri til að komast aftur inn í leikinn, Jón Daði komst framhjá Atla Jó sem bæði togaði greinilega í peysuna hans og sparkaði hann síðan niður aftanfrá og stoppaði þar með sæmilega sóknaruppbyggingu. Klárt gult spjald og þar sem hann var þegar kominn með gult var þetta augljóslega rautt spjald. Eða það héldu allir á vellinum nema ömurlegur dómari leiksins sem GUGNAÐI algjörlega er hann sá að þetta var Atli Jó sem var þegar með gult. Reyndi að afsaka sig með að Jón Daði var ekki alveg með boltann og eitthvað svona bullshit. Skýrara gult er ekki til og aðeins Maggi Gylfa getur talað mjög hátt um að þetta hafi ekki verið gult (á Stöð 2 Sport eftir leik).
Aðstoðardómararnir voru síðan alls ekkert skárri í leiknum og héldu að það væri fánadagur í Garðabæ í dag og flögguðu rangstöðu á Selfyssinga í sí og æ allann leikinn og virtist á köflum eins og þeir kynnu ekki alveg regluna með að sá leikmaður sem hefur ekki áhrif á leikinn er ekki rangstæður. Auðvitað var þetta ekki alltaf rangt hjá þeim kallagreyjunum og svosem ekki verið að halda því fram en í eitt skiptið var Gummi Tóta helvíti nálægt því a.m.k. að vera réttstæður er hann komst í gegn og í annað skipti var Já Já klárlega ekki rangstæður þegar hann komst í gegn, þar sáum við versta framlag línuvarðarins í leiknum.
Það er annars til lítils að tuða yfir dómaranum svona eftir leik, við getum hvorki sýnt myndir til að sanna okkar mál almennilega og eins geta þeir ekki varið sig og komið með sýna hlið, en orðum þetta þannig að það var púað hressilega þegar þeir gengu til búningsherbergja bæði í hálfleik og eftir leik, ekki ósvipað því sem var upp á teningnum síðast þegar við mættum í Garðabæinn.
En talandi um Atla Jó þá vissi Bjarni Jó þjálfari eins og allir aðrir á vellinum að hann átti ekki að vera inná vellinum lengur og tók hann því strax útaf í hálfleik enda myndi næsta brot klárlega þýða gult. Klókur Bjarni Jó þarna og hann var eitthvað að tala um það sá ég eftir leik að svona atriði hefðu fallið á móti þeim líka í sumar þegar brotið var á Steinþóri Frey.
Selfyssingar mættu síðan ekki til seinni hálfleiks fyrr en á 46.mínútu en þá höfðu heimamenn sett boltann í stöngina. Eftir það tóku strákarnir alveg yfir leikinn og voru miklu betri aðilinn og vantaði bara að ná inn bölvuðu jöfnunarmarkinu, það tókst ekki og þegar 12 mínútur voru eftir skoruðu Stjörnumenn þriðja mark sitt í leiknum og gerðu nánast út um hann. Einhver þeirra, líklega Halldór Orri virtist taka hann svona líka skemmtilega fyrir sig með hendinni og slapp þar með framhjá vörn Selfoss. Man annars ekki fullkomlega aðdragandann en allavega var brúnkuspreysgaurinn Halldór Orri allt í einu einn á auðum sjó og setti boltann auðveldlega í netið.
Strax í næstu sókn komst Viðar Kjartans sem var nýkominn inná alveg að vítateigslínunni áður en brotið var á honum og aukaspyrna dæmd. Hana tók Já já og sendi beint á Kjartan Sig sem stangaði boltann inn, 3-2 og game on. Síðustu tíu mínútur leiksins hefðu strákarnir síðan átt að jafna þennan leik en tókst ekki og ekki var boðið upp á mikinn uppbótartíma enda dómarinn afar upptekinn greyið, heilum 2 mínútum bætti hann við blessaður þrátt fyrir að bæði lið hefðu gert skiptingar og að Stjarnan hefði byrjað að tefja í föstum leikatriðum á ca. 55.mín.
Ömurlega svekkjandi 3-2 tap því staðreynd í leik sem annars var nokkuð vel spilaður að hálfu Selfoss, mínus of mörg shaky moment í vörninni sem á endanum kosta okkur stig í dag.
Svona í endann langar mig aðeins að fara yfir hvernig liðið var skipað og kíkja á hina ávalt hressandi einkunargjöf visis.is.
Gummi stillti upp nánast sama liði og vann Hauka um daginn nema að Sævar Gísla er enn allur bólginn og illa talandi eftir að Daði Lár rotaði hann í fyrstu lotu í leiknum gegn Haukum og fyrir hann kom Gummi Tóta inn á hægri kanntinn. Boulu var í banni í kjölfar rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Haukum. Einar Ottó var á bekknum í kvöld þrátt fyrir að vera búinn að afplána eins leiks bannið enda Gunni Borgþórs búinn að spila sig inn í liðið og svipað var um frænda hans Jón Guðbrands að segja, en hann var ekki í hóp í dag. Ingó Tóta var ekki heldur í hóp í dag og ég held að hann sé ennþá meiddur líkt og Siggi Eyberg sem á mikið verk fyrir höndum að reyna að slá Martin Dohlsten úr liðinu.
Liðið var annars svona:
Þeir á Visir.is eru jafnan að leita eftir því að vera umdeildir og skapa umræðu um fréttir sínar og ætla ég að láta það eftir þeim með að skoða aðeins hvað okkar menn fengu í einkunn enda jafnan skemmtilegur liður:
Jóhann Ólafur Sigurðsson – 5
- Erfitt að setja mikið út á þetta enda fengum við 3 mörk á okkur í leiknum, ekki mikið við Jóa að sakast reyndar.
Martin Dohlsten – 5
- Fengi nú alveg 6 hjá mér, var góður í seinni og var mikið að taka þátt í sóknaruppbyggingunni. Þetta er góður bakvörður og kemur til með að nýtast okkur vel á lokakaflanum. Hér má sjá viðtal við hann á Sunnlenska.is.
Agnar Bragi Magnússon – 5
- Slöpp hreinsun í fyrsta markinu sem flokkast eiginlega undir óheppni, annars einn okkar besti maður og hélt okkur á lífi í fyrri hálfleik.
Stefán Ragnar Guðlaugsson
- Stutt innkoma hjá Stebba og leikur sem hann vill gleyma strax
(13. Kjartan Sigurðsson – 6)
- Kjartan var ansi óöruggur í fyrri hálfleik en vann sig inn í leikinn og restaði á góðu marki. Fær ekki hærra en Bragi hjá Orginu samt.
Andri Freyr Björnsson – 5
- Svipaður leikur hjá Andra og Kjartani, var ágætur þegar leið á en óöruggur í byrjun.
Guðmundur Þórarinsson – 4
- Alls ekki besti leikur Gumma, er svolítið að klappa blöðrunni og hægja á spili finnst manni. Lendir í hörku samkepppni þegar Sævar og Boulu koma aftur sem er auðvitað bara gott mál.
Arilíus Marteinsson – 5
- Alli var mikið í spilinu í seinni og fínn þegar liðið fór að spila eins og menn. Vantaði þó þetta sjónvarpsmoment og því líklega nokkuð hlutlaus fimma á Alla.
Jean Stephane YaoYao – 6
- Líklega besti leikmaður vallarins, þetta er ansi lunkinn leikmaður og oft með stórskemmtilega takta sem glöddu augað, eins átti hann nokkrar flottar sendingar innfyrir og að auki átti hann að fá séns til að komast einn í gegn en var dæmdur rangstæður af ullarhöttunum sem dæmdu þennan leik.
Svona til gamans mát geta að Maggi á Fótbolta.net reyndi að taka viðtal við hann eftir leik og ég var á myndavélinni…það var spurning fyrir mig að vera á hnjánum enda við svipað hávaxnir :) Enskan hjá Jájá vini okkar var annars þannig að við Maggi skildum það báðir sem svo hjá honum að ísland yrði komið á HM innan 2 ára :)
Gunnar Rafn Borgþórsson – 5
- Gunni virðist vera þessi leiðtogi sem við þurftum inn á völlinn, talar mikið og kemur ró á liðið og spilið. Hann hefur lítið sem ekkert spilað í 2,5 ár og því alveg hálfum metra of seinn, en ég sé hann alveg fyrir mér vaxa með auknum spilatíma og ef hann er heill verður erfitt að slá hann úr liðinu.
Jón Daði Böðvarsson – 6
- Jón Daði er að koma aftur ferskur inn og var sprækur í dag og skoraði gott mark. Einn besti maður vallarins.
Viktor Unnar Illugason – 4
- Boltinn var ekki að skoppa vel fyrir Viktor á teppnu í Garðabæ í dag átti hann erfitt með að nýta tækifærin þegar boltinn barst til hans inn í teig. Þetta er samt hörku leikmaður sem verður bara betri með meiri spilatíma og á nú skilið meira en 4 fyrir þennan leik.
Venjulega þegar við erum að fara yfir dómara leiksins er jafnan fyndið að sjá hann síðan fá 7 eða 8 hjá visi.is eftir leik en núna voru þeir nokkuð í línu við okkur þó þeir hafi alveg fundið fimmu á hann í einkunargjöfinni.
Dómari: Einar Örn Daníelsson (5)
Það er engu að síður helling hægt að byggja ofan á þennan og síðasta leik, liðið er að spila betur og fær núna tíma til að æfa vel og koma nýjum mönnum betur inn í kerfið. Samkeppnin er orðin ágæt í liðinu og fáir sem ganga að sínu sæti sem vísu.
Næsti leikur er gegn Keflavík og ef allt gengur upp er það fyrsti leikurinn á nýju grasi á Selfossi og í nýrri stúku sem vonandi kemur til með að kveikja í mannskapnum. Draumurinn er síðan að fá svipaða stúku (með þaki) og Stjarnan er með, áhorfendur þar gætu samt reynt að einbeita sér betur að því að styðja bara sitt lið í stað þess að sitja og halda bara kjafti á meðan leikstendur nema þegar liðið skorar og nýta þá tækifærðið og fagna aðallega í átt að andstæðinunum og ögra þeim.
Áfram Selfoss
Það var það allavega bókstaflega ef maður dæmir út frá myndum Stöð 2 Sport frá leiknum. Við áttum lítið í KR-inga í kvöld því miður, nýir menn ekki búnir að slípast inn í liðið svo vægt sé tekið til orða og slæmur 0-3 skellur staðreynd.
Gerði umfjöllun hér og held að ég sé kominn með nóg af því að tala um þennan leik í bili.
Ninni vinur minn spurði hvort það væri ekki eins og að skrifa minningargrein að gera umfjöllun um svona tapleiki, hann var ekki langt frá því, svei mér þá!
Næst eru það Haukar á Hlíðarenda, við ætlum ekki að tapa þeim leik.
Frekari umfjöllun um þennan leik gæti dottið inn í vikunni.
Eftir ansi hreint dapran leik gegn ÍBV í eyjum sem tapaðist sannfærandi á innan við mínútu þá var ekki hægt að segja að bjartsýnin væri að fara með stuðningsmenn Selfoss fyrir leik gegn Blikum sem hafa verið í góðu stuði í sumar og gátu komist á toppinn með því að vinna á Selfossi.
Áhyggjur fyrir leik virtust alveg eiga rétt á sér fyrsta korterið á þessum leik en þá fór þetta aðeins að smella hjá okkar mönnum og þeir sýndu vel að þeir standast þessum liðum alveg snúning ef þeir trúa á það.
Byrjunarliðið var reyndar ansi breytt frá síðasta leik, Kjartan kom inn fyrir Stefán Ragnar sem var eitthvað tæpur fyrir leik, Gummi Tóta af öllum mönnum kom í vinstri bakvörðinn fyrir Andra Frey sem var á bekknum og Jón Sveins var í hægri bak gegn sínum uppeldisklúbbi á kostnað Sigga Eyberg sem var hreinlega ekki í hóp að þessu sinni.
Á miðjunni voru frændurnir Einar Ottó og Jón Guðbrands loksins saman og með þeim eldri sonur Tóta Ingólfs. Frammi var síðan Jón Daði spaði á sínum stað og Davíð Birgisson hinumegin á kostnað villingsins frá Stokkseyri, Arilíusar Marteins sem var í banni.
Upp á topp var síðan Yakubu.
Þetta kom nú bara ágætlega út og liðið átti nokkra góða kafla í leiknum, Gummi Tóta kom á óvart í vinstri bak og var gaman að sjá hvað vörnin var að veiða Blikana oft í rangstöðunni þrátt fyrir að hringla svona mikið með hana fyrir leik. Eftir Einari Ottó höfum við beðið eftir í allt sumar og sýndi hann oft á tíðum í gær afhverju það var. Fyrir leik spjallaði ég við Einar Ottó og sagði honum að skora í dag og jafnvel næla sér í 1-2 spjöld…. hér eftir ætla ég að spjalla við Ottó fyrir hvern leik. Frammi verðum við síðan bara að hafa Sævar Gísla, jafnvel þó að hann hafi átti magnað klúður í þessum leik.
Fyrri hálfleikur var reyndar mjög rólegur og lítið um opin færi sem vert er að tala um, helst var það að hornspyrnur væru að stríða okkur rétt eins og venjulega í sumar. Reyndar skoruðu gestirnir tvisvar í fyrri hálfleik en þau mörk komu bæði löngu eftir að Jóhannes Valgeirsson dómari hafði flautað rangstöðu.

Jóhannes Valgeirsson næstbesti dómari landsins í stuði - Mynd Fótbolti.net
Hættulegustu sóknartilburði Selfyssinga í fyrri hálfleik áttu þeir Sævar Þór og Jón Daði sem endaði á því að sá fyrrnefndi átti afar slæmt skot sem endaði í innkasti eftir gott spil þeirra á milli. Ég er þegar búinn að biðja Ingó Tóta að tala við Hemma Gunn vin sinn um það hvort hann eigi ekki gamla takkaskó til að lána Sævar Gísla!!!
En þegar allir voru að búa sig undir kærkominn kaffibolla í kuldanum á Selfossi fengu Blikar hornspyrnu sem þeir nýttu til fullnustu. Við erum farin að þekkja þetta, uppbótartími í fyrri, þeir frá horn á hættulegum stað, allir á vellinum muldra með sér EKKERT RUGL NÚNA, og bang, mark og hálfleikur. Geðveikt.
Kristinn Jónsson sendi boltann beint í lappirnar á Kristni Steindórssyni sem laumaði honum í hornið. 0-1 því staðreynd eftir bókstaflega síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Afar svekkjandi!
Strákarnir komu ágætlega vel grimmir til leiks í seinni hálfleik og jafnaði Einar Ottó Antonsson metin á 56.mínútu. Hann vann þá boltann á miðjunni eftir mistök hjá Kára Ársæls, spólaði sig í gegnum vörn Blika og lék á Kale í markinu og setti boltann örugglega í netið. Stórvel gert hjá Ottó sem má leggja þetta í vana sinn í sumar.

Einar Ottó fagnaði með stæl! - Mynd Sunnlenska.is / Gummi Kalli
Blikar svöruðu síðan á 66.mínútu er Guðmundur Pétursson kom þeir aftur yfir, hann laumaði boltanum í hornið framhjá sofandi vörn heimamanna sem höfðu verið nokkuð sprækir eftir markið hjá Einari Ottó.
Strax í næstu sókn átti Sævar Þór Gíslason eitt mesa klúður ársins er hann renndi boltanum framhjá eftir að því er virðist opnu marki. Jón Daði hafði þá spólað sig vel í átt að marki og átt skot sem Ingvar Kale varði í marki Blika en frákastið endaði hjá Sævari Þór sem trúir því ekki ennþá að hann hafi ekki skorað þarna.
Hér má sjá þetta færi:
Þegar leið að leikslokum reyndi Gummi Ben að blása til stórsóknar og skipti Inga Rafni inná sem varamanni fyrir Jón Sveinsson. Það fór þó ekki betur en svo að Kristinn Steindórsson gulltryggði sigur gestana með marki á 90.mínútu og til að toppa það fékk Ingi Rafn rautt spjald, um fimm mínútum eftir að hann kom inná. Hann útskýrði þetta fyrir mér í dag með þvi að hann ætlaði ekkert að fara í manninn og þetta var ekki viljandi, en klárlega brot sem honum fannst alveg hafa mátt vera gult. Sjálfur sá ég þetta ekki.
Því fór þetta á endanum svo að Blikar unnu 1-3 sigur sem gefur ekki alveg rétta mynd af leiknum, kæruleysi að manni fannst í mörkum Blika orsakaði þetta tap í leik sem hefði svo sannarlega alveg getað fallið okkar megin. Helsti munur liðanna var líklega sá að annað liðið er í hörkuformi og fór á toppinn með þessum sigri á meðan hitt er í töluverðu basli og fátt fellur með. Í þessum leik var ekki svo ýkja mikill munur, þó við myndum ekkert segja nei við Alfreði Finnbooga í okkar lið!!
Típískt kannski að við þurftum að mæta þeim akkurat núna enda eru Blikar bókstalega í mesta stuði sem þeir hafa verið í hartnær 28 ár!!

Blikar skemmtu sér vel á Selfossi í gær - Mynd Gummi Kalli
Það er þó ekkert víst að við þurfum hann enda Alfreð aldrei neinn Patrick Berger sem ku vera á reynslu eins og við greindum frá fyrr í dag.
Næsti leikur er gegn Grindavík og ef við náum upp svipuðum leik og gegn Blikum gætu úrslitin sannarlega verið önnur.
Fyrir öllu er að styðja liðið út mótið, Skjálfti hefur verið gjörsamlega frábær það sem af er og vann stuðningsmannaverðlaun félaganna fyrir umferð 1-8 með fáránlegum yfirburðum og gjörsamlega sungu Blika í kaf í gær.

Með svona stuðningsmenn er allt hægt, þó það líti ekki út fyrir það núna. - Mynd Sunnlenska.is / Víðir Jóakims!!
Byrjunarlið Breiðabliks. Ingvar Kale (M), Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Kári Ársælsson (F), Guðmundur Pétursson, Kristinn Jónsson, Finnur Orri Margeirsson, Jökull Elísabetarsson, Olgeir Sigurgeirsson, Kristinn Steindórsson, Alfreð Finnbogason, Guðmundur Kristjánsson.
Varamenn: Sigmar Ingi Sigurðsson, Árni Kristinn Gunnarsson, Ranndver Sigurjónsson, Elvar Páll, Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason, Bjarki Aðalsteinsson, Andri Rafn Yeoman.
Næsti leikur Selfyssinga í Pepsídeildinni er heimaleikur og er hann gegn Breiðablik úr Kópavogi. Dómari leiksins flautar leikinn á kl 19.15 mánudaginn 05.07. Blikar fengu KR í matinn í síðustu umferð, eins og þeir sungu eftir leik við Knattspyrnufélag Reykjavíkur, við lítinn fögnuð þeirra röndóttu. Selfyssingar töpuð aftur á móti í nágranaslag gegn ÍBV. Breiðablik er á run-i, en Selfyssingar eru það ekki, samt sem áður má búast við hörku viðureign, því deildin er jöfn sem aldrei fyrr.
Þó ekki sé það öllum sýnilegt í fyrstu, er það heilmargt sem þessi lið eiga sameiginlegt. Þar mætast tvö yngstu lið deildarinnar, en þau hafa verið að skipta því á milli sín að vera yngsta lið hverjar umferðar. Ekki bara að Selfoss og Breiðablik séu yngstu lið deildarinnar heldur eru þetta þau lið sem eru með flesta heimaalda leikmenn í sínu liði. Mjög gott hjá þeim.
Það er annað og meira sem þessi lið eiga líka sameiginlegt. Því á mánudag munu best klæddu þjálfarar landsins mætast, en kosningunni lauk um síðustu helgi og var Willum Þór að sjálfsögðu valinn sá vestklæddi. Þannig að búast má við veislu fyrir ljósmyndara SE og HØR á mánudag.
Breiðablik er sennilega með öflugasta yngri flokka starfið á landinu og gætu með réttu aðhaldi orðið stórveldi í íslenskri karlaknattspyrnu. Þeir voru stórveldi í kvennaknattspyrnu og verða það von bráðar aftur. Hjá Breiðablik er allt til staðar varðandi aðstöðu og er óhætt að segja að hún sé sennilega sú besta á landinu. Svo eru þeir auðvitað oftast með stærstu yngri flokkana og hafa verið að koma upp með marga af efnilegustu knattspyrnumönnum Íslands undanfarin ár.
Það sem helst hefur vantað er hefð og stórir titlar, en Breiðablik vann sinn fyrsta stóra titill í haust er þeir lögðu Fram í bikarúrslitaleik. Það kæmi mér ekki á óvart að þessi titill yrði sá fyrsti af mörgum á næstu árum og ef undirritaður ætti einn bláan myndi hann setja seðilinn á Blika sem íslandsmeistara árið 2010.
Á íslandsmótinu 1979 léku Breiðablik og Selfoss opnunarleikinn. Breiðablik var talið sigurstranglegra og komst yfir í leiknum með marki frá Sigurjóni Rannverssyni. En það var svo Ámundi Sigmundsson sem jafnaði leikinn. Stefán Larsen skoraði svo mark fyrir Selfoss í lokinn, en það var „dæmt af á þokukenndum forsendum“ eins og segir í blaðagrein frá leiknum. Þannig að sá leikur endaði 1-1 og Breiðablik vann seinni leikinn 1-0 og unnu svo reyndar b-deildina um haustið á meðan Selfoss endaði í 5. sæti.
Í byrjun ágúst árið 1987 tylltu Selfyssingar sér á topp b-deildar íslandsmótsins með 3-1 sigri á Breiðablik. Þorsteinn Friðjónsson var þarna að stýra Blikum í sínum fyrsta leik og virtist spennustigið nokkuð hátt því Gylfi Orrason þurfti að gefa þremur leikmönnum rauða spjaldið, blikarnir Gunnar Gylfason og Sigurður Viggósson og Selfyssingurinn Jón Gunnar Bergs fengu því forgang á sturtunum. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu þeir Heimir Bergs, Jón Gunnar og Palli Guðmunds, en mark Blika skoraði Jón Þórir Jónsson sem við komum betur að síðar. Maður leiksins var Björn Axelsson úr Borganesi sem spilaði mjög vel með Selfyssingum þetta sumar.
Selfoss og Breiðablik gerðu jafntefli 2-2 þann 3. júní 1988 þar sem Björn Thoroddsen sýndi spenntum áhorfendum listflug í hálfleik. Páll Guðmundsson og Guðmundur Magnússon, úr víti, skoruðu fyrir Selfoss, en Jón Þórir Jónsson skoraði bæði mörk Blika og var besti maður vallarins. Jón Þórir spilaði svo seinna með handboltaliði Selfoss sem kennt var við mjaltavélina og gerði góða hluti þar. Selfoss sigraði svo seinni leikinn 1-0 með marki frá Heimi Bergs og þar var Tóti Ingólfs var valinn maður leiksins. Blikar björguðu sér svo frá falli í c-deild um haustið.
Síðasti KSÍ leikur liðana fór fram í Deildarbikarnum í mars 2008 og þann leik unnu Blikar 4-1 og skoraði Agnar Bragi Magnússon mark Selfyssinga úr aukaspyrnu. Hér má lesa leikskýrslu eftir þann leik.
Annars leku liðin æfingaleik í vetur sem Breiðablik vann 1-0. Hörkuleikur og sanngjörn úrslit.
Alls hafa liðin spilað 20 leiki á vegum KSÍ og hafa Kópavogspiltar betur. Þeir hafa unnið 11 leiki, liðin hafa sæst á jafntefli 5 sinnum og 4 sinnum hafa Selfyssingar unnið.
Síðustu sex leikir liðana í deilda líta alls ekki vel út, en þó má benda á að alltaf styttist í sigurleikinn eftir marga tapleiki. S er sigur, J er jafntefli og T er tap.
Selfoss : J-T-T-T-T-T
Breiðablik : S-J-S-T-S-S
Líklegt byrjunarlið Selfoss á mánudag er: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Ingi Rafn, Einar Ottó, Ingó Tóta, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór. Arilíus var í byrjunarliðinu síðast en er nú kominn í leikbann vegna fjögra gulra spjald og það fyrstur Selfyssinga, en stuðullinn á því fyrir mót var 1:250.
Breiðablik mun að öllum líkindum stilla upp í 4-3-3, en þess má þó geta að Ólafur Kristjánsson hefur einnig notað 4-2-3-1 í sumar. Ingvar Kale, Arnór Sveinn, Kári Ársæls, Elvar, Kristinn Jóns, Guðmundur Kr, Finnur Orri Margeirsson, Jökull Elísabetarson, Olgeir Sigurgeirs, Alfreð Finnboga og Kristinn Steindórs. Andri Rafn Yeoman og Guðmundur Pétursson koma svo inná í seinni hálfleik.
Einhverjir hafa farið á milli þessara félaga og hafa t.d Maggi Jónatans og Hörður Hilmars þjálfað bæði lið. Guðmundur Magnússon lék með Selfyssingum 1987, en hafði áður leikið með Breiðablik, Fylki og KR. Ragnar Guðmundsson kom hingað að láni þegar Kiddi Björns þjálfaði liðið og svo auðvitað legend-inn Steindór Elíasson sem spilaði með báðum liðum, en sonur hans Kristinn Steindórsson er einn alefnilegasti leikmaður landsins og spilar frammi á móti okkur á mánudag. Jón Gunnar Bergsson sem skoraði 22 mörk fyrir Selfoss árið 1986 með sítt að aftan og lúkkaði eins og Mario Kempes, lék einnig með Breiðablik og reyndar líka Val.
Ólafur Kristjánsson þjálfar Breiðablik sitt fjórða heila tímabil í röð en hann tók við liðinu á miðju tímabili 2006. Liðið hefur verið í sókn hjá þessum frábæra þjálfara og í fyrra enduðu þeir í fimmta sæti og unnu VISA-bikar keppnina. Ólafur hóf þjálfaraferil sinn hjá AGF í Danmörku þar sem hann var um árabil. Eftir að hann sneri aftur til Íslands tók hann við liði Fram á miðju sumri 2004 og bjargaði liðinu frá falli. Ólafur var á árum áður leikmaður FH, KR og einnig var hann atvinnumaður í Danmörku og spilaði í landsliði Íslands.
Dómarinn sem mun flauta leikinn er klárlega einn albesti dómari landsins, en hann heitir Jóhannes Valgeirsson og honum til aðstoðar eru líka toppmenn, en það eru þeir Smári Stefánsson og Viðar Helgason. Eftirlitsmaður leiksins er Sigurður Hannesson frá Stóru-Sandvík.
Opinbera heimasíða Breiðabliks er mjög góð, hér er hægt að kíkja á hana. Stuðningsmannasíðan er líka mjög góð, sjá hér , ágætis spjallborð er þar og hægt að hlusta á hið eiturhressa lag „ekkert hangs, ekkert hik- koma svo Breiðablik“ sem Eyþór Arnalds og Sigurður Ingi Ásgeirsson tóku upp. Annars saknar undirritaður lagsins „Breiðablik í stuði, sigrar allt í dag- Breiðablik í stuði, sérðu ekki það“ sem Blikastúlkur gáfu út fyrir 10-15 árum síðan og ef einhver góðhjartaður gæti bent mér á hvar það lag er að finna yrði ég þakklátur.
Veðrið verður gott til að spila knattspyrnu á mánudag. En um kvöldmatarleytið ver 12 stiga hiti, skýjað, hæg suðlæg átt og þurrt að kalla.
Tómas.
Selfoss tapaði fyrir Fram í kvöld 2-1. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem við komumst í 1-0 en missum það frá okkur, gegn Stjörnunni náðum við að klóra inn eitt stig en gegn Keflavík og Fram í kvöld steinlágum við í seinni hálfleik.
En þar liggur hundurinn í kúnni. Við mættum ekki í seinni hálfleikinn eða eins og Jón Bóndi segir í viðtali við sunnlenska.is „Ég skil samt ekki hvað málið var í seinni hálfleik, þetta var vægast sagt mjög lélegt og það voru bara allir í einhverju rugli,“
Ef við metum leikinn kalt þá er þetta einfalt, við vorum betri í fyrri hálfleik og ef þessi herslumunur hefði verið meira með okkur hefðum við getað leitt 3-1 í hálfleik, Sævar slapp í gegn og setti skot úr þröngu færi í hliðarnetið og Jón Daði átti bylmingsskot sem Hannes náði að verja í horn.
Við vorum ákveðnir og grimmir og vorum að gera það sem við hefðum átt að gera á móti Keflavík mæta þeim framarlega og setja pressu á þá þegar þeir voru með boltann.
Í seinni hálfleik lá hinsvegar Fram-mark í loftinu. Markið sem þeir skoruðu var hinsvegar hræódýrt og alger óþarfi, blessaður aðstoðardómarinn sem var engan vegin í línu áttaði sig ekki á því að markaskorari Fram var svo kolrangstæður að hann eiginlega var orðin réttstæður aftur. Viðbrögð Selfyssinga og Frammara segja eiginlega allt sem segja þarf. Selfyssingar brjálaðir og Frammarar hissa. En þetta mark er ekki aðalmálið. Við getum ekki ætlast til þess að taka stig gegn Fram með því að spila ekki nema 55 mínútur af leiknum fótbolta.
Þegar strákarnir voru að spila eins og þeir eiga að gera þá vorum við betra liðið en þegar við spilum jafn lélega og meirihluta seinni hálfleiks þá er okkar besta von um að halda okkur uppi sú að Haukar og Grindavík haldi áfram að tapa stigum. Þessi seinni hálfleikur er það lélegasta sem ég hef séð til liðsins síðan við töpuðum úti gegn Stjörnunni 2008 en þá spiluðum við manni færri í 76 mínútur.

Bekkurinn fylgist spenntur með, Gummi Ben lét annars vel í sér heyra í leiknum og var ekki alltaf sáttur við sína menn. - Mynd Sport.is / Hilmar Þór
Skýrslan verður ekki mikið lengri enda hundleiðinlegt að skrifa um tapleiki en það er hins vegar mál að taka nokkra hluti fram. Sendingarnar voru ekki að gera sig, vörnin var óörugg á tímum og það var allt of mikið boltaklapp á miðjunni sem leiddi til þess að við töpuðum boltanum á slæmum stöðum og vorum að fá ódýrar aukaspyrnur á okkur, sem leiðir okkur að útgangspunkti skýrslunnar Valgeiri Valgeirssyni dómara. Hann átti arfaslakann dag og gerði fátt ef eitthvað rétt. Fyrstu 30 mínúturnar flautaði hann varla en eftir það var eins og hann væri að vinna upp í brotakvóta fyrir leikinn og flautaði í tíma og ótíma og yfirleitt seint og illa. Hann og aðstoðarmenn hans fá svo Gunguverðlaun júnímánaðar fyrir að taka ekki á því þegar Sam Tillen sparkaði í leikmann Selfyssinga fyrir framan Valgeir og í beinni sjónlínu fyrir báða aðstoðardómarana. Það er hægt að segja að spilamennska Selfoss meiripart seinni hálfleiks hafi verið 1. Deildarbolti en dómgæslan hefði ekki verið boðleg í firmakeppni.

Þarf kannski ekki að taka það fram en Sævar hoppaði meiddur af velli í þeesum leik eftir tæklingu sem ekki var einu sinni dæmt á - Mynd Sport.is / Hilmar Þór
• Jákvæðir punktar í lokinn.
• Guðbrandsson er næst markahæstur í deildinni
• Skjálfi var fantagóður og það er fátt sem kemur í veg fyrir að þeir verði valdir stuðningsmenn fyrsta hluta mótsins

Skjálfti er ferskasta stuðningslið landsins í dag án nokkurs vafa! Reyndar var nú óþarfi að setja fjóra fílelfda gæslumenn beint fyrir framan þá í leiknum svo þeir færu sér ekki að voða á auglýsingaskiltinu...aftur. Eyðileggur alveg myndefnið sem þessi sveit sannarlega er.
• Það var gott veður og ekkert öskufall.
* Varamennirnir sem komu inná stóðu sig með prýði, Davíð og Ingi komu með skemmtilega vídd í leikinn og Ottó kom með góða baráttu á miðjuna.
Súmmerum þetta upp í eftirfarandi setningu um seinni hálfleik. „úrvalsdeildar stuðningur, fyrstu deildar spilamennska“
Fótbolti.net
•Umfjöllun Babú eftir leik
•Bein textalýsing Babú frá leiknum
•Viðtal við Gumma Ben (Video)
•Viðtal við Þorvald Örlygsson (Video)
Sunnlenska.is
•Umfjöllun (Gummi Kalli)
•Viðtal við Jón Guðbrands
Sport.is
•Umfjöllun og myndir (Snorri Sturluson)
•Viðtal við Gumma Ben (Video)
•Viðtal við Þorvald Örlygs (Video)
Þetta er annars flott síða, Sport.is og mælum við með að fólk setji hana í nethringinn hjá sér.
Visir.is
•Umfjöllun + einkunargjöf (Elvar Geir)
•Viðtal við Almarr Ormarsson
•Viðtal við Gumma Ben
Mbl.is
•Umfjöllun (Sindri Sverrison)
•Viðtal við Gumma Ben
•Viðtal við Almarr Ormarson
RÚV
•Myndatökumaðurinn sem átti að sjá um þennan leik mætti ekki á völlinn og svaraði ekki í síma og má eiga von á vænum skammti af vel samansettum orðum frá Hirti Hjartarsyni og co á íþróttadeild RÚV. Erfitt að kenna allri stofnuninni um þetta atvik enda verður að vera hægt að treysta mönnum til að mæta til vinnu en óneitanlega mjög leiðinlegt að það komi til með að vanta tvö mörk og einn besta kafla Selfoss liðsins í íslandsmótið 2010. Fulltrúi RÚV á Selfossi var enda ekki mjög sáttur við sinn mann en náði þó að hringja út þennan mann:
…..sem reddaði þessu eins og skot.
Þess má annars geta að þessi klippa er með því betra sem komið hefur á youtube og reyndar bara internetið eins og það leggur sig.
Það er alveg hundleiðinlegt að tapa, sérstaklega eftir rúmlega 100 km akstur í gegnum 679 hringtorg og undir sjóinn hreinlega. En ef við erum alveg hreinskilin við okkur og horfum á þennan leik þá langaði liðinu kannski ekki meira áfram í bikarnum heldur en skagann langaði! Ekki að þeir sem voru inná hafi ekki verið að reyna og í raun spila ágætlega, þetta bara féll ekki okkar megin og auðveldasta útskýringin er auðvitað að benda á þá staðreynd að fjórar breytingar voru gerðar á liðinu fyrir leik og lykilmenn eins og Sævar Gísla komu ekki einu sinni inná!
En liðið var svona:
Bekkur: Elías, Kjartan Andri Freyr, Ingó Tóta, Sævar Gísla, Gunnar Borgþórs og Jón Daði. Alli datt út úr hópnum vegna bakmeiðsla og var því ferskur í stúkunni.

Alli var í stúkunni þessum leik og drakk í sig fróðleik frá bæði undirrituðum og Hjalta Magg. Alli heldur nú t.a.m. með Liverpool.
Eins og sjá má er þetta ekkert varalið, Jón Sveins sem lítið hefur spilað í sumar kom inn fyir Andra, Einar Ottó kom á miðjuna fyrir Ingó Tóta, Ingi á kantinn fyrir Jón Daða og Ingþór og Davíð leystu sóknardúettinn Alla og Sævar af hólmi. Með þessu var nánast öll sóknarlínan tekinn úr liðinu og bættist Gummi Tóta við þann lista er hann fór meiddur útaf í fyrri hálfleik fyrir Gunna Borgþórs sem var að spila sinn fyrsta alvöru leik í langan tíma.
Leikurinn fór annars nokkuð rólega af stað, við vorum meira með boltann og með mest öll völd á vellinum en þó ljóst að Skagamenn ætluðu að selja sig dýrt. Þó nokkuð var af Selfyssingum á leiknum og vorum við flest í stúkunni upp á skaga sem er þeim eiginleikum gædd að vera vitlausu megin og nánast alltaf tóm!! Enda miðasala og sjoppa hinumegin. Strákarnir í Skjálfta áttu pleisið eins og það lagði sig og fóru oft á tíðum á kostum í leiknum og létu Hjört Hjartarson sérstaklega heyra það meðan á leik stóð, þó auðvitað á góðu nótunum.

Strákarnir í Skjálfta björguðu andliti Selfyssinga í stúkunni eins og áður! Textar sem þeir semja í rútunni á leiðinni í leiki er allajafna frábær.
En lítil hætta var að skapast upp við mark heimamanna og mesta hættan eftir hálffæri frá Inga og Davíð Birgis sem voru nokkuð sprækir í byrjun leiks. Á 25.mín urðum við fyrir áfalli þegar Gummi T’óta fór af velli og virtist vera að kveinka sér eitthvað í náranum! Vonum svo sannarlega að það sé ekki alvarlegt. Fyrir hann kom áðurnefndur Gunnar Borgþórsson inná og fór á miðjuna þar sem hann á heima og Einar Ottó meira út á kantinn.
Lítið alvarlegt gerðist þó fyrr en á bölvaðri lokasekúndu fyrri hálfleiks er skagamenn skoruðu bara upp úr þurru. Stefán Ragnar reyndi langa spyrnu fram úr öftustu línu en rann í sendingunn, við það kom góð sending innfyrir flata vörnina og slapp Andri Júlíusson einn innfyrir og skoraði örugglega.
Næsta sem slappur dómari leiksins gerði var að flauta til leikhlés. Það nýtti undirritaður til að labba alveg hinumegin á völlinn, fara í aðra af tveimur lúgum í sjoppunni og fjárfesta í einum kaffibolla. Strax að því loknu til baka og það tók nákvæmlega rúmlega allt leikhléð!!
Strákarnir voru þó ekki að velta sér lengi upp úr þessu marki sem við fengum í andlitið, strax í upphafi seinni hálfleiks fengum við horn sem Ingi Rafn sendi inná nærstöng þar sem Stefán Ragnar lúrði. Hann flikkaði boltanum áfram inn á markteiginn og beint á Davíð Birgisson sem náði að moka blöðrunni í netið! Fyrsta mark hans fyrir Selfoss því staðreynd.
Mikið líf var annars í báðum liðum í upphafi seinni og sóttu bæði lið nokkuð hressilega, Jói varði t.a.m. vel frá Hirti í eitt skiptið en sá gamli var full sprækur í leiknum.
Þegar rúmlega klukkutími var búinn af leiknum var bensínið búið á Einari Ottó sem er að koma sér í form eftir erfið meiðsli í vetur. Ottó var búinn að vera með bestu mönnum vallarins fram að þessu og alveg ljóst að við þurfum að fá hann sterkan inn og það í 90.mín eins fljótt og auðið er.
Á 67.mín sýndi Hjörtur allann hraðann sem hann er búinn að missa er hann fór í þræl misheppnaða tæklingu á Ingþór og hlaut að launum gult spjald. Hann tuðaði smá af því tilefni en knúsaði svo Ingþór.

Hjörtur að búa sig undir að taka víti en Jói tók hann á taugum. Dómarinn er þarna á sama tíma líklega að fá leyfi frá línuverðinum fyrir þessu víti!
Þremur mínútum síðar tók síðan dómari leiksins við og fékk út vítaspyrnu er Jón Daði tók boltann af Andra Júl inn í teig, Jón Daði sem nýlega var kominn inná var vægt til orða tekið ekki sáttur við þennan dóm en það þýðir lítið að deila við dómarann eftir að hann er búinn að dæma víti!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hjörtur Júlíus Hjartarson sem bæði lítur út eins og Hlynur Geir, á afmæli sama dag og hann og er með sama föðurnafn brenndi hraustlega af í vítinu, skaut framhjá markinu og kom það fáum á óvart enda hefur hann aldrei skorað hjá Jóhanni Ólafi, ekki einu sinni á æfingu í fyrra.

Hjörtur Hjartarson er vinsæll hjá bæði skagamönnum og Selfyssingum - Mynd sunnlenska.is / Gummi Kalli
Þetta kunni Skjálfti vel að meta og hrósaði Hirti vel og innilega. Eins fengu ullarhattarnir tveir úr stuðningsliði ÍA sem skelltu sér sigri hrósandi Selfossmegin í tilefni af þessum vítaspyrnudómi aðeins að heyra það.
Davíð Birgis fékk annars gult fyrir röfl er vítið var dæmt og Gummi Ben fékk meira að segja gult stuttu seinna fyrir að fara aðeins yfir leik dómarans.
Skagamenn pressuðu ágætlega eftir vítið og var ljóst að nokkuð vantaði uppá eftir að Einar Ottó fór af velli, pressan skilaði árangri rúmum tíu mínútum fyrir leikslok er Andri Geir Alexandersson skoraði með skalla eftir hornspyrnu, flott hornspyrnja hjá skagamönnum en alveg herfileg vörn hjá strákunum.
Stuttu seinn fullkomnaði dómari leiksins síðan leik sinn algjörlega. Boltinn barst inn í teig skagamanna og að því er virtist í hönd eins varnarmanna þeirra. Hvort sem það er rétt eða ekki þá dæmdi mannfýlan víti, tók boltann upp og bjó sig undir að fara með hann á punktinn!! Skagamenn bentu þá á línuvörðinn sem var eitthvað að veifa í tilefni dagsins og fór dómarinn til hans, hætti í kjölfarið við vítið og vissi síðan ekkert hvað hann átti að gera og leit hreint ákaflega kjánalega út er hann framkvæmdi uppkast á vítateig skagamanna, enda tók hann sjálfur boltann upp!!
Sirkus bragur á þessu og hreint alls ekki oft sem maður sér dæmt víti og svo bara hætt við, raunar eiginlega aldrei. Hér eftir mæli ég með því svona til öryggis að deila alltaf við dómarann.
Agnar Bragi var síðan rétt búinn að jafna metin rétt fyrir leikslok er skalli hans hafnaði í þverslánni. Nær komumst við ekki og því frekar svekkjandi tap gegn 1.deildarliði ÍA staðreynd.
Eins og ég sagði í upphafi þá held ég að fáir séu eitthvað í öngum sínum yfir þessu tapi, við höfum ekki mikinn áhuga né stóran mannskap til að eyða miklu púðri í bikarinn og fannst mörgum það vera ágætt dæmi að Sævar Gísla, okkar lang besti maður var allann leikinn á bekknum. Þeir sem eru alveg við það að komast í byrjunarliðið fengu séns, þetta gekk ekki á erfiðum útivelli, so be it, gleymum þessum leik sem fyrst.
Ég verð í það minnsta búinn að gleyma þessum leik á sunnudaginn ef við gerum eitthvað af viti gegn Frömmurum.
Að lokum óskum við skagamönnum til hamingju með sigurinn, þeir voru svosem vel að honum komnir og áttu góðan dag. Völlurinn hjá þeim er með þeim flottari á landinu, góð stúka sem er reyndar röngu megin og allt til alls. Að þetta lið sé ennþá í 1.deild er algjör tímaskekkja og líklega náðu Skjálftamenn aðeins að hvetja andstæðingana með því að benda þeim á að þeir væri í 11.sæti og í 1.deild en Selfoss í úrvalsdeild!
Auðvitað mjólkum við þetta meðan við höfum efni á því :)
Skagamenn engu að síður alltaf öflugir og skemmtilegir heim að sækja.
Babú
Jæja það eru ekki alltaf jólin sið áttum bara frekar dapran dag gegn Keflavík og náðum að skapa furðulega lítið á þétt og gott Keflavíkurliðið. Niðurstaðan tap í leik sem við fengum nánast eitt mark í forgjöf.
Það er alltaf jafn ógeðslega leiðinlegt að tapa, þetta var ekki að falla með okkur í dag og kannski er þetta útivöllur sem er ekkert stórslys að tapa stigum á. Liðið lærir bara af svona leik enda leit Keflavík lengi lengi út fyrir að vera úrvalsdeildarliðið í dag og við ekki.
Sævar Gísla neglir þetta vel í viðtali á Sunnlenska.is
Skjálfti var hinsvegar mættur í öllu sínu veldi og voru frábærir í dag ásamt öðrum stuðningsmönnum af og til. Frábær mæting frá Selfossi, meiri en oft á tíðum á heimaleik undanfarin ár. Ef það heldur áfram fylgja stig á útivelli líka.
Frekari umfjöllun kemur á morgun eða hinn, líklega öllum sama enda um tapleik að ræða.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



