Við hér á orginu höfum ákveðið að skella á tippleik í sumar. Það er öllum frjálst að taka þátt og verður hann með sama formatti og síðustu ár. Reglurnar eru einfaldar. Ef þú ætlar að vera með þarf spáinn að vera kominn inn áður en leikurinn byrjar. Stigagjöfin er ennþá einfaldari.
fyrir rétt úrslit 1X2 1 stig
fyrir rétt úrslit t.d. 3-1 sigur gegn Fylki 3 stig
fyrir réttan markaskorara fyrsta marks 1 stig sóknarmaður, 2 stig miðjumaður, 3 stig varnarmaður, 5 stig markmaður, 10 stig Tommi Þórodds.
Hvað stöður varðar þá er það staðan sem leikmaður byrjar í t.d. ef Agnar Bragi byrjar sem miðvörður(varnarmaður) en í lokinn er hann setttur upp á topp til að pressa og skorar fyrsta markið telst það vera 3 stig.
Einfalt og skemmtilegt.
Ég ríð á vaðið og segji að við vinnum fyrsta leik 2-0 Sævar setur fyrsta og Agnar Bragi setur seinna.
Við getum rætt það manna á milli hvort eitthvað eigi að vera í verðlaun, ég svo sem þarf ekki að fá nein verðlaun en það gæti verið gaman.

10 stig fást ef þessi skorar fyrsta markið í leik. mynd GK.
Deila