| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Nú liggur mikið við og mikið að gerast hjá andstæðingum okkar í næsta leik, Völsurum. Það er ljóst að þörf er á spekingi andstæðinganna fyrir þennan leik og höfðum við því að sjálfsögðu samband við skemmtilegasta speking andstæðinganna, heiðursmanninn Heiðu í Dal sem ætti að vera Selfyssingum að góðu kunnur enda legend á hinni sálugu síðu Fyrstudeildarfjélagsins sem var hip og kúl er Selfoss lék í þeirri deild.
Heiða í Dal kemur m.a. inn að stjórastaða Vals sé stærri en Selfoss sem er auðvitað bull, eins reynir hann að segja Selfyssingum til þegar kemur að því að versla í Pullaranum án þess að svo mikið sem minnast á að auðvitað kaupir maður bara breiðloku þar og auðvitað er svo þriggja klúta fyrirlestur um stöðu félagsins í dag, klárlega þess virði að renna yfir þetta.
Sökum leti er oftast hent fram mjög svipuðum spurningum í þessum dagskrárlið, en spurningum um það hvernig stemmingin sé hjá Valsmönnum á næstum ekki við núna!! Hvað er eiginlega að gerast hjá þínum mönnum þessa dagana og hver er þín skoðun sem almenns aðdáanda á
…Gulla Jóns þjálfara
…Berki fyrverandi formanni knd
…þessari uppsögn fjórmenninganna í stjórn Vals?
Ég held, vona og trúi að hinn almenni Valsmaður vilji sjá Gunnlaug Jónsson áfram í brúnni hjá Val. Í fyrra varð óþarfa fjaðrafok í fjölmiðlum þegar hann ákvað að hætta með lið Selfoss til að taka við einu af stóru störfunum í íslenskum fótbolta (með fullri virðingu fyrir Selfossi og öðrum liðum), og gefið var út að þessi ráðning væri ekki einnar nætur tjöldun. Markmið Vals hlýtur að vera að byggja lið sem er hæft um að gera atlögu að titlum ár eftir ár, og til að það sé hægt verður að byggja umgjörð í kringum það sem segir Ungir fótglímumenn – hjá Val er best að vera.
Það gefur ekki góð skilaboð út á við að reka og ráða þjálfara eftir úrslitum síðustu umferðar. Því miður hefur ára óþolnmæðis vomað yfir Hlíðarenda undanfarin ár, og margir búnir að týna tölunni yfir fjölda þjálfara liðsins. Það er mín trú að það versta sem hægt væri að gera í stöðunni væri að reka Gulla og ráða einhvern „big shot“ til að taka stjórnina. Það gæti vel verið að Guðjón Þórðar eða Ron Atkinson myndi koma með titilinn 2011 á Hlíðarenda, en við hljótum að vera að líta til þess að vilja hafa mann sem byggir upp lið sem gerir atlögu að titlinum 2011, 2012, 2013 og svo framvegis.
Með uppsögn stjórn knattspyrnudeildar þá veit ég eiginlega ekki hvað skal segja. Mér finnst fnykur af þessu öllu saman, og sérkennilegt að stjórnin virtist koma fram af heilindum alveg fram á síðustu stundu. Til dæmis bauð formaður hennar upp á guided tour um Hlíðarenda í vikunni, svaraði spurningum æstra aðdáenda á spjallborði og virtist vera að bera á sárin sem opnuðust með fréttaflutningi RÚV í byrjun vikunnar. Svo allt í einu er 80% stjórnarinnar farin með reyk og látum og eftir standa spurnignarnar.
Nú ríður á að fá sanna Valsmenn inn í stjórnina sem vinna sína vinnu eins og stjórn á að gera – ekki í framlínunni og einbeita sér að því að skapa framkvæmdastjórum félagsins það vinnurými sem þeir eiga skilið. Nú þurfum við að halda áfram að búa til það sem kynnt var fyrir einu ári síðan – knattspyrnudeild karla sem laðar að þá efnilegustu (við komum ekki úr stæsta póstnúmeri landsins og erum ekki með Breiðabliks kalíber af ungum iðkendum), starfar eftir kjörorðum sr. Frikka og býður ekki í allt sem hreyfist eins og loðað hefur við Knattspyrnufélagið Val.
Þetta var nú alveg þriggja klúta ræða, er það ekki?
Fyrri leikurinn á Vodafone vellinum var hörkuleikur sem þó endaði vel fyrir þína menn, hvaða leikmaður Selfoss myndir þú segja að væri líklegastur til að setja strik í reikninginn hjá Völsurum í þessum leik?
Mér hefur fundist Yao-Yao ansi sprækur í þeim klippum sem vinir okkar RÚV hafa verið að sýna mér, og eins aukaspyrnur yngri Veðurguðsins þarna verið stórhættulegar, Gummi heitir hann það ekki? Ég er annars að vona að einu strikin sem Selfoss setur í reikning Valsmanna verði þrjú strik í stigatöfluna Valsmegin
Hver í Valsliðinu hefur komið þér mest á óvart í sumar?
Ég verða að setja að þetta er eitt furðulegasta tímabil sem ég hef lifað. Eilífar hræringar og mannabreytingar í glugganum, sumir að spila betur en í mörg ár og aðrir gert í brók. Mér finnst Kjartan Stullu búinn að eiga besta tímabilið sitt í nokkur ár, Haukur Páll er eins og ferskur vindur inn á miðjuna og er verðugur arftaki Bjössa þar. Stefán Eggerts í bakverðinum búinn að vera góður og Jón Vilhelm er að koma sterkur inn núna eftir meiðslatímabil.
Ég verð held ég samt að segja að sá í kringum Valsliðið sem er búinn að koma mér mest á óvart er hinn almenni aðdáandi. Hann hefur farið mikinn á spjallborðum og kaffistofum eftir tapleiki, en horfið eftir sigurleiki. Hann er búinn að gleyma öllu sem talað var um fyrir mót um uppbyggingu á Hlíðarenda, því að búa til nýtt lið og þá staðreynd að Gulli Jóns tók við andlega gjaldþrota meistaraflokki. Margoft í sumar er ég búinn að spyrja mig að því á hverju menn áttu eiginlega von fyrir mót? Héldu menn að lið með 5-6 nýja byrjunarliðsmenn myndi hlaupa heim með dolluna? Evrópusæti?
Skil þetta ekki alveg, enda er það ekki enduruppbygging í mínum huga að ætlast lið þess að ungur þjálfari byggi Róm á einum degi.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Besti leikmaður Vals í ár og vonandi næstu tíu ár er Haukur Páll Sigurðsson. Púnktur.
Hvar liggja helstu veikleikar Valsara, það má alveg segja frá þeim, ég lofa að kjafta ekki?
Þeir liggja í litlu sjálfstrausti, frekar hægu liði heilt yfir og að okkar sterkasta lið er ekki enn fundið.
Nú fengum við Viktor Unnar í síðasta leikmannaglugga og hefur hann reynst okkur vel, en gerðist eitthvað meira hjá ykkur á þessum tíma og hvernig finnst þér þeir leikmenn sem gengið hafa til liðs við Val 2010 hafa verið að nýtast liðinu?
Ég er búinn að vera mjög ánægður með nýju leikmennina. Þeir hafa flestir spilað vel. Ég fæ ekki nóg af að lýsa ást minni (platónskri) á Hauki Páli, Jóni Vilhelm hafði ég ekki mikla trú á fyrir mót en hann hefur verið að koma til, Stefán bakvörður minnir mig á sjálfan mig þegar ég var að spila (nema að hann er actually góður í fótbolta, kannski meira svona minnir hann mig á sjálfan mig eins og ég hefði viljað vera), Rúnar Már er framtíðarmiðjumaður í liðinu og útlendingarnir eru búnir að vera bara ágætir.
Hvernig kemur Gulli til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Það er hið sívinsæla 4-3-3 sem ríður rækjum á Valsheimilinu en byrjunarliðið er álíka ágiskanlegt og næstu úrslit Liverpool
Hef spurt áður en reyni aftur nú (leti sjáðu til), ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Val, hver yrði fyrir valinu?
Sá sem er skemmtilegastur í klefanum og getur spilað báða hálfleikina af fullum krafti! -> (innsk. sem sagt Tommi Þórodds)
Megum við ekki búast við góðri mætingu Valsmanna á leikinn?
Ég er ekki endilega viss um það, enda tímasetningin á honum ekki alveg hugsuð með vinnandi fólk í huga. Ég sjálfur mæti hinsvegar, enda veit ég fátt skemmtilegra en að keyra niður Kambana og reyna svo að muna eftir hraðamyndavélunum hjá Kotstrandarkirkju. Það er pláss fyrir einn aftan á mótorhjólinu mínu Valsmenn ef einhvern vantar far!
Ætlar þú sjálfur að mæta og þá jafnvel kíkja í Pylsuvagninn eftir leik?
Það held ég að sé nánast 101% öruggt. Ég vil minna frændur mína á Selfossi á það að pylsu á að snæða með tómatsósunni neðst, steikta lauknum þar fyrir ofan og remúlaðinu efst. Þetta er þrautreynt og aðrar útgáfur eru villutrú.
Hvernig fer og hverjir skora?
Ég held að Jón Vilhelm Ákason skori í 0-1 sigri Vals. Hann hefur verið að koma sterkur inn upp á síðkastið. En markið verður ljótt, það er öruggt.
Heiða í Dal heitir í raun Björgvin og þökkum við honum kærlega fyrir sitt innlegg í umræðuna
Babú
Á mánudaginn setti KSÍ leik Selfoss og Breiðabliks á dagskrá sem er tilvalið fyrir þá sem koma vonandi heim á sunnudaginn enda fótbolti tilvalinn til að hrista úr sér þreytuna. Koma heim segi ég þar sem allir Selfyssingar með tölu eru á leið í útilegu akkurat núna eins og sjá má villist maður á Austurveginn.
En til að fræðast aðeins betur um andstæðinginn heyrðum við aftur í honum Herði Snævari sem er m.a einn af pennunum á Fótbolta.net, villuráfandi United maður og umfram allt gallharður Bliki.
Hann fer um víðann völl, heldur því réttilega fram að Alfreð Finnboga sé besti leikmaður á Íslandi í dag og að spila sitt síðasta tímabil í Pepsi deildinni í bili, segir Gumma Ben að drullast til að byrja að æfa og lofar Skjálfta fínni samkeppni í stúkunni.
Lífleg byrjun á mótinu hjá blikum, nokkur ágæt úrslit og liðið í öðru sæti sem stendur í mjög jafnri toppbaráttu, hvernig er stemmingin í liðinu svona eftir tæplega helming mótsins?
Ætli stemmningin sé ekki afar góð eftir tvö góð úrslit en mér finnst samt sem áður sumarið hafa verið of kaflaskipt. Að tapa fyrir Grindavík á heimavelli á ekki að gerast og svo að detta úr bikarnum gegn FH þar sem liðið hefði vel getað klárað leikinn. Annars er það að vera við topp deildarinnar eitthvað nýtt fyrir meistaraflokk Breiðabliks þrátt fyrir að flestir leikmenn liðsins þekki fátt annað en að vinna titla úr yngri flokkunum.
Skemmtilegt verkefni í Evrópu framundan, hafið þið áhyggjur af því að það komi til með að trufla ykkur eitthvað í deildinni? Og á að skella sér með til Skotlands og jafnvel sippa í sig eins og einum Guiness?
Ég held að Evrópukeppnin muni ekki gera neitt nema gott fyrir liðið og mæta móralinn enn frekar, það mun ekki skemma ef úrslitin verða góð en þau eru bónus. Breiðablik er í fyrsta sinn komið í Evrópukeppni og því er verið að brjóta skemmtilegt blað í sögu félagsins. Ég ákveð það á næstu dögum hvort ég hendi mér með út og þá tel ég það afar líklegt að það renni niður einn, já jafnvel tveir bara.
Milli hvaða leikmanna verður mest spennandi baráttan á vellinum?
Ég held að barátta Elfars Freyrs Helgasonar og Sævars Þórs Gíslasonar gæti orðið áhugaverð barátta. Sævar eins og flestir vita öskufljótur en það er Elfar líka og ekki skemmir fyrir hvað Elfar er grjótharður.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Ég held að það sé bara einn leikmaður sem komi til greina og það er að mínu viti besti leikmaður Pepsi deildarinnar það sem af er, Alfreð Finnbogason. Hann er ekki bara fæddur markaskorari heldur frábær að finna liðsfélaga sína á hárrétum tímapunkti. Það kæmi mér alveg gríðarlega á óvart ef þetta væri ekki síðasta tímabil hans á Íslandi um hríð.
Hvar liggja helstu veikleikar Breiðabliks?
Ég myndi segja að það sé vanmatið, það hefur einkennt liðið að tapa fyrir svokölluðum “Slakari liðum” og því er leikurinn við Selfoss stórhættulegur. Liðið hefur átt séns á að komast í toppbaráttu og klúðrað því síðustu ár en í ár held ég að annað sé uppá tenningnum.
Hvernig lýst þér á nýju leikmennina sem þið fenguð fyrir tímabilið?
Guðmundur Pétursson sem keyptur var hefur ekki sýnt það sama og hann sýndi í fyrra, ég held að hann sé bara ekki í nægilega góðu formi en við vonum að það fari að koma. Jökull Elísabetarsson hefur verið frábær á miðjunni og með betri mönnum liðsins. Rafn Andri varð fyrir því óláni að slíta krossband rétt fyrir mót sem voru mikil vonbrigði enda afar klókur leikmaður.
Hvernig kemur Óli til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Hann mun að sjálfsögðu spila kerfið sem er í tísku i dag, 4-3-3. Ég myndi halda að það verði svona. Ingvar Kale, Arnór Sveinn, Kári (F), Elfar Freyr, Kristinn Jónsson, Jökull Elísabetarsson, Finnur Orri Margeirsson, Alfreð Finnbogason, Olgeir Sigurgeirsson, Guðmundur Pétursson, Kristinn Steindórsson.
Værir þú Óli Kristjáns hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?
Reyna að pressa Selfoss frá byrjun og koma inn marki snemma. Selfoss liðið er ekki með mikið sjálfstraust og mark á fyrstu tíu mínútunum gæti sett liðið gjörsamlega úr skorðum.
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Breiðablik, hver yrði fyrir valinu?
Það er klárt mál að ég myndi vilja fá Davíð Birgisson í raðir Breiðabliks, klókur leikmaður sem getur einnig skorað mörk.
Megum við ekki búast við góðri mætingu úr Kópavoginum á leikinn? Skjálfti var að búa sig undir öfluga stuðningssveit sem fylgir liðinu?.
Ég lofa stuði og stemmningu og baráttu innan vallar sem og í stúkunni. Verkefnið er erfitt í stúkunni en Blikar munu reyna að gera sitt besta og standa í Skjálfta
Hvernig fer og hverjir skora?
0-3 Alfreð Finnbogason 2, Guðmundur Pétursson.
Eitthvað að lokum?
Vonandi fer Selfoss að fara á sigurbraut eftir þennan leik og pressið á Gumma Ben að taka fram skóna.
Eins og við höfum áður komið inná þá er sannkallaður derby slagur á morgun og líklegt að þó nokkuð verði af Selfyssingum á leiknum í eyjum enda tímasetningin hentug. Til að kynda enn frekar undir leikinn settumvið okkur í samband við mikinn snilling úr eyjum, Gísla Foster sem fylgist vel með boltanum þar og hefur meðal annars verið í stjórn hjá ÍBV og lengi verið hrifinn af leikmönnum Selfoss liðsins eins og hann kemur inná…

Eyjar á morgun og það er ekki Þjóðhátíð!!!
Lífleg byrjun á mótinu hjá eyjamönnum og nokkur ágæt úrslit, hvernig er stemmingin í liðinu svona eftir fyrsta þriðjung mótsins?
Hún er fín, eftir því sem ég veit best. Gangurinn hefur verið góður. Ég átti svo sem aldrei von á að við yrðum í fallbaráttu, þannig séð, en byrjunin er betri en oftast miðað við síðustu ár, vonandi verður bara framhald þar á. Personulega finnst mér deildin ekki eins góð og hún hefur oft verið, var reyndar ekki góð í fyrra heldur. Deildin er jöfn sem gefur þessu ákveðið líf, en ekki gæði. Ekkert lið hefur stungið af. Ekkert lið komið í þær hremmingar að maður sé búinn að afskrifa það. Það kvartar enginn í Eyjum þessa dagana
Svekkjandi og líklega ósanngjarnt tap gegn vinum ykkar í Vesturbænum í síðasta leik, kemur það til með að bitna á Selfyssingum helduru?
Nei ekkert frekar. Ef að við, eða eitthvert annað lið svo sem, ætlar að ná árangri þá er það lykilatriði að ná góðum árangri á heimavelli. Þannig að það verður eins tekið á móti Selfyssingum og öðrum liðum. Menn ætla sér sigur og það verður ekkert gefið eftir til þess að ná því fram. Það verður örugglega heldur ekki til að letja menn til að gera vel að geta sett þetta upp sem Suðurlandsskjálfta hinn fyrri á þessu tímabili.
Milli hvaða leikmanna verður mest spennandi baráttan á vellinum?
Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Þetta verður barátta út um allan völl. Það lið sem vinnur miðsvæðið klárar þetta. Ekki rétt að nefna einstaka leikmenn.
Hver í ÍBV liðinu er líklegastur til að koma okkur á óvart?
Finnur Ólafsson – búinn að reynast mjög drjúgur og frábær fengur fyrir liðið. Er ekki viss um að allir hafi gert sér grein fyrir því hversu góður leikmaður hann í raun er.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Andra Ólafs. Hann verður alveg grillaður í svona styrjöldum, já og James Hurst
Hvar liggja helstu veikleikar ÍBV?
Má maður kjafta frá svoleiðis?
Hvernig lýst þér á nýju leikmennina sem þið eyjamenn fenguð fyrir tímabilið?
Tryggva Guðmunds þekkja allir. Hann hefur reyndar elst frá því að hann spilaði með okkur síðast en það er líf í honum og hann er okkur mikilvægur. Finnur hefur verið frábær að mínu mati eins og ég sagði áðan, bestu kaupin so far. Dennis er nettur leikmaður góður á boltann og til alls líklegur, vill skora (líka ágætur leikari sýndist mér í síðasta leik). Ásgeir Aron hefur mikið verið að koma inn af bekknum og staðið vel fyrir sínu og gæti þess vegna verið kominn í byrjunarliðið eftir smá tíma – góður hlekkur í keðjunni. James Hurst er náttúrulega einfaldlega of góður til að vera að spila í Pepsi-deildinni. Þegar maður sér leikmenn eins og hann, þá gerir maður sér enn betur grein fyrir því hvað íslenskir leikmenn eiga í raun langt land með að verða atvinnumenn á þokkalegum standard. Þekki það nú svo sem eftir störf mín í þessum geira að ofmat íslenskra leikmanna á eigið ágæti er oft all svakalegt. Ef strákar eins og James eru ekki til þess að þessir leikmenn opni augun þá lýst mér ekki á það!!!
Hvernig kemur Heimir til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Hann mun leggja áherslu á að menn sæki frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og ekkert annað en sigur kemur til greina.
Værir þú Heimir Hallgríms (sem þjálfari, ekki tannlæknir) hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?Veit ekki hvort ég sé hæfari í að leysa hann af sem þjálfari eða tannlæknir, sennilega sama klúðrið á báðum stöðum! En fyrir leik gegn liði úr “hverfinu” sem vill verða stærri en við þá er ekki margt sem þarf að segja – Kill’em all!!!!!
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í ÍBV, hver yrði fyrir valinu?
Guðmundur Þórarinsson já eða Jón Guðbrandsson
Gaman væri náttúrulega ef Ingó og Guðmundur myndu spila eitthvað með ÍBV eins og faðir þeirra gerði á sínum tíma. Hann var nú í ÍBV liðinu sem vann næst efstu deild 1976 undir stjórn George Skinner. Hann var í liðinu sem vann Selfoss 11-0 í deildinni það árið. Sem er stærsti deildarsigur ÍBV hingað til.
Svo er nú tengingin öflugri að því er mér finnst. Því ég hef fylgst með þeim bræðrum báðum leika sér í fótbolta á lóðinni bak við hús hjá ömmu sinni og afa hér í Eyjum í gegnum árin en þau heiðurshjón búa fyrir neðan mig í Fjólugötunni – Gott ef Ingó var ekki í tjaldi á lóðinni þar á Þjóðhátíðinni í fyrra, eða var það hitteðfyrra. Það eitt finnst mér segja að við eigum nú smá í þeim – he he – Svo vita kannski ekki allir af því að Ingó er nú búinn að slá rækilega í gegn í tónlistarheiminum, og verður á Þjóðhátíð í ár skilst mér. Frændi hans, Sigurjón bróðir Þórarins, samdi Þjóðhátíðarlagið þú veist hvað ég meina mær. Þar er Ingó sem sagt skrefi á eftir frænda en hef hann nú grunaðan um að stefna á það í framtíðnni. Svo fer þeim fjölgandi sem vilja að Ingó taki að sér brekkusönginn á Þjóðhátíðinni en þar er klárlega kominn tími á breytingar.
Annað sem að rétt er kannsk að benda á eru tengslin milli ÍBV og Selfoss réttara sagt áhuga okkar á leikmönnum Selfoss í gegnum tíðina – það er að segja þegar ég var að skipta mér eitthva af þessu – Viðar Örn, Ingi Rafn , Arilíus hafa allir verið með leikheimilid hjá okkur. Við reyndum við Ingó Þórarins á sínum tíma, en hann fór í Fram, sem og Ingþór ef að ég man rétt, en hann fór ekki fet. Jóhann markvörður var farinn líka undir smásjánni á sínum tíma en við vorum of svifaseinir í það skiptið. Svo það er í raun hægt að segja að við höfum horft svolítið til Selfoss í gegnum árin. Ingi Rafn vinur minn kom þó alveg á eigin forsendum hingað.
Megum við ekki búast við góðri mætingu heimamanna á leikinn, föstudagsleikur og svona?
Jújú hún ætti að verða þokkaleg. Reyndar er Shellmót í gangi á þessum degi og einhver kvöldvaka í gangi þar á sama tíma og leikurinn þannig að það verða ekki 1200 fótboltapeyjar við hliðarlínuna allan leikinn en þetta ætti að verða vel sótt athöfn….og vonandi fyrirtaks skemmtun í 90+ mínútur
Nú er Skjálfti ásamt fleiri Selfyssngum að spá í að skottast til eyja á leikinn, er ekki alveg líf þarna svona þegar það er ekki Þjóðhátíð? :-) og talandi um það eru við ekki að tala um, í alvöru núna stærstu Þjóðhátíð frá upphafi, með tilkomu nýrrar hafnar?
Ef ekkert verður fjörið þá held ég að Skjálfta menn séu þess alveg fullfærir um að skapa þá stemmningu er þeir vilja hafa. Er það ekki þeirra aðall ;-)
Þetta með Þjóðhátíðina á eftir að koma í ljós. Við ráðum við það að taka við ákveðnum fjölda manns. Við skulum bara vona að það fari ekki yfir það, þá gæti verið að það dragi úr fjörinu! Þessi höfn gæti aftur á móti haft þau áhrif að við fáum fleiri stuðningsmenn annarra liða hingað á völlinn á sumrin og það er gleðiefni.
Vil annars bara bjóða ykkur öll velkomin til Eyja, alltaf gaman að fá góða gesti.
Hvernig fer og hverjir skora?
Ákvað fyrr á þessu ári að spá aldrei ÍBV sigri í sumar. Spái því 1-2. En hvort það verður raunin er svo undir leikmönnum ykkar komið
Eins og sjá má í upphitun hér fyrir neðan er framundan stórleikur gegn strákunum hans Gulla Jóns, Valsmönnum.
Til að hita upp fyrir það tókum við aftur púslinn á einum helsta stuðningsmanni þeirra og hetju frá árunum er við lásum um ævintýri fyrstudeildarfjélagsins sáluga, Björgvini Brynjólfssyni.
Hann talar um Selfoss sem kókómjólkurdrengi og segir Skjálfta vera taktlausan! Eins kemur hann inn á að miðjumaðurinn þeirra borði morgunmat án sykurs sem er auðvitað bara fáránlegt!! (til hvers að fá sér morgunmat þá?) og bendir á að sama hvernig markmaðurinn þeirra spilar þá heitir hann alltaf Hans.
Gulli áttaði sig líklega þarna á að rauður er enganvegin vínrauður litur!
Valsmenn virðast koma þéttir til leiks eins og maður hafði reyndar trú á, hvernig er stemmingin í félaginu eftir fyrsta þriðjung mótsins?
Stemningin á Hlíðarenda er gríðarlega góð. Mun betri mæting á völlinn en í fyrra, góð stemning á pöllunum og við komnir með endurnýjað lið sem getur velgt hvaða klúbbi sem er undir uggum. Ef sigur vinnst á Selfossi og aðrir vellir skila hagstæðum úrslitum, þá erum við komnir á toppinn, sem er eitthvað sem er ofar væntingum flestra fyrir mót.
Milli hvaða leikmanna verður mest spennandi baráttan á vellinum?
Nú verð ég að viðurkenna að ég hef ekki séð leik með Kókómjólkurdrengjunum síðan í deildarbikarnum, og þar er lítið að marka liðsuppstillingar. Gaman verður að sjá hvernig Sævari Gísla gengur að hlaupa af sér hina eldfljótu Atla Svein og Reyni (hver er eiginlega samanlagður aldur þeirra þriggja?), einnig hver gefur sig í að reyna að leika framhjá hinum grjótharða Hauki Páli og hvernig Selfossvörninni gengur að díla við Danna Kóng frammi. Vandræði á öllum pörum vallarins semsagt.
Hver í Valsliðinu er líklegastur til að koma okkur á óvart?
Persónulega finnst mér Skagfirðingurinn Rúnar Már búinn að sigla svolítið undir radarnum í sumar, hann og Haukur Páll mynda gríðar skemmtilegt miðjupar. Þó er ólíklegt að hann verði í byrjunarliðinu í næsta leik þar sem hinir tveir holding miðjumennirnir eru að spila mjög vel. Ég segi því Greg Ross, hann er búinn að vera gegnheill í öllum leikjunum og búinn að spila allar varnarstöðurnar.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Haukur Páll étur sóknarmiðjumenn í morgunmat. Án sykurs.
Hvar liggja helstu veikleikar Valsara?
Hæg vörn og markmaður sem spilar annað hvort eins og Hans van Breukelen eða Hans Klaufi. Við vitum aldrei hvor mætir til leiks.
Hvernig lýst þér á nýju leikmennina sem Valur fékk fyrir tímabilið og er mikill söknuður af einhverjum þeirra sem fór?
Mér lýst gríðarlega vel á þá, títtnefndur Haukur Páll er búinn að vera jafnbesti leikmaður liðsins, Rúnar Már kóar vel með honum, Stefán hægri bak er búinn að spila vel og svo útlendingarnir líka. Jón Vilhelm er búinn að vera óheppinn með eymsli en á fullt inni. Allt í blússandi plús semsagt.
Ég sakna akkúrat ekkert þeirra sem fóru.
Hvernig kemur Gulli til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Martin hinn geðprúði Pedersen er í banni, svo Greg Ross verður í vinstri bak og Stefán í hægri. Sömu miðverðir og alltaf, Sigurbjörn og Haukur Páll á miðjunni með Jeffs fyrir framan sig. Arnar Sveinn og Balli á köntunum og König frammi.
Teygjanlegt 4-3-3 eins og í allan vetur, hefur virkað mjög vel.
Leikmenn eru hvattir til að halda sig þar sem þeir eru settir þar. Hægt er að lesa nánar um þessa prúðu pilta með því að smella hér.
Værir þú Gulli Jóns (aðrir hafa reynt), hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?
„Ágætu Valsmenn og aðrir Valsmenn. Í dag hefur okkar lið tækifæri til þess að komast á toppinn í Pepsídeildinni. Let‘s do it.
Passið ykkur á Pappírs-Pésanum Sævari Gísla, og ekki anda á hann inni í teig. Engar helvítis aukaspyrnur rétt fyrir utan teig heldur.
Haldið áfram að pakka andstæðingnum saman eins og í leikjunum á móti KR og Fylki, en ekki gera eins og í ÍBV leiknum eða á móti Blikum þar sem þið virtust álíka skapandi og Geir Haarde í kreppubyrjun.“
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Val, hver yrði fyrir valinu?
Var ekki markmaðurinn að spila leik lífs síns um daginn? Fínt að fá hann, og kannski Veðurgoðið til að lokka fleiri gellur á völlinn (ekki að núverandi leikmenn Vals séu ekki myndarlegir…)
Megum við ekki búast við góðri mætingu Valsmanna á leikinn og jafnvel smá sambatakti í stúkunni þó ekki væri nema til að spila undir hjá Skjálfta?
Mætingin í sumar er búin að vera góð, og ég á von á því sama áfram. Það er svosem ekki vitlaus hugmynd að spila undir hjá Skjálfta, enda altalað í deildinni að þar vanti allan takt J
Hvernig fer og hverjir skora?
Þetta mun fara þannig að Selfoss skorar mark, en Valur einu marki meira. Það mark kemur frá Arnari Geirssyni þar sem hann stingur sér innfyrir bakvörð gestanna á 81. mínútu.
Á fimmtudaginn förum við uppá Akranes og spilum við Skagamenn í bikarnum. Af því tilefni heyrðum við í hinum bráðhressa Bjarka Þór einum af forsprökkum stuðningsmannasveitar ÍA og heitasta stuðningsmann þeirra. Hann fer fögrum orðum um Selfoss og kemur t.a.m. inn á að vonandi vinnur ÍA óvænt! Það er eitthvað sem ekki hefur heyrst áður fyrir heimaleik hjá Skagamönnum gegn okkar mönnum!!
Hvernig er stemmingin í félaginu eftir fyrstu leiki?
Segir sig sjálft döpur en við sem erum sannir hættum aldrei að styðja okkar menn. Við skagamenn erum þéttir saman þegar illa gengur. Vonum að það haldi áfram og þetta fari að breytast.
Þoli ekki þessa 1.deild!
Milli hvaða leikmanna verður mest spennandi baráttan á vellinum?
Það tengist eitthvað Igor Pesic. sennilega hans og Gumma Veðurguðabróðir. Pesic reyndur nagli á móti Guðmundi sem ég er mjög hrifinn af!
Hver í ÍA-liðinu er líklegastur til að koma okkur á óvart?
Andri Adoplhsson og Ragnar Leósson eru leikmenn sem springa út á næstunni. spurning með Fimmtudaginn ?
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Okkar bestu menn eru aftarlega á vellinum Páll Gísli og Heimir Einarssonn.. en ég segi Raggi Le.
Hvar liggja helstu veikleikar ÍA ?
Það þarf að spila tvo hálfleiki til að vinna leiki og nýta færin… það er ekkert grín með það en þetta er að fara með liðið!
Hvað teluru vera helsta styrkleika Selfossliðsins ?
Sævar Þór Gíslason og þarna Jón Daði er mjög efnilegur og að sjálfsögðu veðurguðabróðirinn Guðmundur.. Hraðar sóknir og drápseðlið sem Selfoss er með er mér að skapi…
Það er flott að geta klárað leiki á jafn flottan hátt og í vesturbænum ;););)
Hvernig kemur Þórður til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Hann kemur til með að spila með sitt sterkasta lið vonandi.
Að mínu mati er það Páll Gísli í markinu sem er sennilega á góðum degi einn sá albesti á landinu í dag.
Bakverðir verða Aron Ýmir ungur drengur og gamlabrýnið Gutti Sveins
Miðverðir svo “landsliðsmaðurinn” Heimir Einarsson og hinn ungi Ísleifur Guðmundsson.
Fyrir framan þá verða svo að öllum líkindum Igor Pesic og Arnar Már sem eru að slípast saman.
Fyrir framan þá hinn bráðefnilegi Ragnar Leósson
Kanntar Andri Adoplhsson sem er einnig bráðefnilegur og minnir um margt á þann fornfræga leikmann Karl Þórðarson.
Hinum kanntinum verður Óli Valur sem er lofandi leikmaður, örvfættur snöggur og teknískur
Fremstur er svo hin óútreiknanlegi framherji Hjörtur Hjartar sem er ykkur Selfyssingum velkunnur .
Værir þú Þórður, hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?
´´Strákar þetta er leikurinn til að koma sér í gang og byrja sumarið. Ég veit að við getum unnið og þið vitið að þið getið unnið. Förum nú út og slátrum þessum helv.. leik” …. Spilum þennan leik með hjartanu.´´
Ef þú mættir fá tvo úr Selfoss í ÍA, hver yrði fyrir valinu?
Klárlega Sævar Gísla.. væri til í að losna við markmann hinsliðsins útaf í hverjum leik ;)
og Gummi Tóta einn sá efnilegasti á landinu
Hvernig fer og hverjir skora?
Ég held að þetta komi núna hjá okkur skagamönnum og við sigrum óvænt 2-1
Sævar skorar fyrir ykkur en hjá okkur mun Igor setja hann sem og Andri A.
Svo vona ég endilega að það megi koma upp góðu vinasambandi milli Selfoss og Skagans og liðin eigi eftir að há drengilega baráttu. Enda tengd lið. Sem heitur stuðningsmaður Skagans bíð ég Skjálftamenn og aðra Selfyssinga hjartanlega velkomna á skipaskaga og vonandi að það megi taka einsog einn, þið vitið fyrir leik :)
p.s Til hamingju með allt Selfyssingar og sér í lagi að hafa unnið KR. Unnuð á flottasta velli landsins í fyrra ( ÍA ) og næstflottasta vellinum í ár (KR) ;)
Gangi ykkur vel.
Annað kvöld fáum við Garðbæinga í heimsókn og verður það í fyrsta skipti sem við mætum Stjörnunni síðan þeir rétt mörðu okkur 6-1 með Hans Skelfing í essinu sínu. Nokkuð ljóst er að strákarnir verða alveg tilbúnir fyrir það verkefni en spurningin er hvort áhorfendur verði það líka? Skjálti kemur auðvitað og vill fá ALLA sem geta gefið frá sér hljóð og halda með Selfoss til að hvetja liðið með sér. En við heyrðum í Páló Stjörnumanni númer 1 til að athuga hvernig hljóðið er í Garðbæingum
Ágæt úrslit í síðasta leik og fín byrjun á mótinu, hvernig er stemmingin í félaginu eftir fyrstu leiki?
Stemmningin hjá Stjörnunni er fín. Allir hressir.
Milli hvaða leikmanna verður mest spennandi baráttan á vellinum?
Gæti trúað því að baráttan milli Danna Lax og Sævars Þórs verði skemmtileg sem og bakvarða okkar við kantmenn Selfyssinga og varnarmanna Selfyssinga við Halldór Orra og Steinþór.
Hver í Stjörnuliðinu er líklegastur til að koma okkur á óvart?
Ef Danni Lax skorar, þá kæmi það mér á óvart. Sömuleiðis ef Stjarnan heldur hreinu.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Halldór Orri og Steinþór
Hvar liggja helstu veikleikar Stjörnunnar?
Varnarleikurinn hefur ekki mjög oft verið að gera sig síðan við komumst upp.
Hvernig lýst þér á nýju leikmennina sem Stjarnan fékk fyrir tímabilið?
Dennis Danry og Marel hafa ekki heillað mig neitt rosalega, tel sömuleiðis að Atli Jó geti betur. Óli Finsen stóð sig vel gegn KR þann tíma sem hann var inná.
Hvernig kemur Bjarni til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
4-2-3-1, ef Haffi sem hefur verið í vinstri bakverði verður með og Marel heill þá verður Bjarni í markinu. Haffi, Tryggvi, Danni Lax og Baldvin Sturluson í vörninni, Atli Jó og Danry þar fyrir framan. Halldór Orri, Steinþór og Jói Lax fyrir aftan Marel.
Værir þú Bjarni Jó, hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?
Verjast og beita skyndisóknum, reyna að ná miðjunni. Sýna baráttu þar sem það er vitað að Selfoss leggur sig 100% í alla leiki.
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Stjörnuna, hver yrði fyrir valinu?
Gummi, bróðir veðurguðsins.
Megum við ekki búast við góðri mætingu úr Garðabænum austur fyrr fjall?
Ég býst við góðri mætingu úr Garðabæ á leikinn og vonast eftir því að það verði hress stemmning á leiknum. Það verða rútuferðir farnar á Selfoss.
Hvernig fer og hverjir skora?
Ég vonast eftir fyrsta útisigri Stjörnunnar á tímabilinu. 1:2. Jói Lax og Atli Jó fyrir Stjörnuna, Guðmundur bróðir veðurguðsins skorar fyrir Selfoss
P.S. – Eurovison líka á morgun
Þetta á auðvitað ekki að skipta máli en fyrir ykkur sem hafið áhyggjur af því að leikurinn er á sama tíma og Eurovision þá er rétt að benda á að Hera er síðust á svið annað kvöld sem er um 21:00 (strax eftir leik) þannig að maður sleppur við að hlusta á gaulið á undan henni og sér svona hvernig hún tryggir gott partý á laugardaginn í beinni útsendingu.
Fyrir þá sem eru Eurovison nördar (hver er það ekki?) þá þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að þetta gangi ekki upp á morgun, undirritaður er fyrir löngu búinn að fara yfir þetta söng og spil dæmi með henni.
Þannig að allir á völlinn.
Babú
Eins og fram kemur í upphitun hér fyrir neðan er næsti leikur heimaleikur gegn liðinu sem við þekkjum líklega hvað best, Haukum. Við slógum því að sjálfsögðu aftur á þráðinn til eins af innstu koppunum í því ágæta félagi, Arnars Daða Arnarssonar sem m.a. hefur verið að stýra Hersveitinni (þeirra Skjálfti) og könnuðum stemminguna í Haukum fyrir leik.
Sæll Arnar, ótrúlega erfitt prógramm í byrjun hjá Haukum, hvernig er stemmingin í félaginu eftir fyrstu tvo leikina?
Hárrétt, það má samt ekki gleyma því að tímabilið í heild sinni mun vera mjög erfitt fyrir Hauka og ég sem stuðningsmaður tel hvern og einn leik vera „bikarleik“ út á fyrir sig. Þar sem liðið hefur engu að tapa. Það var auðvitað þvílík spenna fyrir KR-leikinn hjá félaginu og mikil gleði eftir þann leik. Fyrir FH-leikinn var mikil tilhlökkun en menn voru mjög spældir eftir leik, enda teljum við að, að minnsta kosti einu stigi hafi verið rænt úr höndum okkar í þeim leik. En þetta var samt sem áður mjög jákvætt og þó við höfðum tapað síðasta leik var Haukafólk heilt yfir mjög ánægð með leikinn.
Milli hvaða leikmanna verður mest spennandi baráttan á vellinum?
Ætli það verði ekki á milli sóknarmanna liðana gegn markvörðunum. Arnar Gunnlaugs. Vs. Jóhann Ólafur og svo reynsluboltarnir Sævar Þór vs. Daði Lár. Sem hefur reynst okkur Haukamönnum gríðarlega vel.
Svo verður líka skemmtilegt að sjá jafnaldra, landsliðsmenn frá sitthvoru landinu eigast við. Þ.e.a.s. Jón Daða og Guðmunds Þórarins. Gegn hinum breska Sam Mantom. Það verður skemmtilegt að meta þá saman.
Hver í Hauka-liðinu er líklegastur til að koma okkur á óvart?
Ég vona að allt liðið muni koma ykkur á óvart með góðri spilamennsku og það mun líklega gera það, þ.e.a.s. ef þið Selfyssingar hafi látið þessa sparksérfræðinga heilaþvo ykkur, sem ég nú vona ekki.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Ég ætla vona að þið munið þurfa að óttast allt liðið. En eigum við ekki að hafa þetta klassískt og segja ,,Passið ykkur á Gunnlaugssyni“.
Hvar liggja helstu veikleikar Hauka?
Í þessum fyrstu tveimur leikjum eru einu veikleikarnir sem ég hef séð er spennan og stressið. Annars hafa veikleikarnir verið fáir.
Hvernig lýst þér á nýju leikmennina sem Haukar fengu fyrir tímabilið?
Daði Lárus. og Arnar Gunnlaugs. Búnir að reynast okkur mjög vel. Guðmundur Mete varð fyrir því óláni að meiðast fyrir síðasta leik en hann virkaði mjög góður gegn KR. Kristján Ómar sem lítið hefur verið talað um hefur komið inn í liðið með Haukahjartað sitt og berst um hvern einasta bolta og er heilt yfir líklega búinn að vera besti maður liðsins í þessum tveimur leikjum. Svo vona ég að Sam Mantom og Kristján Óli eigi nokkuð inni. Daníel Einars. sem kom svo óvænt aftur heim frá ÍH stuttu fyrir mót átti svo góða sjö-u gegn FH.
Hvernig kemur Andri til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Ég held að hann breyti mjög litlu frá síðasta leik, nema meiðsli komi upp. Liðið var að spila mjög vel í síðasta leik svo ég býst bara við sama byrjunarliðinu og gegn FH.
Værir þú Andri Marteins, hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?
Sú ræða fær að bíða betri tíma.
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Hauka, hver yrði fyrir valinu?
Klárt mál, Guðmundur Þórarinsson. Það vantar betri söngfugl í þetta lið, Ásgeir Ingólfs. Og Úlfar Hrafn hafa eitthvað verið að reyna…
Megum við ekki búast við góðri mætingu frá stuðningsmönnum Hauka austur fyrr fjall?
Það myndi ég nú halda, en það verður hreinlega bara að koma í ljós. Það er allavegana boðið upp á rútuferðir frá Ásvöllum. En þetta verður annað prófið, stuðningsmenn Hauka stóðust fyrsta prófið þ.e. gegn stóruliðinu (KR, FH) … en hvort stuðningsmenn fylgi Haukaliðinu gegn öllum liðunum verður að koma í ljós. Það hlýtur bara að vera.
Hvernig fer og hverjir skora?
Ég ætla ekki að taka KR taktíkina og spá mínum mönnum 9-0 sigri og eftir leik tala um að reka Sir. Andra Ferguson. En ég ætla setja pressu á að Arnar Gunnlaugsson og Guðjón Pétur Lýðsson skori í þessum leik. Það gengur ekki að varamaður og varnarmaður séu markahæstumenn liðsins í sumar.
Eins og fram kemur í upphitun hér fyrir neðan er næsti leikur útileikur gegn sjálfum KR-ingum í Frostaskjólinu. Við máttum því til með að heyra aftur í helsta spekingi þeirra, sjálfum formanninum Kidda Kjærnested. Hann vildi ekki gefa neitt um hugsanlega veikleika KR-inga, kæmi með hálfleiksræðu frá Hollywood og hefði ekkert á móti því að fá Tótasyni í KR af “augljósum” ástæðum!
Fyrsti leikur að baki og nokkuð svekkjandi fyrir KR, hvernig er stemmingin núna?
Stemmningin er alltaf góð. Vissulega þá stefndi allt í sigur gegn Haukum. Við yfirspiluðum þá í 70 mínútur en vorum ekki nógu skynsamir undir lokin og sváfum illilega á verðinum, tvívegis. Úrslitin vonbrigði en ekki heimsendir og tími til að einbeita sér að næsta leik. Við hlökkum til að fá Selfoss í heimsókn og leikurinn verður erfiður. Ég get lofað öllum að KR-liðið verður á fullu í 90 mínútur á sunnudaginn !
Á milli hvaða leikmanna býstu við að öflugasta einvígið verði?
Gamla klysjan, barátta á miðsvæðinu þar sem við vonandi náum yfirhöndinni.
Hver í KR-liðinu er líklegastur til að koma okkur á óvart?
Ég held það verði enginn sérstakur. Gummi er væntanlega búinn að fara vel yfir okkar styrkleika. Spurning hvort að strákarnir hans nái svo að fylgja fyrirmælum hans eftir þegar komið verður inná stóra sviðið.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Alltaf erfitt að tala um eigið ágæti og mun auðveldara ad telja upp thá sem mínir menn verða að hafa góðar gætur á. Vona að þessari spurningu getið þið sjálfir velt fyrir ykkur að leik loknum. Við hefðum átt að óttast…
Hvar liggja helstu veikleikar KR?
Verðið að finna út úr því sjálfir, sorry.
Hvernig kemur Logi til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Hann mun leggja áherslu á að menn verði á tánum allan tímann. Reikna með að hann stilli upp 4-4-2 eins og við höfum spilað í allan vetur.
Værir þú Logi Ólafs, hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma?
“Strákar, það eru forréttindi að spila fyrir KR og okkar frábæru stuðningsmenn. Ég vil 100% einbeitningu í 90 mínútur frá öllum sem taka þátt í leiknum. 3 stig í boði, vinsmalegast náið í þau, koma svo – berjast“. Held að thessi ræða myndi steinliggja. Lágstemmdur fiðluhljómur í bakgrunni myndi negla þetta.
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í KR, hver yrði fyrir valinu?
Ætli maður tæki ekki bara bræðurna af augljósum ástæðum.
Núna er oftast besta mætingin á KR-völllinn, verður leikur gegn Selfoss nokkur undanteking þar á?
Vonandi ekki. Get ekki ímyndað mér annað en að Selfyssingar fjölmenni. Okkar stuðningsmenn verða á sínum stað. Ávísun á skemmtun.
Hvernig fer og hverjir skora?
1-0 fyrir KR, Baldur Sigurðsson með markið í uppbótartíma í fyrri hálfleik.

Frostaskjólið
Fyrir nokkrum vikum tókum við skemmtilegt spjall við einn speking frá hverju liði í Pepsideildinni og fengum að heyra hans álit á sýnu liði jafnt sem okkar. Eins var stefnt á að heyra aftur í þessum köppum fyrir leiki liðs þeirra gegn Selfoss í sumar. Nú er alveg að koma að fyrsta leik og því heyrðum við í Kristjáni Gylfa hjá Fylkismenn.is og tókum stöðuna á þeim í Árbænum:
Hvernig leggst þessi leikur í stuðningsmenn Fylkis? Hann leggst mjög vel í okkur eins og allir aðrir leikir, enda enginn ástæða til annars eftir góðan árangur í fyrra. Það verður hrikalega gaman að koma á Selfoss eins og alltaf þó að leikurinn sé á gervigrasi.
Hvar á vellinum verður mest spennandi baráttan? Allstaðar, kannski mest á miðjunni, er ekki baráttan yfirleitt skemmtilegust þar.
Hver í Fylkisliðinu er líklegastur til að koma okkur á óvart? Ef að Ásgeir Börkur skorar þá kemur hann okkur öllum á óvart :)
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)? Ég vil meina að Addi (Andrés Már Jóhannnesson) sé langbesti bakvörður deildarinnar, hann er frábær bæði varnar og sóknarlega. Framlínan okkar er svakalega hröð með þá Alla, Gústa og Inga og ófáar varnir sem lenda í vandræðum gegn þeim.
Helstu veikleikar Fylkis? Sóknarleikurinn hefur verið helsti höfuðverkur okkar á leiktíðinni því ekki hefur tekist að skora nógu mörg mörk. Það kemur m.a. til að lykilmenn hafa verið meiddir á undirbúningstímabilinu. Þá hefur staðan fremst á miðjunni verið vandamál eftir að Dóri Hilmis fór.
Hvernig kemur Óli Þórðar til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið)? Okkar sterkasta lið sem völ er á myndi ég segja að væri svona:
Værir þú Óli Þórðar, hvernig myndi ræðan í búningsklefanum fyrir leik hljóma? Hehe skemmtileg spurning. Vera tilbúinn í 110% baráttu og ekki vera með neinn helvítis aumingjaskap. Alls ekki vanmeta Selfoss liðið því þeir verða tilbúnir í að fórna lífi sínu í leikinn. Svo væri ég með ákveðna taktík klára þar sem ég tel mig þekkja veikleika Selfoss liðsins en hana ætla ég þó ekki að gefa upp hér.
Ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Fylki, hver yrði fyrir valinu? Agnar Bragi Magnússon þar sem hann er uppalinn Fylkismaður og stórefnilegur.
Megum við ekki búast við slatta af liði úr Árbænum á þennan leik? Við skulum vona það og hér með hvet ég alla sem þetta lesa hvort sem þeir halda með Selfossi eða Fylki að skella sér á þennan leik. Ég reikna með að við verðum með rútuferðir þannig að við hljótum að geta fyllt allavega 1-2 rútur og svo kemur alltaf fullt af einhverju öðru liði.
Hvernig fer og hverjir skora? 1-2. Bragi skorar fyrir Selfoss en Ingimundur og Albert fyrir Fylki.
Undanfarnar vikur höfum við verið að spjalla örstutt við einn fulltrúa frá öllum liðunum sem spila með okkur í Pepsi deildinni í sumar til að kanna púlsinn á andstæðingunum svona rétt fyrir mót, þekkingu þeirra á Selfoss og auðvitað fá þá til að spá í spilin. Þetta virkar þannig að grafið var upp einhverja hetju sem er vel að sér um sitt lið til að svara fyrir sína menn. Stefnan er síðan að heyra aftur í þessum sömu mönnum fyrir leiki liðanna í deildinni í sumar.
Núna höfum við spjallað við fulltrúa frá öllum liðunum í deildinni að undanskyldu einu, KR. Það er ekki á neinn hallað að með því að geyma KR þar til síðast vorum við að geyma það besta þar til síðast enda er fulltrúi KR-inga sá eini sem mögulega gat komið til greina, sjálfur Kristinn Kjærnested. Hann er auðvitað fyrrum leikmaður Selfoss, núverandi formaður KR, hirðveislustjóri Selfyssinga og auðvitað heitasti aðdáandi Gísla Björns norðan alpafjalla.
Heill og sæll Kiddi, hvernig lýst þér á komandi sumar hjá þínum mönnum, mikið um breytingar frá síðasta ári?
Alveg ljómandi vel. Ég er alltaf bjartsýnn fyrir hönd minna manna, það breytist ekkert. Það hafa vissulega orðið töluverðar breytingar á okkar leikmannahóp. Gummi vinur minn Ben tók uppá því að stökkva í peningahylinn fyrir austan fjall og munum við sakna hans en þið að sama skapi njóta starfskrafta hans, jafnt innan vallar sem utan. Atli Jóhanns, Prinsinn, Gummi rauði, Jónas Guðni, Stefán Logi, Andre Hansen og Ásgeir Örn léku allir á síðustu leiktíð en verða ekki með okkur í sumar. Þá höfum við lánað Dabba Birgis til ykkar og Einar Bjarna í Gróttu en þeir fóru mikinn með 2. flokki á síðustu leiktíð. Þeir munu fá dýrmæta reynslu og koma sterkari til baka, ég er sannfærður um það.
Við höfum fengið Þórð frá Fjölni á leigusamningi og þá hafa nokkrir KR-ingar snúið heim, Kjartan Henry, Viktor Bjarki og Gaui Baldvins. Guðmundur Reynir sem kom til okkar að láni er tímabilið var byrjað í fyrra verður aftur með okkur, en nú frá byrjun. Þetta er strákar sem við þekkjum vel og erum afar ánægðir með hafa a.m.k. í sumar og á komandi árum. Það gleymist gjarnan í umræðunni hverjir eru farnir og einblínt er á þá sem eru komnir. Við höfum að mínu mati verið klókir í samningaviðræðunum við GAIS og í öðrum samningum en gerum okkur grein fyrir því að umræðan mun alltaf verða til staðar hvaðan peningarnir koma. Það vitum við bara í stjórninni en það segir sig sjálft að fjármagn til íþróttafélaganna er miklu minna en áður fyrr. Þrír af fimm nýju leikmönnunum okkar koma á lánssamningi. Hinir tveir komu á frjálsri sölu.
Ég tel lið okkar vera þéttara og sterkara en í fyrra en hvort það nægi til titla kemur í ljós í septemberlok. Maður er búinn að vera í stjórnarstörfum í um 10 ár og við KR-ingar höfum oft áður verið sterkir á pappírunum en gert í brækurnar þegar á hólminn hefur verið komið. Það virðast allir fá aukinn kraft gegn okkur KR-ingum og það er eitthvað sem mínir menn verða að átta sig á. Jafn mikið og ég elska KR þá geri ég mér grein fyrir því að það hata okkur margir. Þannig er það bara og gerir fótboltann að skemmtilegustu íþrótt í heimi. Ég ætla hinsvegar mínum mönnum það í sumar að þeir geri verulega sterkt tilkall til að velta FH-ingum af stalli sem og að halda öðrum sterkum liðum neðar í töflunni.
Hvernig myndir þú lýsa Gumma Ben og hvernig heldur þú að hann komi til með að standa sig sem þjálfari?
Hann er svona ca. 160 cm (max) með yfirburðar leikskilning og er toppdrengur. Ég held að í gegnum tíðina séu fáir leikmenn sem mér hefur þótt jafn vænt um eins og hann. Þrálát meiðsl hans hafa verið erfið í mörg ár en hann kemur alltaf sterkur til baka og ég lagði hart að honum að koma aftur í KR sem og hann gerði. Nærvera hans er ávallt góð og frammistaðan var eins og ég reiknaði með, óaðfinnanleg. Án gríns þá get ég alveg viðurkennt að ég hefði gjarnan viljað láta Gumma hefja þjálfaraferilinn í Vesturbænum og þá í yngri flokkunum, við ræddum þann möguleika. Sé hinsvegar einhver maður í það að stökkva beint út í djúpu laugina þá er það umræddur Gummi Ben. Ég er sannfærður að hann muni standa sig vel hjá ykkur og óska honum og ykkur alls hins besta í baráttunni þó æskilegt væri að hann og þið gerðuð uppá bak gegn okkur KR-ingum svona ca. tvisvar sinnum í sumar.
Hverja telur þú möguleika Selfossliðsins vera á komandi ári?
Ég tel að tímabilið verði ykkur mjög erfitt. Það hefur lítið bæst í hópinn enda markaðurinn hér heima hálf frosinn og niðurnegldur. Selfossliðið á hinsvegar einn mann inni sem ekkert hefur leikið á undirbúningstímabilinu og ef hann næst á flot og kemst í liðið þá haldið þið ykkur uppi. Þetta er algjört lykilatriði að mínu mati. Ég er ekki að tala um Gísla Bjöss því ég veit að þegar hann les þetta þá heldur hann að ég sé að meina sig. Ég á að sjálfsögðu við Gumma Ben. Það þarf ekki að koma því áleiðis en ég vonast að sjálfsögðu eftir því að Selfoss haldi sér í deildinni og ætla að spá þeim 10. sætinu, Sævar skorar markið mikilvæga í lokaumferðinni og tilkynnir á lokahófinu um kvöldið að hann sé hættur í sjöunda sinn ! Selfossbær er líka þekktur fyrir skemmtilegt fólk og mikla stemmningu, það mun telja drjúgt að mínu mati að þið getið ekki annað en skemmt ykkur og hafið engu að tapa. Vonandi smitar það inná völlinn.
Þekkir þú eitthvað til leikmanna Selfoss og liðsins að undanskyldum Sævari Gísla?
Maður kannast við nokkra en þekkir þá fáa. Litli Jón lék með mér á sínum tíma, ég kann öll lögin hans Ingó en hann er í miklu uppáhaldi hjá strákunum mínum, bróðir hans er afar efnilegur og er leikmaður sem allir í boltanum horfa til. Allir þekkja svo Sævar Gísla sem vonandi verður ykkur drjúgur. Mér finnst Jón Guðbrands afar traustur leikmaður og svo hefur ungur strákur verið í framlínunni í vetur sem ég bara man ekki hvað heitir sem mér finnst mjög efnilegur (insk., Máser eða Jón Daði).
Þá þekkir maður að sjálfsögðu vel til Dabba Birgis sem nóta bene konan mín skeindi reglulega á barnaheimilinu þegar hann var minni, eða öllu heldur yngri. Auðvitað er svo sykurpúðinn Henning þarna líka sem er hinn ljúfasti drengur.

Skjálfti þarf að hafa sig alla við í sumar ef þeir ætla í KR-inga, því Miðjan syngur allann leikinn, sama hver staðan er.
Ef svo, sérðu fyrir þér að upp sé að koma einhver upprennandi Gísli Bjöss í liðinu?
Nei ég tel það afar ólíklegt að svo feitur leikstjórnandi komi aftur fram í nútímafótbolta. Gísli Bjöss er langbesti miðjumaður sem ég hef nokkurn tímann leikið með. Hann bjó yfir stöðugleika innan vallar sem utan og hafði þennan sjálfsaga. Maður hændist strax að kappanum á sínum tíma en hann hætti alltof snemma að mínu mati. Ég gat ekki betur séð um daginn en að Gísli hefði lagt töluvert af og ef hann á ennþá magabeltið og íþróttabrjóstahaldarann þá væri óvitlaust hjá Gumma og Omma að hafa hann til taks á bekknum. Það myndi þó ekki ganga í þeim tilfellum sem leikið er á laugar eða sunnudögum. Gísli var sér á báti, algjör orginal og þarafleiðandi sé ég ekki álíka talent í bráð koma fram á sjónarsviðið, hvorki á Selfossi frekar en í gervallri Evrópu.

Hress og kátur Gísli Bjöss ásamt félögum sínum þeim Ævari Österby og Einari Bárða í Inghól í hittifyrra - Mynd Einar Bárða
Hefur þú eitthvað farið á Selfossleik undanfarin ár?
Ég fór og sá leikinn í Víkinni síðasta sumar. Sat að sjálfsögðu með Gísla (réttu megin) og fögnuðum vel sigurmarkinu undir lokin. Annars verið alltof latur og fengið að heyra það frá Leó vini mínum en hef getað borið því við að leikir í neðri deildunum heilli mann ekki. Þar sem að þið eruð nú komnir í Premíuna þá er ég viss um að skella mér á nokkra leiki í sumar, hvort heldur fyrir austan eða í bænum.
Hver eru fyrstu 3 atriðin sem þér dettur í hug þegar minnst er á Selfoss?
Álagning, Inghóll og milljón dollara maðurinn.
Verður maður ekki að útskýra þetta aðeins. Álagningin í herrafataverslun Baron á sér enga hliðstæðu. Hún er í engum takti við opnunartímann. Inghóll var á sínum tíma afar viðkunnalegur staður, þar leið manni jafnvel og inná vellinum. Ófá Sálarböllin gleymast seint. Leó Árnason, Selfoss ljónið er ávallt höfðingi heim að sækja og það toppar ekkert að komast í magnaða Sushi veislu hjá honum og hans hundtryggu eiginkonu. Það er væntanlega búið að skipta út Lambrusco rauðvíninu á Kaffi Krús eftir að Leó tók við veitingataumnum. Ef ég hefði fengið að bæta við fjórða atriðinum þá hefði ég sagt “rakarafjölskyldan”.
Eins og staðan er núna, hvernig spáir þú að deildin muni fara í sumar, sigurvegari, efstu lið, spútnik og fall?
Ég er sannfærður um að mótið verði afar spennandi. FH-ingar verða mjög sterkir, keyptu tvo samningsbundna leikmenn, þá Gunnleif og Gunnar Fjölnir á drjúgan skildinginn. Willum er alltaf skeinuhættur og þá sérstaklega á fyrsta og öðru tímabili, sagan sýnir það einfaldlega. Keflvíkingar verða við toppinn. Þá reikna ég einnig með að Valsmenn og Blikar verði í baráttunni. Þetta eru þau lið ásamt KR sem ég tel að hafi raunhæfa möguleika á að vinna mótið. Það er alltaf erfitt að spá um spútnikliðið en ég vona að það verði Selfoss. Fylkir og Stjarnan sem áttu gott tímabil í fyrra gætu dalað og sogast í fallbaráttuna en ég spái því að Haukar, Selfoss, Fram og ÍBV muni berjast um fallið. Grindvíkingar verða seigir og gætu orðið spútniklið sumarsins. Annars fer þetta oftast á allt annan veg en maður vonar og heldur. Heilt yfir þá finnst mér samt vera mörg lið sem gætu toppað og líka floppað. Þar sem ég hef hinsvegar undantekningarlaust rangt fyrir mér var setti ég ekkert allt of mikinn þunga í svarið við spurningunni.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
Ég vona að mótið verði skemmtilegt, ykkur gangi allt í haginn og hlakka til að fá gömlu félagana (Gísla, Leó, Elvar, Tomma, Sigga Fannar, Hjalta Tobba, Stebba og fleiri heiðursmenn) í heimsókn á KR-völlinn í 2. umferð. Miðað við upptalninguna þá sýnist mér að maður verði að skipta út Melabúðinni fyrir Vínbúðina á Eiðistorgi þegar þessir þungaviktarmenn koma í hús á KR-vellinum. Þá er ekki úr vegi svona rétt í lokin að hæla þér fyrir flotta heimasíðu Einar Babú. Menn sem hafa slíkan metnað og framtakssemi fyrir félögin eru einfaldlega “priceless” og vandfundnir. Sem betur fer þá eigum við KR-ingar einn slíkann, hann Óla Brynjar.
Séuð þið velkomnir í Premíuna, Selfyssingar.
Kv, Kiddi
Þökkum heiðursmanninum Kidda Kjærnested kærlega fyrir að slá botninn í þessa umferð af spekingum andstæðinganna. Nú höfum við talað við fulltrúa allra hinna liðanna í deildinni og þökkum þessum heiðursmönnum kærlega fyrir. Á næstunni sjóðum við þetta saman í einn pistil og setjum hingað á Orgið.
Næst virkjum við þennan dagskrárlið í einhverri mynd fyrir leiki liðanna í sumar þegar við tölum við sömu menn eða einhverja aðra stuðningsmenn liðanna fyrir leik þeirra gegn Selfoss.
Babú

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



