| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Það var þó nokkuð um að vera út á velli í dag og raunar verður það þannig næstu daga. Eins og við auglýstum um daginn var haldin upphitun fyrir sumarið á Selfossvelli, þar gafst aðdáendum tækifæri til að hlýða á þjálfarana hjá mfl. karla og kvenna, sjá verðlaunaafhendingu í tippleiknum sem verið hefur í gangi í allann vetur og að auki var Hjörvar Hafliðason sem slegið hefur í gegn sem sparkspekingur á RÚV fenginn til að halda smá tölu og svara spurningum gesta. Þeir Tómas Þóroddson, Leifur Leifsson 2 og sonur Jóa Bjarna sáu síðan um að grilla ofan í mannskapinn ásamt fleirum og Agnes Guðna og co hrúgaði mönnum í stuðningsmannaklúbbinn.
Á sama tíma var síðan í gangi æfingaleikur hjá mfl. kvenna sem fengu úrvalsdeildarlið KR í heimsókn (og lutu í gervigras 1-4 þar).
Á mánudaginn er síðan óskað eftir aðstoð allra sjálfboðaliða sem vettlingi geta valdið til að klára að gera völlinn klárann fyrir leik, er þá aðallega verið að tala um að bora upp auglýsingaskilti og slíkt og því frábært ef fólk gæti komið með borvélar, bita og góða skapið. Bara upp úr klukkan 17:00 eða svo (eða hvenær sem hver og einn getur).
Daginn eftir er síðan fyrsti leikur tímabilsins.
…
En til að útskýra daginn betur höfum við stolið helling af myndum frá heiðursmanninum Hermanni Ólafssyni og látum þær að mestu sjá um að tala okkar máli:
Meistaraflokkur karla hefur sýnt okkur sem óskað er eftir á mánudaginn gott fordæmi en þeir tóku góða rassíu á vellinum undir stjórn Sveinbjörns Más og settu m.a. upp girðingu í kringum völlinn. (Mikið erfiðara að svindla sér inn í ár btw ;)
Þarna má sjá Tomma Þórodds, Leif Leifs 2 (eða Aron Val) og þennan sem er svo illa klæddur að hann fær ekki mention hér. Þeir sáu um að grilla ofan í mannskapinn að miklum myndarskap ásamt fleira fólki sem fær ekki heldur mention hér þar sem Hemmi tók ekki mynd af þeim ;)

Gummi Ben fór létt yfir málin hjá mfl. karla og hvernig honum litist á sumarið. - Mynd Hermann Ólafsson
Gummi Ben fór í rólegheitnum yfir sumarið framundan og standið á leikmönnum fyrir leikinn á þriðjudaginn. Hann gaf lítið fyrir hrakspár spekinga um að sumarið yrði okkur Selfyssingum erfitt og svaraði að lokum spurningum gesta á svæðinu.
Hjörvar Hafliðason var hress og útskýrði m.a. afhverju spekingarnir á RÚV spáðu liðinu 11.sæti, fór yfir hvaða lið gætu verið í baráttu við Selfoss að hans mati og svaraði síðan spurningum. Núna er það ósk allra að Hjörvari verði boðið í Herrakvöldið í haust þar sem hrakspá sumarsins verður rekinn ofan í hann ;)
Gissur var fundarstjóri og sem yfirmaður tippleiksins fór hann einnig yfir þann skemmtilega leik og krýndi sigurvegarana í hverjum flokki. Þar sem Babú Gonsalez (Sævar Gísla) sigraði ekki sökum dómaraskandals skiptir ekki máli hver vann og því enginn mynd af sigurvegurunum hér heldur bara honum Ellerti sem fékk viðurkenningu og utanlandsferð (fyrir einn til Vestmannaeyja) fyrir að fá 13 rétta á einum seðlinum í vetur. ….(ok Selhús vann en mætti ekki).

Helena og stelpurnar í mfl. kvk fóru yfir markmið sumarsins hjá sér eftir leik - Mynd Hermann Ólafsson
Eftir leikinn hjá mfl. kvenna fékk Helena orðið og fór yfir sumarið hjá stelpunum og svaraði spurningum.
Það er óneitanlega svolítið gaman að sjá Selfoss með í allri umfjöllun um deild þeirra bestu…og maður var bara rétt farinn að venjast því að vera með lið í 1.deild sem er svo mikið mikið stærra dæmi en 2.deild :-)
Að lokum megum við til með að sýna þessa mynd frá leik KFR og Árborgar sem framfór á Hvolsvelli í dag. Í KFR eru nokkrir leikmenn á láni frá Selfoss og stóðu þeir sig vel gegn Árborg (sem auðvitað er líka frá Selfossi) í 5-3 sigri. En hér á þessari síðu er þessi leikur svosem aukaatriði, en sjáiði þessa snilldarmynd, óhætt að segja að þessi leikur var spilaður við þó nokkuð einstakar aðstæður og ekki að undra að KFR sé sjóðandi heitt þessa dagana.
Gummi Kalli og Sunnleska.is eiga líklega myndaseríu frá þessum leik og með eldgosið í baksýn, en þessari mynd er þó stolið frá heimamanninum Finni Bjarka sem ef ég man rétt er ættaður úr FSu og er mágur Gumma Á fyrirliða Árborgar.
Fylgist annar með hér á Selfoss.org því líklega komum við til með að verða eitthvað lífleg hér fram að fyrsta leik.
Babú
Það virðist vera raunin ansi víða að Selfyssingum sé spáð 11.sæti í sumar. Fáir hafa trú á nýliðunum því fyrir neðan okkur eru Haukar sem eins og vitað er fylgja okkur sem skugginn sama í hvaða deild við erum að spila.
Fótbolti.net kom með flotta umfjöllun um daginn sem við fórum yfir.
RÚV var með flottann þátt í gær þar sem Hjössi Hjass, Hjörvar Hafliða og Andri Sigþórs settu okkur í 11.sætið.
Við komum sjálfir með okkar spá um daginn.
Svo eru hinar ýmsu stuðningsmannasíður að setja inn sína spádóma og ætla ég að hjóla aðeins í spánna hjá fyrrverandi vinum okkar á hinum stórgóða vef Fylkismenn.is sem spá okkur alla leið í 11.sætið, voða frumlegt.
Þar voru í dómnefnd þrír frægir Fylkismenn og einn sem enginn hefur nokkurntíma heyrt um eða þeir Kristján Gylfi Guðmundsson sem var hérna um daginn sem spekingur andstæðinganna (verður aftur í þessari viku), Sigurgeir Smári Jónsson sem enginn hefur nokkurntíma heyrt um, Sverrir Rafn Sigmundsson eða Sverkan sem er týpan sem gæti verið afkvæmi Óla Þórða og Ásgeirs Barkar miðað við kassann og Valur Ingi Johansen eða markmaðurinn sem kenndi honum Jóa markmanni allt sem hann lærði í þeirri list er hann var í bænum.

Valur og Jói í bænum ásamt fleirum.
Sverkan skrifar um Selfoss fyrir hönd hópsins og metur liðið svona:
Styrkleikar
Með svakalega sterka liðsheild, mjög mikil vinnusemi í leikmönnum þess og tilbúnir að bakka hvorn annan upp fram að seinasta blóðdropa. Hafa skipt um þjálfara, Gummi Ben er mættur til Selfoss til að þreyta frumraun sína sem þjálfari og efast ég ekki um hæfileika Gumma sem þjálfara, ef hann verður spilandi í sumar fyrir aftan Sævar þá munnu mörkinn koma um leið. Einnig má ekki gleyma varnarsinnuðu leikmönnum, Jóhann Ólafur markvörður hefur verið að spila mjög vel á seinasta ári hjá þeim sem og Agnar Bragi miðvörður þess. Síðast en ekki síst er það varnartengiliðurinn Einar Otto sem flestir framliggjandi miðjumenn verða að passa sig á í sumar, hann er einstaklega lunkinn við að brjóta niður sóknir andstæðinga og heyrði ég í sumar að honum væri líkt við dráttavél, þar sem hann er víst bóndi.
Stórgaman að sjá að Ottó er víst bóndi enda er bíltúr með afa sínum í vinnunni líklega það næsta sem hann hefur komist sveit :)
Veikleikar
Versti óvinur Selfysinga eru þeir sjálfir, þeir geta ekki tekið neinu sem gefnu í efstu deild. Ef þeir berjast ekki og koma Sævari í gang þá verða þeir neðarlega í ár. Einnig finnst mér vanta uppá breidd og reynslu hjá ungu og skemmtilegu liði Selfyssinga og gæti það orði þeim að falli í sumar.
Mikilvægasti leikmaðurinn
Sævar Þór Gíslason
Hann er óumdeilanlega kóngurinn á Selfossi, ég var nú svo heppinn að vera viðstaddur þegar Selfoss tryggði sig upp í efstu deild í fyrsta skipti seinasta haust og sjá Sævar spila toppfótbolta sem hann er þekktur fyrir. Hann er hraður (þrátt fyrir aldur og fyrri störf), mjög lunkinn við að koma sér í færi og svo klárar hann færin hreint út sagt frábærlega. Ef Sævar verður sterkur í sumar þá verða Selfyssingar áfram í efstu deild.
Nokkuð ljóst að á næsta slútti græjum við kórónu á Sævar
Líklegu byrjunarliði stilla þeir síðan upp svona:
Kjartan – Bragi – Stefán – Andri
Guðbrands – Ottó
Davíð – Ingó Tóta – Gummi Tóta
Sævar Þór
Ég held reyndar að þarna komi Siggi eða Jón pottþétt inn í hægri bakvörðinn, Henning kemur 100% inn í liðið á miðjuna og Jón Daði er klárlega að fara hægra megin frammi.
En gaman að þessu hjá Fylkismönnum og þessi síða hjá þeim er mjög flott, það er reynar afskaplega erfitt að skilja eftir ummæli þar. Nú er það bara í hönum strákana að afsanna þessa 11.sætis spá.
Babú
Selfoss tók á móti Gróttu í seinasta æfingaleik sínum fyrir átökin í Pepsideildinni. Selfoss byrjaði frekar illa í leiknum og náði ekki upp spili í fyrri hálfleik. Leikmenn of mikið að gæla við boltann og menn of mikið að leita að síðustu sendingunni. Gummi Ben talaði menn til í hálfleik og flot leiksins varð mikið betra. Flestum leikmönnum liðsins var skipt inná og var gaman að sjá að það hafði engin áhrif á leik liðsins. Eftir að hafa verið 2-1 yfir í hálfleik unnu Selfyssingar leikinn 4-1 með mörkum frá Davíð Birgis, Sævari Þór, Henning Eyþóri og Inga Rafni. Þeir Henning Eyþór Jónasson og Stefán Ragnar Guðlaugsson leku báðir sinn 50 leik fyrir Selfoss í þessum leik og óskum við þeim til hamingju með það.
Fyrstu tvö færi Selfyssinga voru eins, en þá átti Stefán Ragnar skalla yfir og framhjá eftir horn. Selfoss komst svo yfir í leiknum á 14. mínútu. Þá vann Siggi Eyberg boltann, sendi hann upp í horn á Jón Daða sem tók einn á fór upp að endamörkum og gaf fyrir á Davíð sem setti boltann í netið, 1-0. Stuttu seinna komst sóknarmaður Gróttu í gegn, en Siggi Eyberg náði honum og bjargaði áður en hann náði skoti.
Eftir 25 mínútna leik skallaði Jón Daði inn á Sævar Þór, hann lagði boltann út á Davíð en frá honum var varið í horn. Úr horninu átti Stefán Ragnar skalla rétt yfir. Þegar rúmlega hálftími var liðin af leiknum átti Henning góða sendingu inn á Gumma Tóta, hann var fljótur að hugsa og skaut að marki en markmaður Gróttu varði, Sævar Þór var fyrstur að átta sig en skot hans fór framhjá.
Á 39. mínútu átti Gummi gott skot eftir vel útfærða aukaspyrnu hjá honum og Henning. Á 43. mínútu fékk Grótta óvænt marktækifæri og nýtt sér það til fulls og jöfnuðu leikinn í 1-1. Í næstu sókn áttu Seltirningar gott skot að marki sem Jói varði. En á lokamínútu fyrri hálfleiks skoraði Sævar Þór gott mark eftir flottan undirbúning hjá Andra Freyr og Gumma Tóta. Mark númer 125 hjá Sævari Þór fyrir Selfoss. Staðan því 2-1 þegar Kjartan Björnsson dómari leiksins flautaði til te hlés.
Í hálfleik skiptu Selfyssingar um markmann og inn kom Denis Cardaklija, sem verið hefur á reynslu hjá Selfoss. Skemmst er frá því að segja að hann hafði mjög lítið að gera. Sævar Þór fékk fyrsta færi leiksins en skot hans fór framhjá. Þegar 10 mínútur voru búnar af seinni gaf Jón Guðbrands boltann á Andra, hann fann Davíð upp í horninu, Davíð setti boltann út á Sævar Þór sem átti ágætis skot rétt framhjá.
Á 60. mínútu tók Jón Guðbrands þríhyrning við Davíð og setti boltann svo inn fyrir á Sævar Þór, hann var tekinn niður inn í teig og víti réttilega dæmt. Henning fór á punktinn og setti boltann örugglega í netið og staðan orðin 3-1. Tveimur mínútum seinna gaf Andri góða sendingu á Gumma Tóta, hann smelti boltanum laglega yfir á Jón Daða, en skot hans var vel varið í horn. Úr horninu átti Jón Daði gott skot rétt framhjá. Kjartan kom svo inn fyrir Agnar Braga á 62. mínútu.
Á 63. mínútu sýndi Jón Daði frábær tilþrif er hjólhestaspyrna hans fór rétt yfir eftir frábæra sendingu frá Gumma Tóta. Mínútu seinna skiptu þeir Sævar Þór og Davíð Birgis fyrir Arilíus og Ingi Rafn. Og á 65. mínútu lagði Henning upp ágætis færi fyrir Jón Guðbrands, en gott skot hans var vel varið. Á 67. mínútu skipti Jón Sveins inn fyrir Sigga Eyberg. Jón Guðbrands lagði svo upp gott færi fyrir Arilíus og vel útfært skot hans var varið.
Á 70. mínútu skipti Einar Ottó við frænda sinn Jón Guðbrands. Ottó var tvær mínútur að fá gult og var farinn útaf eftir fimm mínútur lítillega meiddur og inn kom Ingþór. Þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum átti Jón Daði gott skot sem fór rétt yfir. Á 85. mínútu slapp Jón Daði upp kantinn og átti góða sendingu fyrir á Inga Rafn sem átti ekki í vandræðum með að skora og staðan orðin 4-1. Þetta var 10 mark Inga Rafns fyrir Selfyssinga.
Þegar þrjár mínútur voru eftir bjuggu þeir Gummi Tóta og Jón Daði til færi fyrir Ingþór, en hann var óheppinn með skot sitt sem fór hársbreidd framhjá. Síðasta færi leiksins fékk svo Jón Daði, en skalli hans eftir horn fór rétt yfir slána.
Sanngjarn sigur Selfoss og menn greinilega að verða tilbúnir í Pepsideildina. Laugardaginn 8. maí kl 11.30 munu m.a. Gummi Ben, Helena Ólafs og Hjörvar Hafliða rýna inn í sumarið á meðan einhverjir snillingar munu grilla fyrir fótboltaáhugamenn. Partýið verður í Tíbrá og er opið öllum.
Tölfræði leiksins: Selfoss marktækifæri 17 og horn 12. Grótta marktækifæri 4 og horn 0.
Byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur (Denis Cardaklija) Siggi Eyberg (Jón Sveins), Stefán Ragnar, Agnar Bragi (Kjartan Sig) Andri Freyr, Gummi Tóta(Árni Páll) Jón Guðbrands (Einar Ottó) Henning, Jón Daði, Davíð Birgis (Arilíus), Sævar Þór (Ingi Rafn)
Selfoss spilaði síðasta æfingaleikinn í kvöld og það var gegn stórveldinu af nesinu Gróttu. Þetta var beisik 4-1 sigur, Denni í sundlauginni spilaði seinni hálfleik, það reyndi lítið á hann, hann leit þó ágætlega út var fljótur að koma boltanum í leik og gerði fá mistök.
Mörkin skoruðu Davíð, Sævar, Henning og Ingi. Maður leiksins var Einar Ottó sem uppskar gult spjald og standandi lófaklapp frá sjálfum sér fyrir þær 359 sekúndur sem hann spilaði. Við reiknum með því að tækniþjálfarinn komi með ítarlega skýrslu.
En hitt málið. Í sumar þurfum við öll að hafa katsí og hressa símhringingu við bjuggum til stórskemmtilega og bráðnauðsynlega hringingu fyrir alla alvöru Selfyssinga og getiði náð í hana á http://notendur.hi.is/mim6/Selfosshringing.mp3
Eins og glöggir lesendur sjá er þetta mp3 skrá svo ef síminn ykkar spilar ekki svoleiðis þá er hægt að versla þessa fínu síma í Árvirkjanum eða MM.
Selfyssingar taka á móti Gróttu í síðasta æfingaleik sínum og er leikið í dag mánudag kl 19.00 á gervigrasinu á Selfossi. Þetta er síðasti leikur Selfoss fyrir fyrsta leik í Íslandsmótinu sem byrjar þriðjudaginn 11. maí. Selfyssingum hefur gengið ágætlega á undirbúningstímabilinu og er klárlega stígandi í liðinu. Síðustu tveir leikir hafa endað með stórsigri, fyrst voru ÍBV teknir 5-0 og svo ÍH úr Hafnarfirði 7-0.
Ingó Tóta og Jói hafa verið lítillega meiddir og óvíst um þátttöku þeirra í leiknum. Hjá Selfyssingum er Denis Cardaklija á reynslu, en einhver meiðsli hafa verið að hrjá markverði liðsins. Cardaklija er markmaður Sindra frá Hornafirði og sonur Hajrudin Cardaklija sem varði m.a mark Breiðabliks, Leifturs og Sindra fyrir nokkrum árum síðan.
Grótta kom á óvart í fyrra og vann 2. deildina, en þeir hafa á góðu liði að skipa með reynsluboltana Sigurvin Ólafs og Kristján Finnboga fremsta í flokki. Einn af burðarásum Seltirninga er Selfyssingurinn Guðmundur Marteinn Hannesson, en hann spilaði 31 KSÍ meistaraflokksleik með Selfoss og skoraði í þeim 2 mörk áður en hann fór yfir í Gróttu árið 2007.
Selfoss og Grótta mættust í Lengjubikarnum árið 2007 og fóru Selfyssingar þá með 5-1 sigur af hólmi. Ingólfur Þórarinsson kom Selfoss yfir í leiknum og þannig var staðan í hálfleik eða þar til Andra Freyr Björnssyni var skipt inná og eftir korter var hann búinn að næla sér í gult spjald og áður en leiktíminn var úti hafði Andri Freyr gert sína fyrstu þrennu fyrir meistaraflokk Selfoss. Það var svo Sævar Þór sem skoraði síðasta markið. Hér má sjá leikskýrslu frá leiknum.
Um þessar mundir er það gríðarlega mikið inn að spá fyrir um hvernig tímabilið kemur til með að enda. Við hér á Selfoss.org ætlum auðvitað ekki að vera neinn eftirbátur annara í þessu og því smöluðum við saman nokkrum hressum spekingum sem tengjast síðunni eða umgjörðinni í kringum heimaleiki á einn eða annan hátt til að setja fram sína spá og eins látum við fylgja með útskýringar á valinu frá nokkrum spekinganna.
Spekingarnir voru níu (Babú, Máser, Tommi Þórodds, Vignir Egill, Gummi Kalli, Fannar, Óskar Ei, Einar Glans og Leifur Viðars) og röðuðu þeir liðunum í sæti 1-12. Efsta sæti gaf 12 stig og neðsta sæti 1 stig. Sameiginlegur stigafjöldi hvers liðs var síðan lagður saman og og út kom þessi spá:

KR-ingar verða meistarar skv. Selfoss.org - Mynd ksi.is
Reykjarvíkurstoltið eins og þeir syngja um í tíma og ótíma var mjög sterkt á seinni hluta síðasta tímabils og hafa verið gríðarlega sterkir í vor þannig að þeir eru sannarlega til alls líklegir og ekki skemmir fyrir að stjórinn er gamall í hettunni, kann þetta allt og nær líklega að halda uppi smá léttleika í búningsklefa KR-inga sem oft hefur virst vera vel ábótavant. Þegar búið var að leggja saman stig allra kom KR út efst rétt á undan FH en þó voru nokkuð skiptar skoðanir um þetta val:
- Óskar Ei spáði t.a.m að KR yrði vonbrigði sumarsins og setti þá í 5.sæti.
- Vignir Egill setti þá þó í efsta sæti og lét fylgja þetta fylgja með „Vesturbæjarstórveldið er með sterkan hóp og Logi Ólafsson hinn orðheppni hefur staðið sig vel í því að hnoða hann saman að undanförnu. Liðið hefur staðið sig vel á undirbúningstímabilinu og er nú komið í úrslit Lengjubikarsins.“
- Már spáði vesturbæjarveldinu einnig efsta sæti en lét öllu neikvæðari umfjöllun fylgja með „Ég sé ekki annað í spilunum en að KR kaupi þetta í ár, þeir eru með svona Chelsea hóp, tveir um nánast hverja einustu stöðu og líklegast dýrasta lið sem hefur verið sett saman á Íslandi. Það eina sem gæti komið í veg fyrir að þeir vinni eru mikil meiðsli í vörninni svo er markmaðurinn enn smá spurningamerki.“
- Tómas var sammála þeim Má og Vigni og öllu jákvæðari en Máser, „Þeir eru með sterkasta mannskapinn, einn færasta þjálfara landsins og bara kominn tími á þá. Mikið af íslenskum atvinnumönnum sem þurfa að sanna sig uppá nýtt. Það er auðvitað klassískt að nefna kröfuna á titil í vesturbænum. Innri umgjörðin er sennilega sú flottasta á landinu hjá þeim og þetta telur allt.“
- Fannar bætti líklega við einu m of mikið er hann skýrði sitt val á þeim í efsta sæti því hann talaði eins og einn af þeim „Erum með besta mannskapinn þetta árið og hafa verið mjög sannfærandi á undirbúningstímabilinu“
- Sjálfur væri ég (Babú) þó líklega líklegri til að tala sem KR-ingur enda haldið með liðinu þar til Selfooss tók við sér fyrir alvöru, ég er á því að FH taki þetta enda man ég ekki eftir að KR hafi nokkurntíma unnið titilinn þegar pressan er eins rosalega mikil og hún er á þeim núna. Þeir hafa ekki keypt eins mikið og af er látið og misst þó nokkuð frá upphafi síðasta tímabils. Engu að síður með frábært lið og líklega það besta á landinu á pappírum. Það er alls ekkert í fyrsta skipti sem það er raunin fyrir mót, það er eiginlega frekar undantekning þegar KR er ekki spáð sigri

FH-ingar verða í baráttunni allt til loka
Gengi FH undanfarin ár hefur verið alveg mögnuð, þeir náðu að setja saman mjög gott lið og hafa haldið mjög góðu jafnvæi í hópnum undanfarin ár. Þeir hafa sannarlega sigurhefðina með sér og þó að þeir séu kannski ekki með besta hópinn á pappírum eru þeir með eitt best samansetta liðið og það er þeirra að tapa titllinum. Nokkrir af spekingunum spáðu þeim titllinum en yfir heildina lenda þeir naumlega á eftir KR í öðru sæti.
- Einar Glans lét þetta fylgja með um spá sína fyrir FH sem hann reyndar býst við að vinni mótið „Ég held að FH taki þetta fyrir rest en verði í mjög harðri baráttu við KR alveg fram á síðustu umferð. KR hefur reynar nógu sterkann hóp til að taka þetta en FHingar hafa bæði reynsluna og hefðina“
- Óskar Ei var sammála Glans og sagði að sigur FH yrði eitt af vonbrigðum sumarsins.
- Vignir Egill var á því að FH yrði í 3.sæti og lét þetta fylgja með sem ástæðu fyrir því. „Fimleikafélagið er búið að missa sterka menn og hefur ekki tekist að fylla þau skörð sem þeir menn skildu eftir sig. Þrátt fyrir það er hópurinn sterkur og liðið á eftir að vera við toppi fram á haust.“
- Sjálfur er ég sammála Glans og Óskari og segi að FH vinni mótið af gömlum vana. Þeir hafa misst mikið úr hópnum en pressan á þeim er ekki eins mikil og á KR-ingum og þeir alla þá þekkingu sem þarf.
- Már var með þá í öðru sæti og útskýrði það svona „rétt hefur annað sætið hjá mér. Þeir klára þetta af vana. Þeir eru vanir því að vera á toppnum og vanir því að vinna tæpa leiki, þeir halda því áfram í sumar en ég held að það verði innbyrðisviðureignirnar við KR og svo tapið gegn Selfossi sem gera það að verkum að þeir taka silfur í ár.“
- Tómas sýndi hvað hann hefur lítið vit á fótbolta og eyðilagði spánna fyrir FH með að spá þeim í 4.sæti og útskýrði það svona. „Þeir misstu klefann þegar ég fór“ „sagði Tryggvi Guðmunds og tók Herjólf til eyja. Ég held samt að það sé eitthvað til í þessu hjá Tryggva. Svo er auðvitað erfitt að halda dampi í mörg ár og þrátt fyrir að Heimir Guðjóns sé frábær þjálfari, þá er hann engin Ferguson. En auðvitað gæti allt smollið og Heimir unnið sinn þriðja titil á þriðja ári sem þjálfari, sem yrði einstakt. Ef KR verður ekki meistari, þá er það FH.“
- Fannar setur Fimleikafélagið í 2.sæti og bætti við „Þeir verða í toppbaráttunni, gætu endað neðar en held samt sem áður að þeir ná ekki að slá KR-ingana út“

Allir höfum við mikla trú á Willlum - Mynd Babú
Flestir okkar eru á því að Willum komi til með að berja allvöru kraft í þetta Keflavíkur lið, Willum og Þór Hinriks ná jafnan að peppa lið vel upp á sínu fyrsta ári og hefur Willum allajafna helst náð árangri með þá klúbba sem hann þjálfar á fyrstu 2 árunum. Keflavík er með gott lið í höndunum og góðan stjóra þannig að þeir eru til alls líklegur, en þó mjög erfitt að segja til um þetta hjá þeim.
- Einar Glans hefur þetta að segja um baráttuna um þriðja sæti „Baráttan um þriðja sætið held ég að verði líka mjög hörð og þar koma Valur og Keflavík til með að skipta þeim sætum á milli sín og ég hef trú á að lærisveinar Willums Þórs hafi þar betur og hreppi þriðja sætið.“
- Óskar Ei hefur trölla trú á Joey Drummer og co og setur þá hreinlega í annað sætið og útskýrir það ekki frekar.
- Vignir Egill er á alveg sömu skoðun og Óskar Ei og bætir við „Willum Þór nær oft góðum árangri með lið sem hann tekur við. Heraginn skilar sér vel fyrsta árið. Leikmannahópurinn er góður og stígandi búinn að vera í leik liðsins.“
- Sjálfur er ég líka á sömu skoðun og þeir félagarnir og hef trú á að Willum nái Keflavík í annað sætið.
- Gummi Kalli var ekki alveg sammála okkur, setti Keflavík í 6.sæti og sagði „Ég hef ekki sömu trú á Keflvíkingum og þið og held að þeir verði flopp sumarsins.“
- Már var ennþá með allt á hornum sér og var sammála Gumma Kalla með 6.sætið og útskýrði það svona: „Willum er leiðinlega vanur því að vinna og spilar í þokkabót hundleiðinlegan fótbolta. Ég væri alveg til í að sjá þá renna á rassgatið enda fer Kebbblavíg í taugarnar á mér.“
- Fannar setti Keflavíkur liðið í þriðja sæti og var á því að þeir yrðu í toppbaráttunni rétt á eftir FH oog KR og aðeins og undan Breiðabliks og Valsmanna.
- Tómas setti liðið líka í 3.sætið og bjó til ritgerð um afhverju það væri. „Þeir hafa á að skipa mjög góðu liði sem náði sér alls ekki á strik í fyrra eftir sorglegan endir á Íslandsmótinu 2008. Þar hafði Keflavík náð 5 stiga forskoti á FH þegar tvær umferðir voru eftir, en FH tók titilinn. Ótrúlega svekkjandi. Ég held að Willum hafi náð að veita þá áfallahjálp sem liðið þurfti og komi með skemmtilega blöndu af góðum og efnilegum leikmönnum til leiks. Svo gætu þeir tekið titilinn 2011. Ég set aðeins spurningarmerki við það að þurfa að spila á Njarðtaksvelli í upphafi móts. Eins er spurning hvort það hafi áhrif, að Sparisjóðurinn í Keflavík sem haldið hefur íþróttalífinu í bænum gangandi, fór á hausinn í síðustu viku.“
Við þetta höfum við ekkert að bæta og ekki er ólíklegt að skýring Tomma sé nokkuð nærri lagi.

Blikar verða sprækir í sumar - Mynd Fótbolti.net
Nokkuð fast á hæla Keflvíkinga settum við Blika með 82 stig. Þeir grænu eru fullkomlega óskrifuð stærð í ár. Liðið hefur eins og venjulega verið frábært á undirbúningstímabilinu og í fyrra vann þetta unga og gríðarlega efnilega lið fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins. Því fylgir mikið meiri pressa í ár og eins nokkuð hætt við því að brotthvarf Arnar Grétarssonar geti reynst þeim mjög erfitt, jafnvel þó hann hafi aldrei ætlað að spila alla leikina í sumar.
- Óskar Ei spáir Blikum reyndar í 3.sætið og er á því að Alfreð Finnboga verði markakóngur í ár.
- Vignir Egill kom með nokkuð raunhæfa útskýringu á sinni spá „Ungu strákarnir hjá Ólafi Kristjánssyni sýndu góða takta í fyrra sumar og toppuðu gott tímabil með því að vinna VISA bikarinn. Liðið er nú komið í úrslit Lengjubikarsins. Það er líklegt að liðið eigi eftir að byrja vel og gera atlögu að titlinum fram af sumri, en missa flugið á haustmánuðum“
- Már var einnig nokkuð bjartsýnn fyrir hönd Blika, með þá í þriðja sæti en bætti við „Það er stórt skarð að fylla sem Arnar Grétars skilur eftir sig, hann er gífurlegur leiðtogi og spurning hvernig kjúllarnir verða í tæpum leikjum þar sem þeir þurfa svona „cool head“
- Tommi var sammála strákunum með þriðja sætið á Blika og sagði „Alltaf bestir á æfingatímabilinu, en nú fara þeir lengra. Þeir fengu kikkið við það að vinna bikarinn í fyrra og koma eins og alltaf sterkir til leiks, en nú heldur þetta efnilegasta lið landsins með einn af klárari þjálfurum landsins þetta út og endar við toppinn.“
Aðrir höfðu svipaða hlluti um Blika að segja og menn því nokkuð sammála um 3-4 sæti á Blika.

Gulli Jóns á mikið verk fyrir höndum hjá Val - Mynd Babú
Það er mjög mikið verk fyrir höndum hjá Gulla Jóns og co að hrista saman þetta Valslið sem hefur verið í molum undanfarin tímabil. Hann hefur verið að breyta hópnum töluvert og er liðið því ansi óskrifað blað núna. Selfyssingar vita þó líklega manna best hvað Gulli er fær um að gera og því misjafnt hvað spekingar Selfoss.org spáðu með Valsara í ár.
- Gumma Kallla langaði að raða mótinu upp eftir stafrófsröð því það yrði svo gott á Valsara en hann setti þá á endanum í 7.sæti.
- Vignir Egill setti Valsmenn í 6.sætið í sumar og sagði þetta um þá spá „Það hefur varla liðið sá dagur í vetur að ekki hafi komið inn frétta á fotbolti.net að Valsmenn hafi verið að semja við nýjan leikmann. Gunnlaugur Jónsson hefur hreinsað vel til í leikmannahópnum og á erfitt verk fyrir höndum að ná hnoða hópnum saman í sumar. Byrjun tímabilsins skiptir miklu máli fyrir liðið og hvernig því á eftir að farnast í sumar.“
- Már var léttur á því að vanda og hafði þetta að segja eftir að hafa sett liðið í 9.sæti. „Mitt persónulega mat er það að Valur er holdgerving þess sem er rangt við heiminn. Þeir eru eins og Real Madrid, það er engin stemming þarna, stuðningsmennirnir eru gloryhunters af verstu gerð og þeir spila í ljótum búiningum. Þeir eru búnir að hrúga inn leikmönnum í allan vetur og það verður mikið púsl fyrir Gulla að gera eitthvað við þennan hóp, því miður fyrir hann en öllum öðrum til mikillar gleði tekst það ekki, Valur Flopp sumarsins.“
- Tommi Þórodds setti þá í 7.sæti og útskýrði það svona „Alltaf slatti margar breytingar á milli ára á Hlíðarenda. Það er einhver ára yfir Hlíðarenda sem spennandi verður að sjá hvort Gulli Jóns nái að kljúfa. Hópurinn auðvitað góður og því gætu Valsmenn farið ofar með alvöru byrjun. Einhverjir hafa sett spurningarmerki við kaupin í ár og þeir misstu tvo virkilega góða sentera. Eiga eftir að skora lítið og fá á sig fá. “
- Fannar var aðeins jákvæðari og sagði 4.sæti fyrir Valsmenn og bætti við „Held að sama vesenið eigi eftir að vera á Val og síðasta sumar. Gulli á eftir er gera ágæta hluti þar en þó ekki skila þeim titli í hús.“
- Sjálfur var ég (Babú) líkt og Fannar nokkuð bjartsýnn fyrir hönd félaga minna í Val og spái að Gulli Jóns nái að hrista þetta lið vel saman og skila þeim a.m.k í 4 sætið og jafnvel ofar en það.

Eitt sterkasta vopn Framara er þjálfarinn - Mynd Fram.is
Þeir dagar eru liðnir að Fram var með áskrift að fallbaráttunni. Þeim hefur tekist að búa til gott lið undanfarin ár og Þorvaldur Örlygsson, sem er hörku stjóri hefur náð að skapa létta og skemmtilega stemmingu innan liðsins (að því er virðist) sem líklega hefur ekki alltaf verið raunin. Við spáum þeim hvorki toppbaráttu ná botnbaráttu, þeir verða mitt á milli.
- Einar Glans sem næstum býr á heimavelli Fram spáði þeim 7.sæti og hafði þetta um það að segja „Frammarar ætla sér stóra hluti í sumar en ég held að þeir komi ekki til með að lenda ofar en í Sjöunda sæti og stuningsmennirnir pressi á þjálfaraskipti þar. “
- Vignir Egill sagði líka 7.sæti fyrir Fram og útskýrði það svona „Framarar náðu góðum árangri í fyrra sumar undir stjórn Þorvalds Örlygssonar. Það er hætt við því að væntingarnar verði of miklar í Safamýrinni sem mun gera það að verkum að árangurinn verður ekki jafn góður þetta árið. Helsta vandamál þeirra verður árangurinn á heimavelli.“
- Hjá mér endaði Fram í 9.sæti og skýringin á því var mjög gáfuleg „hef eiginlega ekki trú á þessari spá sjálfur, Fram einhvernvegin endaði bara þarna hjá mér en yrði alls ekki hissa að sjá þá ofar„.
- Már sagði 5.sæti á Fram og hélt fast í gleðina „Þorvaldur Örlygs er lúmskur. Hann smíðar eitthvað úr þessum skítaklúbb.“
- Tommi Þórodds sagði líka 5.sæti og var óvenju gáfulegur þegar hann sagði „Þeir verða jafntefliskóngar deildarinnar og spurning hvert það skilar þeim. Þeir verða allavega ekki ofar en 5. sæti. Þorvaldur á sínu þriðja ári hjá Fram og það ár er oft erfitt í Íslensku deildinni.“
- Fannar var sammála spánni og sagði „Fram verður svona óstöðugt í sumar, geta spilað mjög vel og svo í næsta leik mjög illa„.

Ef Selfoss á vinaklúbb er það líklega Fylkir
Fylkir er svipað og Fram spáð miðjumoði í sumar, liðið er ungt og mjög efnillegt og átti gott sumar í fyrra. Það er erfitt að gera sér grein fyrir hvað Óli Þórða nær að kreista út úr liðinu í ár en ef stemmingin er svipuð og í lok síðasta tímabils eru Fylkismenn til alls líklegir.
- Vignir Egill hafði þetta að segja um Fylkismenn í sumar „Ólafur Þórðarson gerði góða hluti með liðið síðasta sumar og líklegt það eigi eftir að halda áfram á sömu braut á þessu tímabili. Helstu vandamál þeirra verður stöðugleiki og það á eftir að verða þeim að falli í toppbaráttunni.“
- Már var sammála spánni og sagði „Erfitt að átta sig á þessu liði, gífurleg barátta í því en er það nóg? Ásgeir og Valur Fannar eru líklegast grófasta miðjupar á landinu en fyrir utan Albert Ingason (18 mörk í 69 leikjum) og víti frá Val Fannari verða þeir í vandræðum með mörkin held ég. “
- Tómas var með þá í sjötta sæti og sagði „Spútnik lið síðasta sumars og það er auðvitað ekki hægt að taka þann titil tvö ár í röð. Ég geri mér ekki grein fyrir hvernig stemmarinn er í Árbænum, en Óli er ekki eilífur. Gæti verið dýrt að missa aðstoðarþjálfarann Palla Einars yfir í Þrótt og ég sé ekki malar-Kidda fylla hans skarð. Annars mjög gott lið og samsetningin frá öllum hliðum séð mjög góð þ.e jafnvægi í aldri, hæð, osfrv. Annars styttist auðvitað í að Fylkir falli í 1. deild, en það er samt ekki í ár. Spá því að Óli hrauni nokkrum sinnum yfir mannskapinn sinn í sumar“.
Allir vorum við nokkuð sammála um miðjumoð hjá Fylki rétt eins og hjá Fram

Ef Selfoss á að ná árangri í sumar þarf Máser að vera í stuði. - Mynd Babú
Það var auðvitað dágóður slatti af óskhyggju í spám okkar og er allt hafði verið talið endaði Selfoss í 8.sæti hjá spekingum Selfoss.org og værum við flestir mjög sáttir með það og allt ofar væri mikill bónus.
- Einar Glans er sammála spánnig og sagði „Nokkuð óvænt held ég að okkar menn nái að landa áttunda sætinu og þá sérstaklega útá sterkann heimavöll“
- Óskar Ei segir að Selfoss verði spútnik lið sumarsins og endi í 7.sæti.
- Vignir Egill sagði 9.sæti og bætti þessu við það „Stemmningin í bæjarfélaginu og liðinu sjálfu á eftir að skipta miklu máli og heimavöllurinn á eftir að reynast liðinu vel. Sú staðreynd að liðið sé að mestu skipað heimamönnum verður liðinu mikilvægt. Helstu spurningamerkin eru hvort hópurinn sé nógu breiður og þá er þjálfari liðsins, Guðmundur Benediktsson,“
- Sjálfur sagði ég 10.sæti. Það er auðvitað byggt á þeirri óskhyggju að þannig sleppum við við fall. En þetta lið gæti alveg dottið í þannig gír að það færi mun ofar á töfluna. Ég er svo harður Liverpool stuðningsmaður að ég skrifa á Liverpool bloggsíðu þannig að 10.sæti á þessu ömurlega ári er bjartsýnisspá!!!
- Már sagði 8.sæti og útskýrði svona „Draumur í dós. Við spilum á heimamönnum, það býst engin við neinu frá okkur og stemmingin verður frábær á heimaleikjunum og það fer alltaf flottur mannskapur á útileikina og lætur vel í sér heyra. Sævar gamli verður markahæstur í deildinni með 14 mörk.“
- Fannar hafði þessu við sína spá að bæta „Stefnan er klárlega sett á að halda sér uppi í deild þeirra bestu. Held að við náum nógu mörgum stigum til að halda okkur uppí deildinni. KOMA SVO!!“
Rétt á eftir Selfoss settum við Grindavík. Þeir hafa nokkuð áhugavert lið en lentu þó neðarlega hjá flestum spekingum Selfoss.org.
- Vignir Egill er ekki bjartsýnn á gengi Grindvíkinga, spáir þeim falli og útskýrir svona „Grindvíkingar eru ekki með mikið breytt lið frá því í fyrra. Þeir hafa þó fengið liðstyrk frá útlöndum og reynsluboltann Auðun Helgason. Það er líklegt að liðið eigi eftir að vera á svipuðu reiki og í fyrrasumar.“
- Sjálfur er ég mun bjartsýnni á Grindvíkingana og spái þeim 5.sæti. Þeir eru með mjög gott lið og góða útlendinga sem gætu orðið massívir ef þeir haldast heilir. Eins gæti Grétar Ólafur verið mjög drjúgur í sumar haldist hann heill.
- Már er enn bjartsýnni er ég og segir 4.sætið „Annað spútnik liðið í sumar. Stemming, heimamenn, rokrassgat, skítnóg af peningum svo skemmir ekki að þeir og Selfoss eru einu liðin sem hafa haft fyrrum United mann innanborðs. Þetta skilar þeim í fjórða.“
- Tómas var sammála spánni og sagði „Luka er taktískur þjálfari og lætur liðið spila fótbolta. Alltaf til nóg af pening til að gera og græja ef eitthvað fer að ganga illa. Svo er spurning með Scott Ramsey sem er jafn gamall Sævari Þór, en þó með annað vaxtarlag. Þeir eru spurningarmerki, en ég sé þá alls ekki vera í efri hlutanum.“
- Fannar sagði 8.sæti og lét þetta fylgja með „Grindavík er algjörlega óskrifað blað hjá mér, en eru með fína leikmenn inná milli. Vonandi bæta þeir heimavalla skorið sitt, því mig minnir að þeir náðu fleiri stigum á útivelli en heimavelli í fyrra. Einnig er þeir búnir að fá leikmenn tilbaka úr meiðslum sem gátu ekki leikið síðasta sumar„.

Stuðningsmenn ÍBV sem allir árituðu þennan bol skapa besta heimavöll landsins. - Mynd Babú
Vinir okkar úr eyjum rétt sleppa við fall skv. spekingum Selfoss.org.
- Einar Glans útskýrði þetta ítarlega „ÍBV vinnur svo óvænt 3-0 í keflavík og nælir þar með í 10. sætið þar sem gamli maðurinn í framlínunni og bjargvættur þeirra Tryggvi Guðmunds setur öll mörkin og sendir þar með Stjörnuna niður í fyrstu deild ásamt Haukum.“
- Vignir var eins og flestir aðrir með ÍBV í 10.sæti og sagði „Eyjamenn virðast ekki vita það sjálfir á þessari stundu hverjir eiga eftir að skipa lið þeirra í sumar. Talað er um að 5-8 leikmenn sé kannski, líklega, ef til vill á leiðinni til liðsins á næstunni. Þetta á eftir að reynast þeim erfitt. Heimavöllurinn og Tryggvi Guðmundsson verða liðinu mikilvægir í sumar.“
- Ég var eins og áður út á túni miðað við hina og sagði 6.sæti fyrir ÍBV. Býst við þeim mun sterkari heldur en í fyrra.
- Már var með þá í 10.sæti og sagði „Rífa sig upp eftir þjóðhátíð, Tryggvi verður lykillinn að því, hann hættir að tuða eftir gott trúnó á þjóðhátíð með Elliða Vignis og þá gengur allt betur.“
- Tómas sem býr með eyjakonu var með þá í 10.sæti eins og flestir og var með skemmtilegar kenningar á lofti. „Þeir koma alltaf svolítið hissa til leiks og það er auðvelt að láta þeim bregða. Þegar líða fer á mót styrkjast þeir og nýju útlendingarnir ná að spila sig saman og leikmenn að læra á hvern annan. Ef þeir ná upp stemmningu snemma gætu þeir gert góða hluti, en ef þeir byrja að væla þá er þetta búið. Það er fátt eins pirrandi og eyjamaður að væla um bættar samgöngur.“
- Fannar spáði þeim falli og sagði 11.sæti og lét þetta flakka með „Ætla sér mikið og búnir að kaupa nokkra leikmenn. Held samt sem áður að það muni ekki duga.“

Stjarnan er stemmingslið og þarf að vera í stuði í sumar - Mynd Fótbolti.net
Þrátt fyrir að Stjarnan sé stemmingslið með góðan þjálfara virtumst við flestir vera sammála um að þetta tímabil yrði þeim erfitt og þeir færu niður líkt og þeir hafa gert svo oft áður.
- Einar Glans sagði þetta um Stjörnuna „Stjarnan á eftir að vera í ströggli í allt sumar og detta svo niður á markatölu eftir stórtap í loka umferðinni.“
- Vignir Egill setti þá í 8.sæti og þetta fylgdi með „Stjarnan kom mörgum á óvart í fyrra sumar, sérstaklega framan af móti. Þeir misstu reyndar flugið um miðbik tímabilsins, en náðu þrátt fyrir það að enda um miðja deild. Þeir hafa bætt aðeins við sig mannskap og mun það verða gott fyrir stöðugleikan í liðinu. Gervigrasið og hið óvænta um ekki hjálpa þeim jafn mikið og í fyrra og þess vegna ná þeir ekki jafn góðum árangri.“
- Ég er mjög óviss með Stjörnuna í sumar og held að mótið hjá okkur byggist upp á því að enda ofar en þeir. Annað hvort eru þeir að ná að smíða öflugt lið eða þá að þeir geri eins og alltaf áður og falla strax! Fer eftir hversu heill hópurinn verður og með Marel Baldvins á gervigrasi hef ég áhyggjur af þeim
- Már er því sammála og segir „Lausnin þeirra var Marel Baldvins og þeir spila á gervigrasi, það er bara stærðfræði sem gengur ekki upp.“
- Tommi var á svipuðum nótum „Ef þeir verða heppnir með meiðsli þá sleppa þeir við fall. Þeir eru með of mörg spurningarmerki og þessi slæmi kafli sem þeir tóku í fyrra sýndi þeim hversu slakir þeir virkilega geta verið, ef allt gengur ekki upp hjá þeim. Spurning hvort þetta lið sé búið að toppa og fari jafnvel að breyta sínum leikstíl að Marel.“
- Fannar var á sömu nótum „Búnir að missa einhverja leikmenn, þeirra styrkleiki er gervigrasið þeirra. En annað tímabilið í efstu deild er alltaf erfitt, og sumarið verður þeim það.“

Haukar eru í svipaðri stöðu og Selfoss eins og undanfarin ár
Þetta vorum við allir sammála um og líklega hugsa flestir okkar að annað hvort verður það þeirra hlutverk eða okkar að vera í ströglinu í sumar og því settum við allir Hauka í neðsta sæti.
- Einar Glans hefði þetta að segja „Haukar koma til með að taka eitthvað af stigum en hafa samt ekki mannskap í að halda sér uppi.“
- Vignir Egill bætti þessu við „Haukarnir hafa bætt við sig mörgum köllum og það mun reynast þeim gott og slæmt. Það er gott fyrir liðið að hafa reynslumikla leikmenn, en það er óvíst hvernig liðsandinn og liðsheildin á eftir að vera. Þá mun það ekki hafa góð áhrif að flakka á milli heimavalla og nota heimavöll annars liðs.“
- Már var á svipuðum nótum „Þeir eru búnir að taka Bolton stæl á kaupin í vetur. Fylla liðið af has beens. Arnar Gunnlaugsson hefur ekkert að gera í svona deild. Mete er eins og Ledley King mínus hæfileikarnir og leikskilningurinn og Kristján Óli er ekki að fara að gera neinar rósir þarna. Daði Lár er 37 ára. Beint upp beint niður.“
- Tómas segir að Haukar fari niður en er þó jákvæður í garð félagsins. „Fara beint niður og svo sennilega beint upp aftur. Fullt af efnilegum strákum að koma upp, en þeir eru ekki tilbúnir strax. Það gleymist oft hversu flottur klúbbur þetta er þrátt fyrir að vera eins og hann er. Þeir eiga lið í efstu deild í knattspyrnu, handbolta og körfu hjá bæði körlum og konum í öllum greinum. Ég held að engin annar klúbbur á Íslandi geti státað af einhverju álíka, nema þá hélst FH. Lifi kratar og stefna bæjarfélagsins að leyfa öllum krökkum að æfa frítt. “
Svona var þetta hjá okkur og nú er bara að bíða og sjá hversu miklir spekingar við erum.
Við hvetjum lesendur sem lásu alla leið hingað niður að skilja eftir sig spor í ummælum og koma með sína spá, hvort sem þú ert stuðningsmaður Selfoss eða annars liðs.
Nokkra sjálfboðaliða vantar í skemmtileg verkefni fyrir heimaleiki í sumar. Þeir sem vilja vera með í gefandi starfi í kringum meistaraflokk Selfoss og taka þátt í þeim merkisviðburði er Selfoss spilar í fyrsta sinn meðal þeirra bestu er bent á að hafa samband við Tómas 699-0660. Athugið að verkefnin eru ekki íþyngjandi og verða löguð að hverjum og einum með hans óskum í forgrunni.
Til gamans má geta þess að Óli Tage Bjarnason fv. knattspyrnumaður Selfossliðsins mun áfram setja upp leikskrána fyrir heimaleiki Selfossliðsins. En Óli tók þetta verkefni að sér í fyrra þrátt fyrir að vera búsettur í Danmörku og þaðan mun hann vinna sitt verk fyrir knattspyrnudeildina.
Björgunarfélag Árborgar, alls átta manns ætlar að sjá um gæslu á heimaleikjum liðsins, en yfirmaður heimaleikjaráðs er Erlingur Huldarson.
Búið er að manna flest störf er kemur að fjölmiðlamálum og er þar Einar Babú, Einar glans, Fannar, Vignir Egill, Leifur Viðars og Már Ingólfur fremstir meðal jafninga.
Selfoss tók léttann æfingaleik við fámennt lið ÍH í kvöld. Það komu einungis 11 leikmenn úr Hafnarfirðinum og í seinni hálfleik spilaði Ingi Rafn með þeim.
Fyrir vikið er ekki hægt að segja að um hafi verið að ræða mjög merkilegan leik, staðan í hálfleik var 5-0 með mörkum Sævars Gísla (3), Hennings og Inþórs. Staðan hefði hæglega getað verið 10-0.
í seinni var nánast skipt um lið og bættu þeir Davíð Birgis að ég held og Ingvi/Yngvi við sitthvoru markinu.
Þetta var svona eins og semi skemmtileg æfing þar sem A liðið spilar við B liðið!
Meistaraflokkur Selfoss tekur á móti ÍH í næsta æfingaleik sínum, en hann fer fram mánudaginn 26. apríl kl 18.00. Selfyssingar sem unnu ÍBV í síðasta leik sínum 5-0 eru að endurheimta þá Einar Ottó og Henning úr meiðslum og því nauðsynlegt fyrir þá að spila.
Þjálfari ÍH er Selfyssingum að góðu kunnur, en það er Mikael Nikulásson sem spilaði með Selfyssingum fyrir nokkrum árum síðan. Einn besti leikmaður ÍH er Þórarinn Borgþórsson, eða Tóti Borgþórs eins og stelpunar kalla hann. Tóti er bróðir Gunna Borgþórs og er því sannkallað bræðraeinvígi framundan, sem vonandi skyggir ekki á leikinn sjálfan.
Eftir leikinn við ÍH, eða kl 20.00 munu strákarnir í 2. flokk Selfoss spila við Laugvetninga, en það eru nemendur ÍKÍ. Þannig að það er fótboltaveisla framundan á Selfossvelli.
Annars er það að frétta af liðinu að Gummi Ben er komin heim frá Frakklandi, en Stefán Ragnar er enn við æfingar hjá Monakó og er væntanlegur heim á mánudag. Davíð Birgis og Sævar Þór verða með gegn ÍH, en þeir voru ekki leikfærir gegn ÍBV.
Selfyssingar unnu í dag ÍBV 5-0 á gervigrasinu á Selfossi þar sem Einar Ottó spilaði sinn fyrsta leik á þessu ári og skoraði að sjálfsögðu mark í tilefni dagsins. Sigur Selfyssinga var öruggur allan tíman, en mörkin skoruðu þeir Ingi Rafn, Gummi Tóta, Arilíus, Jón Daði og Einar Ottó. Nokkra leikmenn vantaði í leikinn, en þeir Sævar Þór og Davíð Birgis voru slappir, Stefán er enn í Monakó, Gunni Borgþórs var að stýra yngri flokkum til sigurs, Jón Guðbrands var víðs fjarri, en mætti þó og gaf eiginhandaráritanir eftir leik og Jón Sveins var að láta skíra son sinn því fallega nafni Sveinn Atli.
Byrjunarlið Selfoss í dag var eftirfarandi: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Kjartan Sig, Agnar Bragi, Andri Freyr, Gummi Tóta (Ingþór), Ingó Tóta (Einar Ottó), Henning, Jón Daði, Arilíus(Ingvi Rafn) og Ingi Rafn (Árni Páll).
Óstaðfest byrjunarlið ÍBV: Albert Sævars, Arnór Eyvar, Eiður Aron, einhver breti, Þórarin Ingi, Anton Bjarna, Ásgeir Aron (Ingvi Borgþórs), Andri Ólafs, Finnur Ólafs, Eyþór Helgi og Tryggvi Guðmunds.
Eyjamenn byrjuðu af krafti og virtust betri fyrstu fimm mínútunnar, en það voru þó Selfyssingar sem komust yfir. Eftir góðan undirbúning frá Arilíusi og Jón Daða skoraði Ingi Rafn gott mark og kom Selfoss í 1-0. Ingi Rafn spilaði í þrjú ár með ÍBV og var því að skora gegn sínum gömlu félögum.
Stuttu eftir markið átti Gummi Tóta gott skot eftir horn, en skot hans var varið. Nokkrum mínútum seinna stal Jón Daði boltanum af varnarmanni og átti gott skot rétt framhjá. Tveimur mínútum seinna stal Jón Daði boltanum á sama stað, stakk sér í gegn og var klókur og setti boltann út á Inga Rafn sem var óeigingjarn og framlengdi á Gumma Tóta sem setti boltann í netið í annarri tilraun. Staðan sanngjörn 2-0.
Enn hélt sókn Selfoss áfram og nú frá hægri, en þar átti Siggi Eyberg góðan kross sem Jón Daði skallaði, en var vel varin af Albert í marki ÍBV. Þegar um hálftíma var liðin af leiknum varði Albert aftur vel og nú frá Inga Rafn. Síðasta færi leiksins fékk Jón Daði, en eftir að hafa leikið á einn var hann óheppinn með skot sitt sem fór yfir.
Staðan sanngjörn 2-0 í hálfleik og ÍBV ekki búið að fá færi. Ein skipting var gerð í hálfleik, en þá kom Árni Páll inn fyrir Inga Rafn. Til að byrja með var fyrri hálfleikur jafn, en eftir um 10 mínútur tóku Selfyssingar aftur öll völd á vellinum.
Jón Daði skapaði sér fyrsta færið með flottu einstaklingsframtaki, en skot hans fór rétt yfir. Stuttu seinna átti Andri Freyr skot eftir undirbúning frá Arilíusi og Gumma. Stuttu seinn átti Arilíus frábæra sendingu inn á Jón Daða, en skot hans var vel varið. Henning átti svo gott skot af 30 metra færi sem sleikti slána.
Þegar um 20 mínútur voru liðnar af hálfleiknum var brotið á Jón Daða fyrir utan teig. Arilíus tók spyrnuna og smurði boltanum í netið og staðan orðin 3-0. Henning átti svo skalla yfir úr horni. Nokkrum mínútum seinna varði albert vel frá Arilíusi.
Einar Ottó kom svo inná í sínum fyrsta leik eftir aðgerð og lét strax til sín taka. Eftir þrjár mínútur inná tók hann tvo leikmenn ÍBV á og setti boltann yfir á Jón Daða sem lék inn á miðju og setti boltann í netið, Staðan orðin 4-0 og allt samkvæmt gangi leiksins.
Einar Ottó vann svo boltann stuttu seinna og stakk sér í gegn en skot hans fór framhjá. Albert sem hafði nóg að gera í leiknum varði svo stuttu seinna frá Jóni Daða. Síðasta mark leiksins skoraði svo Einar Ottó með yfirveguðu skoti eftir góðan undirbúning frá Henning.
Selfyssingar voru mjög góðir í leiknum. Allar færslur í sóknar og varnarleik góðar, mikill hreyfanleiki og leikmenn að bjóða upp á spil allan tíman. Eins var greinileg samheldni í liðinu, allir að vinna að sama markmiði og talandi að verða ágætur hjá strákunum. Sóknarleikur liðsins er orðin mjög fjölbreyttur og liðið að skapa sér mikið af marktækifærum. Gaman er að sjá liðið þegar allir vinna fyrir hvern annan og ljóst er að liðið er á réttri leið. Stígandinn hefur verðið jafn á undirbúningstímabilinu og leikmenn að komast í gott form.
Næsti leikur Selfoss er heima gegn ÍH á sunnudagsmorgun kl 11.00.

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



