| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Annað árið í röð voru stelpurnar bókstaflega grátlega nálægt því að tryggja sér sæti í efstu deild kvenna! Núna lutu þær í lægra haldi fyrir Þrótturum 3-1 í vægast sagt dramatískum leik því þessar lokatölur segja sannarlega ekki alla söguna.
Hér má sjá umfjöllun fótbolta.net um leikinn og hérna má svo sjá viðtal við Helenu Ólafs sem segir eiginlega allt sem segja þarf.
Liðið var algjörlega frábært í allt sumar og átti sannarlega skilið að fara upp enda var þetta aðeins annar tapleikurinn á þessu tímabili.
Við gerum þennan leik líklega betur upp bráðlega og svo verður auðvitað farið betur yfir tímabilið í heild við tækifæri hér á orginu.
Það þarf svo líklega ekki að taka það fram að strákarnir lutu í lægra haldi fyrir Valsmönnum á mánudag og má sjá snubbótta umfjöllun mína á fótbolta.net hérna og ögn hressari textalýsingu hérna.
Þá er komið að seinni leik Selfosskvenna gegn Þrótti um laust sæti í úrvalsdeild að ári. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 1.september á þeim skemmtilega tíma 17:30 á Valbjarnarvelli sem er í Laugardalnum.
Fyrri leikur liðanna lauk með jafntefli 1-1 í spennandi leik. Ljóst er að ef stelpurnar fara upp í úrvalsdeild skrifa þær í sögubækur knattspyrnunnar á Selfossi og það er eitthvað sem þú, kæri Selfyssingur, vilt ekki missa af !
Við hvetjum því alla Selfyssinga til þess að gera sér leið í bæinn og styðja við stelpurnar í þessari mikilvægu baráttu!
Ef þú ert Selfyssingur gef’mér klapp!
Nú liggur mikið við og mikið að gerast hjá andstæðingum okkar í næsta leik, Völsurum. Það er ljóst að þörf er á spekingi andstæðinganna fyrir þennan leik og höfðum við því að sjálfsögðu samband við skemmtilegasta speking andstæðinganna, heiðursmanninn Heiðu í Dal sem ætti að vera Selfyssingum að góðu kunnur enda legend á hinni sálugu síðu Fyrstudeildarfjélagsins sem var hip og kúl er Selfoss lék í þeirri deild.
Heiða í Dal kemur m.a. inn að stjórastaða Vals sé stærri en Selfoss sem er auðvitað bull, eins reynir hann að segja Selfyssingum til þegar kemur að því að versla í Pullaranum án þess að svo mikið sem minnast á að auðvitað kaupir maður bara breiðloku þar og auðvitað er svo þriggja klúta fyrirlestur um stöðu félagsins í dag, klárlega þess virði að renna yfir þetta.
Sökum leti er oftast hent fram mjög svipuðum spurningum í þessum dagskrárlið, en spurningum um það hvernig stemmingin sé hjá Valsmönnum á næstum ekki við núna!! Hvað er eiginlega að gerast hjá þínum mönnum þessa dagana og hver er þín skoðun sem almenns aðdáanda á
…Gulla Jóns þjálfara
…Berki fyrverandi formanni knd
…þessari uppsögn fjórmenninganna í stjórn Vals?
Ég held, vona og trúi að hinn almenni Valsmaður vilji sjá Gunnlaug Jónsson áfram í brúnni hjá Val. Í fyrra varð óþarfa fjaðrafok í fjölmiðlum þegar hann ákvað að hætta með lið Selfoss til að taka við einu af stóru störfunum í íslenskum fótbolta (með fullri virðingu fyrir Selfossi og öðrum liðum), og gefið var út að þessi ráðning væri ekki einnar nætur tjöldun. Markmið Vals hlýtur að vera að byggja lið sem er hæft um að gera atlögu að titlum ár eftir ár, og til að það sé hægt verður að byggja umgjörð í kringum það sem segir Ungir fótglímumenn – hjá Val er best að vera.
Það gefur ekki góð skilaboð út á við að reka og ráða þjálfara eftir úrslitum síðustu umferðar. Því miður hefur ára óþolnmæðis vomað yfir Hlíðarenda undanfarin ár, og margir búnir að týna tölunni yfir fjölda þjálfara liðsins. Það er mín trú að það versta sem hægt væri að gera í stöðunni væri að reka Gulla og ráða einhvern „big shot“ til að taka stjórnina. Það gæti vel verið að Guðjón Þórðar eða Ron Atkinson myndi koma með titilinn 2011 á Hlíðarenda, en við hljótum að vera að líta til þess að vilja hafa mann sem byggir upp lið sem gerir atlögu að titlinum 2011, 2012, 2013 og svo framvegis.
Með uppsögn stjórn knattspyrnudeildar þá veit ég eiginlega ekki hvað skal segja. Mér finnst fnykur af þessu öllu saman, og sérkennilegt að stjórnin virtist koma fram af heilindum alveg fram á síðustu stundu. Til dæmis bauð formaður hennar upp á guided tour um Hlíðarenda í vikunni, svaraði spurningum æstra aðdáenda á spjallborði og virtist vera að bera á sárin sem opnuðust með fréttaflutningi RÚV í byrjun vikunnar. Svo allt í einu er 80% stjórnarinnar farin með reyk og látum og eftir standa spurnignarnar.
Nú ríður á að fá sanna Valsmenn inn í stjórnina sem vinna sína vinnu eins og stjórn á að gera – ekki í framlínunni og einbeita sér að því að skapa framkvæmdastjórum félagsins það vinnurými sem þeir eiga skilið. Nú þurfum við að halda áfram að búa til það sem kynnt var fyrir einu ári síðan – knattspyrnudeild karla sem laðar að þá efnilegustu (við komum ekki úr stæsta póstnúmeri landsins og erum ekki með Breiðabliks kalíber af ungum iðkendum), starfar eftir kjörorðum sr. Frikka og býður ekki í allt sem hreyfist eins og loðað hefur við Knattspyrnufélagið Val.
Þetta var nú alveg þriggja klúta ræða, er það ekki?
Fyrri leikurinn á Vodafone vellinum var hörkuleikur sem þó endaði vel fyrir þína menn, hvaða leikmaður Selfoss myndir þú segja að væri líklegastur til að setja strik í reikninginn hjá Völsurum í þessum leik?
Mér hefur fundist Yao-Yao ansi sprækur í þeim klippum sem vinir okkar RÚV hafa verið að sýna mér, og eins aukaspyrnur yngri Veðurguðsins þarna verið stórhættulegar, Gummi heitir hann það ekki? Ég er annars að vona að einu strikin sem Selfoss setur í reikning Valsmanna verði þrjú strik í stigatöfluna Valsmegin
Hver í Valsliðinu hefur komið þér mest á óvart í sumar?
Ég verða að setja að þetta er eitt furðulegasta tímabil sem ég hef lifað. Eilífar hræringar og mannabreytingar í glugganum, sumir að spila betur en í mörg ár og aðrir gert í brók. Mér finnst Kjartan Stullu búinn að eiga besta tímabilið sitt í nokkur ár, Haukur Páll er eins og ferskur vindur inn á miðjuna og er verðugur arftaki Bjössa þar. Stefán Eggerts í bakverðinum búinn að vera góður og Jón Vilhelm er að koma sterkur inn núna eftir meiðslatímabil.
Ég verð held ég samt að segja að sá í kringum Valsliðið sem er búinn að koma mér mest á óvart er hinn almenni aðdáandi. Hann hefur farið mikinn á spjallborðum og kaffistofum eftir tapleiki, en horfið eftir sigurleiki. Hann er búinn að gleyma öllu sem talað var um fyrir mót um uppbyggingu á Hlíðarenda, því að búa til nýtt lið og þá staðreynd að Gulli Jóns tók við andlega gjaldþrota meistaraflokki. Margoft í sumar er ég búinn að spyrja mig að því á hverju menn áttu eiginlega von fyrir mót? Héldu menn að lið með 5-6 nýja byrjunarliðsmenn myndi hlaupa heim með dolluna? Evrópusæti?
Skil þetta ekki alveg, enda er það ekki enduruppbygging í mínum huga að ætlast lið þess að ungur þjálfari byggi Róm á einum degi.
Hvern þurfum við mest að óttast (besti leikmaður)?
Besti leikmaður Vals í ár og vonandi næstu tíu ár er Haukur Páll Sigurðsson. Púnktur.
Hvar liggja helstu veikleikar Valsara, það má alveg segja frá þeim, ég lofa að kjafta ekki?
Þeir liggja í litlu sjálfstrausti, frekar hægu liði heilt yfir og að okkar sterkasta lið er ekki enn fundið.
Nú fengum við Viktor Unnar í síðasta leikmannaglugga og hefur hann reynst okkur vel, en gerðist eitthvað meira hjá ykkur á þessum tíma og hvernig finnst þér þeir leikmenn sem gengið hafa til liðs við Val 2010 hafa verið að nýtast liðinu?
Ég er búinn að vera mjög ánægður með nýju leikmennina. Þeir hafa flestir spilað vel. Ég fæ ekki nóg af að lýsa ást minni (platónskri) á Hauki Páli, Jóni Vilhelm hafði ég ekki mikla trú á fyrir mót en hann hefur verið að koma til, Stefán bakvörður minnir mig á sjálfan mig þegar ég var að spila (nema að hann er actually góður í fótbolta, kannski meira svona minnir hann mig á sjálfan mig eins og ég hefði viljað vera), Rúnar Már er framtíðarmiðjumaður í liðinu og útlendingarnir eru búnir að vera bara ágætir.
Hvernig kemur Gulli til með að spila þennan leik (líklegt byrjunarlið/leikkerfi)?
Það er hið sívinsæla 4-3-3 sem ríður rækjum á Valsheimilinu en byrjunarliðið er álíka ágiskanlegt og næstu úrslit Liverpool
Hef spurt áður en reyni aftur nú (leti sjáðu til), ef þú mættir fá einn úr Selfoss í Val, hver yrði fyrir valinu?
Sá sem er skemmtilegastur í klefanum og getur spilað báða hálfleikina af fullum krafti! -> (innsk. sem sagt Tommi Þórodds)
Megum við ekki búast við góðri mætingu Valsmanna á leikinn?
Ég er ekki endilega viss um það, enda tímasetningin á honum ekki alveg hugsuð með vinnandi fólk í huga. Ég sjálfur mæti hinsvegar, enda veit ég fátt skemmtilegra en að keyra niður Kambana og reyna svo að muna eftir hraðamyndavélunum hjá Kotstrandarkirkju. Það er pláss fyrir einn aftan á mótorhjólinu mínu Valsmenn ef einhvern vantar far!
Ætlar þú sjálfur að mæta og þá jafnvel kíkja í Pylsuvagninn eftir leik?
Það held ég að sé nánast 101% öruggt. Ég vil minna frændur mína á Selfossi á það að pylsu á að snæða með tómatsósunni neðst, steikta lauknum þar fyrir ofan og remúlaðinu efst. Þetta er þrautreynt og aðrar útgáfur eru villutrú.
Hvernig fer og hverjir skora?
Ég held að Jón Vilhelm Ákason skori í 0-1 sigri Vals. Hann hefur verið að koma sterkur inn upp á síðkastið. En markið verður ljótt, það er öruggt.
Heiða í Dal heitir í raun Björgvin og þökkum við honum kærlega fyrir sitt innlegg í umræðuna
Babú
Unnið að mestu úr grein á Sunnlenska.is (sem ég gerði reyndar líka).
Selfoss og Þróttur Reykjavík skildu jöfn í fyrri leik liðanna í undanúrslitum 1.deildar kvenna. Lokatölur voru 1-1 og því ljóst að um hörkuleik verður að ræða í Laugardalnum næstkomandi miðvikudag enda tryggir sigurvegari þessa einvígis sér sæti í efstu deild á næsta ári.
Helena gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir þennan leik, Veronika var t.d. ekki með og í stað hennar kom bara ynga módelið af henni í miðvörðin eins var Anna María færð í bakvörðin til að kljást við fljóta kantmenn Þróttara, liðið var því svohljóðandi:
Liðið var svona:
Bekkur: Aníta G, Íris, Guðbjörg, Fransiska og Sif
Thelma Sif var djúp á miðjunni og Anna Þorsteins aðeins fyrir framan hana. Aníta Lísa var svo á mið miðjunni á meðan Eva Lind og Gumma voru mun framar. Þ.e.a.s. þessi liðsuppstilling er kannski ekki alveg 100% rétt enda takmörk fyrir því hvað ég er snjall í word press. Eva Lind og Gumma skiptust á að vera á hægri og vinstri kanti og hlupu allann leikinn í kringum Olgu sem beið eins og hrægammur á teignum.
Leikurinn fór annars rólega af stað og greinilegt að mikið lá undir, sól og blíða var á Selfossi og aðstæður hinar ágætustu fyrir um 400 áhorfendur sem lögðu leið sína á gervigrasvöllinn. Eftir 26.mínútna leik tókst Selfyssingum þó að brjóta varnarmúr gestana á bak aftur er hin stórefnilega Guðmunda Brynja Óladóttir lagði boltann örugglega í netið eftir frábæra undirbúning frá hinni 15 ára Evu Lind Elíasdóttir. Fimm mínútum seinna var heimaliðið ljónheppið að fá ekki dæmt á sig víti er Margrét Hólmgeirsdóttir komst í gegn og virtist ná að sparka í boltann á undan Dagnýu Pálsdóttir markmanni Selfyssinga. En dómarinn Smári Stefánsson var með allt sitt á hreinu og dæmdi einungis hornspyrnu við litla hrifningu Þróttara.
Þróttarstúlkur mættu sprækar í seinni hálfleikinn og er rúmlega korter var liðið af honum komst Margrét Hólmgeirsdóttir ein í gegn eftir gott hlaup upp vinstri kantinn og lagði boltann af öryggi í fjærhornið án þess að Dagný markmaður næði að koma neinum vörnum við. Eftir jöfnunarmarkið var leikurinn tiltölulega rólegur, Dagný í markinu þurfti varla að koma við boltann það sem eftir lifði leiks og Selfyssingum gekk illa að sækja að marki gestanna fyrir utan tvær úrvals tilraunir frá Guðmundu Brynju. Fyrra færið kom eftir frábæra sendingu frá Önnu Þorsteinsdóttir sem sendi Guðmundu eina í gegn en Ása Aðalgeirsdóttir markmaður Þróttar var vel á verði. Seinna færið kom síðan í uppbótartíma er Guðmunda átti hörkuskot fyrir utan teig sem Ása markvörður gestana varði meistaralega.
Niðurstaðan því 1-1 jafntefli í hörkuleik.
Næsti leikur er á fáránlegum tíma í Laugardalnum, á miðvikudaginn klukkan 17:30 og rétt úrslit í þeim leik gætu þýtt sæti efstu deild og því óhætt að hvetja alla sem mögulega eiga á því kost að mæta á völlinn.
Babú
Þá er loksins komið að því. Selfyssingar leika til úrslita um sæti í Pepsi deild kvenna að ári og fá Þrótt Reykjavík í heimsókn í fyrri leik liðanna. Þróttur endaði í 1.sæti í A-Riðli í 1.deild en Selfoss hafnaði í því 2. í B-riðli. Athygli vakti að í báðum riðlunum enduðu toppliðin 2 með jafnmörg stig en úrslitin réðust á markatölu liðanna.
Selfoss og Þróttur hafa mæst nokkrum sinnum síðan mfl var stofnaður. Liðin tvö léku í lengjubikarnum í sama riðli bæði í ár og í fyrra og einnig léku liðin í sama riðli á Íslandsmótinu í fyrra.
Saga þessara liða sem mfl. síðan í lengjubikarnum 2009 er sú að Selfoss er með 2 sigra og Þróttur 1 og liðin gerðu svo jafntefli 1 sinni.
Leikurinn á morgun hefst kl.14:00 á Selfossvelli og hvetjum við ALLA Selfyssinga til þess að koma og styðja við bakið á stelpunum í þessari baráttu!
Seinni leikur liðanna fer svo fram á miðvikudaginn, 1. sept á Valbjarnarvelli (í Laugardalnum) kl.17:30.
Samkvæmt öruggum heimildum Selfoss.org er Guðjón Þórðarson EKKI að fara að taka við Selfossi í haust, né nokkurn tímann á þessu árþúsundi.
Leiðinlegur leikur, ömurlegur völlur og gott veður.
Lítið um þennan leik að segja sem kemur ekki fram í fyrirsögninni. VIð vorum örlítið slakari aðilinn en léleg varnarvinna varð til þess að Fram skoraði 3 og óheppni til þess að við skoruðum bara 1. Áttum svo sem alveg skilið að tapa. Girðum okkur í brók og vinnum Val á mánudaginn, gaman að Gulli kveðji Val með tapi.
Annars er rétt að taka það fram að Laugardalsvöllurinn er bjánalegasta mannvirki á Íslandi, það ætti að grafa það upp og senda til Brussel svo það sé hægt að semja einhverskonar reglugerð sem tekur á heimskulegum mannvirkjum, maður sit nær Nasa en miðlínunni og það er bara ekki hægt að byggja upp stemmningu í þessum steypuklump.
LAUGARDALSVÖLLUR ER GRAFHÝSI ÍSLENSKS FÓTBOLTA.
Á mánudag mæta Selfyssingar í Laugardalinn og þar taka á móti þeim, á sjálfum þjóðarleikvanginum,Framarar. Fram tapaði fyrir KR í síðustu umferð á meðan Selfyssingar kenndu landsmönnum hvernig á að vígja nýja velli og unnu Keflavík 3-2 eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik. Eftir þennan sigur eru Selfyssingar í 11. sæti Pepsideildar með 14 stig, en Fram er í því 8. með 20 stig. Heimasíða Selfoss vill sérstaklega benda á breyttan leiktíma vegna birtuskilyrða á norðurhveli jarðar, en nú og í næstu leikjum munu leikir hefjast kl 18.00.
Er Selfyssingar mættu Keflavík í síðustu umferð höfðu þeir aldrei unnið þá í leik á vegum KSÍ og það sama er upp á teningnum nú gegn Fram. En Selfyssingar eru í því að brjóta múra þessi árin og ætti sigur í Laugardalnum að vera sársaukalaus með öllu. Selfoss og Fram hafa einungis leikið 4 leiki á vegum KSÍ og er tölfræðin 3-1-0 Fram í vil.
Lið Selfoss og Fram hafa mæst tvívegis í Lengjubikarnum á s.l tveimur undirbúningstímabilum. Liðin mættust í Egilshöll í ár, þar sem Fram vann 3-1, hér er hægt að lesa umfjöllun um þann leik. Liðin áttust einnig við á Selfossvelli fyrir rúmlega ári síðan og sá leikur endaði 1-1. Hægt er hægt að lesa umfjöll um þann leik hér. Fyrri leikur liðana í deildinn endaði með 1-2 sigri Fram þar sem Jón Guðbrandsson kom Selfyssingum yfir. Hér má sjá leikskýrslu frá þeim leik.
Nokkrir leikmenn og þjálfarar hafa komið við sögu hjá báðum liðum. Sumarliði Guðbjartsson markahrókurinn mikli spilaði í eitt ár með Fram, eins og fyrsti unglingalandsliðsmaður Selfyssinga Gylfi Þ. Gíslason. Ingó Tóta spilaði 9 leiki með Fram í 1. deildinni áður en hann kom aftur heim á Selfoss. Halldór Björnsson markmannsþjálfari var eitt tímabil á „bekknum“ hjá Fram og varð bikarmeistari með þeim. Kjartan Sigurðsson núverandi leikmaður Selfoss tók 2. flokkinn með Fram áður en hann kom aftur í sveitina. Jón Guðni Fjóluson leikmaður Fram og verðandi atvinnumaður í knattspyrnu á næstu dögum hefur ekki ennþá leikið með Selfyssingum, en var þó í Knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi. Glöggir lesendur sjá strax ósamræmið í þessu því allir þessir leikmenn hafa farið frá Selfossi í Fram. En til að gæta sanngirni þá borguðu Framarar okkur með Hlöðveri Erni Rafnssyni, sem reyndar náði ekki að spila með Selfoss, en hefur látið margt annað gott af sér leiða fyrir knattspyrnu á Selfossi.
Síðustu sex leikir liðana líta svona út, síðasti leikur talin upp aftast.
Selfoss J-T-T-S-T-S
Fram T-T-T-S-T-T
Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Martin, Agnar Bragi, Jón Guðbrands, Gummi Tóta, Gunni Borgþórs, Stepan Yao Yao, Arilíus, Jón Daði, Viktor Unnar og Sævar Þór. Andri Freyr kemur aftur inn eftir leikbann, en hann hefur oftast verið byrjunarliðsmaður, eins er Stefán Ragnar að jafna sig eftir meiðsli og gæti komið inn. Ottó og Viðar áttu báðir frábærar innkomur síðast og gera örugglega tilkalls til byrjunarliðssætis, en fá auðvitað ekki.
Líklegt byrjunarlið hjá Fram er: Hannes Þór, Daði, Jón Guðni, Kristján Hauks, Samuel Tillen, Jón Gunnar, Halldór Hermann, Tommi Leifs, Almarr, Tom Tillen og Hjálmar.
Lykilleikmenn Fram eru Halldór Hermann Jónsson frá Neskaupsstað, en hann kom með Þorvaldi frá Fjarðarbyggð, Akureyringurinn Almar Ormsson, sem er frændi Þorvaldar og svo Þorlákshafnarbúinn Jón Guðni Fjóluson sem er á leið í atvinnumennsku.
Þorvaldur Örlygsson er á sínu 3. ári hjá Fram og hefur sýnt að hann er hörku þjálfari. Hann stýrði Fram í bikarúrslitaleikinn í fyrra og lenti í 3. og 4. sæti deildarinnar fyrri tvö árin sín hjá Fram. Þriðja árið er oft erfitt hjá þjálfurum á Íslandi, en Fram siglir nú nokkuð lygnan sjó í deildinni. Þorvaldur er íhaldssamur og hefur t.a.m einungis notað 18 leikmenn í Pepsídeildinni í ár á meðan Selfyssingar hafa notað 24 leikmenn. Áður hefur Þorvaldur þjálfað KA og Fjarðarbyggð með góðum árangri.
Dómari leiksins á mánudag er klárlega einn besti dómari landsins og einnig koleggi greinarhöfundar, en það er Magnús Þórisson. Magnús hefur dæmt eina þrjá leiki hjá Selfyssingum í sumar og alltaf skilað sínu hlutverki með sóma. Honum til aðstoðar eru Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson. Eftirlitsmaður á leiknum verður Björn Guðbjörnsson.
Hér er hægt að sjá heimasíðu Fram, en hún er nokkuð góð og með virkt spjallborð sem er alltaf gaman. Stemmningin er reyndar ekkert gríðarleg hjá hinu hressa Framliði eins og vel má sjá á þessari stuðningsmannasíðu þar sem næsti leikur liðsins er auglýstur gegn Keflavík þann 15. júní, eins og sjá má hér.
Veðrið í Lagardalnum verður fínt á mánudag. Hiti 14 stig, léttskýjað, þurrt og norð-austan 5 metrar á sekúndu.
Stelpurnar okkar töpuðu í Vestmannaeyjum núna áðan 6-0. Ítarlegri skýrsla kemur væntanlega inn seinna í dag eða á morgun en það er þá ljóst að þær fá Þrótt Reykjavík í undanúrslitum. Það er borðleggjandi að stelpurnar geta vel unnið Þrótt og hef ég sjaldan verið jafn viss um nokkuð á ævinni og að við komum til með að fara á Úrvalsdeildarleiki hjá bæði karla og kvennaliðunum okkar á næsta ári.
Áfram Selfoss og Áfram Stelpur.
Þá er komið að síðasta leik Selfoss í riðlinum en hann verður gegn ÍBV á Hásteinsvelli á morgun kl.14:00.
Selfoss sigraði í miklum baráttuleik í fyrri umferð liðanna á Selfossvelli 3-2 eftir að hafa lent 0-1 undir. Katrín Ýr skoraði öll mörk Selfoss.
Sigrar Selfoss ÍBV á morgun fer liðið taplaust inn í úrslitakeppnina og landar 1.sætinu í riðlinum. Selfoss mun þá að öllum líkindum leika gegn Keflavík til úrslita um sæti í Pepsi-deildinni að ári. En það kemur í ljós síðar. Selfoss-stúlkum dugar þó jafntefli til þess að halda 1.sætinu en tapi þær þá falla þær í 2. sæti riðilsins því ÍBV hefur betri markatölu.
Þó nokkuð af Selfyssingum munu mæta á leikinn og heyrst hefur að uppselt sé í Herjólf með 10:30 ferðinni.
Áfram Selfoss!!

| leikjafj. | ||||
![]() |
| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



