Leiðinlegur leikur, ömurlegur völlur og gott veður.
Lítið um þennan leik að segja sem kemur ekki fram í fyrirsögninni. VIð vorum örlítið slakari aðilinn en léleg varnarvinna varð til þess að Fram skoraði 3 og óheppni til þess að við skoruðum bara 1. Áttum svo sem alveg skilið að tapa. Girðum okkur í brók og vinnum Val á mánudaginn, gaman að Gulli kveðji Val með tapi.
Annars er rétt að taka það fram að Laugardalsvöllurinn er bjánalegasta mannvirki á Íslandi, það ætti að grafa það upp og senda til Brussel svo það sé hægt að semja einhverskonar reglugerð sem tekur á heimskulegum mannvirkjum, maður sit nær Nasa en miðlínunni og það er bara ekki hægt að byggja upp stemmningu í þessum steypuklump.
LAUGARDALSVÖLLUR ER GRAFHÝSI ÍSLENSKS FÓTBOLTA.
Stelpurnar okkar töpuðu í Vestmannaeyjum núna áðan 6-0. Ítarlegri skýrsla kemur væntanlega inn seinna í dag eða á morgun en það er þá ljóst að þær fá Þrótt Reykjavík í undanúrslitum. Það er borðleggjandi að stelpurnar geta vel unnið Þrótt og hef ég sjaldan verið jafn viss um nokkuð á ævinni og að við komum til með að fara á Úrvalsdeildarleiki hjá bæði karla og kvennaliðunum okkar á næsta ári.
Áfram Selfoss og Áfram Stelpur.
Það er nú ekki flókið að skrifa um þennan leik. Í fyrri hálfleik var lítið að gerast. Ég myndi ekki segja að við höfum verið lélegir en það vantaði eitthvað ákveðið element í okkur, Sveinn Helgason fréttamaður með meiru orðaði það vel og sagði að strákarnir væru hreinlega of kurteisir í fyrri hálfleik. Einar Ottó gerbreytti því enda ekki þekktur fyrir pempíuskap og kurteisi. Seinni var frábær skemmtun, strákarnir spiluðu með hjartanu og jörðuðu Keflvíkinga, þess má til gamans geta að það voru líkast til fleirri Keflvíkingar í liði og liðsstjórn en í stúkunni. Stemmningin var frábær í liðinu og hún smitaði yfir í hina glænýju Babústúku.
Seinni hálfleikur var líkast til það besta sem ég hef séð til Selfossliðs og með svona spilamennsku þurfum við ekki að hafa miklar áhyggjur af framhaldinu í deildinni.
Uppfært (Babú):
Þetta er ekkert flókið, í kvöld átti sér stað einn af hápunktunum í sögu knattspyrnudeildar Selfoss…. æ fokk it ég hræri í almennilega umfjöllun.
Stutt upphitun þar sem það er ansi mikið að gera hjá síðuhöldurum þessa dagana.
Við förum á Vodafone völlinn í annað sinn í sumar á morgun og mætum þar botnliði Hauka.
Síðast þegar við fórum á Vodafone völlinn spiluðum við við systurfélag Hauka ránfuglinn og töpuðum þar frekar ósanngjarnt. Fyrri leikurinn gegn Haukum er líklegast einn sá besti sem liðið hefur spilað í sumar, allir á fullu gasi og við tókum þá í kennslustund 3-0, Sævar, Jón Daði og Alli með mörkin(ksí vill samt meina að Daði Lár hafi skorað sjálfsmark en ekki Alli, sem er náttúrulega algert bull!!).
Þessi leikur er svokallaður MUST WIN leikur. Bæði eru liðin búin að fá það í andlitið í sumar hve mikill styrkleikamunur er á fyrstu deild og Úrvalsdeild og hafa átt erfitt uppdráttar. Haukar hafa til að mynda ekki enn unnið leik í úrvalsdeild en eru þó aðeins 1 stigi á eftir okkur. Við erum svo 1 stigi á eftir Grindavík í 10. sæti.
Það er nú þannig að við ætlumst til þess að strákarnir taki þennan leik og sýni Haukum hvar Davíð keypti ölið. Persónulega hefur mér alltaf verið hálf illa við Hauka, það gætu verið tengslin við Ránfyglið á Hlíðarenda, það gæti verið það að við höfum þurft að berjast við þá sí og æ. Það gæti verið að þeir voru og eru duglegir við að nappa góðum handboltamönnum frá okkur en líklegasta ástæðan er samt Petr Bamruk.
Líklegt byrjunarlið Selfyssinga er orðið skemmtilega erfitt að spá í en ég tel að það muni haldast nánast óbreytt frá síðasta leik. Jói í marki, Martin og G.T. í bak. Bragi og Stebbi Raggi í miðri vörninni. Frændurnir GUðbrands og Ottó á miðri miðjunni. JáJá og Jón daði á köntum og svo vil ég fá Alla Matt inn með Sævari.
s.s.
Jói.
Martin-Bragi-Stebbi-Gummi T.
Jájá – Bóló-Alli – Jón Daði
viktor
Sævar.
Það hafa leikmenn spilað með báðum liðum er ég viss um en mér er skítsama um það. Leikmennirnir sem eru núna skipta öllu máli. Haukar hafa mjög góðan markmann sem er þó mistækur og gamall, miðverðirnir eru þungir og gamlir og svo er þeirra aðalkall fram á við eldri en Hafnarfjörður svo eru nokkrir gaurar hjá þeim sem heita Hilmar.
Spá Orgsins. 1-3 sigur Selfyssinga og Sævar setur öll.
* breytti uppstillingunni því frændurnir eru í banni.
Stelpurnar fengu rúmlega góðan liðstyrk á síðasta degi félagaskiptagluggans þegar Olga Færseth ákvað að skottast austur yfir fjallið og gera sitt besta til að leysa Katrínu af sem meiddist lítillega um daginn. Allir sem einhvern tíman hafa fylgst með fótbolta þekkja til Olgu, hún er prótótýpan af markaskorara með 267 mörk í 217 leikjum í Úrvalsdeild eða 1,24 mörk í leik, ekki slæmt það, svo er hún líka liðtæk í körfubolta.
Olga í leik með KR.
Stelpurnar fengu líka annan markmann hana Dúfu Dröfn Ásbjörnsdóttur. Hún hefur spilað með Keflavík og Breiðablik í úrvalsdeild en kemur frá Hetti. Hún er líka góð í körfubolta eins og Olga, var fyrirliði hjá Hamri og spilað með unglingalandsliðum í báðum sportum og hefur unnið sér það til frægðar að hafa kennt með mér á Hellu einn vetur, þá má til gamans geta að hún er rauðhærð.
Dúfa í leik gegn ránfuglinum.
Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar og vonandi að þær hjálpi okkur að ná því takmarki að spila í úrvalsdeild á næsta ári.
Það er óneitanlega meira gaman að skrifa um leiki meistaraflokks kvenna en karla akkúrat núna. Stelpurnar eru á blússandi siglingu skora að meðaltali 6 mörk í leik og fá á sig tæplega 1. Þannig að þetta var bara formúluleikur. Engin af fastapennum orgsins komst ekki á hann. Undirritaður var upptekinn við hreiðurgerð(hljómar gay) og Babú hefur verið að leika sér einhverstaðar með prik, bolta og Óla Magna(ennþá meira gay!).
En við höfum náð að súmmera saman smá um leikinn. Stelpurnar byrjuðu víst illa, en það er gamalt trick, mótherjarnir færa sig framar skora mark og halda að Selfossblaðran sé sprunginn og skilja ekkert í því hvað menn eru að pípa um þessa hrikalega litlu ljóshærðu stelpu frammi. En það hefur komið á daginn að hún Katrín Ýr er fljótari en Sævar Gísla miðað við höfðatölu og slúttar betur en Ruud Van Nistelrooy ef sama höfðatala er notuð. Hún smellti tveim mörkum í leiknum, Gumma sem er líklegast eitthvert efnilegasta sparkkvikyndi sem komið hefur fram á Selfossi síðan Palli Guðmunds hélt á lofti í íþróttahúsinu 82 setti líka tvö og svo ein sem gleymist allt of oft, Anna María systir Katrínar setti tvo önnur til að halda meðaltalinu og stelpurnar rúlluðu upp Fram á 50 mínútum sléttum. Stelpurnar ennþá taplaustar og stefna hraðbyri á Úrvalsdeildina þar sem þær eiga svo sannarlega að vera.
Katrín og Anna fagna marki. GK, sunnlenska.is
Það eina sem hægt er að segja eftir þennan leik er einfaldlega. Afhverju gat bróðir Önnu og Katrínar ekki verið góður í fótbolta?
Selfoss tapaði fyrir KR og Skjálfti tapaði fyrir Miðjunni í kvöld.
Það er lítið hægt að segja um leikinn í sjálfu sér. Eins og oft áður í sumar byrjuðum við af krafti vorum óheppnir að setja ekki mark strax á fyrstu mínútu og pressuðum vel. Fengum einar fjórar hornspyrnur á fyrsta kortérinu og vorum ágengir, KR-ingar létu boltann ganga vel sín á milli og á 17 mín. fengu þeir horn og það er víst ávísun á hættu fyrir okkur, enda skoruðu KR-ingar sitt fyrsta mark og þar með var leikurinn búinn. KR tók yfirhöndina og völtuðu yfir fyrri hálfleikinn. Guðjón Baldvins kláraði leikinn með tveim nokkuð auðveldum og ódýrum mörkum.
KR missti Jordao Diogo útaf réttilega á 48. mín en það breytti engu. Það var ekki að sjá að við værum manni fleirri allan seinni hálfleikinn. Viktor Unnar, Martin,Jájá og Bóló spiluðu allir sína fyrsta leik fyrir liðið, Viktor byrjaði sprækur en virtist þreytast fljótt, Martin var seigur og Jájá og Bóló stóðu sig ágætlega. Jói var góður í markinu og af útileikmönnunum okkar var Ottó skítseigur, Jón Daði hljóp og Agnar varðist ágætlega.
Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hins vegar neikvæðnin og andleysið sem geislaði af áhorfendapöllunum. Það heyrðist lítið sem ekkert frá okkar stuðningsmönnum og það er ekki gott. Liðið er í gífurlega erfiðri fallbaráttu, þeirri jöfnustu í mörg ár og þá er það ómetanlegt að hafa góðan stuðning. Ég persónulega held ekki að stuðningsmenn Selfoss séu gloryhunterar sem stökkva frá borði þegar illa gengur, en þegar liðinu gengur illa er mun betra að hvetja liðið áfram og syngja heldur en að beina athyglinni að andstæðingunum eða dómaranum. Næsti leikur er á Vodafone vellinum gegn Haukum það er 6 stiga leikur ef einhverntíman hefur verið 6 tíma leikur spilaður á þeim velli. Sá leikur er ekki fyrr en eftir versló svo við stuðningsmenn getum pústað aðeins, blótað því sem þarf að blóta og mætt svo í botnlausri stemmningu á Vodafonevöllinn og rifið liðið í gang með stuðning sem á sér engan líkan á Íslandi. Við vissum það öll að liðið myndi ströggla í sumar, við vorum í deild í fyrra þar sem við höfðum nokkra yfirburði en í Pepsideildinni erum við nánast undantekningalaust litla liðið og þá þarf að styðja vel við bakið á strákunum, ef ætlunin er að sitja og bölsóttast yfir því hvað liðið er að spila vitlaust, að þjálfarinn sé að gera allt rangt eða að dómarinn sé bjáni þá er betra að sitja heima við útvarpið.
Loksins góðar fréttir Jájá og Bólú og Martin Dahlin eru allir búnir að skrifa undir samning við Selfoss. G.Ben er svartsýnn á að skiptin gangi í gegn fyrir leikinn gegn Fylki en það er væntanlega 100% öruggt að þeir verða með gegn KR.
Svo er Skoti á reynslu hjá okkur líka, hann heitir Stuart Kelly og lítið hefur heyrst af honum.