| Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Þá er komið að seinni leik Selfosskvenna gegn Þrótti um laust sæti í úrvalsdeild að ári. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 1.september á þeim skemmtilega tíma 17:30 á Valbjarnarvelli sem er í Laugardalnum.
Fyrri leikur liðanna lauk með jafntefli 1-1 í spennandi leik. Ljóst er að ef stelpurnar fara upp í úrvalsdeild skrifa þær í sögubækur knattspyrnunnar á Selfossi og það er eitthvað sem þú, kæri Selfyssingur, vilt ekki missa af !
Við hvetjum því alla Selfyssinga til þess að gera sér leið í bæinn og styðja við stelpurnar í þessari mikilvægu baráttu!
Ef þú ert Selfyssingur gef’mér klapp!
Þá er loksins komið að því. Selfyssingar leika til úrslita um sæti í Pepsi deild kvenna að ári og fá Þrótt Reykjavík í heimsókn í fyrri leik liðanna. Þróttur endaði í 1.sæti í A-Riðli í 1.deild en Selfoss hafnaði í því 2. í B-riðli. Athygli vakti að í báðum riðlunum enduðu toppliðin 2 með jafnmörg stig en úrslitin réðust á markatölu liðanna.
Selfoss og Þróttur hafa mæst nokkrum sinnum síðan mfl var stofnaður. Liðin tvö léku í lengjubikarnum í sama riðli bæði í ár og í fyrra og einnig léku liðin í sama riðli á Íslandsmótinu í fyrra.
Saga þessara liða sem mfl. síðan í lengjubikarnum 2009 er sú að Selfoss er með 2 sigra og Þróttur 1 og liðin gerðu svo jafntefli 1 sinni.
Leikurinn á morgun hefst kl.14:00 á Selfossvelli og hvetjum við ALLA Selfyssinga til þess að koma og styðja við bakið á stelpunum í þessari baráttu!
Seinni leikur liðanna fer svo fram á miðvikudaginn, 1. sept á Valbjarnarvelli (í Laugardalnum) kl.17:30.
Þá er komið að síðasta leik Selfoss í riðlinum en hann verður gegn ÍBV á Hásteinsvelli á morgun kl.14:00.
Selfoss sigraði í miklum baráttuleik í fyrri umferð liðanna á Selfossvelli 3-2 eftir að hafa lent 0-1 undir. Katrín Ýr skoraði öll mörk Selfoss.
Sigrar Selfoss ÍBV á morgun fer liðið taplaust inn í úrslitakeppnina og landar 1.sætinu í riðlinum. Selfoss mun þá að öllum líkindum leika gegn Keflavík til úrslita um sæti í Pepsi-deildinni að ári. En það kemur í ljós síðar. Selfoss-stúlkum dugar þó jafntefli til þess að halda 1.sætinu en tapi þær þá falla þær í 2. sæti riðilsins því ÍBV hefur betri markatölu.
Þó nokkuð af Selfyssingum munu mæta á leikinn og heyrst hefur að uppselt sé í Herjólf með 10:30 ferðinni.
Áfram Selfoss!!
Dagný P.
Aníta G. Þóra Veronika Sif
Gumma Thelma Dagný H.
Aníta L. Anna Þ.
Anna María
Bekkur: Lena, Guðbjörg, Eva Lind, Bríet og Íris Sverris.
Leikurinn byrjaði vel hjá Selfosskonum því á 11.mínútu skoraði Gumma eftir góða sendingu frá Önnu Þorsteins. Stelpurnar áttu kaflaskiptan leik í fyrri hálfleik og hleyptu Sindra-stúlkum heldur mikið inn í leikinn þrátt fyrir að þær fengu engin almennileg færi. Í seinni hálfleik fóru stelpurnar að spila betur en erfiðlega gekk að koma boltanum inn í netið. Selfoss fékk aukaspyrnu sem Anna Þorsteins tók en boltinn fór í slánna. Eins átti Aníta Lísa fínt færi inn í teignum en fékk dæmda hendi á sig. Á 70. Mínútu leiksins fékk leikmaður Sindra að lýta rauða spjaldið eftir að hafa slegið Önnu Maríu. Selfoss náði þrátt fyrir það ekki að nýta sér liðsmuninn til þess að koma boltanum yfir marklínuna enda pakkaði Sindri í vörn.
Þrátt fyrir að stelpurnar voru ekki að spila sinn besta fótbolta í sumar og erfiðlega gekk að skora fleiri mörk þá var sigurinn svo sem aldrei í hættu. Selfoss varð fyrir því áfalli í síðasta leik að Katrín Ýr, aðalmarkaskorari liðsins, meiddist og verður ekkert meira með í sumar.
Næsti leikur liðsins er á föstudaginn þann 13. Ágúst á Selfossvelli kl. 19:00
Selfoss mun taka á móti Fram annað kvöld á Selfossvelli og hefst leikurinn kl.20:00. Selfosskonur mættu Frömmurum á Framvelli í fyrri umferð liðanna og hafði Selfoss betur þá 1-7 en staðan var 2-1 í hálfleik. Fram tapaði naumlega fyrir sterku liði ÍBV nú á dögunum 2-1 og því ljóst að Frammarar munu ekki gefa neitt eftir gegn toppliðunum tveimur.
Allir á völlinn annað kvöld að hvetja stelpurnar áfram Selfoss !!
Við tókum hana Anítu Guðlaugsdóttur á tal nú þegar deildin er rúmlega hálfnuð hjá stelpunum og gengi þeirra verið mjög gott í sumar og hafa stelpurnar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Þær eiga því góðan möguleika á því að spila í úrvalsdeild kvenna að ári.
Nú þegar mótið er rétt rúmlega hálfnað hefur kvennalið Selfoss ekki tapað leik og unnið flesta þeirra mjög stórt og sannfærandi. Kemur þér gott gengi liðsins á óvart?
Við vorum með gott lið í fyrra en við erum með enn betra lið í ár. Áður en mótið hófst í fyrra gerðum við ráð fyrir að tapa stigum á móti sterkustu liðunum og settum okkur markmið út frá því en á þessu tímabili hafa stigin ekki verið í mikilli hættu. Riðlarnir í 1. deild kvenna voru mun jafnari í fyrra heldur en í ár. Með því að líta á stigatöflurnar í báðum riðlunum eins og staðan er núna þá lítur þetta út fyrir að vera tveggja liða mót í sitt hvorum riðlinum því samkeppnin virðist ekki vera mikil. Gengi okkar í sumar kemur ekki mikið á óvart því langflestar náðu að æfa vel í vetur og árangurinn eftir því. Við getum ekki verið annað en sáttar með að vera með fullt hús stiga, eiga 4 leiki eftir og vera búnar að tryggja okkur í úrslitakeppnina. En það er meira sem við ætlum okkur og það vonandi gengur eftir.
Nú styrktu þið ykkur ekki mikið fyrir átökin í sumar og spilið mest megnis á heimamönnum og uppöldum Selfyssingum, það hlýtur að vera góð tilfinning og gefur ungum stelpum á Selfossi eitthvað til þess að líta upp til ?
Við fengum nýjan þjálfara í haust sem vildi vinna með þann mannskap sem væri til staðar og treysti okkur fyrir verkefninu. Við erum með Anítu Lísu á láni frá FH og hefur hún smollið vel inn í liðið og verið góð viðbót við hópinn. En annars erum við með svipaðan hóp og í fyrra, nokkrar hættu eftir síðasta tímabil en aðrar hafa stigið upp eftir meiðsli og styrkt hópinn. Helena hefur gefið yngri stelpum úr 3. flokki tækifæri þannig að stelpur úr yngri flokkunum eiga möguleika á að sýna sig þegar tækifærin gefast. Loksins hafa ungar stelpur á Selfossi eitthvað til þess að líta upp til og sjá að 2. flokkurinn er ekki endastöð hér á Selfossi eins og hefur verið í nokkuð mörg ár. Vonandi verður meistaraflokkur kvenna, gott gengi liðsins og metnaðarfullur þjálfari til þess að fleiri leikmenn skili sér upp í meistaraflokk. Það er mikilvægt fyrir frekari uppbyggingu og getum við verið stoltar af því núna að liðið okkar innihaldi nánast eingöngu heimastelpur.
Þið tókuð ÍBV hér heima 3-2 í miklum baráttu leik eftir að hafa lent 1-0 undir, sýnir þessi leikur kannski hvað það er mikill karakter í liðinu?
Leikurinn á móti ÍBV einkenndist af mikilli baráttu og samstöðu í liðinu. ÍBV komst í 1-0 eftir gott spil og smá einbeitingarleysi af okkar hálfu. Við svöruðum því með þýðingarmiklu marki á 43. mín og staðan því 1-1 í hálfleik. Við vorum svo mun ákveðnari aðilinn í seinni hálfleik og skoruðum 2 mörk og staðan var orðin 3-1 á 81. mín. En ÍBV náði að laga stöðuna í 3-2 rétt áður en góður dómari leiksins flautaði leikinn af. Þessi leikur er gott dæmi um hvað það er mikill karakter í liðinu því eftir að ÍBV komust í 1-0 þá lét einn leikmaður ÍBV það út úr sér að þetta væri komið hjá þeim. Við misstum aldrei trúna á verkefninu, spiluðum skipulagðan varnarleik og nýttum færin okkar. Það skilaði okkur sigri á móti sterku liði ÍBV.
Hvernig heldurðu að liðið eigi eftir að plumma sig í úrvalsdeild að ári ef svo verður?
Það er erfitt að segja til um það og sérstaklega með það fyrir augum að sjá nýliðana, Hauka og FH, sitja á botni úrvalsdeildarinnar. Það sýnir að bilið á milli úrvalsdeildar og 1. deildar er þó nokkuð og Selfyssingar ættu að kannast við það úr karlaboltanum. Við eigum efnilegan hóp og erum með þjálfara sem veit alveg út á hvað þetta gengur þannig að ef við förum upp í úrvalsdeild þá væri ekki óraunhæft að fyrsta markmiðið yrði að halda sér í deildinni og síðan væri hægt að byggja ofan á það. Framtíðin er björt í kvennaboltanum á Selfossi og það væri ekki leiðinlegt að enda sumarið á því að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni og taka bikarinn fyrir 1. deildina.
Liðið komst í 8 liða úrslit í fyrra og var hársbreidd frá því að komast í 4 liða úrslit og hefðu þar af leiðandi mætt Völsungi. Selfoss hefði átt góðan möguleika á því að komast upp í úrvalsdeild í fyrra en hefði það verið of snemmt?
Við vorum svekktar í fyrra að klára þetta ekki á móti Haukum og komast áfram því við hefðum átt góða möguleika á móti Völsungi. En það hefði verið of snemmt fyrir okkar unga lið að fara upp í efstu deild með nýstofnaðan meistaraflokk eftir aðeins 1 tímabil í 1. deildinni. Tímabilið í fyrra var góð reynsla fyrir hópinn og hefur nýst okkur í sumar. Við viljum alltaf meira og gera betur og því er ljóst hvert liðið stefnir í ár.
Helena er greinilega að gera góða hluti á Selfossi, hvernig þjálfari er hún?
Helena hefur lyft kvennaboltanum á Selfossi á enn hærra plan sem er frábært fyrir okkur sem leikmenn, fyrir félagið og fyrir stelpurnar sem eru í yngri flokkunum. Það er ekki til í hennar orðabókum að gefast upp, sýna lélega spilamennsku og skora minna en 6 mörk í leikjum ;-) Helena er með góðar æfingar, mikið tempó er á æfingum og svo á hún það til að vera nokkuð léttlynd inn á milli þannig að það er lítið hægt að kvarta yfir þessari blöndu sem þjálfarinn býr yfir.
Það er nauðsynlegt að opinbera það hér á selfoss.org að Helena tók áskorun að ef við myndum vinna ÍBV að þá mættum við láta hana gera allan fjandann. Hún var orðin eitthvað smeyk og gaf okkur stuttan tíma til að finna upp á einhverju þannig að systurnar Veronika og Bríet tóku sig til og fengu sparigallann lánaðan frá mömmu þeirra og Helena stjórnaði okkur á æfingu í þessum glæsilega klæðnaði. Það er ekki hægt að neita því að erfitt var að taka hana alvarlega í þessari marglituðu dragt á æfingunni en hún má eiga það að þetta fer henni afar vel.
Nú eigið þið 4 leiki eftir í deildinni og við tekur svo úrslitakeppnin og stefnir allt í að Selfoss fari í hana, hversu mikilvægir eru þessir leikir sem eru framundan fyrir liðið?
Það varð ljóst eftir sigurinn á móti ÍR að við værum búnar að tryggja okkur í úrslitakeppnina og er gott að vita af því þegar 4 leikir eru eftir. Leikirnir sem við eigum eftir í deildinni eru heimaleikir á móti Fram og Fjölni og svo útileikir á móti Sindra og ÍBV. Það eru 12 stig í pottinum og mikilvægt að ná þeim öllum til að halda 1. sætinu í riðlinum.
Að lokum, getur þú útskýrt fyrir þeim sem ekki vita hvernig úrslitakeppnin fer fram og hvaða leið Selfoss-liðið þarf að fara til þess að ná sér í sæti í úrvalsdeild að ári ?
Úrslitakeppnin hefur tekið breytingum frá því í fyrra en þá voru 8 lið sem komust í úrslitakeppnina, 4 lið úr hvorum riðli. Við lentum t.d. í 3. sæti okkar riðils í fyrra og fengum tækifæri til að koma okkur upp um deild og munaði litlu að það tækist. Núna komast 4 lið í úrslitakeppnina, 2 efstu lið úr hvorum riðli. Úr B riðli verða það Selfoss og að öllum líkindum ÍBV, en þeim vantar 1 stig til að tryggja sér sæti þar. Úr A riðli er Þróttur búið að tryggja sér í úrslitakeppnina og eins eru allar líkur á því að Keflavík verði þar líka. Liðið sem endar í 1. sæti A riðils mun spila heima- og útileik við liðið í 2. sæti B riðils og liðið í 1. sæti B riðils mun spila heima og úti við liðið í 2. sæti A riðils. Með samanlögðum sigri í heima- og útileikjunum tryggja sigurliðin sér sæti í Pepsi deild kvenna. Síðan fer fram úrslitaleikur milli þessara sigurliða um hvort liðið sigrar 1. deildina.
Eins og staðan er í riðlunum núna myndu annars vegar Selfoss og Keflavík mætast og hins vegar Þróttur og ÍBV. En enn eru 4 leikir eftir í B riðli hjá toppliðunum og 3 í A riðli þannig að of snemmt er að segja til um hvort þetta muni enda svona því toppliðin eiga eftir að mætast í báðum riðlunum.
Allir á völlinn á þriðjudaginn 27. Júlí, Selfoss – Fram, kl. 20:00 á Selfossvelli.
Selfoss sótti öll 6 stigin þegar liðið hélt austur á föstudaginn síðasta. Hér kemur örstutt ferðasaga og umfjallanir um leikina.
Stelpurnar byrjuðu á því að fara til Neskaupsstaðar á föstudagskvöldið til þess að leika gegn Fjarðabyggð/Leikni. Það var ekkert grín að komast þangað því í fyrsta lagi þarf maður að fara yfir risastórt fjall, einbreið göng og í þokkabót var svarta þoka svo ekki sást á milli stika. En það gerði ferðina bara enn skemmtilegri.
Byrjunarlið gegn Fjarðabyggð/Leikni:
Dagný
Aníta Þóra Veronika Sif
Katrín Thelma Dagný H.
Aníta L. Anna Þ.
Anna M.
Bekkur: Lena, Eva Lind, Guðbjörg, Bríet og Íris Sverris
Selfoss var með yfirhöndina á leiknum mest allan tíman og var staðan 2-0 í hálfleik eftir mörk frá Önnu Maríu og Katrínu. Fjarðabyggð missti leikmann útaf á 39.mínútu og í seinni hálfleik komust Fjarðabyggðar-stúlkur varla yfir miðjuna. Katrín bætti við 3 mörkum í seinni hálfleik, Anna María og Eva Lind svo sitthvoru. Lokastaðan því 7-0 og stelpurnar komnar með 3 stig af 6 mögulegum yfir helgina.
Á laugardeginum var svo létt æfing á Egilsstöðum, jogg og teygjur og skellt sér í heita pottinn. Stelpurnar gistu í félagsmiðstöð grunnskólans líkt og í fyrra. Eftir sund fengu stelpurnar ljúffengt lasagne og meðlæti sem Auður (liðsstjóri), Árný og Friðgeir sáu um að elda ofan í þær og viljum við þakka þeim kærlega fyrir að hugsa um liðið svona vel án þeirra hefðu þær bara étið hamborgara og pizzur í morgunmat ;)
Anna Þorsteins, eða ,,Gamla“ átti svo hálfrar aldar afmæli á laugardeginum og kom ein ljúffeng Betty í heimsókn og fékk hún glæsilega afmælisgjöf frá hópnum. Gaman að segja frá því að Anna gleymdi að taka með sér handklæði í ferðina í fyrra og sá leikur endurtók sig í ár og fékk því nýtt handklæði í afmælisgjöf!
Eftir Betty-át fóru sumar að éta meira á meðan þessar frábæru fóru í bíltúr um Hallormsstað og biðu eftir bronsleik HM þar sem Þjóðverjar tóku þetta að sjálfsögðu. Annars var bara voða mikið kósý kvöld á laugardagskvöldinu og horft á eina klassíska stelpumynd og farið snemma í háttinn því leikur daginn eftir.
Á sunnudeginum var leikurinn gegn Hetti frá Egilsstöðum, var hann spilaður á Fellavelli sem er 5 mínútur frá Egilsstöðum. Sama byrjunarlið var í þeim leik nema nú kom Bára inn á bekkinn en Bára var að spila sinn fyrsta leik í 11 mánuði fyrir mfl.kvk en hún sleit krossbönd í hné sl. Sumar.
Strax eftir aðeins 17 sekúndur og í fyrstu sókn Selfyssinga skoraði Dagný H. eftir sprett upp vinstri kantinn. En Hattarstelpur voru ekki lengi að svara fyrir sig og skoruðu strax í sinni fyrstu sókn eftir sprett upp hægri kantinn og sofandigang í vörninni. Svo staðan var 1-1 eftir aðeins 1 mínútu.
Anna María náði að skora svo fyrir Selfosskonur fyrir hálfleik og staðan því 2-1 í hálfleik og ljóst að stelpurnar ætluðu að fara erfiðu leiðina í þessum leik. Í seinni hálfleik kom ,,nýtt“ lið inn á völlinn og gjörsamlega yfirspiluðu Hattarstelpur. Selfoss sótti látlaust og uppskáru 4 mörk, þrjú þeirra skoraði Katrín og Anna María bætti við sínu öðru marki og lokatölur því 6-1 á Fellavelli.
Liðið er því taplaust í riðlinum með 27 stig og markatöluna 53-9.
Næsti leikur stelpnanna er á mánudaginn, 19.júlí, kl. 20:00 á Selfossvelli gegn ÍR-ingum.
Stelpurnar í meistaraflokki halda austur á Egilsstaði í hádeginu á morgun en þær munu spila við Fjarðabyggð/Leikni annað kvöld kl.20 á Eskifirði.
Stelpurnar spiluðu síðasta sunnudag við Fjarðabyggð/Leikni og fór sá leikur 5-1 eftir að staðan var 0-1 í hálfleik fyrir gestunum. Þetta verður erfiður leikur hjá stelpunum því Fjarðabyggð á harma að hefna.
Stelpurnar spila svo á Egilsstöðum við Hött á sunnudaginn kl.14:00 en fyrri leikur liðanna fór 8-0 á Selfossvelli fyrir Selfyssingum.
Sannkölluð 6 stiga helgi ef allt fer vel fyrir stelpunum og vonum að þær komi heim með þau stig í poka.
Áfram Selfoss!
Selfosskonur komust í toppsæti B-riðils í 1.deild kvenna í dag þegar liðið tók á móti Fjarðabyggð/Leikni á Selfossvelli.
Byrjunarliðið var svo hljóðandi:
Dagný P.
Aníta Þóra Veronika Sif
Katrín Thelma Dagný H.
Anna Þ. Aníta
Anna María
Varamenn: Lena, Íris Sv., Eva Lind, Bríet, Guðbjörg.
Sigurinn var virkilega erfið fæðing hjá Selfosskonum en Fjarðabyggð/Leiknir komu ákveðnar til leiks og það var hálfgerður sofandiháttur í Selfossliðinu. Þær voru að koma boltanum allt of mikið inn í þvögupakka oft á tíðum og ekki að spila sinn bolta. Selfoss náði ekki að skapa sér mikið af færum í fyrri hálfleik og sendingarnar oft alltof fastar fyrir markið og góður markmaður gestanna var að verja mjög vel í markinu.
Á 20.mínútu fá gestirnir aukaspyrnu fyrir utan teig og nýttu sér hana því hún flaug beint í fjær hornið. Óverjandi og glæsileg spyrna.
Staðan var 1-0 í slökum fyrri hálfleik. En það var ekki uppi á teningnum í síðari hálfleik því Selfossstelpur komu nú ákveðnar til leiks og fóru að spila sinn rétta bolta og átti m.a. Anna María skot í stöngina. Og áfram var markmaður Fjarðabyggðar að verja vel í markinu.
Það gerðist svo loksins eftir stífar sóknir frá byrjun síðari hálfleiks að Selfoss fær hornspyrnu sem Dagný H. Skallar glæsilega í markið. Staðan því orðin 1-1 og ljóst að stelpurnar ætluðu að sýna hvað í þeim býr.
Eva Lind Elíasdóttir, 15 ára stelpa sem leikur með 3.flokki á Selfossi, kom inn á fyrir Önnu Maríu og stimplaði sig rækilega inn í lið Selfoss. Eva skoraði 2.mark Selfoss eftir klafs í teignum eftir hornspyrnu Selfyssinga.
Þriðja mark Selfoss kom eftir góða stungu sendingu frá Guðbjörgu, en hún kom inn á fyrir Önnu Þ., inn á Katrínu sem lék á markmann Fjarðabyggðar og lagði knöttinn í netið.
Aftur var svo Eva Lind á ferðinni þegar hún fær góða stungusendingu frá Katrínu og leikur á markmanninn og rennir knettinum í netið. 4-1 og Selfoss með yfirhöndina í leiknum.
Fimmta og síðasta markið kom þegar Selfyssingar fá dæmda vítaspyrnu og var það Katrín sem fór á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi.
Lokatölur 5-1 á Selfossvelli eftir slaka byrjun en enn og aftur sýndu stelpurnar karakter og koma til baka eftir að lenda undir.
Selfoss er nú í 1.sæti riðilsins með 7 sigra eftir 7 leiki og því fullt hús stiga eða 21 stig.
| 1 | Selfoss | 7 | 7 | 0 | 0 | 40 - 8 | 32 | 21 |
| 2 | ÍBV | 7 | 6 | 0 | 1 | 40 - 5 | 35 | 18 |
| 3 | ÍR | 8 | 4 | 0 | 4 | 14 - 24 | -10 | 12 |
| 4 | Fjarðabyggð/Leiknir | 7 | 3 | 1 | 3 | 13 - 18 | -5 | 10 |
| 5 | Fjölnir | 6 | 2 | 1 | 3 | 4 - 20 | -16 | 7 |
| 6 | Sindri | 7 | 2 | 0 | 5 | 12 - 22 | -10 | 6 |
| 7 | Fram | 7 | 1 | 2 | 4 | 9 - 19 | -10 | 5 |
| 8 | Höttur | 7 | 0 | 2 | 5 | 6 - 22 | -16 | 2 |
Það er kalt á toppnum en alls ekki leiðinlegt : )
Næsti leikur stelpnanna er svo aftur við Fjarðabyggð/Leikni á föstudaginn þann 9.júlí en þá fara stelpurnar austur yfir helgina og leika 2 leiki, við fyrrnefnt lið og Hött frá Egilsstöðum.
Stelpurnar fá Fjarðabyggð/Leikni nú næst í heimsókn og verður leikið á Selfossvelli kl.13:00 sunnudaginn 4.júlí.
Vonandi sjá sér flestir um að mæta og styðja stelpurnar því þetta mun vera mjög mikilvægur leikur og í raun snýst um hvort stelpurnar ætli að hirða 1. sætið í riðlinum.
Áfram Selfoss!

| leikjafj. | ||||
| 1 | ÍBV | |||
| 2 | Selfoss | |||
| 3 | Fjölnir | |||
| 4 | ÍR | |||
| 5 | Fb/Leikn | |||
| 6 | Fram | |||
| 7 | Sindri | |||
| 8 | Höttur | |||
![]() |



