Selfoss- ÍR á Eyrabakkavelli kl 18.00 í kvöld
26. apríl ´12 | Tomas |
Annað-Fréttir-mfl. karla-Undirbúningstímabil
Selfyssingar taka á móti ÍR í síðasta æfingaleik fyrir Pepsideildina. Leikið verður á Eyrabakkavelli og hefst leikurinn kl 18.00. Nú fer hver að verða síðastur að sjá nýju útlendingana okkar og eins okkar efnilegu stráka sem eru að stíga sín fyrstu spor meðal þeirra bestu.

Mikið vona ég nú að þetta sé ekki rétt. Frekar að nú fer hver að verða fyrstur …?
Svo það komi fram þá vannst þessi leikur 3-0 með mörkum frá Jon Andre sem komst einn gegn markmanni og kláraði færið vel yfir hann. Viðar bætti svo við tveimur mörkum í lokin eftir að hann kom inná sem varamaður. Ég spurði Viðar rétt áður en hann kom inná hversu mörg mörk hann ætlaði að skora i dag og hann svaraði tvö, þannig að þetta var mjög basic innkoma hjá honum eftir mánuð á meiðslalistanum.
Nigel Quashie aðstoðarþjálfari ÍR og fyrrverandi leikmaður í fallbaráttu Ensku Úrvalsdeildarinnar kom inná í seinni hálfleik og átti nokkuð eftirminnilega innkomu. Hann tjáði Babacar að hann hefði aldrei heyrt um hann eftir að hafa tæklað hann hressilega og fékk svo stuttu seinna rautt, í æfingaleik á Eyrarbakka, fyrir allt og glæfralega tæklingu. Hann gekk því niðurlútur útaf í sínum fyrsta leik og gekk í átt að Litla Hrauni, hvort hann afpláni bannið þar er óvíst… enda æfingaleikur.
Meðal leikmanna sem spiluðu ekki í dag voru Jón Daði, Joe Tillen, Stebbi Raggi, Sandnes og Gunnsi Garðars en þeir gætu allir verið klárir fyrir fyrsta leik í móti. Bara ekki tekið neina óþarfa sénsa með þá í dag. Það er hinsvegar eitthvað aðeins lengra í Jóhann Ólaf.
Minnum á leikmannakynningu annað kvöld.