Konukvöld meistaraflokks kvenna 2. mars
09. feb. ´12 | Selfoss | 0 athugasemdir
Fréttir
Þá er komið að því að meistaraflokkur kvenna haldi konukvöld í Tryggvaskála föstudagskvöldið 2. mars nk.
Konukvöld hjá meistaraflokki kvenna hefur verið ýmsu móti, allt frá notalegri kaffihúsastemmningu upp í brjálað stuð í Tryggvaskála líkt og var haldið veturinn 2010. Í ár verður því ekkert sparað í stuðinu og bjóða fótboltastelpurnar upp á skemmtun fram á kvöld. Tveggja rétta máltíð, fordrykkur í boði Set-manna, happadrætti með veglegum vinningum, tískusýning, tónlistaratriði og vínveitingar.
Skemmtunin er fyrir konur 16 ára og eldri
Miðaverð eru litlar 4000 krónur og má ekki gleyma því að þetta er fjáröflun fyrir stelpurnar sem eru að fara spila í úrvalsdeild kvenna í fyrsta skipti í sögu félagsins og þurfa á ykkar stuðningi að halda!
Hægt er að panta miða hjá Þóru í s. 694-6479 og Thelmu í s. 849-8511 En miðasala fer svo fram fimmtudagskvöldið 1. mars í Tíbrá frá kl.20:00-22:00
Nánari upplýsingar um dagskrá koma svo þegar nær dregur :)
Hvetjum allar konur að mæta og skemmta sér saman og um leið styrkja stelpurnar :)

