Tómas Leifsson búinn að skrifa undir
07. jan. ´12 | babu | 2 athugasemdir
Leikmenn-mfl. karla
Selfyssingar fengu góðan liðsstyrk í dag er Tómas Leifsson skrifaði undir 2 ára samning við félagið, sunnlenska.is greinir frá þessu.
Tómas hefur leikið með Frömurum síðustu tvö sumur en samtals lék hann 34 leiki fyrir félagið í deild og bikar og skorað í þeim fimm mörk. Áður hafði hann verið á mála hjá Fjölni í Grafarvogi þar sem hann spilaði 86 leiki og skoraði 29 mörk. Tómas er hinsvegar uppalinn í FH þar sem hann spilaði einn mfl. leik.
Tómas sem er 26 ára gamall og getur leikið allar stöðurnar í framlínunni. Hjá Fram spilaði hann bæði sem hægri og vinstri kantmaður. En hann getur líka spilað fyrir aftan sóknarmennina eða sem sóknarmaður. Hann lék aðeins átta leiki í Pepsi deildinni í fyrra vegna meiðsla en sagði í samtali við Fótbolta.net fyrr í vikunni vera á góðri leið með að ná fullum bata.
Tómas er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Selfoss frá síðasta tímabili en áður hafði Ólafur Karl Finsen gegnið til liðs við Selfoss.
Orgið býður Tómas að sjálfsögðu afar velkominn í Selfoss.
Að lokum verðum við að láta fylgja með Uppistand sem Tómas var með sem part af áskorun hjá Fótbolta.net. Ingó Tóta fékk t.a.m. smá skot á sig þar sem þeir fara líklega yfir á næstu æfingu :)

2 Comments
Babu alltaf skrefi á undan mér, þannig að ég set þetta bara hér :)
Tómas Leifsson gekk í dag til liðs við Selfoss. Hann verður 27 ára á árinu og er kantmaður og getur leyst báða kanta vel. Tómas, sem leikið hefur með u-17 og u-19 ára landsliði Íslands er uppalinn FH-ingur, en fékk þó fyrst tækifæri með meistaraflokk Fjölni er hann var 20 ára. Hann átti stóran þátt í því að hjálpa Fjölni að komast upp í efstu deild er hann skoraði 9 mörk í 19 leikjum.
Síðastliðin 2 ár hefur Tómas leikið með Fram og samtals spilað 34 leiki í deild og bikar fyrir liðið, en hann átti við meiðsl að stríða undir lok síðasta tímabils sem hann er að ná sér góðum af. Alls hefur Tómas spilað 66 leiki í efstu deild og skorað í þeim 7 mörk. Heimasíða Selfoss býður Tómas loksins hjartanlega velkomin á Selfoss.
Vertu velkominn Tómas!