
Tap gegn eyjamönnum í markaleik
22. jan. | Tomas | Annað - mfl. karla - Umfjöllun - UndirbúningstímabilSelfyssingar tóku í gær á móti ÍBV í öðrum leik sínum á fotbolti.net mótinu. Fyrir leikinn voru Selfyssingar með stig, en ÍBV ekki. Eftir fínan leik þar sem liðin skiptust á að hafa forystu unnu eyjamenn leikinn 3-4. Mörk Selfoss skoruðu þeir Ólafur Karl Finsen, Robert Sandnes og Viðar Örn Kjartansson.
Byrjunarlið Selfoss var eftirfarandi: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Nicolaj Pedersen, Andri Freyr, Ingó Tóta, Robert Sandnes, Jón Daði, Joe Tillen, Óli Kalli og Viðar Kjartans.
Leikurinn var í járnum fyrstu 10 mínúturnar, en fyrsta færi Selfyssinga fékk Robert Sandnes. Óli Kalli sá flott hlaup hjá honum og læddi boltanum á milli varnarmanna, markmaður ÍBV varði fast skot Robert Sandnes. Í næstu sókn fengu eyjamenn víti er brotið var á Víði Þorvarðar og Gunnar Már kom ÍBV í 0-1 úr vítaspyrnunni. Eftir markið voru Selfyssingar mun sterkari, en þó átti ÍBV hættulegt færi er Þórarinn Ingi slapp einn í gegn, en Jóhann Ólafur lokaði vel á hann.
Eftir um 20 mínúta leik átti Jón Daði góðan skalla rétt framhjá eftir horn. Fjórum mínútum seinna var brotið á Viðari rétt fyrir utan teig. Joe Tillen tók spyrnuna og setti boltann yfir. Á 28 mín stal Jón Daði boltanum á vallarhelmingi ÍBV, átti mjög góða sendingu inn á Viðar Örn sem var einn gegn markmanni, en hann lét verja frá sér.
Eftir rúmlega hálftíma leik var brotið á Joe Tillen er hann var að sleppa í gegn. Óli Kalli tók aukaspyrnuna og skoraði beint úr henni, en boltinn hafði viðkomu í varnarmanni. Staðan því orðin 1-1, markið var búið að liggja í loftinu og því um að gera að fylgja því eftir. Robert Sandnes var meira en til í það og aðeins tveim mín seinna stal hann boltanum á sínum vallarhelmingi, tók Zidan snúning og skildi tvo eyjamenn eftir. Lék upp völlinn, tók þríhyrningsspil við Viðar Örn áður en hann stakk sér framhjá restinni af varnarmönnum ÍBV og setti síðan boltann snyrtilega í netið. Virkilega vel af þessu marki staðið hjá Robert Sandnes og eins var Viðar Örn vakandi fyrir spili að venju.
Leikurinn róaðist nokkuð eftir þetta mark og heldu Selfyssingar boltanum meira. Staðan því 2-1 fyrir Selfoss í hálfleik. Í upphafi seinni hálfleiks átti Robert Sandnes frábæra sendingu inn í vítateig á Viðar Kjartans, en á honum var brotið án þess að dómarinn kæmi auga á það.
Selfyssingar skiptu svo þeim Inga Rafni og Magga inn fyrir Ingó Tóta og Óla Kalla.
Eyjamenn jöfnuðu 2-2 eftir 15 mín leik af seinni hálfleik. Eftir að Ingó Tóta hafði bjargað á línu var það Yngvi Borgþórs sem kom boltanum í netið hjá Selfoss. Á 72. mín kom Tryggvi Guðmunds ÍBV yfir með snyrtilegu marki. Þegar rúmlega tíu mínútur voru eftir var brotið á Viðari Kjartans innan teigs og nú dæmdi dómarinn víti. Viðar fór sjálfur á punktinn og skoraði örugglega. Staðan því orðin 3-3 í þessum mikla markaleik.
Tveimur mínútum eftir markið hirtu eyjamenn boltann á miðjunni og breikuðu hratt upp. Tryggvi skoraði af miklu öryggi er hann var komin einn á auðan sjó. Stuttu seinn virtist brotið á Viðari Kjartans innan teigs, er hann fékk góða sendingu frá Sigga Eyberg. Dómarinn virtist ekki sjá það, en Maggi var fyrstur að átta sig, er boltinn barst út og smelti honum í stöngina. Þar fór síðasta færi leiksins og sigur ÍBV því í höfn.
Tveir leikmenn voru á reynslu hjá Selfyssingum og stóðu sig vel. Sérstaklega átti Robert Sandnes góðan leik, en hann er fljótur að snúa frá vörn í sókn, les leikinn vel bæði sóknarlega og varnarlega. Mikið flæði er í kringum hann og er hann með góðan sendinga og skotfót. Auk þess er hann hraður og ófeimin að láta finna fyrir sér. Nicolaj Pedersen var einnig að spila vel, er með góðar móttökur og átti nokkrar fínar langar sendingar. Hann las leikinn vel og virtist traustur varnarmaður.
Ekki má heldur gleyma íslensku leikmönnunum. En fremstu fjórir virðast vera finna hvern annan betur og betur þó þær mættu allir fækka sínum snertingum á boltann, en það kemur með auknum þroska. Eins eru Stefán Ragnar og Ingólfur Þórarins að spila virkilega vel þessa dagana. Mikill kraftur í þeim sem hefur bæst ofan á knattspyrnuhæfileikana.
Næsti leikur Selfoss er gegn Grindavík, laugardaginn 28. janúar kl 11.30 og fer hann að sjálfsögðu fram í Kórnum Kópavogi. Þar fáum við örugglega að kynnast einhverjum fleiri leikmönnum sem koma til okkar á reynslu.
