Kjartan Sig framlengir
07. jan. ´12 | Tomas | 0 athugasemdir
Annað-Fréttir-Leikmenn-mfl. karla-Undirbúningstímabil
Kjartan Sigurðsson framlengdi á dögunum samning sinn við Selfoss um tvo ár. Miðvörðurinn Kjartan átti þátt í að koma Selfoss upp í efstu deild, en ógleymanlegt er sigurmark hans gegn Fjölni úti, er Selfyssingar skildu Fjölnir eftir í baráttunni um efstu deildarsæti. Kjartan þurfti reyndar að yfirgefa Selfoss eftir leikinn gegn Fjölni, en hann fór út til Bandaríkjanna í nám við háskólann Coastal Carolina University. Þar hefur Kjartan unnið sér sæti í sterku byrjunarliði skólans. Hér má sjá brot af því besta hjá liðinu hans Kjartans frá liðnu ári. Kjartan sem er 22 ára spilaði 8 leiki í efstu deild með Selfoss árið 2010 og skoraði þá 1 mark.
